Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

226 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 48. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. nóvember 2023

S-323/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Þorkeli Frey Sigurðssyni (Steinn S. Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðan akstur án ökuréttar og of hraðan akstur og gert að sæta fangelsi í 145 daga.

Landsréttur birt 20. október 2023

398/2022

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Ragnari Má Svanssyni Michelsen (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

R var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldslögum í rekstri félaganna B og C ehf. sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri þeirra og um tíma daglegur stjórnandi C ehf. Við ákvörðun refsingar R var höfð hliðsjón af 60., 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sem litið var til þess að meðferð málsins hefði dregist úr hófi. Á hinn bóginn ætti R sér engar málsbætur. Til þyngingar refsingar var litið til þess að brot hans hefðu varðað háar fjárhæðir, verið umfangsmikil og skipulögð. Var refsing R ákveðin fangelsi í 24 mánuði en fullnustu 21 af mánuðum hennar bundin skilorði. Þá var honum gert að greiða 133.600.000 krónur í sekt til ríkissjóðs að viðlagðri vararefsingu.

Landsréttur birt 31. mars 2023

634/2022

Ákæruvaldið gegn Mohamad Kourani (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

M var sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, brot gegn sóttvarnalögum, brot gegn valdstjórninni, fyrir að gabba lögreglu, brot gegn vopnalögum, skjalafals og umferðarlagabrot, samkvæmt þremur ákærum sem gefnar voru út 14. apríl 2020, 5. apríl 2022 og 9. maí sama ár. Í fyrstnefnda málinu hafði dómur fallið í héraði 10. september 2020 en með úrskurði Endurupptökudóms 28. mars 2022 var héraðsdómur í málinu endurupptekinn. M sætti geðrannsókn til að meta sakhæfi hans og var niðurstaða dómkvadds matsmanns sú að M væri sakhæfur og refsing gæti borið árangur. Var M því gerð refsing. Við ákvörðun refsingar M var höfð hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þá var tekið tillit til 1., 5., 6. og 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. laganna. Var refsing M ákveðin fangelsi í 12 mánuði en til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist sem hann hafði sætt frá 17. mars 2022 til 16. júní 2022, auk þess sem gerð var upptæk útdraganleg kylfa.

Landsréttur birt 17. mars 2023

382/2022

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Daniel Ceta (Oddgeir Einarsson lögmaður) og Xhoni Naco (Kjartan Ragnars lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

D og X voru ákærðir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa sótt og þar með gert tilraun til að taka við 994,98 grömmum af kókaíni með 17% styrkleika, ætluðu til sölu í ágóðaskyni. Óku D og X saman á bifreið D að póstmiðstöð og X sótti pakkann. Hafði lögregla þá lagt hald á fíkniefnin og skipt þeim út fyrir gerviefni. Ákærðu D og X neituðu báðir sök en voru báðir sakfelldir með hinum áfrýjaða dómi fyrir fyrrgreinda háttsemi sem og vörslur fíkniefna. Sakfelling ákærðu fyrir vörslur fíkniefna var ekki til endurskoðunar fyrir Landsrétti en báðir kröfðust refsimildunar. Ákærði X byggði sýknukröfu sína á því að ekki hefðu verið færðar sönnur á að hann hafi haft ásetning til brots gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Landsréttar kom fram að þrátt fyrir grunsemdir ákærða X um að pakkinn hefði að geyma eitthvað ólöglegt hefði ákærði X farið aftur inn á pósthúsið og fengið pakkann afhentan. Var X því sakfelldur fyrir að hafa gert tilraun til að taka við fíkniefnum sem áður voru í pakkanum, enda lét hann sér í léttu rúmi liggja hvað pakkinn hefði að geyma. Að því virtu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest niðurstaða hans um sakfellingu beggja ákærðu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærðu væru sakfelldir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, um væri að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna en með hliðsjón af litlum styrkleika þótti refsing ákærða D hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði og refsing X fangelsi í 12 mánuði. Frá refsingu ákærðu drægist nánar tilgreint gæsluvarðhald sem þeir höfðu sætt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. júní 2022

