Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 16. mars 2016.
Mál nr. S-6/2016:
Ákæruvaldið
(Grímur Hergeirsson ftr)
gegn
Chengtao Wang
svofelldur
d ó m u r :
(Eva Bryndís Helgadóttir hrl)
Lykilorð
Játningarmál. Manndráp af gáleysi.
Útdráttur
Umferðaslys.
Mál þetta, sem þingfest var 26. febrúar 2016 og dómtekið 10. mars 2016, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurlandi þann 22. febrúar sl., sem barst dóminum 23. febrúar sl., á hendur Chengtao Wang, kínverskum ríkisborgara „fyrir hegningar- og umferðarlagabrot: með því að hafa, síðdegis laugardaginn 26. desember 2015, ekið bifreiðinni XXX austur Suðurlandsveg í Öræfasveit inn á einbreiða brú á Hólá, of hratt miðað við aðstæður þar sem snjór og krapi var á veginum og án nægjanlegrar aðgæslu þannig að hann hafði ekki fulla stjórn á bifreiðinni sem skall framan á vinstra framhorn bifreiðarinnar XXX sem ekið var í gagnstæða átt og átti skammt ófarið yfir brúnna, með þeim afleiðingum að ökumaður XXX, Koji Banno, hlaut mikla áverka á brjósti og lést skömmu síðar.
Teljast brot ákærða varða við 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, 1. mgr. 19. gr. og 1. mgr., sbr. g. og h. lið 2. mgr. 36. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins og neitaði sök. Var honum skipaður verjandi að hans ósk Eva B. Helgadóttir hrl. Við fyrirtöku málsins 10. mars sl. óskaði ákærði eftir að breyta afstöðu sinni til sakarefnisins og játaði hann skýlaust þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Var málið þá tekið til dóms skv. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að sækjandi og skipaður verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði og viðurlög, enda taldi dómari ekki ástæðu til að draga í efa að játningin væri sannleikanum samkvæm.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað.
Við ákvörðun refsingar ákærða ber að líta til þess að hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað, sem og til þess að hann hefur játað brot sitt hreinskilnislega.
Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði en fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Samkvæmt tilvitnuðum ákvæðum ber að svipta ákærða ökurétti og er ökuréttarsvipting hans hæfilega ákveðin 10 mánuðir frá birtingu dómsins að telja.
Samkvæmt 216. gr. laga nr. 88/2008 teljast til sakarkostnaðar óhjákvæmileg útgjöld vegna rannsóknar sakamáls og meðferðar þess. Samkvæmt 1. mgr. 218. gr. laganna ber dómfelldum manni að greiða sakarkostnað, enda sé hann sakfelldur fyrir það brot eða þau brot sem honum eru gefin að sök.
Samkvæmt yfirliti Lögreglustjórans á Selfossi er útlagður kostnaður vegna rannsóknar á máli þessu alls kr. 4.228.779, að meðtöldum útlögðum kostnaði vegna skipaðs verjanda ákærða á rannsóknarstigi. Meðal hins útlagða kostnaðar eru kr. 540.835 vegna flutnings ökutækja af slysavettvangi, en ljóst er að óhjákvæmilegt var að flytja ökutækin á brott, án tillits til þess hvort um sakamálarannsókn væri að ræða. Þá er þar jafnframt að finna kostnað vegna líkflutnings, kr. 87.460, en ljóst er að það var óhjákvæmilegur kostnaður án tillits til þess hvort um sakamálarannsókn væri að ræða. Verður ákærða ekki gert að greiða þennan kostnað og ekki heldur kostnað vegna áverkavottorðs um hann sjálfan að fjárhæð kr. 47.100. Að öðru leyti verður ákærða gert að greiða útlagðan sakarkostnað samkvæmt yfirliti, en hvorki verður séð að stofnað hafi verið til óþarfa rannsókna eða kostnaðar við rannsókn lögreglu, né að kostnaður hafi orðið vegna vanrækslu eða skeytingarleysis, sbr. 3. ml. 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008. Þá ber ákærða að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Evu B. Helgadóttur hrl., kr. 1.207.140 að meðtöldum virðisaukaskatti. Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Chengtao Wang, sæti fangelsi í 3 mánuði.
Fresta ber fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði er sviptur ökurétti í 10 mánuði frá birtingu dómsins.
Ákærði greiði sakarkostnað, alls kr. 4.760.524, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Evu B. Helgadóttur hrl., kr. 1.207.140.
Sigurður G. Gíslason