Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 2. febrúar 2012.
Mál nr. S-66/2012:
Ákæruvaldið
(Óli Ásgeir Hermannsson ftr)
gegn
Hrannari Halldórssyni
(Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Útdráttur
Sakfellt fyrir þjófnað. Hegningarauki. Ákærða var ekki gerð sérstök refsing í málinu.
Mál þetta, sem dómtekið var 17. janúar 2012, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni 21. desember 2011, á hendur Hrannari Halldórssyni, kt. 000000-0000, […], […] og X, kt. 000000-0000, […], […] „I. ([…]) Fyrir þjófnað, með því að hafa þann 12. september 2011, farið inn á aðstöðu starfsmanna á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Skólavegi 6, Reykjanesbæ, opnað þar fataskáp nr. 10 og stolið þaðan, buxum og hettupeysu í eigu A (sic.), kt. 000000-0000, verðmæti ekki vitað, og gullúri í eigu B, kt. 000000-0000 að verðmæti kr. 18.500-. Telst háttsemi þessi varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II. ([…]) Gegn ákærða X fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa 13. nóvember 2011, ekið bifreiðinni […], án þess að hafa öðlast ökuréttindi og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (Amfetamín í blóði mældist 70ng/ml), frá Reykjavík til Hörgársveitar þar sem lögregla hafði afskipti af kærða rétt sunnan við Steðja.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þess er einnig krafist að ákærði X verði dæmdur til sviptingar ökuréttar, skv. 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993, 4. gr. laga nr. 57/1997 og 18. gr. laga nr. 66/2006.“
Við þingfestingu málsins var af hálfu ákæruvalds fallið frá ákæru á hendur ákærða Hrannari að því er varðar þjófnað á gullúri í eigu B að verðmæti 18.500 krónur.
Við þingfestingu máls nr. S-1597/2011 var ekki mætt af hálfu ákærða X. Ákvað dómari með vísan til 2. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 að skilja málið í sundur og dæma þátt ákærða Hrannars sérstaklega. Fékk þáttur ákærða nýtt málanúmer, þ.e. S-66/2011. Um málavaxtalýsingu er skírskotað til I. kafla ákæru.
Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum eins og því er lýst í I. ákæru að teknu tilliti til þess að fallið hefur verið frá ákæru á hendur honum að því er varðar stuld á áðurgreindu gullúri. Þykir með játningu ákærða sem á sér stoð í gögnum málsins sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem ákært er fyrir og er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði er fæddur […]. Hinn 16. júní 2008 var útgáfu ákæru á hendur honum vegna þjófnaðar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Hinn 28. apríl 2009 gekkst ákærði undir 20.000 króna sektargreiðslu hjá lögreglustjóra fyrir þjófnað. Hinn 10. júní sama ár var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir þjófnað. Hinn 18. febrúar 2011 var ákærði dæmdur í 20 mánaða fangelsi, þar af 17 mánuði skilorðsbundna í tvö ár, fyrir þjófnað, tilraun til þjófnaðar, nytjastuld og tilraun til fjársvika. Með dóminum var skilorðsdómurinn frá 10. júní 2009 tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Ákærði hefur lokið afplánun dómsins. Þá var ákærði hinn 3. maí 2011 sakfelldur fyrir þjófnað en ekki gerð sérstök refsing. Um var að ræða hegningarauka við dóminn frá 18. febrúar 2011. Loks var ákærði hinn 20. desember 2011 dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir þjófnað, nytjastuld, tilraun til þjófnaðar og nytjastuldar og akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi.
Brot það, sem ákærði er nú sakfelldur fyrir, framdi hann áður en dómurinn frá 20. desember síðastliðinn var kveðinn upp. Ber því samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að dæma ákærða hegningarauka við þann dóm og ákvarða refsingu í samræmi við ákvæði 77. gr. sömu laga.
Litið er til þess að ákærði hefur ítrekað gerst sekur um þjófnað, sbr. 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er litið til játningar ákærða og ungs aldurs hans. Með hliðsjón af öllu framangreindu og með vísan til þess að um er að ræða hegningarauka við tveggja ára fangelsisdóm frá 20. desember sl. þykir rétt að gera ákærða ekki frekari refsingu í þessu máli. Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., sem þykir hæfilega ákveðin 50.200 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, en annar sakarkostnaður hefur ekki hlotist af meðferð málsins. Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærða, Hrannari Halldórssyni, er ekki gerð sérstök refsing í máli þessu.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., 50.200 krónur.
Ragnheiður Bragadóttir