Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

83 dómar fundust

Lykilorð: Eignarréttarmál

Héraðsdómur Vestfjarða birt 10. apríl 2026 kl. 21:08

E-23/2024

Harpa Harðardóttir, Hallfríður Ragúelsdóttir, Gígja Harðardóttir, Guðríður H Benediktsdóttir, Gunnlaugur Kristinn Hreiðarsson, Jónína Sturludóttir, Soffía Hrönn Gunnarsdóttir, Ívan Jökull Pallé, Jóna Ragnhildur Ragúelsdóttir, Vigdís Unnur Gunnarsdóttir, Rannveig Ragúelsdóttir, Þórir Bergmundsson, Helgi Már Hreiðarsson, Stígur Arnórsson, Írena Hlín Júlíusdóttir, Frímann A Sturluson, Ásthildur Gunnarsdóttir, Davíð Arnar Stefánsson, Stefán Hagalín Ragúelsson, Bergþóra Bergmundsdóttir, Freyja Haraldsdóttir, Jóna Benediktsdóttir, Svanfríður Arnórsdóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Hjalti Allan Sverrisson, Stefán Jökull Stefánsson, Björk Sverrisdóttir, Guðný Jórunn Gunnarsdóttir, Stígur Haraldur Sturluson, Elfa Dís Arnórsdóttir, Elfa Björk Benediktsdóttir, Hrefna Rósinbergsdóttir, Andrea Sigrún Harðardóttir, Stígur Stígsson, Guðmundur Bjartur Júlíusson, Birna Guðrún Sverrisdóttir, Jóhann Valdimarsson, Iðunn Haraldsdóttir, Halldór Gunnarsson, Halldís Gunnarsdóttir og Frímann Benediktsson (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sigurgeir Valsson lögmaður)

Deilt var um eignarréttarlega stöðu Hornbjargs en með úrskurði óbyggðanefndar var komist að þeirri niðurstöðu að svæðið væri þjóðlenda. Dómurinn tók til skoðunar hvort nefndin hefði dregið forsvaranlegar ályktanir af fyrirliggjandi gögnum um bjargið og komst að þeirri niðurstöðu að það tilheyrði jörðinni Horni. Fallist var á kröfu stefnenda um ógildingu úrskurðar óbyggðanefndar að hluta og um viðurkenningu á beinum eignarrétti að hinu umþrætta landsvæði.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 10. apríl 2026 kl. 21:08

E-22/2024

Guðfinna Sigurjónsdóttir, Sigurjón Kristinn Sigurjónsson, Bjarki Bjarnason, Guðbjörg Nordal Þorsteinsdóttir, Hilmar Hjartarson, Hjördís Hjartardóttir, Sigurður Bjarni Hjartarson, Sigríður J. Sigurjónsdóttir, Hallgrímur Magnús Sigurjónsson og Viðar Hjartarson (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sigurgeir Valsson lögmaður)

Deilt var um eignarréttarlega stöðu landsvæðisins Bjarnarness á Ströndum en með úrskurði óbyggðanefndar hafði verið komist að þeirri niðurstöðu að um þjóðlendu væri að ræða. Dómurinn tók til skoðunar hvort nefndin hefði dregið forsvaranlegar ályktanir af fyrirliggjandi heimildum um svæðið og komst að þeirri niðurstöðu að stefnendur hefðu ekki sýnt fram á að Bjarnarnes teldist eignarland þeirra. Þá benti ekkert til þess að til hefðbundins afnotaréttar stefnenda hefði stofnast. Var stefndi, íslenska ríkið, því sýknaður af kröfum stefnenda.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 23. apríl 2025

E-105/2023

Íslenska ríkið (Andri Andrason lögmaður) gegn Felix von Longo-Liebenstein (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður)

Deilt var um námur og náma-, vatns- og jarðhitaréttindi, síðastnefndu réttindin tvö umfram heimilisþarfir, í landi jarðarinnar Engjaness í Árneshreppi. Á grundvelli afsalsbréfs 30. janúar 1958 var viðurkennt að stefnandi, íslenska ríkið, væri eigandi réttindanna. Ekki var fallist á málsástæður stefnda fyrir því að afsalsbréfið hefði ekki gildi gagnvart honum. Annarri kröfu stefnanda var vísað frá dómi þar sem með henni þótti stefnt að sama markmiði.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 22. apríl 2025

E-30/2024

Kjartan Magnússon og G 129 ehf (Benedikt Ólafsson lögmaður) gegn Vesturbyggð (Björn Jóhannesson lögmaður)

