Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Þorkeli Frey Sigurðssyni (
Steinn S. Finnbogason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðan akstur án ökuréttar og of hraðan akstur og gert að sæta fangelsi í 145 daga.
Ákæruvaldið (
Einar Tryggvason saksóknari)
gegn
Ragnari Má Svanssyni Michelsen (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
R var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldslögum í rekstri félaganna B og C ehf. sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri þeirra og um tíma daglegur stjórnandi C ehf. Við ákvörðun refsingar R var höfð hliðsjón af 60., 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sem litið var til þess að meðferð málsins hefði dregist úr hófi. Á hinn bóginn ætti R sér engar málsbætur. Til þyngingar refsingar var litið til þess að brot hans hefðu varðað háar fjárhæðir, verið umfangsmikil og skipulögð. Var refsing R ákveðin fangelsi í 24 mánuði en fullnustu 21 af mánuðum hennar bundin skilorði. Þá var honum gert að greiða 133.600.000 krónur í sekt til ríkissjóðs að viðlagðri vararefsingu.
M var sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, brot gegn sóttvarnalögum, brot gegn valdstjórninni, fyrir að gabba lögreglu, brot gegn vopnalögum, skjalafals og umferðarlagabrot, samkvæmt þremur ákærum sem gefnar voru út 14. apríl 2020, 5. apríl 2022 og 9. maí sama ár. Í fyrstnefnda málinu hafði dómur fallið í héraði 10. september 2020 en með úrskurði Endurupptökudóms 28. mars 2022 var héraðsdómur í málinu endurupptekinn. M sætti geðrannsókn til að meta sakhæfi hans og var niðurstaða dómkvadds matsmanns sú að M væri sakhæfur og refsing gæti borið árangur. Var M því gerð refsing. Við ákvörðun refsingar M var höfð hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þá var tekið tillit til 1., 5., 6. og 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. laganna. Var refsing M ákveðin fangelsi í 12 mánuði en til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist sem hann hafði sætt frá 17. mars 2022 til 16. júní 2022, auk þess sem gerð var upptæk útdraganleg kylfa.
D og X voru ákærðir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa sótt og þar með gert tilraun til að taka við 994,98 grömmum af kókaíni með 17% styrkleika, ætluðu til sölu í ágóðaskyni. Óku D og X saman á bifreið D að póstmiðstöð og X sótti pakkann. Hafði lögregla þá lagt hald á fíkniefnin og skipt þeim út fyrir gerviefni. Ákærðu D og X neituðu báðir sök en voru báðir sakfelldir með hinum áfrýjaða dómi fyrir fyrrgreinda háttsemi sem og vörslur fíkniefna. Sakfelling ákærðu fyrir vörslur fíkniefna var ekki til endurskoðunar fyrir Landsrétti en báðir kröfðust refsimildunar. Ákærði X byggði sýknukröfu sína á því að ekki hefðu verið færðar sönnur á að hann hafi haft ásetning til brots gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Landsréttar kom fram að þrátt fyrir grunsemdir ákærða X um að pakkinn hefði að geyma eitthvað ólöglegt hefði ákærði X farið aftur inn á pósthúsið og fengið pakkann afhentan. Var X því sakfelldur fyrir að hafa gert tilraun til að taka við fíkniefnum sem áður voru í pakkanum, enda lét hann sér í léttu rúmi liggja hvað pakkinn hefði að geyma. Að því virtu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest niðurstaða hans um sakfellingu beggja ákærðu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ákærðu væru sakfelldir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, um væri að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna en með hliðsjón af litlum styrkleika þótti refsing ákærða D hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði og refsing X fangelsi í 12 mánuði. Frá refsingu ákærðu drægist nánar tilgreint gæsluvarðhald sem þeir höfðu sætt.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Árna Daníel Guðmundssyni
Ákærði var dæmdur til 15 daga fangelsis fyrir akstur án gildra ökuréttinda. Hegningarauki.
A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Mohamad Kourani (
Stefán Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, skjalafals, nokkur brot gegn valdstjórninni, fyrir að gabba lögreglu, brot á sóttvarnarlögum og vopnalagabrot.
