Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 30. maí 2022.
Mál nr. S-902/2022:
Héraðssaksóknari
(Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daniel Ceta og
(Leó Daðason lögmaður)
Xhoni Naco
(Birkir Már Árnason lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærðu voru sakfelldir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 3. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af Héraðssaksóknara, 17. febrúar 2022, á hendur Daniel Ceta, fæddum [...], með dvalarstað að [...], [...], og Xhoni Naco, fæddum [...], með dvalarstað að [...], [...], fyrir eftirtalin brot:
- Gegn ákærðu báðum fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa, fimmtudaginn 9. desember 2021, sótt og þar með gert tilraun til að taka við 994,89 g af kókaíni, með 17% styrkleika, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni, en fíkniefnin voru falin í styttu sem kom hingað til lands með póstsendingu frá Þýskalandi þann 6. desember 2021. Lögreglan lagði hald á fíkniefnin á póstmiðstöðinni við Stórhöfða 32 í Reykjavík og skipti þeim út fyrir gerviefni. Ákærðu óku saman, á bifreið Daníels, að póstmiðstöðinni þar sem Xhoni sótti pakkann og fór með hann í bifreiðina. Stuttu síðar fór Xhoni með pakkann yfir í leigubíl og voru ákærðu í kjölfarið handteknir.
Telst brot þetta varða við 173. gr. a í almennum hegningarlögum nr. 19/1940, sbr. lög nr. 64/1974 og 32/2001, sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga.
- Gegn ákærða Daníel, með því að hafa á sama tíma og greinir í ákærulið 1., í bifreiðinni [...], haft í vörslum sínum 15,54 g af maríjúana, sem lögregla fann við leit.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Gegn ákærða Xhoni Naco, með því að hafa þriðjudaginn 31. ágúst 2021, í bifreiðinni [...] að [...] í Reykjavík, haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 111,31 g af kókaíni og samtals 97,98 g af maríjúana, sem ákærði framvísaði til lögreglu við handtöku.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Krafist er upptöku á samtals 1.106,2 g af kókaíni og samtals 113,52 g af maríjúana, með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Einnig er krafist upptöku á Iphone, LG-farsíma, tveim vogum og Samsung-farsíma sem lögregla lagði hald á við rannsókn málanna og tengjast framningu brota, með vísan til 1. mgr. 69. gr. a í almennum hegningarlögum nr. 19/1940, sbr. 2. gr. laga nr. 149/2009. Þá er einnig krafist upptöku á samtals 437.500 kr. og 1.325 evrum, með vísan til 1. mgr. 69. gr. b í almennum hegningarlögum nr. 19/1940, sbr. 2. gr. laga nr. 149/2009.
Verjandi ákærða Daniels krefst þess aðallega að ákærði verði sýknaður af ákærulið 1, en til vara að honum verði dæmd vægasta refsing er lög leyfa. Hann krefst jafnframt vægustu refsingar sem lög leyfa vegna ákæruliðar 2 og þess að gæsluvarðhald ákærða verði dregið frá refsingunni. Þá krefst hann málsvarnarlauna samkvæmt reikningi.
Verjandi ákærða Xhoni krefst þess að ákærði verði sýknaður, en til vara að honum verði dæmd vægasta refsing er lög leyfa. Þá krefst hann málsvarnarlauna samkvæmt reikningi.
Málsatvik
Ákæruliður 1
Upphaf máls þessa var að Tollgæslan hafði samband við miðlæga rannsóknardeild vegna póstsendingar sem hafði borist til landsins 6. desember 2021 og var í tollskoðun. Við skoðunina fundust ætluð fíkniefni inni í jólastyttu sem ætlað var að væru um eitt kg af kókaíni. Skráður viðtakandi póstsendingarinnar var A, M, Reykjavík, með símanúmerið [...] og sendandinn var skráður B, N, [...] Düsseldorf. Á fylgiseðli var innihald sendingarinnar skráð „dekofigur“ og var hún send með Deutsche Post. Við athugun kom í ljós að símanúmerið sem gefið var upp var óskráð og heimilisfangið M er ekki til, en fjöldi íslendinga ber nafnið A. Lögregla ákvað að koma hlustunar- og staðsetningarbúnaði fyrir í póstsendingunni. Þá voru fíkniefnin fjarlægð og gerviefnum komið fyrir í staðinn.
