Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-812/2016:

Ákæruvaldið

(Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)

gegn

X og

(Kolbrún Garðarsdóttir hdl)

Y

(Hólmgeir Elías Flosason hdl)

Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Tilraun.

Ákærðu voru sakfelldar fyrir fjárkúgun og tilraun til fjárkúgunar.

Mál þetta, sem dómtekið var þriðjudaginn 21. mars sl., er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 27. október 2016, á hendur X, kennitala [...], [...], [...], og Y, kennitala [...], [...], [...],

I.

  1. Fyrir fjárkúgun, með því að hafa í apríl 2015 í félagi haft 700.000 krónur af A með hótunum um að ákærða X myndi leggja fram kæru hjá lögreglu gegn A fyrir að hafa nauðgað henni laugardaginn 4. apríl 2015 ef hann ekki greiddi þeim féð. Ákærða Y ræddi í nokkur skipti við A í síma á tímabilinu 8.-10. apríl og greindi honum frá því að ákærða X myndi kæra hann til lögreglu fyrir nauðgun ef hann ekki greiddi þeim féð fyrir klukkan 16 föstudaginn 10. apríl. A afhenti ákærðu Y 500.000 krónur föstudaginn 10. apríl og 200.000 krónur mánudaginn 13. apríl á skrifstofu ákærðu Y í [...] við [...] í [...] og skiptu ákærðu fénu á milli sín.

    Telst þetta varða við 251. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Fyrir tilraun til fjárkúgunar, með því að hafa í maí 2015 í félagi reynt að hafa fé af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þáverandi forsætisráðherra Íslands, með hótunum um að birta að öðrum kosti viðkvæmar upplýsingar sem gætu haft áhrif á stöðu og framtíð Sigmundar Davíðs í embætti forsætisráðherra, svo sem hér nánar greinir:

  1. Miðvikudaginn 20. maí eða fimmtudaginn 21. maí setti ákærða X inn um bréfalúguna   að   Þúfubarði   19   í   Hafnarfirði,   á   heimili   Jóhannesar   Þórs Skúlasonar, aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs, umslag með ódagsettu og nafnlausu bréfi sem hún hafði ritað og ákærða Y prentað út, en bréfið innhélt hótun um að bréfritari myndi birta opinberlega upplýsingar sem hann sagðist hafa undir höndum og vörðuðu afskipti Sigmundar Davíðs af fjárhagsmálefnum   Vefpressunnar   ehf.,   ef   Sigmundur   Davíð   ekki   greiddi 7.500.000 krónur og setti í tösku og afhenti klukkan 9:30 þriðjudaginn 25. maí. Ekki kom fram í bréfinu hvar afhenda ætti féð auk þess sem umslagið var ekki opnað fyrr en 1. júní.
  2. Þriðjudaginn 26. maí eða miðvikudaginn 27. maí við Hverafold í Reykjavík póstlagði ákærða X annað ódagsett og nafnlaust bréf til Sigmundar Davíðs sem   hún   hafði   sjálf   ritað   og   ákærða   Y   prentað   út   og   ritað   nafn   og heimilisfang Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíðs, á umslagið.   Bréfið   barst   á   heimili   Sigmundar   Davíðs,   að   Ystaseli   25   í Reykjavík, fimmtudaginn 28. maí. Efni þess var samhljóða því bréfi sem borið var út á heimili Jóhannesar Þórs, sbr. ákærulið 2, en þess nú krafist að Sigmundur   Davíð   greiddi   8.000.000   króna   og   fylgdu   fyrirmæli   um afhendingarmáta, gps-hnit og ljósmyndir af afhendingarstaðnum, sem var við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði. Ákærðu voru handteknar föstudaginn 29. maí við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði eftir að þær höfðu sótt pakkningu í tösku sem þær töldu innihalda umkrafða greiðslu 8.000.000 króna í seðlum af hendi Sigmundar Davíðs, en pakkningin hafði verið skilin þar eftir í trékassa, í samræmi við fyrirmæli þeirra.

    Teljast brot samkvæmt 2. og 3. ákærulið varða við 251. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga.

    Þess er krafist að ákærðu verði dæmdar til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

    Af hálfu A, kennitala [...], er þess krafist að ákærðu verði dæmdar til að greiða honum, óskipt, skaðabætur að fjárhæð 1.700.000 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr., sbr. 4. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá 13. apríl 2015, til þess dags þegar   liðinn   er   mánuður   frá   því   þeim   var   birt   skaðabótakrafan,   en   með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 6. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er þess krafist að ákærðu verði dæmdar til þess að greiða honum málskostnað við að halda fram kröfunni. Verjandi ákærðu X krefst þess aðallega að ákærða verði sýknuð af I. kafla ákæru og einkaréttarkröfu verði vísað frá dómi, en til vara krefst hún vægustu refsingar sem lög leyfa sem öll verði bundin skilorði og hún verði sýknuð af einkaréttarkröfu   eða   fjárhæð   hennar   lækkuð   verulega.   Þá   krefst   hún   vægustu refsingar sem lög leyfa, sem öll verði skilorðsbundin, vegna II. kafla ákæru. Jafnframt krefst hún þess að allur sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði greidd úr ríkissjóði. Verjandi ákærðu Y krefst þess aðallega að ákærða verði sýknuð í I. kafla ákæru, en til vara að refsing verði felld niður og til þrautavara að ákærðu verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa sem öll verði bundin skilorði. Þá krefst hann vægustu refsingar sem lög leyfa vegna II. kafla ákæru. Jafnframt krefst hann þess að einkaréttarkröfu verði vísað frá dómi, en til vara að hún verði stórlega lækkuð. Þá krefst hann hæfilegra málsvarnarlauna.

