Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

148 dómar fundust

Lykilorð: Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. mars 2024

S-614/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Shaun Alan McCartney (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákærða var gerð fangelsisrefsing sem var að hluta skilorðsbundin fyrir að hafa staðið að innflutningi á 9.900 g af maríhúana

Héraðsdómur Suðurlands birt 5. júní 2020

S-235/2020

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Pálma Má Þórarinssyni (Kristján Stefánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í tíu mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað að hluta. Með broti sínu hafði ákærði rofið skilyrði reynslulausnar og var hún dæmd upp.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. nóvember 2019

S-3796/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Brynjólfi Snorrasyni (Guðni Jósep Einarsson lögmaður) og A (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2019

S-837/2018

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jakobi Inga Ragnarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að þjófnað, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Með brotum sínum rauf hann skilorð eldri dóms og var dæmdur til að sæta fangelsi í fjóra mánuði, þar af í 30 daga skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2019

S-48/2019

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Lukaszi Bartlewski (Steinn S. Finnbogason lögmaður), Mateuszi Franciszek Cybula (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður) og Tomaszi Matusiewicz
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu voru sakfelldir fyrir þjófnað í félagi. Þá voru tveir ákærðu einnig sakfelldir fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, þar af annar þeirra fyrir að aka margítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. janúar 2019

S-417/2018

Ákæruvaldið (Katrín Hilmarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Adam Borzynski (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af voru sex mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, eignaspjöll og lyfja- og tollalagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 17. janúar 2019

S-350/2018

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hafþóri Loga Hlynssyni (Björgvin Jónsson hrl), X (Halldóra Aðalsteinsdóttir hdl), Kjartani Sveinarssyni (Ólafur V. Thordersen hdl), Matthíasi Jóni Karlssyni (Guðni Jósep Einarsson hdl), Pétri Stanislav Karlssyni (Guðmundur St. Ragnarsson hdl), Sindra Þór Stefánssyni (Þorgils Þorgilsson hdl) og Viktori Inga Jónassyni (Áslaug Lára Lárusdóttir hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelldir fyrir innbrot og þjófnað í gagnaver sem hýstu tölvur og búnað til að grafa eftir rafmynt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 10. desember 2018

S-276/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Heiðari Kristjáni Grétarssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot, með því að hafa meðal annars efkið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Með broti sínu rauf ákærði skilorð eldri dóms og var hann dæmdur upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi, en hluti refsingarinnar var bundinn skilorði. Þá var ákærði og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. nóvember 2018

S-625/2018

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Tamaz Robakidze (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals, brot á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga en fullnustu 30 daga refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 16. júlí 2018

S-58/2018

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt fyrir kynferðisbrot. Ákærði hafði sjálfur upplýst um brot sín og var litið til þess við ákvörðun refsingar. Hluti refsingarinnar var bundinn skilorði af sömu ástæðu

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. júní 2018

S-172/2018

Ákæruvaldið (Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Jósep Nökkva Helgasyni
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna. Refsing ákærða ákveðin fangelsi í sextíu daga, en fresta skyldi þrjátíu dögum þeirrar refsingar. Ákærði sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. maí 2018

S-77/2018

Ákæruvaldið (Sigríður Árnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Kristni Pálssyni
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum í eigin atvinnurekstri. Skilorð eldri dóms var dæmt upp og ákærða gert að sæta fangelsi í tólf mánuði, sem skilorðbundið var að hluta. Þá var ákærða og gert sekt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. mars 2018

S-88/2018

Ákæruvaldið (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Tomasz Matusiewicz
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og vopnalagabrot. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í fjóra mánuði en þar af voru 30 dagar skilorðsbundnir til tveggja ára.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. febrúar 2018

S-248/2017

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Arnari Jóhanni Ragnarssyni (Jón Egilsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um húsbrot, þjófnað og fíkniefnalagabrot. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldra dóms og var refsingin dæmd upp. Ákærða var gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en fullnustu þriggja mánaða refsingarinnar var frestað skilorðsbundið.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. janúar 2018

S-359/2017

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Bryar Abubakir Namali (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um útlendinga og 108. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákærða ákveðin fangelsi í 9 mánuði en fullnustu 6 mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. desember 2017

S-28/2017

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn X (Björn Þorri Viktorsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni, líkamsárásir, hótanir, húsbrot og stórfelldar ærumeiðingar en sýknaður af ákæru um nauðgun. Refsing ákærða ákveðin fangelsi í 12 mánuði en fullnustu 9 mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í 2 ár. Þá var ákærða gert að greiða brotaþola miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. desember 2017