Haft var eftirlit með pósthúsi Íslandspósts að Stórhöfða og þann 9. desember komu ákærðu þangað. Ákærði Xhoni fór inn á pósthúsið og óskaði eftir að fá sendinguna afhenta en gekk út áður en hann fékk pakkann afhentan. Hann fór að bifreið ákærða Daniels og settist í farþegasætið. Bifreiðin var sett í gang og henni ekið inn á mitt bifreiðastæði þar sem slökkt var á vél hennar. Ákærðu fóru svo báðir út úr bifreiðinni og stóðu framan við inngang pósthússins í nokkra stund og fylgdust með mannaferðum. Nokkru síðar fór ákærði Xhoni aftur inn á pósthúsið, fékk sendinguna afhenta og gekk með hana út úr afgreiðslunni. Báðir ákærðu settust inn í bifreiðina þar sem þeir ræddu saman um stund á albönsku. Er þeir sátu í bifreiðinni hringdi maður í síma ákærða Daniels. Ákærðu ræddu við hann á albönsku en samkvæmt þýðingu spyr maðurinn hvað hafi verið að gerast. Ákærði Daniel svarar og segir að þeir séu að bíða eftir leigubílnum og fari síðan. Ákærði Xhoni spyr manninn hvar hann sé og maðurinn svarar og segist vera í fangelsi en hlær svo. Ákærði Daniel talar síðan aftur við manninn og segist hringja á eftir þar sem leigubíllinn komi eftir nokkrar mínútur. Maðurinn í símanum spyr þá hvort þeir séu búnir að „ná í það“ og ákærði Daniel svarar játandi og segir að það sé þarna í bílnum hjá þeim. Maðurinn talar þá um að þeir skuli ekki verða annars hugar eða „distracted“. Ákærði Daniel segir honum að hafa ekki áhyggjur þar sem þeir hafi gert þetta varlega. Ákærðu fóru síðan út úr bifreiðinni án pakkans en skömmu síðar kom leigubifreið og sótti ákærða Xhoni sem tók þá pakkann úr bifreið ákærða Daniels, sem gerði sig reiðubúinn til að aka einn í burtu. Stöðvaði þá lögregla för þeirra og handtók báða ákærðu. Við handtökuna fundust tveir símar í bifreið ákærða Daniels, annars vegar LG-sími og hins vegar Iphone.
Undir rannsókn málsins var sími ákærða Xhoni skoðaður en hann virtist hafa verið tekinn í notkun þann sama dag. Mátti þar sjá skilaboð frá manni sem kallaði sig C, en enginn finnst með því nafni í þjóðskrá og er það ætlun lögreglu að um gerviaðgang sé að ræða. Í þessum skilaboðum, sem áttu sér stað kl. 1:25 þann 9. desember og var framhaldið morguninn eftir, var að finna strikamerki fyrir póstsendinguna. Í skilaboðunum segist C vera fyrir utan bæinn og þurfa að fá einhvern til að sækja jólagjöf og býður ákærða Xhoni 15.000 krónur fyrir. Ákærði Xhoni segist geta gert það eftir vinnu.
Við skoðun á síma ákærða Daniels fundust strikamerki og sms-skilaboð frá póstinum í „deleted folder“. Í Iphone-síma, sem fannst í bíl ákærða Daniels, voru smsskilaboð frá pósthúsinu um að sækja sendinguna, móttekin 7. desember 2021 kl. 10:25 og aftur 10:45 og strikamerkið. Símanúmer þess síma var það sama og skráð var á póstsendingunni. Mynd af strikamerkinu fannst einnig í síma ákærða Daniels þegar leitað var að myndum, í möppu um Whatsapp-samskipti. Myndin var þar vistuð sem send mynd sem þýðir að myndin hafi verið send úr samskiptaforritinu Whatsapp og kemur þar fram tímasetningin 7. desember 2021 kl. 15:22.
Samkvæmt matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði, frá 15. desember 2021, reyndist sýni úr pakkanum, hvítt duft og kögglar, innihalda kókaín. Efnapróf hafi bent til þess að kókaínið væri að mestu í formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýninu hafi verið 17%, sem samsvari 19% af kókaínklóríði.