Héraðssaksóknari (
Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daniel Ceta (
Leó Daðason lögmaður) og
Xhoni Naco (
Birkir Már Árnason lögmaður)
Ákærðu voru sakfelldir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Héraðssaksóknari (
Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ragnari Má Svanssyni Michelsen (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn bókhaldslögum og dæmdur í 24 mánaða fangelsi en þar af var fullnustu 21 mánaðar af dæmdri refsingu frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákærði var einnig dæmdur til greiðslu sektar.
J var ákærður í tveimur ákæruliðum. Í þeim fyrri fyrir fíkniefnalagabrot og brot á barnaverndarlögum með því að hafa á heimili sínu selt þremur ónafngreindum stúlkum, sem voru 14 og 16 ára gamlar, kannabisefni, leyft tveimur þeirra að neyta kannabisefna og gefið annarri þeirra amfetamín. Samkvæmt síðari ákæruliðnum var J ákærður fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft 14 grömm af kannabisefni, 1,42 grömm af amfetamíni og 98 skammta af LSD efnum í vörslum sínum. Fyrir héraðsdómi játaði J að hafa haft í vörslu sinni fyrrgreint magn af fíkniefnum. J neitaði á hinn bóginn að hafa ætlað efnin til sölu eða dreifingar og krafðist aðallega frávísunar en til vara sýknu af fyrri ákæruliðnum. Frávísunarkrafa hans sneri að því að verknaðarlýsing ákæruliðarins uppfyllti ekki kröfur um skýrleika. Í dómi Landsréttar var rakið að rétt hefði verið að tilgreina nöfn og kennitölur þeirra stúlkna sem brotin sem ákærða voru gefin að sök beindust gegn. Á hinn bóginn færi ekki á milli mála um hvaða refsiverðu háttsemi J var þar sakaður og hvaða ákvæði refsilaga J var talinn hafa brotið gegn. Ekki var talið að ónákvæmni í ákæru hafi gert að verkum að J hafi ekki verið unnt að taka afstöðu til sakargiftanna og halda uppi vörnum og var frávísunarkröfu hans því hafnað. Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu J samkvæmt báðum ákæruliðum var staðfest og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 4 mánuði.
Með dómi Héraðsdóms Suðurlands 22. maí 2019 var W sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa að ekið bifreið án tilskilinna ökuréttinda og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa fíkniefna. Í ákæru var vísað til þess að tetrahýdrókannabínólsýra hefði mælst í þvagsýni sem W lét í té. Var þessi háttsemi talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987. Var W gert að sæta fangelsi í 30 daga og var hann sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja. Þann 1. janúar 2020 tóku gildi ný umferðarlög en með þeim var sú breyting gerð frá eldri lögum að fellt var á brott það ákvæði þeirra að mæling á ávana- og fíkniefnum „í þvagi“ ökumanns gæti, ein og sér, talist viðhlítandi grundvöllur til stofnunar refsiábyrgðar. Með bréfi til Héraðsdóms Suðurlands 1. september 2020 fór varnaraðili þess á leit að þau viðurlög sem honum voru gerð með dóminum yrði felld niður með vísan til 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að fyrir lægi breytt mat löggjafans á refsinæmi verknaðar og skilyrði 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga væru því uppfyllt hvað varðar kröfugerð W er tæki til viðurlaga fyrir þá háttsemi hans sem ekki er lengur refsinæm. Ekki voru talin efni til að líta svo á að hann hafi fyrirgert rétti sínum til að hafa kröfuna uppi né að málsmeðferðarreglur stæðu því í vegi að hún yrði tekin til úrlausnar. Var refsing W samkvæmt fyrrnefndum héraðsdómi fyrir brot gegn 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 og ákvæði hans um ævilanga ökuréttarsviptingu að því marki sem hún hafði ekki enn komið til framkvæmda því felld niður. Þar sem dómurinn tók jafnframt til brots gegn 1. mgr. 48. gr. sömu laga, sem nú varðar við 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, var refsing samkvæmt henni lækkuð. Var fangelsisrefsing W felld niður í heild og sekt fyrir akstur án tilskilinna ökuréttinda ákveðin 20.000 krónur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daníel Hjálmari Eiríkssyni (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðan akstur sviptur ökurétti og gert að sæta fangelsi í 8 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Atla Viðari Gunnarssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. líkamsárás, þjófnað og umferðarlagabrot. Var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi, sviptur ökurétti og gert að sæta upptöku haldlagðra ávana- og fíkniefna o.fl.
