Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

32 dómar fundust

Lykilorð: Riftun og skuldamál

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. apríl 2026 kl. 10:08

E-200/2025

Heklubyggð ehf (Orri Sigurðsson lögmaður) gegn Hveradölum ehf (Skúli Sveinsson lögmaður)

Ágreiningur var um hvort gagnstefndi, þ.e. stefnandi málsins, hefði vanefnt skyldur sínar samkvæmt kaupsamningi og eftir atvikum hvort leiða mætti ætlaðar vanefndir hans út frá öðrum samningum á milli aðila, og ef svo væri, hvort þær vanefndir væru svo verulegar að þær gætu réttlætt riftun aðalstefnda á kaupunum. Taldi dómurinn ekki unnt að fallast á það með aðalstefnda að gagnstefndi hefði vanefnt, eða myndi fyrirsjáanlega vanefna, samningsskyldur sínar gagnvart aðalstefnda, eða að slíkar vanefndir væru svo fyrirsjáanlegar að réttlætt gæti riftun aðalstefnda á kaupunum. Aðalstefndi var því dæmdur til útgáfu afsals að viðlögðum dagsektum að fjárhæð kr. 50.000 á dag, en gagnstefndi var sýknaður af kröfu um staðfestingu riftunar á kaupsamningi aðila. Þá var aðalstefnda gert að greiða gagnstefnanda málskostnað vegna hvoru tveggja aðalsakar og gagnsakar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. nóvember 2024

E-1572/2024

Victoria Rita Jaroslavsdóttir (Kristín Eva Geirsdóttir lögmaður) gegn Elena Ivanova Tryggvason (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður)

Stefnda og stefnandi gerðu með sér fóðrunarsamning vegna sýningarhunds. Var stefnda áfram eigandi tíkarinnar en átti að fá úr henni hvolpa samkvæmt samkomulagi. Þá átti hún rétt á að skrá og sýna tíkina á hundasýningum. Hafði stefnandi einnig ákveðin réttindi og skyldur samkvæmt samningnum. Ágreiningur varð á milli aðila um holdarfar hundsins og hvort hægt væri að láta hann keppa til verðlauna þar sem hann var orðinn allt of feitur að mati stefndu sem einnig var hundaræktandi. Á hundasýningu tók stefnda hundinn til sín auk þess að birta stefnanda riftunarbréf á samningi þeirra. Stefnandi krafðist skaðabóta vegna fóðrunar hundsins í átta mánuði auk útlagðs kostnaðar og miskabóta vegna andlegrar þjáningar. Var stefnda sýknuð af öllum kröfum stefnanda þar sem að málatilbúnaður hennar var þannig úr garði gerður að allar kröfur hennar voru ósannaðar og án nægjanlegra gagna sem studdu kröfu hennar. Var stefnanda einnig gert að greiða stefndu málskostnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. júlí 2024

E-60/2024

Málið nr. E-60/2024 Þrotabú Torgs ehf (Þórhallur Bergmann lögmaður) gegn JSB dreifingu ehf (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður)

Dreifingarfyrirtæki að Fréttablaðinu var sýknað af riftunar- og skaðabótakröfu þrotabús Torgs ehf. þar sem ósannað þótti að nafngreindur fyrirsvarsmaður dreifingarfyrirtækisins hafi vitað eða mátt vita um ógjaldfærni Trogs þegar 1.178.000 króna greiðsla vegna dreifingar á Fréttablaðinu var innt af hendi 3. apríl 2023. Daginn eftir var bú Torgs tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu stjórrnar félagsins.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 24. apríl 2024

E-396/2022

Húni Hlér Einarsson og Sólrún Eva Árnadóttir (Páll Kristjánsson lögmaður) gegn Gunnari Konráðssyni og Sigríði Árnadóttur (Atli Már Ingólfsson lögmaður)

Gallamál. Fallist á kröfur stefnenda er vörðuðu ágalla á húsi að hluta til, en því hafnað að staðsetning hússins fæli í sér galla sem stefndu bæru ábyrgð á.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. nóvember 2022

E-1034/2022

Sjónver ehf (Birkir Már Árnason lögmaður) gegn Fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík (Diljá Catherine Þiðriksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Leiguréttur

Stefnandi leigði stefnda húsnæði undir kosningaskrifstofu tímabundið til sex mánaða, en stefndi lýsti yfir riftun leigusamningsins og skilaði húsnæðinu rúmri viku eftir afhendingu þess. Þá hafði stefndi ekkert greitt stefnanda fyrir afnotin og krafðist stefnandi í málinu þess að stefndi greiddi honum umsamda leigu í sex mánuði. Ekki var fallist á að stefnda hefði verið heimilt að rifta samningnum á þeim grundvelli sem gert var, en stefnda var gert að greiða stefnanda leigu fyrir fyrsta mánuð umsamins leigutíma, sem gjaldfallin var þegar stefnandi tók við umráðum húsnæðisins á ný.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. júní 2022

