Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 441/1998"

44 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. nóvember 2025

E-5275/2021

A (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn B og C (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður), og D til réttargæslu (Ólafur Garðarsson lögmaður) og E til réttargæslu (Jón Magnússon lögmaður)

Gagnstefnendur keyptu hús af aðalstefnanda. Þau töldu galla á húsinu í skilningi 18. gr. laga nr. 40/2002 og héldu eftir afsalsgreiðslu. Að fenginni matsgerð stefndi aðalstefnandi byggingarstjóra og framleiðanda glugganna til réttargæslu. Fallist var á að á húsinu hefðu verið örfáir gallar en þó ekki svo miklir sem gagnstefnendur byggðu á. Fjárhæð sem samsvaraði mati á kostnaði við að laga gallana var dregin frá afsalsfjárhæð og gagnstefnendur dæmd til að greiða aðalstefnanda þá fjárhæð sem eftir stóð.

...Í byggingar- reglugerð nr. 441/1998, sem telja verður að gildi um þetta hús, er þess þó ekki krafist heldur segir einvörðungu í grein 80.4 að í baðherbergjum skuli...

Landsréttur birt 3. október 2024

331/2023

Bjarnfríður Hlöðversdóttir (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður, Stefán Árni Auðólfsson lögmaður, 2. prófmál) gegn Lindu Kristínu Kristmannsdóttur, Geir Þorsteinssyni, Barða Halldórssyni og Hólmfríði Kristjánsdóttur (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Eignarréttur. Grennd. Dagsektir.

L o.fl., eigendur parhúss í Kópavogi, höfðuðu mál á hendur B, eiganda fasteignar á aðliggjandi lóð, og kröfðust þess að henni yrði gert að klippa og fjarlægja trjágróður á lóð sinni með tilteknum hætti. Byggðu L o.fl. á því að trjágróður á lóð B skyggði nær algerlega á dagsbirtu, sól og útsýni á lóðum L o.fl. og að óþægindi vegna hans væru mun meiri en L o.fl. þyrftu að þola samkvæmt reglum nábýlisréttar. Með dómi héraðsdóms var fallist á þessar málsástæður L o.fl. Var B var gert að klippa trjágróður þannig að innan við fjóra metra frá lóðamörkum fasteigna aðila skyldi hæð trjáa ekki vera hærri en í 48,6 metra hæð yfir sjávarmáli og halla síðan með 53° halla fjórum metrum frá lóðamörkum og í 54 metra hæð yfir sjávarmáli, auk þess sem trén á lóðinni skyldu að öðru leyti ekki vera hærri en í 54 metra hæð yfir sjávarmáli. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms varðandi þau tré sem voru innan við fjóra metra frá lóðamörkum. B var hins vegar sýknuð af kröfu L o.fl. um önnur tré á lóð hennar. Taldi rétturinn að L o.fl. hefðu ekki sýnt fram á að skuggavarp af þeim trjám myndi valda verulegum óþægindum umfram það sem almennt mætti vænta í þéttbýli, eftir að tré innan við fjóra metra frá lóðamörkum hefðu verið klippt.

...Með reglugerð nr. 441/1998 var ákvæði sett um að hæð trjáa sem plantað var við lóðamörk samliggjandi lóða mætti ekki vera meiri en 1,80 m, nema lóðarhafar beggja...

Landsréttur birt 22. mars 2024

164/2023

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

A höfðaði mál og krafðist viðurkenningar á bótaskyldu úr húseigendatryggingu B ehf. hjá S hf. vegna líkamstjóns er hann varð fyrir í slysi þegar hann féll í tröppum við húsnæði B ehf. og lenti á gangstétt. Í dómi Landsréttar kom fram að tröppurnar hefðu frá því þær voru byggðar aldrei uppfyllt reglur þar um. Þá hefðu þær heldur ekki uppfyllt almennar faglegar kröfur um byggingu stiga og trappa. Þá skipti máli að í húsi B ehf. var rekinn veitingastaður og vínveitingahús er atvik áttu sér stað. Í dómaframkvæmd hefði ítrekað verið slegið föstu að slíkri starfsemi fylgdu sérstakar skyldur á húseiganda eða rekstraraðila fasteignar til að gæta vel að öllum aðstæðum og öryggi gesta, meðal annars að því er varðar stiga og tröppur. Af þessu leiddi að margvíslegur vanbúnaður hefði verið á umræddum tröppum á slysdegi sem aukið hefði á hættueiginleika þeirra. Var tryggingataki, B ehf., talinn bera ábyrgð á þeim vanbúnaði. Þá var því hafnað að slysið hefði verið óhappatilviljun eða mætti eftir atvikum rekja til aðgæsluleysis A sjálfs. Þótt því yrði ekki slegið föstu hvað nákvæmlega olli því að A hefði fallið var það álit dómsins að langlíklegast væri að slysið yrði rakið til hættueiginleika trappanna í neðra hluta þeirra. Að því gættu mætti slá því föstu að þeir ágallar hefðu verið meginorsök þess að A féll í tröppunum. Krafa A var því tekin til greina.

...Þá hafi verið í gildi reglugerð nr. 441/1998. Umfangsmiklar breytingar hafi sömuleiðis verið gerðar á húsinu á árunum 2014–2016, en þá hafi verið í gildi byggingarreglugerð nr. 112...

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2024

E-1230/2021

Herdís Dröfn Fjeldsted og Sævar Pétursson (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður) gegn Þb. Helgu Daníelsdóttur, Ómari Steinari Rafnssyni og Verði tryggingum hf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Guðna Tyrfingssyni og Verði tryggingum hf. (Marteinn Másson lögmaður)

Ágreiningur laut að því hvort fasteign sem stefnendur keyptu af stefndu teldist gölluð í skilningi laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og hvort stefnda sem einnig var byggingaraðili eignarinnar hefði með samkomulagi um viðgerðir á eigninni fyrir afhendingu á grundvelli söluskoðunar tekist á hendur að afhenda eignina gallalausa. Þá laut ágreiningur einnig að því hvort byggingarstjóri og hönnuður auk tryggingafélags þeirra væru skaðabótaskyldir á grundvelli þess að framkvæmdir hefðu ekki verið í samræmi við samþykkta uppdrætti, byggingarreglugerð og faglega fullnægjandi. Fallist var á að fasteignin hafi verið haldin leyndum göllum og metinn kostnaður við úrbætur sem nam 9,2% af söluverðmæti væri slíkur að ágallinn teldist rýra verðmæti hennar svo nokkru varði í skilningi 18. gr. laga nr. 40/2002, en eignin var mjög nýleg. Einnig var fallist á samkomulag um viðgerðir fæli í sér að gera við bæði orsök og afleiðingar raka og leka. Þá var fallist á skaðabótaábyrgð byggingarstjóra gagnvart stefnendum þar sem ekki var farið eftir samþykktum teikningum og frágangi var stórlega ábótavant og tryggingarfélag hans dæmt til að greiða stefnendum í samræmi við starfsábyrgðartryggingu. Hönnuður var sýknaður af kröfum stefnenda.

...180.3 í byggingar- reglugerð nr. 441/1998. Stefndi Ómar hafi þannig sýnt af sér gáleysi við eftirlit með framkvæmdunum sem varði hann ábyrgð með vísan til 51. gr. laga...

