Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

113 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, o.fl. (innheimta sekta og punktakerfi vegna umferðarlagabrota). nr. 57/1997

Hæstiréttur birt 18. desember 2024

29/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Steinunni Ósk Eyþórsdóttur (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var ákærð fyrir brot gegn 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með því að hafa ekið bifreið svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. S játaði brot sín. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms þar sem S var gert að greiða 180.000 krónur í sekt en kröfu um sviptingu ökuréttar hafnað. Ákæruvaldið byggði á því að refsing S hefði verið ákveðin of væg á lægri dómstigum og kröfu um sviptingu ökuréttar ranglega hafnað. Með dómi Hæstaréttar var staðfest niðurstaða Landsréttar um sakfellingu ákæru. Varðandi ákvörðun sektar leit Hæstiréttur til sjónarmiða að baki 97. gr. umferðarlaga, reglugerðar nr. 1240/2019 um sektir og önnur viðurlög vegna brota gegn umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim og viðauka I við hana um að staðla sektir við umferðarlagabrotum svo og sjónarmiða að baki fyrirmælum 98. gr. umferðarlaga um fullkomna samlagningu sekta. Var sekt hennar fyrir bæði brotin ákveðin 220.000 krónur. Varðandi niðurstöðu um hvort svipta skyldi S ökurétti leit Hæstiréttur til þess að með játningu hennar og afdráttarlausri matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði hefði verið sannað að hún hefði verið óhæf til að stjórna ökutæki örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Brot hennar hafi því verið þess eðlis, óháð öðru framferði hennar við aksturinn, að varhugavert hafi verið að hún stjórnaði vélknúnu ökutæki. Samkvæmt 1. mgr. 99. gr. umferðarlaga og með hliðsjón af dómafordæmum og sjónarmiðum um jafnræði og samræmi í viðurlögum við umferðarlagabrotum var S svipt ökurétti í sex mánuði.

Landsréttur birt 5. apríl 2019

230/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Magnúsi Ólafi Garðarssyni (Haukur Örn Birgisson lögmaður) (Helgi Birgisson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum nr. 50/1987 með því að hafa tiltekinn dag ekið bifreið sinni austur Reykjanesbraut yfir leyfðum hámarkshraða. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 168. gr., 219. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og tilteknum ákvæðum umferðarlaga með því að hafa ekið sömu bifreið of hratt í myrkri, við erfið veður- og akstursskilyrði, langt yfir leyfilegum hámarkshraða vestur Reykjanesbraut, og tekið fram úr bifreiðum án þess að sinna aðgæsluskyldu við framúrakstur, með þeim afleiðingum að hann ók bifreið sinni aftan á aðra bifreið. Hafnaði síðarnefnda bifreiðin utan vegar og varð fyrir skemmdum auk þess sem ökumaður hennar, A, varð fyrir líkamstjóni. Í dómi Landsréttar kom fram hvað varðaði síðara brot M að þegar sönnunargögn málsins og framburður vitna væru virt heildstætt og í ljósi þess að M hefði viðurkennt að hraði bifreiðarinnar hefði ekki verið í samræmi við aðstæður þætti komin fram lögfull sönnun um að M hefði viðhaft þá háttsemi sem í ákæru greindi við afar slæm veður- og akstursskilyrði. Þótti sannað að um stórhættulegan glæfraakstur hefði verið að ræða. Þegar litið væri heildstætt á vítaverðan akstur M og fjölda annarra alvarlegra hraðakstursbrota hans þótti ótvírætt að háttsemi hans fullnægði skilyrðum 1. mgr. 107. gr. a umferðarlaga til þess að heimilt væri að gera bifreið hans upptæka til ríkissjóðs. Refsing M var ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. M var sviptur ökurétti í 12 mánuði frá uppsögu héraðsdóms og gert að greiða A miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. febrúar 2018

S-50/2017

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason aðstoðarsaksóknari) gegn Magnús Ólafur Garðarssyni (Haukur Örn Birgisson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðar- og hegningarlögum og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, og sviptur ökurétti í 12 mánuði. Þá var ákærði dæmdur til að greiða kröfuhafa miskabætur. Kröfu ákæruvaldsins um upptöku bifreiðar ákærða var hafnað.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 19. maí 2017

