Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 17. janúar 2019.
Mál nr. S-350/2018:
Ákæruvaldið
(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hafþóri Loga Hlynssyni,
(Björgvin Jónsson hrl)
X,
(Halldóra Aðalsteinsdóttir hdl)
Kjartani Sveinarssyni,
(Ólafur V. Thordersen hdl)
Matthíasi Jóni Karlssyni,
(Guðni Jósep Einarsson hdl)
Pétri Stanislav Karlssyni,
(Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Sindra Þór Stefánssyni og
(Þorgils Þorgilsson hdl)
Viktori Inga Jónassyni
(Áslaug Lára Lárusdóttir hdl)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Hegningarauki. Hlutdeild. Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Játningarmál. Skaðabætur. Skilorð. Sönnun. Þjófnaður. Tilraun. Upptaka. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Ákærðu voru sakfelldir fyrir innbrot og þjófnað í gagnaver sem hýstu tölvur og búnað til að grafa eftir rafmynt.
Mál þetta, sem dómtekið var 7. desember 2018, er höfðað af lögreglustjóranum á Suðurnesjum með ákæru 5. júlí 2018 á hendur Hafþóri Loga Hlynssyni, kt. 270787- 3559, Burknavöllum 17a, Hafnarfirði, X, kt. 000000-0000, […], […], Kjartani Sveinarssyni, kt. 140681-5479, Suðurhvammi 7, Hafnarfirði, Matthíasi Jóni Karlssyni, kt. 040692-2909, Sogavegi 136, Reykjavík, Pétri Stanislav Karlssyni, kt. 021093- 4089, Gyðufelli 6, Reykjavík, Sindra Þór Stefánssyni, kt. 090886-3399, Helluvaði 15, Reykjavík, og Viktori Inga Jónassyni, kt. 210294-2609, Dísaborgum 13, Reykjavík, „fyrir eftirtalin brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og vopnalögum;
I. (008-2017-17821) Gegn ákærðu Sindra Þór, Matthíasi Jóni og Pétri Stanislav, fyrir stórfelldan þjófnað, með því að hafa, í sameiningu, undirbúið, lagt á ráðin, skipulagt og framkvæmt innbrot og þjófnað í gagnaver Algrim Consulting slf., Heiðartröð 554, 235 Ásbrú, Reykjanesbæ og í gagnaver BDC Mining ehf, Heiðartröð 555, Ásbrú, Reykjanesbæ á tímabilinu frá kl. 20:20, þann 5. desember 2017 til kl. 09:00 þann 6. desember 2017, og tekið þaðan í heimildarleysi tölvubúnað og fylgihluti hans, úr gagnaveri Algrim Consulting slf., alls 600 stk. skjákort, 100 stk. aflgjafa, 100 stk. móðurborð, 100 stk. minniskubba og 100 stk. örgjörva og úr gagnaveri BDC Mining ehf., alls 21 stk. örgjörva, 216 stk. skjákort, 21 stk. móðurborð, 35 stk. aflgjafa, 260 stk. riser kapla, 45 stk. bitmain L3+, 4 stk. bitmain S9, 40 stk. bitmain D3, 5 stk. inosillicon A5, 124 stk. psu (spenna), samtals muni að verðmæti kr. 42.590.501,-.
Telst þessi háttsemi ákærðu varða við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
(008-2017-17821) Gegn ákærðu Sindra Þór, Matthíasi Jóni og Pétri Stanislav fyrir tilraun til stórfellds þjófnaðar, með því að hafa, í sameiningu, undirbúið, lagt á ráðin og skipulagt innbrot og þjófnað í gagnaver BDC Mining ehf, Heiðartröð 557, Ásbrú, Reykjanesbæ, á tímabilinu frá 05. desember 2017 til 10. desember 2017 og reynt að fara í heimildarleysi inn í húsnæðið í því skyni að hafa þaðan á brott tölvubúnað og fylgihluti hans.
Telst þessi háttsemi ákærðu varða við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.
III.
(313-2017-32951) Gegn ákærðu Sindra Þór, Matthíasi Jóni og Viktori Inga, fyrir stórfelldan þjófnað, með því að hafa, í sameiningu, undirbúið, lagt á ráðin og skipulagt innbrot og þjófnað í gagnaver AVK ehf. að Sólbakka 6 í iðnaðarhverfi í Borgarnesi, sem ákærðu Sindri Þór og Viktor Ingi framkvæmdu, aðfaranótt 15. desember 2017, og höfðu á brott með sér, í heimildarleysi, tölvubúnað og fylgihluti hans, alls 28 stk. bitmain, samtals muni að verðmæti kr. 6.010.067,-, samtals tjón að áætluðu verðmæti kr. 14.364.067,-.
Telst þessi háttsemi ákærðu varða við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IV.
(008-2017-18837) Gegn ákærðu Sindra Þór, Matthíasi Jóni og Viktori Inga fyrir tilraun til stórfellds þjófnaðar, með því að hafa, í sameiningu, undirbúið, lagt á ráðin og skipulagt innbrot og þjófnað í gagnaver BDC Mining ehf, Heiðartröð 555-557, Ásbrú, Reykjanesbæ, aðfaranótt 26. desember 2017 þar sem einn þeirra fór í heimildarleysi inn í húsnæðið í því skyni að hafa þaðan á brott tölvubúnað og fylgihluti hans, en ákærðu hurfu á brott þegar þjófavarnarkerfi fór í gang.
Telst þessi háttsemi ákærðu varða við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.
V.
(008-2018-827) Gegn ákærðu Sindra Þór, Matthíasi Jóni og Pétri Stanislav fyrir stórfelldan þjófnað, með því að hafa, í sameiningu og í samvinnu við ákærðu Viktor Inga, Hafþór Loga og X, undirbúið, lagt á ráðin, skipulagt og framkvæmt innbrot og þjófnað í gagnaver Advania, Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ, á tímabilinu 03:00-05:00 aðfaranótt 16. janúar 2018, en ákærðu tóku þaðan í heimildarleysi tölvubúnað og fylgihluti hans, alls 225 stk. BitCoin Antminer S9 14Th tölvur og 225 stk. BitCoin APW3++ aflgjafar, samtals muni að áætluðu verðmæti kr. 46.857.452,-, samtals tjón að áætluðu verðmæti kr. 78.140.951,-.
Telst þessi háttsemi ákærðu varða við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
VI. (008-2018-827) Gegn ákærða X, aðallega fyrir stórfelldan þjófnað en til vara fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, fyrir að hafa, í sameiningu og í samvinnu við ákærðu Sindra Þór, Matthías Jón og Pétur Stanislav, sbr. ákærulið V. og Hafþór Loga og Viktor Inga, sbr. ákærulið VII, undirbúið og skipulagt innbrot og þjófnað í gagnaver Advania, Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ, sbr. ákæruliði V. og VII., með því að láta meðákærðu í té öryggisupplýsingar um gagnaverið ásamt öryggiskóða, sem hann bjó yfir sem […], en öryggiskóði var notaður til að taka af öryggiskerfi í gagnaverinu þegar innbrot og þjófnaður var framkvæmdur í gagnaverinu á tímabilinu 03:00-05:00 aðfaranótt 16. janúar 2018, en jafnframt fyrir að hafa látið ákærðu Sindra Þór, Matthíasi Jóni og Pétri Stanislav í té fatnað […] til að íklæðast við innbrotið og þjófnaðinn.
Telst þessi háttsemi ákærða aðallega varða við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en til vara við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr., sbr. 1. og 4. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
VII. (008-2018-827) Gegn ákærðu Viktori Inga og Hafþóri Loga, aðallega fyrir stórfelldan þjófnað, fyrir að hafa í sameiningu og í samvinnu við ákærðu Sindra Þór, Matthías Jón, Pétur Stanislav og X, sbr ákæruliði V. og VI., en til vara fyrir hlutdeild í brotum þeirra sbr. framangreinda ákæruliði, aðallega með því að hafa í sameiningu og samvinnu undirbúið, lagt á ráðin og skipulagt innbrot og þjófnað í gagnaver Advania, Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ sem ákærðu Sindri Þór, Matthías Jón og Pétur Stanislav framkvæmdu á tímabilinu 03:00-05:00 aðfaranótt 16. janúar 2018, og tóku þaðan tölvubúnað og fylgihluti hans, alls 225 stk. BitCoin Antminer S9 14Th tölvur og 225 stk. BitCoin APW3++ aflgjafar, samtals muni að áætluðu verðmæti kr. 46.857.452,-, samtals tjón að áætluðu verðmæti kr. 78.140.951,-. Til vara fyrir að hafa í orði, verki og með fortölum, hvatt til og stutt ákærðu Sindra Þór, Matthías Jón og Pétur Stanislav, við undirbúning, skipulagningu og framkvæmd framangreinds innbrots í gagnaver Advania.
Telst þessi háttsemi ákærðu aðallega varða við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en til vara við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr., sbr. 1. og 4. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
VIII. (008-2018-827) Gegn ákærða Kjartani Sveinarssyni, aðallega fyrir hlutdeild en til vara fyrir eftirfarandi hlutdeild, í innbroti og þjófnaði í gagnaver Advania, Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ, aðfaranótt 16. janúar sl., sbr. ákæruliði V.-VII., sem ákærðu Sindri Þór, Matthías Jón, Pétur Stanislav framkvæmdu í félagi við ákærðu Viktor Inga, Hafþór Loga og X, með því að útvega og koma á samskiptum milli ákærðu Hafþórs Loga og Matthíasar Jóns við ákærða X og með þeirri háttsemi sinni aðstoðað meðákærðu við framkvæmd verknaðarins og haldið við ólöglegum afleiðingum brotsins.
Telst þessi háttsemi ákærða aðallega varða við 1., sbr. 2. mgr. 244. gr., sbr. 1. og 4. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Til vara við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IX.
Gegn ákærða Pétri Stanislav, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, þann 1. febrúar 2018, haft í vörslum sínum, á heimili sínu, Gyðufelli 6, Reykjavík, 14,34 g af kókaíni, sem lögregla fann við húsleit greint sinn. Telst þessi háttsemi ákærða varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 490/2001, reglugerð nr. 248/2002 og reglugerð nr. 848/2002.
X.
Gegn ákærða Matthíasi Jóni, fyrir vopnalagabrot, með því að hafa, þann 1. febrúar 2018, haft í vörslum sínum, án leyfis, rafstuðbyssu, sem hann geymdi í í bifreið sinni, SZ-Y03 og lögreglan fann við leit í bifreiðinni fyrir utan lögreglustöðina Hverfisgötu 113-115, Reykjavík greint sinn.
Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 12. gr. og 1. mgr. 21. gr. vopnalaga nr. 16/1998, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þá er þess krafist að gerð verði upptæk ofangreind fíkniefni, 14,34 g af kókaíni, sbr. ákærulið IX., skv. heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Jafnframt er þess krafist að haldlögð rafstuðbyssa, sbr. ákærulið X., verði gerð upptæk, sbr. heimild í 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Einkaréttarkrafa:
Í máli sbr. ákærulið V.-VIII. krefst Advania Data Centers (ADC), kt. 571115-0690, Guðrúnartúni 10, Reykjavík skaðabóta á hendur ákærðu, samtals að fjárhæð kr. 78.140.951,- sem hér segir:
- Kr. 46.857.452,- ásamt vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 16. janúar 2018, þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvöxtum, skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags.
- Kr. 31.283.499, ásamt vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 16. janúar 2018, þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvöxtum, skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst ADC málskostnaðar fyrir héraðsdómi að mati dómsins eða skv. síðar framlögðum málskostnaðarreikningi komi til málflutnings í málinu skv. 176. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.“
Við upphaf aðalmeðferðar málsins játaði ákærði Sindri Þór sök samkvæmt III. ákærulið, að því leyti að hafa farið inn í gagnaver AVK ehf. að Sólbakka 6, Borgarnesi, en neitaði því að hafa undirbúið, lagt á ráðin og skipulagt innbrotið. Einnig játaði hann sök samkvæmt V. ákærulið, en neitaði því einnig að hafa undirbúið, lagt á ráðin og skipulagt innbrotið. Hann viðurkenndi þó hlutdeild í framkvæmd þess. Að öðru leyti neitar hann sök og hafnar bótakröfu.
Ákærði Matthías Jón játaði einnig sök samkvæmt V. ákærulið, en neitaði því að hafa lagt á ráðin og skipulagt innbrotið. Að öðru leyti neitar hann sök og hafnar bótakröfu.
Ákærði Pétur Stanislav játaði sök samkvæmt IX. ákærulið, en neitaði öðrum sakargiftum.
Við sama tækifæri óskaði einkaréttarkröfuhafi eftir því að leiðrétta kröfu sína með eftirfarandi bókun: „Kröfuhafi gerir þá kröfu að ákærðu verði gert að greiða kröfuhafa samtals kr.
56.171.565 í skaðabætur skv. eftirfarandi liðum: 1. Að ákærðu í málinu verði gert að greiða kröfuhafa kr. 33.683.572 í skaðabætur ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 16. janúar 2018, þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. 2. Að ákærðu í málinu verði gert að greiða kröfuhafa kr. 22.488.093 í skaðabætur ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 16. janúar 2018, þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar fyrir héraðsdómi að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi komi til málflutnings í málinu skv. 176. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.“
Málsatvik
Á tímabilinu frá 5. desember 2017 til 16. janúar 2018 var brotist inn í fjögur gagnaver hér á landi, sem öll hýstu tölvubúnað og fylgihluti til að „grafa“ eftir rafmynt. Þrjú innbrotanna voru framin í gagnaver á Ásbrú í Reykjanesbæ, en eitt í Borgarnesi. Í öllum tilvikum var miklu magni búnaðar stolið og nemur tjónið umtalsverðum fjárhæðum. Að auki var tvívegis gerð tilraun til innbrots í fimmta gagnaverið, sem einnig er til húsa á Ásbrú. Lögreglan telur að ákærðu í máli þessu eigi aðild að innbrotunum, en í mismiklum mæli þó.
Meðal gagna málsins eru ítarlegar greinargerðir lögreglumanna sem rannsökuðu mál þessi, annars vegar lögreglumanna við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, en hins vegar lögreglumanna við embætti lögreglustjórans á Vesturlandi. Samkvæmt þeim og öðrum rannsóknargögnum eru málsatvik í megindráttum sem hér segir:
Innbrot og þjófnaður að Heiðartröð 554 og 555, Ásbrú, Reykjanesbæ, og tilraun til innbrots að Heiðartröð 557, sbr. I. og II. ákærulið.
Hinn 6. desember 2017 var lögreglunni á Suðurnesjum tilkynnt um innbrot í tvö samliggjandi gagnaver á Ásbrú í Reykjanesbæ, annars vegar í gagnaver Algrim Consulting slf. að Heiðartröð 554, en hins vegar í gagnaver BDC Mining ehf. að Heiðartröð 555. Talið var að innbrotin hafi verið framin á tímabilinu frá kl. 20:20 5. desember til kl. 09:00 6. desember og að farið hefði verið inn í húsin um lofttúðugöt á hliðum þeirra. Stolið var miklu magni af tölvubúnaði, skjákortum og fylgihlutum til að „grafa“ eftir rafmynt. Nokkrum dögum síðar tilkynnti forsvarsmaður BDC Mining ehf. lögreglunni að einnig hefði verið reynt að fara inn í gagnaver fyrirtækisins að Heiðartröð 557 á Ásbrú. Þar hefði verið búið að líma fyrir skynjara í þeim hluta hússins sem reynt hafði verið að fara inn í, auk þess sem reynt hafði verið að draga út nagla á plötu sem negld hafði verið fyrir gat á vegg hússins.
Ákærðu neita aðild að brotum þessum.
Nokkru eftir innbrotin að Heiðartröð 554 og 555 ræddi lögreglan við vitni sem hafði upplýst starfsmann Securitas um að hann hefði heyrt einhvern tala um að hafa séð tvo menn í dökkum fötum skipta um númeraplötur á bílaleigubíl frá Thrifty. Sjálft sagðist vitnið hafa tekið eftir aðila á stórum, hvítum sendibíl og hafi sá fylgst með gagnaverinu í nokkra daga. Ekki mundi vitnið þó hvort það var fyrir eða eftir innbrotin. Í kjölfarið hafði lögreglan samband við bílaleiguna Thrifty á Akureyri og kom þá í ljós að ákærði Sindri hafði þar leigt hvíta Ford Transit Custom sendibifreið 4. desember 2017 og var henni skilað þangað aftur 7. desember 2017. Á leigutímanum hafði bifreiðinni verið ekið um 1.300 km. Sams konar bifreið sást í akstri í eftirlitsmyndavél í nágrenni innbrotavettvangs, nánar tiltekið á Klettatröð, aðfaranótt 6. desember 2017 kl. 04:59, og var henni þá ekið í stefnu frá gagnaverunum.
Meðal gagna málsins er upplýsingaskýrsla frá Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. Þar kemur fram að 6. desember 2017 hafi aðili tilkynnt lögreglunni í Hafnarfirði um að skráningarnúmerum hafi verið stolið af þremur bifreiðum í eigu Bílaleigu Flugleiða við Selhellu í Hafnarfirði aðfaranótt 5. desember 2017. Með skýrslunni fylgja ljósmyndir úr eftirlitsmyndavélum bílaleigunnar og sjást þar menn koma á tveimur bifreiðum kl. 02:55 og stela skráningarnúmerum. Önnur bifreiðin er hvít sendiferðabifreið, merkt bílaleigunni Thrifty. Í sömu upplýsingaskýrslu segir að 5. desember kl. 05:06 hafi aðili hringt í Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir við iðnaðarhúsnæðið að Funatröð 3 á Ásbrú, en tilkynnandi bjó á þessum tíma í iðnaðarhúsnæðinu. Kvaðst hann hafa vaknað við umgang utan við húsið og þá séð að búið var að bakka hvítri sendibifreið, merktri bílaleigunni Thrifty, upp að dyrum hússins. Í bifreiðinni hafi verið tveir aðilar og hafi þeir eitthvað verið að vesenast aftan við bifreiðina. Hafi hann heyrt hljóð eins og verið væri að rífa límband og því hafi hann grunað að þeir væru að skipta um númeraplötur. Skömmu síðar hafi komið fólksbifreið og út úr henni hafi stigið einn aðili. Tilkynnandi gat þess að aðilarnir hafi verið að fylgjast með gagnaverunum við Heiðartröð og hafi hann grunað að þeir væru að undirbúa þar innbrot, en á sama tíma hafi öryggisvörður frá Securitas verið þar og hafi þeir einnig fylgst með honum úr fjarlægð. Sagði tilkynnandi að skráningarnúmer hvítu sendibifreiðarinnar hafi verið DU-162 og fólksbifreiðarinnar IV-U74. Skráningarnúmerin sem stolið var fyrr um nóttina í Hafnarfirði voru DM-162, IV-U74 og JZ-V03.
Innbrot og þjófnaður í gagnaver AVK ehf., Borgarnesi, sbr. III. ákærulið.
Að morgni 15. desember 2017 var lögreglunni á Vesturlandi tilkynnt um þjófnað á bitcoin-tölvubúnaði úr húsnæði AVK ehf. að Sólbakka 6 í Borgarnesi. Stolið var 28 bitcoin-vélum, kassa af skjákortum og PC-stjórntölvu, samtals að verðmæti 5 – 6 milljónir króna. Talið var að farið hefði verið inn í húsið um opnanlegan glugga og var stormjárn þar brotið. Á gólfi hússins fundust ný dekkjaför. Samkvæmt upplýsingum frá forstöðumanni fyrirtækisins hófst starfsemi í húsinu 9. desember 2017 og hafði það því aðeins starfað í 6 daga. Samkvæmt tölvukerfi hússins var fyrsta bitcoin-vélin tekin úr sambandi um kl. 02:30 um nóttina og 5 mínútum síðar höfðu þær allar verið teknar úr sambandi. Vitnið Magnús Þór Jónsson greindi lögreglu frá því að hafa í samtali við ákærða Sindra Þór um mánaðamótin nóvember/desember sagt honum frá því að hafin væri bitcoin-vinnsla í húsinu að Sólbakka 6 í Borgarnesi, en vitnið hafði unnið við tengingu heimtaugar að húsinu. Sindri mun hafa þráspurt vitnið um allt sem viðkom starfseminni og fékk nákvæmar upplýsingar um hvar vinnslan færi fram í húsinu.
Síðdegis 14. desember 2017 keypti ákærði Matthías sendibifreiðina LR-538. Samkvæmt skýrslu sem tekin var af seljanda bifreiðarinnar kom Matthías í fylgd annars manns á bifreiðinni AI-T95, og telur lögreglan að sá hafi verið ákærði Viktor Ingi. Síðarnefnda bifreiðin var bílaleigubifreið í eigu Bernhards ehf., en Viktor Ingi hafði þá sem starfsmaður bílaleigunnar aðgang að bílum bílaleigunnar. Matthías greiddi 80.000 krónur fyrir sendibifreiðina og var skráður eigandi hennar frá þeim tíma. Í skýrslu sinni hjá lögreglunni sagðist Matthías hafa keypt bifreiðina fyrir annan aðila, en vildi ekki greina frá því hver sá væri. Eftir kaupin kvaðst hann hafa ekið bifreiðinni að bílaplani við Dalsskóla í Reykjavík, sett lyklana undir framsætið og skilið hana eftir á bílastæðinu fyrir annan aðila, en neitaði að tjá sig um hver sá væri. Hann neitaði því að ákærði Viktor Ingi hefði verið með honum þegar gengið var frá kaupum á bifreiðinni, en sagði að það hefði verið Pétur, bróðir hans. Telur lögreglan að sendibifreiðin hafi gagngert verið keypt í þeim tilgangi að nota hana við innbrotið í Borgarnesi.
Samkvæmt ljósmyndum úr eftirlitsmyndavél við gjaldskýli Hvalfjarðarganga greiddi ákærði Sindri veggjaldið um göngin kl. 01:15:48 aðfaranótt 15. desember 2017 og var þá á norðurleið. Ók hann hvítri bifreið með númerinu NF-T16, en daginn áður hafði hann komið á sömu bifreið til Reykjavíkur. Aðeins 6 sekúndum á eftir honum kom sendibifreiðin LR-538 að gjaldskýlinu. Ekki sést í andlit ökumanns, en þegar ökumaðurinn greiðir veggjaldið sést húðflúr, leðuról og úr á vinstri úlnlið hans. Lögreglan telur að þar hafi verið á ferð Viktor Ingi og styður þá tilgátu við framlagðar ljósmyndir af honum við annað tækifæri.