Landsréttur birt 17. nóvember 2023

352/2022

Vörður tryggingar hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) gegn A, TM tryggingum hf. til réttargæslu og A (Erling Daði Emilsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur tryggingafélögunum V hf. og T hf. og krafðist skaðabóta vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir er hann lenti í slysi á vínveitinga- og skemmtistað árið 2016. Slysið varð með þeim hætti að A féll er hann var að ganga niður stiga og skall í kjölfarið með höfuðið á steyptu gólfi í anddyri staðarins. Deildu aðilar um hvort slysið yrði rakið til saknæmrar háttsemi eiganda fasteignarinnar og rekstraraðila staðarins þannig að A ætti rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu þeirra. V hf. og T hf. töldu að um óhappatilvik hefði verið að ræða og að slysið mætti einnig rekja til eigin sakar A. Jafnframt deildu aðilar um einstaka liði bótakröfu A. Í málinu byggði A á því að aðbúnaður stigans hefði verið alls ófullnægjandi og að stiginn hefði meðal annars ekki uppfyllt áskilnað byggingarsamþykktar fyrir Reykjavík frá árinu 1945, sem í gildi hefði verið á byggingartíma stigans. Undir rekstri málsins í héraði var aflað matsgerðar byggingafræðings um ástand stigans. Á grundvelli mælinga matsmanns sló Landsréttur því föstu að stiginn hefði frá öndverðu farið í bága við ákvæði fyrrgreindrar byggingarsamþykktar en einnig ákvæði síðari reglugerða. Taldi Landsréttur að sá annmarki á stiganum, auk ófullnægjandi lýsingar, hefði verið megin orsök slyss A. Enn fremur var talið í ljós leitt að rekstraraðili skemmtistaðarins hefði búið yfir vitneskju um að stiginn væri varhugaverður. Eigandi fasteignarinnar og rekstraraðili staðarins voru samkvæmt framansögðu taldir bera bótaábyrgð gagnvart A og var V hf. og T hf. því gert að greiða honum bætur.

...Þegar framangreindar breytingar hafi verið gerðar hafi verið í gildi byggingar- reglugerð nr. 441/1998. Gildissvið hennar hafi samkvæmt 2. mgr. 2. gr. m.a. tekið til hvers konar bygginga...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. október 2023

E-463/2022

A (Erling Daði Emilsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)

Stefnandi, sem féll í tröppum og meiddist, krafðist viðurkenningar á bótaskyldu úr frjálsri ábyrgðartryggingu fasteignareiganda. Talið var óupplýst hvers vegna stefnandi féll í tröppunum og honum tókst ekki að sýna fram á að vanbúnaði fasteignar væri um að kenna. Var hið stefnda vátryggingafélag því sýknað af viðurkenningakröfu stefnanda.

...Vísar stefnandi sérstaklega til greinar 202.10 í reglugerð nr. 441/1998, þar sem segir að byggingarnefnd sé heimilt að krefjast aukahandriða í tröppum ef breidd fer yfir þrjár gangbreiddir...

Landsréttur birt 10. febrúar 2023

730/2021

B ehf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður) gegn A (Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður)

A höfðaði mál til viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í starfi sínu hjá B ehf. er hann gekk á nánar tilgreinda súlu í verslunarrými B ehf. Í dómi Landsréttar var fallist á með A að vegna staðsetningar súlunnar, þess hversu mjó hún væri og vegna litar hennar félli hún inn í umhverfi sitt þannig að hún gæti auðveldlega dulist þeim sem leið ættu um rýmið og sérstaklega frá því sjónarhorni sem horfði við A í umrætt sinn. Var til þess vísað að hættan á árekstri við súluna í umræddu rými hefði verið fyrirsjáanleg og að B ehf. hefði getað án mikillar fyrirhafnar dregið úr þeirri hættu eða komið í veg fyrir hana með almennum varúðarráðstöfunum, svo sem með því að stilla upp varningi við hlið súlunnar, setja upp skilrúm umhverfis hana eða gera súluna sýnilegri með merkingum eða öðrum lit. Féllst Landsréttur því á það með A að B ehf. hefði sem atvinnurekandi, sbr. 13. gr. laga nr. 46/1980, vanrækt að tryggja stefnda öruggt vinnuumhverfi, sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og 1. og 3. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 39. gr. reglna nr. 581/1995 um húsnæði vinnustaða. Var krafa A því tekin til greina.

...39 Þá hafnar stefndi því einnig að húsnæðið brjóti í bága við byggingarreglugerð, hvort sem um sé að ræða þágildandi reglugerð nr. 441/1998 eða núgildandi reglugerð nr. 112/2012...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. febrúar 2023

E-2374/2022

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Sigurður Ágústsson lögmaður)

Vátryggingarfélag sýknað af kröfu manns sem krafðist viðurkenningar á því að slys sem hann varð fyrir væri bótaskylt úr húseigendatryggingu, sem fasteignareigandi hafði keypt hjá félaginu.

...Þá hafi verið í gildi reglugerð nr. 441/1998. Umfangsmiklar breytingar hafi sömuleiðis verið gerðar á húsinu á árunum 2014–2016, en þá hafi verið í gildi byggingarreglugerð nr. 112...

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. janúar 2023

E-1462/2021

Eiríkur Hafberg Sigurjónsson og Elín Or Seelarak (Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður) gegn Gunnbirni Ólafssyni (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) og Gunnbjörn Ólafsson (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Eiríki Hafberg Sigurjónssyni og Elínu Or Seelarak (Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður)

Aðalstefnendur stefndu kaupanda fasteignar til greiðslu á lokagreiðslu samkvæmt kaupsamningi um fasteign. Gagnstefnandi taldi að fasteignin væri haldin verulegum göllum og fékk dómkvaddan matsmann til að meta meinta galla á eigninni. Höfðaði gagnstefnandi nýtt mál þar sem hann krafði seljendur eignarinnar um kostnað vegna úrbóta á eigninni. Voru málin sameinuð undir rekstri þeirra. Niðurstaða dómsins var að þeir meintu gallar sem gagnstefnandi krafðist greiðslu á voru ekki taldir gallar í skilningi laga um fasteignakaup og var gagnstefnandi dæmdur til að greiða lokagreiðsluna samkvæmt kaupsamningi auk alls málskostnaðar.

...Í fjórða lagi er matsmaður beðinn um að svara því hvor íbúð á neðri hæð fullnægi kröfum um brunavarnir varðandi hurðir, flóttaleið og byggingarefni miðað við annars vegar reglugerð nr...

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. janúar 2023

E-1580/2022

Linda Kristín Kristmannsdóttir, Geir Þorsteinsson, Barði Halldórsson og Hólmfríður Kristjánsdóttir (Leó Daðason lögmaður) gegn Bjarnfríði Hlöðversdóttur (Stefán Árni Auðólfsson lögmaður)

Stefndu gert að kröfu stefnenda að klippa trjágróður á lóð hennar.

...Með reglugerð nr. 441/1998 var ákvæði sett um að hæð trjáa sem plantað var við lóðamörk samliggjandi lóða mætti ekki vera meiri en 1,80 m, nema lóðarhafar beggja...