S-2/2017

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn X (Kristján Óskar Ásvaldsson hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði dæmdur í níu mánaða fangelsi vegna aksturs sviptur ökurétti, líkamsárásar og brots gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Þá var ákærði talinn hafa rofið skilorð eldri dóms.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 19. desember 2013

S-67/2013

Ríkissaksóknari (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Elvari Hákoni Má Jóhannssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn hegningar- og umferðarlögum og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. desember 2012

S-359/2012

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson fulltrúi) gegn Kristvinu Lind Magneudóttur og Baldri Hrafni Þorleifssyni (Bjarni Hauksson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelld fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Ósannað var að fíkniefnin hefðu verið ætluð til sölu og dreifingar og kröfu um upptöku á pening var hafnað.

Hæstiréttur birt 25. október 2012

89/2012

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn Köru Mist Ásgeirsdóttur (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

K var sakfelld í héraði fyrir fjögur ránsbrot, fjögur þjófnaðarbrot, gripdeild, nytjastuld og skjalafals og dæmd til 18 mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar. K játaði sök að því er varðaði önnur brot en ránsbrot og hélt því fram að þá háttsemi bæri að heimfæra undir ákvæði hegningarlaga um gripdeild. Á það var ekki fallist. K hafi í þessum tilvikum beitt líkamlegu ofbeldi og brotin verið ófyrirleitin. Þá taldi Hæstiréttur að þegar virt væri eðli ránsbrotanna og hversu alvarleg þau voru væru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna með tilliti til almennra varnaðaráhrifa. Var niðurstaða héraðsdóms um heimfærslu ránsbrotanna til refsiákvæða og refsingu K því staðfest.

Hæstiréttur birt 10. maí 2012

359/2011

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X og A300 ehf (Guðmundur Birgir Ólafsson hrl)

X og A ehf. var gefið að sök að hafa í tvö skipti skráð rangar upplýsingar um nettóvigt afla skipanna SJ og SÆ á endurvigtunarnótur sem X gaf út fyrir hönd einkahlutafélagsins og að hafa ekki vegið allan afla fyrrgreindra skipa í eitt skipti. Voru brot ákærðu talin varða við nánar tilgreind ákvæði laga um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla, svo og 1. mgr. 158. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í málinu lá fyrir að Neytendastofa hafði, í framhaldi af ábendingu Fiskistofu, áminnt X vegna háttseminnar á grundvelli laga nr. 91/2006. Í dómi Hæstaréttar kom fram að af orðalagi 42. gr. þeirra laga bæri Neytendastofu að meta með hliðsjón af grófleika brots og réttarvörslusjónarmiðum, hvort máli skyldi lokið með stjórnvaldsákvörðun eða það kært til lögreglu. Við það mat bæri Neytendastofu að hafa til hliðsjónar að ákvæði laga nr. 91/2006 væru reist á því megin viðhorfi að ekki yrði bæði lögð á stjórnvaldssekt og dæmd refsing fyrir sama lögbrotið heldur yrði önnur hvor leiðin valin. Neytendastofa gæti ekki framselt öðrum stjórnvöldum áðurgreint mat né gætu önnur stjórnvöld tekið sér einhliða slíkt mat þannig að þýðingu hefði að lögum. Kæra Fiskistofu til ríkislögreglustjóra vegna ætlaðra brota X hefði því ekki verið í samræmi við áðurgreint og ætti sér ekki lagastoð. Var máli ákæruvaldsins gegn X því vísað frá héraðsdómi. Hvað ákærða A ehf. varðaði var fallist á með héraðsdómi að endurvigtanirnar hefðu verið rangar og að umrædd brot hefðu verið félaginu til hagsbóta í skilningi 24. gr. laga nr. 57/1996. Var sektarrefsing A ehf. því staðfest.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. mars 2012

S-1597/2011

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson ftr) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða var gefið að sök að hafa ekið ökutæki án þess að hafa öðlast ökuréttindi og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en fallið var frá öðrum ákærulið. Ákærði játaði sök og var farið með málið eftir 164. gr. laga nr. 88/2008.

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2012

571/2011

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Sigvalda Eiríki Hólmgrímssyni (Sigmundur Hannesson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið ölvaður og sviptur ökurétti á grindverk og síðan yfirgefið vettvang án þess að nema staðar og gera viðvart um slysið. Með hliðsjón af sakaferli var honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans.

