Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

11 dómar fundust

Lykilorð: Skiptasamningur

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 13. október 2017

E-7/2017

Vísað frá dómi kröfum stefnanda, sem lutu annars vegar að því að vikið yrði til hliðar eignaskiptasamningi málsaðila við skiptalok á búi þeirra, með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936, og hins vegar að því að stefndu yrði gert að greiða stefnanda tilgreinda fjárhæð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2012

E-1318/2011

Gissur Rafn Jóhannsson (Steinn S. Finnbogason hdl) gegn EA fjárfestingafélagi ehf (Ólafur Eiríksson hrl)
Lykilorð: Skiptasamningur. Skuldamál.

Stefnandi hafði undirritað samninga við stefnda um fjárfestingar í formi skuldsettra markaðsviðskipta. Talið var að skiptasamningar um fjármálagerninga hafi verið skuldbindandi fyrir stefnanda og að stefndi hefði sýnt af sér eðlilega og hreilbrigða viðskiptahætti í samskiptum við stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2010

E-14174/2009

Baldvin Gíslason (Ólafur Thoroddsen hrl) gegn MP banka hf (Ólafur Eiríksson hrl)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um endurgreiðslu fjármuna en aðilar deildu um hvort skiptasamningi um fjármálagerning hefði verið framlengt. Talið var sannað að stefnandi hefði í símtali við starfsmann stefnda óskað eftir framlengingu samningsins. Varakröfu stefnanda um ógildingu samningsins og skaðabætur var vísað frá dómi vegna vanreifunar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. október 2010

E-13748/2009

Kaupþing banki hf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn Time á Íslandi ehf (Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Stefndi dæmdur til þess að greiða stefnanda skuld samkvæmt skiptasamningi. Ekki var fallist á kröfu stefnda um að hann ætti gagnkröfu til skuldajafnaðar vegna saknæmrar háttsemi starfsmanna Kaupþings banka hf. við eignastýringu eða vegna brota á lögum um verðbréfaviðskipti.

Hæstiréttur birt 10. júní 2010

494/2009

Hallgrímur Bergsson (Jón Jónsson hrl) gegn Elsu G. Þorsteinsdóttur og Bergi Jónssyni (Óskar Sigurðsson hrl)

Árið 1971 óskuðu þau J, H og Þ eftir einkaskiptum á búi látinna foreldra sinna með þeim hætti að J gegnst einn við skuldum búsins og eignaðist einn aðaleign hennar, Jörðina K. Á móti skuldbatt J sig til þess að selja þeim H og Þ 1/3 hluta jarðarinnar hvoru um sig á hlutfallslegu verði við það sem hann eignaðist jörðin á, færi svo að þau eða erfingjar þeirra vildu hefja búskap á jörðinni. Í málinu var deilt um hvort H gæti neytt réttar samkvæmt skiptagerðinni til kaupa á 1/3 hluta jarðarinnar, og hvaða verð honum bæri þá að greiða fyrir hlutann. Talið var að fyrrgreint skilyrði um að stunda búskap á jörðinni fæli það í sér að ásetningur stæði til þess að stunda atvinnustarfsemi sem teldist til landbúnaðar. Hugtakið landbúnaður yrði að skýra í ljósi atvinnuhátta á þeim tíma sem kaupréttar væri krafist. Ekki væri unnt að fallast á þann skilning H að kaupréttur hans á jörðinni væri skilyrðislaus. Þar sem H, eða afkomendur hans, hefðu ekki sýnt fram á með fullnægjandi hætti að markmið þeirra eða vilji stæði til þess að hefja búskap á jörðinni K, var ekki talið uppfyllt skilyrði skiptagerðarinnar frá 1971 um kauprétt H.