Landsréttur birt 24. júní 2022

452/2020

Sveitarfélagið Hornafjörður (Árni Helgason lögmaður) gegn Ice Lagoon ehf (Jón Þór Ólason lögmaður)

Með dómi Landsréttar 1. apríl 2022 var vísað frá héraðsdómi kröfu I ehf. um viðurkenningu á skaðabótaskyldu S vegna ólögmætra aðgerða S sem byggt hefðu á ákvörðunum S 20. maí 2010, 27. janúar og 15. ágúst 2014 og 10. mars 2015, sem og kröfu I ehf. um viðurkenningu á skaðabótaskyldu S vegna tjóns í rekstri I ehf. sem hlaust af ákvörðun S 20. maí 2010. S var að öðru leyti sýknaður af kröfum I ehf. Með dómi Hæstaréttar 1. júní 2022 var fellt úr gildi ákvæði dóms Landsréttar um frávísun frá héraðsdómi á viðurkenningarkröfu I ehf. á skaðabótaskyldu S vegna ætlaðs tjóns í rekstri I ehf. Landsréttur taldi að þegar málið var höfðað væri fallin niður, fyrir fyrningu, sú fjárkrafa sem I ehf. hefði getað haft uppi í kjölfar viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna tjóns sem leitt kynni að hafa af umdeildri ákvörðun S 20. maí 2010. Þá hefði S verið sýknaður af viðurkenningarkröfu I ehf. vegna ákvarðana S 27. janúar og 15. ágúst 2014 og 10. mars 2015. Væri sú niðurstaða bindandi um úrslit sakarefnisins milli aðila og fyrir réttinn. Var S því sýknaður af kröfum I ehf.

...Sambærilegt ákvæði var í fyrri reglugerð nr. 441/1998 en á henni byggði fyrsta synjun sveitarfélagsins. Umsókn um stöðuleyfi skal samkvæmt ákvæðinu vera skrifleg og undirrituð af eiganda eða ábyrgðarmanni...

Landsréttur birt 3. júní 2022

211/2021

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald lögmaður) gegn LxB ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Ágreiningur aðila laut að kröfu L ehf. á hendur SA hf. um greiðslu bóta á grundvelli starfsábyrgðartryggingar byggingarstjóra hjá félaginu vegna byggingar fjölbýlishúss og frágangs lóðar sem liggur að lóð í eigu L ehf., en framkvæmdir þar voru ekki í samræmi við samþykkt hönnunargögn. Byggði L ehf. á því að umrædd frávik leiddu til verðmætisrýrnunar á fasteignum í eigu L ehf. að fjárhæð 18.376.000 krónur. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að byggingarstjóri hefði borið ábyrgð á því að framkvæmdir væru í samræmi við samþykkta uppdrætti og að meta yrði honum það til gáleysis að hafa ekki séð til þess að það yrði gert eða samþykkis aflað fyrir breytingunum sem voru gerðar. Þá var litið til þess að af fyrirliggjandi matsgerð yrði skýrlega ráðið að hæð fyrrnefndrar lóðar hefði verið afgerandi þáttur við mat á tjóni L ehf. Með hliðsjón af framangreindu var fallist á að L ehf. ætti rétt á bótum úr hendi SA hf. að fjárhæð 13.146.000 króna, auk nánar tilgreindra vaxta.

...Sérstaklega þegar það sé tekið fram í grein 36.2 í eldri byggingarreglugerð, reglugerð nr. 441/1998, að: ,,Ábyrgð nýs byggingarstjóra gagnvart byggingarnefnd takmarkast við þá verkþætti sem unnið er...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. maí 2022

E-8149/2020

A (Agnar Þór Guðmundsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og TM tryggingum hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður)

Stefnanda dæmdar skaðabætur úr hendi stefnda tryggingafélags fasteignaeiganda í ljósi ábyrgðartryggingar vegna líkamstjóns og miska, þá einkum í formi varanlegra höfuðáverka og skerðinga, er stefnandi hlaut eftir að hafa fallið í stiga á vínveitingastað sem taldist ekki hafa uppfyllt kröfur í byggingasamþykkt þegar hann var reistur og það talið vera sönnuð meginorsök þess slyss sem varð. Meðstefndi tryggingafélag rekstraraðila var hins vegar sýknað þar sem ekki þótti vera nægilega sýnt fram á vanrækslu varðandi þá þætti sem sá stefndi hefði getað borið sérstaklega ábyrgð á eins og á stóð.

...Þegar framangreindar breytingar hafi verið gerðar hafi verið í gildi byggingar- reglugerð nr. 441/1998. Gildissvið hennar hafi samkvæmt 2. mgr. 2. gr. m.a. tekið til hvers konar bygginga...

Landsréttur birt 1. apríl 2022

452/2020

Sveitarfélagið Hornafjörður (Árni Helgason lögmaður) gegn Ice Lagoon ehf (Jón Þór Ólason lögmaður)

I ehf. höfðaði mál á hendur sveitarfélaginu H og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu H vegna ætlaðs tjóns I ehf. á ferðaþjónustustarfsemi hans við austurbakka Jökulsárslóns í landi jarðarinnar Fells vegna ákvarðana H 20. maí 2010, 27. janúar og 15. ágúst 2014 og 10. mars 2015. Í dómi Landsréttar kom fram að I ehf. hefði höfðað málið 28. maí 2018 og væru skaðabótakröfur sem leiða kynni af ákvörðun H 20. maí 2010 fallnar niður fyrir fyrningu. Hefði I ehf. því ekki lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna hennar og var þessum hluta kröfugerðar I ehf. því vísað frá héraðsdómi án kröfu. Tók Landsréttur næst til skoðunar hvort H hefði með ákvörðunum sínum 27. janúar og 15. ágúst 2014 og 10. mars 2015 bakað sér skaðabótaábyrgð á ætluðu tjóni I ehf. af því að hafa ekki fengið útgefið stöðuleyfi vegna starfsemi sinnar frá austurbakka Jökulsárlóns. Í öllum tilvikum hefðu ákvarðanirnar lotið að því að skilyrði fyrir veitingu stöðuleyfis væru ekki fyrir hendi þar sem samþykki allra eigenda jarðarinnar Fells fyrir útgáfu stöðuleyfis lægi ekki fyrir. Leiða mætti af niðurstöðu meiri hluta Hæstaréttar Íslands í máli nr. 44/2016 að það hafi verið ólögmætt en þessi afstaða dómstóla leiddi ekki sjálfkrafa til skaðabótaskyldu H heldur þyrfti skilyrði skaðabótaréttar um saknæmi jafnframt að vera fullnægt. Fyrir lægi að H hefði byggt neitun sína á veitingu stöðuleyfis á grein 2.6.1 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 sem kvæði á um að samþykki eiganda eða lóðarhafa þeirrar lóðar, sem fyrirhugað væri að lausafjármunir stæðu á, skyldi fylgja umsókn um stöðuleyfi. Af gögnum málsins mætti ráða að við túlkun H á ákvæðinu hefði hann haft að leiðarljósi þá meginreglu eignaréttar að samþykki allra sameigenda að óskiptri sameign þyrfti til óvenjulegra ráðstafana og ráðstafana sem væru meiriháttar þótt venjulegar gætu talist. Þótt H hefði metið það svo að slík ráðstöfun jarðarinnar teldist til óvenjulegra eða meiriháttar ráðstafana á óskiptri sameign og krefðist af þeim sökum samþykkis allra sameigenda jarðarinnar yrði ekki fallist á að það eitt gæti talist saknæm háttsemi þannig að bótaskyldu varðaði. Af forsendum meiri hluta Hæstaréttar Íslands í fyrrnefndu máli nr. 44/2016 yrði ráðið að áðurnefnd meginregla eignaréttarins væri mjög matskennd regla og af því leiddi að játa yrði H nokkurt svigrúm til mats á umræddri beiðni. I ehf. hefði hvorki reifað eða rökstutt að mat H hefði verið bersýnilega rangt eða í andstöðu við venjuhelgaða framkvæmd né heldur bent á stjórnsýsluframkvæmd frá þeim tíma sem H hafði beiðnir I ehf. um stöðuleyfi til afgreiðslu sem gæfi slíkt til kynna. Var ekki fallist á að I ehf. hefði fært sönnur á, að sú ákvörðun H að binda umrætt stöðuleyfi skilyrði um samþykki allra sameigenda Fells teldist saknæm. Þá fengist ekki annað séð en að umþrættar ákvarðanir H hefðu verið teknar að athuguðu máli og á grundvelli gagna sem lögð voru fram eða var aflað við meðferð málsins. Að öðru leyti hefði I ehf. ekki rökstutt með viðhlítandi hætti að H hefði brotið gegn tilvísuðum ákvæðum stjórnsýslulaga eða stjórnsýsluréttarins. Ekki var heldur fallist á að þáverandi bæjarstjóri H hefði verið vanhæfur til að taka þátt í og afgreiða erindi I ehf. Aðrar málsástæður I ehf. voru ekki taldar hafa neina þýðingu í málinu. Var H sýknaður af kröfum I ehf.