S-714/2022

Héraðssaksóknari (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn Mohamad Kourani (Stefán Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, skjalafals, nokkur brot gegn valdstjórninni, fyrir að gabba lögreglu, brot á sóttvarnarlögum og vopnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2022

S-902/2022

Héraðssaksóknari (Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Daniel Ceta (Leó Daðason lögmaður) og Xhoni Naco (Birkir Már Árnason lögmaður)
Lykilorð: Fíkniefnalagabrot. Tilraun.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelldir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2022

S-4575/2021

Héraðssaksóknari (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ragnari Má Svanssyni Michelsen (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn bókhaldslögum og dæmdur í 24 mánaða fangelsi en þar af var fullnustu 21 mánaðar af dæmdri refsingu frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákærði var einnig dæmdur til greiðslu sektar.

Landsréttur birt 26. nóvember 2021

722/2020

Ákæruvaldið gegn Wesley Albert Clark (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með dómi Héraðsdóms Suðurlands 22. maí 2019 var W sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa að ekið bifreið án tilskilinna ökuréttinda og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa fíkniefna. Í ákæru var vísað til þess að tetrahýdrókannabínólsýra hefði mælst í þvagsýni sem W lét í té. Var þessi háttsemi talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987. Var W gert að sæta fangelsi í 30 daga og var hann sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja. Þann 1. janúar 2020 tóku gildi ný umferðarlög en með þeim var sú breyting gerð frá eldri lögum að fellt var á brott það ákvæði þeirra að mæling á ávana- og fíkniefnum „í þvagi“ ökumanns gæti, ein og sér, talist viðhlítandi grundvöllur til stofnunar refsiábyrgðar. Með bréfi til Héraðsdóms Suðurlands 1. september 2020 fór varnaraðili þess á leit að þau viðurlög sem honum voru gerð með dóminum yrði felld niður með vísan til 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að fyrir lægi breytt mat löggjafans á refsinæmi verknaðar og skilyrði 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga væru því uppfyllt hvað varðar kröfugerð W er tæki til viðurlaga fyrir þá háttsemi hans sem ekki er lengur refsinæm. Ekki voru talin efni til að líta svo á að hann hafi fyrirgert rétti sínum til að hafa kröfuna uppi né að málsmeðferðarreglur stæðu því í vegi að hún yrði tekin til úrlausnar. Var refsing W samkvæmt fyrrnefndum héraðsdómi fyrir brot gegn 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 og ákvæði hans um ævilanga ökuréttarsviptingu að því marki sem hún hafði ekki enn komið til framkvæmda því felld niður. Þar sem dómurinn tók jafnframt til brots gegn 1. mgr. 48. gr. sömu laga, sem nú varðar við 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, var refsing samkvæmt henni lækkuð. Var fangelsisrefsing W felld niður í heild og sekt fyrir akstur án tilskilinna ökuréttinda ákveðin 20.000 krónur.

Landsréttur birt 28. maí 2021

180/2020

Ákæruvaldið gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa tekið A hálstaki og skallað í andlit, svo að hún hlaut áverka af. Þá var X einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna ávana- og fíkniefna. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um sakfellingu fyrir þau brot og heimfærslu þeirra til umferðarlaga nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að brotin voru framin. Við ákvörðun refsingar var litið til 1. og 2. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og þess að líkamsárásin beindist að kærustu X, sbr. 3. mgr. 70. gr. sömu laga. Að virtum sakaferli X og með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í fimm mánuði auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð.