Um kl. 02:05 sömu nótt var báðum áðurnefndum bifreiðum ekið inn á bílaplan Olís í Borgarnesi og var eldsneyti tekið á sendibifreiðina. Í eftirlitsmyndavél sjást báðar bifreiðarnar koma þangað og fara þaðan samtímis kl. 02:12. Nokkru síðar sjást þær aftur í eftirlitsmyndavél þar sem þeim er ekið inn Sólbakka úr suðri. Um 18 mínútum síðar er sendibifreiðinni ekið frá Sólbakka, en bifreiðin NF-T16 sést ekki fara frá Sólbakka, og telur lögreglan að ákærði Sindri hafi því ekið Sólbakka til norðurs.
Ákærði Matthías var handtekinn síðdegis 16. desember 2017 og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. sama mánaðar. Neitaði hann aðild að innbrotinu. Við yfirheyrslu hjá lögreglu kvaðst hann hafa fengið boð á Messenger/Snapchat um að ná í aðila upp á Kjalarnes rétt fyrir kl. 04:08, en neitaði að upplýsa um nafn þess aðila. Hafi hann sótt þennan aðila og ekið honum að stað nálægt heimili sínu, þar sem viðkomandi geymdi bifreið sína.
Ákærði Sindri var handtekinn daginn eftir, 17. desember, og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. sama mánaðar. Við yfirheyrslu hjá lögreglu neitaði hann aðild að innbrotinu. Sérstaklega spurður um sendibifreiðina LR-538 og ökumann hennar sagðist hann hafa hitt ökumanninn sunnan við Hvalfjarðargöng og hafi sá verið útlendingur, Lithái eða Pólverji, og hafi hann beðið um lán fyrir eldsneyti á sendibifreiðina. Hafi þeir ekið að Olís í Borgarnesi, þar sem Sindri hafi lánað honum fyrir eldsneyti.
Lögreglan telur að ökumaður LR-538 hafi eftir innbrotið ekið bifreiðinni frá Borgarnesi til suðurs og annaðhvort skilið hana eftir í felum eða annar aðili tekið við akstrinum á Kjalarnesi, en bifreiðin mun ekki hafa farið um Hvalfjarðargöng. Fannst hún í Kópavogi 22. desember 2017 og var þá haldlögð. Þrátt fyrir ítarlega leit lögreglu á og í bifreiðinni fundust hvorki nothæf fingraför né DNA-sýni sem tengt gátu ákærðu við notkun bifreiðarinnar. Samanburður var einnig gerður á hjólförum bifreiðarinnar og þeim hjólförum sem fundust á gólfi hússins að Sólbakka 6, og var niðurstaða lögreglunnar að ekki var hægt að útiloka að um sömu hjólför væri að ræða, en ekki var heldur hægt að slá því föstu. Eftir rannsókn lögreglunnar var bifreiðin afhent eiganda hennar, ákærða Matthíasi, og fór hann beint með hana til eyðingar.
Eins og áður segir játaði Sindri Þór aðild sína að umræddu innbroti og þjófnaði við upphaf aðalmeðferðar málsins. Aðrir ákærðu, Matthías Jón og Viktor Ingi, neita hins vegar allri aðild að verknaðinum.
Tilraun til innbrots og þjófnaðar í gagnaver að Heiðartröð 557, Ásbrú, sbr. IV. ákærulið.
Aðfaranótt 26. desember 2017 var tilraun gerð til innbrots í gagnaver BDC Mining ehf. að Heiðartröð 557 á Ásbrú. Á suðausturhlið hússins var búið að skera gat á segldúk sem þar hafði verið komið fyrir yfir gluggastæði og voru ummerki á gluggapósti um að reynt hefði verið að spenna upp laust gluggafag. Á gluggapóstinum lá skrúfjárn. Fyrir innan gluggann er gangur eftir endilöngu húsinu, en hurð er gegnt glugganum, og er gagnaverið þar fyrir innan. Þjófavarnarkerfi hússins mun hafa farið í gang þegar hurðin var opnuð.
Utan á húsinu að Heiðartröð 557 eru tvær eftirlitsmyndavélar. Kl. 04:07 sést hvar jepplingi er ekið suður Heiðartröð og stoppar við gatnamót Heiðartraðar/Klettatraðar/Hellutraðar. Út úr bifreiðinni stíga tveir menn og virðist annar þeirra koma úr farþegasæti við hlið ökumanns, en hinn vinstra megin úr farþegasæti, aftan við ökumann. Ganga þeir að suðurhlið hússins, brasa þar eitthvað í þrjár mínútur, en ganga síðan aftur að bifreiðinni. Bifreiðinni er síðan ekið á brott. Kl. 04:52 er gráum Nissan-pallbíl, með hestakerru í eftirdragi, ekið inn á Klettatröð og lagt við húsvegginn þar sem mennirnir tveir höfðu skömmu áður verið. Tveir menn stíga út úr bifreiðinni og fer annar þeirra inn í húsið á meðan hinn bíður fyrir utan og opnar afturhlerann á hestakerrunni. Skyndilega virðist fát koma á þann sem bíður fyrir utan og sést sá sem fór inn í húsið koma á mikilli ferð út um gluggaopið og stökkva inn í bifreiðina. Afturhleranum á hestakerrunni er lokað og ekið í burtu með kerruna í eftirdragi. Sams konar hestakerra fannst yfirgefin og tóm á Ásbrú 27. desember 2017, við gatnamót Klettatraðar/Ferjutraðar, og kom í ljós að henni hafði verið stolið af kerrustæði Fáks við Víðidal í Reykjavík eftir 17. desember 2017.
Athugun lögreglu á ljósmyndum af áðurnefndum Nissan-pallbíl leiddi til þess að tekin var skýrsla af Smára Fannari Kristjánssyni, bróður ákærða Sindra, og kvaðst hann hafa lánað Sindra slíkan bíl einhvern tíma í desember til búslóðaflutninga, en Sindri hefði sagt honum að hann vantaði bíl með dráttarkrók. Eiginkona Smára staðfesti að Smári hefði lánað Sindra bílinn að kvöldi 25. desember 2017 og skilað honum daginn eftir, 26. desember.
Samkvæmt yfirliti um símanotkun Sindra má sjá að sími hans tengdist ítrekað endurvarpa fjarskiptakerfis á Breiðbraut á Ásbrú á tímabilinu frá kl. 04:01 til 04:33 aðfaranótt 26. desember 2017. Þá liggja einnig fyrir úttektarfærslur af bankareikningi hans kl. 01:21 á Ferstiklu og á N1við Háaleiti í Reykjavík kl. 02:07 sömu nótt. Staðfest er með ljósmynd úr eftirlitsmyndavél í Hvalfjarðargöngum, sem tekin er kl. 07:02 að morgni 26. desember, að Sindri ekur Nissan-pallbíl og er þá á norðurleið. Úttektir vegna viðskipta hans í Borgarnesi, á Blönduósi og á Akureyri staðfesta jafnframt ferðalag hans til Akureyrar þann sama dag.
Allir ákærðu neita aðild að þessu broti.
Innbrot og þjófnaður í gagnaver Advania að Sjónarhóli 16, Ásbrú, sbr. ákæruliði V -
VIII.
Aðfaranótt 16. janúar 2018, á milli kl. 03:00 og 05:00, var brotist inn í gagnaver Advania við Sjónarhól 16 á Ásbrú og þaðan stolið miklu magni af tölvubúnaði og fylgihlutum. Þegar myndeftirlitskerfi hússins var skoðað mátti sjá tvo aðila koma akandi inn á afgirt svæði í hvítri flutningabifreið, merktri Bílaleigu Akureyrar og Europcar, og óku þeir meðfram grunni nýbyggingar sem þar er. Virtust þeir vita hvar eftirlitsmyndavélarnar voru og sást því aldrei í andlit þeirra né skráningarnúmer bifreiðarinnar. Annar þeirra hleypur að inngangi hússins, fer þar inn og slær inn öryggiskóða til að aftengja öryggiskerfi hússins, en öryggiskóðinn var notaður af starfsmönnum Öryggismiðstöðvarinnar til þess að aftengja öryggiskerfið í reglulegum vaktferðum þeirra. Að þessu loknu hlupu innbrotsaðilar að suðurhlið hússins. Var þar farið inn í bygginguna um loftrist sem hafði verið losuð.
Haft var samband við Bílaleigu Akureyrar og taldi framkvæmdastjóri fyrirtækisins mjög líklegt að áðurnefnd sendibifreið væri í eigu fyrirtækisins. Væri hún af gerðinni Ford Transit, en tvær slíkar hefðu verið í útleigu á þessum tíma, önnur í langtímaleigu hjá IGS, en hin í leigu hjá Matthíasi Jóni Karlssyni. Sú bifreið hefði verið leigð út 14. janúar, rétt fyrir kl. 17:00 og átti að skila henni næsta dag kl. 17:00. Henni hefði þó ekki verið skilað fyrr en á milli kl. 07:00 og 08:00 þann 16. janúar og hafði þá verið ekið 113 km. Ákærði Sindri Þór pantaði bifreiðina í útibúi bílaleigunnar á Akureyri og greiddi fyrir leigu hennar með greiðslukorti sínu, en ákærði Matthías mun hafa sótt hana í Reykjavík. Fram kemur í greinargerð lögreglunnar að eftir þessar upplýsingar, svo og í ljósi þess að sams konar tölvubúnaði var stolið í Borgarnesi nokkru áður, hafi lögreglu grunað að ákærðu Sindri Þór og Matthías Jón ættu einnig aðild að þessu innbroti.
Þar sem upptökur úr eftirlitsmyndavélum á húsi gagnavers Advania báru með sér að innbrotsaðilarnir væru kunnugir staðháttum og hefðu upplýsingar um öryggismyndavélar, öryggiskerfi hússins, aðgangskóða að öryggiskerfinu og skipulag vaktferða öryggisvarða, auk þess sem einn innbrotsaðilanna var íklæddur flík merktri Öryggismiðstöðinni, vaknaði grunur um aðild fyrrverandi eða starfandi öryggisvarðar hjá Öryggismiðstöðinni að innbrotinu. Þá hafði sömu nótt verið stungið á hjólbarða bifreiðar vakthafandi öryggisvarðar við heimili hans í Reykjanesbæ, en bifreiðin var ómerkt bílaleigubifreið. Lögreglan aflaði því upplýsinga um öryggisverði fyrirtækisins, eftirlitsferðir þeirra og skipulag vaktferða. Í ljós kom að vakthafandi öryggisvörður umrædda nótt var Björn Davíð Kjartansson og hafði hann farið síðustu eftirlitsferð um húsið kl. 22:19 að kvöldi 15. janúar 2018, en verkferlar gerðu ráð fyrir að öryggisvörður færi um bygginguna á þriggja tíma fresti, í fimm skipti á sólarhring. Gaf hann þá skýringu að hann hefði veikst skyndilega eftir síðustu eftirlitsferð, farið heim og lagst fyrir og sofnað og sofið fram á morgun. Um morguninn hefði hann uppgötvað að búið var að stinga göt á öll dekk vaktbifreiðarinnar. Við rannsókn lögreglu kom einnig í ljós að Öryggismiðstöðin hafði á árinu 2014 hætt að nota flíkur með þeim merkingum sem sáust á flík eins þeirra sem braust inn og sást í eftirlitsmyndavél. Jafnframt var upplýst að aðgangskóði hússins hafði verið sá sami frá 1. janúar 2014 og höfðu 20 öryggisverðir fengið upplýsingar um öryggiskóðann frá þeim tíma. […].
Með úrskurðum Héraðsdóms Reykjaness 18. og 27. janúar 2018 var lögreglunni veitt heimild til að hlusta og afla upplýsinga um símtöl í og úr símum ákærðu Sindra Þórs, Matthíasar Jóns, Péturs Stanislav og X, auk Björns Davíðs Kjartanssonar. Í ljós komu margvísleg símasamskipti milli ákærðu Sindra, Matthíasar og Péturs, en einnig nokkur samskipti milli ákærðu X og Péturs á tímabilinu frá 6. til 9. janúar 2018. Að fengnum þeim upplýsingum vaknaði grunur um að ákærði X hefði veitt innbrotsaðilum upplýsingar um öryggismyndavélar, öryggiskerfi og innra skipulag gagnavers Advania. Var hann handtekinn 31. janúar 2018 og úrskurðaður í gæsluvarðhald í kjölfarið.
Við yfirheyrslu hjá lögreglunni greindi X frá því að hringt hefði verið í síma hans úr óskráðu símanúmeri að kvöldi 27. eða 28. desember 2017 og hafi óþekktur aðili spurt hann hvort hann héti X og starfaði hjá […]. Hafi viðmælandi hans spurt hvort hann gæti veitt upplýsingar um gagnaver á Suðurnesjum, en hann kvaðst hafa neitað því. Ekki sagðist X hafa velt símtalinu fyrir sér fyrr en að kvöldi 6. janúar 2018, en þá hafi tveir aðilar tekið á móti honum þar sem hann var að leggja bifreið sinni utan við heimili sitt. Hafi þeir lagt hart að honum að koma með þeim inn í bifreið sem þar var, Mözdujeppling, dökkrauðan eða dökkbrúnan. Þegar þangað kom var þar þriðji aðili og hélt sá á farsíma, en á skjá farsímans hafi staðið „XYZ“. Hafi viðmælandinn í símanum verið kallaður Haffi og kvaðst X hafa talið að hann væri skipuleggjandinn, enda hefði hann sagt hinum fyrir verkum. Jafnframt sagðist X hafa þekkt rödd viðmælandans sem þá sömu og átti við hann samtal í lok desember 2017. X sagði að aðilarnir í bifreiðinni hafi gengið hart að honum, með hótunum um ofbeldi, ef hann gæfi þeim ekki upplýsingar um skipulag og öryggiskerfi gagnaversins. Hafi hann verið skelfingu lostinn og því sagt þeim að byggingarnar væru með öryggiskerfi, öryggismyndavélum og hreyfiskynjurum, auk þess sem farnar væru reglulegar vaktferðir um þær. Þá viðurkenndi hann að hafa sagt þeim að hurðir á byggingunum væru lélegar. Hins vegar neitaði hann því að hafa látið þá hafa öryggiskóða að öryggiskerfinu og að hafa afhent þeim flík sem merkt var […]. Einnig neitaði hann því að hafa veitt þeim upplýsingar um […].
X greindi lögreglu einnig frá því að þessir aðilar hefðu aftur hitt hann að máli að kvöldlagi 8. og 10. janúar 2018, en þá gert boð á undan sér með því að hringja í hann úr símanúmerinu 6660691. Í fyrra skiptið hafi þeir verið hinir sömu og 6. janúar, en í síðara skiptið hafi aðeins tveir þeirra verið í bifreiðinni. Sagðist hann ekki þekkja umrædda aðila, en lýsti ökumanninum sem hávöxnum með mikið hár, og hafi sá verið klæddur í úlpu með hermannamunstri. Annar hafi verið þrekinn og vöðvastæltur með snöggklippt hár og talað íslensku með pólskum hreim. Ekki gat hann lýst þriðja aðilanum, en sá hefði setið í farþegasætinu að framan, en hann sjálfur í aftursætinu aftan við hann. X sagði enn fremur að þessir menn hefðu viljað að hann reyndi að fá skiptivakt. Þá kvaðst hann hafa heyrt þá tala um það sín á milli að setja GPS-tæki (tracker) á vaktbifreið Öryggismiðstöðvarinnar. Í myndsakbendinu 7. febrúar 2018 endurþekkti X Sindra Þór sem ökumann Mözdu-jepplingsins.
Við rannsókn lögreglu á síma ákærða X kom fram að hringt var í hann úr símanúmerinu 6660691 þann 6. og 8. janúar 2018, án þess að hann svaraði, en þetta er símanúmer ákærða Péturs Stanislav. X hringdi til baka skömmu eftir síðari hringinguna og sagði að þá hafi honum verið sagt að þeir kæmu aftur seinna um kvöldið til að fá betri upplýsingar. Hringt var í hann úr sama símanúmeri 9. janúar og hafi honum þá verið sagt að þeir kæmu aftur næsta kvöld og færu yfir þetta aftur. Fram kemur í greinargerð lögreglunnar að X hafi síðar upplýst um að hann hafi látið þessa menn hafa allar upplýsingar, eins og t.d. hvar myndavélar væru, um þjófavarnarkerfið og hvernig eftirlitinu væri háttað.
Við yfirheyrslu lögreglunnar kvaðst ákærði X þekkja mann að nafni Kjartan Sveinarsson. Hefði Kjartan hringt tvisvar í hann 6. janúar 2018 og spurt hvort X gæti hitt hann, en hann neitað því. Lögreglan yfirheyrði Kjartan í lok júní síðastliðinn og greindi hann frá því að í desember 2017 hefði hann fengið símhringingar úr símanúmeri sem hann kannaðist ekki við og lét því hjá líða að svara. Síðar hefði hann fengið skilaboð frá aðila sem hann skuldaði peninga vegna fíkniefnaviðskipta, og hafi þau hljóðað um að hann skyldi svara þeim aðila sem væri að hringja í hann. Sagðist hann hafa komist að því að Matthías Jón Karlsson ætti símanúmerið sem hann hefði ekki svarað. Ekki kvaðst hann þekkja Matthías, en taldi að hann væri Lithái sem talaði íslensku með hreim. Hafi Matthías beðið sig um að koma honum í samband við einhvern öryggisvörð, án þess að hann fengi upplýsingar um hvers vegna. Kvaðst Kjartan ekki hafa sinnt þessu þar sem hann þekkti engan slíkan. Í byrjun janúar síðastliðinn hefði þessi sami aðili farið að ganga harðar að honum og því kvaðst hann hafa sett sig í samband við ákærða X, sem hann vissi að starfaði sem […]. Hefði hann því hringt í X 6. janúar og spurt hvort hann mætti koma honum í samband við aðila sem vildi komast í samband við öryggisvörð, og að hann gæti hagnast á því. Hefði X tekið því vel og hafi þeir mælt sér mót á bifreiðaplani við Sambíóin á Álfabakka. Þar kvaðst Kjartan hafa rétt X síma sinn út um glugga bifreiðar sinnar og hafi ákærði Matthías verið í símanum. Ekki kvaðst Kjartan hafa heyrt hvað þeim X fór á milli í samtali þeirra. […] hefur staðfest að ákærði X hafi verið […] umræddan dag. Kjartan viðurkenndi að hafa skuldað ákærða Hafþóri Loga peninga vegna fíkniefna, en neitaði að svara því hvort Hafþór Logi hafi verið sá sem fyrirskipaði honum að svara símhringingum frá Matthíasi.
Sindri Þór, Matthías Jón og Pétur Stanislav voru handteknir 31. janúar 2018 og úrskurðaðir í gæsluvarðhald daginn eftir.
Við húsleit lögreglu á heimili tengdaforeldra ákærða Sindra Þórs fundust gallabuxur í hans eigu. Í buxnavasa fannst bílaleigusamningur við Thrifty bílaleigu á Akureyri, þar sem Sindri var skráður leigutaki og greiðandi að Mazda CX5 jepplingi. Var bifreiðin afhent leigutaka á Akureyri 8. janúar 2018 kl. 16:46 og skilað á sama stað 11. janúar kl. 08:28. Hafði bifreiðinni þá verið ekið 1.575 km. Í sömu gallabuxum fannst einnig lítill miði með handskrifaðri teikningu sem reyndist vera innanhússafstöðuteikning af gagnaveri Advania að Sjónarhóli 16 í Reykjanesbæ. Ákærði X neitaði því að hafa gert þá teikningu eða afhent hana innbrotsaðilum. Hann neitaði því einnig að hafa fengið greitt fyrir þær upplýsingar sem hann lét þeim í té.
Við húsleit á dvalarstað ákærða Matthíasar fundust tveir jakkar í hermannalit. Í öðrum þeirra fannst bílalaleigusamningur frá Bílaleigu Akureyrar um leigu Matthíasar á sendibifreiðinni ZD-B91 14. janúar 2018, með skiladagsetningu 15. janúar. Eins og áður hefur komið fram greiddi ákærði Sindri fyrir leiguafnotin og var bifreiðinni skilað í útibú bílaleigunnar í Reykjavík að morgni 16. janúar. Samkvæmt myndbandsupptöku úr öryggismyndavél við Vatnagarða í Reykjavík sést sendibifreiðinni ekið inn á bifreiðastæði við Vatnagarða kl. 04:53 aðfaranótt 16. janúar í fylgd tveggja fólksbifreiða, annars vegar grárri Skoda station bifreið, og hins vegar ljósri fólksbifreið. Skoda-bifreiðin mun vera sams konar bifreið og ákærði Matthías á. Við leit í þeirri bifreið fann lögreglan rafstuðbyssu í eigu Matthíasar og kvaðst hann hafa keypt hana á netinu fyrir einu til tveimur árum, en taldi hana nú ónýta.
Við handtöku lagði lögreglan hald á síma þeirra Sindra, Matthíasar og Péturs. Við skoðun á símagögnum úr símum Sindra fundust fjölmörg samskipti við ákærða Hafþór Loga, „Matta Pólska“, og „Viktor Sæta“ 14. og 15. janúar 2018, og telur lögreglan þau samskipti sýna að þeir hafi verið að undirbúa áðurnefnt innbrot í gagnaver Advania. Jafnframt telur lögreglan að sími ákærða Péturs Stanislav hafi verið á innbrotsvettvangi aðfaranótt 16. janúar. Bæði ákærði Hafþór Logi og Viktor Ingi voru á þessum tíma hins vegar staddir á Spáni.
Fram er komið að ákærðu Sindri Þór og Matthías Jón hafa viðurkennt aðild að umræddu innbroti og þjófnaði, en báðir neituðu undirbúningi þess og skipulagningu. Aðrir ákærðu, Pétur Stanislav, X, Hafþór Logi, Viktor Ingi og Kjartan, neita hins vegar allri aðild að brotinu, sem og hlutdeild í því.