...Sambærilegt ákvæði var í fyrri reglugerð nr. 441/1998 en á henni byggði fyrsta synjun sveitarfélagsins. Umsókn um stöðuleyfi skal samkvæmt ákvæðinu vera skrifleg og undirrituð af eiganda eða ábyrgðarmanni...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. nóvember 2021

E-4068/2020

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn X og Vátryggingafélagi Íslands hf. til réttargæslu

Fallist á að atvinnurekandi beri ábyrgð á tjóni starfsmanns vegna vinnuslyss.

...39 Þá hafnar stefndi því einnig að húsnæðið brjóti í bága við byggingarreglugerð, hvort sem um sé að ræða þágildandi reglugerð nr. 441/1998 eða núgildandi reglugerð nr. 112/2012...

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. maí 2021

E-226/2020

Ásgeir Þórarinsson (Þórarinn V. Þórarinsson lögmaður) gegn Jóni Kristjánssyni (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður), Kristni Ragnarssyni og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður) og Garðabæ (Andri Árnason lögmaður)
Lykilorð: Fasteign. Fyrning. Galli. Hönnun.

Stefnandi krafðist bóta úr hendi stefndu vegna ætlaðra galla á hönnun einbýlishúss sem hann keypti í byggingu. Með vísan til matsgerða dómkvadds matsmanns voru í dómi héraðsdóms teknar til greina að hluta kröfur hans á hendur stefnda S hf. á grundvelli starfsábyrgðartryggingar K en talið að krafa á hendur K væri niður fallin fyrir fyrningu. Þá var ekki talið að hönnun J væri ábótavant þannig að bótaskyldu varðaði og var hann því sýknaður. Stefndi G var einnig sýknaður.

...Grein 186.1 í reglugerð nr. 441/1998 hafi verið svohljóðandi: „Öll dvalarrými íbúða [...] þar sem fólk dvelur langtímum saman skulu hafa fullnægjandi loftræstingu. Tryggja skal með hönnun og gerð...

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. mars 2021

E-1667/2020

LxB ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður) og og Reykjanesbæ (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)

Stefnda Sjóvá gert að greiða stefnanda, LxB ehf., 13.146.000 krónur á grundvelli ábyrgðartryggingar byggingarstjóra. Stefndi, Reykjanebær er sýkn af kröfum stefnanda.

...Sérstaklega þegar það sé tekið fram í grein 36.2 í eldri byggingarreglugerð, reglugerð nr. 441/1998, að: ,,Ábyrgð nýs byggingarstjóra gagnvart byggingarnefnd takmarkast við þá verkþætti sem unnið er...

Héraðsdómur Vesturlands birt 8. febrúar 2021

E-188/2019

Arna Pálsdóttir og Jón Þór Þorvaldsson (Sverrir Sigurjónsson lögmaður) gegn Evu Hlín Alfreðsdóttur og Kjartani Sigurjónssyni (Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir lögmaður)

Stefndu dæmd til að greiða stefnendum skaðabætur vegna galla á fasteign.

...184 í reglugerð nr. 441/1998, sem í gildi var á byggingartíma fasteignarinnar, og ekki í samræmi við viðurkennda verkhætti fagmanna. Verður því fallist á það með stefnendum að eignin...

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. janúar 2021

E-856/2020

María Kristjánsdóttir (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn Sigurjónu Sigurbjörnsdóttur (Hannes J. Hafstein lögmaður)

Stefnda var sýknuð af skaðabótakröfu/afsláttarkröfu stefnanda vegna tómlæti í fasteignakaupum.

...gólfplata sé undirstaða húss eins og fullyrt sé og krafa sé um samkvæmt reglugerð nr. 441/1998, gr. 19.4, liður d, þá eigi kuldi og jafnvel frost greiðan aðgang...

Landsréttur birt 18. desember 2020

28/2020

Úlfar Þórðarson (Jón Magnússon lögmaður) og Ásdís Ólafsdóttir (Þórður Már Jónsson lögmaður, 3. prófmál) gegn Kristínu R. Sigurðardóttur og Julian Hewlett (Heimir Örn Herbertsson lögmaður)

K og J höfðuðu mál gegn Ú og Á til heimtu eftirstöðva kaupverðs vegna fasteignar sem þau seldu Ú og Á. Reistu Ú og Á sýknukröfu sína á því að fasteignin hefði verið haldin nánar tilgreindum göllum við kaupin sem veitti þeim rétt til afsláttar eða skaðabóta sem næmi mun hærri fjárhæð en krafa K og J og lýstu þau því yfir skuldajöfnuði við kröfuna. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Landsrétti, var fallist á með Ú og Á að fasteignin hefði verið haldin leyndum galla að því er varðaði frágang á báðum baðherbergjum sem veitti þeim rétt til skaðabóta sem næmu metnum kostnaði við að ráða bót á ágöllum. Að öðru leyti bæri Ú og Á að standa K og J skil á mismun bótakröfu sinnar, sem þau hefðu fært sönnur á, og eftirstöðvum kaupverðsins með dráttarvöxtum.

...112/2012, enda hafi sú reglugerð ekki verið í gildi á byggingartíma hússins heldur reglugerð nr. 441/1998. Lofthæðin fullnægi áskilnaði um lágmarkslofthæð samkvæmt síðarnefndu reglugerðinni. Þá sé ósannað að...

