Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

65 dómar fundust

Lög: Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 38/1954

Landsréttur birt 12. júní 2026 kl. 22:06

848/2023

Hilmar Hreinsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Avians ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

H, sem starfað hafði sem flugumferðarstjóri hjá I ehf., nú A ehf., krafðist þess að viðurkennt yrði að A ehf. hefði verið óheimilt að binda enda á störf H hjá A ehf. á grundvelli tilgreinds ákvæðis í kjarasamningi Félags íslenskra flugumferðarstjóra við Samtök atvinnulífsins. Ágreiningslaust var að starfslok H komu til af því einu að hann varð 63 ára og jafnframt að starfslok H hefðu verið reist á nánar tilgreindu kjarasamningsákvæði. Í dómi Landsréttar var rakið að eftir að lögum og stjórnvaldsfyrirmælunum var breytt á árunum 2017 og 2018 voru starfsréttindi flugumferðarstjóra ekki lengur háð neinum aldurstakmörkunum. Taldi Landsréttur kjarasamningsákvæðið því ekki veita stoð fyrir því að binda enda á störf H hjá A ehf. þegar hann náði 63 ára aldri. Einnig taldi rétturinn að beiting A ehf. á ákvæðinu gagnvart H hefði brotið í bága við 7. og 8. gr. laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði, enda skilyrðum til frávika samkvæmt 12. gr. laganna ekki fullnægt. Var viðurkenningarkrafa H því tekin til greina.

Landsréttur birt 27. nóvember 2025

826/2024

Þjóðkirkjan (Hilmar Gunnarsson lögmaður) gegn Kristni Jens Sigurþórssyni (Björn Jóhannesson lögmaður)

Á árinu 2019 ákvað kirkjuþing að leggja niður Saurbæjarprestakall og í kjölfarið var embætti sóknarprests í Saurbæjarprestakalli, sem K hafði gegnt frá árinu 1996, sömuleiðis lagt niður. Í málinu krafðist K viðurkenningar á skaðabótaskyldu Þ vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna þessa. Til vara krafðist hann viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna þeirrar ákvörðunar biskups Íslands að hafna ákvörðun hans um að fara á lögmælt eftirlaun í framhaldi af því að honum var boðið embætti prests í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Að því frágengnu krafðist K viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna þess tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir sökum þeirrar ákvörðunar biskups Íslands að hafna ákvörðun hans um að taka tilboðinu um prestsembætti í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli. Landsréttur taldi að málsmeðferðin sem leiddi til ákvörðunar kirkjuþings um niðurlagningu Saurbæjar- prestakalls hefði verið lögmæt og byggst á lögmætum og málefnalegum grundvelli, og að hið sama gilti um ákvörðunina sem á eftir fylgdi um niðurlagningu sóknar- prestsembættisins. Þá taldi Landsréttur að þar sem K hafði ekki verið fluttur milli embætta samkvæmt 1. mgr. 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, heldur hefði embætti hans verið lagt niður, hefði aldrei getað komið til álita að hann ætti tilkall til eftirlaunaréttinda samkvæmt 4. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar. Að lokum taldi Landsréttur að viðbrögð Þ við því þegar K kvaðst í byrjun september 2019 vilja taka boði um embætti prests, sem Þ hafði gefið K frest til 10. apríl 2019 til að svara, hefðu ekki verið í ósamræmi við meginreglu stjórnsýsluréttar um réttmætar væntingar eða reglu um meðalhóf. Voru skilyrði skaðabótaábyrgðar því ekki talin uppfyllt og Þ sýknað af öllum kröfum K.

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

848/2023

Hilmar Hreinsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Isavia ANS ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

H, sem starfað hafði sem flugumferðarstjóri hjá I ehf., krafðist þess að viðurkennt yrði að I ehf. hefði verið óheimilt að binda enda á störf H hjá I ehf. á grundvelli nánar tiltekins ákvæðis í kjarasamningi Félags íslenskra flugumferðarstjóra við Samtök atvinnulífsins. Ágreiningslaust var að starfslok H komu til af því einu að hann varð 63 ára og jafnframt að starfslok H hefðu verið reist á nánar tilgreindu kjarasamningsákvæði. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki væri unnt að leggja þá merkingu í umþrætt kjarasamningsákvæði að starfslok skyldu verða við tiltekinn aldur. Þvert á móti mælti það fyrir um að starfslok verði við réttindamissi flugumferðarstjóra. Ekki væri fjallað um réttindi til að starfa sem flugumferðarstjóri í kjarasamningnum en reglur um þau réttindi og takmörk þeirra hefðu aftur á móti verið í lögum nr. 60/1998 og stjórnvaldsfyrirmælum sem sett höfðu verið á grundvelli þeirra. Eftir að lögum og stjórnvaldsfyrirmælunum var breytt 2017 og 2018 voru starfsréttindi flugumferðarstjóra ekki háð neinum aldurstakmörkunum. Taldi Landsréttur kjarasamningsákvæðið því ekki veita stoð fyrir því að binda enda á störf H hjá I ehf. þegar hann náði 63 ára aldri. Var viðurkenningarkrafa H því tekin til greina.

Landsréttur birt 24. nóvember 2023

235/2022

Kristján Erlendsson (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

K höfðaði mál gegn Í og krafðist þess að viðurkennt yrði annars vegar að launagreiðslur sem hann fékk frá Í, eftir að hann varð sjötugur, skyldu reiknaðar með sama hætti og fyrir það tímamark, það er sem laun fyrir fullt starf yfirlæknis, og hins vegar að hann skyldi njóta allra réttinda sem kjarasamningur LÍ og Í tryggði læknum. Auk þess krafðist K þess að ógilt yrði ákvæði í ráðningarsamningi um að hann skyldi fá tímakaup fyrir 100% starf sitt hjá Í. Í dómi Landsréttar kom fram varðandi þá kröfu K að viðurkennt yrði að hann skyldi njóta allra réttinda sem kjarasamningur LÍ og Í tryggi honum, að með öllu skorti að tilgreint væri hvaða tilteknu réttindi væri þar um að ræða. Krafan var ekki talin uppfylla skilyrði d-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 og var henni því vísað frá héraðsdómi. Um ógildingarkröfu K á ákvæði í ráðningarsamningi hans og L kom fram að þar sem samningurinn væri runninn úr gildi teldist K ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að fá ógilt slíkt ákvæði. Var krafa K talin í andstöðu við 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 og henni því einnig vísað frá héraðsdómi. Þá var Í sýknað af kröfu K um viðurkenningu á launagreiðslum sem yfirlæknir enda gegndi K ekki lengur því starfi. Enn fremur var K ekki talinn geta gert kröfu um að laun hans skyldu reiknuð á grundvelli reglna sem gilda um fastráðningu starfsmanna hjá Í þar sem nýtt ráðningarsamband hefði tekið við á grundvelli tímavinnu eftir að K varð sjötugur.