Málsatvik

I. kafli ákæru.

Þann   3.   júní   2016   mætti   brotaþoli,  A,   á   skrifstofu   lögreglustjórans   á höfuðborgarsvæðinu til þess að leggja fram kæru á hendur ákærðu. Hann kvaðst hafa verið beittur blekkingum á tímabilinu 4. til 13. apríl 2015 í þeim tilgangi að hægt væri að kúga af honum 700.000 krónur. Hann kvaðst hafa tekið ákvörðun um að kæra eftir fréttaflutning um ákærðu daginn áður. Brotaþoli lýsti því að hann hefði unnið með ákærðu X þremur árum áður. Þau hefðu hist skömmu áður og ákveðið að fara út saman laugardagskvöldið 4. apríl. Hún hefði komið í heimsókn til hans og þau farið út að borða. Þaðan hefðu þau farið á Kaffibarinn og svo heim til brotaþola þar sem þau hefðu sofið saman. Eftir það hefði ákærða viljað að hann kæmi út að skemmta sér með henni, en hann hefði ekki viljað það. Fram kom að ákærða X hefði verið drukkin. Næsta dag hefði hann sent henni skilaboð á Facebook sem hún hefði ekki svarað. Mánudaginn eftir hefði systir ákærðu X, ákærða Y, hringt í hann og viljað hitta hann. Hann hefði verið staddur í heilsuræktinni í Laugum og hún hefði viljað hitta hann þar. Hún hefði komið til hans og spurt hvað hann hefði sett í drykk ákærðu X. Hann hefði ekki skilið þetta og farið út í bifreið þar sem ákærða X hefði verið. Hún hefði tekið einhvers konar kast og sagt að hún vildi ekki ræða við hann en hún myndi ekki hvað hefði gerst. Hann kvaðst hafa verið í áfalli og ekki skilið hvað hefði verið í gangi. Á þriðjudeginum hefði hann ekki heyrt frá þeim systrum en tekið eftir því að ákærða X hefði verið búin að eyða honum út af Facebook. Hann hefði leitað til læknis þar sem málið hefði legið þungt á honum. Á miðvikudeginum hefði hann sent skilaboð til ákærðu Y og hún hringt í hann. Hann kvað hana hafa sýnt sögu hans mikinn skilning en talað um að systir hennar væri í einhverju áfalli. Á fimmtudeginum hefðu þau aftur rætt saman og ákærða Y hefði sagt honum að ákærða X hefði farið á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Komið hefði í ljós að hún bæri öll merki þess að hafa verið nauðgað og leifar af lyfjum hefðu fundist í blóði hennar. Hún væri nú komin með réttargæslumann sem segði málið tilbúið til vinnslu. Málið væri erfitt þar sem hann myndi lenda í tölvukerfi sem hann kæmist ekki úr. Ákærða X væri tilbúin til að leysa málið með sátt ef hann borgaði 700.000 krónur. Hann yrði að ákveða sig innan eins og hálfs tíma, en þær væru á leiðinni til lögfræðings að setja málið af stað. Brotaþoli kvaðst telja að hann hefði ekki gert neitt rangt, en hann hefði ekki þorað annað en að borga þar sem hann hefði verið hræddur um mannorðsmissi sem fylgdi slíkri kæru. Hann hefði hitt ákærðu Y í [...] á föstudeginum og afhent henni 500.000 krónur, en hann hefði ekki getað útvegað meiri peninga. Hún hefði sagt að þetta væri ekki nóg og hann hefði mætt aftur næsta mánudag með 200.000 krónur til viðbótar. Ákærða Y hefði veitt honum kvittun fyrir móttöku fjárins. Í   málinu   liggja   frammi   kvittanir   vegna   framangreindrar   greiðslu   og hljóðupptökur af þremur samtölum brotaþola við ákærðu Y sem brotaþoli tók upp og   afhenti  lögreglu.  Þá   liggja  fyrir   upplýsingar  um   símasamskipti  ákærðu   og brotaþola, auk fjárhagsupplýsinga um ákærðu. Ákærða X kærði í framhaldi ætlaða nauðgun til lögreglu. Með bréfi 16. nóvember 2016 var rannsókn þess máls hætt þar sem ekki var talinn frekari grundvöllur til áframhaldandi rannsóknar, sbr. 4. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Tómas Zoëga geðlæknir var af lögreglu fenginn til að vinna geðrannsókn á ákærðu X í því skyni að meta hvort hún teljist sakhæf í skilningi 15. gr. laga nr. 19/1940 eða eftir atvikum hvort ætla megi að refsing muni bera árangur í skilningi 16. gr. laganna. Í málinu liggur fyrir skýrsla hans frá 12. júlí 2015. Kemur þar fram að ákærða hafi verið greind með jaðarpersónuleikaröskun, hafi haft endurtekin þunglyndistímabil   og   á   köflum   misnotað   áfengi.   Sú   truflun   sem   hún   hafi   á persónuleika byrji oft snemma á fullorðinsárum og lýsi sér í að minnsta kosti fimm af eftirfarandi atriðum: Ofsafengnar tilraunir til að forðast höfnun, röð óstöðugra og mjög náinna sambanda, trufluð og óstöðug sjálfsímynd, hvatvísi á ýmsum sviðum sem getur verið eyðileggjandi fyrir viðkomandi, endurteknar sjálfsvígshugmyndir og tilraunir, miklar sveiflur í skapgerð, langvarandi tilfinning um tómleika, óeðlileg og   mikil   reiði   og   erfiðleikar   við   reiðistjórnun   og   undir   álagi   geta   komið aðsóknarhugmyndir eða alvarleg hugrofseinkenni. Það er niðurstaða geðlæknisins að í viðtölum við ákærðu væri ekki hægt að fá fram nein þau einkenni sem talin séu upp í 15. gr. laga nr. 19/1940. Þá komi ekkert læknisfræðilegt fram sem útiloki að refsing kunni að bera árangur reynist ákærða sek, sbr. 16. gr. laganna.

II. kafli ákæru.

Samkvæmt skýrslu lögreglu fékk hún að kvöldi fimmtudagsins 28. maí 2015 upplýsingar um bréf sem borist hefði þann sama dag á heimili þáverandi forsætisráðherra Íslands. Í bréfinu væri hann krafinn um 8.000.000 króna, ellegar myndu viðkvæmar upplýsingar um aðkomu hans að skuldamálum Vefpressunnar ehf.   hjá   MP  banka   gerðar   opinberar   og   hann   fá   fjölmiðlaumfjöllun   „af   verri sortinni“. Fram kom að afhenda ætti peningana í tösku föstudaginn 29. maí kl. 9:30 við   Krýsuvíkurveg.   Meðfylgjandi   voru   gps-hnit   af   afhendingarstaðnum   og ljósmynd. Vinna lögreglu við að upplýsa um sendanda bréfsins leiddi til handtöku ákærðu í nágrenni við afhendingarstaðinn. Mánudaginn 1. júní 2015 barst lögreglu annað bréf sem hafði borist á heimili þáverandi aðstoðarmanns forsætisráðherra, en bréfið var ætlað forsætisráðherranum. Bréfið var í stóru brúnu umslagi og hafði ekki verið póstlagt. Það hafði borist nokkrum dögum fyrr en hafði legið í blaðabunka á skrifstofu á heimili   hans.   Inntak   bréfsins   var   það   sama   og   þess   sem   barst   á   heimili forsætisráðherrans 28. maí, fyrir utan það að krafist var 7.500.000 króna og ekki getið um afhendingarstað. Þá átti að afhenda peningana 25. maí. Í málinu liggja meðal annars fyrir gögn úr síma- og tölvurannsóknum hjá ákærðu og hljóðupptaka frá ákærðu X úr bifreið þeirra systra að morgni 29. maí 2015.