Landsréttur birt 28. maí 2021

175/2020

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var gefin að sök líkamsárás, með því að hafa rifið í hár A, sparkað í og/eða traðkað á brjóstkassa og sparkað í andlit hennar, og sigað á hana dobermann-hundi sem hafi glefsað og klórað í hana, með nánar tilgreindum afleiðingum. Í dómi Landsréttar er rakið að hvorki vætti vitna né fyrirliggjandi læknisvottorð sýndu, þannig að hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði sigað hundinum á A eða að hann hefði glefsað og klórað í hana, eða að X hefði sparkað í andlit A. Var X því sýknuð af þeim ákæruatriðum. Að öðru leyti var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu X og um heimfærslu til 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X gekkst undir tvær lögreglustjórasáttir og viðurlagaákvörðun fyrir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms og bar því að dæma henni hegningarauka samkvæmt 78., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Að því virtu þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði sem bundin var skilorði. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um miskabætur til handa A.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. maí 2021

S-41/2021

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn X (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um fjársvik, þjófnað og ítrekaðan akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi auk annarra umferðarlagabrota. Var honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði, auk sektar. Þá var hann sviptur ökurétti sem og réttinum til að öðlast ökuskírteini. Auk þess voru gerðar upptækar þrjár bifreiðar í eigu ákærða.

Landsréttur birt 19. mars 2021

390/2020

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Gísli Tryggvason lögmaður) (Saga Ýrr Jónsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa grýtt glasi í átt að höfði sambýliskonu sinnar A en glasið lenti á vegg við höfuð hennar og brotnaði svo að hún hlaut áverka af. Í dómi Landsréttar kom fram að X hefði hlotið að vera ljóst að A kynni allt eins að hljóta líkamstjón af háttsemi hans sem hefði verið sérstaklega hættuleg í skilningi 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Þá var X sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 með því að hafa ráðist að A, kýlt hana og klipið í síðu hennar, sparkað í mjöðm og hrækt í andlit hennar er hún hélt á B, níu mánaða gömlum syni þeirra, svo að hún hlaut áverka af. Jafnframt var X sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa hótað A, C og D lífláti. Í dómi héraðsdóms voru síðastnefndu tvö brotin talin varða við 1. mgr. 218. gr. b sömu laga gagnvart A en 233. gr. laganna gagnvart C og D. Í dómi Landsréttar kom fram að atvikin hefðu átt sér stað rúmu ári eftir að X framdi fyrstgreinda brotið. Hefði því ekki verið sýnt fram á að X hefði orðið uppvís að háttsemi gagnvart A sem hefði staðið yfir í lengri eða skemmri tíma þannig að viðvarandi ógnarástand hefði skapast svo að yrði talið varða við 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga. Þá hefði háttsemi hans heldur ekki náð því alvarleikastigi sem áskilið væri samkvæmt því ákvæði. Loks var X sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um sakfellingu fyrir þau brot og heimfærslu þeirra til umferðarlaga nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að brotin voru framin. Með brotum þeim sem X var sakfelldur fyrir rauf hann skilorð eldri dóms þar sem hann var dæmdur til 10 mánaða fangelsisrefsingar, skilorðsbundið til þriggja ára, og var sá dómur tekinn upp og X gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var jafnframt litið til ákvæða 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. sömu laga og til 3. mgr. sömu lagagreinar að því er varðaði þau brot er beindust gegn A og B. Með hliðsjón af framangreindu og sakaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð og honum gert að greiða A 1.000.000 króna í miskabætur.

Landsréttur birt 18. desember 2020

848/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn X (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var gefið að sök umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að þegar X hefði ekið bifreiðinni í umrætt sinn, hefði ævilöng ökuréttarsvipting hans verið felld niður og honum verið veitt heimild til ökuréttar á ný. Í hinum áfrýjaða dómi hefði ekki verið vikið að því atriði og hvaða þýðingu það gæti haft við mat á háttsemi X út frá því refsilagaákvæði sem hann væri ákærður fyrir. Samkvæmt því hefði ekki verið tekin afstaða til sakargifta með þeim hætti sem áskilið væri í g-lið 2. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og rökstuðningur fyrir niðurstöðu dómsins væri því ófullnægjandi. Hinn áfrýjaði dómur var því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný.