Framburður fyrir dómi Ákærði Matthías Jón Karlsson kvaðst vera vinur og í miklum samskiptum við meðákærðu, Sindra, Hafþór, Viktor og Pétur, sem væri bróðir hans. Hins vegar þekkti hann ekki ákærða X, en sagðist þó hafa talað við hann. Ekki sagðist hann heldur þekkja ákærða Kjartan Sveinarsson og myndi ekki eftir neinum samskiptum við hann. Spurður um samskipti við Sindra, Hafþór, Viktor og Pétur í nóvember og desember 2017 sagðist ákærði ekki muna sérstaklega eftir þeim, en taldi að samskipti þeirra á tímabilinu sem brotin voru framin hafi bara verið svipuð og venjulega.
Ákærði sagðist einu sinni hafa leigt bílaleigubíl, í janúar 2018, en sagðist aldrei hafa notað eða keypt „tracker“, né átt bitcoin-veski. Þó sagðist hann hafa tengst „tracker“ og hafi það verið í tengslum við innbrot í húsnæði Advania aðfaranótt 16. janúar 2018, sem hann hefði þegar játað. Þá sagðist hann hafa farið til Reykjanesbæjar tvo daga fyrir innbrotið, þ.e. 14.-16. janúar, en neitaði að tjá sig um hverjir voru þá með honum.
Ákærði mundi eftir því að hafa ekið til Akureyrar 6. desember 2017 og til baka til Reykjavíkur 7. desember og hafi bróðir hans, Pétur, farið með honum. Sagði hann þá ferð vera ótengda þessu máli, en tók fram að ferðin hafi þó verið á „gráu svæði“, án þess að skýra það frekar. Ekki vildi hann tjá sig um hvort hann hafi hitt aðra ákærðu í þeirri ferð.
Ákærði viðurkenndi að hafa keypt bláa Transporter-sendibifreið 14. desember 2017 og skráð hana á sitt nafn fyrir meðákærða Sindra. Hafi bíllinn kostað 80.000 krónur sem hann hafi millifært inn á reikning seljanda. Ekki vildi hann tjá sig um hver hefði millifært peningana á hans reikning. Sagði hann að meðákærði Viktor hefði komið með sér að skoða bílinn því að hann væri kunnáttumaður um bíla. Síðan sagðist hann hafa sótt Pétur, bróður sinn, og hafi þeir farið með bílinn upp í Grafarholt og skilið hann þar eftir við Dalsskóla, með lyklana undir sætinu. Hafi hann verið beðinn um það, en neitaði að tjá sig þegar hann var spurður hver hefði beðið hann um það. Ákærði viðurkenndi einnig að hafa ekið upp á Kjalarnes aðfaranótt 15. desember og kvaðst hafa sótt vin sinn þangað, en neitaði að tjá sig um hver sá væri eða tilefni þess. Hafi það aðeins verið vinargreiði. Hann neitaði því að sá vinur hefði verið á bláu Transporter-sendibifreiðinni. Aðspurður hvort hann hafi farið þangað aftur daginn eftir sagðist ákærði ekki muna það. Þegar honum var tjáð að samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi hann verið á Kjalarnesi í hádeginu 15. desember sagðist hann ekki muna eftir því. Ákærði var einnig að því spurður hvort hann slökkti oft á símanum sínum og sagðist hann ekki muna það, þó kæmi það fyrir því að mikið væri hringt í hann. Helst væru það þá vinir sem hringdu til að spjalla. Kvaðst hann hafa notað sinn eigin síma 14. desember 2017. Þá sagðist ákærði aðeins nota eitt símanúmer, en sagðist ekki vita eða muna hvort hann hefði notað önnur númer.
Ákærði neitaði því að hafa verið við Heiðartröð í Reykjanesbæ aðfaranótt 26. desember 2017 og sagðist ekki muna eftir símtali við meðákærða Sindra þá nótt. Sagðist hann hafa verið heima hjá sér á jóladag og jóladagskvöld.
Ákærði var þessu næst spurður um þátttöku hans í innbroti í gagnaver Advania aðfaranótt 16. janúar 2018. Sagðist hann hafa verið í vondum málum fjárhagslega og félagslega eftir handtöku og gæsluvarðhald í kjölfar „Borgarnesmálsins“ og því hafi honum verið boðið að taka þátt í innbrotinu. Hafi hann átt að fá tvær milljónir fyrir það. Ekki kvaðst hann vita hver hafi skipulagt innbrotið og neitaði að tjá sig um hver hefði boðið honum þátttöku í því og gefið honum fyrirmæli um hlutverk sitt. Engu að síður sagði hann að ákærði X hefði stjórnað öllu, hann hafi ýtt á þá um „að fara í þetta“, verið „insider“, látið þá hafa kóðann að öryggiskerfinu og jakka merktan […]. Sagðist ákærði hafa hitt X einu sinni eða tvisvar, eða kannski oftar, líklega 8. og 10. janúar 2018, og þá í tengslum við skipulagningu innbrotsins. Hafi þeir hist í bíl og hafi X verið að upplýsa þá um aðstæður í og við gagnaverið. Ekki vildi ákærði segja frá því hverjir aðrir hafi þá verið í bílnum. Sérstaklega spurður hvort meðákærðu Pétur og Sindri hafi verið með honum í bílnum umrætt sinn sagðist hann ekki vilja tjá sig um það, en neitaði því síðar að Pétur hafi verið þar. Ekki sagðist hann heldur vita til þess að þeir hafi verið í samskiptum við X. Hins vegar neitaði hann því að hafa hótað X ofbeldi.
Ákærði sagði að hlutverk sitt í innbrotinu hafi verið að skoða aðstæður og fylgjast með umferð í nágrenni við gagnaverið dagana 14. og 15. janúar og hafi X sagt honum að gera það. Spurður hvort bróðir hans, Pétur, hafi verið með honum við gagnaverið aðfaranótt 14. janúar, neitaði ákærði að tjá sig. Ákærði sagðist einnig hafa leigt sendibifreiðina og komið henni á staðinn. Kvaðst hann hafa farið á undan hinum tveimur og brotið lás á hliðinu og opnað það. Síðan hafi hann lauslega losað loftrist á húsinu svo að hann kæmist þar seinna inn. Að því búnu sagðist hann hafa farið út í bíl og náð í kúbein og klætt sig í jakkann frá […], sem hann hafði fengið frá X, farið að hurðinni við aðalinnganginn, stimplað inn öryggiskóðann til vinstri við hurðina, farið út aftur og lokað hurðinni á eftir sér og gefið þeim sem var á bílnum merki um að hann mætti koma. Síðan hafi hann farið inn um loftristina, aftengt tölvurnar og borið þær út. Á meðan hafi hinir tveir staðið fyrir utan og hlaðið tölvunum í bílinn. Aðspurður hvernig hann hafi opnað hurðina sagði ákærði að það hafi reynst auðvelt, hann hafi rétt notað kúbeinið til þess, en þó án þess að hann hafi þurft að brjóta hana. Hann hafi auðveldlega getað lokað henni á eftir. Eftir þetta hafi einhver tekið við bílnum og ekið honum á einhvern stað í Keflavík þar sem hann var skilinn eftir. Þegar ákærði var spurður hvort hann hafi sjálfur ekið bifreiðinni sagðist hann halda það. Þá sagði hann einnig síðar aðspurður að verið gæti að hann hafi ekið bifreiðinni til Reykjavíkur, en mundi ekki hvert. Annar aðili hefði hins vegar tekið við henni þegar þangað var komið, en ekki vildi ákærði segja hver. Hann sagðist jafnframt ekkert vita hvað orðið hefði um tölvurnar og hafi hann ekki séð þær síðan. Ekki kvaðst ákærði muna hvenær X afhenti honum jakkann frá […], en sagði að það hafi verið í eina skiptið sem hann fór heim til X. Kvaðst hann halda að kærasta X hafi þá verið heima, en hann hafi staðið í forstofunni. Ekki vildi hann greina frá því hverjir aðrir hefðu tekið þátt í innbrotinu og þjófnaðinum með honum, en sagði að þeir hafi verið þrír, að honum sjálfum meðtöldum. Hann neitaði því að Pétur, bróðir hans, hafi þar átt hlut að máli. Jafnframt neitaði hann því að ákærði Hafþór Logi hafi átt aðild að innbrotinu, hvorki með skipulagningu, fortölum, hvatningu eða á annan hátt. Þá sagðist hann ekki vita hver væri skráður undir bókstöfunum „XYZ“.
Ákærði Matthías sagðist ekkert þekkja ákærða Kjartan Sveinarsson, en hann kannaðist við að hafa heyrt nafn hans í tengslum við þetta mál. Sagðist hann heldur ekki muna eftir því að hafa átt samskipti við hann. Sérstaklega aðspurður hvort Kjartan hefði komið honum í samband við X sagðist ákærði ekki muna það, en einhvern veginn hefði hann þó komist í samband við hann. Hann neitaði því hins vegar að hafa þrýst á Kjartan um að koma sér í samband við X. Þá sagðist hann ekki muna hvort hann hafi á þessum tíma verið í miklum samskiptum við Hafþór, Sindra, Pétur og Viktor. Hann viðurkenndi að hafa notað annan síma en sinn eigin við innbrotið aðfaranótt 16. janúar og í aðdraganda þess, en sagðist ekki muna númer hans. Þá mundi hann eftir því að hafa sent Sindra skilaboð um að „burner“ væri kominn í gang. Hins vegar sagði ákærði að „tracker“ hafi ekki verið notaður við innbrotið, hann hafi að vísu beðið um að hann yrði tengdur, en einhverra hluta vegna hafi það ekki gengið eftir. Ekki vildi hann segja hver hefði útvegað „trackerinn“. Hann neitaði því að hafa sett slíkan búnað undir bíl öryggisvarðarins, en sagði að X hefði upplýst um hvaða bíll væri vaktbíll í umrætt sinn. Hann sagðist þó hvorki muna hvernig vaktbíllinn var, né hvort hann hafi verið merktur eða ómerktur. Þá neitaði hann því að hafa stungið á dekk vaktbílsins og sagðist ekki vita hver hefði gert það.
Ákærði sagðist nokkuð lengi hafa verið reiður út í Sindra eftir að hafa verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir svokallað „Borgarnesmál“, enda hafi hann misst vinnuna í kjölfar þess og verið tekjulaus. Sindri hafi þá rætt við hann um að hjálpa honum „upp úr skítnum“ og bent á þann möguleika að ákærði tæki þátt í „Advaniamálinu“. Sindri hafi þó sagt að hann þyrfti að fá leyfi til þess frá öðrum áður en gengið yrði frá því. Nokkru síðar hafi honum verið boðin þátttaka í því innbroti. Spurður hvort X hafi átt frumkvæði að samskiptum við hann um þátttöku hans í því innbroti neitaði ákærði því.
Ekki kannaðist ákærði við að hafa verið með Sindra á Ásbrú í Reykjanesbæ dagana fyrir fyrsta innbrotið samkvæmt ákæru, sem framið var 6. desember 2017, en tók fram að vel gæti þó verið að hann hafi þá verið í Reykjanesbæ, enda byggi þar góður vinur hans. Þá neitaði hann því að hafa tekið þátt í því innbroti, svo og að hafa á sama tíma eða síðar reynt að brjótast inn í gagnaver BDC Mining ehf. að Heiðartröð 557. Einnig neitaði hann því að hafa átt aðild að innbroti í gagnaver AVK ehf. í Borgarnesi aðfaranótt 15. desember sama ár.
Ákærði Matthías var að því spurður hvers vegna hann hafi fyrir dómi aðeins sagt frá aðild ákærða X í máli þessu, en neiti að tjá sig um þátt annarra ákærðu, og sagði ákærði að það væri vegna þess að X hafi ranglega haldið því fram að hann hafi hótað honum, konu hans og börnum ofbeldi.
Ákærði var loks spurður um rafbyssu sem fannst við leit lögreglu í bíl hans 1. febrúar 2018, sbr. ákærulið X. Sagðist hann hafa átt hana lengi, en aldrei notað hana sem slíka þar sem hún gæfi ekki rafstuð. Hins vegar sagðist hann hafa notað hana sem vasaljós. Kvaðst hann heimila upptöku á rafbyssunni.
Ákærði Pétur Stanislav Karlsson sagðist vera vinur meðákærðu, Hafþórs, Sindra og Viktors, en Matthías væri bróðir hans. Sagðist hann ekki þekkja aðra ákærðu, X og Kjartan, og minntist þess ekki að hafa talað við þá. Aðspurður kvaðst hann ekki minnast þess að hafa komið á Reykjanes í desember 2017 og janúar 2018. Sagðist hann líklega hafa verið heima hjá sér eða að vinna á tímabilinu frá 4. til 7. desember 2017, en tók fram að hann myndi það þó ekki. Hann viðurkenndi þó að hafa farið með Matthíasi, bróður sínum, til Akureyrar 6. desember 2017, en sagðist ekki vilja tjá sig frekar um þá ferð, hún hafi verið „á gráu svæði“. Sagði hann að vel gæti verið að hann hafi slökkt á síma sínum í þeirri ferð og skýrði það með því að hann væri haldinn kvíða og þunglyndi. Hann neitaði aðild að innbroti í gagnaver Algrim Consulting slf. og BDC Mining ehf. á tímabilinu frá 5. til 6. desember 2017, sbr. I. ákærulið, svo og tilraun til innbrots í gagnaver BDC Mining ehf. á tímabilinu frá 5. til 10. desember sama ár, sbr. II. ákærulið, og endurtók að hann minntist þess ekki að hafa verið á Reykjanesi þessa daga. Ekki sagðist hann heldur geta sagt að hann hafi verið í samskiptum við aðra ákærðu vegna þeirra innbrota.
Ákærði Pétur neitaði því aðspurður að hafa hringt í X Gylfason. Þegar borið var undir hann að fyrir lægi í gögnum málsins að hringt hefði verið nokkrum sinnum úr síma hans í X sagðist hann ekkert vita um það. Ekki kvaðst hann vita til þess að einhver annar hafi notað síma hans, en þó gæti það verið, án þess að hann vissi hver það væri. Þá neitaði hann því að hafa verið á Ásbrú að kvöldi 9. janúar og aðfaranótt 10. janúar sl. og að hafa þá hitt ákærða X, en sagðist líklega hafa verið heima hjá sér, en tók engu að síður fram að hann myndi það ekki. Svaraði hann á sömu lund þegar hann var að því spurður hvar hann hefði verið að kvöldi 6. og 8. janúar sl. Ákærði kvaðst ekki vilja tjá sig þegar honum var kynnt að í lögregluskýrslu væri haft eftir ákærða X að þrír aðilar hafi hitt hann tvisvar eða þrisvar í Keflavík og hafi einn þeirra verið sá sem hringdi í hann úr símanúmerinu 666-0691, sem væri hans símanúmer. Sagðist ákærði ekki nota annað símanúmer en það. Þá kvaðst ákærði ekki vita hver væri skráður undir bókstöfunum „XYZ“.
Á sama hátt og áður sagðist ákærði líklega hafa verið heima hjá sér aðfaranótt 14. janúar 2018. Þegar honum voru kynnt skilaboð frá ákærða Sindra til ákærða Hafþórs aðfaranótt 14. janúar 2018 þar sem Sindri segir: „Þeir eru ennþa að biða og það er að verða komið 40m.. matti veit ekki hvort kerfið hafi farið í gang utaf þeim en pétur heldur það.. labbandi hinum megin við girðinguna meðfram húsunum.. sagði þeim að fara að framqan næst og hlusta vel hvenær það fer i gang ef það fer, því það er lika leiðin sem verður notuð. Þeir ætla labbandi svo þeir geta stokkið í felur auðveldlega ef bill kemur“ kvaðst ákærði ekkert kannast við þau og neitaði að hafa verið á þessum stað. Jafnframt sagði hann að hvorki Sindri né Matthías hafi verið þar og tók fram að hann kysi að tjá sig ekki frekar um þetta. Þá neitaði hann því að hafa brotist inn í gagnaver Advania aðfaranótt 16. janúar sl. Ákærði var loks spurður hvar hann hefði verið að kvöldi 14. desember 2017 og svaraði hann enn á sama hátt og áður, að líklega hafi hann verið heima hjá sér. Þegar honum var tjáð að Matthías, bróðir hans, hefði borið um að hann hefði farið með honum að sækja bíl, sem Matthías keypti þann dag, neitaði hann að tjá sig.
Ákærði Hafþór Logi Hlynsson kvaðst þekkja alla meðákærðu nema X. Ákærða Kjartan sagðist hann þekkja lítillega en öðrum ákærðu lýsti hann sem góðum vinum sínum sem ættu samskipti allan sólarhringinn og lánuðu hver öðrum peninga ef svo bæri undir. Sagði hann að einhverjir í hópnum kölluðu hann „Haffa pink“. Ákærði kvaðst hafa flutt til Spánar í lok desember 2017, en frá nóvember sama ár hafi hann dvalið í Taílandi.
Spurður um samskipti hans og ákærða Kjartans sagði ákærði að Kjartan hafi skuldað honum peninga þar sem hann hefði lagt fram tryggingu fyrir húsi sem Kjartan ætlaði að kaupa á Spáni. Hafi hann gengið eftir því að Kjartan endurgreiddi honum peningana. Hann neitaði því að hafa beðið Kjartan um að útvega sér tengingu við öryggisvörð eða beðið einhvern annan um slíkt. Jafnframt neitaði hann því að hafa átt einhver samskipti við ákærða X og kvaðst ekki vita hvort aðrir ákærðu, Matthías eða Pétur, hafi átt við hann samskipti.
Ákærði sagðist hafa verið á Spáni 8. janúar 2018. Ekki mundi hann hvað hann hafi verið að gera að kvöldi 9. og 10. janúar, en taldi líklegt að hann hafi bara verið sofandi. Spurður um 50 mínútna samtal hans og ákærða Sindra að kvöldi 10. janúar sagðist ákærði ekki muna efni þess, en taldi að það hefði bara verið venjulegt spjall. Ekki sagðist hann vita hvort Sindri, Matthías eða Pétur hafi þá verið í Reykjanesbæ.
Ákærði Hafþór kannaðist ekki við að hann gengi undir viðurnefninu „XYZ“, en sagði að Sindri hefði sett það í sína eigin símaskrá við númer hans. Hann neitaði því að hafa heyrt samtal við ákærða X 8. eða 9. janúar 2018 og kvaðst aldrei hafa talað við hann. Vel gæti þó verið að hann hafi verið í einhverjum samskiptum við Sindra, en neitaði því að hafa á sama tíma verið í samskiptum við Matthías eða Pétur. Þá kvaðst hann ekki vita hvort Sindri hafi átt samskipti við X.
Ákærði sagðist minnast þess að hafa átt samskipti við Sindra 14. janúar sl. og hafi hann þá lánað honum fyrir bensíni. Verið gæti þó að hann hafi bent Sindra á að tala við ákærða Viktor um lánið, en hann kvaðst hafa vitað að Viktor ætti peninga á banka. Ekki mundi ákærði hvort hann hafi á sama tíma verið að tala við ákærða Matthías. Ekki mundi hann heldur eftir öðrum samskiptum við Matthías þann dag. Aðspurður kvaðst ákærði ekki muna eftir ljósmynd frá Sindra sem sýnir tækjasal gagnavers, en tók fram að hann hafi nú séð þessa ljósmynd. Á sínum tíma hafi hann hins vegar ekki opnað myndina og kvaðst ekki vita hvenær hún var send honum eða hvers vegna. Þegar borin voru undir ákærða gögn er sýna samskipti hans og Sindra vegna ljósmyndarinnar sagðist hann ekki muna um hvað þeir hafi verið að ræða.
Spurður um fjölmörg símasamskipti við Sindra 15. janúar 2018 sagði ákærði að þeir ættu mikil samskipti sín á milli alla daga. Hann var einnig spurður um símasamskipti milli hans og Sindra aðfaranótt 14. janúar sl., þar sem Sindri nefnir kerfið, hreyfiskynjara, „trackerinn“ og „sec-gæjann“, svo og að Matti og Pétur séu á staðnum, og sagði ákærði að hann hafi sjálfur ekki sent þessi skilaboð og hafi hann sýnt þeim lítinn áhuga. Undir ákærða voru þá borin gögn er sýna frekari samskipti milli hans og Sindra frá sama tíma, þar sem Sindri segir m.a. að kerfið hafi farið í gang, og sagðist ákærði ekki muna eftir þessu, en kvaðst þó muna eftir því að Sindri hafi verið í einhverju verkefni, „að stela einhverjum upplýsingum eða eitthvað“. Sagðist ákærði ekkert hafa spurt Sindra frekar út í það, en kvaðst þó hafa vitað að hann væri í peningavandræðum á þessum tíma.
Ákærði neitaði því að hafa skipulagt, hvatt til eða á annan hátt tekið þátt í innbrotinu og þjófnaðinum í gagnaver Advania.
Ákærði Sindri Þór Stefánsson sagðist hafa starfað sem sjálfstæður verktaki við forritun, en byggi nú á Spáni. Allir meðákærðu væru vinir hans, að X undanskildum. Þá sagðist hann kannast við ákærða Kjartan og vitnið Magnús Þór Jónsson.
Aðspurður sagðist ákærði hafa keypt tíu „trackera“ í júlí 2017. Þá kvaðst hann eiga bitcoin-veski og hafi hann keypt það sumarið 2017, en sagðist ekki muna hvar það væri. Hann taldi sig hafa þekkingu yfir meðallagi á bitcoin, enda tölvunarfræðingur.
Ákærði viðurkenndi að hafa verið á Reykjanesi í desember 2017 og janúar 2018, en kvaðst ekki geta gert grein fyrir því með hverjum hann hafi verið þar. Spurður um símnotkun á þeim tíma sagði hann að verið gæti að hann hafi notað mörg símtæki og símanúmer. Þá sagði hann að verið gæti að hann hafi tengst „tracker“ af gerðinni TK905 með símanúmerið 7886514 sem svo sendi upplýsingar í síma ákærða. Ákærði kvaðst ekki muna mikið eftir ferðum sínum og gat litlu svarað um hvar hann hefði verið á tilteknum dögum í desember á síðasta ári. Hann sagðist hafa búið á Akureyri á árinu 2017 og komið reglulega til Reykjavíkur á þeim tíma vegna viðskiptavina. Aðspurður hvort hann og ákærði Viktor hafi verið saman 2. til 7. desember 2017 sagðist hann ekki muna það. Ekki mundi hann heldur eftir því að hafa verið á Reykjanesi 2. til 3. desember og aðfaranótt 4. desember það ár, né heldur að hafa farið til Akureyrar þá nótt. Þá sagðist hann ekki muna eftir því að hafa leigt sendiferðabíl á Akureyri 4. desember 2017, þrátt fyrir fyrirliggjandi bílaleigusamning þess efnis.