Framburður ákærðu og vitna fyrir dómi Ákærða X greindi frá því að hún og A hefðu verið vinir í áratug. Hún hefði aldrei haft áhuga á neinu öðru en vináttu við hann. Þau hefðu ákveðið að hittast laugardaginn 4. apríl 2015 og hún hefði farið heim til hans. Þar hefði hún drukkið tvo   til   þrjá   bjóra,   en   hann   drekki   ekki.   Þau   hefðu   svo   farið   út   að   borða   á Kryddlegnum hjörtum. Þar hefði hún fengið sér eitt rauðvínsglas með matnum. Leið þeirra hefði síðan legið á Kaffibarinn þar sem hún hefði fengi sér einn stóran bjór. Þau hefðu hlegið mikið saman og grínast. Hún hefði talið að þau ætluðu að halda áfram að skemmta sér og fara á pöbbarölt. Hún hefði síðan séð tiltekna konu sem hefði ætlað á klósettið, en það hafi verið upptekið. Hún hefði grínast með að konan gæti farið á karlaklósettið en A hefði ekki fundist það fyndið. Henni hefði þótt það skrítið. Það næsta sem hún muni sé að hann hefði verið inni í henni og hún að reyna að berjast um. Hún hefði ekki getað barið frá sér og ekki skilið hvað væri að gerast. Hann hefði hins vegar sagt „jájá jájá“. Hún hefði síðan farið í fötin og út á götu. Þar hefði hún strax hringt í meðákærðu Y og sagt henni að hún héldi að hún hefði verið að sofa hjá A. Meðákærða hefði spurt hana á hverju hún væri þar sem hún hefði heyrt á henni að eitthvað væri ekki í lagi. Ákærða neitaði því að hafa sagt að henni hefði verið nauðgað. Hún hefði hitt vin sinn í bænum eftir þetta og haldið áfram að skemmta sér en verið mjög skrítin. Daginn eftir hefði svo runnið upp fyrir henni hvað hefði gerst. Hún hefði verið örvingluð og í slæmu ástandi, en meðal annars hefði hana vantað lyf sem hún þurfti á að halda. Hún hefði rætt við nokkra vini sína þann dag og líklega við meðákærðu líka. Á mánudeginum hefðu hún og meðákærða farið í World Class til að hitta A. Hann hefði komið út til hennar. Hún hefði brjálast, öskrað á hann og potað í bringuna á honum, en hún muni þó ekki glögglega eftir þessu. Þetta hefðu verið síðustu samskipti hennar við hann. Hún hefði hent honum út af Facebook án þess að svara skilaboðum hans. Miðvikudaginn 8. apríl hefði hún leitað á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisbrota.   Hún   hefði   ekki   fengið   neinar   upplýsingar   um   skoðunina,   en læknirinn hefði ætlað að hringja og láta hana vita um niðurstöðurnar. Hann hefði aldrei hringt. Hún hefði farið til sálfræðings einu sinni. Þá hefði henni verið boðið upp á réttargæslumann sem hún taldi að hún hefði rætt við í síma. Ákærða sagðist hafa greint meðákærðu frá skoðuninni og því að engar niðurstöður væru úr henni. Hún neitaði því að hafa talað um að merki um „dröggun“, marblettir eða rispur hefðu fundist. Þær hefðu rætt um hvort hún myndi kæra þetta til lögreglu en hún hefði tekið ákvörðun um að gera það ekki. Á sama tíma hefði A farið að hafa samband við meðákærðu og spyrja hana hvað ákærða X ætlaði að gera í málinu. Hún hefði leyft meðákærðu að taka stjórnina og ekki fengið miklar upplýsingar um samtöl hennar við A. Meðákærða hefði spurt hana hvort hún væri til í að semja við hann þar sem honum liði svo illa. Hún hefði fallist á það þar sem hún myndi þá fá bætur vegna atburðarins fyrr. Þá hefði hún verið í mjög slæmu andlegu ástandi. Hún kvaðst ekki muna hvaðan hugmyndin   að   fjárhæðinni   hefði   komið.   Meðákærða   hefði   alfarið   séð   um framkvæmdina á þessu og hún hefði einungis spurst fyrir um hvort hann væri búinn að greiða. Hún hefði aldrei sagt meðákærðu að segja við A að málið yrði kært myndi hann ekki greiða. Þær hefðu ekki rætt um hvort greiðsla skyldi fara fram með peningum eða hvort leggja mætti hana inn á bankareikning. Þær meðákærða hefðu skipt peningunum jafnt á milli sín, 350.000 krónur til hvorrar. Þær hefðu hist við   vinnustað   meðákærðu   og   ekið   stuttan   spöl   þar   sem   þær   hefðu   skipt peningunum. Þetta gæti hafa verið 10. apríl, en hún var ekki viss um hvort greiðslan hefði öll verið komin þá. Ákærða   kvað   fjárhag   sinn   ekki   hafa   verið   góðan   á   þessum   tíma   og peningarnir hefðu því verið kærkomnir. Meðákærða hefði líka verið illa stödd fjárhagslega og hún hefði fengið helming upphæðarinnar þar sem hún hefði séð um alla   framkvæmdina.   Hún   hefði   talið   þetta   farsælli   leið   en   að   fara   í   gegnum sársaukafull réttarhöld en kvaðst ekki viss um hvað hún hefði gert ef A hefði ekki innt greiðsluna af hendi. Spurð um smáskilaboð milli þeirra meðákærðu kvað hún skilaboð, um að þær skyldu gera þetta og að hún væri mjög ákveðin, eiga við um sölu á lóð sem þær hefðu verið að ræða. Skilaboð meðákærðu um ýmsar hugmyndir hennar taldi hún geta vísað til þess að A hefði viljað semja um málið. Hún taldi þá hugmynd hafa komið frá honum en spurð um framburð hennar hjá lögreglu um að meðákærða hefði átt hugmyndina kvað hún svo geta verið. Skilaboð um að þetta hefði verið „teamwork“ taldi hún vísa til þess að málið hefði verið leyst farsællega og hún hefði aldrei getað það ein. Hún hefði verið ánægð með að hægt hefði verið að leysa málið með þessum hætti. Varðandi II. kafla ákærunnar lýsti ákærða X því að þær meðákærða hefðu tekið sameiginlega ákvörðun. Hún hefði talið sig búa yfir upplýsingum sem gætu komið þáverandi forsætisráðherra illa. Hugmyndin hefði komið frá henni sjálfri en meðákærðu hefði litist vel á hana. Hún hefði tekið fullan þátt í framkvæmdinni og verið 50% þátttakandi allan tímann. Hún hefði aldrei reynt að draga úr henni eða telja   henni   hughvarf.   Ákærða   hefði   skrifað   bréfin   en   meðákærða   sett   þau   á minniskubb og gert smávægilega breytingar. Meðákærða hefði svo prentað bréfin út í vinnunni. Hún hefði verið jafnspennt yfir þessu. Þær hefðu ekið saman í Hafnarfjörð og valið stað til afhendingar peninganna. Þær hefðu svo farið og keypt umslög og frímerki. Þær hefðu gætt þess sérstaklega að ekki kæmu fingraför. Bréfin hefðu orðið tvö þar sem meðákærða hefði gleymt að setja hnitin inn í fyrra bréfið. Hún hefði sjálf farið með það bréf heim til aðstoðarmanns forsætisráðherra en hitt bréfið hefði hún sett í póst í Grafarvogi. Þær hefðu svo farið saman á afhendingarstaðinn. Meðákærða hefði komið með kíki og myndavél. Hún hefði fengið lánaða bifreið til þess að þær myndu ekki þekkjast. Meðákærða hefði svo flett   upp   númerum   nálægra   bifreiða   til   þess   að   gæta   þess   að   ekki   væri   um lögregluna að ræða. Hún hefði tekið upp hljóð af hluta samskipta þeirra meðan á þessu hafi staðið. Ákærða kvað þær hafa ætlað að skipta fjárhæðinni til helminga. Ástæða þessa hefði verið fjárhagsskortur þeirra beggja. Ákærða lýsti því að hún hefði verið illa stödd andlega á þessum tíma og skildi ekki af hverju hún hefði gert þetta. Hún greindi frá því að hafa leitað sér hjálpar og lýsti stöðu sinni í dag. Þá greindi hún frá því að fjölmiðlaumfjöllun um málið hefði verið henni þungbær. Ákærða Y lýsti því að meðákærða X hefði hringt í sig eftir miðnætti laugardagskvöldið 4. apríl 2015 og sagt að A hefði nauðgað henni. Hún hefði heyrt að meðákærða væri í annarlegu ástandi, ekki eins og hún væri ölvuð heldur frekar eins og hún væri lyfjuð. Hún hefði sjálf verið úti á landi og ekki getað hjálpað henni en sagt henni að koma sér heim eins fljótt og hún gæti. Spurð um skilaboð sem hún sendi meðákærðu fáum mínútum síðar um að hún væri „öfgafyndinn snillingur“ kvað hún þau hafa tengst því sem þær hefðu