Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

89 dómar fundust

Lagagrein: 68. gr. laga nr. 30/1963 — Lyfsölulög

Landsréttur birt 4. nóvember 2022

505/2021

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Atla Viðari Gunnarssyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. nóvember 2021

S-3017/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Guðnýju Báru Tryggvadóttur (Kristján Flygenring lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Játningarmál. Ákærða sakfelld fyrir brot á lyfja- og lyfsölulögum, tollalagabrot og akstur undir áhrifum lyfja.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. júní 2021

S-4465/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Atla Viðari Gunnarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. líkamsárás, þjófnað og umferðarlagabrot. Var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi, sviptur ökurétti og gert að sæta upptöku haldlagðra ávana- og fíkniefna o.fl.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. júní 2021

S-3265/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi) gegn Hermanni Hjartarsyni Gustum (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði játaði sök og var dæmdur fyrir vörslu fíkniefna og vopnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2021

S-5314/2020

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir hættu- og vopnalagabrot, auk fíkniefnalagabrots o.fl.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2021

S-1556/2020

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti, hylmingu, fjölda umferðarlagabrota, brot gegn vopnalögum, fíkniefnalögum o.fl. Refsing var skilorðsbundin, ekki síst í ljósi þess að ákærði hafði ekki áður hlotið refsidóm. Þá var ákærði sviptur ökurétti í fimm ár. Synjað var um upptöku á tveimur bifreiðum í eigu ákærða, en fjöldi annarra verðmæta gerður upptækur til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. febrúar 2021

S-3263/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn Grzegorz Zdzislaw Fedorów
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur fíkniefna- og lyfjalagabrot. Fíkniefni og lyf gert upptækt

Landsréttur birt 5. febrúar 2021

808/2019

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Dariusz Stanislaw Lesniak (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

D var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 900 millilítrum af vökva sem innihélt amfetamín. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir brot gegn tollalögum og lyfjalögum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að D hafði ekki áður gerst sekur um brot sem varðaði refsingu. Var refsing D ákveðin fangelsi í 20 mánuði auk þess sem nánar tilgreind fíkniefni og lyf voru gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. janúar 2021

S-2309/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ernu Ósk Agnarsdóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir m.a. umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og fjársvik og dæmd í fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið að hluta, og svipt ökurétti

Landsréttur birt 20. nóvember 2020

162/2019

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Adam Borzynski (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

AB var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, sbr. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa slegið A fjórum sinnum með sleggju með nánar tilgreindum afleiðingum. Þá var hann sakfelldur fyrir eignaspjöll, sbr. 1. mgr. 257. gr. sömu laga með því að hafa slegið með sleggjunni í afturhurð bifreiðar þannig að rúða í hurðinni brotnaði. Loks var hann sakfelldur fyrir lyfja- og tollalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum og flutt ólöglega til landsins nánar tilgreint magn lyfja. Refsing AB var ákveðin fangelsi í níu mánuði en þar af var fullnustu sex mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða A miskabætur og sæta upptöku framangreindrar sleggju og lyfja.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2020

S-3957/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Emilíu Jennu Húnfjörð (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að greiða 1.230.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja en sæta ella fangelsi í 44 daga. Þá var ákærða svipt ökurétti í 2 ár og 4 mánuði frá birtingu dómsins að telja. Fíkniefni gerð upptæk og ákærðu gert að greiða sakarkostnað.

Landsréttur birt 6. nóvember 2020

622/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. júní 2020

S-159/2020

Héraðssaksóknari (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Maksymilian Jerzy Skibinski (Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Refsing ákærða ákveðin fangelsi í fimm ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júní 2020

S-7059/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni og Önnu Maríu Gísladóttur (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Annað þeirra að auki fyrir peningaþvætti en hitt að auki fyrir umferðarlagabrot, tollalagabrot og vopnalagabrot. Ákærðu játuðu brot sín.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 2. júní 2020

S-57/2020

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn Wieslaw Bogumil Nesteruk og Dariusz Nesteruk (Kristján Óskar Ásvaldsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Tveir menn sakfelldir fyrir vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni. Annar að auki dæmdur fyrir umferðarlagabrot.

