Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

68 dómar fundust

Lykilorð: Manndráp af gáleysi

Landsréttur birt 26. febrúar 2026

149/2025

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Steinu Árnadóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Ágúst Ólafsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S var ákærð fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn með því að hafa á Landspítalanum, þar sem S starfaði sem hjúkrunarfræðingur, svipt A lífi með því að þröngva ofan í hana innihaldi úr tveimur flöskum af næringardrykk, en S hafi hellt drykknum upp í munn A á meðan henni var haldið að fyrirskipan S, þrátt fyrir að A gæfi til kynna að hún vildi ekki drykkinn, allt með þeim afleiðingum að drykkurinn hafnaði í loftvegi hennar, sem hindraði loftflæði um lungun og olli öndunarbilun svo að A kafnaði Var háttsemin í ákæru talin varða við 211. gr. sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr., laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn. Í dómi Landsréttar var framburður þriggja vitna að atvikinu metinn mun trúverðugri en framburður S og talið hafið yfir skynsamlegan vafa að umrætt sinn hefði S þröngvað næringardrykk ofan í A með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Þá þótti miðað við gögn málsins og framburð vitna, og þrátt fyrir að mörk væru á því vægi sem skýrslu um útvíkkaða réttarkrufningu yrði gefið við sönnunarmat, hafið yfir skynsamlegan vafa að með háttsemi sinni hefði S svipt A lífi og þá með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Þrátt fyrir að ýmis atriði sem S bæri ekki ábyrgð á hefðu stuðlað að því að atvikið gat átt sér stað og haft áhrif á rás atburða breyttu þau því ekki að ákæra málsins tæki til nánar tiltekinnar háttsemi S, er haft hefði nánar tilteknar afleiðingar, og teldust bæði háttsemin og afleiðingar hennar sannaðar. Ósannað þótti að S hefði haft ásetning til að svipta A lífi og var því brot hennar ekki fært undir 211. gr. hegningarlaga. Þá var ekki talið unnt að staðhæfa að í háttsemi S hefði falist vísvitandi stórfelld líkamsárás sem færð yrði undir 2. mgr. 218. gr. sömu laga. S var á hinn bóginn sakfelld fyrir brot gegn 215. gr. laganna, enda hefði hún sýnt af sér gáleysi með háttseminni. Þá var hún einnig sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr., laga nr. 34/2012. Rúmt ár var liðið síðan hinn áfrýjaði dómur gekk í héraði og talsvert á fimmta ár síðan atvik gerðust. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var sú niðurstaða staðfest að fresta ákvörðun refsingar ákærðu skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að S bæri að greiða dánarbúi B 2.760.884 krónur ásamt nánar tilgreindum vöxtum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. janúar 2025

S-2559/2024

Ákæruvaldið (Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hafsteini Rúnari Hjaltasyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður) (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Akærði sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot. Einnig dæmdur til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 21. nóvember 2024

61/2024

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Kristni Eiðssyni (Ásgeir Þór Árnason lögmaður) (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

K var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið hópbifreið án nægilegrar aðgæslu og varúðar og án þess að virða forgang gangandi vegfaranda þannig að hópbifreiðin hafnaði á A sem gekk gengt grænu umferðarljósi yfir gangbraut, svo hún féll við og lenti undir hægra framhjóli og hægri hlið hópbifreiðarinnar með þeim afleiðingum að hún hlaut fjöláverka og lést nær samstundis. Með hliðsjón af dómaframkvæmd og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing K ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var K gert að greiða B og C, hvoru um sig, 2.000.000 króna í miskabætur. Var héraðsdómur staðfestur með vísan til forsendna í Landsrétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. nóvember 2024

S-4451/2024

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sturlu Eide Jenssyni (Oddur Ástráðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Banaslys í umferðinni.