Aðspurður sagðist ákærði ekki muna hvar hann var staddur aðfaranótt 5. desember 2017, né hvort ákærðu Matthías og Viktor hafi verið með honum á Ásbrúarsvæðinu að kvöldi 2. og 3. sama mánaðar. Ekki mundi hann heldur eftir því hvar hann var staddur að kvöldi 5. og aðfaranótt 6. desember, né að hafa þá komið að Selhellu í Hafnarfirði. Hann neitaði því að hafa brotist inn í gagnaverin að Heiðartröð 554 og 555 á Ásbrú á tímabilinu frá 5. til 6. desember, svo og að hafa reynt að brjótast inn að Heiðartröð 557.
Yfirleitt sagðist ákærði aka um Hvalfjarðargöng á ferðum sínum milli Reykjavíkur og Akureyrar, en fyrir komi þó að hann aki um Hvalfjörð. Ekki sagðist hann muna eftir að hafa verslað í Ferstiklu að morgni 6. desember 2017. Spurður um samskipti við ákærðu Matthías og Pétur á þessum tíma sagði ákærði þau hafa verið með venjubundnum hætti. Þá sagði hann ólíklegt að hann hafi hitt þá bræður þegar þeir óku til Akureyrar 6. desember.
Spurður um aðdraganda innbrots í gagnaver AVK ehf. í Borgarnesi aðfaranótt 15. desember 2017 sagðist ákærði hafa fengið upplýsingar hjá kunningja sínum, vitninu Magnúsi Þór, þess efnis að verið væri að setja þar upp gagnaver. Hafi ákærði farið með þær upplýsingar til annarrar manneskju, sem hann vildi ekki nafngreina, og hafi sú fengið hann „til að fara í þetta, græja þetta verkefni“. Í kjölfarið hafi hann beðið Matthías um að „græja bíl og losa hann á einhverjum stað“ sem ákærði kvaðst ekki muna hvar var. Ökumaður bílsins hafi sótt bílinn þangað og þeir hist einhvers staðar á Esjumelum, þaðan sem þeir óku í samfloti upp í Borgarnes. Sagðist ákærði ekki þekkja þann sem ók sendibílnum. Neitaði hann því að sá hafi verið ákærði Viktor, og sagði að það hafi ekki verið Íslendingur. Eftir innbrotið sagðist ákærði hafa ekið norður Reykholtsdal og þaðan norður til Akureyrar, en sendibílnum hafi verið ekið í átt til Reykjavíkur og hafi hann ekki séð þann bíl aftur. Sagði ákærði að aðeins tveir hafi staðið að innbrotinu, hann sjálfur og ökumaður sendibílsins. Nánar spurður hvernig hann hafi staðið að innbrotinu í gagnaverið sagðist ákærði hafa stolið stiga sem var við húsið, reist hann upp að glugga vinstra megin við innkeyrsludyrnar, brotið þar upp gluggann og hoppað niður á gólfið þegar inn var komið.
Ákærði viðurkenndi að hafa fengið pallbifreið bróður síns lánaða að kvöldi annars í jólum 2017 og sagðist hafa verið að flytja hluta af búslóð sinni í geymslu á Ásbrúarsvæðinu í Keflavík. Neitaði hann að greina frá því hvar sú geymsla væri. Einnig neitaði hann því að hafa hengt hestakerru í dráttarkrók á bifreiðinni. Þá kvaðst hann ekki minnast þess að ákærðu Matthías, Pétur eða Viktor hafi verið með honum í umrætt sinn. Þegar ákærða var kynnt að samkvæmt símagögnum hafi hann, ásamt ákærða Viktori, verið staddur á Ásbrúarsvæðinu milli kl. 03.30 og 05:30 aðfaranótt 26. desember 2017, sagðist ákærði viðurkenna að hann hafi sjálfur verið á svæðinu, en sagðist ekki vita hvort Viktor hafi líka verið þar. Ákærða var þá kynnt að fyrir lægju gögn úr eftirlitsmyndavélum þar sem sjá megi jeppling nema staðar á Heiðartröð og tvo menn stíga út úr bifreiðinni, og kvaðst hann hvorki kannast við að hafa verið þar á ferð, né að hafa ekið þar um með hestakerru í eftirdragi. Undir hann voru borin nokkur símanúmer og kvaðst hann ekki kannast við að hafa notað þau umrædda nótt.
Ákærði kvaðst lítil samskipti hafa átt við ákærða X. Þeir hafi þó hist einu sinni til þrisvar og hafi X látið hann hafa teikningu þegar þeir hittust rétt fyrir „Advaniamálið“. Sú teikning hafi síðan fundist í gallabuxum hans. Neitaði hann að segja til um hver hefði verið með honum í þau skipti. Jafnframt neitaði hann því að hafa hótað X. Taldi hann að maðurinn sem hafði fengið hann í „þetta verkefni“ hefði átt frumkvæði að því að X lét hann fá teikninguna. Líkt og áður vildi ákærði ekki gefa upp hver sá maður væri. Ákærði sagði einnig að X hefði veitt honum upplýsingar um öryggiskerfin í húsinu og aðferðir öryggisvarða, s.s. hvernig þeir gengju í kringum húsið o.s.frv. Sérstaklega spurður kvaðst ákærði ekki vera í neinum samskiptum við ákærða Kjartan Sveinarsson, en sagðist þó hafa hitt hann hjá Hafþóri á Spáni, í tengslum við flutning Kjartans þangað. Hann neitaði því að hafa þrýst á Kjartan um að útvega sér öryggisvörð.
Ákærði viðurkenndi að hafa keypt síma fyrir „verkefnið“ í gagnaver Advania 16. janúar 2018. Hins vegar kvaðst hann ekkert geta tjáð sig um dagana fyrir innbrotið, þ.e. frá 8. janúar og áfram, sökum þess að hann myndi ekki eftir þeim sérstaklega. Aðspurður um símtal við tengiliðinn „X sec“ í síma hans að kvöldi 9. janúar sagði hann það vera ákærða X og hefði X hringt í hann á þeim tíma. Í kjölfarið hefði hann sett X í símaskrá símtækisins. Þá kvaðst ákærði hafa verið í telegram-samskiptum við X. Hins vegar kvaðst hann ekki muna eftir telegram-samskiptum við X aðfaranótt 14. janúar, þar sem rætt var um hreyfiskynjara. Þó kvað ákærði það vel geta verið, hann neiti því ekki. Þá sagði ákærði einnig að vel gæti verið að hann hafi á sama tíma verið í telegram-samskiptum við Matthías um að setja burner-síma í gang. Ákærði viðurkenndi að þeir hafi ætlað að setja „tracker“ undir bíl öryggisvarðarins, sem X hafði sagt þeim að væri á vakt, en ekkert hefði orðið af þeim áformum. Hafi það verið ástæða þess að hann hafi þurft að koma suður. Aðspurður hvort Viktor hafi komið að þessum „tracker“ áformum sagðist ákærði ekki vita það, hann kannist ekki við samskipti við hann um það.
Spurður um samskipti sín við ákærða Hafþór, þar sem rætt er m.a. um „secgæjann“, hreyfiskynjara og Matta og Pétur, sagðist ákærði Sindri aðeins hafa verið að upplýsa Hafþór um sína hagi og verkefni sitt og að eitthvað gott væri að fara í gang fyrir hann. Aðspurður hvað það þýddi að eitthvað gott væri að fara í gang, svaraði ákærði því þannig að hann væri að fá pening fyrir verkefnið, 50.000 evrur. Þá sagði ákærði að „sec-gæjinn“ væri ákærði X, en neitaði að tjá sig um hverjir væru Matti og Pétur.
Ákærði viðurkenndi að hafa leigt stóra sendibílinn, ZD-B91, en Matthías hafi verið skráður sem aukabílstjóri. Þar sem hann hafi sjálfur ekki verið á staðnum hafi einhver beðið Matthías um að sækja bílinn. Sagði ákærði að sínu hlutverki hafi átt að vera lokið á þessum tíma, en það hafi breyst og honum sagt að koma suður því að allt væri í rugli. Vildi hann ekki tjá sig um hver hafi beðið hann um að fara suður. Þá kvaðst hann ekki muna eftir telegram-samskiptum við Viktor á leiðinni suður, þar sem rætt var um „tracker“.
Ákærði kvaðst lítið muna eftir dögunum 14. og 15. janúar 2018. Hins vegar myndi hann eftir innbrotinu sjálfu og aðdraganda þess. Hlutverk hans hafi verið að fylgjast með bíl Öryggismiðstöðvarinnar, en sá bíll hafi verið kyrrstæður allan tímann. Ekki sagðist hann muna eftir því að bíllinn hafi verið ómerktur bílaleigubíll, en taldi að hann hafi væntanlega vitað það vegna upplýsinga frá X. Neitaði hann því að hafa stungið á dekk bílsins. Aðspurður um hverjir aðrir voru á svæðinu sagði ákærði að hann hafi bara vitað af Matthíasi. Eftir innbrotið og þjófnaðinn sagðist ákærði hafa séð sendibílinn aka eftir Reykjanesbraut í átt til Reykjavíkur, en sjálfur kvaðst hann hafa ekið fram úr honum og síðan beint norður. Hann neitaði því að hafa ekið að Sundahöfn umrædda nótt. Þegar ákærða voru sýndar ljósmyndir úr eftirlitsmyndavél við Sundagarða sagði ákærði að vel gæti verið að hann hafi sótt Matthías þangað, en sagðist á hinn bóginn ekki hafa séð sendibílinn þar.
Aðspurður sagði ákærði að „XYZ“ væri ákærði Hafþór, en ekki kannaðist hann við að „XYZ“ eða Hafþór hafi verið í símanum þegar rætt var við ákærða X í aðdraganda innbrotsins í húsnæði Advania. Þá kvaðst hann ekki muna eftir 50 mínútna samtali við ákærða Hafþór á sama tíma og ákærði X sá „XYZ“ á síma hans. Þá kannaðist hann heldur ekki við óvenjumikil samskipti við ákærða Hafþór á þessum tíma. Ákærði var þessu næst spurður um ljósmynd, sem tekin var inni í gagnaverinu og send Hafþóri. Sagðist hann hafa fengið þessa ljósmynd senda frá X, en minntist þess ekki að hafa sent Hafþóri hana. Hafi hann gert það taldi hann það hafa verið fyrir mistök.
Ákærði viðurkenndi að hafa verið að leita að iðnaðarhúsnæði til leigu á Hofsósi í janúar 2018 og hafi í samskiptum við leigusala kynnt sig sem Bjarna Stefánsson. Sagðist hann hafa ætlað húsnæðið til kannabisræktunar, en neitaði því að hafa ætlað að nota það til að „grafa“ eftir bitcoin.
Ákærði sagðist hvorki hafa skipulagt innbrotið í gagnaverið í Borgarnesi né í Advania að Sjónarhóli 16 í Reykjanesbæ, en sagði að sér hefði verið sagt til verka. Kvaðst hann hafa komist í kynni við skipuleggjandann þegar hann var að leita að fjárfesti erlendis til að setja upp „bitcoin-gröft“. Í umræðum þeirra á milli hafi komið upp sú hugmynd að „ræna þetta lið“ og taka út samkeppnina, þar sem verðlaunin væru minni eftir því sem fleiri stunduðu slíkan „gröft“. Sjálfur kvaðst hann ekki hafa átt neinn pening til að setja í þetta, en vildi vera með. Nánar aðspurður hvernig hann hafi komist í samband við þennan einstakling sagðist ákærði hafa fengið sendan síma í pósti, svokallaðan „crypto-phone“, sem hann sagði vera síma með öðru kerfi, og því ekki hægt að hlera hann. Ákærði kvaðst vera hræddur við þennan einstakling og taldi afleiðingar þess að segja til hans mun verri en afleiðingar þess að verða dæmdur. Ítrekað aðspurður hvort hann væri að taka á sig sök fyrir annan eða aðra aðila neitaði ákærði því.
Ákærði Viktor Ingi Jónasson kvaðst vera vinur meðákærðu, Sindra, Hafþórs, Matthíasar og Péturs, en ekki sagðist hann þekkja ákærðu X og Kjartan. Aðspurður sagðist hann stundum hafa komið allt að tvisvar sinnum á dag til Reykjaness í desember 2017 vegna vinnu sinnar hjá Bernhard bílaleigu, en bílaeigan hafi bæði verið með útibú í Reykjavík og á Reykjanesi. Hafi hann hætt í vinnunni 27. eða 28. desember og þá flutt til Spánar.
Aðspurður sagði ákærði að verið gæti að hann hafi tengst „tracker“, en ekki kannaðist hann við símanúmerið 7886481, né að hafa sent sms-skeyti í það númer úr gamla vinnusímanúmeri sínu, 6207901. Hann sagðist hafa tengst „trackerum“ fyrir ákærðu Sindra og Matthías, en kvaðst ekki vita til hvers þeir hafi verið að nota þá.
Ekki mundi ákærði eftir því hvort hann og Sindri hafi verið saman dagana 2. til 7. desember 2017. Þá sagðist hann ekki minnast þess að hafa farið með Sindra á Reykjanes aðfaranótt 4. desember það ár. Spurður um skýringu á því að sími hans og Sindra hafi verið á sama tíma á Ásbrúarsvæði þessa nótt frá kl. 00:30 til kl. 02:00, og síðan ferðast saman til Reykjavíkur, sagðist ákærði ekki geta skýrt það, en gat sér þess til að Sindri hefði komið til hans í vinnuna og þeir farið saman í bæinn. Ekki mundi ákærði heldur hvar hann var aðfaranótt 5. desember 2017. Hins vegar kvaðst hann minnast þess að hafa skoðað bíl með Matthíasi sem hann var að kaupa fyrir vin sinn 14. desember. Kvaðst hann aðeins hafa skutlað Matthíasi, en sjálfur hafi hann farið í vinnuna eftir það og unnið fram eftir kvöldi. Að því búnu hafi hann farið til vinkonu sinnar og gist þar. Neitaði hann því að hafa látið Matthías hafa peninga til að greiða fyrir bílinn og sagðist ekki muna hvað hefði orðið um 100.000 krónur sem hann tók út úr banka í tveimur færslum 13. og 14. desember.
Ákærði sagðist aldrei hafa slökkt á vinnusíma sínum, en gat ekki útskýrt hvers vegna slökkt var á símanum frá kl. 18:00 að kvöldi 14. desember til 08:00 að morgni 15. desember. Neitaði hann því að hafa farið upp í Borgarnes aðfaranótt 15. desember svo og að hafa farið í gegnum Hvalfjarðargöng þá nótt og síðar haft samskipti við Matthías. Sagði hann að ljósmynd sem lægi fyrir í málinu, og sýndi mann með húðflúr og leðuról á vinstri handlegg greiða veggjaldið, væri ekki af honum. Sjálfur væri hann hins vegar með húðflúr á báðum handleggjum. Neitaði hann því að Matthías hafi sótt hann upp á Kjalarnes þessa sömu nótt.
Aðspurður sagðist ákærði örugglega hafa verið heima með fjölskyldunni eða að vinna að kvöldi jóladags og annan í jólum 2017. Líklega hafi hann þó farið í Reykjanesbæ, en neitaði því að hafa farið þangað með Sindra, Matthíasi eða Pétri. Spurður um jeppling, sem sást í eftirlitsmyndavél aka um Heiðartröð aðfaranótt 26. desember og tvo menn koma út úr bílnum, sagðist ákærði ekkert kannast við það og neitaði því að hafa verið þar á ferð. Þá kvaðst hann ekki kunna skýringar á því hvers vegna símar þeirra Sindra hafi báðir verið við Grænás í Reykjanesbæ á tímabilinu frá kl. 03:30 til 05:30, en gat sér þess til að hann hafi verið þarna á vegum vinnunnar. Þá kvaðst hann ekki vita hvers vegna sími hans og Sindra hafi ferðast saman frá Reykjanesbæ til Hafnarfjarðar sömu nótt.
Ákærði X gaf einnig skýrslu fyrir dómi. Hann kvaðst ekki þekkja ákærðu og hafi engin samskipti átt við þá, að Sindra undanskildum, sem hann kynntist í aðdraganda innbrotsins í gagnaver Advania. Þó kvaðst hann þekkja ákærða Kjartan, en hann sé […]. Spurður um upphaf samskipta hans og meðákærðu sagði ákærði að fyrst hefði ókunnugur maður haft símasamband við hann í lok desember 2017 og spurt hvort hann héti X og væri […]. Síðan hefði ákærði Kjartan hringt í hann, en hann ekki svarað því símtali. Kjartan hefði þó hringt aftur og suðað í honum um að hitta hann. Hafi þeir hist 6. janúar 2018 og hafi Kjartan sagt að hann gæti útvegað honum peninga ef hann veitti upplýsingar um gagnaver Advania á Ásbrú. Kvaðst ákærði hafa hafnað því boði. Stuttu síðar hafi ákærði Sindri og tveir menn beðið eftir honum í dökkum Mazda-jepplingi fyrir utan heimili hans. Kvaðst hann ekki þekkja aðra en Sindra, og tók fram að hinir tveir væru ekki ákærðir í máli þessu. Annar þeirra, sá sem sat við hlið hans í aftursætinu, hafi verið snoðaður og talað íslensku með austur-evrópskum hreim. Hafi sá hótað honum ef hann léti þeim ekki í té allar upplýsingar um gagnaverið og kvaðst hann hafa talið hann höfuðpaurinn. Hinn aðilinn hafi setið í framsætinu og verið með derhúfu. Hafi þeir hitt hann tvisvar eða þrisvar að nóttu til og hafi þeir alltaf verið á sama bílnum og þrír saman. Hafi þeir keyrt um með honum í u.þ.b. 20 mínútur. Sagðist ákærði aðeins hafa gefið þeim almennar upplýsingar, s.s. að svæðið væri vaktað, það væri mikið af öryggismyndavélum, þjófavarnarkerfi, brunaviðviðvörunarkerfi og hvernig vaktferðum væri háttað. Hins vegar neitaði hann því að hafa veitt þeim upplýsingar um að bíll öryggisvarðar væri bilaður og að ómerkt bílaleigubifreið væri notuð í staðinn. Þeir hafi komist að því sjálfir eftir öðrum leiðum. Einnig neitaði hann því að hafa veitt þeim upplýsingar um öryggiskóðann að gagnaverinu og látið þá hafa fatnað, eða að hafa haft milligöngu um að þeir fengju þær upplýsingar. Sagði ákærði það rangt hjá […] að hann væri sá eini sem ætti gamlan fatnað og vissi kóðann. Sagði hann að fatnaðurinn hafi ekki verið skráður og því væri ekki til neitt bókhald um hann. Til að mynda hefði hann sjálfur látið eftirmann sinn fá klæðnað. Þá sagði ákærði að fleiri en 10 manns vissu um kóðann og benti á að á lista lögreglunnar væru ekki starfsmenn stjórnstöðvarinnar.
Fram kom í máli ákærða að í eitt skiptið, sennilega í annað skiptið sem hann hitti mennina í Mazda-jepplingnum, hafi þeir rætt við „XYZ“ í síma Sindra á meðan ákærði var í bílnum. Sagðist hann hafa séð þetta á skjánum, en Sindri hafi haldið símanum uppi á milli framsætanna og hafi síminn verið á „speaker“. Hafi „XYZ“ sagt að hann væri erlendis og gæti ekki séð fyrir sér hvernig ætti að framkvæma þetta. Hann hafi þó komið með tillögur og verið ráðgefandi, en sagt að þeir þyrftu að finna út úr þessu sjálfir. Hafi hann heyrt Sindra kalla viðmælandann Haffa. Ákærði sagðist einnig hafa heyrt aðilana tala um að nota ætti GPS-búnað á bíl Öryggismiðstöðvarinnar, líklega til þess að vita hvar hún væri á meðan brotist væri inn. Aðspurður hvort rödd „XYZ“ hafi verið sú sama og hefði rætt við hann símleiðis í lok desember 2017, játti ákærði því.
Ákærði kvaðst ekki kannast við ákærða Pétur og neitaði því að hafa nokkru sinni talað við hann. Spurður um símtöl úr símanúmeri Péturs til hans, 6660691, sagðist hann muna eftir því að þrisvar sinnum hefði verið hringt í hann, en mundi ekki úr hvaða símanúmeri. Sagði hann að í öll skiptin hefði viðmælandinn verið sá sami. Ekki sagðist ákærði heldur hafa hitt ákærða Matthías, þrátt fyrir að Matthías hafi greint frá því að hafa hitt hann og ákærði hafi hjá lögreglunni lýst úlpu í eigu Matthíasar. Þá neitaði hann því að Matthías hafi komið heim til hans og náð í fatnað merktan […].
Spurður um ástæðu þess að hafa ekki við yfirheyrslu greint lögreglunni frá þætti hins snoðaða erlenda aðila, sem sat við hlið hans í bílnum og hótaði honum, sagði ákærði að hann hefði fyrst núna áttað sig á því að líklega hafi sá verið höfuðpaurinn. Þá kvaðst hann aðspurður ekki hafa þorað að tilkynna málið til lögreglunnar og sagði skýringuna vera þá að hann bæri ekki mikið traust til hennar þar sem hún hefði ekki staðið sig vel í ofbeldis- og hótunarmálum. Hins vegar kvaðst hann ekki hafa sagt lögreglunni satt eftir handtöku hans þar sem hann hefði verið í geðshræringu og ekki vitað hvernig hann ætti að haga sér. Hann hafi svo ákveðið að segja satt, því að það væri betra.
