Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

17 dómar fundust

Lykilorð: Frávísun:

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. mars 2026 kl. 11:47

S-4822/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Danival Guðjóni Stefánssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Maður sakfelldur fyrir ýmiss brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar. Ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð. Einum ákærulið og einkaréttarkröfum var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. nóvember 2025

S-1420/2025

Héraðssaksóknari (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður), Y (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) og Z (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Máli vísað frá dómi á þeim grunni að héraðssaksóknari hafi ekki farið með ákæruvald vegna brots gegn 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 23. gr. laga nr. 88/2008 og ríkissaksóknari fól héraðssaksóknara ekki að fara með málið, sbr. 5. mgr. 21. gr. laga nr. 88/2008.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2025

E-4846/2021

Þrotabú ACE Handling ehf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Hilmari Ágúst Hilmarssyni (Ólafur Eiríksson lögmaður)

Dómkröfum stefnanda var vísað frá dómi vegna vanreifunar, sbr. e- og g-liði 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991, þar sem stefnanda hafði að mati dómsins ekki auðnast að leggja fram nauðsynleg gögn, né heldur að skjóta nægilegum stoðum undir skaðabótakröfur sínar í málinu að öðru leyti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. apríl 2025

E-6055/2024

Stefán Grímur Olgeirsson (Jón Ögmundsson lögmaður) gegn Henning Eyþóri Jónassyni, Laufeyju Kristjánsdóttur Benóný Harðarsyni og Sigrúnu Ösp Sigurjónsdóttur (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður)

Deilt var um afmörkun lóðaréttinda, en stefnandi byggði kröfu sína um viðurkenningu á umfangi þeirra á fyrirliggjandi afsali sér til handa. Stefndu höfðu uppi kröfu um frávísun málsins og byggðu þá á þrenns konar ástæðum. Ein þeirra var sú að stefnandi hefði ekki farið með ágreining þeirra um afmörkun lóðaréttinda eins og mælt væri fyrir um í 1. málslið 1. mgr. 6. gr. i í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna, um sáttameðferð fyrir sýslumanni, sem sé forsenda þess að unnt hafi verið að höfða mál þetta. Var á þetta fallist og málinu vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. mars 2025

E-4824/2024

G-Unit ehf (Hulda Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn SS Jarðvinnu-vélaleigu ehf (Andri Björgvin Arnþórsson lögmaður)

Kaupandi fasteignar krafðist skaðabóta vegna galla á fasteign. Málatilbúnaður kaupandans um ætlað tjón var vanreifaður og var kröfum hans vísað frá dómi án kröfu. Seljandi fasteignarinnar hafði höfðað gagnsök í málinu og krafðist greiðslu eftirstvöða kaupverðsins úr hendi kaupandans. Sú krafa var tekin til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2024

E-6978/2023

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Þorbjörg Ásta Leifsdóttir lögmaður)

Stefnandi gerði kröfu um viðurkenningu á rétti hans til frekari bóta á hendur stefnda tryggingafélagi vegna afleiðinga umferðarslyss, sbr. heimildir til endurupptöku samkvæmt 11. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Til stuðnings kröfu sinni byggði stefnandi aðeins á matsgerð er hann aflaði einhliða og án samráðs við stefnda í þessu skyni. Með vísan til dómafordæma þótti þessi framgangsmáti fela í sér ótæka sönnunarfærslu af hálfu stefnanda og var málinu vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. október 2024

S-3417/2024

Héraðssaksóknari (Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Maður sýknaður af ákæru um nauðgun, sbr. 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Einkaréttarkröfum ætlaðs brotaþola vísað frá dómi og sakarkostnaður felldur á ríkissjóð.

Héraðsdómur Vesturlands birt 4. apríl 2023

E-33/2022

Völundarhús ehf (Svavar Daðason lögmaður) gegn Einari Thorberg Guðmundssyni og Laura Martin Merino (Ólafur V. Thordersen lögmaður)

Krafist eftirstöðva verklauna vegna verksamnings og ógreidd kostnaðar við að reisa bjálkahús en til vara skaðabóta. Málinu vísað frá dómi án kröfu, einkum sökum vanreifunar.

Héraðsdómur Vesturlands birt 9. mars 2023

S-74/2022

Héraðssaksóknari (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Helga Björg Jónsdóttir lögmaður) (Rebekka Ósk Gunnarsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákært fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára barni, vegna ósiðlegra og ruddalegra ummæla og stroku yfir brjóstasvæði utanklæða. Frávísun og sýkna.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 30. janúar 2023

E-426/2022

Ós ehf (Arnar Sigfússon lögmaður) gegn S & S fasteignafélagi ehf (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda um greiðslu reikninga vegna lóðarleigu sem stefnandi taldi sig eiga rétt á úr hendi stefnda. Málið þótti svo vanreifað af hálfu stefnanda að því var vísað frá dómi á grundvelli e-liðar 1. mgr. 80. gr. eml. Stefnanda var gert að greiða stefnda málskostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. desember 2022

E-3167/2022

Guðmundur Þór Pétursson og Harpa Guðmundsdóttir (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Arion banka hf (Hjördís Halldórsdóttir lögmaður)

Stefnendur kröfðust skaðabóta af hendi stefnda á þeim grundvelli að stefndi hefði vanrækt upplýsingaskyldu gagnvart stefnendum í tengslum við lánveitingu til þeirra og þannig valdið þeim tjóni. Því ætti að miða við að árleg hlutfallstala kostnaðar, eins og hún var tilgreind í greiðsluáætlun sem gerð var í tengslum við lánveitinguna, ætti að haldast óbreytt á nánar tilgreindu tímabili. Málinu var vísað frá dómi með vísan til 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála þar sem talið var að dómkrafan hefði áður verið dæmd að efni til í skilningi 1. mgr. sömu lagagreinar í dómsmáli milli sömu aðila þar sem hafnað var kröfu stefnenda um viðurkenningu þess að hlutfallstalan skyldi standa óbreytt á nánar tilgreindu tímabili.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. mars 2020

E-6608/2019

AK (Magnús Davíð Norðdahl lögmaður) gegn AM (Steinn S. Finnbogason lögmaður)

Stefnandi höfðaði mál til þess að fá endurgreiddar eftirstöðvar láns sem hann sagðist hafa veitt stefnda í erlendri mynt. Dómurinn taldi hvort tveggja vanreifað; hvers vegna stefnandi teldi sér heimilt að krefja stefnda um endurgreiðslu í íslenskum krónum svo og það viðmið sem hann lagði til grundvallar útreikningi fjárkröfu sinnar. Varakrafa hans var einnig talin vanreifuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2019

E-4178/2018

Sævar Gunnarsson (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Ágúst Bragi Björnsson lögmaður)

Stefnandi starfaði sem matsveinn á skipi þegar hann slasaðist. Málsaðilar deildu um það hvernig bæri að reikna út tímabundið atvinnutjón stefnanda. Fjárkrafa stefnanda var svo vanreifuð að vísa varð kröfu hans frá dómi.