Landsréttur birt 11. nóvember 2022

458/2021

Gunnlaugur Auðunn Júlíusson (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn Borgarbyggð (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

G og B greindi á um það hvort G hefði verið sagt upp starfi sveitarstjóra með lögmætum hætti og um uppgjör launa í kjölfar starfsloka. Í dómi Landsréttar kom fram að uppsögnin hefði verið heimil samkvæmt 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og að baki henni hefðu legið málefnalegar ástæður í skilningi ákvæðisins. Jafnframt var því hafnað að brotið hefði verið gegn kjarasamningi er G starfaði eftir. Þá hefði hvorki verið brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993 né meginreglum stjórnsýsluréttar með uppsögninni. Ætti G því hvorki rétt til bóta vegna fjártjóns né miskabóta á þeim grundvelli að staðið hefði verið að uppsögninni með ólögmætum hætti. Jafnframt var G ekki talinn hafa átt skilyrðislausan rétt til tiltekinna launahækkana samkvæmt ráðningarsamningi. Landsréttur féllst á hinn bóginn á það með G að hann hefði átt rétt á launum á uppsagnarfresti í þrjá mánuði og biðlaunum í sex mánuði að loknum uppsagnarfresti, enda væri það sú túlkun ráðningarsamningsins sem best samræmdist orðalagi hans og meginreglum vinnuréttar. Loks var B gert að greiða G orlofslaun á þriggja mánaða uppsagnarfresti.

Landsréttur birt 27. október 2022

302/2021

Kristín Björg Kristjánsdóttir (Gestur Jónsson lögmaður) gegn Íslandspósti ohf (Andri Andrason lögmaður)

K starfaði hjá Póst- og símamálastofnun til 1997 er hún tók við starfi hjá P hf. við hlutafélagvæðingu stofnunarinnar. Við skiptingu P hf. ári síðar varð hún starfsmaður Í ohf. K var sagt upp störfum hjá Í ohf. 21. október 2019 vegna skipulagsbreytinga. Hún höfðaði mál til innheimtu biðlauna eða bóta úr hendi Í ohf. vegna starfsloka sinna. Um rétt sinn til biðlauna vísaði K til 1. mgr. 8. gr. laga nr. 103/1996 um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar og 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og einnig til ráðningarsamnings sem tók gildi 1. janúar 1997 þar sem fram kom að áunnin bótaréttur (biðlaunaréttur) hennar væri 6 mánuðir. Í ohf. var sýknað af kröfum K í héraði. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að 8. gr. laga nr. 103/1996 hafi átt að tryggja að þeir starfsmenn Póst- og símamálastofnunar, sem ráðnir yrðu til starfa hjá Pósti og síma hf., héldu áunnum réttindum í starfi sínu hjá hlutafélaginu, þar á meðal biðlaunaréttinum. Þó bar að fara eftir nýsamþykktum lögum nr. 70/1996 um inntak og nánari skilmála biðlaunaréttinda þeirra hjá félaginu, en ekki eldri lögum um sama efni. Hlutu ráðningarsamningar sem gerðir voru við starfsmennina um störf þeirra hjá hlutafélaginu að taka mið af efni og tilgangi 8. gr. laga nr. 103/1996. Þótt lögin hefðu verið felld úr gildi með lögum nr. 75/2001 haggaði það ekki skuldbindingum stefnda samkvæmt samningum og fyrrgreindu lagaákvæði. Var því lagt til grundvallar að K ætti á grundvelli ráðningarskilmála sinna hjá Í ohf. rétt til greiðslu bóta samkvæmt 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996, að því gefnu að skilyrði ákvæðisins væru fyrir hendi. Mótbárum Í ohf. við því að þeim skilyrðum væri fullnægt var hafnað. Aftur á móti var talið að K hefði ekki áunnið sér meiri bótarétt en hún hafði öðlast í gildistíð eldri laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Því var fallist á þrautavarakröfu K sem tók mið af því að hún ætti rétt til bóta vegna niðurlagningar á starfi sínu hjá Í ohf. er næmi óbreyttum launum í 6 mánuði frá starfslokum að frádregnum launatekjum hennar á þeim tíma.

Landsréttur birt 7. október 2022

296/2021

Pétur Einarsson (Sveinn Guðmundsson lögmaður, Leó Daðason lögmaður, 1. prófmál) gegn Íslandspósti ohf (Andri Andrason lögmaður)

PE starfaði hjá Póst- og símamálastofnun til 1997 er hann tók við starfi hjá P hf. við hlutafélagavæðingu stofnunarinnar. Við skiptingu P hf. ári síðar varð hann starfsmaður Í ohf. PE var sagt upp störfum hjá Í ohf. 16. október 2019 vegna hagræðingaraðgerða. Hann höfðaði mál til innheimtu biðlauna eða bóta úr hendi Í ohf. vegna starfsloka sinna. Fyrir héraðsdómi byggði PE á því að hann ætti rétt á biðlaunum samkvæmt ráðningarkjörum og samfelldum starfsferli frá árinu 1980. Til stuðnings kröfunni vísaði hann til 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 34. gr. laganna og 8. gr. laga nr. 103/1996 um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar. Í ohf. var sýknað af kröfum PE í héraði. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að 8. gr. laga nr. 103/1996 hafi átt að tryggja að þeir starfsmenn Póst- og símamálastofnunar, sem ráðnir yrðu til starfa hjá Pósti og síma hf., héldu áunnum réttindum í starfi sínu hjá hlutafélaginu, þar á meðal biðlaunaréttinum. Þó bar að fara eftir nýsamþykktum lögum nr. 70/1996 um inntak og nánari skilmála biðlaunaréttinda þeirra hjá félaginu, en ekki eldri lögum um sama efni. Hlutu ráðningarsamningar sem gerðir voru við starfsmennina um störf þeirra hjá hlutafélaginu að taka mið af efni og tilgangi 8. gr. laga nr. 103/1996. Þótt lögin hefðu verið felld úr gildi með lögum nr. 75/2001 haggaði það ekki skuldbindingum stefnda samkvæmt samningum og fyrrgreindu lagaákvæði. Talið var í ljós leitt að uppsögn PE yrði rakin til þess að starf hans hafi verið lagt niður í skilningi 5. mgr. fyrrgreinds ákvæðis til bráðabirgða. Þá var talið að hann ætti rétt á bótum á grundvelli ráðningarsamnings við Í ohf. vegna starfsloka hans, enda yrði að leggja til grundvallar að skilyrðum bótaréttar samkvæmt 5. mgr. væri fullnægt. Í samræmi við ráðningarsamning PE og fyrrgreint lagaákvæði næmi bótaréttur hans þeim launum sem fylgdu starfi hans hjá Í ohf. í tólf mánuði eftir starfslok.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. mars 2022

E-1054/2021

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Sýkna af kröfum sem byggðu á því að breytt starfskjör læknis á grundvelli tímabundins tímavinnusamnings, sem gerður var eftir 70 ára afmæli viðkomandi, fælu í sér ólögmæta mismunun á grundvelli ákvæða laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði.

Landsréttur birt 28. maí 2021

14/2020

Íslenska ríkið (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður) gegn A (Jón Sigurðsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn Í til heimtu bóta vegna uppsagnar hans úr starfi hjá stofnuninni H. Byggði A á því að ekki hefði verið gætt að ákvæðum 21. gr. laga nr. 70/1996 við uppsögnina en aðila greindi á um hvort uppsögnina mætti rekja til skipulagsbreytinga eða ávirðinga í garð A. Í rökstuðningi stofnunarinnar fyrir uppsögninni var vísað til skipulagsbreytinga hjá stofnuninni en aðallega til slakrar frammistöðu hans í starfi og til þess að hann hefði ekki náð að bæta hæfni sína eins og til hefði verið ætlast. Þá þóttu gögn málsins benda eindregið til þess að ástæða uppsagnar A hefði í reynd verið að verulegu leyti tengd honum sjálfum og frammistöðu hans í starfi. Að því virtu og þar sem ekki var gætt að ákvæðum 21. og 44. gr. laga nr. 70/1996 taldist uppsögnin ólögmæt. Í samræmi við dómaframkvæmd var A talinn eiga rétt á bótum fyrir fjártjón og miska að álitum. Voru A dæmdar 6.000.000 króna í skaðabætur og 750.000 krónur í miskabætur, auk dráttarvaxta.