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn barnaverndarlögum.
X var sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa tekið A hálstaki og skallað í andlit, svo að hún hlaut áverka af. Þá var X einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna ávana- og fíkniefna. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um sakfellingu fyrir þau brot og heimfærslu þeirra til umferðarlaga nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að brotin voru framin. Við ákvörðun refsingar var litið til 1. og 2. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og þess að líkamsárásin beindist að kærustu X, sbr. 3. mgr. 70. gr. sömu laga. Að virtum sakaferli X og með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í fimm mánuði auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð.
X var gefin að sök líkamsárás, með því að hafa rifið í hár A, sparkað í og/eða traðkað á brjóstkassa og sparkað í andlit hennar, og sigað á hana dobermann-hundi sem hafi glefsað og klórað í hana, með nánar tilgreindum afleiðingum. Í dómi Landsréttar er rakið að hvorki vætti vitna né fyrirliggjandi læknisvottorð sýndu, þannig að hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði sigað hundinum á A eða að hann hefði glefsað og klórað í hana, eða að X hefði sparkað í andlit A. Var X því sýknuð af þeim ákæruatriðum. Að öðru leyti var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu X og um heimfærslu til 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X gekkst undir tvær lögreglustjórasáttir og viðurlagaákvörðun fyrir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms og bar því að dæma henni hegningarauka samkvæmt 78., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Að því virtu þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði sem bundin var skilorði. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um miskabætur til handa A.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
X (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um fjársvik, þjófnað og ítrekaðan akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi auk annarra umferðarlagabrota. Var honum gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði, auk sektar. Þá var hann sviptur ökurétti sem og réttinum til að öðlast ökuskírteini. Auk þess voru gerðar upptækar þrjár bifreiðar í eigu ákærða.
X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa grýtt glasi í átt að höfði sambýliskonu sinnar A en glasið lenti á vegg við höfuð hennar og brotnaði svo að hún hlaut áverka af. Í dómi Landsréttar kom fram að X hefði hlotið að vera ljóst að A kynni allt eins að hljóta líkamstjón af háttsemi hans sem hefði verið sérstaklega hættuleg í skilningi 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Þá var X sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 með því að hafa ráðist að A, kýlt hana og klipið í síðu hennar, sparkað í mjöðm og hrækt í andlit hennar er hún hélt á B, níu mánaða gömlum syni þeirra, svo að hún hlaut áverka af. Jafnframt var X sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa hótað A, C og D lífláti. Í dómi héraðsdóms voru síðastnefndu tvö brotin talin varða við 1. mgr. 218. gr. b sömu laga gagnvart A en 233. gr. laganna gagnvart C og D. Í dómi Landsréttar kom fram að atvikin hefðu átt sér stað rúmu ári eftir að X framdi fyrstgreinda brotið. Hefði því ekki verið sýnt fram á að X hefði orðið uppvís að háttsemi gagnvart A sem hefði staðið yfir í lengri eða skemmri tíma þannig að viðvarandi ógnarástand hefði skapast svo að yrði talið varða við 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga. Þá hefði háttsemi hans heldur ekki náð því alvarleikastigi sem áskilið væri samkvæmt því ákvæði. Loks var X sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um sakfellingu fyrir þau brot og heimfærslu þeirra til umferðarlaga nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að brotin voru framin. Með brotum þeim sem X var sakfelldur fyrir rauf hann skilorð eldri dóms þar sem hann var dæmdur til 10 mánaða fangelsisrefsingar, skilorðsbundið til þriggja ára, og var sá dómur tekinn upp og X gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var jafnframt litið til ákvæða 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. sömu laga og til 3. mgr. sömu lagagreinar að því er varðaði þau brot er beindust gegn A og B. Með hliðsjón af framangreindu og sakaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð og honum gert að greiða A 1.000.000 króna í miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rebekku Rut Guðmundsdóttur (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir akstur svipt ökurétti og undir áhrifum áfengis- og ávana- og fíkniefna.