Landsréttur birt 18. desember 2020

551/2019

Ákæruvaldið gegn Lydíu Rósu Jóakimsdóttur (Ragnar Aðalsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

L var sakfelld fyrir að hafa ekið bifreið svipt ökurétti. Í dómi Landsréttar var sakaferill L rakinn og þótti refsing hennar með hliðsjón af dómvenju hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Í ljósi þess að rekja mátti fyrri umferðarlagabrot L til undirliggjandi vanda sem hún hefði tekist á við og að hún hefði bætt ráð sitt verulega og að þegar hún ók svipt ökurétti umrætt sinn voru liðin tæp fimm ár frá því að hún var síðast fundin sek um refsiverð brot þótti mega fresta fullnustu refsingar skilorðsbundið í tvö ár. Var þá jafnframt höfð hliðsjón af því að dráttur varð á útgáfu ákæru í málinu.

Landsréttur birt 4. desember 2020

807/2019

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Guðmundi Andra Ástráðssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

G var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Þá var hann sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa í tvígang, án þess að hafa skotvopnaleyfi og í síðara skiptið jafnframt verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, haft skotvopn í vörslum sínum. Hann var auk þess sakfelldur í síðara skiptið fyrir hylmingu umrædds skotvopns með því að hafa haldið því með ólögmætum hætti frá lögmætum eiganda þess. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar meðal annars dæmt um umferðarlagabrot G eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Þau brot sem G var sakfelldur fyrir framdi hann í október og nóvember 2017, fyrir uppsögu héraðsdóms í nóvember 2018, sem staðfestur var með dómi Landsréttar í nóvember 2019. Því var honum gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var einnig höfð hliðsjón af 77. gr. sömu laga og sakaferils G. Refsing hans var ákveðin fangelsi í átta mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. september 2020

S-431/2020

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir lögreglustjóri) gegn Olimpiu-Adrian Istrate (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. september 2020

S-4691/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn A (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn m.a. almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur í 11 mánaða fangelsi. Þá var ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð og honum gert að sæta uppöku m.a. á haldlögðum fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. júlí 2020

S-5094/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi, brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og var sviptur ökurétti í fjóra mánuði.

Landsréttur birt 29. maí 2020

129/2019

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Arnari Frey Karlssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal að aka bifreiðum í sjö skipti sviptur ökurétti, í fjórum þeirra tilvika einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í þremur þeirra jafnframt undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hann sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Að sakaferli A virtum var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði og hann sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem hann var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.

Landsréttur birt 13. mars 2020

339/2019

Ákæruvaldið gegn Sindra Frey Jenssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með dómi héraðsdóms var S sakfelldur fyrir samtals sjö umferðar- og fíkniefnalagabrot og dæmdur í óskilorðsbundið níu mánaða fangelsi, auk þess að vera sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku á fíkniefnum. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms tóku ný umferðarlög gildi og samkvæmt þeim telst ökumaður nú aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf finnast í blóði hans. Með dómi Landsréttar var refsing vegna verknaðar samkvæmt einum ákærulið, þar sem S var gefið að sök að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni vegna þess að fundist hafi terahýdrókannabínólsýra í þvagi hans, því felld niður með vísan til lokamálsliðar 1. mgr. og 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur sakfellingu S, sem jafnframt hafði rofið skilorð eldri dóms. Refsing S var ákveðin fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Þá var S gert að greiða hluta sakarkostnaðar í héraði og fyrir Landsrétti, þar á meðal þann hluta kostnaðar við lögreglurannsókn sem tengdist þeim brotum sem S var réttilega sakfelldur fyrir í héraði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2020

S-5365/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Björgvini Loga Daníelssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir auðgunarbrot, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkiefni. Var hann dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og til greiðslu sektar auk þess sem hann var sviptur ökurétti og gert að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. febrúar 2020