Landsréttur birt 19. september 2024

84/2024

Ákæruvaldið gegn X (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir manndráp af gáleysi samkvæmt 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa ekið bifreið án nægilegrar varúðar með þeim afleiðingum að hann ók bifreiðinni á gangandi vegfaranda sem lést af áverkum sínum. Með dómi héraðsdóms var X sýknaður á þeim grundvelli að ekki væri talið sannað að hann hefði brotið gegn varúðarskyldum sínum samkvæmt 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 19. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og valdið andláti vegfarandans með saknæmu gáleysi. Í dómi Landsréttar var tekið fram að X yrði sýknaður af broti gegn ákvæðinu nema ákæruvaldinu tækist að sýna fram á, þannig að ekki yrði vefengt með skynsamlegum rökum, að vegfarandinn hefði látist sökum gáleysis af hálfu X. Dómurinn taldi ekki að ákæruvaldinu hefði lánast að færa nægar sönnur á að aksturslag X hefði verið því marki brennt. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu X af öllum kröfum ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Suðurlands birt 2. maí 2024

S-66/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn X (Húnbogi J. Andersen lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um manndráp af gáleysi sem og líkamsmeiðingar af gáleysi, en með ölvunar- og ofsaakstri varð hann valdur að dauða eins farþega bifreiðar sinnar og líkamstjóns annars farþega. Var ákærða gert að sæta fangelsi í níu mánuði, þar af sex skilorðsbundið til tveggja ára, auk greiðslu hluta sakarkostnaðar. Þá var ákærði sviptur ökurétti í tvö og hálft ár. Við ákvörðun refsingar var litið til skýlausrar játningar ákærða, hreins sakaferill hans og þess að hann sýndi mikla iðrun. Þá var ákærði dæmdur til að greiða foreldrum hins látna farþega miskabætur og útfarakostnað og hinum slasaða farþega miskabætur, auk málskostnaðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. desember 2023

S-3865/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Kristni Eiðssyni (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot.Var hann dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar í tvo mánuði og sviptur ökurétti í sex mánuði.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. desember 2023

S-205/2023

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir stórkostlegt gáleysi sem leiddi til andláts, líkamstjóns og miska. Fangelsi í 30 daga, fullnustu frestað skilorðsbundið.

Héraðsdómur Austurlands birt 27. júní 2023

S-117/2022

Lögreglustjórinn á Austurlandi ) (Sigurður Hólmar Kristjánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Hilmar Gunnlaugsson lögmaður)
Lykilorð: Manndráp af gáleysi.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir umferðarlagabrot og manndráp af gáleysi.

Hæstiréttur birt 26. apríl 2023

52/2022

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Birni Herberti Guðbjörnssyni (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður) og Skúla Magnússyni (Grímur Sigurðsson lögmaður)

B og S voru ákærðir fyrir hlutdeild í manndrápi af gáleysi samkvæmt 215. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk brota gegn ákvæðum laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerðum nr. 367/2006 um notkun tækja og nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum, annars vegar sem framkvæmdastjóri og hins vegar sem verksmiðjustjóri með því að hafa samþykkt að C, undirmaður þeirra hjá […] ehf., gerði óvirkan öryggisbúnað á frauðpressuvél, sem leiddi til þess að annar starfsmaður beið bana í vinnu við vélina. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ekkert væri komið fram í málinu sem hnekkti mati Landsréttar um að B hefði sem framkvæmdastjóri borið ábyrgð atvinnurekanda í skilningi laga nr. 46/1980 á því að vinnuverndarákvæðum væri fylgt. Ákærði S bar því meðal annars við að hann hefði verið í orlofi þegar hann var upplýstur um að öryggisbúnaðurinn hefði verið aftengur og gæti því ekki borið refsiábyrgð í málinu. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að þegar borin væru saman ákvæði laga nr. 30/1987 um orlof og laga nr. 46/1980 yrði talið að verkstjóri í orlofi losnaði ekki undan refsiábyrgð á vanrækslu sinni á skyldum samkvæmt lögum nr. 46/1980 sem tilkomin var áður en hann fór í orlof. Hefði S brugðist þeirri athafnaskyldu sem á honum hvíldi til að gera það sem honum var með góðu móti unnt að gera til að afstýra þeirri yfirvofandi slysahættu sem hafði skapast. Var niðurstaða Landsréttar um sakfellingu B og S fyrir brot gegn ákvæðum laga nr. 46/1980 og reglugerða nr. 367/2006 og 920/2006 staðfest. Hæstiréttur staðfesti jafnframt niðurstöðu Landsréttar um að sakfella B og S fyrir manndráp af gáleysi. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að ákærðu hafi borið að bregðast við þeim upplýsingum sem þeir fengu frá C um að öryggisrofi á hættulegri vél hefði verið aftengdur með því að banna notkun vélarinnar eða sjá til þess að starfsmenn yrðu upplýstir um aftengingu öryggisbúnaðarins. Yrði þetta athafnaleysi þeirra lagt að jöfnu við að þeir hafi með gáleysislegu liðsinni í verki eða á annan hátt átt þátt í því manndrápi af gáleysi sem dómfelldi C var sakfelldur fyrir með dómi héraðsdóms. Hæstiréttur þyngdi refsingu beggja ákærðu. Refsing B var ákveðin fangelsi í þrjá mánuði og refsing S fangelsi í tvo mánuði en fullnustu refsinganna frestað skilorðsbundið í tvö ár. Litið var til þess að rannsókn málsins og útgáfa ákæru hefði dregist úr hófi án þess að B og S yrði kennt um.