S-10/2017

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Bjarka Fannari Smárasyni (Jón Bjarni Kristjánsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu tveggja mánaða skilorðsbundins hluta fangelsisrefsingar eldri dóms og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða þótti hún hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði, en fresta skyldi hluta refsingarinnar skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. nóvember 2017

S-269/2017

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Piotr Sobczak
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið ölvaður og sviptur ökurétti. Brotin framdi hann áður en hann var dæmdur í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir ölvunaraksur með dómi 12. apríl síðastliðinn og 60 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnaði, með dómi 17. júlí síðastliðinn og var honum því gerður hegningarauki. Refsing síðargreinda dómsins var tekin upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi vegna þeirra brota og brota hans nú. Refsing hans var ákveðin fangelsi í 75 daga, en fullnustu 60 daga refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Auk þess var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. október 2017

S-149/2017

Ákæruvaldið (Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða var gefin að sök nauðgun og brot í nánu sambandi með því að hafa á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð sambýliskonu sinnar. Var ákærði sýknaður af því að hafa nauðgað sambýliskonu sinni, en sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi og gert að sæta fangelsi í 12 mánuði. Voru níu mánuðir af refsingunni bundnir skilorði til tveggja ára. Þá var ákærði dæmdur til greiða 800.000 krónur í miskabætur til brotaþola.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. október 2017

S-282/2017

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Gylfa Þór Héðinssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, en 45 dögum þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Sakfellingin tók til aksturs bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómnum var honum gerður hegningarauki við dóm frá 8. júní á þessu ári, þar sem hann var dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af 45 daga skilorðsbundið til tveggja ára og var skilorðsbundni hluti þeirrar refsingar tekinn upp og dæmdur með þeirri refsingu sem ákærða var dæmd í málinu. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. október 2017

S-136/2017

Ákæruvaldið (Grímur Hergeirsson fulltrúi) gegn Daníel Geir Höskuldssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot, þar á meðal ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hafði ákærði með broti sínu rofið skilorð eldri dóms og var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en hluti refsingarinnar var skilorðsbundin. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. júlí 2017

S-220/2017

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Gunnlaugi Stefáni Gíslasyni (Jóhanna Sigurjónsdóttir hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir rán og brot gegn umferðar-, lögreglu- og vopnalögum. Ákærði dæmdur í 18 mánaða fangelsi en fullnustu 15 mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 18 mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. júní 2017

S-183/2017

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Kristjóni Grétarssyni (Ingi Freyr Ágústsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið ölvaður og sviptur ökurétti. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu sex mánaða refsingar eldri dóms og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða þótti hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði, en fresta skyldi hluta refsingarinnar skilorðsbundið til þriggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. júní 2017

S-175/2017

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Kristjáni Þórissyni (Ingólfur Vignir Guðmundsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni kannabisplöntur og maríhúana og að hafa um nokkurt skeið ræktað greindar plöntur. Hann játaði háttsemi sína, en með henni rauf hann skilyrði fyrir frestun á fullnustu refsingar dóms frá 11. júní 2014, þar sem hann var dæmdur í fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í tíu mánuði, en fresta skyldi hluta refsingarinnar skilorðsbundið til þriggja ára. Þá skyldi ákærði sæta upptöku á kannabisplöntum, maríhúana og munum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. júní 2017

S-137/2017

Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Gylfa Þór Héðinssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 75 daga fangelsi fyrir að aka bifreiðum í tvígang sviptur ökurétti, en 45 dögum þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Með dómnum var honum gerður hegningarauki við dóm frá 2. mars á þessu ári, þar sem hann var dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af 45 daga skilorðsbundið til tveggja ára og var skilorðsbundni hluti þeirrar refsingar tekinn upp og dæmdur með þeirri refsingu sem ákærða var dæmd í málinu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 31. maí 2017

S-134/2017

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Antoni Frey Axelssyni (Ómar R. Valdimarsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði skýlaust háttsemina og var refsing hans ákveðin fangelsi í sjö mánuði, en fresta skyldi hluta refsingarinnar skilorðsbundið til tveggja ára. Þá skyldi hann sæta upptöku á kannabisplöntum og maríhúana.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. maí 2017

S-142/2017

Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Khoi Hong Nguyen (Ragnar Þórður Jónasson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu tveggja mánaðar fangelsisrefsingar eldri dóms og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða þótti hún hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skyldi fullnustu tveggja mánaða þeirrar refsingarinnar skilorðsbundið til þriggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. maí 2017

S-417/2016

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Juris Zamorevs
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu þrjátíu daga fangelsisrefsingar eldri dóms og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða þótti hún hæfilega ákveðin fangelsi í sextíu daga, en fresta skyldi þrjátíu dögum þeirrar refsingarinnar skilorðsbundið til þriggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. maí 2017