Sýknað af ákæru um akstur sviptur ökurétti.
X var gefið að sök umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að þegar X hefði ekið bifreiðinni í umrætt sinn, hefði ævilöng ökuréttarsvipting hans verið felld niður og honum verið veitt heimild til ökuréttar á ný. Í hinum áfrýjaða dómi hefði ekki verið vikið að því atriði og hvaða þýðingu það gæti haft við mat á háttsemi X út frá því refsilagaákvæði sem hann væri ákærður fyrir. Samkvæmt því hefði ekki verið tekin afstaða til sakargifta með þeim hætti sem áskilið væri í g-lið 2. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og rökstuðningur fyrir niðurstöðu dómsins væri því ófullnægjandi. Hinn áfrýjaði dómur var því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný.
L var sakfelld fyrir að hafa ekið bifreið svipt ökurétti. Í dómi Landsréttar var sakaferill L rakinn og þótti refsing hennar með hliðsjón af dómvenju hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Í ljósi þess að rekja mátti fyrri umferðarlagabrot L til undirliggjandi vanda sem hún hefði tekist á við og að hún hefði bætt ráð sitt verulega og að þegar hún ók svipt ökurétti umrætt sinn voru liðin tæp fimm ár frá því að hún var síðast fundin sek um refsiverð brot þótti mega fresta fullnustu refsingar skilorðsbundið í tvö ár. Var þá jafnframt höfð hliðsjón af því að dráttur varð á útgáfu ákæru í málinu.
G var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Þá var hann sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa í tvígang, án þess að hafa skotvopnaleyfi og í síðara skiptið jafnframt verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, haft skotvopn í vörslum sínum. Hann var auk þess sakfelldur í síðara skiptið fyrir hylmingu umrædds skotvopns með því að hafa haldið því með ólögmætum hætti frá lögmætum eiganda þess. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar meðal annars dæmt um umferðarlagabrot G eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Þau brot sem G var sakfelldur fyrir framdi hann í október og nóvember 2017, fyrir uppsögu héraðsdóms í nóvember 2018, sem staðfestur var með dómi Landsréttar í nóvember 2019. Því var honum gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var einnig höfð hliðsjón af 77. gr. sömu laga og sakaferils G. Refsing hans var ákveðin fangelsi í átta mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir lögreglustjóri) gegn
Olimpiu-Adrian Istrate (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
A (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn m.a. almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur í 11 mánaða fangelsi. Þá var ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð og honum gert að sæta uppöku m.a. á haldlögðum fíkniefnum.
Sakfellt fyrir skjalafals og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi, brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og var sviptur ökurétti í fjóra mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daníel Geir Höskuldssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. auðgunar og umferðarlagabrot og dæmdur í 12 mánaða fangelsi.
A var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal að aka bifreiðum í sjö skipti sviptur ökurétti, í fjórum þeirra tilvika einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í þremur þeirra jafnframt undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hann sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Að sakaferli A virtum var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði og hann sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem hann var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (
Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Gunnþórssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir margítrekað umferðarlagabrot (akstur sviptur ökurétti), fjársvik og nytjastuld.
Ákæruvaldið (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðmundi Árnasyni (
Ólafur V. Guðjónsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir þjófnaðarbrot, nytjastuld, sviptingarakstur, fíkniefnaakstur o.fl.
Sakfellt fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi og fleira.
Með dómi héraðsdóms var S sakfelldur fyrir samtals sjö umferðar- og fíkniefnalagabrot og dæmdur í óskilorðsbundið níu mánaða fangelsi, auk þess að vera sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku á fíkniefnum. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms tóku ný umferðarlög gildi og samkvæmt þeim telst ökumaður nú aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf finnast í blóði hans. Með dómi Landsréttar var refsing vegna verknaðar samkvæmt einum ákærulið, þar sem S var gefið að sök að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni vegna þess að fundist hafi terahýdrókannabínólsýra í þvagi hans, því felld niður með vísan til lokamálsliðar 1. mgr. og 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur sakfellingu S, sem jafnframt hafði rofið skilorð eldri dóms. Refsing S var ákveðin fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Þá var S gert að greiða hluta sakarkostnaðar í héraði og fyrir Landsrétti, þar á meðal þann hluta kostnaðar við lögreglurannsókn sem tengdist þeim brotum sem S var réttilega sakfelldur fyrir í héraði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Björgvini Loga Daníelssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir auðgunarbrot, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkiefni. Var hann dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og til greiðslu sektar auk þess sem hann var sviptur ökurétti og gert að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Unnari Erni Rósenkarssyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti. Brot ákærða var ítrekað og var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Mateusz Wejsznejder
Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Ákærði dæmdur í 75 daga fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.