Landsréttur birt 25. nóvember 2022

164/2022

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Dumitru Calin (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

D var sakfelldur í héraði fyrir þjófnað og fjársvik auk umferðarlagabrota. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa ekið bifreið með 15 til 20 kílómetra hraða á klukkustund sem leið lá út af bifreiðaplani þrátt fyrir að A héldi báðum höndum um hliðarrúðu ökumanns og hann dróst þannig eða hljóp með bifreiðinni uns hann féll í jörðina og í kjölfarið fór D af vettvangi án þess að huga að A. D var aftur á móti sýknaður af hættubroti, sbr. 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem 215. gr. sömu laga var talin tæma sök gagnvart því ákvæði eins og atvikum máls væri háttað. Fyrir Landsrétti krafðist ákæruvaldið endurskoðunar á þeirri niðurstöðu en D krafðist sýknu af ákærunni þar sem háttsemin hefði verið refsilaus þar sem skilyrði 1. mgr. 12. gr. almennra hegningarlaga um neyðarvörn væru uppfyllt. Féllst Landsréttur ekki á að gálausu viðbrögð D hefðu getað helgast af neyðarvörn. Varð því slegið föstu að með hinni gálausu háttsemi sem leiddi til andláts A hefði D brotið gegn 215. gr. almennra hegningarlaga. Leysti það D ekki undan refsiábyrgð samkvæmt ákvæðinu að A hefði jafnframt sýnt af sér gáleysi. Kom þá til skoðunar hvort D hefði í kjölfar gáleysisbrotsins gerst sekur um brot gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. Landsréttur vísaði til þess að ástand A hefði verið mjög alvarlegt strax eftir að hann féll af bifreið D og í jörðina. Með því að yfirgefa A eftir fallið án þess að kanna ástand hans og eftir atvikum kalla eftir aðstoð hefði D sýnt af sér algert skeytingarleysi um ástand hans. Þegar allt þetta væri virt þótti ákæruvaldinu hafa tekist að sanna svo ekki yrði vefengt með skynsamlegum rökum að D hefði í kjölfar þess að A féll í jörðina ekið af vettvangi án þess að huga að honum og þannig yfirgefið mann án bjargar sem hann átti að sjá um. Með háttsemi sinni taldist D því hafa brotið gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. D var því með dómi Landsréttar jafnframt sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var refsing D ákveðin fangelsi í tvö ár. Þá var D sviptur ökurétti og gert að greiða foreldrum A miskabætur.