Ákærði viðurkenndi að hafa nokkrum sinnum rætt við ákærða Sindra á telegram að frumkvæði Sindra. Hann kvað Sindra hafa sagt sér að eyða öllum samskiptum og hafi hann gert það. Ákærði kvaðst muna óljóst eftir þeim skilaboðum sem send voru til hans, en hann kannist við þau. Þó sagðist hann aldrei hafa opnað skilaboð þar sem spurt var hvort hann „komist inn“. Taldi hann þetta hafa verið spurningu um hvort hann kæmist inn í gagnaverið fyrir innbrotið til að afla frekari upplýsinga. Hann hafi ekki getað það nema einhver væri veikur og því hefði hann ekki tekið […]. Þá hefði Sindri einnig spurt hvort hreyfiskynjari væri tengdur ljósunum eða kerfinu, en hann hafi ekki vitað svarið við því. Aðspurður sagðist ákærði hafa starfað sem […], en stundum hafi hann tekið aukavaktir á […], en tók fram að það hafi verið áður en haft var samband við hann vegna fyrirhugaðs innbrots í gagnaver Advania. Sagðist hann hvorki muna öryggiskóðann þar né hafi hann vitað hvenær til stóð að brjótast þar inn.
Aðspurður sagðist ákærði þekkja vitnið Björn Davíð og hafi þeir verið […]. Hafi hann ekki vitað að Björn hafi verið á vakt þegar innbrotið var framið, né að vaktmaður hafi þá haft bílaleigubifreið til umráða í staðinn fyrir merkta bifreið. Taldi hann að meðákærðu hefðu aflað sér upplýsinga um það annars staðar frá.
Ákærði neitaði því að hafa teiknað þá afstöðumynd af gagnaverinu sem fannst síðar í buxnavasa ákærða Sindra. Einnig neitaði hann því að hafa fengið greitt fyrir þær upplýsingar sem hann lét í té.
Ákærði Kjartan Sveinarsson kvaðst lengi hafa þekkt ákærða Hafþór Loga, en ákærða Sindra kannaðist hann við frá Akureyri. Ekki sagðist hann þekkja ákærðu Viktor, Pétur eða Matthías, en hann þekkti X.
Ákærði viðurkenndi að hafa verið í miklum samskiptum við ákærða Hafþór í nóvember og desember 2017, en það hafi verið vegna fyrirhugaðra íbúðarkaupa hans á Spáni. Kvaðst hann hafa skuldað Hafþóri peninga vegna fasteignaviðskiptanna, 800.000 krónur, en jafnframt hafi hann skuldað öðrum aðila vegna fíkniefnaviðskipta. Vildi hann ekki tjá sig um þann aðila. Spurður um símasamskipti við X sagði ákærði að hringt hefði verið í sig úr telegram og honum sagt að hann gæti losnað við vexti af fíkniefnaskuldinni ef hann kæmi viðkomandi í samband við öryggisvörð. Neitaði ákærði því að Hafþór hafi verið viðmælandi hans og kvaðst ekki vita hver það var né símanúmer þess aðila. Það hefði þó ekki verið Íslendingur. Ekki kvaðst ákærði geta framvísað þessum símasamskiptum þar sem hann væri kominn með nýjan síma. Ákærði kvaðst í framhaldi af þessu hafa hringt í ákærða X og spurt hvort hann gæti talað við einn mann og gæti hann mögulega hagnast á því. Hefði X samþykkt það og þeir síðan hist í Mjóddinni þar sem hann lét X hafa síma sinn með hinn aðilann á línunni. Ekki sagðist hann hafa heyrt hvað þeim fór á milli. Sérstaklega spurður hvort viðmælandi X hafi verið ákærði Matthías sagðist ákærði ekki vita það. Hins vegar sagðist hann hafa flett upp símanúmerinu sem hringt hafi verið úr í síma hans um mánaðamótin desember/janúar og hafi ákærði Matthías verið skráður fyrir því. Hann hafi þó ekki svarað því símanúmeri. Ekki sagðist ákærði hafa vitað hvers vegna hann var beðinn um að útvega öryggisvörð, honum hafi „bara verið sagt að gera það, redda einhverjum“. Hafi hann þó grunað að það væri í ólöglegum tilgangi. Játaði ákærði því að hafa gefið þeim manni upp símanúmerið hjá X og hafi það verið í gegnum telegram. Aðspurður sagðist hann ekki hafa þorað að tilkynna lögreglunni um þetta, enda hafi honum verið hótað líkamsmeiðingum ef hann yrði ekki við erindinu. Þá kvaðst hann ekkert hafa vitað um málið fyrr en það kom upp í fjölmiðlum.
Vitnið Björn Brynjúlfsson, forsvarsmaður BDC Mining ehf. að Heiðartröð 555- 557 á Ásbrú, sagði að fyrirtækið hefði hafið starfsemi sumarið 2014, en á árinu 2017 hefði það verið að taka í notkun bygginguna sem varð vettvangur brotsins 5. til 6. desember 2017 og tilraunar til innbrots 26. desember sama ár. Sagði hann að búnaðurinn sem stolið var í desemberbyrjun hefði verið splunkunýr og legið í kössum á gólfinu. Kvaðst hann ekki hafa haft neinn grunaðan, en þó hafi hann haft efasemdir um starfsmenn frá Austur-Evrópu, en þeir höfðu ekki starfað jafn lengi og aðrir. Við nánari skoðun hafi þó ekkert komið í ljós um aðild þeirra.
Vitnið Kristján Jay Warrick, starfsmaður Algrim Consulting slf. að Heiðartröð 554 á Ásbrú, kvaðst hafa mætt til vinnu morguninn eftir innbrotið 6. desember 2017. Hafi hann í fyrstu ekki áttað sig á að búið væri að brjótast inn þar sem engin ummerki hafi verið á svæðinu. Síðar hafi hann tekið eftir því að allt var horfið. Sagði vitnið að gagnaverið hafi í raun verið óvarið, en gat hafi verið á vegg hússins og hafi plata verið sett fyrir það, án þess þó að hún hafi sérstaklega verið fest. Taldi hann að þjófarnir hefðu vitað allt um aðstæður, enda hefðu engin ummerki sést á húsnæðinu. Líklegast hefðu þeir skriðið inn um gatið þar sem allt annað var læst. Sagði hann að gat þetta hafi verið um 30x50 cm og að grannvaxinn maður gæti mögulega komist inn um það. Vitnið kvaðst ekki hafa orðið vart við óvenjulegar mannaferðir á svæðinu fyrir innbrotið.
Vitnið Daði B. Ármannson, eigandi Algrim Consulting slf., sagði að búnaðurinn sem stolið var á tímabilinu frá 5. til 6. desember 2017 hefði aðeins verið í húsnæðinu í 1-2 daga. Var hann enn í umbúðum en búið að koma honum fyrir í hillum. Sagði hann að enginn hafi legið undir grun um þjófnaðinn og að tjónið hafi verið umtalsvert. Þá hefði starfsemi fyrirtækisins orðið fyrir tjóni, auk þess sem uppbygging fyrirtækisins hefði tafist í um þrjá mánuði.
Vitnið Björk Kristjánsdóttir, eigandi gagnavers AVK ehf., Sólbakka 6 í Borgarnesi, sagði að öryggisráðstafanir hafi ekki verið mjög miklar á þeim tíma þegar tölvunum var stolið, aðfaranótt 15. desember 2017. Húsið hafi þó verið rammgert og gluggar í mikilli hæð frá jörðu, og kvaðst hún ekki vita hvernig þjófarnir komust inn. Sagði hún engan hafa legið undir grun vegna málsins.
Vitnið Björn Davíð Kjartansson öryggisvörður sagðist hafa starfað hjá Öryggismiðstöðinni í þrjú ár og hafi fatnaður fyrirtækisins ekki breyst á þeim tíma. Spurður um fyrirkomulag eftirlitsins sagði hann að fara ætti 4-5 eftirlitsferðir á nóttu og ganga um svæðið og húsið. Hafi hann farið síðustu vaktferðina að gagnaverinu um tíuleytið að kvöldi 15. janúar 2018 og hafi hann þá ekki orðið var við neinar mannaferðir þar. Hann sagðist hafa verið veikur í um 5 daga fyrir þennan dag, en vegna manneklu hefði hann orðið við beiðni yfirmanns um að mæta til vinnu, þrátt fyrir að hann væri enn svolítið veikur. Eftir vaktferðina sagðist Björn hafa verið orðinn það slappur að hann hafi ákveðið að fara heim á salernið. Að því loknu hafi hann lagst fyrir og sofnað, og ekki vaknað fyrr um en um sjöleytið um morguninn. Þegar hann kom út í bílinn um morguninn hafi hann veitt því athygli að sprungið var á öllum dekkjum bílsins, en bíllinn var bílaleigubíll þar sem merktur bíll Öryggismiðstöðvarinnar var á verkstæði.
Ekki sagðist vitnið hafa orðið þess vart að verið væri að fylgjast með honum eða ferðum hans dagana fyrir innbrotið. Þó sagðist hann minnast þess að nokkru fyrir innbrotið hafi hann og kona hans orðið vör við mannaferðir í kringum heimilið. Sérstaklega mundi hann eftir einu tilviki þar sem hundurinn á heimilinu urraði um miðja nótt og þegar hann kom fram hafi svaladyrnar á heimilinu verið opnar. Ekki kvaðst vitnið hafa séð neina menn í þessi skipti.
Aðspurður sagði Björn að bæði þyrfti kóða og kort til að komast inn í gagnaverið. Sagði hann að kortið hefði verið geymt í vaktbílnum og að það hafi verið í bílnum morguninn eftir innbrotið. Taldi hann að ákærði X hefði kunnað kóðann utan að, en kvaðst þó ekki geta sagt það með vissu.
Vitnið Sævar Sveinsson kvaðst þekkja ákærða Viktor og hafi þeir unnið saman hjá bílaleigu Bernhard, en ekki í sömu deild. Viktor hefði aðallega unnið í útibúi fyrirtækisins í Reykjavík og hefði aðalstarf hans verið að skipuleggja útleigu bifreiða. Reglulegur vinnutími hans hafi verið frá kl. 09:00 til kl. 18:00, en þó hefði komið fyrir að hann þurfti að vinna fram eftir og snemma morguns.
Vitnið Helena Björk Gissurardóttir, barnsmóðir og kærasta ákærða X, kvaðst ekki hafa orðið vör við neinar breytingar í fari ákærða í desember 2017 eða janúar 2018. Ekki kvaðst hún heldur hafa veitt athygli neinum hringingum til hans, né mundi hún eftir því að einhver hefði komið í heimsókn sem hún þekkti ekki. Þá mundi hún ekki eftir því að X hefði farið út að kvöldi til í byrjun janúar 2018. Aðspurð sagði hún að X hefði átt föt frá […], a.m.k. þrennar buxur, tvær skyrtur og einn renndan regnjakka, en ekki hafði hún orðið þess vör að eitthvað af þeim hefði horfið af heimilinu. Hún neitaði því að einhver ókunnugur maður hefði komið á heimilið til þess að sækja flík af honum. Þá sagðist hún heldur ekki hafa séð á heimilinu sams konar jakka og aðili var í við innbrot og þjófnað í gagnaver Advania.
Vitnið Ewaldas Bernius kvaðst hafa keypt bláan sendibíl af gerðinni Volkswagen Transporter í lok desember 2017. Bíllinn hafi verið auglýstur til sölu á samfélagsmiðlum og hafi einhver eldri maður verið seljandinn. Sagðist vitnið ekki hafa verið búinn að skrá bílinn á sitt nafn þegar lögreglan haldlagði bílinn, en pappírarnir hafi þá verið í bílnum.
Aðspurt kvaðst vitnið vera með húðflúr á báðum handleggjum og sýndi það í dómsal. Vitnið Magnús Þór Jónsson kvaðst þekkja ákærðu Sindra Þór og Hafþór Loga og hafa kynnst þeim í gegnum sameiginlega vini fyrir fjölda ára. Þeir hefðu ekki mikil samskipti lengur, en tók fram að hann og Sindri hefðu þó stundað nám í tölvunarfræði fyrir nokkrum árum. Eftir það hefðu þeir stundum rætt saman um tölvutengda hluti.
Aðspurt sagðist vitnið ekki hafa heyrt í Sindra frá því í desember 2017 þegar hann hringdi í Sindra til þess að forvitnast um hvernig „bitcoin-gröftur“ virkaði. Sagðist vitnið hafa verið forvitinn um þessa rafmynt í kjölfar þess að koma átti upp gagnaveri í Borgarnesi, en hann vann þá fyrir RARIK að því að leggja heimtaug að gagnaverinu. Ekki sagðist hann minnast þess að hafa rætt sérstaklega um þetta gagnaver við Sindra, en mundi þó ekki nákvæmlega hvað þeim fór á milli. Hann kannaðist við að hafa sent Sindra skilaboð með upplýsingum um heimilisfang gagnaversins, en neitaði því aðspurður að hafa veitt honum upplýsingar um hvernig væri best að komast inn í húsið, eða hver orkunotkun þess væri.
Vitnið Ása Sigrún Hafsteinsdóttir sagðist hafa þekkt ákærða Viktor í tvö ár, þau væru góðir vinir og hafi hann oft gist heima hjá henni. Aðspurð hvort þau hafi hist 14. og 15. desember 2017 sagði vitnið að ákærði hefði gist hjá henni báðar næturnar. Kvaðst hún muna eftir því að hann hafi komið til hennar um miðnætti aðfaranótt 15. desember. Fram kom í máli vitnisins að hún hafi ekki búist við því að þurfa að gefa skýrslu fyrir dómi, en verjandi ákærða Viktors hefði haft samband við hana fyrir viku og beðið hana um það.
Vitnið Rúnar Guðnason sagðist hafa átt bláan Volkswagen Transporter sendibíl með númerinu LR-538. Hafi hann auglýst bílinn til sölu á Bland.is eða Facebook og hafi tveir strákar komið og skoðað hann og keypt samdægurs. Ekki kvaðst hann muna hvernig þeir litu út. Aðspurt hvers vegna vitnið hafi tekið niður bílnúmer á þeim bíl sem þeir komu á, sagði vitnið það hafa verið eðlilegar varúðarráðstafanir. Þá sagði vitnið þá hafa viljað greiða með peningum, en hann hafi viljað að þetta færi í gegnum bankann og hafi þeir fallist á það.
Vitnið Helgi Pétur Ottesen lögreglumaður sagði að ákærði Viktor hefði verið grunaður um aðild að innbrotinu í gagnaver AVK ehf. í Borgarnesi, þegar í ljós kom að hann hefði farið með ákærða Matthíasi að kaupa sendibifreiðina sem notuð var í innbrotinu. Jafnframt hefði aðili sést á upptöku í Hvalfjarðargöngum með sams konar húðflúr, leðuról og úr og ákærði Viktor bæri. Auk þess hefði verið horft til þess að ákærði Matthías hafi sagt í yfirheyrslu að hann hafi skutlað einhverjum af Kjalarnesi.
Vitnið Snorri Örn Árnason, starfsmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, kvaðst hafa séð um að kortleggja notkun síma í málinu. Aðspurt hvort eitthvað sérstakt hefði komið fram við greiningu á símanotkun í þessu máli sagði vitnið að vakið hefði athygli að notkun persónulegra númera hefði verið hætt á tilteknum tímabilum, en önnur númer þá „dúkkað upp“. Slíkt mynstur benti ótvírætt til skipulagðrar brotastarfsemi, enda langt gengið til að hylja slóð aðila. Þá sagði vitnið að engin erlend númer hafi komið fram í símagögnum, að undanskildum erlendum þjónustunúmerum, en þau hafi þá tengst notkun erlendra samskiptamiðla, t.d. Facebook.
Vitnið var þessu næst spurt um punkta og staðsetningu turna í framlögðum símagögnum. Sagði hann að hver punktur í gögnunum sýndi þann turn sem síminn tengdist hverju sinni og gripi turninn þann síma sem best væri fyrir sambandið hverju sinni. Oftast hefði það með fjarlægð að gera, en einnig gæti eitthvað skyggt á turninn í loftlínu. Þá gripi næsti turn símann. Hvorki punktarnir né turnarnir væru valdir af honum né nokkrum öðrum, heldur kæmu punktarnir frá fjarskiptafyrirtækjunum. Væru þetta hrá gögn um kortahnit og hafi hlutverk hans verið það eitt að setja punktana á kort. Vitnið kvað símagögn ekki geta staðsett aðila með 100% nákvæmni, en því fleiri punkta og mastur sem unnið sé með því meiri væri nákvæmnin.
Aðspurt um símanúmer sem lögreglan kvað ákærða Pétur hafa notað aðfaranótt 16. janúar 2018 sagði vitnið að það væri ályktun lögreglu að ákærði Pétur hefði notað það símanúmer. Byggðist sú ályktun á símanúmerum annarra ákærðu og ferðum þeirra. Þessar ályktanir væru þó ekki byggðar á hörðum sönnunargögnum. Þá staðfesti vitnið það sem fram kemur í framlagðri skýrslu þess að engin notkun hafi verið á númeri ákærða Matthíasar á meðan á innbrotunum stóð. Það þýði að engin „fysisk“ notkun hafi átt sér stað með símtækinu, hvorki símtöl né sms-boð. Sé slökkt á símanum greinist símtækið hins vegar ekki í gögnum.
Vitnið Jón Halldór Sigurðsson lögreglumaður var fyrst spurður um þann hlut sem fannst við leit í bifreið ákærða Matthíasar. Sagði hann hlutinn með tvenns konar virkni; annars vegar sem vasaljós, en hins vegar gefi hann rafstuð og flokkist því sem vopn, sem óheimilt sé að selja hér á landi. Sagði hann ljóst að hluturinn gæfi rafstuð.
Vitnið sagði aðspurt að nöfn nokkurra erlendra aðila hafi komið upp við rannsókn málsins og nefndi nafn vitnisins Ewaldas í því sambandi. Málið hefði einnig haft tengingu við Spán og sagði vitnið að öllum steinum hefði verið velt við. Nefndi hann m.a. að gerð hefði verið húsleit hjá rússneskum aðila í Vestmannaeyjum.
Vitnið var því næst spurt um bíl sem sást í öryggismyndavél við Heiðartröð 555- 557 aðfaranótt 26. desember 2017, og sagði vitnið að lögreglan hefði talið að þar hefði Honda CR-V verið á ferð, en þó gæti það hugsanlega hafa verið Nissan X-Trail, enda báðar tegundirnar með afturljós hátt uppi. Þá var vitnið spurt um símtal sem ákærði X hélt fram að hefði átt sér stað í lok desember 2017, og kvaðst hann ekki hafa fundið neitt til að styðja það. Hann sagðist þó ekki geta útilokað að hringt hefði verið í X úr leyninúmeri.
Aðspurður um ályktun um að „burnersímanúmer“ tilheyrði ákærða Pétri kvað vitnið að ýmis gögn hafi bent til þess að Pétur ætti númerið, s.s. staðsetning númersins, samskipti þess við símanúmer annarra grunaðra og ferðir þeirra.
Vitnið kvað ákærða X aldrei hafa játað að hafa afhent jakka […] né að hafa upplýst um öryggiskóðann, en bætti við að samkvæmt upplýsingum frá […]væri hann eini starfandi starfsmaðurinn sem hefði starfað frá þeim tíma er slíkum fatnaði var úthlutað. Þá kvað vitnið símtæki X hafa verið stillt þannig að það eyddi öllum gögnum jafnóðum og af þeim sökum hafi ekkert legið fyrir um telegram-samskipti X fyrr en símtæki Sindra var haldlagt.
Með vísan til 1. mgr. 117. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála skoruðust eftirtaldir aðilar undan því að gefa vitnaskýrslu: Auður Birna Snorradóttir, eiginkona ákærða Sindra, Áslaug María Bergdaggardóttir, eiginkona ákærða Péturs Stanislav, Sallý Grétarsdóttir, barnsmóðir ákærða Matthíasar, og Smári Fannar Kristjánsson, bróðir ákærða Sindra.
Niðurstaða
Samkvæmt ákæruliðum I-VIII beinast öll brot ákærðu að gagnaverum sem hýstu búnað til að „grafa“ eftir rafmynt og áttu þau sér stað á stuttu tímabili, eða frá 5. desember 2017 til 16. janúar 2018. Á Ásbrú í Reykjanesbæ var brotist inn í þrjú gagnaver, en eitt í Borgarnesi. Að auki var tvívegis gerð tilraun til innbrots í fimmta gagnaverið, sem einnig er til húsa á Ásbrú.
Í málinu eru sjö einstaklingar ákærðir, en fimm þeirra tilheyra vinahópi sem þekkst hefur um langt skeið og samanstendur af ákærðu Sindra Þór Stefánssyni, Hafþóri Loga Hlynssyni, Matthíasi Jóni Karlssyni, Pétri Stanislav Karlssyni og Viktori Inga Jónassyni. Af gögnum málsins og framburði þeirra fyrir dómi verður ráðið að tengsl þeirra eru sterk og samskipti mikil og náin. Ákærði Hafþór Logi hefur búið á Spáni frá desemberlokum 2017, en ákærði Viktor Ingi flutti þangað 27. eða 28. desember 2017. Þá mun ákærði Sindri Þór einnig vera fluttur til Spánar.