S-1962/2019

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Mateusz Wejsznejder
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Ákærði dæmdur í 75 daga fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 21. febrúar 2020

S-218/2019

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn Ingimundi Mikael Ingimundarsyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Antoni Smára Kristjánssyni (Andrés Már Magnússon lögmaður) og Vigni Þór Liljusyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir ýmis brot gegn umferðar- og fíknilefnalöggjöfinni, þjófnað og vopnalagabrot.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 17. janúar 2020

S-352/2019

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Einari Breka Tómassyni (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ekki var talið að ákvörðun um akstursbann hefði í raun verið tekin þrátt fyrir birtingu óundirritaðs skjals þess efnis, enda voru skilyrði akstursbanns ekki fyrir hendi.

Landsréttur birt 22. nóvember 2019

183/2019

Vátryggingafélag Íslands hf (Svanhvít Axelsdóttir lögmaður) gegn A (Magnús Óskarsson lögmaður)

A krafðist viðurkenningar á bótaskyldu V hf. úr slysatryggingu ökumanns vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í árekstri. Var hún ökumaður bifreiðar, sem var í eigu móður hennar og var tryggð hjá V hf., er hún ók þvert yfir rangan vegarhelming og skall á kyrrstæðri bifreið sem kastaðist á aðra kyrrstæða bifreið. Aðilar deildu um hvort A hefði valdið tjóninu af stórkostlegu gáleysi og hvort hún hefði brotið gegn varúðarreglum sem komu fram í vátryggingarskilmálum V hf. Í dómi Landsréttar kom fram að með hliðsjón af því að stefnda var með skerta meðvitund við komu á slysadeild í kjölfar árekstrarins, umfram það sem búast mátti við miðað við áverka hennar, að hún notaði farsíma án handfrjáls búnaðar og ók bifreiðinni yfir á rangan vegarhelming, að morgni mánudags þegar vænta mátti umferðar bifreiða úr gagnstæðri átt, og þaðan áfram á kyrrstæða bifreið á bifreiðastæði þar sem vænta mátti umferðar gangandi vegfarenda, yrði að telja að akstur hennar hefði verið sérlega háskalegur auk þess sem ekkert hefði komið fram um að hún ætti sér málsbætur. Var V hf. því sýknað af kröfu A.

Landsréttur birt 8. nóvember 2019

132/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Axel Óla Breiðfjörð Albertssyni (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í tvö tilgreind skipti ekið bifreið óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og að hafa í annað skiptanna vanrækt vátryggingarskyldu bifreiðarinnar. Að sakaferli hans virtum og með vísan til 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í sjö mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2019

S-257/2019

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Rebekku Eiri Stefánsdóttur (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Lykilorð: Peningaþvætti. Rán.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir hegningarlagabrot og umferðarlagabrot. Refsing fangelsi í 8 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. október 2019

S-2580/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi) gegn Fannari Daða Hreinssyni (Daníel Reynisson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Eldi dómur dæmdur upp. Hegningarauki. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. september 2019

S-457/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Lykilorð: Umferð. Útivistardómur.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Suðurlands birt 11. apríl 2019

S-37/2019

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Vilhjálmi Stefánssyni (Úlfar Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundin sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga og hann jafnframt sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. mars 2019

S-49/2019

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Árna Daníel Guðmundssyni
Lykilorð: Fangelsi. Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. mars 2019

S-487/2018

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Daniel Goracy
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn 155. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, og til greiðslu sektar. Ákærði sviptur ökurétti í tvö ár.

Landsréttur birt 25. febrúar 2019

121/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2019

S-651/2018

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Arnari Freyr Karlssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í 14 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar hans ítrekuð vegna umferðarlagabrota og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. janúar 2019

S-504/2018

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Axel Óla Breiðfjörð Albertssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka í tvígang undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms sem var dæmdur upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í sjö mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Hleð fleiri dómum…