Deilt var um eignar-, umráða- og nýtingarrétt yfir jarðhita á landspildum sem sveitarfélag fékk keypt og að gjöf úr landi jarðar, auk bótaskyldu vegna nýtingar sveitarfélagsins á heitu vatni. Komist var að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið samið sérstaklega um eignarhald þessara réttinda og var því litið til ákvæða þeirra laga sem giltu á þeim tíma sem landkaupin og gjöfin áttu sér stað. Með vísan til þess að landspildurnar hefðu talist til landareignar í skilningi þágildandi orkulaga og laga um eignar- og notkunarrétt jarðhita var talið að þeim hefðu fylgt jarðhitaréttindi og óheimilt hefði verið að skilja þau frá spildunum nema með sérstöku leyfi ráðherra. Var sveitarfélagið því sýknað af kröfum landeigenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2023

E-4754/2022

Gunnhildur Loftsdóttir (Hlynur Jónsson lögmaður) gegn Landsvirkjun (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Ágreiningur var um hvort systkinum stefnanda hafi verið heimilt eða ekki að selja stefnda á leigu tiltekin eignarréttindi sem lutu m.a. að vatnsréttindum, án samþykkis stefnanda, með vísan til óskráðra reglna um óskipta sameign. Fallist var á að systkinum stefnanda hefði verið heimilt að ráðstafa eignarhlut sínum í hinum óskiptu réttindum til stefnda út frá þeim reglum sem gilda um inntak eignarréttar og forræði á eignarhlutdeild í sameign. Stefndi öðlaðist við framsalið þann rétt sem fyrri eigendur áttu og gekkst undir sömu skyldur og þau gagnvart stefnanda sem meðeiganda. Framsal til þriðja aðila og skipting eignarinnar breyttu engu um stöðu stefnda enda höfðu seljendur áður ráðstafað þessum réttindum til stefnda og báðir aðilar vissu um tilvist og efni samninganna. Þá var ekki fallist á að þinglýsing réttindanna skipti einhverju máli, enda ekki hlutverk sýslumanns að ákvarða lögskipti að baki skjölunum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 1. september 2022

E-115/2022

Guðrún María Valgeirsdóttir, Sigurður Jónas Þorbergsson, Finnur Sigfús, Illugason, R3 ehf., Bryndís Jónsdóttir, Sigurður Baldursson, Sólveig Ólöf og Illugadóttir, Kristín Þ Sverrisdóttir (Guðmundur Pétursson lögmaður) gegn Skútustaðahreppur (Jón Jónsson lögmaður)

Máli landeigenda gegn Skútustaðahreppi, þar sem krafist var viðurkenningar á beinum eignarrétti stefnenda að Varmaskiptastöð í Bjarnarflagi í Skútustaðahreppi, var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. maí 2022

E-4037/2021

Eignarhaldsfélagið Skólabrú 1 ehf (Pétur Már Jónsson lögmaður) gegn Kviku banka hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Stefnandi krafðist þess að stefndi afhenti honum eða endurgreiddi honum fjármuni sem lagðir voru inn til Virðingar hf. forvera stefnda á árinu 2007. Óupplýst er hvernig þeim var að endingu ráðstafað og snerist ágreiningur aðila um það hvort stefnda beri að standa stefnanda skil á þessum fjármunum. Stefnandi var hvorki talinn hafa sýnt fram á að hann sé rétthafi umræddra fjármuna sem stefnda beri að afhenda honum né hafi hann sýnt fram á að til kröfuréttarsambands hafi stofnast á milli aðila málsins vegna meðferðar fjármunanna. Var stefndi sýknaður vegna aðildarskorts stefnanda.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 26. febrúar 2018

E-54/2018

Íslenska ríkið (Atli Már Ingólfsson lögmaður) gegn Andra Egilssyni og Bryndísi Helgadóttur og Darra Egilssyni og Agli Ágústssyni og Helga Þór og Helgasyni og Hrund Ásgeirsdóttur og Kristni Rúnari Tryggvasyni og Ingólfi Jónssyni og Freyju Ingólfsdóttur og Jóni Guðmundssyni og dánarbúi Jóns G. Stefánssonar og Jóni og Tryggva Helgasyni og Katrínu Eymundsdóttur og Kristni Sigurði Yngvasyni og Helga Þór og Logasyni og Kristínu Þorbjörgu Logadóttur og Norðurþingi og Oktavíu Stefaníu og Helgadóttur og Torfa Ingólfssyni og Báru Siguróladóttur, Ágústu Ágústsdóttur (Arnar Sigfússon lögmaður), Agli Egilssyni og Eyrúnu Egilsdóttur og Norðurþingi (Garðar Þ. Garðarsson lögmaður), Sævari Erni Sigurðssyni (sjálfur) og Kristrúnu Ísaksdóttur og Sigurbjörgu Ísaksdóttur og Sigurgeiri Ísakssyni og dánarbúi og Sveininnu Jónsdóttur og Eyvindarstöðum ehf. (enginn)

