Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kolbrúnu Karen Sigurðardóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar vegna hegningar- og umferðarlagabrota.
Ákæruvaldið (
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Einari Erni Ásdísarsyni (
Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um hegningar- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gert að greiða sekt og hann dæmdur til greiðslu þess sakarkostnaðar er af málinu leiddi. Ekki þóttu efni til að gera ákærða frekari sviptingu ökuréttar.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn
Valentin Pintilie (sjálfur)
Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás, nytjastuld og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (
Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Maríu Jónu Jóhannsdóttur (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Akærða sakfelld fyrir stórfelld skattalagabrot.
Karlmaður var sakfelldur fyrir stórháskalegan akstur bifreiðar í byrjun janúar 2024 og hann dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi, jafnframt því sem hann var dæmdur til greiðslu 540.000 króna sektar og sviptur ökurétti í fjögur ár.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Jóni Hauki Baldvinssyni (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, jafnframt sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt.
Héraðssaksóknari (
Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Stefáni Magnússyni (
Almar Þór Möller lögmaður)
Ákærði dæmdur í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar vegna meiri háttar brots gegn staðgreiðslu opinberra gjalda.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Ólafur Ernir Bjarkason (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur sviptur ökurétti, auk skjalabrots. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga og honum jafnframt gerð sekt.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Ísaki Gunnlaugssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um rán, sem og akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Ekki var fallist á að skilyrði væru til að færa refsingu niður úr því lágmarki sem 252. gr. hegningarlaga mælir fyrir um. Var ákærða því gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið.
Héraðssaksóknari (
Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Gísla Inga Gunnarssyni (
Jóhann Pétursson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald og honum gert að sæta fangelsi í sextán mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða gert sekt og honum jafnframt gert að sæta atvinnurekstrarbanni í tvö ár.
Ákærða var sakfelld fyrir fjögur umferðarlagabrot. Þá var hún sakfelld fyrir brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa í eitt skipti verið með barn sitt í bifreið sem hún ók undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Var ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, 650.000 króna fésekt og hún svipt ökurétti í 30 mánuði.
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, fyrir að aka sviptur ökurétti í annað sinn og akstur undir áhrifum í þriðja sinn innan ítrekunartíma.
Ákærði dæmdur fyrir skjalafals og brot á lögum um útlendinga.
E var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk nytjastuldar ökutækis og þjófnað í félagi við H. H var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir, nytjastuld ökutækis, mörg þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot, auk þess að hafa í félagi við E gerst sek um þjófnað og nytjastuld. E var dæmdur í fangelsi í 10 mánuði en H dæmd í fangelsi í 14 mánuði auk greiðslu miskabóta.
Ákærða var erð fangelsisrefsing og sekt vegna umferðarlagabrots. Ævilöng ökuréttarsvipting var áréttuð. Játningarmál.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Cezary Marcin Wasilewski (sjálfur)
Sakfellt fyrir fíkniefna-, umferðar- og vopnalagabrot.
Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Arnari Frey Jónssyni
Ákærði var dæmdur í fangelsi og gert að greiða sekt vegna umferðarlagabrots. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.
Héraðssaksóknari (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bergi Jónssyni (
Þórdís Ólöf Viðarsdóttir lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um umferðar- og hegningarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum áfengis og á ófyrirleitinn hátt stofnað lífi og heilsu brotaþola í augljósa hættu, með því að aka bifreið sinni vísvitandi aftan á bifreið þeirra. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti. Þá var ákærði dæmdur til að greiðslu miskabóta.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Thelmu Lind Sigurhansdóttur
Ákærðu var gert að sæta 30 daga fangelsi, þola upptöku fíkniefna, sviptingu ökuréttar og að greiða sekt vegna umferðar- og fíkniefnalagabrota.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Jacob Thomas Barker
Ákærða var gert að sæta 30 daga fangelsi fyrir þriðja akstur sviptur ökuréttindum. Einnig var honum gert að greiða sekt vegna of hraðs aksturs.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Gísla Björgvinssyni (Enginn)
Ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld og ölvunarakstur á hinni stolnu bifreið, sem hann ók á grindverk og brunahana og eyðilagði bifreiðina. Hlaut ákærði 45 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm, auk þess sem honum var gert að greiða 290 þúsund króna sekt og sæta sviptingu ökuréttinda í fimm ár. Þá var ákærði dæmdur til greiðslu skaðabóta.
Málið nr. S-306/2023 Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ásgeiri Halldórssyni (
Valgeir Kristinsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar skattalagabrot í rekstri einkahlutafélags árin 2017-2019 og dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið tvö ár, auk ríflega 38.000.000 króna fésektar. Ákærði játaði háttsemi samkvæmt verknaðarlýsingu ákæru en tekist var á um hvort vanskil á ríflega 19.000.000 króna sköttum og opinberum gjöldum teldust meiri háttar í skilningi 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga eftir lagabreytingar á árinu 2021 og útgáfu fyrirmæla ríkissaksóknara um hvaða skattalagabrot skuli sæta ákærumeðferð. Með hliðsjón af nýlegum dómi Hæstaréttar og seinni dómum Landsréttar var fallist á sjónarmið ákæruvaldsins.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Alina-Costina Corduneanu
Ákærða var dæmd til fangelsisvistar, til þess að greiða sekt og þola ökuréttarsviptingu vegna umferðarlagabrota
Héraðssaksóknari (
Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Valdimar Jónssyni (
Sveinn Jónatansson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir skattalagabrot og dæmdur í 20 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar.