Landsréttur birt 16. júní 2022

434/2021

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Birni Herberti Guðbjörnssyni (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður) og Skúla Magnússyni (Grímur Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

BHG og SM voru ákærðir fyrir manndráp af gáleysi samkvæmt 215. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk brota gegn ýmsum ákvæðum laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerðum nr. 367/2006 um notkun tækja og nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum. Tóku sakargiftir til þess að þeir hefðu, sem eigandi, framkvæmdastjóri og atvinnurekandi fyrirtækis annars vegar og verkstjóri, starfsmaður, eigandi og daglegur stjórnandi þess hins vegar, samþykkt að undirmaður þeirra gerði öryggisbúnað frauðpressuvélar óvirkan, „vitandi vits“ að starfsmenn fyrirtækisins færu reglulega inn í vélina til þess að hreinsa hana, með þeim afleiðingum að maður lést. Með dómi héraðsdóms voru BHG og SM sakfelldir fyrir hlutdeild í manndrápi af gáleysi en sýknaðir af brotum gegn lögum nr. 46/1980 og fyrrnefndum reglugerðum á grundvelli þess að þau brot væru fyrnd. Með dómi Landsréttar var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu BHG og SM fyrir hlutdeild í manndrápi af gáleysi staðfest en með vísan til 4. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga var talið að önnur brot væru ófyrnd. Voru þeir því jafnframt sakfelldir fyrir nánar tilgreind brot gegn lögum nr. 46/1980 og fyrrnefndum reglugerðum. Var refsing ákærðu ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsinganna var frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Austurlands birt 20. apríl 2022

S-140/2021

Héraðssaksóknari (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn A Mál þetta, sem dómtekið var 25. febrúar 2022, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 18. (Þórður Már Jónsson, skipaður verjandi)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir húsbrot, vopnalagabrot, eignaspjöll, brot gegn barnaverndarlögum, brot í nánu sambandi, brot gegn valdstjórninni og fyrir tilraunir til manndráps.

Héraðsdómur Reykjaness birt 25. febrúar 2022

S-2361/2021

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn Dumitru Calin (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi, þjófnað, fjársvik, fíkniefnaakstur og akstur án þess að hafa ökuskírteini meðferðis

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2021

S-1069/2021

Ákæruvaldið (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Manndráp og líkamsmeiðing af gáleysi í tengslum við umferðarslys.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. maí 2021

S-2983/2020

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Sigurgeri Svani Jóhannssyni (Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður), Birni Herberti Guðbjörnssyni (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður) og Skúla Magnússyni (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu voru sakfelldir fyrir manndráp af gáleysi þegar starfsmaður Palstgerðar Suðurnesja klemmdist á milli móta í frauðkassastypuvél og lést af þeim áverkum sem hann hlaut við það. Einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.

Landsréttur birt 4. desember 2020

492/2019

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Marcin Mormola (Bjarni Hauksson lögmaður) (Bryndís Guðmundsdóttir lögmaður brotaþola)

M var sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið án nægilegrar varúðar og að hafa verið þannig á sig kominn að hann var ekki fær um að stjórna ökutækinu örugglega með þeim afleiðingum að ökutækið fór yfir á rangan vegarhelming og lenti í árekstri við annað ökutæki. Við áreksturinn hlaut farþegi í bifreiðinni sem M ók slíka fjöláverka að hann lést auk þess sem ökumaður hinnar bifreiðarinnar, A, slasaðist. Refsing ákærða þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákvæði héraðsdóms um tímabundna sviptingu ökuréttar var á hinn bóginn fellt úr gildi þar sem í greinargerð ákæruvaldsins til Landsréttar var ekki vikið að kröfum þess er lutu að ákvæði héraðsdóms þess efnis. Þá var M dæmdur til að greiða A miskabætur.

Landsréttur birt 2. október 2020

546/2019

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Helga Haraldssyni (Stefán Geir Þórisson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var sakfelldur fyrir að hafa ekið hópbifreið, sem var ekki í lögmæltu ástandi, of hratt miðað við aðstæður og of nálægt fólksbifreið sem fram undan var, en hópbifreiðinni var ekið á afturhorn fólksbifreiðarinnar og lenti í kjölfarið utan vegar og valt með þeim afleiðingum að tveir farþegar hópbifreiðarinnar létust og aðrir tveir hlutu alvarleg líkamsmeiðsl. Varðaði brot H við 215. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk nánar tilgreindra ákvæða umferðarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að H hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og var refsing hans ákveðin fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var H sviptur ökurétti í tvö ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. júlí 2019

