Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur héraðssaksóknari)
gegn
Elísabetu S. Guðmundsdóttur (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Vali Sigurðssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, líkamsárás, brot gegn valdstjórninni og fíkniefnalagabrot. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 18 mánuði og til greiðslu miskabóta.
Sakborningur, sem játaði brot sitt, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga skilorðsbundið í tvö ár. Sakborningur var einnig dæmdur til að greiða brotaþola 400.000 krónur í miskabætur með vöxtum og málskostnaði.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Przemyslaw Jacek Kosiorowski (
Sigurður Gústavsson Hafstað lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til 45 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Írisi Þórarinsdóttur (
Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Ákærða, sem játaði sök, var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmd til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Ewelina Liberacka (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærða, sem játaði sök, var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmd til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn
Tomas Sachniukas (Sjálfur)
Sakborningur, sem játaði sök, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.
Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn
Petreu Helgu Kristjánsdóttur (Enginn)
Sakborningur, sem ekki mætti fyrir dóm, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár, ekki síst þar sem meðferð málsins hafði dregist.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Suphaphon Tangwairam (
Aníta Rögnvaldsdóttir lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hún játaði skýlaust sök. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 90 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Héraðssaksóknari (Klara Dögg Thorarensen aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóni Benedikt Georgssyni
Ákærði, sem sótti ekki þing við þingfestingu málsins, var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Um var að ræða hegningarauka við eldri dóm sem var jafnframt tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi sem þótti hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi.
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Um var að ræða hegningarauka við fyrri dóm sem var jafnframt tekinn upp eftir fyrirmælum 60. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði, sem játaði sök, var dæmdur til að sæta fangelsi í tíu mánuði en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið.
Ákæruvaldið (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Sævari Þór Hallgrímssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en hann hafði játað brot sitt skýlaust undir meðferð málsins. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn
Birgi Magnúsi Sveinssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en útivist varð af hálfu ákærða í málinu og var því farið með það eftir a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og tollalögum. Hann var dæmdur til að sæta fangelsi í 3 mánuði en refsing var bundin skilorði til tveggja ára.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 60 daga fangelsi skilorðsbundið í 2 ár.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Þorgilsi Hauki Gíslasyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, hótanir og brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.
Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Birgi Snæ Snæbjörnssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Arturs Jakovlevs (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Jóhanni Frey Hallgrímssyni (
Elimar Hauksson lögmaður, 4. prófmál)
J var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa á bifreiðastæði á Akureyri, eftir að hafa reynt að komast undan lögreglu á hlaupum, gripið í öryggisvesti lögreglumanns, sem var að hlaupa hann uppi, fleygt honum í jörðina, haft hann undir og þannig veist með ofbeldi að lögreglumanninum sem var við skyldustörf. Féllst Landsréttur á niðurstöðu hins áfrýjaða dóms að af myndbandsupptöku úr eftirlitsmyndavél yrði nægilega ráðið að J hefði í umrætt sinn snúið sér við, gripið í lögreglumanninn og dregið hann eða fleygt honum í jörðina. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um sakfellingu J og honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár.
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákærðu var gefið að sök brot gegn valdstjórninni, með því að hafa slegið lögreglumann með opnum lófa í andlit með þeim afleiðingum að hann kenndi til eymsla, en lögreglumaðurinn var við skyldustörf. Taldist sú háttsemi varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærða játaði skýlaust sök og var farið með málið eftir 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með hliðsjón af sakarefni málsins þótti refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fresta skyldi fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms, héldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eggerti Arnari Magnússyni (
Elísabet Pétursdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglumanna og hrækja á lögreglumann
A var sakfelld fyrir eignaspjöll, brot gegn valdstjórninni, vopnalagabrot, brot gegn lögreglulögum og umferðarlagabrot samkvæmt nokkrum ákæruliðum. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hún hefði gerst sek um fjölmörg afbrot á tæplega átta mánaða tímabili. Skýlaus játning A var virt henni til refsimildunar en á hinn bóginn þótti ekki unnt að horfa fram hjá því að brot hennar væru ítrekuð og bæru vott um einbeittan ásetning sem hefði áhrif til refsihækkunar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var refsing A ákveðin sem hegningarauki við fyrri dóm. Sá dómur, sem var skilorðsbundinn, var jafnframt tekinn upp og A dæmd refsing í einu lagi. Þá hafði dómurinn ítrekunaráhrif á brot A samkvæmt II. kafla ákæru. Enn fremur var litið til þess að brot A samkvæmt II. kafla ákæru voru framin þegar hún var í gæslu lögreglu. Samkvæmt öllu framangreindu þótti refsing A hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði, en fullnustu 11 mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var henni gert að sæta upptöku á úðavopni og viðurkennd bótaskylda hennar.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Söru Kristínu Sraidi (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Elínu Jakobsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Moniku Ewu Kurzawa (
Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni
Héraðssaksóknari (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Ovidijus Malisauskas
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Magnúsi Skúlasyni (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórinni, ölvunar- og sviptingarakstur og líkamsmeiðingar af gáleysi og dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og ökuréttarsviptingar.