Landsréttur birt 28. maí 2021

13/2020

Íslenska ríkið (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður) gegn A (Jón Sigurðsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn Í til heimtu bóta vegna uppsagnar hans úr starfi hjá stofnuninni H. Byggði A á því að ekki hefði verið gætt að ákvæðum 21. gr. laga nr. 70/1996 við uppsögnina en aðila greindi á um hvort uppsögnina mætti rekja til skipulagsbreytinga eða ávirðinga í garð A. Í rökstuðningi stofnunarinnar fyrir uppsögninni var vísað til skipulagsbreytinga hjá stofnuninni en aðallega til slakrar frammistöðu hans í starfi og til þess að hann hefði ekki náð að bæta hæfni sína eins og til hefði verið ætlast. Þá þóttu gögn málsins benda eindregið til þess að ástæða uppsagnar A hefði í reynd verið að verulegu leyti tengd honum sjálfum og frammistöðu hans í starfi. Að því virtu og þar sem ekki var gætt að ákvæðum 21. og 44. gr. laga nr. 70/1996 taldist uppsögnin ólögmæt. Í samræmi við dómaframkvæmd var A talinn eiga rétt á bótum fyrir fjártjón og miska að álitum. Voru A dæmdar 6.000.000 króna í skaðabætur og 750.000 krónur í miskabætur, auk dráttarvaxta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. desember 2019

E-4338/2018

A (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Starfsmanni sem sagt var upp starfi í þjónustu ríkisins voru dæmdar skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Eins og atvikum og gögnum málsins var háttað þóttu nægar líkur hafa verið að því leiddar að ástæður uppsagnar hefðu í reynd verið með þeim hætti að 44. gr. laga nr. 70/1996 hefði átt við, þannig að veita hefði borið starfsmanninum áminningu, sbr. 21. gr. sömu laga, áður en til uppsagnar hans kom. Tókst íslenska ríkinu, sem byggði á því að uppsögnin ætti rót að rekja til skipulagsbreytinga og ætti sér stoð í 43. gr. sömu laga, ekki sönnun hins gagnstæða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. desember 2019

E-4337/2018

A (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Starfsmanni sem sagt var upp starfi í þjónustu ríkisins voru dæmdar skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Eins og atvikum og gögnum málsins var háttað þóttu nægar líkur hafa verið að því leiddar að ástæður uppsagnar hefðu í reynd verið með þeim hætti að 44. gr. laga nr. 70/1996 hefði átt við, þannig að veita hefði borið starfsmanninum áminningu, sbr. 21. gr. sömu laga, áður en til uppsagnar hans kom. Tókst íslenska ríkinu, sem byggði á því að uppsögnin ætti rót að rekja til skipulagsbreytinga og ætti sér stoð í 43. gr. sömu laga, ekki sönnun hins gagnstæða.

Hæstiréttur birt 1. mars 2018

185/2017

Guðbrandur E. Þorkelsson (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Á árinu 2015 var starf G sem yfirlæknir á heilsugæslustöð lagt niður. Ágreiningslaust var að G ætti rétt til biðlauna í tólf mánuði samkvæmt 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og að þau ættu samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laganna að samsvara óbreyttum launakjörum meðan hann starfaði sem yfirlæknir. Á hinn bóginn deildu aðilar um hvaða launaliðir féllu undir óbreytt launakjör í skilningi ákvæðisins. Í fyrsta lagi hélt G því fram að réttur hans til biðlauna næði til greiðslna vegna gæsluvakta. Mælt var fyrir um fyrirkomulag slíkra greiðslna í kjarasamningi. Var ekki talið að Í hefði fært fyrir því haldbær rök að skipan gæsluvakta G hefði verið breytt á því tímabili sem krafa hans tók til ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Hefðu greiðslur vegna gæsluvakta ekki verið háðar vinnuframlagi og yrðu því lagðar að jöfnu við samninga um fastar yfirvinnugreiðslur óháð vinnuframlagi. Í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefðu slíkar greiðslur verið taldar falla undir biðlaun. Var sá kröfuliður því tekinn til greina. Í öðru lagi krafðist G greiðslna fyrir unnin verk á gæsluvöktum en greitt var fyrir þau samkvæmt gjaldskrá. Talið var að þótt fjárhæð greiðslna fyrir slík verk hefðu hverju sinni ráðist af fjölda sjúklinga og fjölda læknisverka yrði á grundvelli þess fyrirkomulags sem gilti um greiðslur fyrir verkin að leggja það að jöfnu við samning um fastar yfirvinnugreiðslur sem féllu undir biðlaun. Hefði Í ekki fært fyrir því haldbær rök að G hefði ekki notið þessara greiðslna ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Var sá kröfuliður G því tekinn til greina. Í þriðja lagi deildu aðilar um hvort launaliðurinn vottorðagreiðslur á launaseðli G ætti að teljast til biðlauna. Talið var að fjárhæð greiðslna til heilsugæslulækna fyrir ritun læknisvottorða réðust af fjölda vottorða og umfangi þeirra hverju sinni og gæti fjárhæðin þannig verið mismunandi frá einum tíma til annars. Hins vegar yrði ekki fram hjá því litið að ritun læknisvottorða væri hluti af aðalstarfi heilsugæslulækna og þannig órjúfanlegur þáttur starfsskyldna þeirra sem greitt væri sérstaklega fyrir eftir nánar tilgreindu fyrirkomulagi. Það fyrirkomulag yrði að leggja að jöfnu við samning um föst viðbótarlaun sem hefðu í dómaframkvæmd Hæstaréttar verið talin falla undir biðlaun. Var ekki talið að Í hefði fært fyrir því haldbær rök að G hefði ekki notið þessara greiðslna ef starf hans hefði ekki verið lagt niður. Var sá kröfuliður því einnig tekinn til greina. Var Í því gert að greiða G umkrafða fjárhæð.