Landeigendur og íslenska ríkið deildu um eignarhald og landamerki jarða sem afhentar voru Sandgræðslu Íslands (síðar Landgræðslu) til uppgræðslu fyrir miðja síðustu öld. Talið var að íslenska ríkið hefði fengið jarðirnar afhentar til eignar og fallist á afmörkun landamerkja í samræmi við endanlegar kröfur ríkisins

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. nóvember 2020

E-208/2019

Arnfríður Jóhannsdóttir (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn Kristjönu Sigurmundsdóttur, Rut Sigurðardóttur, Önnu Brynjólfsdóttur Klettholti ehf., Magnúsi Páli Brynjófssyni, Guðrúnu Sólveigu Pálmadóttur, Margréti Brynjólfsdóttur , Grétari Páli Ólafssyni, til réttargæslu, Reyni Jónssyni, Einari Jónssyni, Tómasi Þóri Jónssyni, Þresti Jónssyni, Garðari, Olgeirssyni, Sigurði O. Kjartanssyni, Helgu Sólveigu Jóhannesdóttur, Þuríði, Guðjónsdóttur, Mörtu Gígju Ómarsdóttur, Ólafi Stefánssyni, Páli Jóhannssyni og Steinunni Margréti Larsen, Hjalta Árnasyni og Guðrúnu Hermannsdóttur (Óskar Sigurðsson lögmaður)

Deilt um landamerki og eignarhald á landi. Hluta dómkrafna vísað frá dómi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. september 2020

E-269/2019

María G. Blómkvist (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn Sigurði O. Kjartanssyni Helgu Sólveigu Jóhannsdóttur og Þuríði Guðjónsdóttur (Magnús Guðlaugsson lögmaður)

Stefndu voru sýknuð af kröfu stefnanda um viðurkenningu á eignarrétti yfir fasteign, þar sem ósannað þótti að þeir sem stefnandi leggi rétt sinn af hefðu öðlast eignarrétt yfir hinni umdeildu fasteign.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 16. apríl 2019

E-17/2018

Orkubú Vestfjarða ohf (Jónas A. Aðalsteinsson hrl) gegn Ísafjarðarbæ (Andri Árnason hrl) og AB - Fasteignum ehf. (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Fallist á kröfur stefnanda um viðurkenningu á réttindum hans til virkjunar fallvatns í Úlfsá í Dagverðardal, og ógildingu samnings Ísafjarðarbæjar við þriðja aðila um rannsóknar- og virkjunarleyfi.

Héraðsdómur Vesturlands birt 29. mars 2019

E-14/2018

Vilhjálmur Einar Sumarliðason, Eva Ingibjörg Sumarliðadóttir, Jóhannes Torfi Sumarliðason, Þórdís M. Sumarliðadóttir, Ólöf S. Sumarliðadóttir, Pétur Ísleifur Sumarliðason, Sveinbjörg R. Sumarliðadóttir og Ágúst Páll Sumarliðason (Ingi Tryggvason lögmaður) gegn Ólöfu Sigurðardóttur, Elísabetu, Sigurðardóttur, dánarbúi, Ingibjargar Sigurðardóttur og Sesselju Kristínu Sigurðardóttur (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Viðurkennt að stefnendur sem eigendur jarðar eigi veiðirétt sem undanskilinn var ásamt spildu úr landi jarðar á árinu 1943.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. desember 2018

E-287/2018

Hrefna Smith, Jan Henje, Katla Smith Henje, Pétur Kristinn Arason, Bjarney Ragna Róbertsdóttir, Berg Framtíð ehf, Sólveig Hólmfríður Sverrisdóttir, Gunnar Eiríksson og Mildrid Irene Steinberg (Óskar Sigurðsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórhildur Lilja Ólafsdóttir lögmaður)

Deilt um eignarrétt að bílastæðum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. júní 2017