Við skýrslu af ákærða Daniel við aðalmeðferð málsins kom fram að hann dró í efa upptöku af samtali hans og meðákærða í síma, sem greint er frá hér að framan, og þýðingu á upptökunni. Var málinu frestað til þess að yfirfara upptökuna og láta þýða hana á ný. Jafnframt var á sama tíma látin fara fram styrkleikagreining á kókaíni í ákærulið 3.
Ákæruliður 3
Samkvæmt skýrslu lögreglu var hún við rannsókn á grundvelli 89. gr. laga nr. 88/2008 þegar hún sendi skilaboð í tiltekið símanúmer og spurði um framboð á fíkniefnum. Sá sem svaraði kvaðst eiga kannabisefni og kvaðst koma á [...]-smábíl að Perlunni í Öskjuhlíð. Lögreglumennirnir lýstu bílnum sem þeir voru á og skömmu síðar var bíl lagt í næsta stæði við lögreglu við Perluna. Ákærði Xhoni ók bifreiðinni og var eiginkona hans farþegi í bílnum. Kannabislykt lagði úr bílnum og við öryggisleit í honum fundust rúm 10 g af kannabisefni. Við húsleit á heimili ákærða Xhoni fannst verulegt magn fíkniefna, bæði hvítt duft, sem sagt var kókaín, og kannabisefni. Mest af efninu var í söluumbúðum. Einnig fundust íblöndunarefni, vogir og söluumbúðir. Þá var lagt hald á um 400.000 krónur og 1.325 evrur. Við skýrslutöku hjá lögreglu játaði ákærði að hafa undanfarna tvo mánuði selt fíkniefni fyrir um 800.000 krónur, bæði kannabisefni og kókaín.
Samkvæmt matsgerð Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, frá 11. apríl 2022, reyndust 11 sýni sem send voru til greiningar innihalda kókaín og sykuralkóhól. Efnapróf hafi benti til þess að kókaínið væri að mestu í formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýnunum hafi verið frá 26 til 72%, sem samsvari 29 til 81% af kókaínklóríði.
Með bréfi ríkissaksóknara 10. febrúar 2022 var héraðssaksóknara falin meðferð málsins.
Framburður ákærðu og vitna fyrir dómi Ákærði Daniel játar sök samkvæmt ákærulið 2 en neitar sök samkvæmt ákærulið 1. Hann lýsti atvikum svo að hann hefði hitt meðákærða á bar nokkrum mánuðum áður og þeir kannast hvor við annan frá þeim degi. Hann starfaði sem skutlari og meðákærði hefði þann 7. desember sl. beðið hann að sækja sig tveimur dögum seinna og aka sér á pósthús til að sækja pakka. Hann hefði ekki tekið fram hvað væri í pakkanum. Þann dag hefði hann farið og sótt meðákærða við vinnustað hans og ekið honum á pósthús en meðákærði hefði greitt honum 3.000 krónur fyrir. Þar hefði meðákærði farið inn en komið aftur skömmu síðar og beðið hann að fylgja sér. Hann hefði beðið með meðákærða í um 15 mínútur fyrir utan pósthúsið, til að halda honum félagsskap að hans beiðni, en meðákærði hefði svo farið aftur inn og náð í pakkann. Hann hefði síðan beðið sig að panta leigubíl til að sækja hann. Þeir hefðu þurft að bíða nokkra stund eftir leigubílnum en þegar meðákærði hefði farið í honum hefði hann verið stöðvaður af lögreglu. Hann mundi ekki hvað þeir meðákærði hefðu rætt í bílnum, en mundi þó eftir símtali við vin sinn í Sviss. Það hefði þó ekkert sérstakt verið rætt. Spurður um farsíma sem fundust í bíl hans kvaðst hann eiga LG-farsímann sem fannst þar, en Iphone sem hefði fundist þar tilheyrði meðákærða. Hann skýrði strikamerki vegna póstsendingarinnar sem fundist hefði í eyddum gögnum í síma hans þannig að hann hefði fengið það frá meðákærða sem hefði óttast að síminn hans virkaði ekki og haft það í símanum til að minna sig á að skutla honum. Honum hefði svo fundist skrítið að hafa þetta og því eytt myndinni. Eftir að farið var yfir endurtekna þýðingu á símtalinu í bílnum skýrði ákærði frá því að samtalið hefði ekkert með þetta mál að gera. Tal um fíkniefni hefði snúist um kannabis sem hann hefði verið með í bílnum og hefði ætlað að fara með til mannsins í símanum, en hefði ekkert haft með póstsendinguna að gera. Ákærði Xhoni neitar sök í ákærulið 1. Hann kvað meðákærða hafa haft