rætt í lok símtalsins um konu sem meðákærða hefði hitt fyrr um kvöldið. Skilaboðin tengdust því ekki nauðguninni en hún hefði verið miður sín yfir henni. Ákærða kvaðst hafa heyrt aftur í meðákærðu tveimur dögum síðar. Hún hefði þá verið í undarlegu ástandi. Þær hefðu þann dag farið í World Class í Laugum og hitt A. Hún hefði farið inn og spurt hann hvað hann hefði gert. Hann hefði komið út og hitt meðákærðu sem hefði gert honum ljóst að hún vildi ekki tala við hann. Eftir þetta hefði A farið að hringja í hana til spyrja um stöðuna á málinu. Hann   hefði   aldrei   viðurkennt   að   hafa   beitt   meðákærðu   valdi   heldur   talið   að samþykki beggja hefði verið fyrir hendi. Hún hefði verið komin í óþægilega stöðu við að flytja fréttir á milli þeirra. Hún hefði ekið meðákærðu á neyðarmóttöku en hún hefði verið að hugsa um að kæra. Hún hefði sjálf hvatt hana til þess. Hún hefði rætt við meðákærðu eftir skoðunina. Hún hefði sagt að á henni hefðu fundist áverkar sem bentu til þess að henni hefði verið nauðgað og hún sýndi merki um „dröggun“. Þá hefði henni verið úthlutað réttargæslumanni. Ákærða hefði fengið leyfi meðákærðu til að greina A frá þessum niðurstöðum. Hún hefði trúað því sem meðákærða hefði sagt henni og einungis sagt honum það. Meðákærða hefði átt hugmynd að því að leysa málið með sátt. A hefði tekið vel í það. Hún taldi að málið hefði farið í kæruferli ef hann hefði ekki greitt. Hann hefði komið tvisvar sinnum í vinnuna til hennar með peningagreiðslu, annars vegar 500.000 krónur og hins vegar 200.000 krónur. Meðákærða hefði ekki viljað að fjárhæðin yrði lögð inn á bankareikning. Hún hefði látið meðákærðu hafa alla fjárhæðina, að undanskildum 200.000 krónum sem hún hefði fengið lánaðar til þess að greiða gamla visa skuld. Þær meðákærða hefðu verið í samskiptum um þetta þegar hann hefði komið til hennar með greiðslurnar. Ákærða staðfesti að upptökur af samtölum frá A væru samtöl við hana. Spurð um skilaboð hennar til meðákærðu um að hún hefði „vondar/gúdd“ hugmyndir kvaðst hún hafa verið meðvirk með meðákærðu og hafa verið að reyna að selja bifreið sem hún hefði átt. Þá hefði hún fengið hugmynd um að skrifa skáldsögu ásamt meðákærðu í því skyni að afla peninga. Hún lýsti því þó að fjárhagsstaða hennar hefði ekki verið slæm á þessum tíma. Hún hefði verið í góðu starfi, átt þrjár bifreiðar og vel náð endum saman. Hún hefði hins vegar haft miklar áhyggjur af andlegu ástandi meðákærðu og óttast að missa hana. Því hefði hún viljað gera þessa hluti til að hjálpa henni. Varðandi II. kafla ákærunnar lýsti ákærða Y því að hugmyndin hefði komið frá meðákærðu X. Hún hefði boðið sér í mat og sagt henni að hún vissi eitthvað um þáverandi forsætisráðherra sem hann vildi ekki að yrði gert opinbert. Hún hefði talið að þetta væri einhvers konar drykkjutal og hlegið að þessu. Henni hefði fundist þetta alveg galið. Meðákærða hefði hins vegar ekki gleymt þessu og farið aftur að ræða um þetta. Hún hefði þá verið búin að skrifa bréfin. Ákærða hefði lánað henni minniskubb og prentað bréfin út fyrir hana af því að hún hefði sagt prentarann sinn bilaðan. Hún hefði skimað yfir bréfin en ekki viljað lesa þau þar sem henni hafi þótt þau ógeðfelld. Hún hefði ekki átt þátt í sendingu bréfanna. Þann 29. maí 2015 hefði hún átt frí í vinnunni. Hún hefði þá farið með meðákærðu á afhendingarstaðinn. Hún hefði tekið með sér myndavél og sjónauka að ósk meðákærðu. Þær hefði farið á bifreið meðákærðu en þar sem meðákærða hefði viljað skipta um bifreið hefði hún fengið lánaða bifreið í bifreiðaumboði. Þær hefðu ekið um nokkra stund en meðákærða hefði síðan viljað fara að töskunni. Hún hefði reynt að fá hana ofan af þessu í bifreiðinni og fara seinna að skoða staðinn en meðákærða ekki viljað það. Ákærða kannaðist við hljóðupptöku úr bifreiðinni og kvað þær hafa verið að flett upp númerum af bifreiðum, en mikil umferð hefði verið um svæðið. Meðákærða hefði farið út í hraun til þess að sækja töskuna en hún sjálf beðið. Lögreglan hefði svo komið. Ákærða taldi að hún hefði ekki verið þátttakandi í þessari atburðarás. Hún hefði strax frá upphafi sagt að þetta væri galið. Meðákærða, systir hennar, hefði komið til hennar hálfgrátandi í slæmu andlegu ástandi og beðið hana um aðstoð. Hún hefði þá prentað bréfin út fyrir hana vegna meðvirkni sinnar. Aðspurð kvað ákærða bréfin ekki hafa verið prentuð út á sama tíma og verið gæti að annað hefði verið skilið eftir í vinnunni hennar fyrir meðákærðu. Henni hefði ekki dottið í hug að hringja í lögreglu en hún hefði íhugað að fara með meðákærðu til læknis. Meðákærða hefði verið illa stödd andlega og ákærða hefði verið hrædd um hana. Ákærða kvaðst iðrast aðkomu sinnar að málinu. Hún sagði að hún hefði átt erfitt eftir að málið komst upp. Meðal annars hefði fjölmiðlaumfjöllun verið langvarandi og niðurlægjandi. Þá greindi hún frá núverandi aðstæðum sínum. Vitnið A greindi frá því að hafa farið út með ákærðu X. Hann hefði sent henni skilaboð daginn eftir, sem hún hefði ekki svarað. Næsta dag hefði ákærða Y hringt í hann og viljað hitta hann. Hann hefði ekkert vitað um hvað málið snerist. Hún hefði komið til hans og spurt hvað hann hefði sett í drykk ákærðu X. Hann hefði verið undrandi og ekki skilið þessa spurningu. Hann hefði farið út í bifreið til ákærðu X sem hefði verið í mikilli geðshræringu og spurt hvernig hann hefði getað sofið hjá drukkinni vinkonu sinni. Hann hefði ekki áttað sig á því hvað gengi á en orðið hræddur. Ákærða Y hefði sagt hana í miklu uppnámi en hann hefði ekki verið sakaður um neitt. Hann hefði verið í slæmu andlegu ástandi eftir þetta og haft samband við geðlækni. Læknirinn hefði bent honum á að vera í sambandi við þær og fá svör við því um hvað þetta snerist. Aðspurður kvað hann ákærðu Y hafa greint honum frá símtali ákærðu X um nóttina. Hún hefði sagt honum að ákærða X hefði hljómað lyfjuð. Hún hefði hins vegar ekkert minnst á nauðgun. Hann hefði í framhaldi átt samskipti við ákærðu Y. Hún hefði sagt honum frá heimsókn ákærðu X á bráðamóttöku. Honum hefði í fyrstu verið létt og talið að hún væri komin að geðdeild. Á fimmtudagsmorgni hefði ákærða Y greint honum frá því að um neyðarmóttöku vegna kynferðisofbeldis hefði verið að ræða. Hún hefði svo um kvöldið sagt honum að hún hefði því miður ekki góðar fréttir. Einhvers konar nauðgunarlyf hefði fundist hjá ákærðu X, en það gæti greinst í allt að viku, og á henni hefðu fundist áverkar. Hún bæri öll merki þess að hafa verið nauðgað. Þá væri hún komin með réttargæslumann og hefði mjög sterkt mál í höndunum. Þarna hefði hann í fyrsta sinn heyrt minnst á nauðgun. Hann hefði viljað ræða sjálfur við ákærðu X og hjálpa henni að rifja upp hvað hefði gerst þetta kvöld, en ekki fengið það. Hann hefði talið að hún væri í einhvers konar geðrofi. Honum hefði liðið mjög illa og séð fyrir sér að kæra gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir mannorð hans og starfsferil, jafnvel þótt hann yrði sýknaður. Ásökun um kynferðisbrot jafngildi sekt hjá dómstóli götunnar. Ákærða Y hefði bent honum á að hann yrði skráður í málaskrá lögreglunnar þaðan sem nafnið hans færi aldrei. Vitnið lýsti því jafnframt að fyrrum sambýlismaður ákærðu X hefði sent honum skilaboð um að hann vissi af málinu og vildi ekki eiga í samskiptum við hann. Þá vissi hann að barnsfaðir hennar væri tengdur undirheimunum og hann vildi alls ekki að hann heyrði þessa