Af hálfu ákæruvaldsins er á því byggt að ákærði Sindri sé höfuðpaurinn og skipuleggjandi í öllum innbrotunum og hafi hann fengið aðra ákærðu til liðs við sig á þann hátt sem lýst er í hverjum ákærulið. Þá telur ákæruvaldið skýringar ákærða Sindra, þess efnis að einhver erlendur fjárfestir sem hann óttist hafi lagt á ráðin með honum um „að ræna þetta lið“, sé fjarstæða og uppspuni sem eigi sér enga stoð í gögnum málsins. Þvert á móti telur ákæruvaldið að gögn málsins bendi eindregið til þess að tölvunarfræðingurinn, ákærði Sindri, hafi um langt skeið undirbúið innbrotin, skipulagt þau í þaula og fengið hverjum og einum meðákærðu ákveðið hlutverk í framkvæmd þeirra. Bendir ákæruvaldið í því efni á að aflað var upplýsinga um aðstæður og staðhætti í aðdraganda hvers innbrots, notaður var fjöldi símtækja og símanúmera sem reglulega var skipt um, keypt voru GPS-staðsetningartæki (trackerar) sem ætlunin var að koma fyrir á vaktbifreiðum, leigðar voru tvær sendibifreiðar, skipt um númer á annarri þeirra en rætt um að afmá merkingar af hinni, auk þess sem keypt var sendibifreið og hún notuð við innbrot í gagnaver AVK ehf. í Borgarnesi aðfaranótt 15. desember 2017, en henni eytt nokkrum dögum síðar. Þá var öryggisvörður á Suðurnesjum fenginn til að veita mikilsverðar upplýsingar um staðhætti, vaktferðir og öryggisbúnað í og við gagnaver Advania á Ásbrú í aðdraganda innbrots þar. Þykir ákæruvaldinu augljóst að allt hafi þetta verið gert í þeim tilgangi að hylja slóð brotanna og villa um fyrir lögreglu. Við yfirheyrslu hjá lögreglu neituðu ákærðu Sindri, Matthías, Pétur og Viktor sök. Þá neituðu þeir ítrekað að tjá sig, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi, báru ýmist við minnisleysi eða gáfu villandi og sumpart fjarstæðukennd svör, en nefndu oft og tíðum einhverja ónafngreinda erlenda aðila sem ýmist áttu að hafa undirbúið og skipulagt brotin eða staðið að þeim. Aldrei nefndu þeir hins vegar nöfn annarra félaga sinna, þótt fyrir lægju óyggjandi rannsóknargögn lögreglu um samverknað tveggja eða fleiri þeirra að hverju broti. Þrátt fyrir umfangsmikla leit lögreglu hefur þýfið úr þessum innbrotum ekki fundist. Við rannsókn málsins kom ekkert fram sem bent gat til þess að einhverjir aðrir aðilar, og þá utan hins nána vinahóps ákærðu, hafi staðið að þeim brotum sem hér er fjallað um, að undanskildum ákærðu X og Kjartani, en síðar verður fjallað um þátt þeirra.
Meðal gagna málsins eru ítarlegar skýrslur lögreglu um notkun síma og símtækja allra sakborninga. Af þeim má sjá staðsetningu símanúmera hverju sinni út frá tengingum þeirra við fjarskiptamöstur. Rannsakað var sérstaklega hvort símar sakborninga voru í nágrenni við vettvang innbrotanna um það leyti sem brotist var inn hverju sinni og hvernig símar þeirra ferðuðust í aðdraganda og kjölfar hvers brots, auk annarra atriða sem tengdust innbrotunum. Hafa gögn þessi verulega þýðingu við úrlausn málsins.
Eins og fram er komið játaði ákærði Sindri fyrir dómi innbrot og þjófnað í gagnaver AVK ehf. í Borgarnesi aðfaranótt 15. desember 2017 og í gagnaver Advania á Ásbrú aðfaranótt 16. janúar 2018, en kvaðst ekki vita hvað orðið hefði um þýfið. Sú fullyrðing hans fær þó vart staðist, þótt ekki væri nema vegna þess að fyrir dómi kvaðst hann hafa komist í kynni við erlendan fjárfesti til að aðstoða sig við að setja upp „bitcoin-gröft“, enda hafi hann sjálfur „ekki átt neinn pening til að setja í þetta, en vildi vera með“. Að auki sagði hann að í umræðum þeirra hafi komið upp sú hugmynd að „ræna þetta lið“ og taka út samkeppnina, þar sem verðlaunin væru minni eftir því sem fleiri stunduðu slíkan „gröft“. Fyrir „verkefnið“ átti hann að fá 50.000 evrur, og átti þá við innbrot og þjófnað í gagnaver Advania. Ákærði Matthías, sem einnig játaði aðild sína að innbroti og þjófnaði í síðarnefnda gagnaverið, sagðist heldur ekki vita hvað orðið hefði um tölvurnar, og það þótt hann hefði átt að fá tvær milljónir króna fyrir verkið. Báðir neituðu því engu að síður að hafa skipulagt innbrotin. Krefjast þeir vægustu refsingar sem lög leyfa. Við sama tækifæri játaði ákærði Pétur fíkniefnalagabrot það sem hann er sakaður um í IX. ákærulið og krefst vægustu refsingar. Að öðru leyti neita allir ákærðu sakargiftum og krefjast sýknu. Verði þeir engu að síður sakfelldir krefjast þeir vægustu refsingar sem lög framast leyfa. Þá krefjast þeir þess að einkaréttarkröfu verði vísað frá dómi, en til vara að hún verði verulega lækkuð. Allir krefjast ákærðu málsvarnarlauna úr ríkissjóði.
Ákæruliðir I og II
Samkvæmt fyrri ákæruliðnum eru ákærðu Sindri, Matthías og Pétur sakaðir um stórfelldan þjófnað, með því að hafa í sameiningu undirbúið, lagt á ráðin, skipulagt og framkvæmt innbrot og þjófnað í tvö samliggjandi gagnaver að Heiðartröð 554 og 555 á Ásbrú, Reykjanesbæ, á tímabilinu frá kl. 20:20 þann 5. desember til kl. 09:00 þann 6. desember 2017, og tekið þaðan í heimildarleysi tölvubúnað, skjákort og fylgihluti til að „grafa“ eftir rafmynt. Í síðari ákæruliðnum eru hinir sömu sakaðir um tilraun til innbrots og þjófnaðar í sama skyni í gagnaver að Heiðartröð 557 á Ásbrú á tímabilinu frá 5. til 10. desember sama ár. Þar hafði verið límt fyrir skynjara í þeim hluta hússins sem reynt hafði verið að fara inn í, auk þess sem reynt hafði verið að draga út nagla á plötu sem negld hafði verið fyrir gat á vegg hússins.
Fyrir dómi viðurkenndi Sindri að hafa keypt tíu „trackera“ í júlí 2017. Einnig viðurkenndi hann að eiga „bitcoin-veski“, og taldi sig hafa þekkingu yfir meðallagi á bitcoin, enda tölvunarfræðingur. Þá viðurkenndi hann að hafa verið á Reykjanesi í desember 2017 og janúar 2018, en kvaðst ekki geta gert grein fyrir því með hverjum hann hafi verið þar, né hvar hann hefði verið á tilteknum dögum þann tíma. Sagðist hann oft hafa þurft að koma til Reykjavíkur og á Reykjanes árið 2017 vegna viðskiptavina. Þá sagðist hann ekki muna eftir því að hafa leigt sendiferðabifreið á Akureyri 4. desember það ár, þrátt fyrir að fyrir lægi bílaleigusamningur þess efnis, né að hafa komið að Selhellu í Hafnarfirði í því skyni að stela þar bílnúmeraplötum. Spurður um samskipti við ákærðu Matthías og Pétur á þessum tíma sagði hann að þau hafi verið með venjubundnum hætti, en taldi ólíklegt að hann hafi hitt þá bræður þegar þeir óku til Akureyrar 6. desember.
Ákærði Matthías sagðist fyrir dómi ekki muna eftir því að hafa verið með Sindra á Ásbrú í Reykjanesbæ dagana fyrir innbrotin, en tók þó fram að vel gæti verið að hann hafi þá verið í Reykjanesbæ, enda byggi þar góður vinur hans. Hann neitaði á hinn bóginn allri aðild að þessum brotum. Hið sama gerði bróðir hans, ákærði Pétur, en hann kvaðst ekki minnast þess að hafa komið á Reykjanes í desember 2017 eða í janúar 2018. Sagðist hann líklega hafa verið heima hjá sér frá 4. til 7. desember 2017, en viðurkenndi engu að síður að hafa ekið með Matthíasi, bróður sínum, til Akureyrar 6. desember. Ekki vildi hann tjá sig um það ferðalag þeirra bræðra, að öðru leyti en því að ferðin hafi verið „á gráu svæði“. Matthías viðurkenndi einnig að hafa ekið með Pétri til Akureyrar 6. desember og til baka til Reykjavíkur 7. desember. Á sama hátt og Pétur vildi hann ekki greina frá í hvaða erindum þeir bræður voru og notaði sömu orð og bróðir hans, að ferðin hafi verið „á gráu svæði“. Ákæruvaldið telur að þeir bræður hafi verið að skila sendiferðabifreiðinni sem Sindri tók á leigu á Akureyri 4. desember 2017. Þá telur ákæruvaldið að ákærði Sindri hafi einnig ekið til Akureyrar 6. desember, en samkvæmt bankayfirliti verslaði hann í Ferstiklu í Hvalfirði kl. 07:54 að morgni þess dags. Sagðist hann þó ekki muna eftir því.
Eins og áður greinir hefur ákærði Sindri viðurkennt að hafa verið á Reykjanesi í desember 2017, en kvaðst ekki muna einstakar dagsetningar í þeim mánuði, né með hverjum hann var þá. Samkvæmt fyrirliggjandi rannsóknargögnum á notkun síma hans má þó ráða að hann hafi verið í Reykjavík og á Reykjanesi, nánar tiltekið á Ásbrú, 2. og 3. desember, og þá í samskiptum bæði við ákærða Matthías og Viktor Inga. Þannig má sjá að símar Sindra og Matthíasar ferðast saman frá Reykjavík að Ásbrú að kvöldi 2. desember og eru þar frá kl.01:15 til 02:11 aðfaranótt 3. desember, en fara þá til baka til Reykjavíkur. Aðfaranótt 4. desember ferðast síðan símar Sindra og Viktors Inga sömu leið, frá Reykjavík að Ásbrú og til baka um klukkustund síðar. Um sama leyti virðast þeir vera að gera tilraunir til að virkja „tracker“.
Samkvæmt fyrirliggjandi bílaleigusamningi er ljóst að ákærði Sindri leigði sendibifreið hjá bílaleigunni Thrifty á Akureyri 4. desember 2017. Hjá lögreglu sagðist hann hafa verið að flytja búslóð sína til Reykjavíkur þar sem hann væri að flytja til Spánar, en vildi þó ekki upplýsa um hvar búslóðin væri niðurkomin í Reykjavík. Fyrir dómi sagðist hann hins vegar ekki muna eftir því að hafa leigt bifreiðina. Fyrir vikið er framburður hans einkar ótrúverðugur og ekki með nokkru móti unnt að byggja á honum. Áður er fram komið að sams konar bifreið sást við Selhellu í Hafnarfirði aðfaranótt 5. desember þar sem bílnúmerum var stolið, en jafnframt sást til hennar við iðnaðarhúsnæði að Funatröð 3 á Ásbrú. Þá sást sams konar bifreið í akstri í eftirlitsmyndavél í nágrenni innbrotavettvangs, nánar tiltekið á Klettatröð, aðfaranótt 6. desember 2017 kl. 04:59, og var henni þá ekið í stefnu frá gagnaverunum. Þykir dóminum augljóst og án nokkurs vafa að ákærði Sindri hafi verið þar á ferð og hafi hann skipulagt og staðið að innbroti í áðurnefnd gagnaver að Heiðartröð 554 og 555. Í ljósi samskipta hans og ákærða Matthíasar í aðdraganda brotanna, misvísandi og mótsagnakennds framburðar þeirra, en ekki síst ferðalags bræðranna, Matthíasar og Péturs, til Akureyrar 6. desember, sem að þeirra sögn var „á gráu svæði“, án frekari skýringa, þykir dóminum fram komin lögfull sönnun fyrir aðild ákærða Matthíasar að umræddum brotum, ásamt ákærða Sindra. Er það álit dómsins að í þeirri ferð hafi Matthías verið að skila sendibifreiðinni til bílaleigunnar, koma þýfinu í skjól og ljúka þannig fullframningu brotanna. Verða ákærðu Sindri og Matthías sakfelldir fyrir þá háttsemi sem greinir í I. ákærulið og er þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Samkvæmt ákæru byggir ákæruvaldið á því að ákærði Pétur hafi einnig átt aðild að brotum þessum. Þótt svör hans fyrir dómi um veru hans í desember 2017 og janúar 2018 og símasamskipti hans við meðákærðu í janúar hafi á ýmsa lund verið ósannfærandi, verður ekki framhjá því horft að engin óyggjandi gögn liggja fyrir um beina aðild hans að undirbúningi, skipulagningu og framkvæmd þeirra brota sem hann er hér sakaður um. Á hinn bóginn liggur fyrir að hann ók með Matthíasi, bróður sínum, til Akureyrar 6. desember og var sú ferð á „gráu svæði“ eins og hann sjálfur orðaði það. Þykir það svar eindregið benda til þess að honum hafi verið kunnugt um að ferðin væri liður í ólöglegu athæfi bróður síns og/eða ákærða Sindra. Þótt ákæruvaldið hafi í þessum ákærulið byggt á því að verknaður allra ákærðu yrði virtur að jöfnu, og háttsemi þeirra því einungis talin varða við 1., sbr. 2., mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, verður ákærði Pétur þó, með vísan til 4. málsliðar 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, hér aðeins sakfelldur fyrir hlutdeild í brotum ákærðu Sindra og Matthíasar, sbr. 1. og 4. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verður ekki séð að vörn hans hafi af þessum sökum að neinu leyti verið áfátt.
Að því er varðar II. ákærulið nýtur ekki við neinna gagna sem stutt geta við meinta tilraun ákærðu til innbrots í gagnaver BDC Mining ehf. að Heiðartröð 557 á tímabilinu frá 5. til 10. desember 2017. Þótt dómurinn hafi þegar komist að þeirri niðurstöðu að ákærðu hafi gerst sekir um þá háttsemi sem í I. ákærulið greinir verður ekki af því einu sú ályktun dregin að þeir hafi einnig gerst sekir um það brot sem lýst er í II. ákærulið. Telst því ósannað að ákærðu eigi aðild að því broti og verða þeir sýknaðir af þeim ákærulið.
Ákæruliður III
Í þessum ákærulið eru ákærðu Sindri Þór, Matthías Jón og Viktor Ingi sakaðir um innbrot og þjófnað í gagnaver AVK ehf. að Sólbakka 16 í Borgarnesi aðfaranótt 15. desember 2017. Ákærði Sindri hefur þegar játað aðild sína að brotinu, en neitar því að hafa undirbúið, lagt á ráðin og skipulagt innbrotið. Matthías Jón og Viktor Ingi neita hins vegar sakargiftum.
Frásögn ákærða Sindra af undirbúningi innbrotsins, samskiptum hans við ónafngreindan aðila, sem hefði falið honum „að græja þetta verkefni“, og síðar samskiptum hans við óþekktan ökumann sendibifreiðarinnar LR-538 er með miklum ólíkindablæ, enda engum gögnum studd. Þykir dóminum augljóst að hann fari þar með ósannindi. Frásögn ákærða Matthíasar er sama marki brennd. Þannig átti hann í erfiðleikum með að greina frá aðild sinni að fjármögnun og kaupum á umræddri sendibifreið, fyrir hvern hún hafi verið keypt og í hvaða tilgangi. Þá neitaði hann að tjá sig um hver hefði beðið hann um að setja lykla bifreiðarinnar undir framsætið og þá hvers vegna, og síðast en ekki síst hver sá vinur var sem hann sótti upp á Esjumela síðla nætur 15. desember 2017 og ástæðu þess. Framburður ákærða Viktors þykir einnig ótrúverðugur. Í því sambandi er minnt á að hann sagðist fyrir dómi aldrei slökkva á vinnusíma sínum, en gat ekki útskýrt hvers vegna slökkt var á símanum frá kl. 18:00 að kvöldi 14. desember til kl. 08:00 að morgni 15. desember. Þegar hann var spurður um ljósmynd, sem liggur fyrir í málinu og sýnir húðflúr, leðuról og úr á vinstri úlnlið ökumanns LR-538, er hann greiðir veggjaldið í Hvalfjarðargöngum, sagði hann að myndin væri ekki af honum. Meðal rannsóknargagna er hins vegar ljósmynd af Viktori Inga, tekin af Facebook, svo og ljósmynd sem lögreglan tók af vinstri úlnlið hans undir rannsókn málsins. Við samanburð þeirra ljósmynda og ljósmyndar, sem tekin var af vinstri úlnlið ökumanns bifreiðarinnar LR-538 aðfaranótt 15. desember 2017, þykir dóminum hafið yfir skynsamlegan vafa að ökumaður bifreiðarinnar umrætt sinn hafi verið ákærði Viktor Ingi, vinur ákærða Sindra. Framburður vinkonu ákærða Viktors, um að hann hafi gist hjá henni umrædda nótt, breytir hér engu um, enda ekki studd fullnægjandi gögnum.
Samkvæmt því sem að framan er rakið þykir sannað að ákærði Sindri hafi undirbúið, lagt á ráðin, skipulagt og framkvæmt innbrot og þjófnað í ofangreint gagnaver og fengið til liðs við sig í þeim tilgangi ákærðu Matthías og Viktor. Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir sönnun um aðild ákærða Matthíasar að sjálfu innbrotinu og þjófnaðinum, verður hlutverk hans, eins og því er lýst hér að framan, engu að síður virt sem samverknaður og augljós og nauðsynlegur þáttur í fullframningu verknaðarins. Samkvæmt því verða þeir allir sakfelldir fyrir þá háttsemi sem lýst er í þessum ákærulið og er þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákæruliður IV
Samkvæmt þessum ákærulið eru ákærðu Sindri Þór, Matthías Jón og Viktori Ingi sakaðir um tilraun til innbrots og þjófnaðar í gagnaver BDC Mining ehf. að Heiðartröð 555-557 á Ásbrú, aðfaranótt 26. desember 2017. Á suðausturhlið hússins hafði verið skorið gat á segldúk sem þar hafði verið komið fyrir yfir gluggastæði og voru ummerki á gluggapósti um að reynt hefði verið að spenna upp laust gluggafag. Þá lá skrúfjárn á gluggapóstinum. Þegar einn innbrotsaðila fór inn í húsnæðið fór þjófavarnarkerfi í gang og hurfu aðilar á brott. Ákærðu neita allir aðild að þessu broti.
Fyrir dómi viðurkenndi ákærði Sindri að hafa fengið pallbifreið bróður síns lánaða að kvöldi annars í jólum 2017 og kvaðst enn hafa verið að flytja hluta af búslóð sinni til geymslu, en nú á Ásbrúarsvæðið í Reykjanesbæ. Sem fyrr neitaði hann að upplýsa hvar sú geymsla væri. Einnig neitaði hann því að hafa fest hestakerru í dráttarkrók á bifreiðinni og kvaðst ekki kannast við að hafa ekið um Heiðartröð með slíka kerru í eftirdragi aðfaranótt 26. desember. Hins vegar viðurkenndi hann að hafa verið á Ásbrúarsvæðinu milli kl. 03:30 og 05:30 þá nótt, en sagðist ekki vita hvort ákærði Viktor hafi einnig verið staddur þar á sama tíma.
Meðal gagna málsins eru ljósmyndir af Nissan-pallbíl í eigu Smára Fannars, bróður ákærða Sindra, sem teknar voru af lögreglunni undir rannsókn málsins. Við skoðun þeirra og samanburð við þann pallbíl, sem sést í eftirlitsmyndavél við gagnaver BDC Mining ehf. aðfaranótt 26. desember, þykir dóminum augljóst að þar er um sama bíl að ræða. Þá þykir skýring ákærða Sindra á tilgangi ferðar hans til Reykjanesbæjar ótrúverðug, og hefur hann heldur ekki á nokkurn hátt reynt að renna stoðum undir hana. Samkvæmt því og öðrum fyrirliggjandi gögnum þykir dóminum sannað að Sindri Þór hafi gerst sekur um tilraun til innbrots og þjófnaðar í umrætt gagnaver aðfaranótt 26. desember 2017.
Fyrir dómi bar Viktor Ingi að hann hefði verið heima hjá fjölskyldunni eða að vinna að kvöldi jóladags og annan í jólum 2017. Þó kvaðst hann líklega hafa farið til Reykjanesbæjar, en neitaði því að hafa farið þangað með Sindra, Matthíasi eða Pétri. Ekki kvaðst hann kunna skýringu á því hvers vegna símar þeirra Sindra hafi báðir verið við Grænás í Reykjanesbæ á tímabilinu frá kl. 03:30 til 05:30 aðfaranótt 26. desember, en gat sér þess til að hafa verið þarna á vegum vinnunnar. Ekki sagðist hann heldur vita hvers vegna símar þeirra tveggja ferðuðust saman frá Reykjanesbæ til Hafnarfjarðar sömu nótt. Þá neitaði hann því að hafa ekið jepplingi um Heiðartröð umrædda nótt, og kvaðst hvorki kannast við þá bifreið né þá sem stigu út úr henni og gengu að gagnaverinu. Ákæruvaldið byggir hins vegar á því að ákærði Viktor hafi verið ökumaður þessa jepplings, sem sé af gerðinni Honda CR-V, en hjá lögreglu sagðist hann hafa verið að vinna hjá bílaleigunni Icecarrental í desember 2017, og því hafi hann haft aðgang að Hondu-bifreiðum, m.a. Hondu CR-V.
Þótt umræddum jepplingi svipi mjög til sambærilegrar gerðar og jepplings af gerðinni Honda CR-V er ekki unnt að kveða upp úr um tegund bifreiðarinnar hér. Hins vegar telur dómurinn ótrúverðugan framburð ákærða Viktors, þess efnis að hann hafi líklega verið í Reykjanesbæ umrædda nótt á vegum vinnunnar. Er þá einkum haft í huga að samkvæmt framburði vitnisins Sævars Sveinssonar fyrir dómi, en hann er fyrrverandi starfsfélagi ákærða hjá bílaleigu Bernhard, vann ákærði aðallega í útibúi fyrirtækisins í Reykjavík og var reglulegur vinnutími hans frá kl. 09:00 til kl. 18:00. Þá liggja fyrir símagögn um nánast samfelld samskipti hans og ákærða Sindra, alls 34 að tölu, frá miðnætti umrædda nótt og allt til kl. 05:45 að morgni. Í ljósi þessa þykir dóminum sannað að ákærði Viktor hafi átt aðild að því broti sem í ákærunni greinir, ásamt ákærða Sindra.
Ákæruvaldið telur ótrúverðuga þá skýringu ákærða Matthíasar að hann hafi verið heima hjá sér aðfaranótt 26. desember 2017 og muni heldur ekki eftir símtali við Sindra þá nótt. Byggir ákæruvaldið á því að Matthías hafi einnig átt aðild að tilraun til innbrots og þjófnaðar í umrætt gagnaver.