E-508/2022

MJ 001 ehf (Atli Björn Þorbjörnsson lögmaður) gegn Eignarhaldsfélagi Höfuðborgar ehf og Bestun Birtingahúsi ehf (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður)

Stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda um viðurkenningu á riftun framsalsgernings um hlutabréfakaup, sem fram fóru á árinu 2018, og kröfu um viðurkenningu á eignarétti stefnanda á þeim hlutum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. október 2021

E-785/2020

Matthildur Ernudóttir og Sigurjón Ólafsson (Sigurgeir Valsson lögmaður) gegn Fasteignafélaginu Kletti ehf (Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður)

Staðfest var riftun stefnenda á kaupsamningi aðila um fasteign og stefnda gert að endurgreiða stefnendum umsamið kaupverð auk vaxta og dráttarvaxta. Þá var stefndi og dæmdur til að greiða stefnendum skaðabætur auk dráttarvaxta, sem og málskostnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. mars 2021

E-2342/2020

Grétar Þórarinn Gunnarsson (Ásgeir Þór Árnason lögmaður) gegn Skuggi 4 ehf (Gunnar Sturluson lögmaður)

Stefnda var heimilt að halda eftir tiltekinni fjárhæð vegna framkvæmda við að koma íbúðum aftur í samt form eftir samkomulag um riftun á kaupunum. Þó var stefnda gert að greiða stefnanda tiltekna fjárhæð vegna afsláttar sem stefndi hefði mátt veita stefnanda við uppgjör þeirra.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. mars 2021

E-2405/2018

Green Garage ehf (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Nesvegi 41, húsfélagi, Helenu Dóru Kojic, Jovan Ilic, Halldóru Ásgeirsdóttur, Ásgeiri Birkissyni, Maríu Björk Birkisdóttur, Signýju Guðmundsdóttur, Ástu Jóhannesdóttur og Ásdísi Óskarsdóttur Vatnsdal (Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður)

Eigendur fasteignar dæmdir til greiðslu reikninga vegna viðgerðar.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 13. október 2017

E-7/2017

Vísað frá dómi kröfum stefnanda, sem lutu annars vegar að því að vikið yrði til hliðar eignaskiptasamningi málsaðila við skiptalok á búi þeirra, með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936, og hins vegar að því að stefndu yrði gert að greiða stefnanda tilgreinda fjárhæð.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. nóvember 2016

E-292/2016

Sigurður Örn Sigurðsson Aðalheiður Jacobsen (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn Grímsnes- og Grafningshreppi (Óskar Sigurðsson hrl)

Stefnendur, sem gerðu kröfu um riftun kaupsamninga og endurgreiðslu kaupverðs með vísan til 45. gr. laga um fasteignakaup nr. 40/2002, voru talin hafa glatað rétti sínum til að bera fyrir sig vanefnd vegna tómlætis. Stefndi var því sýknaður.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. júní 2014

E-128/2016

Gæðabakstur ehf (Andri Gunnarsson hdl) gegn Matvélum og umbúðum ehf (Eiríkur Elís Þorláksson hrl)

Stefnandi höfðaði mál á hendur stefnda vegna meintra galla á vél frá þýskum framleiðanda. Óljóst var af stefnu málsins hvort stefnandi byggði kröfu sína á hendur stefnda á því að stefndi væri umboðsmaður eða seljandi vélarinnar. Samkvæmt skilmálum framleiðandans átti varnarþing að vera í Þýskalandi.Við munnlegan flutning málsins var því svo lýst yfir að byggt væri á því að stefndi hefði verið umsýslumaður en ekki umboðsmaður eða seljandi. Var málinu því vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 27. maí 2013

E-1198/2012

Halldór Pétursson (Jón G. Briem hrl) gegn Kristjönu Heiði Gunnarsdóttur (Jónas Örn Jónasson hdl)
Lykilorð: Riftun og skuldamál.