Héraðsdómur Austurlands birt 23. júní 2020

E-51/2018

Ice Lagoon ehf (Jón Þór Ólason lögmaður) gegn Sveitarfélaginu Hornafirði (Árni Helgason lögmaður)
Lykilorð: Skaðabótamál.

Skaðabótaskylda sveitarfélags viðurkennd vegna ákvarðana sem voru til þess fallnar að valda lögaðila tjóni og byggðu á rangri lagatúlkun .

...Sambærilegt ákvæði var í fyrri reglugerð nr. 441/1998 en á henni byggði fyrsta synjun sveitarfélagsins. Umsókn um stöðuleyfi skal samkvæmt ákvæðinu vera skrifleg og undirrituð af eiganda eða ábyrgðarmanni...

Landsréttur birt 27. mars 2020

471/2019

Þorsteinn Magnússon og Þóra Sumarlín Jónsdóttir (Guðjón Ármannsson lögmaður) gegn Vilhelmínu Sigríði Smáradóttur og Svanberg Guðleifssyni (Jón Magnússon lögmaður)

V og S, sem höfðu keypt fasteign af ÞM og ÞSJ, töldu að slíkir annmarkar væru á ástandi hússins að um væri að ræða verulegan galla í skilningi fasteignakaupalaga nr. 40/2002 og þau hefðu verið blekkt í viðskiptunum. Undir meðferð málsins var aflað undir- og yfirmatsgerðar þar sem einkum var lagt mat á frágang rakavarnar fasteignarinnar og var niðurstaða í báðum tilfellum sú að frágangi rakavarnarlags fasteignarinnar væri ábótavant. Í dómi Landsréttar var talið að frágangur rakavarnar fasteignarinnar hafi verið andstæður viðurkenndum vinnubrögðum og góðri venju og væri því um galla að ræða í skilningi 18. og 19. gr. laga nr. 40/2002 og leyndan galla, sbr. 2. mgr. 29. gr. sömu laga, sem rýri verðmæti eignarinnar verulega, sbr. 2. málslið 18. gr. laganna. Þá var talið að aðrir tilgreindir annmarkar, nánar tiltekið frágangur og ástand flísalagnar, vatnsheldni útihurða og ástand opnanlegra faga í gluggum, væru með þeim hætti að um leynda galla væri að ræða í skilningi 2. mgr. 29. gr. sömu laga, sem þau hafi ekki verið upplýst um, sbr. 26. gr. laganna. Með hliðsjón af framangreindu var ÞM og ÞSJ gert að greiða V og S skaðabætur að fjárhæð 5.735.690 krónur.

...9 Í grein 181 í reglugerð nr. 441/1998 var fjallað um raka- og vindvarnir. Kom þar fram í grein 181.1 að við hönnun og útfærslu á einangrun húsa...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2018

E-139/2018

Kristín R. Sigurðardóttir og Julian Hewlett (Margrét Guðjónsdóttir lögmaður) gegn Úlfari Þórðarsyni (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður) og Ásdísi Ólafsdóttur (Guðmundur Siemsen lögmaður)

Stefnendur kröfðu stefndu um lokagreiðslu samkvæmt kaupsamningi um fasteign en stefndu byggður á því að þau ættu rétt til skuldajafnaðar á vegna kröfu þeirra um afslátt eða skaðabætur vegna galla á fasteigninni. Töldu þau kröfu sína nema mun hærri fjárhæð en sem nam kröfu stefnenda. Fallist var á að stefndu ættu rétt til bóta vegna tiltekinna galla sem tengdust smíði og frágangi á baðherbergi efri og neðri hæðar fasteignarinnar. Öðrum kröfum þeirra var hafnað. Þar á meðal kröfu um bætur vegna ófullnægjandi lofthæðar á neðri hæð, en í því efni var talið sannað að lofthæð væri minni en áskilið er í byggingarreglugerð en á hinn bóginn var talið ósannað að stefndu hefðu fært sönnur á að sá ágalli hafi valdið þeim tjóni.

...112/2012, enda hafi sú reglugerð ekki verið í gildi á byggingartíma hússins heldur reglugerð nr. 441/1998. Lofthæðin fullnægi áskilnaði um lágmarkslofthæð samkvæmt síðarnefndu reglugerðinni. Þá sé ósannað að...

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. janúar 2019

E-526/2018

Gerður Björt Pálmarsdóttir (Eldjárn Árnason hdl) gegn Mikael Svend Sigursteinssyni (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hrl) og Vátryggingafélagi Íslands hf (Svanhvít Axelsdóttir hdl)

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda 4.619.780 krónur vegna galla í fasteignakaupum, og með vísan til ákvæða í kaupsamningi.

...112/2012 leyst reglugerð nr. 441/1998 af hólmi, sbr. gr. 17.1.2. Ljóst sé því að um lokaúttektina gildi ákvæði kafla 3.9 í byggingarreglugerð nr. 112/2012...

Hæstiréttur birt 25. október 2018

106/2017

Arnar Helgi Lárusson og Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður) og Reykjanesbæ (Styrmir Gunnarsson lögmaður, 4. prófmál)

Í málinu kröfðust A og S þess að sveitarfélaginu R og eignarhaldsfélaginu E yrði gert að ráðast í nánar tilgreindar framkvæmdir og úrbætur á tveimur opinberum byggingum til að bæta aðgengi fyrir fatlaða. Reistu þeir kröfur sínar á því að byggingarnar fullnægðu hvorki alþjóðlegum skuldbindingum Íslands né þeim kröfum sem gerðar væru í stjórnarskrá og nánar tilgreindum lögum og reglugerðum um aðgengi fatlaðs fólks að opinberum byggingum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að R hefði fullnægt þeirri skyldu samkvæmt 34. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks að gera sér áætlun um endurbætur á aðgengi opinberra bygginga og þjónustustofnana í samræmi við ákvæði mannvirkjalaga og skipulagslaga sem og reglugerða settra á grundvelli þeirra. Þá hefði R hrundið áætluninni í framkvæmd með ráðstöfun fjár til málaflokksins og þeim breytingum á húsnæði í eigu sveitarfélagsins sem þegar hefði verið ráðist í. Vísað var til þess að með lögum nr. 152/2010 hefði sveitarfélögunum í landinu verið falið að annast málefni fatlaðra en sá málaflokkur hafði áður verið viðfangsefni ríkisins. Sveitarfélög hefðu samkvæmt 78. gr. stjórnarskrárinnar sjálfstjórn í þeim málum sem löggjafinn hefði falið þeim og þau færu sjálf með forræði eigin tekjustofna. Þau væru því ein samkvæmt stjórnarskrá og lögum bær til að taka ákvarðanir um þess háttar framkvæmdir og úrbætur sem dómkröfur A og S lytu að og hefðu á grundvelli tekjustofna sinna svigrúm til að ákveða forgangsröðun innan þess ramma sem játa yrði þeim við framkvæmd lögbundinna verkefna sem á þeim hvíldu. Voru R og E ehf. því sýknað af kröfum A og S.

...kafla í reglugerð nr. 441/1998 og 6. hluta, kafla 6.1, í reglugerð nr. 112/2012. Báðar reglugerðir gangi út frá því að eigandi mannvirkis beri ábyrgð á því...