Hæstiréttur birt 8. febrúar 2018

77/2017

Björn Vilhelmsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn sveitarfélaginu Garði (Áslaug Árnadóttir lögmaður)

B krafði S annars vegar um biðlaun vegna niðurlagningar stöðu hans sem deildarstjóra við Gerðaskóla á árinu 2015 og hins vegar miskabætur vegna ætlaðs brots S við ráðningu í stöðu skólastjóra við skólann á árinu 2012 en B var meðal ellefu umsækjenda um starfið. Gerður var skriflegur tímabundinn ráðningarsamningur við B um starf við skólann árið 2003 en eftir að hann rann sitt skeið á enda var ekki gerður nýr skriflegur samningur við hann. Hélt B engu að síður áfram starfi við skólann með starfsheitinu deildarstjóri og tók samkvæmt vinnuskýrslum laun sem slíkur í samræmi við ákvæði kjarasamnings. Í dómi Hæstaréttar kom fram að S yrði að bera hallann af því að ekki hefði verið gengið frá nýjum tímabundnum samningi við B eftir að gildistíma samningsins frá 2003 lauk. Yrði því lagt til grundvallar að komist hefði á ótímabundinn samningur um ráðningu hans í starfið. Í grein 14.12 þess kjarasamnings sem gilti þegar uppsögnin kom til framkvæmda var mælt fyrir um að starfsmaður sem hafið hefði störf sem kennari, námsráðgjafi eða stjórnandi grunnskóla í tíð laga nr. 72/1996 um réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda grunnskóla eða fyrir gildistöku þeirra og hefði starfað óslitið síðan, enda væri um stöðu í skilningi 14. gr. laganna að ræða, ætti rétt á biðlaunum yrði starf hans lagt niður. Var talið að B hefði í skilningi 14. gr. laga nr. 72/1996 gengt stöðu deildarstjóra við skólann. Með uppsagnabréfi til B á árinu 2015 hefði sú staða hans verið lögð niður í skilningi kjarasamningsins. Væri ekki unnt að líta svo á að rof hefði orðið á ráðningu B með launalausu leyfi sem hann tók skólaárið 2008 til 2009 enda hefði leyfið verið tekið í samráði við skólayfirvöld. Þar sem B hefði átt að baki 19 ára starfsaldur þegar honum var sagt upp stöðunni var talið að hann ætti rétt til biðlauna í tólf mánuði. Hins vegar var ekki talið að B hefði hnekkt því mati S að þeir sex umsækjendur sem boðaðir voru í viðtöl vegna skólastjórastöðunnar hefðu staðið honum framar samkvæmt þeim menntunar- og hæfniskröfum sem gerðar voru í auglýsingu um stöðuna. Þegar af þeirri ástæðu voru ekki talin skilyrði til að fallast á kröfu hans um miskabætur.

Hæstiréttur birt 21. september 2017

650/2016

Örn Erlendur Ingason (Hulda Rós Rúriksdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Ö starfaði sem yfirlæknir heilsugæslunnar hjá HV. Í kjölfar sameiningar HV og HP undir heiti hinnar fyrrnefndu var Ö tilkynnt að að ákveðið hefði verið að leggja niður starf hans frá og með 1. janúar 2015. Naut Ö biðlauna frá þeim degi til 31. desember sama ár. Í málinu krafðist Ö í fyrsta lagi að viðurkennt yrði að niðurlagning starfs hans hefði verið ólögmæt. Í öðru lagi krafðist hann greiðslu vegna svokallaðra gæsluvakta sem hann taldi sig eiga rétt til á biðlaunatímanum. Í þriðja lagi krafðist hann miskabóta vegna ólögmætrar niðurlagningar starfsins. Hæstiréttur vísaði viðurkenningarkröfu Ö frá héraðsdómi með vísan til þess að Ö hefði ekki lögmæta hagsmuni af því að fá sérstaka úrlausn um kröfuna, enda yrði að leggja mat á ólögmæti niðurlagningarinnar kæmi til þess að taka þyrfti afstöðu til kröfu hans um miskabætur. Að því er varðaði rétt Ö til greiðslu fyrir gæsluvaktir vísaði Hæstiréttur meðal annars til þess að samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins skyldi Ö halda „óbreyttum launakjörum“ á biðlaunatímanum. Gæsluvaktir hefðu verið óháðar vinnuframlagi Ö og yrðu þær því lagðar að jöfnu við samninga um fastar yfirvinnugreiðslur óháð vinnuframlagi sem í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefðu verið taldar falla undir biðlaun. Var því fallist á kröfu Ö um greiðslu vegna þeirra. Kröfu Ö um miskabætur var á hinn bóginn vísað frá héraðsdómi með vísan til þess að hún væri í þversögn við kröfu hans um leiðréttingu á biðlaunum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. janúar 2017

E-599/2016

Björn Vilhelmsson (Gísli Guðni Hall hrl) gegn Sveitarfélaginu Garði (Áslaug Árnadóttir hdl)

Stefnandi höfðaði mál annars vegar til greiðslu biðlauna vegna niðurlagningar starfs hans sem deildarstjóri og hins vegar til greiðslu miskabóta vegna brots við ráðningu í stöðu skólastjóra. Stefnandi fékk dæmdar miskabætur en kröfu hans um biðlaun var hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júlí 2016

E-4238/2015

Örn Erlendur Ingason (Hulda Rós Rúriksdóttir hrl) gegn Ríkissjóði Íslands (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)

Stefndi, ríkissjóður Íslands sýknaður. Ekki var talið að um ólögmæta uppsögn hafi verið að ræða og stefndi sýknaður af miskabótakröfu. Þá var ekki talið að stefnandi ætti rétt á greiðslu vegna gæsluvakta á biðlaunatíma.

Hæstiréttur birt 3. október 2013

231/2013

Margrét Ólöf Ívarsdóttir (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

M höfðaði mál gegn sveitarfélaginu R og krafðist greiðslu biðlauna sem hún taldi sig eiga að fá óskert greidd í kjölfar þess að henni hafði verið sagt upp störfum og deildarstjórastaða hennar við grunnskóla R verið lögð niður. Í kjarasamningi var kveðið á um að starfsmaður með eins langan starfsaldur og M skyldi jafnan frá föst laun er starfi fylgdi í tólf mánuði frá því að látið væri af starfi, enda hefði starfsmaðurinn ekki hafnað annarri sambærilegri stöðu hjá sveitarfélögum. Hélt M því fram að R hefði verið óheimilt að draga frá biðlaunum hennar laun sem hún fékk á meðan hún starfaði út þriggja mánaða uppsagnarfrest. Talið var að efnislegt inntak umrædds kjarasamningsákvæðis ætti rót sína að rekja til ákvæðis í brottföllnum lögum nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Með vísan til dómafordæma Hæstaréttar um beitingu þess ákvæðis var talið að telja bæri uppsagnarfrest til biðlaunatíma. Var R því sýknað af kröfum M.

Hæstiréttur birt 6. júní 2013

131/2013

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Halldóru Kristinsdóttur (Bergþóra Ingólfsdóttir hrl)

H starfaði sem deildarstjóri meðgönguverndar hjá HS og fékkst að mestu við mæðravernd. Vegna skipulagsbreytinga hjá stofnuninni var H tilkynnt um breytingar á starfi sínu og verksviði, en breytingarnar fólu m.a. í sér að deild meðgönguverndar var sameinuð fæðingardeild stofnunarinnar. Deildu aðilar um það hvort ákvörðun HS um breytingu á störfum og verksviði H rúmaðist innan heimilda 19. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eða hvort H, sem taldi breytingarnar fela í sér niðurlagningu á stöðu hennar, ætti rétt til skaðabóta á grundvelli 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða við lögin. Ekki var um það deilt að málefnalegar ástæður hefðu búið að baki breytingum á skipulagi HS sem leiddu til breytinga á starfi og verksviði H. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði m.a. að störf við mæðravernd hefðu ekki verið lögð af við HS með skipulagsbreytingunum heldur færð ásamt starfsmanni við mæðravernd í nýja deild. Málefnaleg sjónarmið hafi búið að baki breytingunum, sem hefðu ekki varðað persónu H. Þótt lagt yrði til grundvallar að H hefði mátt líta svo á að henni hefði verið ætlað að ganga til almennra starfa sem ljósmóðir eftir breytingarnar yrði að líta til þess að H væri menntuð til slíkra starfa, sem hún hefði gegnt um árabil og hefði henni borið að halda við þekkingu sinni á þeim og faglegri færni. Þá var talið rúmast innan heimilda 19. gr. laga nr. 70/1996 að H var með breytingunum svipt mannaforráðum, enda hefðu þau verið óveruleg. Loks var vísað til þess að mánaðarlaun í þeim launaflokki sem hún hefði átt að færast í hefðu verið hærri en laun í þeim flokki sem henni var áður skipað í. Með vísan til þessa var ekki fallist á með H að í breytingunum hefði falist að starf hennar hefði verið lagt niður eða að þær stönguðust með öðrum hætti á við 19. gr. laga. nr. 70/1996. Var Í því sýknað af kröfu H.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. maí 2026 kl. 6:39