S-47/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Daníel Birgi Ívarssyni (Ingvar Þóroddsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður var dæmdur í fangelsi, skilorðsbundið að hluta, fyrir að aka ítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna og tilraun til þjófnaðar. Sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. maí 2017

S-121/2017

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundur Helgi Rögnvaldsson (Halldóra Aðalsteinsdóttir hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, áfengislögum, lögreglulögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði skýlaust að hafa framið þá háttsemi sem hann var svo sakfelldur fyrir og var refsing hans ákveðin fangelsi í átta mánuði, en fullnustu fimm mánaða þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið í þrú ár frá dómsuppsögu. Með þeim umferðarlagabrotum sem hann var sakfelldur fyrir, rauf hann skilyrði fyrir frestun á fullnustu skilorðsbundins hluta refsingar dóms frá 23. janúar 2014 og var sá hluti refsing þess dóms tekinn upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi. Þá skyldi hann sviptur ökurétti ævilang og sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. apríl 2017

S-39/2017

Ákæruvaldið (Grímur Hergeirsson fulltrúi) gegn Fannari Daða Hreinssyni (Steinunn Pálmadóttir hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði fundinn sekur um umferðarlagabrot, meðal annars sviptingarakstur og akstur undir áhrifum fíkniefna. Skilorð eldra dóms var dæmt upp og ákærða gert að sæta fangelsi í tíu mánuði, en refsingin var að hluta skilorðsbundin. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. mars 2017

S-31/2017

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Gylfa Þór Héðinssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 75 daga fangelsi fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti, en 45 dögum þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Með dómnum var honum gerður hegningarauki við dóm frá 30. nóvember 2016, þar sem hann var dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var dæmd í málinu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. febrúar 2017

S-564/2016

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Hirti Jónssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu þrjátíu daga fangelsisrefsingar dóms frá 25. maí 2016 og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða var ákveðin sem hegningarauki við lögreglstjórasátt frá 4. nóvember 2016 og þótti hún hæfilega ákveðin fangelsi í sextíu daga, en fresta skyldi þrjátíu daga þeirrar refsingar skilorðsbundið til þriggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. janúar 2017

S-491/2016

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Brynjari Unnsteinssyni (Brynjólfur Eyvindsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og vopnalagabrot með því að hafa í þvígang ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af í tvö þeirra skipta undir áhrifum vímugjafa. Í eitt þessara skipta hafði hann jafnframt vopn í vörslum sínum. Með brotum sínum rauf hann skilorð dóms frá 30. október 2015 og var refsing þess dóms tekin upp og honum dæmd refsing í einu lagi. Hann var dæmdur í 75 daga fangelsi, en 30 daga þeirrar refsingar var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var hann dæmdur til að sæta upptöku á vopninu og til ævilangrar ökuréttarsviptingar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. janúar 2017

S-900/2016

Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn Oriazonwan Kester Okoduwa (Gunnar Ingi Jóhannsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í sextíu daga fangelsi, þar af þrjátíu daga skilorðsbundið, fyrir að aka undir áhrifum áfengis.

Héraðsdómur Austurlands birt 9. janúar 2017

S-46/2016

Ákæruvaldið (Helgi Jensson fulltrúi) gegn Arnari Jóhanni Ragnarssyni (Gísli M. Auðbergsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að kasta stóru glerglasi í höfuð annars manns. Játning. Skilorðsrof. Eldri skilorðsdómur tekinn upp og refsing ákærða ákveðin í einu lagi 8 mánaða fangelsi, en þar af var fullnustu 5 mánaða refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár.

Héraðsdómur Austurlands birt 20. desember 2016

S-4/2016

Ákæruvaldið (Helgi Jensson fulltrúi, Eva Dís Pálmadóttir hrl) gegn X (Stefán Þór Eyjólfsson hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur, gegn neitun, fyrir líkamsárás, sbr. 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Í ljósi alvarlegra afleiðinga árásarinnar var refsing ákveðin fangelsi í fjóra mánuði, en fullnustu tveggja mánaða refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Brotaþola dæmdar skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. desember 2016

S-846/2016

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir fulltrúi) gegn Aðalsteini Bjarnasyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í fangelsi í fimm mánuði og fimmtán daga fyrir að aka í tvígang undir áhrifum áfengsi og alls fjórum sinnum sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. nóvember 2016

S-784/2016

Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn Vigni Þór Ólafssyni (Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í sextíu daga fangelsi, þar af þrjátíu daga skilorðsbundið í tvö ár, fyrir að aka sviptur ökurétti auk þess sem skilorðsdómur var dæmdur upp.

Hleð fleiri dómum…