S-31/2019

Héraðssaksóknari (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn Vigfúsi Ólafssyni (Óskar Sigurðsson lögmaður) og X (Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir brennu og manndráp af gáleysi með því að valda eldsvoða í íbúðarhúsi með þeim afleiðingum að tveir einstaklingar létust af völdum kolmónoxíðeitrunar. Kona sýknuð af ákæru fyrir almannahættubrot með því að hafa látið hjá líða að gera það sem í hennar valdi stóð til að aðvara framangreinda einstaklinga eða koma þeim til bjargar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. júní 2019

S-288/2018

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Helgi Haraldsson (Jón Stefán Hjaltalín Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Bifreiðastjóri hópferðabifreiðar dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár og til sviptingar ökuréttar í 2 ár fyrir að hafa ekið bifreiðinni of hratt miðað við aðstæður með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti á annarri bifreið, fór yfir á öfugan vegarhelming og valt þar með þeim afleiðingum að tveir farþegar hópferðabifreiðarinnar létust og tveir aðrir slösuðust alvarlega

Landsréttur birt 5. apríl 2019

182/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Arnari Frey Logasyni (Hildur Sólveig Pétursdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

AF var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa ekið hjólabát aftur á bak án nægjanlegrar aðgæslu þannig að hjólabáturinn hafnaði á gangandi vegfaranda, A, með þeim afleiðingum að hún lést. Var refsing AF ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var AF sviptur ökurétti í sex mánuði.

Landsréttur birt 15. febrúar 2019

321/2018

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Jóhanni Frey Frímannssyni (Geir Gestsson lögmaður, Almar Þór Möller lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

J var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sinni, sem var ekki í notkunarhæfu ástandi, ófær um að stjórna henni örugglega vegna notkunar á deyfandi lyfjum, án nægilegrar aðgæslu og langt yfir leyfilegum hraða með þeim afleiðingum að bifreiðin rakst aftan á aðra fólksbifreið, sem ekið var í sömu átt, en við það kastaðist sú bifreið framan á smárútu sem ekið var á móti báðum bifreiðunum og ökumaður hinnar fólksbifreiðarinnar lést og farþegi í smárútunni slasaðist. Varðaði brot J við 215. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk nánar tilgreindra ákvæða umferðarlaga og reglugerðar um gerð og búnað ökutækja. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils J og tekið tilliti til ákvæða 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, einkum 1., 2. og 3. töluliðar, og höfð hliðsjón af 1. mgr. 77. gr. sömu laga, auk þess sem refsing hans var tiltekin sem hegningarauki. Var refsing J ákveðin fangelsi í níu mánuði. Þá var J sviptur ökurétti í eitt ár.

Héraðsdómur Austurlands birt 10. janúar 2018

S-29/2017

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Arnari Frey Logasyni (Áslaug Gunnlaugsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem bakkaði hjólabát á gangandi vegfaranda með þeim afleiðingum að hann lést, var sakfelldur fyrir hegningarlagabrot (manndráp af gáleysi) og umferðarlagabrot. Refsing var ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var ákærði sviptur ökurétti í sex mánuði.

Hæstiréttur birt 19. janúar 2017

249/2016

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Chengtao Wang (Eva Bryndís Helgadóttir hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

C var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa ekið bifreið inn á einbreiða brú á móti annarri bifreið, sem var komin langt á veg yfir brúna úr gagnstæðri átt, með þeim afleiðingum að árekstur varð og ökumaður hinnar bifreiðarinnar lést. Var refsing C ákveðin fangelsi í 3 mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í 2 ár. Þá var hann sviptur ökurétti í 10 mánuði.

Hæstiréttur birt 3. desember 2015

60/2015

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Guðmundi Sigurðssyni (Páll Arnór Pálsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi. Ekki var talið að rökstuddur grunur beindist að X um að hún hafi gerst sek um háttsemi sem fangelsisrefsing væri lögð við, sbr. 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.