E-2159/2017

T8 ehf, Alliance Francaise, Borghildur Einarsdóttir, Baldur Öxdal Halldórsson og Húsfélagið Tryggvagötu 8 (Björgvin Halldór Björnsson lögmaður) gegn A 16 fasteignafélagi ehf (Ívar Pálsson lögmaður)

Stefndu sýknuð af kröfum stefnenda um viðurkenningu á að lóðarréttindi eignarlóðarinnar Tryggvagötu 8 væri 429 fm eins og deiliskipulag fyrir Norðurstígsreit frá 2o. janúar 2004 kvað á um.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júní 2018

E-1672/2015

A1, A2, A3 og A4 (Guðmundur Pétursson lögmaður) gegn D (Magnús Björn Brynjólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Fallist var á kröfu stefnenda, sem höfðuðu mál til hagsbóta fyrir dánarbú, um viðurkenningu á beinum eignarrétti dánarbúsinss að tilteknu landi. Talið var að færð hefðu verið gild rök fyrir því að afsöl hefðu verið gerð til málamynda og ekki verið ætlað að færa eignarrétt að landinu til stefndu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 21. nóvember 2016

E-95/2013

Skúli Einarsson, Jónína Einarsdóttir, Jóhanna Lilja Einarsdóttir, Valdís Einarsdóttir, Ólöf Björg Einarsdóttir, Svanborg Þuríður Einarsdóttir, Jón Ægisson, Haraldur Óskar Haraldsson, Bjarni Hermannsson og Unnsteinn Kristinn Hermannsson (Ólafur Björnsson hrl) gegn Veiðifélagi Laxdæla (Guðjón Ármannsson hrl)

Veiðifélag sýknað af kröfu stefnenda um að viðurkenndur yrði tiltekinn eignarhluti þeirra í jörð í eigu félagsins og að félaginu yrði gert að gefa út afsal til þeirra fyrri hlutdeild þeirra í jörðinni.

Héraðsdómur Austurlands birt 27. október 2016

E-12/2016

Vopnafjarðarhreppur (Jón Jónsson hrl) gegn Fremri-Nýpum ehf og Ungmennafélaginu Einherja (Steingrímur Eiríksson hrl)

Dómkröfum stefnanda um viðurkenningu eignarréttar að afmarkaðri landspildu var vísað frá dómi, með vísan til 2. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991. Var talið að kröfurnar, eins og þær væru fram settar, fælu í sér útskiptingu landspildu og þar með stofnun sérstakrar fasteignar, sem væri háð lögbundnum skilyrðum og samþykki stjórnvalda. Dómkröfu um viðurkenningu afnotaréttar af kaldavatnslind var vísað frá vegna vanreifunar.

Héraðsdómur Vesturlands birt 13. janúar 2016

E-95/2013

Skúli Einarsson, Jónína Einarsdóttir, Jóhanna Lilja Einarsdóttir, Valdís Einarsdóttir, Ólöf Björg Einarsdóttir, Svanborg Þuríður Einarsdóttir, Harald Óskar Haraldsson, Bjarni Hermannsson og Unnsteinn Kristinn Hermannsson (Ólafur Björnsson hrl) gegn Veiðifélagi Laxdæla (Guðjón Ármannsson hrl)

Frávísun frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. nóvember 2013

E-3788/2012

Fríða Bragadóttir (Sigmundur Hannesson hrl) gegn þrotabúi Laugavegs 74 ehf og Laug ehf (Arnar Kormákur Friðriksson hdl)

Stefnandi krafðist þess að eignarréttur hans að svonefndu flutningshúsi yrði staðfestur með dómi, en til vara að forsvarsmönnum stefnda og/eða sakaukastefnda yrði gert að gefa út afsal fyrir húsinu. Sýknað var af kröfunum.

Héraðsdómur Austurlands birt 7. maí 2012

E-25/2011

Valgerður Leifsdóttir (Garðar Þ. Garðarsson hrl) gegn Hvítingi ehf. og Róshildi Jónsdóttur og Ingunni Jónsdóttur og Þorvaldi Jónssyni (Þorsteinn Magnússon hdl) og Ingimari Bjarnasyni og Þorbergi Bjarnasyni (enginn) og Hvítingur ehf. og Róshildur Jónsdóttir og Ingunn Jónsdóttir og Þorvaldur Jónsson (Þorsteinn Magnússon hdl) gegn Valgerði Leifsdóttur (Garðar Þ. Garðarsson hrl) og Ingimari Bjarnasyni og Þorbergi Bjarnasyni. (enginn)