E-2285/2012

A (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

Stefnandi krafðist greiðslu á vangreiddum biðlaunum. Stefndi var sýknaður af dómkröfum stefnanda þar sem stefnda var talið hafa verið heimilt að að draga laun stefnanda í 3ja mánaða uppsagnarfresti frá 12 mánaða biðlaunum hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2013

E-2286/2012

Róbert Grétar Gunnarsson (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)
Lykilorð: Biðlaun. Sýkna.

Stefnandi krafðist greiðslu á vangreiddum biðlaunum. Stefndi var sýknaður af dómkröfum stefnanda þar sem stefnda var talið hafa verið heimilt að draga laun stefnanda í 3ja mánaða uppsagngarfresti frá biðlaunum hans sem talin voru nema 6 mánuðum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. desember 2010

E-2960/2010

Birna Salóme Björnsdóttir (sjálf) gegn Sýslumanninum í Reykjavík og íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar sýslumannsins í Reykjavík um skerðingu á föstum yfirvinnugreiðslum til hennar og viðurkenningu á bótaskyldu sýslumannsins og íslenska ríkisins var hafnað.

Hæstiréttur birt 9. desember 2010

76/2010

Íslenska ríkið (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) gegn Brynjari Erni Ragnarssyni (Gísli Guðni Hall hrl)

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 11. febrúar 2010. Hann krefst aðallega sýknu af kröfum stefnda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti, en til vara að málskostnaðar á báðum dómstigum verði felldur niður. Stefndi krefst staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti.

Hæstiréttur birt 20. maí 2009

443/2008

Valur Steinn Þorvaldsson (Jón Höskuldsson hrl) gegn Búnaðarsambandi Kjalarnesþings (Sigmundur Hannesson hrl)

V starfaði sem héraðsráðunautur og framkvæmdastjóri hjá B frá árinu 1987 til 1. maí 2006. Greindi aðila á um rétt V til biðlauna eftir starfslok hans, hvor aðilanna ætti að greiða reikning lögmanns vegna ráðgjafar við endurskoðun ráðningarsamnings V og hvort V hefði við aðalmeðferð málsins samþykkt skuld að tiltekinni fjárhæð. Óumdeilt var að starfssamningur V hafði ekki verið endurskoðaður eins og til stóð samkvæmt upphaflegum samningi aðila. Var þriggja manna framkvæmdastjórn falið að uppfæra samninginn. Lögmaður var fenginn til aðstoðar að frumkvæði V og var B dæmdur til að greiða reikning hans. Framkvæmdastjórnin og V undirrituðu breytingu á starfssamningi við V 7. nóvember 2005. Í málinu þótti nægilega upplýst að starf V hefði verið lagt niður er hann hætti störfum. Með vísan til samningsins 7. nóvember 2005 og annarra málsgagna var staðfestur biðlaunaréttur V. V hafði látið gjaldfæra ýmsar úttektir hjá B sem ekki fundust fylgiskjöl fyrir, staðfesti V að stærstur hluti þeirra væru persónulegar úttektir en taldi hluta þeirra hafa verið í þágu B. Hæstiréttur hafnaði því að V hefði samþykkt við skýrslugjöf í héraði að hann skuldaði alla fjárhæðina, en engu að síður var talið að B þyrfti ekki við svo búið að bera þennan kostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. júlí 2008

E-2082/2007

Búnaðarsamband Kjalarnesþings (Sigmundur Hannesson hrl) gegn Vali Steini Þorvaldssyni (Jón Höskuldsson hrl)

Stefnandi krafði stefnda um greiðslu skuldar vegna úttekta af bankareikningi stefnanda. Stefndi höfðaði gagnsök vegna vangoldinna launa, þ.á m. biðlauna. Hafnað var að gagnstefnandi ætti rétt til biðlauna. Stefndi í aðalsök dæmdur til greiðslu þess mismunar sem var á skuld hans við stefnanda og vangoldnum launum hans hjá stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. júní 2008

E-8306/2007

Ása Gréta Einarsdóttir (Þórhallur H. Þorvaldsson hdl) gegn Fasteignamati ríkisins (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Fallist var á með Á að F bæri að greiða henni bætur vegna ólögmætrar niðurlagningar starfs hennar þar sem F hafði ekki sýnt fram á að brottvikning Á hefði byggst á lögmætum sjónarmiðum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. júní 2008

E-8305/2007

Gísli Tryggvason (Þórhallur H. Þorvaldsson hdl) gegn Fasteignamati ríkisins (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Fallist var á með G að F bæri að greiða honum bætur vegna ólögmætrar uppsagnar starfssamnings þar sem F hafði ekki sýnt fram á að uppsögnin byggðist á lögmætum ástæðum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. janúar 2008

E-938/2007

Bjarni Ólafur Bjarnason (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn Þjóðleikhúsinu (Óskar Thorarensen hrl)
Lykilorð: Biðlaun. Orlof.

Stefnanda var sagt upp störfum með fjögurra mánaða uppsagnarfresti. Hann átti inni tveggja mánaða orlof við upphaf orlofsfrests og tók hann orlofið á uppsagnartímanum. Hann krafði stefnda um greiðslu orlofs, til vara laun og til þrautavara skaðabætur vegna þeirra tveggja mánaða, sem orlofið féll inn í uppsagnarfrestinn. Byggði hann m.a. á því, að um réttindi hans og skyldur hefði farið eftir lögum um opinbera starfsmenn. Stefndi var sýknaður

Hæstiréttur birt 2. júní 2005

23/2005

Reykjanesbær (Lárentsínus Kristjánsson hrl) gegn Sigurði Gíslasyni Ólafssyni (Gestur Jónsson hrl)

S hafði starfað um árabil við vatnsveitu sveitarfélagsins R þegar honum var tilkynnt að verkefni vatnsveitunnar yrðu flutt yfir til hlutafélagsins H en félagið var í eigu íslenska ríkisins og sjö sveitarfélaga, þar á meðal R. Var honum jafnframt boðið starf hjá H, sem hann þáði. Tekið var fram að S myndi halda áunnum réttindum sínum í hinu nýja starfi. Með vísan til þess að viðurkennt var af hálfu R við munnlegan flutning málsins fyrir Hæstarétti að S hafi notið lakari lífeyriskjara eftir að hann hóf störf hjá H og þess að R hafði ekki sýnt fram á að S nyti sambærilegra ráðningarkjara og áður í núverandi starfi var talið að líta yrði svo á að starf hans hafi verið lagt niður og ætti hann því rétt til biðlauna í tólf mánuði eins og hann gerði kröfu um. Var réttur S til biðlauna leiddur af kjarasamningi, sem vísaði um þetta atriði til 14. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Ekki var talið skipta máli um túlkun hans þótt lagaákvæðið hafi verið fellt úr gildi með lögum nr. 70/1996 þar sem réttur starfsmanna ríkisins til biðlauna var þrengdur.