Hæstiréttur birt 20. febrúar 2014

625/2013

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn Gunnari Júlíusi Helgasyni (Jóhannes Albert Sævarsson hrl) og Einari Birgi Kristjánssyni (Jón Jónsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

G var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið vörubifreið með vélavagn, án nægilegrar aðgæslu, en vagninn hentaði ekki til flutninga á þeim farmi sem hann flutti og var að auki bremsulítill eða bremsulaus, á mismunandi stórum dekkjum sem voru með mismunandi loftþrýstingi og hlaðinn 12,1 tonni af steinrörum. Leiddi þetta til þess að vagninn leitaði of mikið til vinstri yfir miðlínu vegarins sem ekinn var með þeim afleiðingum að hann lenti á flutningabifreið sem kom á móti og losnaði við það farmurinn af vagninum og fór að hluta inn í ökumannshús flutningabifreiðarinnar þar sem hann lenti á ökumanni hennar sem hlaut við það svo mikla áverka að hann lést nær samstundis. Þá var E sakfelldur fyrir hlutdeild í broti G með því að hafa, sem eigandi og stjórnandi fyrirtækis þess sem átti vagninn, ekki gengið úr skugga um hvernig dekk hefðu verið undir vagninum, en honum hefði verið kunnugt um að ekki hefðu öll dekk vagnsins verið af sömu stærð. Auk tilgreindra ákvæða umferðarlaga og reglugerðar nr. 671/2008 var háttsemi G talin varða við 215. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en háttsemi E við það ákvæði, sbr. 22. gr. laganna. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til þess að hvorki G né E hefði áður verið gerð refsing, G hefði haft hugann mjög við farminn allt fram að slysinu og hefðu hvorki G né E reynt að breiða yfir þátt sinn í málinu. Var refsing G ákveðin fangelsi í 4 mánuði og E fangelsi í 2 mánuði, en í báðum tilvikum var fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í 2 ár. Þá var G sviptur ökurétti í 6 mánuði.

Héraðsdómur Vesturlands birt 24. október 2011

S-426/2010

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn X (Brynjar Níelsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Bílstjóri vöruflutningarbifreiðar sýknaður af því að hafa valdið umferðarslysi með gáleysislegum framúrakstri.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. ágúst 2011

S-144/2011

Ákæruvaldið (Halla Bergþóra Björnsdóttir sýslumaður) gegn A
Lykilorð: Manndráp af gáleysi.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ung kona lenti í umferðarslysi og var sakfelld fyrir manndráp af gáleysi.

Hæstiréttur birt 9. júní 2011

497/2010

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir settur saksóknari) gegn Stefáni Sæmundi Jónssyni (Kristján B. Thorlacius hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var gefið að sök manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis og án aðgæslu, yfir á rangan vegarhelming miðað við akstursstefnu með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti þar í árekstri við aðra bifreið, sem kom úr gagnstæðri átt, og ökumaður þeirrar bifreiðar lést við áreksturinn. Var þetta talið varða við ákvæði almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum. S játaði sök, en í málinu var til úrlausnar ákvörðun um refsingar fyrir þau brot sem um ræddi. Við ákvörðun refsingar var tekið mið af því að með stórkostlega háskalegri háttsemi sinni hefði S valdið dauða annars manns, en S var bæði mjög ölvaður umrætt sinn og að auki sviptur ökurétti. Þá var einnig litið til sakaferils S, en hann hafði áður verið dæmdur fyrir að aka ölvaður og án ökuréttar. S hlaut sjálfur töluverða áverka við slysið. Þá fór hann í áfengismeðferð í ágúst 2009 sem samkvæmt gögnum málsins hefði með einu fráviki gengið vel. Að þessu öllu virtu var refsing S ákveðin fangelsi í níu mánuði, en að virtum sakaferli hans þóttu ekki efni til að binda refsinguna eða hluta hennar skilorði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. apríl 2011

S-749/2010

Ákæruvaldið (Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi) gegn Jóni Inga Kristinssyni (Guðmundur Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ungur maður sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi, líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Refsing ákveðin fangelsi í 12 mánuði, þar af voru 9 mánuðir skilorðsbundnir. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 3 ár.

Héraðsdómur Austurlands birt 16. nóvember 2009

S-108/2009

Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi) gegn Wojciech Zdzislaw Grzelak (Gísli M. Auðbergsson hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og ökuréttarsviptingu fyrir manndráp af gáleysi, ölvunarakstur og önnur umferðarlagabrot.