samband við sig og sagt að hann væri bróðir manns sem hann kannaðist við, en þeir hefði einu sinni hist. Hann hefði fallist á að hitta meðákærða, sem hefði þá sagt að íslenskur maður þyrfti hjálp við að sækja póstsendingu, sem hann gæti ekki sinnt þar sem hann væri ólöglega á landinu. Næsta morgun hefði íslenski maðurinn haft samband og greint frá því að hann ætti von á póstsendingu fyrir jólin sem hann gæti ekki sótt sjálfur þar sem hann væri úti á landi og pakkinn yrði endursendur gæti hann ekki sótt hann. Maðurinn hefði lagt 15.000 krónur inn á hann fyrir að sækja þetta. Ákærði kvaðst hafa samþykkt að gera þetta eftir vinnu. Maðurinn hefði svo sent honum upplýsingar um hvert hann ætti að fara og kóðann fyrir pakkann. Hann hefði ætlað að fara einn eftir vinnu en þá fengið símtal frá bróður meðákærða um að meðákærði væri kominn til að aka honum þangað. Þar hefði meðákærði sagt honum að eitthvað hefði komið upp á svo það væri best að hringja á leigubíl fyrir bakaleiðina. Hann hefði farið á pósthúsið og sýnt kóðann. Það hefði tekið langan tíma að afgreiða hann og honum hefði ekki litist á það svo hann hefði farið út. Þar hefði hann spurt meðákærða hvort eitthvað væri að þar sem hann hefði verið farið að gruna að um eitthvað ólöglegt væri að ræða. Hann hefði svo farið aftur inn á pósthúsið og sýnt kóðann og í þetta skipti fengið pakkann sem hann hefði svo farið með til meðákærða. Meðan hann hefði setið með honum í bílnum hefðu þeir rætt um almenna hluti, svo sem leit hans að starfi, en síðan hefði einhver Albani hringt og spurt um pakkann. Hann hefði kannast við viðkomandi því þeir væru frá sama stað. Hann hefði spurt manninn hvernig hann hefði það og hvar hann væri en maðurinn hefði svarað með gríni og viljað fá að ræða við meðákærða. Meðákærði hefði hringt á leigubíl sem hann hefði svo farið með en lögreglan hefði stoppað hann. Ef lögreglan hefði fylgt honum eftir áfram hefði hún komist að því að þessi sending hefði ekkert komið honum við. Hann hefði verið plataður til að sækja pakkann. Ákærði hafnaði því að hann ætti Iphone-síma sem fundist hefði í bíl meðákærða.
Eftir að farið var að nýju yfir upptöku sem liggur fyrir upprituð meðal gagna málsins óskaði ákærði eftir því að skýra samtalið nánar. Einungis eitt atriði snerti þar þetta mál. Þetta hefði verið almennt spjall meðan beðið var eftir leigubílnum. Hann hefði verið að ræða um vinnumál og hvernig hann vildi vinna heiðarlega vinnu, helst í eldhúsi. Hann hefði hætt að selja fíkniefni þegar hann hefði verið handtekinn vegna ákæruliðar 3. Þegar hann hefði sagt „hér er dópið“ hefði hann verið að vísa til þess að fíkniefnasala væri eini kosturinn ef maður fengi ekki vinnu. Ljóst væri af samtalinu að hann þekkti ekki manninn í símanum og hann hefði einungis tekið þátt í samtalinu í upphafi fyrir kurteisi sakir.
Ákærði Xhoni játar sök í ákærulið 3 að öðru leyti en því að hann telur magn fíkniefna ekki rétt. Hann hafi neyðst til þess að selja fíkniefni þar sem hann hafi ekki fengið vinnu og þurft að endurgreiða lán sem hann hafi tekið til að komast til landsins. Honum hafi verið boðið kókaín til að selja fyrir annan mann en hann hafi átt að fá hlut í söluandvirðinu. Maðurinn hafi látið hann hafa um 50 g af kókaíni og sagt að það væri hreint, en einnig látið hann hafa íblöndunarefni sem hann ætti að blanda saman við. Hann hafi kynnt sér aðferðina við það á Youtube og blandað sjálfur. Hann hafi ekki verið búinn að selja mikið þegar hann var handtekinn. Þegar hann hafi greint manninum sem lét hann hafa efnin frá handtökunni hafi maðurinn hins vegar sagt honum að þetta hefðu í raun einungis verið 10 g af kókaíni sem hefði verið búið að blanda. Það sé ósanngjarnt að sakfella fyrir svo mikið magn sem ákært sé fyrir þegar þetta hafi í reynd verið mun minna.