Hæstiréttur birt 27. maí 2004

21/2004

Sigurður Njálsson (Einar Sveinn Hálfdánarson hrl) gegn Síldarvinnslunni hf (Helgi Jóhannesson hrl)
Lykilorð: Eftirlaun.

SN, sem starfað hafði sem skrifstofustjóri SR, hélt því fram að hluti starfskjara hans hafi falist í því að hann skyldi njóta ellilífeyris úr eftirlaunasjóði starfsmanna SR. Með því að umræddur lífeyrissjóður var fyrst stofnaður eftir að SN lét af störfum hjá SR og þar sem ekkert benti til þess að í starfskjörum SN hafi falist réttur til greiðslna úr eftirlaunasjóði eftir að hann lét af störfum, var S sýknaður af öllum kröfum SN.

Hæstiréttur birt 18. mars 2004

275/2003

Háskóli Íslands (Hörður Felix Harðarson hrl) gegn þrotabúi Gunnars Þórs Jónssonar og þrotabú Gunnars Þórs Jónssonar (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl, Guðmundur Sigurðsson hdl, Skarphéðinn Þórisson hrl)

G starfaði sem prófessor við læknadeild H og einnig sem yfirlæknir á L samkvæmt samningi H og L. G var á árinu 1999 vikið um stundarsakir úr prófessorsstöðu sinni vegna tilgreindra ávirðinga í starfi. Sama ár var honum jafnframt sagt upp störfum yfirlæknis á L. Í dómi Hæstaréttar 18. maí 2000 var sú uppsögn metin ógild. Nefnd samkvæmt 27. gr. laga nr. 70/1996 komst að þeirri niðurstöðu 31. maí 2000, að háskólarektor hefði ekki verið rétt að veita G lausn um stundarsakir frá prófessorsstöðunni. G fékk ekki stöður þessar að nýju, en prófessorsstaðan var lögð niður rúmu ári síðar. G krafði H og L um vangoldin laun og bætur. Annars vegar beindi hann kröfum að H og L sameiginlega vegna vangoldinna launa G í starfi yfirlæknis auk miskabóta vegna ólögmætrar uppsagnar. H og L voru sýknaðir af þessari kröfu. Á hinn bóginn krafðist G bóta úr hendi H þar sem prófessorsstaða hans hefði verið lögð niður með ólögmætum hætti, svo að jafngilti brottvikningu. Var talið að H hefði ekki sýnt fram á að aðrar efnislegar forsendur hafi legið til grundvallar því að umrædd staða var lögð niður en þær, sem beint hafi tengst G. Var í því ljósi ekki unnt að fallast á að staðan hefði verið lögð niður í skilningi 34. gr. laga nr. 70/1996. Ljóst hafi verið að ríkur vilji hafi verið til þess innan læknadeildar H að víkja G úr starfi vegna ætlaðra ávirðinga hans. Hefði því borið að gera það í samræmi við ákvæði VI. kafla sömu laga, sbr. 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða, svo að G fengi notið þeirrar réttarverndar, sem ríkisstarfsmönnum sé þar tryggð. Þar sem svo hafði ekki verið gert var talið að brotinn hefði verið réttur á G og varðaði það H bótaskyldu samkvæmt 2. mgr. 32. gr. laga nr. 70/1996. Var H dæmdur til að greiða G bætur vegna starfsmissis auk miskabóta samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Hæstiréttur birt 12. febrúar 2004

338/2003

Landsbanki Íslands hf (Jakob R. Möller hrl) gegn Jensínu Jensdóttur (Sveinn Sveinsson hrl)

J hafði starfað um árabil hjá ríkisbankanum L. Með lögum nr. 50/1997 var ákveðið að leggja niður L og skyldi L hf. taka við rekstrinum 1. janúar 1998. Áttu allir starfsmenn L að eiga kost á sambærilegu starfi hjá L hf. og áttu þeir að njóta sömu réttinda og þeir áður höfðu notið samkvæmt kjarasamningum og ráðningarsamningum. J þáði starf hjá L hf. og gegndi því þar til henni var sagt upp frá 31. maí 2002, vegna lokunar eins af bankaútibúum L hf. Taldi J að hún ætti rétt til biðlauna í 12 mánuði á grundvelli laga nr. 70/1996 þar sem starf hennar hefði verið lagt niður. Talið var að eftir að J lét af störfum hjá L og tók við starfi hjá L hf. hafi lög 70/1996 ekki lengur átt við um réttarstöðu hennar. Yrði ekki af reglum laga nr. 50/1997 eða öðrum réttarheimildum ráðið að L hf. bæri sem einkaaðila um ókominn tíma skylda til að svara til biðlauna gagnvart þeim starfsmönnum sínum sem áður hefðu starfað hjá L. Var L hf. sýknað af kröfu J.

Hæstiréttur birt 12. febrúar 2004

337/2003

Landsbanki Íslands hf (Jakob R. Möller hrl) gegn Sigurveigu S. Róbertsdóttur (Sveinn Sveinsson hrl)

S hafði starfað um árabil hjá ríkisbankanum L. Með lögum nr. 50/1997 var ákveðið að leggja niður L og skyldi L hf. taka við rekstrinum 1. janúar 1998. Áttu allir starfsmenn L að eiga kost á sambærilegu starfi hjá L hf. og áttu þeir að njóta sömu réttinda og þeir áður höfðu notið samkvæmt kjarasamningum og ráðningarsamningum. S þáði starf hjá L hf. og gegndi því þar til henni var sagt upp frá 31. maí 2002, vegna samdráttar í þjónustu eins af bankaútibúum L hf. Taldi S að hún ætti rétt til biðlauna í 12 mánuði á grundvelli laga nr. 70/1996 þar sem starf hennar hefði verið lagt niður. Talið var að eftir að S lét af störfum hjá L og tók við starfi hjá L hf. hafi lög 70/1996 ekki lengur átt við um réttarstöðu hennar. Yrði ekki af reglum laga nr. 50/1997 eða öðrum réttarheimildum ráðið að L hf. bæri sem einkaaðila um ókominn tíma skylda til að svara til biðlauna gagnvart þeim starfsmönnum sínum sem áður hefðu starfað hjá L. Var L hf. sýknað af kröfu S.