sögu. Á föstudagsmorgni hefði ákærða Y haft samband við hann og sagt að hún hefði rætt við ákærðu X og fengið hana til að fallast á að hann myndi leysa málið með því að greiða henni peninga. Hún hefði sagt að þær væru að ákveða fund með lögfræðingi vegna málsins. Ákærða X þyrfti að ákveða fyrir kl. 12 hvort hún ætlaði að kæra þar sem kæran þyrfti að vera komin inn fyrir kl. 16 svo hún næði inn fyrir helgi. Hann þyrfti því að svara þeim fyrir kl. 12. Hann hefði sjálfur talið að peningar myndu ekki leysa málið. Hins vegar hefði fjárhæðin verið viðráðanleg. Honum hefði verið ráðið frá því að gera þetta en látið til leiðast þar sem hann hefði átt mjög erfiða daga og fundist sér vera haldið í gíslingu. Hann hefði svo tekið upp samtöl við ákærðu Y til þess að tryggja að ekki væri hægt að líta svo á að hann væri að játa neina sekt með því að greiða þessa fjárhæð. Hann hefði útvegað 500.000 krónur og farið með til hennar samdægurs. Hún hefði ekki talið þetta nægjanlegt og hann hefði farið aftur til hennar næsta mánudag með 200.000 krónur til viðbótar. Hann hefði viljað millifæra fjárhæðina en ákærða Y hefði ekki viljað það. Þá hefði hann viljað fá kvittun til þess að eiga einhverja staðfestingu á greiðslunni. Hann hefði viljað tengja ákærðu X við greiðsluna en ákærða Y hefði ekki viljað það. Vitnið lýsti því að málið hefði fengið mikið á hann. Hann hefði sofið illa og átt   erfitt   með   að   borða.   Málið   truflaði   hann   enn   í   dag.   Meðal   annars   hefði fjölmiðlaumfjöllun verið mikil og óþægileg, en nafn hans hefði birst í fjölmiðlum skömmu eftir að hann hefði kært. Vitnið Gunnar Axel Davíðsson lögreglumaður gerði grein fyrir samantektum sínum um rannsókn málsins. Hann kvað þær hafa verið settar saman til þess að auðveldara væri að átta sig á tímalínu málsins. Sérstaklega spurður taldi hann ekkert koma fram í gögnum málsins sem benti til þess að ákærða Y hefði ekki verið fullur þátttakandi í II. kafla ákærunnar. Vitnið Tómas Zoëga geðlæknir greindi frá geðrannsókn sinni á ákærðu X. Hún uppfyllti ekki skilyrði 15. gr. almennra hegningarlaga og ekkert læknisfræðilegt kæmi í veg fyrir að refsing bæri árangur. Hún hefði jaðarpersónuleikaröskun en það hefði ekki áhrif á sakhæfi hennar. Því fylgi hins vegar miklar tilfinningasveiflur sem versni við mikið álag. Þetta hafi orðið það slæmt að hún hafi þurft að leggjast inn á spítala vegna þess. Vitnið gerði nánari grein fyrir einkennum þessarar röskunar. Hann taldi ákærðu ekki hafa verið í geðrofi á þessum tíma en hún hafi þó verið í ójafnvægi. Þá hefði hún einhver einkenni áfallastreituröskunar. Niðurstaða rannsóknar hans væri að ákærða væri sakhæf en langsótt væri að komast að annarri niðurstöðu. Vitnið Engilbert Sigurðsson geðlæknir staðfesti tvö vottorð sín í málinu vegna ákærðu X. Hún hefði verið til meðferðar hjá honum bæði áður og eftir að málið kom upp. Hún hefði fyrst leitað til hans vegna erfiðleika í sambúð. Hún hefði farið í greiningu þar sem skimað væri fyrir ýmsum vandamálum og niðurstaðan hefði verið sú að hún væri með jaðarpersónuleikaröskun og þunglyndi. Hún hefði tekið miklar dýfur og jafnvel ekki langað til þess að lifa. Á vissum tímabilum hefði hún misnotað áfengi. Ákærða væri mjög viðkvæm fyrir höfnun og stutt í mikla reiði. Þetta gæti magnast upp við drykkju. Í upphafi árs 2015 hefði gengið frekar vel hjá ákærðu og verið bjart yfir. Hún hefði stundað einkaþjálfaranám og sótt meðferð hjá honum og sálfræðingi í desember 2014 til febrúar 2015. Hún hefði átt tíma hjá honum í apríl en ekki komið. Hún hefði sent tölvupóst 26. maí og óskað eftir tíma sem hún hefði fengið 11. júní, en áður en að honum hefði komið hefði hann rekist á hana á bráðamóttöku. Allt annað hefði verið að sjá hana þá frá því í febrúar og hann hefði talið líklegt að hún yrði lögð inn. Þegar hún hefði komið til hans 11. júní, eftir innlögn, hefði hún greint honum frá því að henni hefði verið nauðgað, sem hefði fengið mikið á hana. Það gæti hugsanlega hafa valdið þeim breytingum sem orðið hefðu á líðan hennar frá upphafi ársins en ekki væri hægt að fullyrða um að það væri eina ástæðan. Þau hefðu minna rætt fjárkúgunina á hendur forsætisráðherra,   en   ljóst   hefði   verið   að   eitthvað   hefði   fengið   mikið   á   hana. Aðstæður hennar hefðu verið flóknar og hún hefði staðið illa fjárhagslega. Árið 2016 hefði ákærða misst tökin á áfengisneyslu sinni en hefði svo farið í meðferð á Teigi og verið edrú síðan. Hún stundaði nú endurhæfingu. Hún hefði lítinn stuðning fjölskyldunnar og ætti í flóknum samskiptum við meðákærðu, systur sína. Málið hefði reynst henni mjög erfitt og hún væri haldin miklum kvíða, óöryggi og hræðslu vegna fjölmiðlaumfjöllunar um það. Vitnið   Margrét   Bárðardóttir   sálfræðingur   greindi   frá   tíu   viðtölum   við ákærðu X frá sumri 2015 og staðfesti skýrslu sína. Hún hefði ekki rætt málið við ákærðu í smáatriðum en komið hefði fram að henni hefði verið nauðgað. Ákærða væri haldin skömm og sektarkennd. Hún hefði áhyggjur af því að hafa komið börnum sínum í vandræði og þau myndu þjást vegna gerða hennar. Vitnið Jón Sigurður Karlsson sálfræðingur kvað ákærðu Y hafa leitað til hans eftir að málið kom upp. Hún hefði komið í gegnum VIRK. Hún hefði misst starf sitt og meðferð hans hefði gengið út á að efla hana þannig að hún gæti snúið aftur   til   starfa.   Málið   hefði   verið   henni   þungbært   og   hún   hefði   orðið   fyrir endurteknum áföllum vegna þess, meðal annars vegna umfjöllunar fjölmiðla. Málið hafi því dregist óþarflega á langinn. Líðan hennar hefði verið sveiflukennd þennan tíma. Unnið hafi verið með einkenni áfallastreitu sem nú séu ekki lengur fyrir hendi. Hálfur sigur hafi náðst en hún sé nú komin í 50% starfshlutfall. Ákærða sé vönduð manneskja sem þekki vel muninn á réttu og röngu. Hún sé viljug til að bæta fyrir brot sitt. Hún hafi mjög gott minni en slíkt hafi verið misskilið af lögreglu sem tilbúningur og samantekin ráð. Vitnið Grétar Guðmundsson taugalæknir greindi frá rannsóknum sínum á ákærðu Y. Hún hefði verið send til hans frá öðrum taugalækni. Hún væri vel gefin og greindi skýrt frá. Hún hefði ákveðin einkenni frá utanstrýtukerfi, meðal annars skjálfta í vinstri handlegg og fótlegg. Samkvæmt sjúkragögnum væri hún einnig á einhverfurófi. Þá hefði hún verið haldin svefnröskunum allt frá árinu 2004. Ekki hafi tekist að tengja þetta þrennt saman en rannsóknir hafi leitt til þeirrar niðurstöðu að ákærða sé haldin parkinsonsismus sjúkdómi, líklega parkinsons. Vitnið Högni Óskarsson geðlæknir gerði grein fyrir vottorði sínu vegna A. Hann hefði verið hjá honum í viðtalsmeðferð af og til í tvö ár fyrir atvikið sem um ræði. Staðið hefði til að ljúka meðferðinni á þessum tíma, en hann hefði haft samband áður en að tíma hans hefði komið og verið mikið niðri fyrir. Hann hefði þá greint frá því að hann hefði ranglega verið sakaður um nauðgun og verið mjög skelkaður vegna þessa. Hann hefði rekið vefmiðil og talið einfalt að rústa mannorði hans. Þetta hefði valdið honum miklum kvíða. Hann hefði því talið einfaldara að kaupa sér frið þótt hann hefði verið viss um að ekki væri hægt að sanna slíkan verknað og honum hefði þótt krafa þeirra óréttmæt. Vitnið hefði verið ósammála þessu mati hans. Hann hefði átt tvö samtöl við hann um þetta en atvikið hefði vakið upp gömul kvíðaviðbrögð hjá honum og haft slæm áhrif á líðan hans í nokkurn tíma.

