Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-1/2019:

D Ó M U R

máli nr. S-1/2019:

Ákæruvaldið

(Elimar Hauksson fulltrúi)

gegn

Óskari Frey Óskarssyni

Mál

þetta, sem þingfest var og dómtekið mánudaginn 21. janúar sl., er höfðað með

ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 4. janúar sl., á hendur Óskari Frey

Óskarssyni,

I.

fyrir umferðarlagabrot

með því að

hafa, að kvöldi miðvikudagsins 7. nóvember 2018, ekið bifreiðinni […] um

Suðurlandsveg við Austari Kæli í Skaftárhreppi, án ökuréttinda og óhæfur til að

stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa tetrahýdrókannabínólsýru.

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr.

48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

II.

fyrir fíkniefnalagabrot

með því að hafa, á sömu stund og stað og greinir í ákærulið I, haft í

vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni, samtals 5981,61 g af hassi sem

lögregla fann við leit í farangursrými bifreiðarinnar […] en ákærði hugðist

flytja fíkniefnin til Reykjavíkur.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og

fíkniefni nr. 65, 1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr.

reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001

með síðari breytingum.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til að sæta sviptingu

ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum

breytingum, til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum, sbr. ákærulið II

(efnaskrá lögreglu nr. 39393) samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2.

mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði mætti við þingfestingu

málsins, ásamt Sverri Sigurjónssyni lögmanni sem skipaður var verjandi ákærða

að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem

honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar

sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri

sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr.

laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur

á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Í matsgerð frá

rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, sem liggur frammi

meðal rannsóknargagna lögreglu, kemur fram að tetrahýdrókannabínólsýra

hafi fundist í þvagi ákærða, en efnið

hafi ekki verið í mælanlegu magni í blóði hans.

Um málavexti að öðru leyti

vísast til ákæruskjals.

Sannað er að ákærði hefur gerst

sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð

til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði ekki áður sætt refsingu.

Við ákvörðun

refsingar ákærða verður litið til magns efnanna, en jafnframt til þess að hann

var ekki skipuleggjandi og frumkvöðull að brotum þessum. Er refsing ákærða

hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Ekki þykir fært að binda refsinguna

skilorði að öllu leyti, en að teknu tilliti til hreinskilningslegrar játningar

ákærða og þess að hann hefur ekki áður sætt refsingu, þykir mega fresta

fullnustu á tíu mánuðum af refsingunni og skal sá hluti hennar falla niður að

liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga

nr. 19/1940, með síðari breytingum.

Með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari

(Sverrir Sigurjónsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Ökuréttarsvipting. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir umferðarlaga- og fíkniefnabrot. Blandaður skilorðsdómur.

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið mánudaginn 21. janúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 4. janúar sl., á hendur Óskari Frey Óskarssyni,

I. fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, að kvöldi miðvikudagsins 7. nóvember 2018, ekið bifreiðinni […] um Suðurlandsveg við Austari Kæli í Skaftárhreppi, án ökuréttinda og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa tetrahýdrókannabínólsýru. Teljast brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

II. fyrir fíkniefnalagabrot

með því að hafa, á sömu stund og stað og greinir í ákærulið I, haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni, samtals 5981,61 g af hassi sem lögregla fann við leit í farangursrými bifreiðarinnar […] en ákærði hugðist flytja fíkniefnin til Reykjavíkur. Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum, til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum, sbr. ákærulið II (efnaskrá lögreglu nr. 39393) samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði   mætti   við   þingfestingu   málsins,   ásamt   Sverri   Sigurjónssyni lögmanni sem skipaður var verjandi ákærða að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að   aðilum   hafði   verið   gefinn   kostur   á   að   tjá   sig   um   lagaatriði   og   ákvörðun viðurlaga.

Í matsgerð frá rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, sem liggur frammi meðal rannsóknargagna lögreglu, kemur fram að tetrahýdrókannabínólsýra hafi fundist í þvagi ákærða, en efnið hafi ekki verið í mælanlegu magni í blóði hans. Um málavexti að öðru leyti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði ekki áður sætt refsingu.

Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til magns efnanna, en jafnframt til þess að hann var ekki skipuleggjandi og frumkvöðull að brotum þessum. Er refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Ekki þykir fært að binda refsinguna skilorði að öllu leyti, en að teknu tilliti til hreinskilningslegrar játningar ákærða og þess að hann hefur ekki áður sætt refsingu, þykir mega fresta fullnustu á tíu mánuðum af refsingunni og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum.

Með   vísan   til   101.   og   102.   gr.   umferðarlaga   nr.   50/1987,   með   síðari breytingum, ber að svipta ákærða ökurétti í þrjá mánuði, frá birtingu dóms þessa að telja. Þá ber að gera upptæk þau efni sem í ákæru greinir með vísun til þeirra ákvæða sem getið er þar.

Samvæmt 235. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar. Samkvæmt yfirliti rannsakara er útlagður kostnaður vegna rannsóknar málsins 322.619 kr., og ber ákærða að greiða þann kostnað ásamt málsvarnarlaunum skipaðs verjanda síns, Sverris Sigurjónssonar lögmanns, 596.130 kr. að meðtöldum virðisaukatti. Sigurður G. Gíslason héraðsdómar kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, Óskar Freyr Óskarsson, sæti fangelsi í tólf mánuði, en fresta skal fullnustu tíu mánaða refsingarinnar og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum. Ákærði er sviptur ökurétti í þrjá mánuði, frá birtingu dómsins að telja. Gerð eru upptæk 5.981,61 g af hassi, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 39393.

Ákærði greiði sakarkostnað samtals 918.749 krónur, þar af þóknun skipaðs verjanda, Sverris Sigurjónssonar lögmanns, 596.130 krónur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

Sigurður G. Gíslason