Landsréttur birt 6. mars 2020

823/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Valgeir Kristinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

I var sakfelldur fyrir hótunarbrot gagnvart starfsmönnum dýralæknamiðstöðvar með því að hafa ritað og birt tiltekin ummæli á Facebook-síðu sinni. Þá var I sakfelldur fyrir tollalagabrot og brot gegn lyfsölu- og lyfjalögum með því að hafa flutt hingað til lands og reynt að komast hjá því að greina tollyfirvöldum frá sjö ampúlum af lyfseðilsskyldu lyfi sem hann hafði ekki innflutningsleyfi fyrir. Í III. kafla ákæru var I jafnfram gefið að sök brot gegn tolla- og vopnalögum með því að hafa flutt hingað til lands skammbyssu, riffil, magasín ætlað fyrir riffil, tvo brúsa af piparúða og sjö pakka af skotfærum. Héraðsdómur lagði til grundvallar að um eftirlíkingar væri að ræða en ekki raunveruleg vopn, að piparúðanum undanskildum. Með dómi héraðsdóms var vísað frá dómi þeim þætti III. kafla ákæru er laut að ætluðu vopnalagabroti I vegna innflutnings á öðru en piparúða. Með dómi Landsréttar var einnig vísað frá héraðsdómi þeim þætti III. kafla ákæru er laut að ætluðu tollalagabroti I þar sem verknaðarlýsing í ákæru var talin í ósamræmi við heimfærslu til refsiákvæða og málatilbúnað ákæruvaldsins að öðru leyti. Við ákvörðun refsingar var litið til 1. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var einnig litið til þess að dráttur hefði orðið á málinu án þess að I yrði um kennt. Var refsing I ákveðinn fangelsi í 60 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Einnig var I gert að sæta upptöku á sjö ampúlum af lyfseðilsskyldu lyfi og tveim brúsum af piparúða, en kröfu ákæruvaldsins um upptöku var að öðru leyti vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 28. febrúar 2020

906/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Armando Luis Rodriguez (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður, Jóhann Karl Hermannsson lögmaður, 3. prófmál)

A voru gefin að sök ýmis brot með tveimur ákæruskjölum. Við meðferð málsins í héraði játaði hann þær sakargiftir samkvæmt fyrri ákærunni að hafa gerst sekur um fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, lyfja- og tollalagabrot og umferðarlagabrot. Með síðari ákærunni voru A gefin að sök í fjórum liðum meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum í sjálfstæðri atvinnustarfsemi hans. Hann játaði þá háttsemi að hluta en neitaði að öðru leyti sök. Krafðist hann meðal annars frávísunar síðari ákærunnar í heild eða að hluta, þar á meðal vegna málsmeðferðar sem hann taldi í andstöðu við 4. gr. 7. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, þar sem honum hefði með úrskurði ríkisskattstjóra þegar verið gert að greiða álag á skattstofna vegna sömu tekjuára og sakargiftir tækju til. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að við rekstur mála A hjá skattyfirvöldum annars vegar og ákæruvaldi og dómstólum hins vegar, sem sakargiftir samkvæmt öðrum og þriðja tölulið síðari ákærunnar lutu að, hafi verið brotið gegn ákvæðum 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka sáttmálans. Tali dómurinn því rétt að vísa þeim ákæruliðum frá dómi sem A hefði ekki gengist við en gera honum refsingu fyrir þann hluta sakargifta sem hann hefði játað. Með dómi Landsréttar var fallist á það mat héraðsdóms að skilyrðum 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðaukans hefði ekki verið fullnægt við rekstur mála A hjá skattyfirvöldum annars vegar og ákæruvalds og dómstólum hins vegar. Í því fælist nánar tiltekið að ekki væri unnt að líta svo á að rekstur málanna hefði verið nægjanlega samþættur í tíma, sbr. einkum dóm Hæstaréttar Íslands 21. september 2017 í máli nr. 283/2016. Þessir ágallar tækju til umræddra sakargifta í heild og stæðu engin rök til þess að undanskilja í frávísun þann hluta þeirra sem A hefði játað. Var þannig öðrum og þriðja tölulið síðari ákærunnar vísað frá héraðsdómi í heild. Þá féllst Landsréttur á það mat héraðsdóms að sakfella A fyrir þau brot sem honum væru gefin að sök í fyrsta og fjórða lið sömu ákæru enda stæðu ekki efni til þess að þeim yrði vísað frá héraðsdómi á sama grunni eða af öðrum ástæðum. Var A því sakfelldur fyrir þau brot og fyrrgreind brot samkvæmt fyrri ákærunni. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fullnustu fjögurra mánaða þeirrar refsingar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá skyldi A sæta upptöku á rafmagnsvopni, fíkniefnum og lyfjum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. janúar 2020

S-7398/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jóhanni Ara Einarssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, vopnalagabrot og brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, og brot í nánu sambandi. Ákærði játaði brot sín skýlaust og var dæmdur í 18 mánaða fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2019