Greiðsludráttur stefndu á eftirstöðvum kaupverðs fasteignar taldist ekki veruleg vanefnd í skilningi 51. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Var því ekki fallist á kröfu stefnanda um riftun á kaupunum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. maí 2013

E-7492/2010

Kaupþing banki hf (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Steingrími P Kárasyni (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Þótt skilyrði til riftunar væri fullnægt vegna niðurfellingar á persónlegri ábyrgð I á láni sem K hafði veitt honum til hlutafjárkaupa í K, var tjón K af þessum sökum talið svo vanreifað að óhjákvæmilegt væri að vísa málinu frá dómi í heild sinni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. maí 2013

E-4904/2010

Kaupþing banki hf (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Ingólfi Helgasyni (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Fallist var á kröfu slitastjórnar fjármálafyrirækisins K vegna niðurfellingar á persónlegri ábyrgð I á láni sem honum hafði verið veitt til hlutafjárkaupa í K. Hluta af kröfum K var þó vísað frá dómi vegna vanreifunar og skorti á lögvörðum hagsmunum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. maí 2011

E-5862/2010

Kaupþing banki hf (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Þórði Pálssyni (Gizur Bergsteinsson hdl)

Rift var yfirlýsingu fyrrverandi forstjóra Kaupþing banka hf. um að fella niður persónulega ábyrgð stefnda af greiðslu lánssamnings vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Var stefndi dæmdur til að endurgreiða bankanum fjárhæð sem nam endurgreiðsluverðmæti lánssamningsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. desember 2009

E-6971/2009

Hugur ehf (Ólafur Thoroddsen hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hdl)
Lykilorð: Riftun og skuldamál.

Talið var að stefndi hefði með engum þeim hætti brotið gegn skyldum sínum við stefnanda að heimilaði riftun á úthlutunargerð um lóð. Var því riftunarkröfum stefnanda hafnað. Þá var hafnað kröfu stefnanda um ógildingu úthlutunargerðarinnar og skaðabótaskyldu stefnda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. nóvember 2009

E-2935/2009

Guðrún Sigríður Sigvaldadóttir (Guðríður Lára Þrastardóttir hdl) gegn Kristni Bernburg Ragnarssyni (Ingimar Ingimarsson hdl)

Stefnandi krafðist riftunar á kaupum á hlutafé í félagi sem átti fimm byggingalóðir. Samkvæmt kaupsamningi málsaðila skyldu seljandi útvega teikningar frá arkitekt til samþykktar. Tafir urðu á því að byggingarfulltrúi samþykkti þrjár af fimm teikningum en ekki var fallist á að þar væri um vanefnd að ræða sem stefndi bæri ábyrgð á þannig að riftun gæti varðað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2009

E-6172/2008

Eignarhaldsfélagið Sævarhöfði ehf (Sigurður G. Guðjónsson hrl) gegn H-D húsinu ehf og Klingenberg Cochran ehf (Ásgeir Þór Árnason hrl)

Aðalstefnandi krafðist riftunar samnings um kaup á hlutum í félagi. Gagnstefndu kröfðust efnda samkvæmt samningi. Aðalstefndu voru sýknuð í aðalsök en kröfum í gagnsök var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2009

E-4533/2008

Elfa Marita Ágústsdóttir (Sveinn Sveinsson hrl) gegn RK ráðgjöf ehf. (Jónas Örn Jónasson hdl) og Bílasölunni Höfðahöllinni og ehf. (Ægir Guðbjarni Sigmundsson hdl)

Í málinu gerði stefnandi kröfur um riftun og endurgreiðslu kaupverðs bifreiðar en til vara kröfur um skaðabætur eða afslátt. Var málinu vísað frá dómi þar sem málatilbúnaður stefnanda þótti ekki fullnægja meginreglum einkamálaréttarfars um skýran og glöggan málatilbúnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. desember 2007

E-295/2007

Sigurþór Örn Arnarson Halldóra Björk Ársælsdóttir (Ólafur Örn Svansson hdl) gegn Agli Guðna Jónssyni (Sveinn Jónatansson hdl)

Í málinu var ekki ágreiningur um kröfu stefnenda um staðfestingu á riftun kaupsamnings vegna vanefnda stefnda. Þá var ekki ágreiningur um að afmá kaupsamning úr þinglýsingabókum. Ágreiningur laut að uppgjöri í kjölfar riftunar. Var niðurstaðan sú að staðfest var riftun og að kaupsamningur yrði afmáður úr þinglýsingabókum gegn því að stefnendur endurgreiddu það sem stefndi hafði greitt af kaupverði eignarinnar að frádregnum kostnaði sem stefnendur höfðu haft af sölunni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. nóvember 2004

E-10432/2004

Baldvin Ingi Símonarson Úlfhildur Úlfarsdóttir (Herdís Hallmarsdóttir hdl) gegn Ingvari Má Pálssyni, Daeng Boonsava Pálssyni, Írisi Hall, Laufási fasteignasölu ehf og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. til réttargæslu (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)

Kaupsamningi rift vegna vanefnda seljenda. Sakarefni skipt og fyrst dæmt um riftun. Seljendur dæmdir til endurgreiðslu hluta kaupverðs og skaðabóta og fasteignasali og fasteignasala dæmd til greiðslu skaðabóta