Hæstiréttur birt 7. nóvember 2002

240/2002

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Friðriku Hörpu Ævarrsdóttur (Jónas Haraldsson hrl)

F, sem er lögfræðingur að mennt, réðist til starfa sem fulltrúi sýslumannsins á Akureyri árið 1994. Í nóvember 1996 fór F í barnsburðarleyfi og um rétt hennar til launa í slíku leyfi fór samkvæmt þágildandi reglugerð um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins. F taldi umsamda 30 klukkustunda fasta yfirvinnu á mánuði hafa verið kaupauka við grunnlaun samkvæmt kjarasamningi, sem aukið vinnuframlag hafi ekki komið fyrir, og þannig hluti þeirra dagvinnulauna sem hún ætti rétt á í barnsburðarleyfi. Talið var sannað að vinnuframlag umfram dagvinnu skyldi ekki koma fyrir greiðslu fyrrgreindra 30 yfirvinnustunda á mánuði. Var lagt til grundvallar niðurstöðu í málinu að umsamið endurgjald F fyrir átta stunda vinnudag skyldi vera laun samkvæmt viðeigandi launaflokki og andvirði 30 yfirvinnustunda. Var talið fullt tilefni til að taka fram í umræddri reglugerð að um dagvinnulaun samkvæmt kjarasamningi væri að ræða, hafi önnur laun fyrir dagvinnu ekki átt að koma til greiðslu í barnsburðarleyfi starfsmanna. Fallist var á kröfu F en enginn tölulegur ágreiningur var í málinu. Þá var miðað við að vanefnd hafi orðið af hálfu Í 1. desember 1998, eða mánuði eftir að F gerði athugasemdir við greiðslu launa í barnsburðarleyfinu, og var krafan látin bera dráttarvexti frá þeim tíma. Aðfinnsluvert þótti hvernig héraðsdómsstefna og héraðsdómur voru úr garði gerð.

Hæstiréttur birt 26. september 2002

92/2002

Hörður Sigurjónsson (Gylfi Thorlacius hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

H var skipaður í starf rannsóknarlögreglumanns við embætti ríkislögreglustjóra til fimm ára árið 1997. Árið 1999 var þeirri ráðstöfun breytt og H falið að gegna störfum rannsóknarlögreglumanns við embætti lögreglustjórans í Reykjavík, með vísan til 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Eftir flutninginn fékk H greidd laun samkvæmt sama launaflokki og áður en missti sérstakt vaktaálag, sem greitt hafði verið hjá embætti ríkislögreglustjóra. Krafðist H þess fyrir dómi að fá greiddan þann launamismun sem af þessu leiddi. Talið var, að þrátt fyrir að umræddar greiðslur fælu ekki í sér viðveruskyldu þeirra lögreglumanna, sem þær þáðu, svo sem almennt gilti um bakvaktir, væru ekki næg efni til að hafna þeirri röksemd Í að lögreglumennirnir hafi, með því að þiggja greiðslurnar, undirgengist þá kvöð að vera undir það búnir að vera kallaðir út til vinnu utan reglulegs vinnutíma með skömmum fyrirvara. Við flutninginn til embættis lögreglustjórans í Reykjavík hafi H losnað undan þessari starfskvöð hjá ríkislögreglustjóra sem hann hafi þegið greiðslu fyrir. Hafi hann ekki átt rétt á slíkri greiðslu eftir að hann var kominn í hið nýja embætti, þar sem viðlíka kvöð hvíldi þá ekki á honum. Þótti því ekki unnt að líta svo á að H hafi lækkað í launum í skilningi 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þá þótti ósannað af hálfu H að honum hafi verið lofað af hálfu embættis ríkislögreglustjóra að hann héldi umræddri álagsgreiðslu eftir flutning milli embættanna. Var dómur héraðsdóms um sýknu Í staðfestur.

Hæstiréttur birt 18. apríl 2002

394/2001

Runólfur Gíslason (Gestur Jónsson hrl) gegn Vestmannaeyjabæ (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl)

R, sem ráðinn hafði verið framkvæmdastjóri kertaverksmiðju með samningi við fjármálaráðuneytið, var sagt upp störfum og krafði í framhaldi af því sveitarfélagið V um bætur, en V hafði tekið við rekstrinum sem reynslusveitarfélag með samningi við félagsmálaráðuneytið á grundvelli laga nr. 82/1994. Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. laganna skyldi engin breyting verða á ráðningarstöðu ríkisstarfsmanna við tilflutning verkefna ríkisins til reynslusveitarfélaga og var R því ekki unnt að beina kröfum sínum í málinu gegn V, þar sem sveitarfélagið var ekki aðili að fyrrgreindum ráðningarsamningi, enda var litið svo á að það hefði sagt R upp störfum í umboði ríkisins.

Hæstiréttur birt 14. desember 2001

442/2001

N, r. 442/2001 og Björn Erlendsson (Sigurður Georgsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Talið var að B hefði með yfirlýsingum sínum og athöfnum í fyrri málum vegna sömu atvika firrt sig rétti til að hafa uppi frekari kröfur gagnvart Í á grundvelli þess að ráðningarsamningi hans hefði verið slitið með ólögmætum hætti. Var niðurstaða héraðsdóms um frávísun málsins staðfest með vísan til 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991.

Hæstiréttur birt 8. júní 2000

16/2000

Friðrik Heiðar Georgsson (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

F starfaði óslitið sem bifreiðarstjóri hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli frá 1971 til 1997 er starf hans var lagt niður. F taldi sig eiga rétt til biðlauna og vísaði til þess að samkvæmt yfirlýsingu starfsmannahalds varnarliðsins frá 1977 hefðu launakjör sín átt að miðast við samninga um kjör bifreiðarstjóra SVR, en þeir SVR hefðu notið biðlaunaréttar samkvæmt hliðstæðum reglum og greindi í 14. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Talið var að fastráðning bifreiðarstjóra hjá varnarliðinu leiddi ekki sjálfkrafa til þess að biðlaunaréttur skapaðist þeim til handa, en slík réttindi gætu ekki stofnast nema samkvæmt lögum eða samningum og skýrum ákvörðunum atvinnurekenda. Hefði þurft að taka það fram í áðurnefndri yfirlýsingu, sem fulltrúar bifreiðarstjóra samþykktu, ef biðlaunaréttur hefði átt að vera meðal starfskjara þeirra. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna íslenska ríkið af kröfu F um biðlaun, en F hafði beint kröfum sínum að ríkinu á grundvelli laga nr. 110/1951 um lagagildi varnarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna og um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þess.

Hæstiréttur birt 30. mars 2000

435/1999

Haraldur Ásgeirsson (Helgi V. Jónsson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, til vara gegn, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og íslenska ríkinu (Jón G. Tómasson hrl)

H gegndi embættisstörfum í þjónustu ríkisins frá 1945 til 1985, er hann hóf töku eftirlauna úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (L) á grundvelli launa fyrir starf sem forstöðumaður Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins (RB), er hann gegndi um 20 ára skeið. Höfðaði H mál gegn L og til vara L og íslenska ríkinu og krafðist þess að viðurkennt yrði að eftirlaun hans tækju mið af reglubundnum heildarlaunum eftirmanns hans hjá RB auk þess sem hann krafðist greiðslu vangoldinna eftirlauna. Ekki var talið að skilja bæri ákvæði 3. mgr. 12. gr. laga nr. 29/1963, sem í gildi voru meðan H átti aðild að sjóðnum sem starfsmaður, þannig að upphæð ellilífeyris skyldi vera hlutfall af öllum launum vegna starfsins hverju nafni sem þau nefndust. Var ekki fallist á að reglubundnar greiðslur fyrir yfirvinnu til forstjóra RB hafi eðlis síns vegna verið tengdar föstum embættislaunum með þeim hætti, að skylt væri að líta á þær sem hluta af launum fyrir dagvinnu, sem veitt hefðu rétt til eftirlauna. Var einnig litið til þess að framkvæmd reglna um iðgjöld L og ákvörðun eftirlauna úr sjóðnum hafi legið ljós fyrir allan þann tíma, sem hinar reglubundnu greiðslur voru við lýði. Hefðu greiðslurnar ótvírætt verið ákvarðaðar forstjóranum á þeim grundvelli að þær hefðu hvorki áhrif á iðgjöld né eftirlaun, og hafi svo einnig verið um hliðstæðar greiðslur til annarra ríkisstarfsmanna á sama tíma. Voru L og íslenska ríkið sýknuð af kröfum H.