Áður er þess getið að á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél við gagnaverið má sjá tvo menn stíga út úr jepplingi sem lagt var skammt frá gagnaverinu kl. 04:07 þessa nótt. Annar þeirra fer út að framan hægra megin, en hinn að aftan vinstra megin, og ganga þeir saman að húsinu. Ekki verður séð að ökumaður fari út úr bifreiðinni og má því ætla að um þrjá menn hafi verið að ræða. Þegar Nissan-pallbílnum er hins vegar ekið að gagnaverinu nokkru síðar með hestakerruna í eftirdragi sjást aðeins tveir menn, annar þeirra stendur við hestakerruna, en hinn fer inn í húsið.
Að undanskildu stuttu símtali ákærða Sindra við ákærða Matthías kl. 02:09 aðfaranótt 26. desember 2017 liggja engin gögn fyrir sem ótvírætt sýna fram á aðild Matthíasar að þeim verknaði sem lýst er í þessum ákærulið. Þykir aðild hans því ósönnuð og verður hann sýknaður af þeirri háttsemi sem þar er lýst. Á hinn bóginn verða ákærðu Sindri Þór og Viktor Ingi sakfelldir fyrir tilraun til innbrots og þjófnaðar í umrætt gagnaver. Er háttsemi þeirra rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákæruliðir V, VI og VII
Þar sem þessir ákæruliðir eru samtengdir og mynda eina samfellda heild í atburðarás og ætlaðri aðild hvers ákærðu að innbroti og þjófnaði í gagnaver Advania aðfaranótt 16. janúar 2018, verður hér fjallað sameiginlega um þá.
Samkvæmt ákærulið V eru Sindri Þór, Matthías Jón og Pétur Stanislav ákærðir „fyrir stórfelldan þjófnað, með því að hafa í sameiningu og samvinnu við ákærðu Viktor Inga, Hafþór Loga og X, undirbúið, lagt á ráðin, skipulagt og framkvæmt innbrot og þjófnað í gagnaver Advania, Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ, á tímabilinu frá kl. 03:00 til 05:00 aðfaranótt 16. janúar 2018, en ákærðu tóku þaðan í heimildarleysi tölvubúnað og fylgihluti hans, alls 225 stk. BitCoin Antminer S9 14 Th tölvur og 225 stk. BitCoin APW3++ aflgjafar, samtals muni að áætluðu verðmæti kr. 46.857.452,-, samtals tjón að áætluðu verðmæti kr. 78.140.951,-.“
Fyrir dómi játuðu Sindri Þór og Matthías Jón sök, en neituðu hins vegar skipulagningu og undirbúningi verknaðarins. Ákærði Pétur Stanilsav neitaði aðild að verknaðinum. Aðrir ákærðu, Viktor Ingi, Hafþór Logi og X, sem tilgreindir eru sem samverkamenn í þessum ákærulið, hafa allir neitað sök. Þar sem þrír síðastgreindu aðilar eru jafnframt ákærðir sem aðalmenn í brotinu samkvæmt VI. og VII. ákærulið, verður fjallað um þátt þeirra síðar.
Fyrir dómi bar ákærði Matthías að þrír aðilar hefðu staðið að áðurnefndu innbroti, hann sjálfur og ákærði Sindri, auk þess þriðja sem hann neitaði að nafngreina. Sérstaklega spurður neitaði hann því að sá hefði verið bróðir hans, ákærði Pétur. Hins vegar gaf hann greinargóða lýsingu á hlutverki sínu í aðdraganda innbrotsins og við framkvæmd þess, svo og ferð þeirra þriggja til Reykjavíkur að því loknu. Ekki kvaðst hann þó vita hver hefði skipulagt innbrotið og neitaði að tjá sig um hver hefði boðið honum þátttöku í því og gefið honum fyrirmæli um hlutverk sitt. Fram kom þó í máli hans að eftir „Borgarnesmálið“ hefði ákærði Sindri rætt við hann um að „hjálpa honum upp úr skítnum“ og þá bent honum á þann möguleika að taka þátt í fyrirhuguðu innbroti í Advania. Nokkru síðar hefði honum verið boðin þátttaka í því. Þrátt fyrir framanritað sagði ákærði Matthías að ákærði X hefði stjórnað öllu, hann hefði „ýtt á þá að fara í þetta“, verið […], látið þá hafa kóðann að öryggiskerfinu og jakka merktan […]. Hefði hann hitt X í bíl einu sinni eða tvisvar, en kannski oftar, líklega 8. og 10. janúar 2018, og þá í tengslum við skipulagningu innbrotsins. Sérstaklega spurður hvort X hefði átt frumkvæði að samskiptum við hann um þátttöku hans í innbrotinu neitaði hann því þó. Ákærði Sindri neitaði einnig að segja til þriðja aðilans sem tók þátt í innbrotinu, en tjáði sig um hlutverk sitt við framkvæmd þess og samskipti við ákærða X í aðdraganda þess.
Ákærði Pétur sagðist fyrir dómi eiga síma með númerinu 6660691 og kvaðst ekki vita til þess að einhver annar hafi notað þann síma. Hann neitaði því að hafa hringt nokkrum sinnum í síma ákærða X og síðar rætt við hann á tímabilinu 6. til 9. janúar 2018, þrátt fyrir gögn þess efnis, og sagðist ekkert vita um það. Hann neitaði því einnig að hafa verið á Ásbrú að kvöldi 9. janúar og aðfaranótt 10. sama mánaðar og þá hitt ákærða X, en sagði eins og oft áður að líklega hafi hann verið heima hjá sér. Sömuleiðis neitaði hann því að hafa verið á Ásbrú aðfaranótt 14. janúar og gaf enn þau svör að líklega hafi hann þá bara verið heima hjá sér. Þegar hann var spurður út í eftirfarandi skilaboð frá Sindra til ákærða Hafþórs aðfaranótt 14. janúar kl. 03:23: „Þeir eru ennþa að biða og það er að verða komið 40m.. matti veit ekki hvort kerfið hafi farið i gang utaf þeim en petur heldur það.. labbandi hinumegin við girðinguna meðfram husunum .. sagði þeim að fara næst og hlusta vel hvenær það fer i gang ef það fer, því það er lika leiðin sem verður notuð. Þeir ætla labbandi svo þeir geti stokkið i felur auðveldlega ef bill kemir“, sagðist hann ekkert kannast við þau og ítrekaði að hann hefði ekki verið á þessum stað. Engu að síður sagði hann að hvorki Sindri né Matthías hafi verið þar, en bætti við að hann kysi að tjá sig ekki frekar um þetta.
Með engu móti er unnt að leggja trúnað á ofangreindan framburð ákærða Péturs, enda liggja fyrir ótvíræð gögn, ekki aðeins þau sem hér hafa verið rakin, heldur einnig önnur símagögn sem tengja hann við meðákærðu, Sindra og Matthías, en einnig ákærða X, og taka af allan vafa um þátt hans í undirbúningi og framkvæmd innbrotsins og þjófnaðar í áðurnefnt gagnaver. Þá ber þess og að gæta að ákærði Pétur er hluti af þeim vinahópi sem allir fimm ákærðu gátu um fyrir dómi og nefndur er hér að framan. Aðrir í þeim hópi eru ákærðu Sindri, Matthías, Viktor og Hafþór Logi, en tveir hinna síðastgreindu voru á Spáni á þeim tíma sem innbrotið í Advania var framið. Í ljósi alls þessa þykir aðild ákærða Péturs að áðurnefndu innbroti hafin yfir skynsamlegan vafa. Varðar háttsemi hans og ákærðu Sindra og Matthíasar við 1., sbr. 2., mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í VI. ákærulið er X ákærður fyrir „stórfelldan þjófnað, en til vara fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, fyrir að hafa, í sameiningu og í samvinnu við ákærðu Sindra Þór, Matthías Jón og Pétur Stanislav, sbr. ákærulið V og Hafþór Loga og Viktor Inga, sbr. ákærulið VII, undirbúið og skipulagt innbrot og þjófnað í gagnaver Advania, Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ, sbr. ákæruliði V. og VII., með því að láta meðákærðu í té öryggisupplýsingar um gagnaverið ásamt öryggiskóða, sem hann bjó yfir […], en öryggiskóði var notaður til að taka af öryggiskerfi í gagnaverinu þegar innbrot og þjófnaður var framkvæmdur í gagnaverinu á tímabilinu 03:00-05:00 aðfaranótt 16. janúar 2018, en jafnframt fyrir að hafa látið ákærðu Sindra Þór, Matthíasi Jóni og Pétri Stanislav í té fatnað […] til að íklæðast við innbrotið og þjófnaðinn.“
Eins og fram er komið neitar ákærði X sök. Í skýrslutöku hjá lögreglu sagðist hann engu að síður hafa látið innbrotsaðilum í té „allar upplýsingar“ um gagnaverið, s.s. að byggingarnar væru með öryggiskerfi, öryggismyndavélum og hreyfiskynjurum, hurðir þeirra væru lélegar, að farnar væru reglulegar vaktferðir um byggingarnar, auk þess sem hann upplýsti hvar myndavélar væru. Fyrir dómi sagðist hann á hinn bóginn aðeins hafa gefið þeim almennar upplýsingar, s.s. um að svæðið væri vaktað og mikið væri þar af öryggismyndavélum, um þjófavarnar- og brunaviðvörunarkerfi og hvernig vaktferðum væri háttað. Bæði hjá lögreglu og fyrir dómi neitaði hann því að hafa gefið upplýsingar um öryggiskóðann að öryggiskerfinu, svo og að hafa látið í té flík, merkta […]. Einnig neitaði hann því að hafa teiknað eða afhent aðilum þá afstöðumynd af gagnaverinu, sem síðar fannst í buxnavasa ákærða Sindra.
Í málinu er að finna fjölda símagagna sem staðfesta samskipti ákærða X og ákærðu Sindra og Péturs í aðdraganda innbrotsins, en einnig samskipti hans og ákærða Kjartans, sbr. VIII. ákærulið. Hér að framan hefur verið gerð grein fyrir símasamskiptum X og ákærða Péturs. Þá viðurkenndi Sindri fyrir dómi að hafa rætt símleiðis við X að kvöldi 9. janúar og síðar að hafa átt við hann telegram-samskipti. Spurður sérstaklega um slík samskipti við X aðfaranótt 14. janúar, þar sem rætt var um hreyfiskynjara, kvaðst Sindri ekki muna eftir þeim, en tók þó fram að vel gæti verið að þau hafi átt sér stað. Í öllum þessum samskiptum var ákærði X færður í símaskrá Sindra undir nafninu „Ivar sec“. X viðurkenndi einnig fyrir dómi að hafa nokkrum sinnum rætt við Sindra á „Telegram“, þar sem Sindri hefði m.a. spurt hvort hann „nái að fara inn á næstu dögum“, og hafi þar átt við hvort X kæmist inn í gagnaverið til að afla frekari upplýsinga. Einnig hafi Sindri spurt hvort hreyfiskynjari væri tengdur ljósunum eða kerfinu, en ekki sagðist X hafa vitað svarið við því. Það svar virðist þó ekki sannleikanum samkvæmt þar sem fram kemur í samskiptum ákærðu Sindra og Hafþórs Loga aðfaranótt 14. janúar, þar sem þeir ræða um að kerfið hafi farið í gang þegar ákærðu Matthías og Pétur fóru að lóð gagnaversins, að hann, þ.e. ákærði Sindri, sé að „spurja sec gæjan“ um hreyfiskynjara fyrir utan húsið. Síðan segir Sindri eftirfarandi: „Hann sagði að það er ekki uti nema fyrir ljos og þeir tengjast ekki öryggiskerfinu.“
Eins og fram er komið hefur ákærði X ætíð neitað því að hafa látið ákærðu, Sindra, Matthíasi eða Pétri, í té upplýsingar um öryggiskóða gagnaversins, teikningu þá er síðar fannst í buxnavasa ákærða Sindra, svo og flík sem […] ákærði Matthías klæddist við innbrotið. Sindri sagðist hins vegar fyrir dómi hafa fengið teikninguna frá X og Matthías kvaðst bæði hafa fengið öryggiskóðann og flíkina frá honum. Bætti Matthías við að X hefði í raun stjórnað öllu og ýtt á þá um að fara í þetta, enda hafi hann verið „insider“. Þá kvaðst ákærði Matthías einnig hafa hitt ákærða X einu sinni eða tvisvar, en kannski oftar, í bíl utan við heimili hans, auk þess sem hann sagðist einu sinni hafa farið heim til hans í því skyni að sækja jakkann frá […]. Bætti Matthías við að líklega hafi kærasta X þá verið heima, en hann hafi komið í forstofuna.
Þegar litið er heildstætt á málsatvik, gögn þess og framburð ákærðu og vitnisins Helenu Bjarkar, barnsmóður og kærustu ákærða X, er það álit dómsins að ákæruvaldinu hafi ekki tekist að færa sönnur á að X hafi látið ákærðu í té aðrar upplýsingar en þær sem hann hefur þegar gengist við. Ljóst er engu að síður að þær upplýsingar komu ákærðu að góðum notum við skipulagningu og undirbúning innbrotsins. Ekki liggur fyrir hvað ákærða X gekk til með því að veita þessar upplýsingar, en hann neitaði því að hafa fengið greitt fyrir liðsinni sitt. Hins vegar sagðist hann hafa óttast ákærðu þegar þeir hittu hann að máli, en taldi þó enga ástæðu til að greina yfirmönnum sínum eða lögreglu frá erindi þeirra. Vekur það nokkra furðu, en bendir til þess að hann hafi af fúsum og frjálsum vilja veitt atbeina sinn. Ekkert styður þó þá staðhæfingu ákærða Matthíasar að X hafi í raun stjórnað öllu og ýtt á ákærðu um innbrotið og þjófnaðinn. Að öllu ofanrituðu virtu, en einnig þegar til þess er litið að framburður ákærða X um atvik málsins þykir í nokkrum atriðum ótrúverðugur og að hluta til mótsagnakenndur, er það niðurstaða dómsins að sakfella beri ákærða X fyrir þá háttsemi sem hann er sakaður um. Í ljósi þess takmarkaða hlutverks sem hann hafði í undirbúningi verknaðarins verður brot hans virt sem hlutdeild í þeim brotum ákærðu Sindra, Matthíasar og Péturs, sem þeir hafa þegar verið sakfelldir fyrir samkvæmt V. ákærulið. Varðar háttsemi hans við 1., sbr. 2., mgr. 244. gr., sbr. 1. og 4. mgr. 22. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Samkvæmt VII. ákærulið eru Viktor Ingi og Hafþór Logi ákærðir „aðallega fyrir stórfelldan þjófnað, fyrir að hafa í sameiningu og í samvinnu við ákærðu Sindra Þór, Matthías Jón, Pétur Stanislav og X, sbr. ákæruliði V. og VI., en til vara fyrir hlutdeild í brotum þeirra sbr. framangreinda ákæruliði, aðallega með því að hafa í sameiningu og samvinnu undirbúið, lagt á ráðin og skipulagt innbrot og þjófnað í gagnaver Advania, Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ sem ákærðu Sindri Þór, Matthías Jón og Pétur Stanislav framkvæmdu á tímabilinu 03:00-05:00 aðfaranótt 16. janúar 2018, og tóku þaðan tölvubúnað og fylgihluti hans, alls 225 stk. BitCoin Antminer S9 14Th tölvur og 225 stk. BitCoin APW3++ aflgjafar, samtals muni að áætluðu verðmæti kr. 46.857.452,-, samtals tjón að áætluðu verðmæti kr. 78.140.951,-. Til vara fyrir að hafa í orði, verki og með fortölum, hvatt til og stutt ákærðu Sindra Þór, Matthías Jón og Pétur Stanislav, við undirbúning, skipulagningu og framkvæmd framangreinds innbrots í gagnaver Advania.“
Fram er komið að á þeim tíma sem ákærðu Sindri, Matthías og Pétur brutust inn í oftnefnt gagnaver Advania aðfaranótt 16. janúar 2018 bjuggu ákærðu Viktor Ingi og Hafþór Logi á Spáni. Af símagögnum, sem liggja fyrir í málinu, má þó ráða að bæði Viktor Ingi og Hafþór Logi áttu í töluverðum samskiptum við ákærðu Sindra og Matthías í aðdraganda innbrotsins. Þannig má m.a. sjá að ákærði Hafþór Logi og Sindri áttu um 50 mínútna samtal að kvöldi 10. janúar 2018. Ákærði Sindri kvaðst þó ekkert muna eftir því samtali, en ákærði Hafþór kvaðst ekki muna efni samtalsins, en taldi að það hefði bara verið spjall. Vert er að nefna að ákærði X bar um það hjá lögreglu og fyrir dómi að í eitt skiptið er hann kom í bílinn, sem innbrotsaðilar höfðu komið á að heimili hans, hefði hann heyrt ákærða Sindra ræða við mann sem hann kallaði Haffa og hafi hann talið hann vera skipuleggjandann, enda hafi sá verið að segja þeim fyrir verkum. Hafi síminn verið á „speaker“ og á skjánum hafi staðið „XYZ“, en þannig mun ákærði Hafþór hafa verið skráður í símanúmeraskrá ákærða Sindra. Fyrir dómi sagði ákærði X hins vegar að í símtalinu hefði „XYZ“ sagt að hann væri erlendis og gæti því ekki séð fyrir sér hvernig ætti að framkvæma þetta. Hann hafi þó komið með tillögur og verið ráðgefandi, en sagt að þeir þyrftu sjálfir að finna út úr þessu.
Sérstaklega eru athyglisverð samskipti milli ákærðu Hafþórs og Sindra aðfaranótt 14. janúar 2018, en þau liggja fyrir í endurriti. Þar ræða þeir um að kerfið hafi farið í gang og eiga þar við öryggiskerfi gagnaversins, en á þeim tíma voru ákærðu Matthías og Pétur að kanna þar aðstæður eins og áður er rakið. Þegar Sindri segir að kerfið hafi farið í gang þótt þeir hafi ekki verið komnir inn á lóðina segir Hafþór: „Fuck þetta er slæmt“ og síðan: „Aftur 2 daga i röð“ og enn síðar: „En ekki kerfi þegar tið foruð“. Og Sindri svarar: „Nei eg for 3-4 sinnum“. Jafnframt er þar rætt um öryggisvörðinn, „sec gæjann“, og áform um að setja „tracker“ undir bílinn. Í lok samskiptanna, þegar Sindri segist hafa það eftir „sec gæjanum“ að hreyfiskynjarar séu ekki úti nema fyrir ljós og að þeir tengist ekki öryggiskerfinu, segir Hafþór: „Geðveikt Þetta er fullkomið“. Sindri svarar þá: „Elskum þetta“ og Hafþór síðan: „Þetta er það besta í fuckin heimi!!!!“. Ákærði Sindri var spurður um þessi samskipti fyrir dómi og sagðist hann aðeins hafa verið að upplýsa Hafþór um sína hagi og verkefni sitt, og að eitthvað gott væri að fara í gang fyrir hann. Ákærði Hafþór var einnig spurður um hið sama og sagðist hann ekki muna eftir þeim, en myndi þó eftir því að Sindri hefði verið í einhverju verkefni, „að stela einhverjum upplýsingum eða eitthvað“, enda hafi Sindri á þessum tíma verið í peningavandræðum.
Auk ofanritaðs er í gögnum málsins að finna ljósmynd, sem tekin var inn um lúgu á umræddu gagnaveri, og sýnir hún m.a. hillur eftir endilöngum tækjasal hússins. Virðast hillurnar fullar af tölvubúnaði sem tengdur er rafmagni. Mynd þessi fannst í síma Sindra og hafði hún verið send ákærða Hafþóri að kvöldi 15. janúar 2018. Sindri sagði fyrir dómi að ákærði X hefði sent sér ljósmyndina, en samkvæmt rannsóknargögnum var hún tekin á síma Sindra. Þegar ákærði Hafþór var spurður um myndina sagðist hann ekki muna eftir henni, enda hefði hann ekki opnað hana. Í gögnum málsins er þó að finna samskipti milli Sindra og Hafþórs þegar myndin var send þeim síðarnefnda. Þar segir Sindri: „Sest ekkert a milli“ og Hafþór svarar: „5 metrar Þeir sja ekkert“.
Loks ber hér að nefna samskipti milli ákærða Viktors Inga og Sindra að kvöldi 14. janúar 2018, en þar má sjá að ákærði Viktor er að leiðbeina Sindra um uppsetningu eða tengingu á „tracker“, en eins og fram er komið var ætlunin að nota hann til að fylgjast með vaktbifreið öryggisvarða. Af þeim samskiptum virðist þó mega ráða að einhverjir tæknilegir örðugleikar hafi komið í veg fyrir tengingu, enda sögðu báðir ákærðu, Sindri og Matthías, fyrir dómi að ekkert hefði orðið af því að „tracker“ yrði notaður.
Samkvæmt framansögðu þykir enginn vafi leika á því að ákærðu Hafþóri Loga og Viktori Inga hafi verið fullkunnugt um þau áform ákærðu Sindra, Matthíasar og Péturs að brjótast inn í gagnaver Advania, og veittu þeir báðir ákærða Sindra ráð og liðsinni við undirbúning og skipulagningu brotsins. Verður þátttaka þeirra virt sem hlutdeild í þeim verknaði sem lýst er í V. ákærulið og varðar háttsemi þeirra við 1., sbr. 2., mgr. 244. gr., sbr. 1. og 4. mgr. 22. gr., hegningarlaga nr. 19/1940.
Samkvæmt verknaðarlýsingu VI. ákæruliðar er ákærði X talinn hafa framið það brot sem þar greinir í sameiningu og samvinnu við ákærðu Sindra, Matthías, Pétur, Hafþór Loga og Viktor Inga. Þar sem engin gögn liggja hins vegar fyrir um samskipti milli ákærðu Hafþórs Loga og Viktors Inga annars vegar, og ákærða X hins vegar, verður ekki séð að ákærðu Hafþór og Viktor hafi átt aðild að því broti, þannig að virt verði þeim til sakar.