Lögreglumaður nr. D greindi frá því að lögregla hefði fylgst með póstsendingunni í nokkurn tíma. Pakkinn hefði verið á íslensku nafni en sá sem hefði sótt pakkann hefði ekki verið íslenskur. Hann hefði ekki fengið pakkann afhentan í fyrri atrennu og farið út en hefði svo komið aftur inn á pósthúsið rétt fyrir lokun og fengið hann afhentan. Ákærðu hefðu setið í bílnum í dálítinn tíma og rætt saman. Síðan hefði síminn hringt og maður hefði rætt við ákærðu um hátalara. Samtalið hefði augljóslega verið um pakkann. Símanúmer sem hefði verið á póstsendingunni hefði verið í síma sem hefði fundist í bílnum. Það númer hefði verið rannsakað og komið í ljós að það tengdist sömu sendum og sími ákærða Daniels. Það hefði hins vegar ekki passað við síma ákærða Xhoni. Símanúmer Xhoni hefði verið tekið í notkun þennan sama dag. Ákærði Daniel hefði verið með myndir af skilaboðum um sendinguna og strikamerki vegna hennar í eyddum gögnum í símanum sínum. Um hefði verið að ræða myndir af Iphone-símanum með skilaboðunum. Tilgangurinn með því að taka myndir af hinum símanum gæti verið sá að senda þær í gegnum samskiptaforrit sem væri einungis í þeim síma. Hægt hefði verið að sjá í Telegram-samskiptum að þær hefðu verið sendar úr símanum en ekki hefði verið hægt að sjá hvert. Engin önnur notkun hefði verið á Iphone-símanum og svo hefði virst sem hann hefði bara verið notaður vegna sendingarinnar. Ekki hefði fundist hver hefði notað Messenger-aðgang sem skráður væri á C en búið hefði verið að eyða þeim reikningi. Svo virtist sem sá aðili væri ekki til, en ekki væri hægt að segja til um hvort samtalið væri tilbúningur. Hann kvað ákærðu hafa verið handtekna þar sem þeir hefðu ætlað að fara hvor sína leið en ekki hefði verið hægt að fylgja þeim báðum. Lögreglumaður nr. E kvaðst hafa verið í eftirliti við pósthúsið. Hann hefði séð hvar ákærði Xhoni hefði komið út af pósthúsinu án þess að fá pakkann afhentan. Hann hefði farið í bílinn til ákærða Daniels sem hefði fært bílinn til á bílastæðinu. Þeir hefðu svo báðir komi út úr bílnum og ákærði Xhoni hefði farið aftur inn á pósthúsið rétt fyrir lokun. Á meðan hefði ákærði Daniel staðið fyrir utan og horft í kringum sig. Þegar ákærði Xhoni hefði komið út með pakkann hefðu þeir gengið hvor sína leið að bílnum. Þar hefðu þeir setið í nokkra stund áður en þeir hefðu farið saman út. Ákærði Xhoni hefði síðan sótt pakkann í bílinn og farið með hann í leigubíl. Hefði þá verið ákveðið að handtaka þá. Vitnið F, sérfræðingur hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, greindi frá símarannsóknum í málinu.
Vitnið G, starfsmaður tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, greindi frá greiningu á fíkniefnum í málinu.
Vitnið H, verkefnastjóri á Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði, staðfest matsgerð vegna fíkniefnanna.
Vitnið I, löggiltur dómtúlkur, staðfesti að hafa farið yfir þýðingu á samtali í bifreið ákærða. Hann kvaðst hafa farið tvisvar sinnum yfir efnið og allt væri rétt sem þýtt hefði verið.
Niðurstaða
Ákæruliður 1
Ákærðu er báðum gefin að sök tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa sótt og þar með gert tilraun til að taka við 994,89 g af kókaíni ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Ákærðu neita báðir sök. Ákærði Daniel kveðst hafa verið að skutla meðákærða á pósthúsið gegn gjaldi og ekki hafa vitað neitt um sendinguna en ákærði Xhoni kveðst hafa verið að sækja pakkann fyrir mann sem hafi ekki komist á pósthúsið og beðið sig um að gera það gegn greiðslu 15.000 króna.