Héraðssaksóknari (
Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ásdísi Lilju Jónsdóttur (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærða dæmd í 60 daga skilorðsbundið fangelsi vegna brots gegn valdstjórninni.
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Með tveimur dómum héraðsdóms var MJ sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, nokkur brot gegn valdstjórninni, að gabba lögreglu, tvær líkamsárásir og tilraun til manndráps samkvæmt samtals fjórum ákærum. MJ skaut báðum dómunum til Landsréttar og voru málin þar sameinuð. Með dómi Landsréttar var niðurstaða beggja héraðsdómanna um sakfellingu MJ staðfest. Ákvæði 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 voru ekki talin standa því í vegi að MJ yrði gerð refsing í málinu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot MJ væru ófyrirleitin og margítrekuð. Með vísan til þessa og að teknu tilliti til 3. mgr. 106. gr. og 1. mgr. 218. gr. c, sbr. 71. gr. almennra hegningarlaga, og 1., 2., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. sömu laga, var MJ gert að sæta fangelsi í átta ár en gæsluvarðhald sem hann hafði sætt skyldi dragast frá refsingunni. Þá var MJ gert að greiða brotaþolunum A og B tilgreindar miskabætur og að sæta upptöku á hnífsblaði með tilheyrandi svörtu handfangi.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 45 daga fangelsi skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu skaða- og miskabóta.
Ákæruvaldið (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Birgi Haukssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Páli Ívari Rafnssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Hann játaði brot sitt skýlaust.
Ákæruvaldið (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erni Arnarsyni (
Leó Daðason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Hann játaði brot sitt skýlaust.
Héraðssaksóknari (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Jökli Jónasi Kristinssyni (Sjálfur)
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Sævari Arnfjörð Hreiðarssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og til greiðslu miskabóta fyrir tvö brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (Þröstur Þór Guðmundsson saksóknarfulltrúi) gegn
Kristófer Erni Sigurðarsyni (Sjálfur ólöglærður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Hann játaði brot sitt skýlaust.
Ákæruvaldið (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ingólfi Kjartanssyni (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um líkamsárásir og brot gegn valdstjórninni og honum gert að sæta fangelsi í átta ár, auk þess sem hann var dæmdur til greiðslu skaðabóta og hluta sakarkostnaðar. Ákærði var sýknaður af ákæru er varðaði tilraun til manndráps þar sem ekki þótti sýnt fram á að ákærði hefði haft ásetning til þess að svipta brotaþola lífi umrætt sinn en ákærði var þó fundinn sekur um sérlega hættulega líkamsárás og gerð refsins líkt og áður greinir.
Ákæruvaldið (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Mantas Dackauskas
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákærða sakfelld fyrir ýmis brot, m.a. brot gegn valdstjórninni, líkamsárás, auðgunarbrot og umferðarlagabrot. Hún játaði brot sín skýlaust og viðurkenndi bótaskyldu.
Ákæruvaldið (
Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Anítu Ósk Haraldsdóttur (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Rúmlega tvítug kona var dæmd í 14 mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundið, fyrir brot gegn valdstjórninni, eignaspjöll á lögreglubifreiðum og bifreiðum einstakra lögreglumanna, auk brota á sérrefsilöggjöf. Með hluta brotanna rauf ákærða skilorð fjögurra mánaða fangelsisdóms sem henni var birtur 3. júní 2024 og var sá dómur tekinn upp og dæmdur með. Viðurkennd var bótaskylda ákærðu vegna skemmda á umræddum bifreiðum, en flestum kröfum um bótafjárhæð vísað frá dómi vegna vanreifunar.
MK var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps gagnvart brotaþola C og stórfellda líkamsárás gagnvart brotaþola D með hnífstunguárás á sömu brotaþola í verslun í Reykjavík 7. mars 2024. Þess utan var MK sakfelldur fyrir fjögur valdstjórnarbrot og dæmdur í 8 ára fangelsi. Var refsing ákveðin sem hegningarauki við 14 mánaða fangelsisdóm sem kveðinn var upp 14. mars 2024. Jafnframt var MK dæmdur til greiðslu miskabóta.
Ákæruvaldið (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Frey Hallgrímssyni (
Hreiðar Eiríksson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir valdstjórnarbrot.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Ólafi Þorsteinssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í þriggja mánaða fangelsi.
Héraðssaksóknari (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn
A
Sakfellt fyrir eignaspjöll og brot gegn valdstjórninni
Ákærði sýknaður af ákæru um brot gegn valdstjórninni.
Tveir menn voru fundnir sekir um líkamsárásir og annar þar að auki um hótanir og brot gegn valdstjórninni. Var hvorum um sig gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingar beggja frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærðu gert að greiða brotaþolum sem þess höfðu krafist miskabætur. Þá var við ákvörðun refsingar annars ákærða til þess litið að brotaþoli hafði átt upptökin að átökum þeirra í millum. Ekki var þó fallist á vörn ákærðu er varðaði neyðarvörn.