VIII. ákæruliður
Í þessum ákærulið er Kjartan Sveinarsson ákærður „aðallega fyrir hlutdeild en til vara fyrir eftirfarandi hlutdeild, í innbroti og þjófnaði í gagnaver Advania, Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ, aðfaranótt 16. janúar sl., sbr. ákæruliði V.-VII., sem ákærðu Sindri Þór, Matthías Jón, Pétur Stanislav framkvæmdu í félagi við ákærðu Viktor Inga, Hafþór Loga og X, með því að útvega og koma á samskiptum milli ákærðu Hafþórs Loga og Matthíasar Jóns við ákærða X og með þeirri háttsemi sinni aðstoðað meðákærðu við framkvæmd verknaðarins og haldið við ólöglegum afleiðingum brotsins.“
Við skýrslutöku hjá lögreglu 28. júní 2018 greindi ákærði Kjartan frá því að hringt hefði verið í hann í byrjun desember 2017 úr símanúmeri sem hann kannaðist ekki við. Hefði hann því ekki svarað. Nokkru síðar hefði hann fengið skilaboð á „Telegram“ frá manni sem hann skuldaði peninga og hafi þau hljóðað um að hann skyldi svara þeim sem var að reyna að ná í hann. Í kjölfarið kvaðst hann hafa flett upp númeri þess sem hafði hringt og reyndist eigandi þess vera ákærði Matthías Jón. Hafi hann því hringt í Matthías og hafi hann lagt hart að Kjartani að koma honum í samband við einhvern öryggisvörð á Suðurnesjum. Í fyrstu sagðist Kjartan ekki hafa orðið við beiðninni, en á endanum hafi hann gefið Matthíasi upp símanúmerið hjá ákærða X. Kjartan sagðist ekki hafa vitað hvers vegna viðmælandi hans vildi ná sambandi við X, en hann hafi grunað það þegar hann frétti síðar af handtöku X. Aðspurður hvort ákærði Hafþór Logi hefði sent honum áðurnefnd skilaboð, þess efnis að hann skyldi svara þeim sem var að reyna að ná símasambandi við hann, neitaði hann því. Hins vegar sagðist hann á þessum tíma hafa skuldað Hafþóri Loga tæpar tvær milljónir vegna fíkniefna, og taldi það því ekki tilviljun að hann hefði verið beðinn um að koma á sambandi við einhvern öryggisvörð.
Í sömu yfirheyrslu sagðist ákærði Kjartan hafa hringt í X og spurt hann hvort hann vildi tala við menn, og gæti hann haft ávinning af því. X hafi fallist á það og þeir tveir hafi síðan hist á bílaplaninu við Sambíóin að Álfabakka 6. janúar 2018. Kvaðst Kjartan hafa afhent X símann og hafi X rætt við þann sem í símanum var. Eftir það sagði Kjartan að afskiptum sínum af þessu máli hafi verið lokið.
Framburður ákærða Kjartans fyrir dómi er nokkurn veginn samhljóða og í skýrslu hans hjá lögreglu. Þar sagðist hann þó aðeins hafa skuldað Hafþóri Loga peninga vegna fasteignakaupa á Spáni, um 800.000 krónur, en sagðist jafnframt hafa skuldað öðrum aðila vegna fíkniefnaviðskipta. Ekki vildi hann greina frá nafni þess aðila. Þá sagðist hann ekki vita hver var viðmælandi hans og ákærða X þegar hann rétti X símann á bílaplaninu við Sambíóin. Sérstaklega aðspurður sagðist Kjartan ekki vita hvers vegna hann var beðinn um að útvega öryggisvörð, en bætti við að honum hafi „bara verið sagt að gera það, redda einhverjum“. Hins vegar hafi hann grunað að það væri í ólöglegum tilgangi. Þá játaði hann því að hafa gefið þeim sem í hann hringdi upp símanúmerið hjá X í gegnum „Telegram“. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa þorað að tilkynna lögreglunni um þetta og bætti við að honum hefði verið hótað líkamsmeiðingum ef hann yrði ekki við erindinu. Loks gat hann þess að hann hefði ekki vitað um málið fyrr en greint var frá því í fjölmiðlum.
Samkvæmt því sem að ofan er rakið er sannað að ákærði Kjartan kom ákærða Matthíasi í samband við öryggisvörðinn, ákærða X, þótt honum hlyti að hafa verið ljóst að það væri í ólöglegum tilgangi, eins og raunin varð. Þrátt fyrir það taldi hann ekki ástæðu til að tilkynna lögreglunni um málið. Með liðsinni sínu, sem dómurinn álítur að hafi verið nauðsynlegur þáttur í undirbúningi og skipulagningu innbrotsins í gagnaver Advania, hefur ákærði Kjartan gerst sekur um hlutdeild í þeim verknaði. Telst háttsemi hans varða við 1., sbr. 2., mgr. 244. gr., sbr. 1. og 4. mgr. 22. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IX. ákæruliður
Eins og áður er fram komið hefur ákærði Pétur Stanislav gengist við því fíkniefnalagabroti sem honum er gefið að sök í þessum ákærulið. Jafnframt hefur hann fallist á upptöku tilgreindra fíkniefna. Þar sem ekki er ástæða til að draga í efa að játning hans sé sannleikanum samkvæm er látið nægja að skírskota til ákæru um málsatvik, sbr. 164. gr. og 4. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Er því sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem í þessum lið greinir og er þar rétt færð til refsiákvæða.
X. ákæruliður
Við leit lögreglu í bifreið ákærða Matthíasar 1. febrúar 2018 fannst rafstuðbyssa, sem hann kvaðst eiga. Sagðist hann lengi hafa átt hana en aldrei notað hana sem slíka, enda gæfi hún ekki rafstuð. Hins vegar hefði hann notað hana sem vasaljós. Hann heimilaði upptöku á byssunni, en neitaði því af framangreindum ástæðum að hafa gerst sekur um vopnalagabrot, eins og hann er ákærður fyrir samkvæmt þessum ákærulið.
Vitnið Jón Halldór Sigurðsson lögreglumaður var fyrir dómi spurður um ofangreinda rafstuðbyssu. Sagði hann að hlutur þessi hefði tvenns konar virkni; annars vegar sem vasaljós, en hins vegar gæfi hann rafstuð og flokkaðist því sem vopn, sem óheimilt væri að selja hér á landi. Sagði hann ljóst að hluturinn gæfi rafstuð, kveikti á honum fyrir dómi og sagðist greina það á því hljóði sem hluturinn gæfi frá sér. Með vísan til þessa, sbr. og e-lið 1. mgr. 2. gr. vopnalaga nr. 16/1998, þykir sannað að ákærði Matthías hafi gerst sekur um vopnalagabrot það sem hann er sakaður um samkvæmt þessum ákærulið. Er háttsemi hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Samkvæmt öllu framanrituðu er það niðurstaða dómsins að ákærði Sindri Þór Stefánsson hafi verið höfuðpaurinn í þeirri brotahrinu sem lýst er í ákæru og varðar innbrot og þjófnað í gagnaver sem hýstu tölvubúnað og fylgihluti til að „grafa“ eftir bitcoin. Hafi hann skipulagt brotin, undirbúið þau í þaula og notið til þess liðsinnis annarra ákærðu, svo sem lýst er í hverjum ákærulið. Teljast brot þessi stórfelld, ekki einungis vegna þess verðmætis sem stolið var hverju sinni, heldur einnig vegna þeirrar aðferðar sem viðhöfð var við undirbúning og í aðdraganda þeirra. Þá voru brotin hverju sinni framin af mörgum ákærðu í sameiningu og reyndu þeir til hins ýtrasta að hylja slóð sína og villa um fyrir lögreglu. Augljóst þykir einnig að allir hafi þeir sammælst um að veita lögreglu engar upplýsingar og aldrei að nefna samverkamenn. Hafa allir ákærðu unnið sér til refsingar.
Ákærði Sindri Þór Stefánsson er fæddur í ágúst 1986 og á að baki töluverðan sakaferil, sem nær allt til ársins 2005. Á þeim tíma hefur hann m.a. fjórum sinnum hlotið dóm fyrir auðgunarbrot, auk nokkurra dóma fyrir brot á umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hinn 27. nóvember 2017 var hann í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af voru 10 mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára, fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Sá dómur var hegningarauki við skilorðsdóm frá 31. mars sama ár vegna brota á sömu lögum. Í samræmi við ákvæði 60. gr., sbr. 77. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940 verður fyrrnefndur dómur nú tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi vegna beggja málanna.
Eins og fyrr segir játaði ákærði innbrot og þjófnað í gagnaver AVK ehf. í Borgarnesi og í gagnaver Advania að Ásbrú, sbr. ákæruliði III og V, en neitaði undirbúningi og skipulagningu þeirra. Verður hann sakfelldur fyrir þau brot, en í ljósi þess sem áður er rakið þykir neitun hans á undirbúningi og skipulagningu þeirra að engu hafandi. Þá verður hann einnig sakfelldur fyrir þau brot sem lýst er í ákæruliðum I og IV, en sýknaður af þeim verknaði sem lýst er í II. ákærulið. Við ákvörðun refsingar ber að taka tillit til játningar ákærða, svo og þess að hann hefur verið sýknaður af síðastnefnda ákæruliðnum. Að öllu þessu gættu, en jafnframt með hliðsjón af 2., 5., 6., 7., 8. og 9. tölulið 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í fjögur ár og sex mánuði. Til frádráttar refsivist kemur að fullri dagatölu sá tími sem hann sætti gæsluvarðhaldi undir rannsókn málsins, frá 18. til 22. desember 2017 og frá 2. febrúar til 26. apríl 2018.
Ákærði Matthías Jón Karlsson er fæddur í júní 1992 og hefur samkvæmt framlögðu sakavottorði ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað. Í máli þessu telst sönnuð aðild hans sem aðalmanns í þeim brotum sem lýst er í ákæruliðum I, III og V, en brot samkvæmt síðastnefnda liðnum játaði hann fyrir dómi. Hann viðurkenndi þó ekki að hafa undirbúið og skipulagt það brot. Af framanrituðu þykir þó ljóst að hann tók fullan þátt í undirbúningi þess og skipulagningu, ásamt ákærðu Sindra og Pétri. Verður hann sakfelldur fyrir brot þessi, auk vopnalagabrots samkvæmt X. ákærulið. Hins vegar verður hann sýknaður af þeim brotum sem lýst er í II. og IV. lið ákæru. Með hliðsjón af ofansögðu, og vísan til 2., 5., 6., 7., 8. og 9. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Þá verður með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga gerð upptæk rafstuðbyssa í eigu hans, sbr. X. ákærulið. Til frádráttar refsivist ákærða kemur að fullri dagatölu sá tími sem hann sætti gæsluvarðhaldi undir rannsókn málsins, frá 17. til 20. desember 2017 og frá 2. febrúar til 19. mars 2018.
Ákærði Pétur Stanislav Karlsson er fæddur í október árið 1993. Samkvæmt framlögðu sakvottorði hans gekkst hann undir sektargreiðslu vegna þjófnaðarbrots árið 2010, og hefur það brot ekki áhrif á ákvörðun refsingar nú. Í málinu telst sönnuð aðild hans sem aðalmanns í broti samkvæmt V. ákærulið og sem hlutdeildarmanns í því broti sem lýst er í I. ákærulið. Þá verður hann sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, sbr. IX. ákærulið, en það brot játaði hann fyrir dómi. Á sama hátt og ákærðu Sindri og Matthías verður hann einnig sýknaður af þeim verknaði sem lýst er í II. ákærulið. Samkvæmt ofanrituðu, og með vísan til 2., 5., 6., 7., 8. og 9. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Til frádráttar refsivist ákærða kemur að fullri dagatölu sá tími sem hann sætti gæsluvarðhaldi undir rannsókn málsins, frá 2. til 5. febrúar 2018 og frá 13. til 16. mars 2018. Í samræmi við 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, verður ákærði einnig dæmdur til að sæta upptöku á 14,34 g af kókaíni, sbr. ákærulið IX.
Ákærði Viktor Ingi Jónasson er fæddur í febrúar 1994. Samkvæmt framlögðu sakavottorði gekkst hann undir sektargreiðslu árið 2013 vegna brota á lögum um ávana- og fíkniefni, auk brota á áfengislögum og tollalögum. Brot þessi hafa ekki áhrif á ákvörðun refsingar hans nú. Í máli þessu telst sönnuð aðild hans sem aðalmanns í þeim brotum sem lýst er í ákæruliðum III og IV, en sem hlutdeildarmanns í þeim verknaði sem lýst er í V. ákærulið, sbr. VII. ákærulið. Með vísan til þessa, og þegar hliðsjón er höfð af 2., 5., 6., 7., 8. og 9. tölulið 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði.
Ákærði Hafþór Logi Hlynsson er fæddur í júlí 1987 og á að baki töluverðan sakaferil, allt til ársins 2003, en á þeim tíma hefur hann alls hlotið 13 refsidóma. Var síðasti dómurinn kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur 23. nóvember 2018 og hlaut hann þá 12 mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti. Samkvæmt því sem rakið er undir VII. lið ákærunnar telst sönnuð hlutdeild hans í innbroti og þjófnaði í gagnaver Advania, sbr. V. ákærulið, og verður hann sakfelldur fyrir þá háttsemi. Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til sakaferils hans, en einnig höfð hliðsjón af áðurnefndum ákvæðum 1. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þá ber, í samræmi við fyrirmæli 78. gr. sömu laga, að dæma honum nú hegningarauka við fyrrnefndan dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Að þessu gættu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 20 mánuði.
Ákærði X er fæddur í […]. Sakaferill hans samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ekki áhrif á ákvörðun refsingar hans nú. Í máli þessu hefur hann verið fundinn sekur um hlutdeild í innbroti og þjófnaði í gagnaver Advania samkvæmt V. lið ákærunnar, sbr. VI. ákærulið, og verður hann sakfelldur fyrir þá háttsemi. Við ákvörðun refsingar hans ber að líta til þess að með háttsemi sinni braut hann gróflega trúnað gagnvart […] og skeytti í engu um afleiðingar brotsins. Sem fyrr verður og höfð hliðsjón af 1. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði, en af henni skulu 12 mánuðir bundnir skilorði eins og nánar greinir í dómsorði. Til frádráttar refsivist kemur að fullri dagatölu sá tími sem hann sætti gæsluvarðhaldi, frá 1. til 22. febrúar 2018 og frá 13. til 16. mars 2018.
Ákærði Kjartan Sveinarsson er fæddur í júní árið 1981 og hefur samkvæmt sakavottorði ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað. Í máli þessu hefur hann verið fundinn sekur um hlutdeild í oftnefndu innbroti og þjófnaði í gagnaver Advania eins og rakið er undir ákærulið VIII. Með því hefur hann unnið sér til refsingar. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði. Í ljósi atvika málsins, og að því gættu að hlutverk ákærða takmarkaðist við það eitt að koma innbrotsaðilum í samband við öryggisvörð, þykir rétt að skilorðsbinda refsinguna að öllu leyti eins og nánar greinir í dómsorði.
Í máli þessu krefst brotaþoli, Advania Data Center (ADC), skaðabóta úr hendi ákærðu vegna þess tjóns sem hlaust af innbroti og þjófnaði ákærðu í húsnæði Advania að Sjónarhóli 16, Ásbrú, Reykjanesbæ, aðfaranótt 16. janúar 2018. Nemur krafan samtals 56.171.565 krónum, en eins og áður getur var krafan leiðrétt og lækkuð við upphaf aðalmeðferðar málsins. Byggist krafan á almennum reglum skaðabótaréttar, auk þess sem vísað er til 1. mgr. 172. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Þá krefst brotþoli málskostnaðar að mati dómsins. Allir ákærðu mótmæla kröfunni og krefjast þess að henni verði vísað frá dómi, en til vara að hún verði verulega lækkuð.
Samkvæmt framsalssamningi, sem liggur fyrir í málinu og dagsettur er 22. maí 2018, framseldi GMO-Zcom Iceland ehf. kröfu þessa til Advina Data Center ehf., en við munnlegan flutning málsins kom fram að fyrrnefnda félagið hefði átt þann tölvubúnað og fylgihluti sem stolið var á umræddum tíma. Eftir þjófnaðinn ákvað síðarnefnda félagið, brotaþoli í máli þessu, að bæta fyrrnefnda félaginu það tjón sem félagið varð fyrir, gegn framsali kröfunnar á hendur ákærðu. Samkvæmt því er brotaþoli, Advania Data Center ehf., réttur aðili að kröfunni.
Krafa þessi er annars vegar vegna munatjóns, að fjárhæð 33.683.472 krónur, og miðast við enduröflunarverð þess búnaðar sem stolið var, auk flutningskostnaðar. Hins vegar er krafist bóta vegna tekjumissis þann tíma sem tók að koma upp nýjum búnaði í stað þess sem stolið var, og er sú krafa að fjárhæð 22.488.093 krónur. Með kröfu brotaþola fylgja reikningar vegna kaupa á nýjum búnaði og fylgihlutum, auk flutningskostnaðar. Þá fylgir einnig yfirlit vegna tekjumissis, en það yfirlit var tekið saman af brotaþola.
Ljóst er að ákærðu hafa bakað sér bótaábyrgð með því að brjótast inn í gagnaver Advania og fjarlægja þaðan tölvubúnað og fylgihluti í eigu kröfuhafa, en hlutir þessir hafa ekki fundist þrátt fyrir víðtæka leit lögreglu. Ákærðu, sem allir áttu aðild að þjófnaðinum, verða því dæmdir óskipt til greiðslu skaðabóta vegna munatjóns brotaþola, alls að fjárhæð 33.683.472 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 16. janúar 2018 til 10. október sama ár, en frá þeim degi dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga til greiðsludags. Krafa brotaþola vegna tekjumissis þykir hins vegar vanreifuð, enda ekki studd öðrum gögnum en áðurnefndu yfirliti brotaþola sjálfs. Af þeirri ástæðu verður þeim hluta kröfu brotaþola vísað frá dómi. Ákærðu verða á hinn bóginn dæmdir óskipt til greiðslu málskostnaðar lögmanns brotaþola, 450.000 króna.
Samkvæmt framlögðu yfirliti nemur sakarkostnaður lögreglu vegna rannsóknar á brotum ákærðu samkvæmt ákæruliðum V-VII, þ.e. Sindra Þórs, Matthíasar Jóns, Péturs Stanislav, Hafþórs Loga, Viktors Inga og X, alls 14.586.805 krónum, og gerir ákæruvaldið kröfu um að ákærðu verði dæmdir til greiðslu þess kostnaðar. Eins og rakið hefur verið hér að framan tóku allir þessir ákærðu þátt í þeim brotum sem hér um ræðir og hafa þeir allir verið sakfelldir fyrir þá þátttöku. Með vísan til 2. mgr. 236. gr. laga nr. 88/2008 verða þeir dæmdir óskipt til greiðslu þeirrar fjárhæðar. Þá verða ákærðu í samræmi við úrslit málsins og með vísan til 1. mgr. 235. gr. sömu laga dæmdir til greiðslu málsvarnarlauna skipaðra verjenda sinna, sem ákvörðuð eru með virðisaukaskatti í dómsorði, auk útlagðs kostnaðar og ferðakostnaðar.
Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp dóm þennan.
D ó m s o r ð:
Ákærði Sindri Þór Stefánsson sæti fangelsi í fjögur ár og sex mánuði. Til frádráttar refsivist hans kemur að fullri dagatölu gæsluvarðhald sem hann sætti frá 18. til 22. desember 2017 og frá 2. febrúar til 26. apríl 2018.
Ákærði Matthías Jón Karlsson sæti fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Til frádráttar refsivist hans kemur að fullri dagatölu gæsluvarðhald sem hann sætti frá 17. til 20. desember 2017 og frá 2. febrúar til 19. mars 2018. Upptæk er gerð til ríkissjóðs rafstuðbyssa í eigu ákærða.
Ákærði Pétur Stanislav Karlsson sæti fangelsi í 18 mánuði. Til frádráttar refsivist hans kemur að fullri dagatölu gæsluvarðhald sem hann sætti frá 2. til 5. febrúar 2018 og frá 13. til 16. mars 2018. Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 14,34 g af kókaíni í eigu ákærða.
Ákærði Viktor Ingi Jónasson sæti fangelsi í 18 mánuði.
Ákærði Hafþór Logi Hlynsson sæti fangelsi í 20 mánuði. Ákærði X sæti fangelsi í 15 mánuði, en fresta skal fullnustu 12 mánaða af refsivist hans og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Til frádráttar refsivist ákærða kemur að fullri dagatölu gæsluvarðhald sem hann sætti frá 1. til 22. febrúar 2018 og frá 13. til 16. mars 2018.
Ákærði Kjartan Sveinarsson sæti fangelsi í sex mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærðu greiði óskipt brotaþola, Advania Data Center ehf., 33.683.472 krónur í skaðabætur, ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 16. janúar 2018 til 10. október sama ár, en frá þeim degi dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga til greiðsludags, auk málskostnaðar að fjárhæð 450.000 krónur.
Ákærðu Sindri Þór, Matthías Jón, Pétur Stanislav, Hafþór Logi, Viktor Ingi og X greiði óskipt allan sakarkostnað lögreglu, alls 14.586.805 krónur.
Ákærði Sindri Þór greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 9.275.000 krónur, auk útlagðs kostnaðar lögmannsins, 75.208 krónur, og ferðakostnaðar hans, 72.160 krónur.
Ákærði Matthías Jón greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðna Jóseps Einarssonar lögmanns, 7.863.000 krónur, auk ferðakostnaðar lögmannsins, 87.101 krónu.
Ákærði Pétur Stanislav greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 5.481.000 krónur, auk ferðakostnaðar lögmannsins, 66.000 krónur.
Ákærði Viktor Ingi greiði málsvarnalaun skipaðs verjanda síns, Áslaugar Láru Lárusdóttur lögmanns, 6.324.000 krónur, auk ferðakostnaðar lögmannsins, 106.260 krónur.
Ákærði Hafþór Logi greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Björgvins Jónssonar lögmanns, 3.162.000 krónur, auk útlagðs kostnaðar lögmannsins að fjárhæð 22.429 krónur.
Ákærði X greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 5.481.000 krónur, auk ferðakostnaðar lögmannsins, 175.560 krónur.
Ákærði Kjartan Sveinarsson greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs V. Thordersen lögmanns, 3.478.000 krónur, auk útlagðs kostnaðar lögmannsins, 22.429 krónur, og ferðakostnaðar hans, 33.000 krónur.
Ingimundur Einarsson Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 17.01.2019.