Framangreind fíkniefni bárust til landsins með póstsendingu sem merkt var algengu íslensku nafni á heimilisfang sem var ekki til og á óskráð símanúmer. Fylgst var með sendingunni, fíkniefninu skipt út fyrir gerviefni og komið fyrir hlustunarbúnaði í henni. Ákærði Xhoni kom á pósthúsið en ákærði Daniel ók honum þangað og beið með honum fyrir utan. Í skýrslum lögreglu liggja fyrir lýsingar á hátterni ákærðu við pósthúsið og bera þær með sér að ákærðu hafi verið varir um sig og haft áhyggjur af því að fylgst væri með þeim. Eftir að sendingin var afhent fóru þeir saman inn í bíl og ræddu saman. Eftir skamma stund hringdi sími ákærða Daniels og ákærðu áttu stutt samtal við mann sem m.a. spurði hvort ákærðu hefðu náð í „það“, sem ákærði Daniel svaraði með því að þeir hefðu náð í „það“ og væru með það hjá sér í bílnum.
Auk þeirra eigin síma var í bílnum Iphone-sími með símanúmerið sem skráð var fyrir póstsendingunni. Hvorugur ákærðu vildi kannast við að eiga þann síma. Við rannsókn lögreglu kom í ljós að sá sími hafði tengst sömu sendum og sími ákærða Daniels á sömu tímum. Þá fundust myndir af þeim síma með skilaboðum vegna sendingarinnar í síma ákærða Daniels meðal eyddra gagna.
Skýringar ákærða Daniels á því hvernig kom til að hann var fyrir utan pósthúsið með ákærða Xhoni eru afar langsóttar. Hann hafnaði því alveg að eiga Iphone-síma sem fannst í bíl hans og gat engar skýringar gefið á því að síminn virðist hafa fylgt síma hans. Þá er ljóst að skýringar hans á myndum af skilaboðum vegna sendingarinnar í síma hans standast ekki skoðun en þær voru teknar af skilaboðunum í framangreindum Iphone. Skýringar hans, sem komu fyrst fram við framhaldsaðalmeðferð í málinu, á þá leið að símtalið í bílnum hefði snúist um kannabisefni sem hann hafði í bílnum, eru heldur ekki trúverðugar. Þá standast ekki þær skýringar ákærða Xhoni að hann hefði verið fenginn til að sækja sendinguna vegna þess að hann hefði haft íslenska kennitölu, enda þurfti ekkert nema strikamerki til að fá sendinguna afhenta og honum var það ljóst. Samskipti hans við aðila sem virðist ekki vera til virðast ekki vera raunveruleg enda lýsti ákærði því sjálfur að hvarflað hefði að honum að eitthvað óeðlilegt væri á seyði.
Þegar litið er til þess sem hér hefur verið rakið um skýringar ákærðu, komu þeirra beggja að pósthúsinu til að sækja fíkniefnasendinguna, þess að þeir höfðu báðir strikamerki vegna hennar í fórum sínum, auk símans sem skráður var fyrir sendingunni, og símtals við mann um pakkann verður að telja hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hafi gerst sekir um tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots eins og lýst er í ákæru. Með hliðsjón af magni efnisins verður að líta svo á að efnið hafi verið ætlað til söludreifingar í ágóðaskyni. Verða ákærðu því sakfelldir fyrir þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákærulið 1 og er brot þeirra þar rétt heimfært til refsiákvæða.
Ákæruliður 2
Ákærði Daniel játar sök samkvæmt ákærulið 2. Sannað er með játningu hans og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í þeim ákærulið og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
Ákæruliður 3
Í 3. lið ákærunnar er ákærða Xhoni gefið að sök fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 111,31 g af kókaíni og samtals 97,98 g af maríjúana. Ákærði játar að hafa haft fíkniefnin í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni en neitar því að um svo mikið magn af kókaíni hafi verið að ræða.