S-468/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Herði Hákoni Jónssyni (Þröstur Þór Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir fjársvik og umferðar-, lyfja- og tollalagabrot. Sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. desember 2019

S-1058/2019

Ákæruvaldið (Einar Laxnes aðstoðarsaksóknari) gegn Ívari Aroni Hill Ævarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 22 mánaða fangelsi fyrir fjölmörg brot, þar á meðal umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, þjófnaðarbrot og eina líkamsárás.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. nóvember 2019

S-1467/2019

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ásu Gígju (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir brot á lyfja-, lyfsölu- og tollalögum en þeim hluta ákæru er laut að meintu peningaþvætti vísað frá dómi. Refsing ákærðu ákveðin sex mánaða fangelsi en fullnustu fjögurra mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 18. september 2019

S-71/2019

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum Bryndís Ósk Jónsdóttir, fulltrúi (Bryndís Ósk Jónsdóttir fulltrúi) gegn Guðmundi Sigurðssyni
Lykilorð: Ákæra.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákæðri sakfelldur fyrir brot gegn fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. maí 2019

S-200/2019

Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Benedikt Má Ingibjargarsyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður), Önnu Sigrúnu Birgisdóttur (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður), Sindra Frey Sigurbjartssyni (Grímur Sigurðarson lögmaður), Sigursteini Braga Eddusyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Söndru Rún Raybould (Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Lykilorð: Gripdeild. Húsbrot. Rán.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir hegningarlagabrot.

Landsréttur birt 29. apríl 2019

298/2019

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. janúar 2019

S-417/2018

Ákæruvaldið (Katrín Hilmarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Adam Borzynski (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af voru sex mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, eignaspjöll og lyfja- og tollalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. september 2018

S-198/2018

Ákæruvaldið (Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hótanir, innflutning á lyfseðilskyldu lyfi, tollalagabrot og vopnalagabrot. Frávísun að hluta. Dráttur málsins hafði áhrif á refsiákvörðun. Fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 17. maí 2018

S-156/2018

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jakub Fitzet (Ólafur V. Thordersen lögmaður) og Wawrzyniec Piotr Latus (Magnús Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærðu sakfelldir fyrir lyfja- og tollalagabrot. Refsing hvors ákærðu um sig ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. febrúar 2018

S-594/2017

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgeiri Aroni Ásgeirssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, lyfja- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga en fresta skyldi fullnustu 30 daga af refsingunni og var sá hluti hennar skilorðsbundinn í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. október 2017

S-309/2017

Ákæruvaldið (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ársæli Hersteini Guðleifssyni
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var sakfelldur fyrir tilraun til lyfja-, lyfsölu- og tollalagabrots. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Auk þess var hann dæmdur til að sæta upptöku á sterum og öðrum vefaukandi lyfjum.

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

309/2016

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Jóni Ásgeiri Ríkharðssyni (Stefán Geir Þórisson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

J var gefið að sök brot gegn lyfja-, lyfsölu-, fjarskipta- og tollalögum með því að hafa, í gegnum einkahlutafélag sem hann starfaði hjá og sá um innflutning fyrir, flutt inn til landsins 1050 stykki af nikótínfilterum í rafsígarettur án leyfis og þrjár spjaldtölvur án CE merkinga. Í dómi Hæstaréttar var því hafnað að J hefði verið ókunnugt um að nikótínfilterarnir hefðu verið í sendingunni. Þá var jafnframt hafnað þeirri viðbáru J að hann hefði ekki þurft að afla leyfis til innflutnings nikótínfilteranna þar sem nikótín gæti ekki talist vera lyf í skilningi lyfjalaga, eða að sú tilhögun, að fela Lyfjastofnun að skera úr um hvað teldust lyf samkvæmt lögunum, væri andstæð þeim kröfum sem gera yrði til skýrleika refsiheimilda. Þá var ekki talið hald í þeirri viðbáru J að hann hefði talið að spjaldtölvurnar hefðu verið CE merktar, enda hefði hann innflutning að atvinnu og mætti því vera ljóst að hann þyrfti að kanna hvort þær bæru slíka merkingu. Það hefði hann hins vegar ekki gert. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og refsingu ákærða því staðfest.

Hæstiréttur birt 17. desember 2015

265/2015

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Gísla Val Gíslasyni (Jónas Jóhannsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 12. júní 2015

S-49/2014

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Bryndís Ósk Jónsdóttir fulltrúi) gegn Inga Þorgrími Guðmundssyni (Guðmundur St. Ragnarsson hdl) og Almari Þór Ingasyni (Bragi Dór Hafþórsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, akstur undir áhrifum fíkniefna og líkamsárás.

Hleð fleiri dómum…