Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-49/2019:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Árna

Daníel Guðmundssyni

Fangelsi. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.

Mál þetta, sem þingfest var 4. mars 2019 og dómtekið sama dag, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 28. janúar 2019 á hendur Árna Daníel Guðmundssyni, kt. 000000-0000, Skagabraut 19, Garði, „fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 5. nóvember 2018 ekið bifreiðinni [...] norður Njarðarbraut, Reykjanesbæ, án ökuréttinda. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og boðaði ekki forföll, en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru löglega birt honum 22. febrúar 2019, var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið það brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærði hafi framið það brot sem hann er sakaður um í ákæru og er háttsemin þar rétt heimfærð til refsiákvæða. Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði á hann töluverðan sakaferil að baki allt frá árinu 2011, en á þeim tíma hefur honum alls níu sinnum verið gerð refsing vegna brota á 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, síðast með dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra 14. mars 2017. Með þeim dómi var ákærða gert að greiða 30.000 krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir brot gegn áðurnefndu ákvæði. Í ljósi sakaferils ákærða, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, svo og með hliðsjón af dómaframkvæmd, þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í þrjátíu daga. Ekki eru efni til að skilorðsbinda þá refsingu. Engan sakarkostnað hefur leitt af meðferð málsins. Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp dóminn.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Árni Daníel Guðmundsson, sæti fangelsi í þrjátíu daga.

Ingimundur Einarsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 48. gr.1. mgr. 100. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.