Niðurstaða

I. kafli ákæru.

Ákærðu neita báðar sök í I. kafla ákærunnar. Þeim er þar gefin að sök fjárkúgun samkvæmt 251. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í félagi haft peninga af brotaþola með hótunum um að ákærða X myndi leggja fram kæru hjá lögreglu gegn honum fyrir að hafa nauðgað henni ef hann ekki greiddi þeim féð. Því er lýst í ákæru að ákærða Y hafi í nokkur skipti rætt við brotaþola í síma og greint honum frá því að ákærða X myndi kæra hann til lögreglu fyrir nauðgun ef hann ekki greiddi þeim féð fyrir kl. 16 föstudaginn 10. apríl. Þá hafi ákærða Y tekið við tveimur peningagreiðslum úr hendi brotaþola á vinnustað hennar og er ákærðu gefið að sök að hafa skipt fénu á milli sín. Samkvæmt framangreindu ákvæði 251. gr. almennra hegningarlaga skal hver sæta refsingu sem hefur fé af öðrum með því að hóta manni að beita hann eða nána vandamenn hans líkamlegu ofbeldi, svipta hann eða þá frelsi, eða að hafa upp rangan   sakburð   um   refsiverða   eða   vansæmandi   háttsemi   hans   eða   náinna vandamanna hans, eða annan slíkan sakburð, þótt sannur sé, ef nauðungin á ekki nægilegan rétt á sér vegna málefnis þess, er hótunin beinist að, eða loks með því að hóta honum að valda verulegum skemmdum eða eyðileggingu á eignum hans. Ákærðu telja háttsemi sína ekki refsiverða, en um hafi verið að ræða miskabætur til ákærðu X vegna kynferðisbrots. Þá telur ákærða X að óljóst sé hver sú háttsemi sé sem hún eigi að hafa viðhaft. Þessi hluti ákærunnar byggir á því að um samverknað ákærðu hafi verið að ræða. Dómurinn telur að háttsemi beggja ákærðu sé lýst með fullnægjandi hætti í ákærunni, þannig að það hafi ekki komið niður á vörnum ákærðu, sbr. 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008, en háttseminni er lýst sem samverknaði með verkskiptri aðild. Fyrir   liggur   að   ákærða   X   hafði   samband   við   systur   sína,   ákærðu  Y, aðfaranótt sunnudagsins 5. apríl 2015 kl. 01.06. Símtalið varði í sjö mínútur. Ákærðu greinir á um hvað kom fram í samtalinu. Ákærða Y heldur því fram að systir hennar hafi sagt henni að henni hefði verið nauðgað, en ákærða X neitar því alfarið og kveðst ekki hafa áttað sig á því fyrr en daginn eftir. Þremur mínútum eftir lok símtalsins sendir ákærða Y smáskilaboð til ákærðu X: „Þú ert samt öfgafyndinn snillingur!“ og fimm mínútum eftir það: „Lofarðu að fara varlega sys?“ Ákærða X greindi lögreglu frá því að hún hefði gist heima hjá bandarískum manni þessa nótt en á hádegi næsta dag sendi hún systur sinni skilaboð: „Vá hvað þetta var fkn fyndið atriði. Sorry ég man að hafa talað við þig...steikt kvöld. Ég tók b5 all over again.“ Ákærðu voru aftur í sambandi á hádegi mánudaginn 6. apríl 2015 en ákærða X sendi meðákærðu þá skilaboð um að hún þyrfti að tala við hana og í framhaldinu ræddu þær saman í síma. Skömmu síðar sendi ákærða Y skilaboð: „Væntanlega engin mynd/selfie tekin af ykkur þetta kvöld?“ Ákærða X svaraði: „Nei. Var bara of „drukkin“.“ Ákærða Y svaraði: „Einmitt. A væntanlega gætt þess að engin mynd væri tekin“ og: „Á ég að taka verkfærakassann með ef okkur langar til að klípa af honum fálmara?“ Þessu svarar ákærða X: „Já takk. Srsly“ og ákærða Y: „Er alltaf vopnuð!“ Ákærðu voru svo aftur í samskiptum síðla þess dags en þá sendi ákærða X skilaboð: „Hvar ertu nú elsku sys? Eg er í bio í Egilshöll“ og meðákærða svaraði: „Er á Álftanesi – hvernær eigum við að hittast?“ Nokkru síðar ræddu ákærðu saman í síma og um klukkutíma eftir það ræddi ákærða Y tvisvar við brotaþola, eftir að hafa þrisvar sinnum áður reynt að hringja í hann. Nokkru síðar hringdi brotaþoli stutt símtal til ákærðu Y og hún hringdi enn í hann um klukkustundu eftir það og ræddu þau þá saman í u.þ.b. hálftíma. Ljóst er að ákærðu hittu brotaþola þennan dag eða kvöld þar sem hann var staddur í Laugum heilsurækt. Samkvæmt framburði ákærðu borðuðu þær saman þetta kvöld. Síðar um kvöldið sendi ákærða X vinkonu sinni skilaboð: „Elsku vinkona. Y for með mér og vííí“ og stuttu síðar: „Við konfrontuðum mannhelvitið.“ Ákærðu voru svo aftur í símasamskiptum um kl. 23. Miðvikudaginn   8.   apríl   2015   fór   ákærða   X   á   neyðarmóttöku   vegna kynferðisbrota. Þann dag voru brotaþoli og ákæra Y í samskiptum að morgni dags. Skömmu fyrir hádegi sendi ákærða X barnsföður sínum skilaboð og spurði hvort hann gæti verið með börnin að loknum skóla þann dag fram til næsta dags þar sem „dálítið alvarlegt“ hefði komið upp. Ákærðu voru í símasambandi eftir hádegi þann dag og svo aftur kl. 18.05. Skömmu síðar ræddi ákærða Y við brotaþola. Ákærða X fékk símtal frá Landspítalanum kl. 19.04 og skilaboð frá meðákærðu: „Máttirðu koma fyrr?“ skömmu síðar. Ákærða Y hringdi í ákærðu X kl. 19.37 en ekki var svarað. Ákærða X hringdi til baka kl. 20.25 og stóð símtalið í 14 mínútur. Eins og fram hefur komið greindi ákærða Y frá því að meðákærða hefði sagt henni að merki um „dröggun“ og áverkar hefðu fundist hjá henni og henni hefði verið útvegaður réttargæslumaður. Því hefur ákærða X harðneitað og lýst því að hún hafi aldrei fengið   neinar   niðurstöður   úr   skoðuninni   og   ekki   greint   frá   öðru.   Þá   hefði réttargæslumaður talið málið vera veikt. Þetta sama kvöld kl. 20.59 sendi ákærða X skilaboð til meðákærðu: „Hversu háar bætur í svona málum?“ og fær svarið: „Oggulitlar – nokkrir hundraðkallar + málsvarnarlaun.“ Ákærða X svarar: „Ókei takk elsku sys“ og ákærða Y svarar: „PS. Verðum að selja fkn lóðina asap! Nú er ég búin með launin mín :/“ Ákærða X svarar enn: „Ég á ekki einn einasta aur heldur. En við gerum þetta. Er mjög ákveðin!“ og fær svarið: „Amm.“ Ákærða X sendir þá „C“ og ákærða Y: „Amen“ og svo: „Hef ýmsar vondar/gúdd hugmyndir sem við getum rætt í hádó á morgó. Getum étt spaghettí og hakk í mötuneyti Mogganz fyrst við eigum ekki pjéning.“ Ákærða X sendir þá: „Hahaha ókei ;) Þetta verður allt í lagi sys Lofa. Takk fyrir að standa með mér. Besti bróðir í geimi“ og ákærða Y svarar: „Við erum góðir bræður og   ég   held   að   við   ættum   að   nýta   styrkleika   okkar   til   að   verða   über-veldi   í sameiningu!“ Eins og fram kom hér að framan lýsti ákærða X því að tilvísun ákærðu Y til „vondra/gúdd“ hugmynda ættu við um þá hugmynd að láta brotaþola greiða henni miskabætur, en ákærða Y lýsti allt öðrum hugmyndum til þess að afla fjár. Næsta dag ákváðu ákærðu að hittast milli kl. 13 og 14. Kl. 11.16 þann dag sendi brotaþoli ákærðu Y skilaboð: „Góðan daginn Y – þú lætur mig vita ef þú fréttir eitthvað. Annars bara væri ég til í að heyra frá þér eftir vinnu J“ Ákærða sagðist ætla að gera það. Ákærðu ræddu þrisvar sinnum saman í síma milli kl. 13 og 14 þennan dag og aftur kl. 19.34. Kl. 19.36 hringdi brotaþoli í ákærðu Y og varði símtalið í 40 mínútur. Kl. 20.03 sendi ákærða X skilaboð: „Hringdu elsku sys ef ég þarf að vera on top of things...hvíldu þig annars.