Héraðsdómur Reykjaness birt 25. maí 2026 kl. 6:39

S-66/2012

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson ftr) gegn Hrannari Halldórssyni (Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir þjófnað. Hegningarauki. Ákærða var ekki gerð sérstök refsing í málinu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. febrúar 2012

S-66/2012

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson ftr) gegn Hrannari Halldórssyni (Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Sakfellt fyrir þjófnað. Hegningarauki. Ákærða var ekki gerð sérstök refsing í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. janúar 2012

S-1703/2011

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Birgi Rúnari Benediktssyni (Stefán Karl Kristjánsson hdl) og Köru Dröfn Ásgeirsdóttur (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Karlmaður og kona dæmd til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir rán, þjófnaði, gripdeildir o.fl. Karlmaðurinn var sýknaður að hluta af ákærum og frá refsingu hans dregst 90 daga gæsluvarðhaldsvist.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. nóvember 2011

S-504/2011

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Óli Ásgeir Hermannsson ftr) gegn Herði Davíð Kristjánssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í 1 mánaðar skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökurétti í tvö ár fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga vegna umferðarslyss.

Hæstiréttur birt 21. júní 2011

452/2010

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir settur saksóknari) gegn X (Brynjar Níelsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X var sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa ekið bifreið ófær um að stjórna henni örugglega undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sbr., 45. gr. a. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, og með því að hafa haft í vörslum sínum 18,94 g af kókaíni, 8,47 g af hassi og 1,33 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem fundust við leit lögreglu í húsnæði þar sem X var gestkomandi. Var refsing ákærðu ákveðin fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað. Þá var ákærðu gert að greiða 140.000 krónur í sekt og hún svipt ökurétti í 12 mánuði.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. apríl 2011

S-295/2010

Ákæruvaldið (Eyjólfur Ármannsson aðstoðarsaksóknari) gegn X Y og Z (Þórður Heimir Sveinsson hdl)
Lykilorð: Nytjastofnar sjávar.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Fiskvinnslufyrirtæki sektað fyrir brot gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 1. júlí 2010

S-445/2010

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson ftr) gegn Kristni Annel Kristinssyni (008-2009-2440)
Lykilorð: Ökuréttarsvipting.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og akstur undir áhrifum fíkniefna. Sektargreiðsla, svipting ökuréttar og upptaka fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. júní 2010

S-285/2010

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson ftr) gegn Fanneyju Jensdóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir vörslur fíkniefni og fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Refsing ákveðin fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í 2 ár. Þá var ákærða svipt ökurétti í 12 mánuði og gert að sæta upptöku á fíkniefnum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. janúar 2010

S-485/2009

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Stefáni Óskari Orlandi (Guðni Bergsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka á 186 km hraða. Dæmdur til að greiða 200.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sviptur ökurétti í átta mánuði, þar af voru þrír mánuðir vegna uppsafnaðra punkta og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. apríl 2009

S-1275/2008

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr) gegn Viktoríu Guðmundsdóttur (Ásbjörn Jónsson hdl), Andra Þór Guðmundssyni (Bjarni Hauksson hdl) og Jóhannesi Arnari Rúnarssyni (Brynjólfur Eyvindsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

V var sakfelld fyrir að hafa flutt tæplega 300 g af kókaíni til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn, A var sakfelldur yfir að hafa lagt á ráðin um innflutninginn og J var sakfelldur fyrir hlutdeild í honum. Jafnframt var J sakfelldur fyrir þjófnað, tilraun til þjófnaðar, hylmingu og fíkniefna- og sviptingarakstur. A var einnig sakfelldur fyrir sviptingar-, ölvunar- og hraðakstur og fleiri minni umferðarlagabrot, en auk þess fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi (219. gr. almennra hegningarlaga). A og J eiga að baki nokkurn sakarferil og var um að ræða hegningarauka hjá báðum við eldri dóma, auk þess sem báðir rufu skilorð eldri dóma. Skilorðsdómur A var hins vegar látinn halda sér. A hafði áður hlotið dóm fyrir stórfelldan innfluting á fíkniefnum og hafði margítrekað gerst sekur um ölvunar- og sviptingarakstur. Refsing V, sem hafði ekki áður gerst brotleg, var ákveðin fangelsi í 8 mánuði, en fullnustu refsingar 6 mánaða af frestingunni var frestað í 2 ár. Refsing A var ákveðin 2 ára óskilorðsbundið fangelsi, en auk þess var hann sviptur ökurétti ævilangt. Refsing J var ákveðin 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi og jafnframt var hann sviptur ökurétti í 18 mánuði. Haldlögð fíkniefni voru gerð upptæk.