Ákærði greindi frá því fyrir dómi að hann hefði talið sig hafa móttekið 50 g af kókaíni sem hann hefði þynnt út með íblöndunarefnum en eftir handtökuna hefði komið í ljós að í raun hefðu þetta einungis verið um 10 g. Framangreind efni voru rannsökuð af Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði. Samkvæmt matsgerð hennar reyndist efnið innihalda kókaín en styrkleiki sýnanna var mismunandi, frá 26 til 72%. Ekki er unnt að greina hversu mikið magn af efnunum er kókaín og hversu mikið er íblöndunarefni heldur verður að miða við það magn efnis sem inniheldur fíkniefni, en við ákvörðun refsingar er unnt að líta til styrkleika þess. Verður ákærði Xhoni því sakfelldur fyrir það sem honum er gefið að sök í 3. lið ákærunnar og er háttsemi hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Refsing, upptökukröfur og sakarkostnaður
Ákærði Daniel er fæddur í [...] [...]. Samkvæmt sakavottorði hans, dagsettu 16. febrúar 2022, var hann þann 7. maí 2019 dæmdur í fangelsi í 60 daga fyrir brot gegn 157. og 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, h-lið 2. mgr. 116. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Ákærði Xhoni er fæddur í [...] [...]. Samkvæmt sakavottorði hans, dagsettu 16. febrúar 2022, hefur hann ekki áður gerst sekur um refsivert brot.
Við ákvörðun refsingar verður litið til þess að um mikið magn hættulegra fíkniefna var að ræða og var háttsemi ákærðu liður í að koma þeim í dreifingu hér á landi. Þá verður höfð hliðsjón af styrkleika efnanna. Með hliðsjón af framangreindu, sbr. 1., 3., 6. og 7. tölulið 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða Daniels hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði en refsing ákærða Xhoni hæfilega ákveðin fangelsi í 21 mánuð. Gæsluvarðhald þeirra frá 10. til 17. desember 2021 kemur til frádráttar refsingu.
Ákæruvaldið krefst þess að fíkniefni, vogir, símar og fjármunir sem lagt var hald á við rannsókn málsins verði gerð upptæk. Ákærði Daniel hefur sérstaklega mótmælt því að LG-sími hans verði gerður upptækur. Upptökukrafan byggist á 1. mgr. 69. gr. a í almennum hegningarlögum nr. 19/1940 en þar segir að gera megi hluti upptæka með dómi sem hafa verið notaðir, ætlaðir eru til notkunar eða hætta þykir á að verði notaðir við framningu brots. Ákærði var með símann á sér við handtöku og í honum fundust myndir af tilkynningum um póstsendinguna og strikamerki og höfðu myndirnar verið sendar úr símanum. Eru því uppfyllt skilyrði framangreinds lagaákvæðis og verður fallist á kröfu ákæruvaldsins um upptöku símans.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk 1.106,2 g af kókaíni og 113,52 g af maríjúana, Iphone, LG-farsími, tvær vogir, Samsung-farsími, 437.500 krónur og 1.325 evrur sem hald var lagt á við rannsókn málsins.
Ákærði Daniel greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Leós Daðasonar lögmanns, 1.897.200 krónur, og þóknun verjanda á rannsóknarstigi, Kjartans Ragnars lögmanns, 306.900 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 819.677 krónur í annan sakarkostnað. Ákærði Xhoni greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Birkis Más Árnasonar lögmanns, 2.239.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærðu greiði óskipt 83.222 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Daniel Ceta, sæti fangelsi í 18 mánuði. Gæsluvarðhald ákærða frá 10. til 17. desember 2021 kemur til frádráttar refsingu.
Ákærði, Xhoni Naco, sæti fangelsi í 21 mánuð. Gæsluvarðhald ákærða frá 10. til 17. desember 2021 kemur til frádráttar refsingu.
Ákærðu sæti upptöku á 1.106,2 g af kókaíni, 113,52 g af maríjúana, Iphone, LG- farsíma, tveimur vogum, Samsung-farsíma, 437.500 krónum og 1.325 evrum.
Ákærði Daniel greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Leós Daðasonar lögmanns, 1.897.200 krónur, og þóknun verjanda á rannsóknarstigi, Kjartans Ragnars lögmanns, 306.900 krónur.
Ákærði Xhoni greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Birkis Más Árnasonar lögmanns, 2.239.000 krónur, og 819.677 krónur í annan í sakarkostnað. Ákærðu greiði óskipt 83.222 krónur í annan sakarkostnað.