“ Skömmu síðar ræddu ákærðu tvisvar sinnum saman í síma. Þennan dag greindi ákærða Y brotaþola frá niðurstöðum skoðunar á ákærðu X á neyðarmóttöku. Föstudaginn 10. apríl sendi ákærða X skilaboð kl. 8.46 að morgni: „Hæ sys“ „tilbúin í daginn“ og svarið var: „Hæ! Jabb J.“ Ákærða X sendi til baka: „lovjú...ef ég á að gera eitthvað....“ og fékk á móti „Lovjú líka J“. Kl. 10.37 sendi ákærða Y skilaboð til brotaþola og spurði hvort hann væri í símafæri. Skömmu síðar hringdi brotaþoli í hana og varði símtalið í 14 mínútur. Brotaþoli hringdi tvisvar sinnum aftur í ákærðu milli kl. 12 og 13 og liggja fyrir hljóðupptökur af þeim símtölum. Kl. 12.40 sendi ákærða X skilaboðin: „No news?“ og fékk á móti hjörtu. Hún sendi þá aftur: „Let me know like this C“ og nokkru síðar: „Er hann búinn að skila?“ Ákærða Y svaraði: „Veit ekki. Er ekki í húsi“ og ákærða X: „jæks. Er það bara þar? Hringirðu ekki og tekkar?“ og fékk svarið: „Róleg sys – ég sé um þetta. Treystu mér.“ Ákærða X sendi: „Ég er mjög“ og með því er tákn sem greindist ekki. Ákærða Y spurði þá: „Treystir mér?“ og fékk svarið: „Auðvitað.“ Kl. 15.21 sendi ákærða Y brotaþola skilaboð og spurði hvort það væri í lagi að hún yrði kominn kl. 15.50 og hann féllst á það. Skömmu síðar spurði hann hvort hún væri mætt og hún játaði. Ákærðu og brotaþola ber saman um að þarna hafi hann komið   með   500.000   krónur   á   vinnustað   ákærðu  Y.   Meðal   gagna   málsins   er hljóðupptaka af þessum samskiptum þeirra. Kl. 16.09 sendi ákærða X skilaboð: „Sys“ og ákærða Y svaraði: „C“. Ákærða X svaraði: „Í alvöru? J“og ákærða Y: „Já“ og „En ég er samt farin í smá ferðalag“ og svo „Djók“. Ákærða X sendi þá: „Hahaha“ og „Farðu bara að koma svo við getum chillað“. Ákærða Y svaraði þá: „En ég óttast að ég verði að sleppa kvöldverði – vinn frameftir og er með ægilegan verk í haus.“ Ákærða X svaraði þessu: „Úff! Ég er með dúndrandi hausverk líka. Stressið. Ertu samt viss? Væri svo gaman.“ Þessu svaraði ákærða Y: „Er bara ónýtur – en á morgó?“ og ákærða X: „Endilega. En svo þú þurfir ekki að koma – þarf að fara í búð. A ég að koma við núna? Langar líka bara að knúsa þig.“ „Já! Kem út í bíl til þín“ svaraði ákærða Y og ákærða X sendi skömmu seinna: „Komin.“ Um klukkustund síðar sendi ákærða X: „ERTU AРNÁ ÞESSU? omg sh....love U“ og ákærða Y sendi hjörtu til baka. Ákærðu ræddu saman í síma skömmu síðar og kl. 22.14 sendi ákærða X: „Elsku sys verum bara ánægðar með allt. Lovjú og hlakka til að sja þig a morgun.“ Ákærða Y sendi þá: „Er fyrst og fremst ánægð með þig“ og ákærða X: „Þetta var algert teamwork   J“   sem   ákærða  Y  svaraði:   „Djös   snilldarbræður   erum   við   samt!“ Ákærða X svaraði enn: „I fkn know J“ og ákærða Y sendi: „C“. Ákærðu voru í símasamskiptum bæði laugardag og sunnudag. Á sunnudagskvöldið sendi ákærða X skilaboð: „Spennandi að sjá hvort niðurgangurinn standi við sitt 2morrow“ og ákærða Y svaraði: „Já, hann gerir það. Annars fer þetta landleiðina.“ Ákærða X svaraði þá: „Nkl. Fkn auminginn. Ertu eitthvað búin að tala v hann?“ og ákærða Y: „Neibb, heyri í honum í fyrró.“ Ákærða X svaraði þá aftur: „Ok. Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað.“ Mánudaginn 13. apríl 2015 voru ákærðu í samskiptum frá kl. 11.35 er ákærða X sendi skilaboð: „News?“ og fékk svarið: „Nibb – ekki komið hádegi enn“ og sendi þá: „Þú lætur mig vita?“ Í framhaldinu ræddu þær saman í síma. Kl. 15:47 sendi ákærða Y skilaboð til brotaþola og sagðist fara kl. 17. Kl. 16:56 sendi ákærða X: „Gekk þetta?“ og ákærða Y sendi: „Jamm.“ Ákærða X sendi þá: „C ok?“ og ákærða Y „Ok“. Ákærðu ber ekki saman um hver hafi átt hugmyndina að því að krefja brotaþola   um   peningagreiðslu.   Ákærða   X   sagði   fyrir   dóminum   að   hún   teldi brotaþola sjálfan hafa stungið upp á því en þegar borinn var undir hana framburður hennar hjá lögreglu kvað hún það geta staðist að hugmyndin hefði komið frá ákærðu Y. Það er í samræmi við framburð brotaþola og samræmist þeim gögnum sem hér hefur verið gerð grein fyrir. Eins og að framan greinir ber ákærðu ekki saman um hvað hafi komið fram þeirra á milli um niðurstöður skoðunar á neyðarmóttöku. Fyrir liggur þó að ákærða Y greindi brotaþola frá niðurstöðum sem ekki lágu fyrir. Þá var honum veittur mjög skammur   frestur   til   þess   að   ákveða   hvort   hann   greiddi   umkrafða   fjárhæð.   Á upptöku, sem brotaþoli afhenti lögreglu, af samskiptum hans og ákærðu Y, kemur fram að hann vill millifæra peningana inn á reikning hennar eða ákærðu X. Ákærða neitaði þessu strax. Þá skrifaði hún kvittun að lokinni seinni greiðslunni þar sem ákærðu X var í engu getið. Báðar ákærðu hafa greint frá því að peningunum frá brotaþola hafi verið skipt á milli þeirra þótt þær greini á um með hvaða hætti og ákærða Y hafi talað um það fyrir dóminum að hún hefði ætlað að endurgreiða þetta. Hjá lögreglu sagði ákærða Y hins vegar að ákærðu X hefði fundist sjálfsagt að láta hana frá 200.000 krónur hvort sem hún myndi borga það til baka eða ekki. Það hefði ekki verið rætt sérstaklega. Með hliðsjón af þessu er það ekki trúverðugt að hún hafi ekki átt að fá hluta af fjárhæðinni. Ákærða X kveðst ekki hafa verið í neinum samskiptum við brotaþola eftir 6. apríl 2015. Hún telur því að hún hafi ekki getað staðið að fjárkúgun og hafi ekki viðhaft þá háttsemi sem lýst sé í ákærunni. Eins og ítarlega hefur verið rakið hér að framan voru mikil samskipti milli ákærðu þá daga í apríl 2015 sem um ræðir. Af þeim verður ekki annað séð en að ákærðu X hafi verið fullkunnugt um öll atvik og tekið fullan þátt í skipulagningu þeirra. Gögnin sýna jafnframt að þátttaka ákærðu Y var ekki bundin við milligöngu fyrir hönd ákærðu X. Var um samverknað ákærðu að ræða og skiptu þær með sér verkum eins og lýst er í ákærunni. Samkvæmt 251. gr. almennra hegningarlaga er það refsivert að hafa fé af manni   með   því   að   hafa   uppi   rangan   sakburð   um   refsiverða   eða   vansæmandi háttsemi, þótt hann sé sannur, ef nauðungin á ekki nægilegan rétt á sér vegna málefnis þess er hótunin beinist að. Hvort háttsemi ákærðu er refsiverð veltur þannig á því hvort hótun um að kæra til lögreglu átti nægjanlegan rétt á sér eða ekki. Það er því ekki úrlausnarefni dómsins hvort kynferðisbrot átti sér stað. Ákærða Y hefur staðfest framburð brotaþola um að hún hafi gefið honum þær upplýsingar að greinileg merki um nauðgun hafi fundist hjá ákærðu X í skoðun hjá neyðarmóttöku. Ljóst er að engin slík merki fundust og voru honum því gefnar rangar upplýsingar. Brotaþoli kvaðst allan tímann vera hafður fyrir rangri sök. Engu að síður var hann beittur miklum þrýstingi til þess að greiða fljótt, en ella yrði hann kærður til lögreglu. Ekkert í samskiptum ákærðu gefur til kynna að þær hafi rætt um kynferðisbrot gegn ákærðu X. Þá þykir sú staðreynd að ákærðu skiptu fénu á milli sín benda til þess að ekki hafi verið um miskabætur til ákærðu X að ræða. Með hliðsjón af öllu framangreindu er sannað að brotaþoli var beittur nauðung sem á ekki rétt á sér og ákærðu hafa gerst sekar um brot gegn 251. gr. almennra hegningarlaga.