Leyst úr ágreiningi um eignarhlutdeild í óskiptu landi tveggja býla, Uppsala I og Uppsala II í sveitarfélaginu Hornafirði, sem og um eignarhald að húsi sem á landinu stendur. Kröfu stefnanda, eiganda Uppsala I, um að viðurkennd yrði helmingshlutdeild hans í hinu óskipta landi var hafnað, en krafa gagnstefnenda um að viðurkennt yrði að eignarhlutdeild eigenda Uppsala II í hinu óskipta landi teldist 13/21 var tekin til greina. Krafa stefnanda um viðurkenningu eignarréttar hans að húsinu tekin til greina á grundvelli eignarhefðar.

Héraðsdómur Austurlands birt 11. nóvember 2011

E-25/2011

Valgerður Leifsdóttir (Garðar Þ. Garðarsson hrl) gegn Hvítingi ehf. og Róshildi Jónsdóttur og Ingunni Jónsdóttur og Þorvaldi Jónssyni (Þorsteinn Magnússon hdl) og Ingimari Bjarnasyni og Þorbergi Bjarnasyni (enginn) og Hvítingur ehf. og Róshildur Jónsdóttir og Ingunn Jónsdóttir og Þorvaldur Jónsson (Þorsteinn Magnússon hdl) gegn Valgerði Leifsdóttur (Garðar Þ. Garðarsson hrl) og Ingimari Bjarnasyni og Þorbergi Bjarnasyni (enginn)

Kröfu um frávísun gagnsakar hafnað.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 16. maí 2011

E-69/2009

Olga, Marta Einarsdóttir, Einir, Viðar Björnsson, Guðfinna, Sverrisdóttir, Guðrún, Jóna Svavarsdóttir og Sigurður Örn Haraldsson (Ólafur Björnsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Indriði Þorkelsson hrl)

Úrskurður óbyggðanefndar um að Framdalaafréttur sunnan Bárðardals væri þjóðlenda staðfestur. Fallist á að afrétturinn væri afréttareign Einarsstaða í Reykjadal.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. apríl 2011

E-1176/2008

Vopnafjarðarhreppur (Ólafur Björnsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Andri Árnason hrl)

Stefnandi, Vopnafjarðarhreppur, krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar frá 29. maí 2007 í málinu nr. 3/2005 varðandi landsvæðið Þorbrandsstaðatungur í Vopnafjarðarhreppi, sem talið var þjóðlenda í afréttareign jarðarinnar Þorbrandsstaða samkvæmt úrskurði óbyggðanefndar. Stefndi, íslenska ríkið, var sýknað af kröfum stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. apríl 2011

E-1171/2008

Kirkjumálasjóður (Ólafur Björnsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Andri Árnason hrl)

Stefnandi, Kirkjumálasjóður, krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar frá 29. maí 2007 í málinu nr. 3/2005 varðandi landsvæðið Steinvarartungu og hluta Mela í Vopnafjarðarhreppi, sem talið var þjóðlenda í afréttareign jarðarinnar Hofs. Stefndi, íslenska ríkið, var sýknað af kröfum stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 9. desember 2010

E-139/2010

Valgeir Jónasson, Aðalgeir M. Jónasson, Jakob Kristinn Jónasson, Hallfríður Jónasdóttir og Einar Guðmundur Jónasson (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn Kristjáni Guðmundssyni og Guðrúnu Emilíu Höskuldsdóttur (Arnar Sigfússon hdl)

V o.fl., sem áttu tæplega þriðjung i jörðinni Ö í óskiptri sameign með G og K, fengu viðurkenndan rétt til að slíta sameigninni með því að skipta jörðinni með nánar tilteknum ætti. V o.fl. voru sýknuð af kröfu G og K um að viðurkenndur yrði ábúðarréttur þeirra til lífstíðar á eignarhluta V o.fl.

Héraðsdómur Austurlands birt 5. mars 2010

E-43/2008

Auðunn Haraldsson og db. Þórarins Haraldssonar (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson hdl) gegn Íslenska ríkinu (Þórhallur H. Þorvaldsson hdl)

Í var sýknað af kröfu eigenda jarðarinnar Þorvaldsstaða í fyrrum Skeggjastaðahreppi um ógildingu úrskurðar óbyggðanefndar og viðurkenningar á að innan nánar tilgreindra merkja væri engin þjóðlenda.

Hleð fleiri dómum…