Hæstiréttur birt 1. mars 2018

141/2017

Mosfellsbakarí ehf og B (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður) gegn A (Páll Kristjánsson lögmaður)

A höfðaði mál til viðurkenningar á því að M ehf., B og HH bæru óskipta skaðabótaábyrgð á líkamstjóni sem hún varð fyrir á leið sinni út úr bakaríinu M. Málsaðilar deildu um það hvort dyraumbúnaður bakarísins hefði verið vanbúinn, annars vegar vegna hæðarmunar á gólfinu í bakaríinu og gangstéttarinnar fyrir utan og hins vegar byggði A á því að svokölluð hurðarpumpa hefði ekki virkað sem skyldi. Héraðsdómur féllst á að samspil þessara tveggja þátta hefði orsakað slysið en ábyrgð var felld á M ehf. og B vegna þess að hurðarpumpan hefði ekki verið í lagi. HH var hins vegar sýknað og undi A við þá niðurstöðu. Áður en málið var höfðað hafði A aflað minnisblaðs tveggja sérfræðinga hjá E verkfræðistofu um aðstæður í inngangi bakarísins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að A hefði ekki aflað matsgerðar samkvæmt IX. kafla laga nr. 91/1991 í þeim tilgangi að færa sönnur á staðhæfingar sínar um að umrædd hurðarpumpa hefði ekki virkað sem skyldi ellegar verið vanbúin með öðrum hætti. A hefði aflað umrædds minnisblaðs einhliða og án þess að M ehf. og A ættu þess kost að gæta hagsmuna sinna og koma sjónarmiðum sínum á framfæri við gerð þess. Var minnisblaðið ekki talið hafa þýðingu við úrlausn málsins og varð dómur ekki á því byggður. Þá kom fram að eins og málið lá þá fyrir héraðsdómi, og án þess að fram hefði farið fullnægjandi öflun sönnunargagna um ástand, virkni og mögulega hættueiginleika hurðarpumpunnar hefði héraðsdómara verið ókleift að fjalla um málsástæður sem uppi hefðu verið hafðar um þann þátt málsins á grundvelli almennrar þekkingar og menntunar eða lagakunnáttu. Hefði því verið þörf á sérkunnáttu og hefði héraðsdómara borið að kveðja til meðdómsmenn samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/1991. Þar sem það hefði ekki verið gert var héraðsdómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað til aðalmeðferðar og dómsálagningar að nýju.

...Telja stefndu ósannað að hurðarpumpan hafi verið hættuleg viðskiptavinum eða brotið í bága við einhver ákvæði í þágildandi reglugerð nr. 441/1998. Þá sé það rangt og ósannað að lokun...

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

571/2016

Hlíf Sturludóttir, Sigurlaug Sigurjónsdóttir, Bergur Pálsson, Margeir Rúnar Daníelsson, Unnur Stephensen og Arnþór Jónsson (Bjarki Þór Sveinsson hrl) gegn Sæmundi Ágústi Óskarssyni (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) og til réttargæslu Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður)

H o.fl. kröfðu SÁ um skaðabætur vegna mygluskemmda í þökum og annarra galla í raðhúsum sem þau höfðu keypt á árunum 2002-2006. Húsin höfðu upphaflega verið seld tilbúin til innréttinga en fullbúin að utan til H hf., E hf. og V ehf. á árinu 2002. SÁ hafði verið byggingarstjóri húsanna og byggðu H o.fl. kröfur sínar á hendur honum á grundvelli ábyrgðar hans samkvæmt þágildandi skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem fram kom að meginorsök mygluskemmdanna í þökum húsanna væri að rekja til þess að loftun þeirra hefði ekki verið í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar, m.a. vegna þess að lokað hafði verið fyrir loftun þakanna með þéttipylsum og upprúlluðu álneti, en samkvæmt framburði áfrýjandans S fyrir dómi höfðu þéttipylsurnar verið settar upp veturinn 2003-2004. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt SÁ hefði staðhæft að hann hefði afhent byggingarfulltrúa bréf um að hann hefði hætt byggingarstjórn við umrædd hús á árinu 2002, þá hefði ekkert gagn þess efnis verið lagt fram í málinu. Þá væri ágreiningslaust að engin stöðuúttekt hefði farið fram. Væri því ósönnuð sú fullyrðing SÁ að hann hefði sagt sig frá byggingarstjórn húsanna. Af málatilbúnaði H o.fl. væri ljóst að þau teldu að orsakir myglu í þökum húsanna væri ekki eingöngu að rekja til uppsetningu þéttipylsanna heldur einnig til þess að ekki hefði verið byggt í samræmi við samþykktar teikningar, lög og reglugerðir þegar húsin voru reist. Þótt ekki yrði ráðið af matsgerð eða öðrum gögnum málsins hvenær H o.fl. hefðu mátt gera sér grein fyrir þeim göllum á loftræstingu þaka húsanna sem myglan var rakin til, hefði fyrningarfrestur kröfu þeirra í síðasta lagi byrjað að líða þegar þéttipylsurnar voru settar upp veturinn 2003-2004. Hefði krafa þeirra fyrnst 10 árum síðar og þar af leiðandi verið fyrnd þegar þau höfðuðu málið 19. júní 2014. Var það sama talið eiga við um kröfur H o.fl. vegna annarra galla á húsunum. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu SÁ því staðfest.

...Af niðurstöðu matsgerðar sé ljóst að stefndi hafi hvorki gætt að því að loftun þaka uppfyllti þær kröfur sem gerðar séu í reglugerð nr. 441/1998 né gengið eftir því...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. mars 2017

E-302/2016

Guðlaugur Magni Davíðsson (Gísli Kr. Björnsson hdl) gegn Iceland Incoming ferðum ehf (Guðbrandur Jóhannesson hdl)

Fallist var á kröfu seljanda fasteignar um að kaupandi greiddi eftirstöðvar kaupverðs. Eignin, sem var seld án þess að lokaúttekt byggingarfulltrúa hefði farið fram, var ekki talin gölluð þannig að kaupandi gæti haldið eftir hluta kaupverðs eða að hann ætti rétt á skaðabótum eða afslætti af kaupverði.

...55.3 í þágildandi reglugerð nr. 441/1998, segi að sé ófullgert húsnæði tekið í notkun skuli byggingarstjóri óska eftir úttekt á stöðu framkvæmda. Á stöðuúttektarvottorði skuli getið um áframhaldandi...

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. mars 2017

E-1067/2015

Snæbjörn Guðni Valtýsson og Valgerður Björg Ólafsdóttir (Theodór Kjartansson hdl) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf. (Hákon Árnason hrl), Gunnari Valbirni Jónssyni (Skarphéðinn Pétursson hrl) og Teiknistofunni Arkitektum ehf. (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Skaðabótamál.

Byggingarstjóri og hönnuður dæmdir til greiðslu skaðabóta að hluta til vegna galla á fasteign. Vátryggingafélag byggingarstjórans var sýknað þar sem bótafjárhæð starfsábyrgðartryggingar var tæmd.

