Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

19 dómar fundust

Lykilorð: Ölvun

Héraðsdómur Suðurlands birt 11. apríl 2024

S-688/2023

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Sigurði Erni Sigurgeirssyni (Ólafur Björnsson lögmaður)
Lykilorð: Húsbrot. Ölvun.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var fundinn sekur um húsbrot og brot gegn áfengislögum, með því að hafa ruðst í heimildarleysi inn um ólæstar svaladyr á heimili brotaþola, en verið vísað þaðan á brott, og fyrir að hafa örskömmu síðar ruðst aftur og með sama hætti inn á heimilið í þeim tilgangi að fá húsráðanda með sér þaðan út, en verið vísað þaðan á brott öðru sinni. Ennfremur með því að hafa með framangreindri háttsemi verið með óspektir á almannafæri sökum ölvunar. Var ákærði gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. mars 2022

S-327/2022

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Martins Kozlovskis (enginn)
Lykilorð: Líkamsárás. Ölvun.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og brot á áfengislögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. október 2021

S-1826/2021

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn A (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt og sýknað að hluta fyrir kynferðisbrot. Kynferðisleg áreitni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2021

S-7398/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Gísla Finnssyni (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga. Áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. nóvember 2013

S-507/2013

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn A (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á almennum hegningarlögum og áfengislögum. Gert að sæta fangelsi í níu mánuði, þar af sex skilorðsbundið til tveggja ára. Dæmdur var upp eldri skilorðsdómur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. janúar 2009

E-1195/2009

Halldór Ari Tómasson (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Guðmundur Pétursson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Tryggingafélag sýknað af kröfu eiganda bifreiðar um viðurkenningu bótaskyldu vegna tjóns á bifreið. Niðurstaða dómsins var að tryggingafélagið bæri ekki ábyrgð á tjóninu, þar sem ökumaður og eigandi bifreiðarinnar hefði verið ölvaður er tjónið varð.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 29. júlí 2008

S-33/2008

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Antoni Má Magnússyni (Björn Jóhannesson hrl)
Lykilorð: Siglingar. Skipstjóri. Ölvun.

Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn siglingalögum og dæmdur til greiðslu sektar. Þá var hann jafnframt sviptur skipstjórnarréttindum í þrjá mánuði.

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. apríl 2007

S-44/2007

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Daníel Ægi Kristjánssyni (Grímur Sigurðarson hdl)

Ákært fyrir að hafa valdið hættu og hneykslan, ölvaður á almannafæri með því að sitja uppi í afturrúðu bifreiðar og neita að gefa lögreglu upp nafn og kennitölu. Ákærði sakfelldur fyrir brot á lögreglulögum og lögreglusamþykkt. Þá var háttsemi ákærða færð til 1. mgr. 71. gr. umferðarlaga en ekki sakfellt fyrir þá háttsemi sem í lagaákvæðinu er lýst þar sem þeirri háttsemi var ekki lýst í ákæru.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. febrúar 2006

S-292/2006

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Jónasi Garðarssyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Skipstjóri dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir stórfelld brot á almennum hegningarlögum og siglingarlögum með stórkostlegri vanrækslu við stjórn skemmtibáts, sem olli dauða tveggja farþega um borð og meiriháttar líkamsmeiðslum þess þriðja.