Hæstiréttur birt 9. mars 2000

378/1999

Gunnbjörn Þór Ingvarsson (Sveinn Sveinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Jón G. Tómasson hrl)

G var starfsmaður Landsbanka Íslands (LÍ) þegar lög nr. 50/1997 um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands voru staðfest. Samkvæmt 8. gr. laganna skyldu allir starfsmenn LÍ eiga kost á sambærilegu starfi hjá LÍ hf. við yfirtöku hlutafélagsins á ríkisbankanum og njóta sömu réttinda og þeir höfðu samkvæmt kjarasamningi og/eða ráðningarsamningi. Tilkynnti LÍ starfsfólki að starfslok hjá LÍ yrðu 31. desember 1997. G hafnaði boði um starf hjá LÍ hf. Taldi hann að ekki væri um sambærilegt starf að ræða, þar sem hann myndi ekki lengur njóta réttinda ríkisstarfsmanna. Höfðaði hann mál gegn íslenska ríkinu og krafðist greiðslu biðlauna. Talið var að ákvæði laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins hefði áður gilt um starfsmenn ríkisviðskiptabanka, nema öðruvísi hefði verið mælt í lögum og ákvörðunum settum af bankaráðum með heimild í lögum. Hefði biðlaunaréttur samkvæmt 14. gr. laganna því fylgt þeim störfum. Um biðlaunaréttinn giltu nú lög nr. 70/1996, og samkvæmt 34. gr. þeirra laga væri rétturinn háður því að viðkomandi hefði ekki hafnað sambærilegu starfi á vegum ríkisins eða annars staðar. Þar sem ríkissjóður hefði lagt allar eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar hvors ríkisviðskiptabanka um sig til hlutafélaganna, hefði LÍ hf. yfirtekið allar skuldbindingar LÍ. Því hefði G átt að beina kröfu sinni um biðlaunagreiðslu til LÍ hf. Þegar af þeirri ástæðu var íslenska ríkið því sýknað af kröfum G, með vísan til 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Hæstiréttur birt 9. mars 2000

377/1999

Anna Ólafía Guðnadóttir (Sveinn Sveinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Jón G. Tómasson hrl)

A var starfsmaður Landsbanka Íslands (LÍ) þegar lög nr. 50/1997 um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands voru staðfest. Samkvæmt 8. gr. laganna skyldu allir starfsmenn LÍ eiga kost á sambærilegu starfi hjá LÍ hf. við yfirtöku hlutafélagsins á ríkisbankanum og njóta sömu réttinda og þeir höfðu samkvæmt kjarasamningi og/eða ráðningarsamningi. Tilkynnti LÍ starfsfólki að starfslok hjá LÍ yrðu 31. desember 1997. A hafnaði boði um starf hjá LÍ hf. Taldi hún að ekki væri um sambærilegt starf að ræða, þar sem hún myndi ekki lengur njóta réttinda ríkisstarfsmanna. Höfðaði hún mál gegn íslenska ríkinu og krafðist greiðslu biðlauna. Talið var að ákvæði laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins hefði áður gilt um starfsmenn ríkisviðskiptabanka, nema öðruvísi hefði verið mælt í lögum og ákvörðunum settum af bankaráðum með heimild í lögum. Hefði biðlaunaréttur samkvæmt 14. gr. laganna því fylgt þeim störfum. Um biðlaunaréttinn giltu nú lög nr. 70/1996, og samkvæmt 34. gr. þeirra laga væri rétturinn háður því að viðkomandi hefði ekki hafnað sambærilegu starfi á vegum ríkisins eða annars staðar. Þar sem ríkissjóður hefði lagt allar eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar hvors ríkisviðskiptabanka um sig til hlutafélaganna, hefði LÍ hf. yfirtekið allar skuldbindingar LÍ. Því hefði A átt að beina kröfu sinni um biðlaunagreiðslu til LÍ hf. Þegar af þeirri ástæðu var íslenska ríkið því sýknað af kröfum A, með vísan til 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Hæstiréttur birt 10. febrúar 2000

327/1999

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Baldri Ágústssyni (Gestur Jónsson hrl)

B hafði starfað hjá F frá 1963, fyrst sem aðstoðarmaður, en sem flugumferðarstjóri frá árinu 1968. B fékk launalaust leyfi frá október 1983 til júní 1984. Vegna erfiðleika í einkalífi og undanfarandi lyfjanotkunar gat B ekki sinnt störfum sínum þegar hann kom úr leyfinu. Gekkst hann í framhaldi af því, að frumkvæði F, undir ýmsar sálfræði- og læknisrannsóknir og var ekki að störfum á meðan. Fór B meðal annars í viðtöl hjá geðlækninum HP, sem síðan ritaði F bréf þar sem fram kemur að hann telji B ekki fullnægja heilbrigðisskilyrðum reglugerðar um skírteini útgefin af F. Var B ekki gerð grein fyrir efni gagna sem F fékk frá læknum og sálfræðingum. Geðlæknir B, HÓ, gaf út vottorð í júlí 1984, þar sem fram kemur að B sé vinnufær. Flugumferðarstjóra-skírteini B var afturkallað í lok september 1984 á þeim forsendum að hann hefði mætt tvívegis á vaktir fyrri hluta júnímánaðar þótt hann hefði verið óvinnufær samkvæmt læknisvottorði. Gilti afturköllunin að minnsta kosti á meðan samgönguráðuneytið hefði mál B til meðferðar. Mótmælti B þessu og krafðist launa og að felld yrði úr gildi ákvörðun F um afturköllun flugumferðarstjóraskírteinis hans. Náðist samkomulag um launagreiðslur, en krafa um afturköllun ákvörðunar F var ekki afgreidd efnislega. Höfðaði B mál á hendur íslenska ríkinu (Í) til heimtu skaða- og miskabóta. Talið var að F og samgönguráðherra hefði borið að upplýsa B um niðurstöðu þeirra sérfræðinga, sem rannsökuðu hann að frumkvæði F, enda gat hún varðað mikilvæga hagsmuni hans, og að athafnaleysi þeirra að þessu leyti væri saknæmt og bakaði Í skaðabótaskyldu. Þá var afturköllun flugumferðarstjóra-skírteinisins ekki markaður ákveðinn tími í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 301/1978 um skírteini gefin út af flugmálastjórn og beiðni B um að ákvörðun um afturköllun skírteinisins yrði felld úr gildi ekki afgreidd efnislega. Ekki var talið að bótaréttur B væri fyrndur eða fallinn niður vegna tómlætis. Var Í dæmt til að bæta B tjón hans, sem rakið yrði til hinnar bótaskyldu háttsemi, en ekki voru talin skilyrði fyrir því að dæma B miskabætur.

Hleð fleiri dómum…