...Frágangur og hönnun þaksins brjóti því gegn reglugerð nr. 441/1998. Samtals nemi viðgerð samkvæmt þessum lið 2.441.700 krónum. Matsliður 6. Veggir í bílskúr. Matsmaður telji að frágangur...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. desember 2016

E-553/2016

A (Páll Ásgeir Davíðsson hdl) gegn Mosfellsbakaríi, ehf, Hermanni, Bridde, Vátryggingafélagi Íslands hf. til réttargæslu og Húsfélaginu Háaleitisbraut 58-60

Fallist var á að fasteignareigandi og umráðamaður verslunarrýmis bæru skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir þegar hún slasaðist við það að detta í dyragætt verslunarrýmisins.

...Telja stefndu ósannað að hurðarpumpan hafi verið hættuleg viðskiptavinum eða brotið í bága við einhver ákvæði í þágildandi reglugerð nr. 441/1998. Þá sé það rangt og ósannað að lokun...

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. nóvember 2016

E-1204/2015

Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra og A (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Reykjanesbæ (Unnar Steinn Bjarndal hdl) og Eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf. (Theodór Kjartansson hdl)
Lykilorð: Fasteign.

Kröfum stefnenda um tilteknar breytingar á tveimur fasteignum var hafnað þar sem almennt er ekki unnt að gera ríkari kröfur til fasteigna en fyrirmæli voru um á þeim tíma sem fasteignin var byggð. Einnig var litið til þess að skv. 34. gr. laga um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992, sbr. lög nr. 152/2010, og framkvæmdaáætlun um málefni fatlaðs fólks, hafa sveitarfélög ákveðið svigrúm við það verkefni að bæta aðgengi að opinberum byggingum og sveitarfélög þurfa að forgangsraða verkefnum þar sem fjárhagur setur þeim skorður.

...kafla í reglugerð nr. 441/1998 og 6. hluta, kafla 6.1, í reglugerð nr. 112/2012. Báðar reglugerðir gangi út frá því að eigandi mannvirkis beri ábyrgð á því...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. júní 2016

E-870/2014

GG verk ehf (Marteinn Másson hrl) gegn Eignafélagi Akralindar og ehf. og gagnsök gegn (Margrét Anna Einarsdóttir hdl) og GG verki ehf. (Marteinn Másson hrl) og gagnsök

Aðilar deildu um uppgjör verksamnings þar sem GG ehf. tók að sér tiltekin verk við smíði fjölbýlishúss A. Með matsgerð taldist sannað að verk GG væri haldið tilteknum göllum og nokkrum verkliðum væri ólokið og fallist á skuldajafnaðarkröfu A á móti ógreiddum reikningum GG ehf. Sömu leiðis var fallist á að GG bæri að greiða A tafabætur að álitum. Stærsta kröfulið A vegna galla var vísað frá dómi með vísan til e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Þá var fallist á hluta af reikningi GG fyrir viðbótarverk en öðru hafnað sem ósönnuðu, sem og kröfu GG vegna magnaukningar. Byggingarstjóri og vátryggjanda hans voru sýknaðir af bótakröfu.

...samningi aðila frá 16. ágúst 2012, mannvirkjalögum nr. 160/2010, og gildandi byggingarreglugerð. Reglugerð nr. 441/1998 eigi við að því er varðar efnisákvæði 6.-16. kafla reglugerðar nr. 112...

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. nóvember 2014

E-266/2014

Fyrir er tekið málið nr. E-266/2014 Sigurbjörg Sjöfn Rafnsdóttir (Teitur Már Sveinsson hdl) gegn Rangárþingi ytra (Guðjón Ármannsson hrl)
Lykilorð: Stjórnsýsla.

Skaðabótamál.

...73/1997, reglugerð nr. 441/1998, lögum nr. 37/1993 og almennum meginreglum stjórnsýsluréttarins hafi ákvörðun stefnda bæði verið saknæm og ólögmæt. Sök stefnda sé stórfelld enda hafi hann meinað...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. mars 2014

E-178/2013

Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson (Skúli Sveinsson hdl) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Svanhvít Axelsdóttir hdl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Skaðabótamál

...12.8 í reglugerð nr. 441/1998, og viðbrögð byggingaryfirvalda sem rakin hafa verið. Fjárhæð kröfunnar miðast við mat dómkvadds matsmanns á því sem óskemmt var eftir brunann, framreiknað til...

Hæstiréttur birt 7. febrúar 2013

439/2012

Sigurður Jónsson (Ólafur Örn Svansson hrl) gegn Kópavogsbæ (Arnar Þór Stefánsson hrl)

S krafðist þess að felld yrði úr gildi ákvörðun K um að hafna tillögu að breyttu deiliskipulagi er varðaði aðgengi að húsi hans. Þegar tillagan kom til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar K hafði skipulagsnefnd K samþykkt hana og umhverfis- og samgöngunefnd fyrir sitt leyti fallist á hana. S taldi ákvörðun K hafa brotið í bága við ákvæði þágildandi byggingar- og skipulagreglugerða, eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga auk þess sem hún hafi verið reist á ómálefnalegum sjónarmiðum. Í dómi Hæstaréttar er rakið að sveitarstjórn hafi víðtækt vald í skipulagsmálum innan marka sveitarfélags og beri ábyrgð á og annist framkvæmd deiliskipulags. Heyri það undir hana að samþykkja deiliskipulag endanlega og breytingar á slíku skipulagi. Taldi Hæstiréttur S ekki hafa sýnt fram á að umrædd ákvörðun bæjarstjórnar K hafi brotið í bága við lög eða stjórnvaldsfyrirmæli. Þá hafi heldur ekki verið í ljós leitt að ómálefnaleg sjónarmið hafi búið að baki ákvörðuninni. Að þessu virtu staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sýknu K.

...Legg ég til að bæjarskipulagi verði falið að gera tillögu að aðkomu að húsinu sem uppfylli þær kröfur sem gerðar eru í reglugerð nr. 441/1998.“ Á fundi skipulagsnefndar 19...

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. apríl 2012

E-1482/2011

Sigurður Jónsson (Halldór Reynir Halldórsson hdl) gegn Kópavogsbæ (Sigurjón Ingvason hdl)
Lykilorð: Skipulag.

Ágreiningur um deiliskipulag lóðar. Sýkna.

...Legg ég til að bæjarskipulagi verði falið að gera tillögu að aðkomu að húsinu sem uppfylli þær kröfur sem gerðar eru í reglugerð nr. 441/1998.“ Á fundi skipulagsnefndar 19...

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. nóvember 2011

E-609/2010

Krafthús ehf (Hildur Ýr Viðarsdóttir hdl) gegn Hreini Inga Hreinssyni og Hildi Hrund Hallsdóttur (Guðjón Ármannsson hdl)

K höfðaði málið til heimtu eftirstöðva kaupverðs fasteignar. HI og HH kröfðust sýknu vegna galla sem komið hefðu fram á eigninni. Undir rekstri málsins og á grundvelli matsgerðar sem stefndu öfluðu lækkaði K kröfu sína úr 3.200.000 krónum í 2.200.000 krónur. Endanlega krafa tekin til greina með 1.937.109 krónum.

...Þó að reglugerð nr. 441/1998, byggingarreglugerð, kveði ekki á um hljóðeinangrun á milli herbergja er það mat yfirmatsmanna að fyrir hús af þessum gæðum má ætla byggjanda að huga...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. nóvember 2006

E-6840/2006

Anna Karitas Bjarnadóttir og Þorvaldur Gylfason (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn 101 Skuggahverfi hf (Ingvi Snær Einarsson hdl)

Stefnendur sem keypt höfðu nýja íbúð af stefnda kröfðu hann um greiðslu skaðabóta vegna galla. Var krafa þeirra að hluta tekin til greina.