II. kafli ákæru.

Ákærða X játar skýlaust sök í þessum kafla ákærunnar. Játning hennar er studd sakargögnum. Verður hún sakfelld fyrir þau brot og eru þau rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni. Ákærða Y neitar því að hafa gerst sek um samverknað en viðurkennir hlutdeild í broti meðákærðu. Ákærðu ber að mestu leyti saman um málsatvik. Hugmyndin kom frá ákærðu X. Hún greindi ákærðu Y frá henni í matarboði 9. maí 2015. Ákærða X taldi ákvörðunina um að framkvæmda hugmyndina hafa verið tekna af þeim í sameiningu en ákærða Y lýsti því að hún hefði talið þetta galið og myndi vonandi gleymast. Hún kvaðst ítrekað hafa reynt að draga úr meðákærðu og telja henni hughvarf. Hún viðurkenndi að hafa lánað henni minniskubb til þess að vista bréfin á og prenta þau bæði út, hvort í sínu lagi, á vinnustað sínum, auk þess sem hún hefði séð efni bréfanna. Hún fór með meðákærðu að velja stað fyrir afhendingu peninganna og í framhaldi að kaupa umslög og frímerki til notkunar fyrir sendingu bréfanna. Þann 29. maí 2015 fór ákærða Y með systur sinni á afhendingarstaðinn. Hún hafði með sér myndavél og sjónauka sem þær notuðu til að sjá afhendingarstaðinn og fylgjast með umferð í kringum hann. Ákærða fékk lánaða bifreið í bifreiðaumboði sem hún ók þennan dag. Í bifreiðinni fletti hún upp númerum bifreiða til þess að gæta þess að lögreglan væri þar ekki á ferð. Þá beið hún meðákærðu er hún fór úr bifreiðinni til þess að sækja töskuna. Ákærðu greinir á um hvort ákærða Y hafi átt að fá hluta fjárins. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að ákærða Y hafi reynt að fá meðákærðu ofan af áætlunum sínum og ákærða X hefur alfarið hafnað því að svo hafi verið. Verður að horfa til þess að ákærða Y heyrði fyrst af hugmyndinni 9. maí eða 20 dögum áður en þær ákærðu voru handteknar. Þegar litið er til þess hlutar ákærðu Y sem hún sjálf hefur líst er ekki hægt að líta svo á að hún hafi átt það veigalítinn þátt í brotunum sem líst er í 2. og 3. lið II. kafla ákærunnar að hún verði ekki talin aðalmaður. Þá styðja gögn málsins, sérstaklega skilaboð milli ákærðu, þá niðurstöðu. Er um verkskipta aðild ákærðu að ræða og teljast þær báðar vera aðalmenn í brotunum. Brot ákærðu Y eru því rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

Refsing, einkaréttarkröfur og sakarkostnaður

Ákærði X er fædd í [...] og ákærða Y í [...]. Samkvæmt sakavottorðum þeirra hafa þær ekki áður gerst sekar um refsivert brot. Undir rannsókn málsins framkvæmdi Tómas Zoëga geðrannsókn á ákærðu X. Það var niðurstaða hans að hún væri sakhæf og ekkert læknisfræðilegt útiloki að refsing kunni að bera árangur. Meðal gagna málsins eru ýmis vottorð um andlega og líkamlega heilsu ákærðu. Ekkert í þeim bendir til þess að ákærðu séu ósakhæfar. Hins vegar þykir rétt að líta til þeirra upplýsinga við ákvörðun refsingar. Við ákvörðun refsingar verður einnig horft til þess að annars vegar var um að ræða fullframið brot en hins vegar tilraun, en tilraunin til fjárkúgunar beindist að þáverandi forsætisráðherra landsins. Þá þykir einnig mega líta til þess að ákærðu hafa mátt þola óvægna fjölmiðlaumfjöllun. Með hliðsjón af framangreindu og 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærðu, hvorrar um sig, hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu níu mánaða af refsingunni og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum frá   uppkvaðningu   dóms   þessa   að   telja   haldi   ákærðu   almennt   skilorð   57.   gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Af hálfu A er krafist skaðabóta óskipt úr hendi ákærðu að fjárhæð 1.700.000 krónur, sem skiptast þannig að 700.000 krónur eru vegna þess fjár sem ákærðu höfðu af honum, en 1.000.000 króna vegna miskabóta. Í málinu er óumdeilt, auk þess sem fyrir því liggur kvittun í tvíriti, að brotaþoli afhenti ákærðu Y 700.000 krónur í tvennu lagi. Með vísan til framangreindrar niðurstöðu um ólögmæta nauðung er rétt að fallast á kröfuna. Með vísan til 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 þykir brotaþoli jafnframt eiga rétt á miskabótum. Brot ákærðu var til þess fallið að valda brotaþola andlegri vanlíðan. Fyrir liggur vottorð geðlæknis sem staðfestir að svo hafi verið. Með vísan til framangreinds þykja miskabætur til ákærða hæfilega ákveðnar 600.000 krónur sem beri vexti eins og í dómsorði greinir. Ákærða   X   greiði   málsvarnarlaun   skipaðs   verjanda   síns,   Kolbrúnar Garðarsdóttur hdl., 3.277.940 krónur. Ákærða Y greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Hólmgeirs Elíasar Flosasonar hdl., 3.478.200 krónur og málsvarnarlaun verjanda síns á rannsóknarstigi, Ingu Lillýjar Brynjólfsdóttur hdl., 628.215 krónur. Ákærðu greiði óskipt þóknun réttargæslumanns brotaþola, Jóhanns Karls Hermannssonar hdl., 943.330 krónur, og 784.456 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari. Dóm þennan kveður upp Barbara Björnsdóttir héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærða, X, sæti fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu níu mánaða af refsingunni   og   skal   sá   hluti   hennar   falla   niður   að   liðnum   tveimur   árum   frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærða, Y, sæti fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu níu mánaða af refsingunni   og   skal   sá   hluti   hennar   falla   niður   að   liðnum   tveimur   árum   frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærðu greiði óskipt A 1.300.000 krónur, með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá 13. apríl 2015 til 14. desember 2016, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærða   X   greiði   málsvarnarlaun   skipaðs   verjanda   síns,   Kolbrúnar Garðarsdóttur hdl., 3.277.940 krónur. Ákærða Y greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Hólmgeirs Elíasar Flosasonar hdl., 3.478.200 krónur og málsvarnarlaun verjanda síns á rannsóknarstigi, Ingu Lillýjar Brynjólfsdóttur hdl., 628.215 krónur. Ákærðu greiði óskipt þóknun réttargæslumanns brotaþola, Jóhanns Karls Hermannssonar hdl., 943.330 krónur, og 784.456 krónur í annan sakarkostnað.

Barbara Björnsdóttir

Heimildaskrá