Sakfellt fyrir ýmis brot gegn umferðar- og fíknilefnalöggjöfinni, þjófnað og vopnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óskari Geir Péturssyni (
Magnús Davíð Norðdahl lögmaður)
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar vegna umferðarlagabrota og sviptur ökurétti ævilangt,
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daníel Hjálmari Eiríkssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 11 mánaða fangelsi m.a. vegna ítrekaðs aksturs sviptur ökurétti.
Ekki var talið að ákvörðun um akstursbann hefði í raun verið tekin þrátt fyrir birtingu óundirritaðs skjals þess efnis, enda voru skilyrði akstursbanns ekki fyrir hendi.
Sakfellt fyrir þjófnaði, eignaspjöll, nytjastuld, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk kynferðisbrots.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gintaras Vaikutis (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur til greiðslu sektar. Þá var ákærða gert að sæta fimm ára ökuréttarsviptingu.
A krafðist viðurkenningar á bótaskyldu V hf. úr slysatryggingu ökumanns vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í árekstri. Var hún ökumaður bifreiðar, sem var í eigu móður hennar og var tryggð hjá V hf., er hún ók þvert yfir rangan vegarhelming og skall á kyrrstæðri bifreið sem kastaðist á aðra kyrrstæða bifreið. Aðilar deildu um hvort A hefði valdið tjóninu af stórkostlegu gáleysi og hvort hún hefði brotið gegn varúðarreglum sem komu fram í vátryggingarskilmálum V hf. Í dómi Landsréttar kom fram að með hliðsjón af því að stefnda var með skerta meðvitund við komu á slysadeild í kjölfar árekstrarins, umfram það sem búast mátti við miðað við áverka hennar, að hún notaði farsíma án handfrjáls búnaðar og ók bifreiðinni yfir á rangan vegarhelming, að morgni mánudags þegar vænta mátti umferðar bifreiða úr gagnstæðri átt, og þaðan áfram á kyrrstæða bifreið á bifreiðastæði þar sem vænta mátti umferðar gangandi vegfarenda, yrði að telja að akstur hennar hefði verið sérlega háskalegur auk þess sem ekkert hefði komið fram um að hún ætti sér málsbætur. Var V hf. því sýknað af kröfu A.
Ákæruvaldið (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Magnúsi Stefáni Jóhannssyni (
Magnús Ingvar Magnússon lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Marín Ólafsdóttir saksóknari)
gegn
Axel Óla Breiðfjörð Albertssyni (
Björgvin Jónsson lögmaður)
A var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í tvö tilgreind skipti ekið bifreið óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og að hafa í annað skiptanna vanrækt vátryggingarskyldu bifreiðarinnar. Að sakaferli hans virtum og með vísan til 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í sjö mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rebekku Eiri Stefánsdóttur (
Oddgeir Einarsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir hegningarlagabrot og umferðarlagabrot. Refsing fangelsi í 8 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Steinunni Ósk Óskarsdóttur (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir þjófnaðarbrot, umferðarlagabrot og vörslur fíknefna. Hún var dæmd í 4 mánaða fangelsi og svipt ökuréttindum ævilangt. Þá var henni gert að sæta upptöku á fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Fannari Daða Hreinssyni (
Daníel Reynisson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Eldi dómur dæmdur upp. Hegningarauki. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Kjartani Benjamínssyni (
Garðar Steinn Ólafsson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir líkamsárás. Skilorðsbundin refsing. Háttsemi færð undir vægara refsiákvæði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi (
Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.