Hæstiréttur birt 12. nóvember 2009

550/2008

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari) gegn Halldóri Kristjánssyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa, þegar X ók bifreið frá R áleiðis í B, dregið kerru sem var ekki í notkunarhæfu ástandi og að hafa á leið vestur V ekið bifreiðinni yfir á akrein fyrir umferð á móti með þeim afleiðingum að árekstur varð við bifreið, sem ekið var austur sama veg, farþegi í þeirri bifreið hlaut slíka áverka að hún lést nær samstundis og ökumaður bifreiðarinnar slasaðist illa. Héraðsdómur, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmönnum, féllst á það með X að ástand kerrunnar hefði ekki átt þátt í árekstrinum og þar með slysinu. Þá taldi héraðsdómur að árekstur bifreiðanna mætti rekja til þess að X hefði sveigt bifreið sinni til vinstri og við það hefðu hægri framendar bifreiðanna skollið saman með þeim afleiðingum sem í ákæru greindi. Hæstiréttur taldi að þegar litið væri til matsgerðar dómkvaddra manna, sem aflað hafði verið eftir uppkvaðningu málsins í héraði, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms yrði hann staðfestur um annað en ökuréttarsviptingu, en ákæruvaldinu hafði láðst að geta hennar í greinargerð fyrir Hæstarétti. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið.

Hæstiréttur birt 12. febrúar 2009

430/2008

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Hilmari Péturssyni (Guðmundur Óli Björgvinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var ákærður fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið langt yfir leyfðum hámarkshraða og án aðgæslu yfir á rangan vegarhelming miðað við akstursstefnu með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti í árekstri við bifreið sem kom úr gagnstæðri átt og ökumaður og farþegi þeirrar bifreiðar létust. Talið var hafið yfir skynsamlegan vafa að H hafi ekið á ofsahraða þegar slysið varð og ekkert væri fram komið um að það hafi mátt rekja til ástands bifreiðarinnar fyrir slysið eða aðstæðna á veginum. Varðaði brot H við 215. gr. almennra hegningarlaga, auk nánar tilgreindra ákvæða umferðarlaga. Við mat á refsingu H var tekið mið að því að háttsemi hans var stórkostlega háskaleg og olli dauða tveggja manna. Jafnframt var tekið tillit til ungs aldurs H, þess að hann hafði ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað, að hann hlaut sjálfur töluverða áverka við slysið og þess að ekki var víst að annar þeirra sem lést hafi verið með öryggisbelti spennt, en það kunni að hafa átt þátt í því að bani hlaust af. Var refsing H ákveðin fangelsi í níu mánuði en sex mánuðir þar af bundnir skilorði. Þá var H sviptur ökurétti í þrjú ár.

Hæstiréttur birt 6. nóvember 2008

365/2008

Ákæruvaldið gegn Þórði Jónsteinssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl, Jónas Þór Guðmundsson hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Þ var ákærður fyrir að hafa ekið bifreið sinni of hratt miðað við aðstæður á röngum vegarhelmingi með þeim afleiðingum að hann lenti í árekstri við bifreið sem kom úr gagnstæðri átt og farþegi í þeirri bifreið lést, annar farþegi lamaðist á fótum, ökumaður þeirrar bifreiðar rifbrotnaði og marðist á brjóstkassa, kviðvegg og hné, auk þess sem farþegi í bifreið Þ lét lífið. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna, var talið sannað með vitnisburði tveggja vitna að Þ hefði í umrætt sinn ætlað sér að aka fram úr vörubifreið og í því skyni ekið yfir á rangan vegarhelming. Var akstur Þ talinn gáleysislegur og vítaverður miðað við þær aðstæður sem á vettvangi voru og varðaði brot hans við 215. og 219. gr. almennra hegningarlaga, auk nánar tilgreindra ákvæða umferðarlaga. Við mat á refsingu Þ var meðal annars litið til þess að hann hafði í alls níu skipti eftir umrætt slys verið staðinn að hraðakstri. Að þessu virtu þótti refsing hans hæfilega ákveðin 12 mánaða fangelsi en ekki þótti stætt á að skilorðsbinda refsingu Þ að hluta.

Hleð fleiri dómum…