...Sé þessi hugtakanotkun í samræmi við byggingar­reglugerð nr. 441/1998 og verði því notast við þessi hugtök.  Umfjöllun um hljóðvistarflokka sé samkvæmt staðli um hljóðvistaflokkun bygginga ÍST 45 sem...

Hæstiréttur birt 15. nóvember 2007

155/2007

Reykjavíkurborg (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Jóni Bender, Guðrúnu Ragnarsdóttur, Jón Bender (Kristinn Bjarnason hrl) og Guðrún Ragnarsdóttir (Steinar Þór Guðgeirsson hrl)

J og G keyptu hús í byggingu af H sf. 12. maí 1999. Eigendur félagsins voru EP og EM og var EM jafnframt byggingarstjóri hússins. Sig kom fram í gólfplötu og kváðust J og G hafa orðið vör við ummerki þessa í desember 1999. Í málinu beindu J og G kröfum að N, múrarameistara hússins, og R til vara. Eigendur H sf. voru báðir gjaldþrota en J og G lýstu kröfu í þrotabú EM sem byggingarstjóra hússins. Reyndist bú byggingarstjórans eignalaust og ekki var við skiptin tekin afstaða til bótakröfu J og G. Í ljós kom að ábyrgðartrygging EM sem byggingarstjóra hafði ekki tekið gildi á þeim tíma þegar tjónið varð. Kom fram í málinu að J og G höfðu fyrst beint kröfu að N vegna hins ætlaða galla með birtingu stefnu í júní 2005 og var talið að þar sem svo langur tími hafði liðið frá því að þau urðu hins ætlaða galla vör hefðu þau fyrirgert hugsanlegum bótarétti sínum gagnvart N fyrir tómlæti. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu N. Kröfu sína gegn R byggðu J og G einkum á því að R hefði borið að ganga eftir því áður en byggingarleyfi var gefið út að EM hefði sem byggingarstjóri gilda ábyrgðartryggingu, en einnig á því að byggingarfulltrúi hefði sýnt af sér saknæma háttsemi þegar hann gerði ekki athugasemdir við frágang botnplötu við úttekt. Varðandi fyrri röksemdina var talið að ekki lægi fyrir í málinu staðfesting á ábyrgð byggingarstjóra og þá ekki hvort tjón J og G væri þess eðlis að ábyrgðartrygging byggingarstjóra hefði bætt það. Taldist því ekki sýnt fram á að orsakasamband væri á milli tjóns þeirra og þeirrar staðreyndar að R hafði skráð EM sem byggingarstjóra á verkið án þess að hann hefði ábyrgðartryggingu. Þá þóttu J og G ekki hafa sýnt fram á vanrækslu starfsmanna R við úttekt á botnplötu. Var R því einnig sýknað af kröfu J og G.

...við einangrun undir botnplötu hússins og frágang hennar við úttekt 20. nóvember 1998. Reglugerð nr. 441/1998 öðlaðist gildi við útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda 23. júlí 1998, en eins og...

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. október 2007

E-407/2006

Hjörtur Smárason og Inga Rós Antoníusdóttir (Guðjón Ólafur Jónsson hrl) gegn Rúnar Karlssyni (Jón Auðunn Jónsson hrl) og Kristjáni Sveini og Kristjánssyni (Jón Höskuldsson hdl)
Lykilorð: Fasteignakaup. Gallar.

Seljandi fasteignar í byggingu dæmdur til að greiða skaðabætur þar sem eignin var ekki í umsömdu ástandi þegar hún var afhent og þar sem hann þótti ekki hafa sinnt nægilega kröfu kaupenda um úrbætur. Byggingastjóri hússins var hins vegar sýknaður.

...73/1997 eða reglugerð nr. 441/1998. Í tilvitnuðum lögum sé verksviði byggingastjóra lýst sem framkvæmdastjóra byggingaframkvæmda, sem komi að ráðningu iðnmeistara að framkvæmdum og umsjón með störfum slíkra iðnmeistara...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júní 2007

E-2444/2006

Haraldur Sigþórsson (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn Átt-kaupum ehf. (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hdl) og Reykjavíkurborg (Haukur Örn Birgisson hdl)

Stefnandi féll niður stiga í veitingahúsi og slasaðist alvarlega. Hann krafði eiganda húsnæðisins og Reykjavíkurborg sem gefið hafði út vínveitingaleyfi til rekstraraðila veitingahússins um greiðslu skaðabóta á þeim forsendum að stigi milli hæða í húsnæðinu og umbúnaður hans hefði verið óforsvaranlegur og verið orsök slyssins. Ekki var fallist á þau sjónarmið og stefndu sýknuð.

...talist.  Þá sé ljóst að þrepin uppfylli ekki ákvæði 202.7 í bygginga­reglugerð nr. 441/1998.  Þá virki handrið í efra stighlaupi ekki sem slíkt vegna lögunar og gerðar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. febrúar 2007

E-6992/2005

Georg Viðar Björnsson (Magnús B. Brynjólfsson hdl) gegn Kaupási hf og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. til réttargæslu

Stefnandi krafði stefnda um bætur vegna tjóns er hann varð fyrir þegar bifreið hans skemmdist í árekstri. Stefnandi taldi stefnda bera ábyrgð á tjóninu vegna trégrindverks, er hann hafði sett upp á lóðarmörkum og byrgði sýn við útakstur inn á Eiðsgranda, en stefnandi taldi að áreksturinn hefði orðið vegna þess. Á þetta var ekki fallist og sýknað af kröfum stefnanda.

...Í grein 67.1 í byggingar­reglugerð nr. 441/1998 komi fram að ekki þurfi að leita samþykkis byggingarnefndar ef girðing er lægri en 180 cm en það hafi hún...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. ágúst 2006

E-6008/2005

Rúnar Sólberg Unnsteinsson Sjöfn Garðarsdóttir (Stefán Geir Þórisson hrl) gegn Reykjavíkurborg Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Benedikt Guðbjartsson hdl)

Stefndi var sýknaður af skaðabótakröfu stefnenda vegna slyss sem 6 ára drengur varð fyrir í leikskóla.

...Þá sé ekki að finna í reglugerðinni nein sambærileg ákvæði og nú sé að finna í grein 3.5 í núgildandi reglugerð nr. 441/1998. Ekki verði með neinu móti...

Hæstiréttur birt 25. september 2003

41/2003

Stefanía Hákonardóttir (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

S, sem runnið hafði til í hálku á tröppum við vinnustað sinn, krafðist bóta af Í vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir við fallið. Talið var að aðstæður hafi ekki verið með þeim hætti að lögð yrði bótaábyrgð á vinnuveitanda S, en rekja mætti slysið til óhappatilviljunar. Var Í því sýknað af öllum kröfum S.

...Ekki sé unnt að fallast á að skortur á handriði við tröppurnar hafi brotið gegn ákvæðum skipulags- og byggingalaga en reglugerð nr. 441/1998 hafi ekki verið í gildi er...