Hæstiréttur birt 29. janúar 2009

93/2008

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson settur saksóknari) gegn Arnari Óla Bjarnasyni (Björgvin Jónsson hrl) og Róberti Wayne Love (Páll Arnór Jónsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

AÓ og R voru sakfelldir fyrir húsbrot, rán og frelsissviptingu fyrir að hafa í heimildarleysi ruðst inn á heimili A, svipt hann frelsi sínu og beitt hann ofbeldi og hótunum um ofbeldi í því skyni að ná frá honum verðmætum. Háttsemi þeirra var talin varða við 252. gr., 231. gr. og 2. mgr. 226. gr. almennra hegningarlaga. Þá var R einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Brot ákærðu var unnið í sameiningu og var fyrirfram skipulagt sem talið var sýna einbeittan brotavilja, einkum af hálfu AÓ, og var virt til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. og 6. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Refsing A var ákveðin fangelsi í tvö og hálft ár og refsing R fangelsi i tvö ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. maí 2026 kl. 6:39

S-63/2009

Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákæra sakfelld fyrir líkamsárás og nokkur umferðarlagabrot

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. janúar 2009

S-415/2008

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn Jóni Ragnari Birkis Dellner (Jón Þór Ólason hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákært og sakfellt fyrir vörslur fíkniefna, hraðakstur og fíkniefnaakstur. Ákærði rauf skilorðsdóm og var sá dómur dæmdur upp. Dæmdur í 2ja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti í tvö ár auk þess að sæta upptöku fíkniefna og greiða allan sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. október 2008

S-923/2008

Ákæruvaldið (Hrannar Már Sigurðsson Hafberg fulltrúi) gegn Guðlaugi Helga Valssyni (Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir líkamsárás gegn neitun. Einnig sakfellt fyrir önnur brot sem voru játuð. 6 mánaða fangelsi og ökuréttarsvipting.

Héraðsdómur Vesturlands birt 5. ágúst 2008

S-200/2008

Ákæruvaldið (Daði Jóhannesson fulltrúi) gegn Guðmundur Andri Kjartanssyni (Pétur Kristinsson hdl)
Lykilorð: Ökuhraði.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir að aka yfir leyfðum hámarkshraða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. maí 2008

S-144/2008

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn X og Einari Helgasyni (sjálfur)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna, nytjastuld, þjófnað og ýmis umferðarlagabrot. Ákærði játaði sök vegna sumra brotanna en neitaðir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Hegningarauki. Dæmdur til greiðslu sektar og sviptingar ökuréttar í sjö mánuði.

Hæstiréttur birt 28. apríl 2008

179/2008

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum (enginn) gegn Axel Jóhanni Helgasyni (Jón Hauksson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með 8. gr. laga nr. 69/2007 sem tók gildi 27. apríl 2007 var 106. gr. a. bætt við umferðarlög nr. 50/1987, og kveður greinin á um heimild til að beita akstursbanni gegn byrjanda sem nýtur ökuréttar á grundvelli bráðabirgðaskírteinis, en með slíku banni töldust ökuréttindi viðkomandi afturkölluð. A hafði við gildistöku nefndra laga hlotið þrjá punkta í ökuferilsskrá sína, en hlaut þann fjórða 29. ágúst 2007. Í tilefni af þessu beitti L framangreindri heimild, en A bar þá ákvörðun undir héraðsdóm. Talið var að í nefndri lagabreytingu hafi falist þynging ítrekunaráhrifa fyrri brota A og að skilyrði og áhrif ítrekunar samkvæmt nefndu lagaákvæði hafi verið skýr og efni þess bæði aðgengilegt og fyrirsjáanlegt þannig að A hefði átt að geta séð fyrir hverjar afleiðingar umferðarlagabrot hans 29. ágúst 2007 hefði að lögum fyrir hann. Var því ekki fallist á með A að með fyrrgreindri ákvörðun hefði refsiheimild verið beitt með afturvirkum hætti og var kröfu hans um að ákvörðunin yrði felld úr gildi því hafnað.

Hleð fleiri dómum…