Héraðssaksóknari (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Antanas Mazonas (
Ólafur Kristinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar.
Ákæruvaldið (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Guðmundi Jóhannesi Guðmundssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta 30 daga fangelsi og að greiða 120.000 króna sekt. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða sakarkostnað.
Málið nr. S-2584/2021 Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þorkeli Kristjáni Guðgeirssyni (
Björn Líndal lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í rekstri tveggja einkahlutafélaga á árunum 2016-2018 og dæmdur í tveggja ára fangelsi, skilorðsbundið þrjú ár, og til greiðslu ríflega 713 milljón króna fésektar. Brotin voru hegningarauki við fimm mánaða skilorðsbundinn dóm frá 9. júní 2021 og var sá dómur tekinn upp og dæmdur með í þessu máli.
Tveir ákærðu voru sakfelldir fyrir skatta- og hegningarlagabrot og dæmdir í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára og til greiðslu sektar. Einn ákærðu var sýknaður.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ívari Smára Guðmundssyni (
Sigrún Ásta Brynjarsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í átta mánaða fangelsi og til greiðslu sektar og til sviptingar ökuéttar.
Héraðssaksóknari (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gunnari Viðari Bjarnasyni (
Sveinn Jónatansson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt skattalagabrot og brot á lögum um virðisaukaskatt og á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt skattalagabrot og brot gegn lögum um virðisaukaskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Ákærði sakfelldur fyrir skattsvik og dæmdur í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi auk greiðslu sektar.
Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárásir, brot gegn valdstjórninni, brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Var hann dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangesli og til greiðslu sektar auk þess sem hann var sviptur ökurétti og gert að greiða brotaþolum bætur.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Alexander Svani Guðmundssyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Héraðssaksóknari (
Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Jón Örn Árnason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar.
Ákærði sakfelldur fyrir meiriháttar skattalagabrot og dæmdur í 15 mánaða fangelsi skilorðsbundið að hluta og til greiðslu sektar.
Ákæruvaldið (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Styrmir Gunnarsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Hilda Rut Harrysdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóni Þór Gíslasyni (
Sigurður Jónsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um brot gegn valdstjórninni, tvær líkamsárásir, ítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en hluta refsingarinnar frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða og dæmd sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt. Loks var ákærði dæmdur til að greiða einum brotaþola miskabætur, en aðrir höfðu ekki uppi slíka kröfu.
Héraðssaksóknari (
Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ragnari Má Svanssyni Michelsen (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn bókhaldslögum og dæmdur í 24 mánaða fangelsi en þar af var fullnustu 21 mánaðar af dæmdri refsingu frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákærði var einnig dæmdur til greiðslu sektar.
Ákærði sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattlögum og dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar.
Kona á sextugsaldri var sakfelld fyrir tvö þjófnaðarbrot í verslunum í Reykjavík og fyrir að hafa þrívegis ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíknilyfja og annarra lyfja. Þótti refsing hæfilega ákveðin 45 daga fangelsi og 450.000 króna sekt í ríkissjóð. Jafnframt var ákærða svipt ökurétti í fjögur og hálft ár og gert að greiða allan sakarkostnað.
Héraðssaksóknari (
Kristín Ingileifsdóttir settur saksóknari)
gegn
Rúnari Ingva Eiríkssyni (
Garðar Vilhjálmsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir skattalagabrot sem var talið tæma sök gagnvart peningaþvætti
Ákærði dæmdur fyrir skattalagabrot
Sakfellt fyrir tollalagabrot og hlutdeild í tollalagabroti. Sýknað af einum ákærulið vegna sakarfyrningar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Þorbjörgu Andreu Aas (
Gísli Tryggvason lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og brot gegn valdstjórninni og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og svipt ökurétti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Söndru Rún Raybould (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða m.a. dæmd fyrir umferðarlagabrot, líkamsárásir og þjófnað og dæmd í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og sviptingar ökuréttinda.
Ákærðu voru sakfelldir fyrir skattalagabrot og peningaþvætti og dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu fésektar.
Ákæruvaldið (
Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Baldvini Rey Gunnarssyni (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Sakfellt fyrir akstur bifhjóls án skráningarmerkja, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Þrír af ákærðu voru sakfelldir fyrir skattalagabrot og dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu fésektar. Einnig voru haldlagðir fjármunir félaga í eigu ákærðu gerðir upptækir.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Sakfellt fyrir brot í nánu sambandi og umferðarlagabrot.