Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 28. apríl 2022.
Mál nr. S-5686/2021:
Héraðssaksóknari
(Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þorsteini A. Péturssyni
(Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi og sekt. Skattalög. Skilorð. Vararefsing.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattlögum og dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 25. apríl sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 2. desember 2021, á hendur: „Þorsteini A. Péturssyni, kt. […], […], Reykjavík, fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og fyrir peningaþvætti sem framkvæmdastjóra og stjórnarmanni einkahlutafélagsins […] (síðar […]), kt. […], nú þrotabú, með því að hafa:
Eigi staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, í samræmi við fyrirmæli III. kafla laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins greiðslutímabilin október til og með desember rekstrarárið 2018, janúar til og með mars, maí, júní og september til og með desember rekstrarárið 2019 og janúar rekstrarárið 2020, samtals að fjárhæð kr. 41.475.850, sem sundurliðast sem hér greinir:
Árið 2018 Október kr. 3.076.993 Nóvember kr. 3.631.674 Desember kr. 2.553.257 kr. 9.261.924 Árið 2019 Janúar kr. 2.878.499 Febrúar kr. 2.979.109 Mars kr. 2.579.942 Maí kr. 2.753.058 Júní kr. 2.925.261 September kr. 2.914.340 Október kr. 4.282.670 Nóvember kr. 4.684.646 Desember kr. 3.248.042 kr. 29.245.567 Árið 2020 Janúar kr. 2.968.359 kr. 2.968.359 Samtals: kr. 41.475.850 Eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var eða innheimta bar í rekstri einkahlutafélagsins uppgjörstímabilin júlí - ágúst og nóvember - desember rekstrarárið 2019 í samræmi við IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð kr. 22.039.760, sem sundurliðast sem hér greinir:
Árið 2019 Júlí – ágúst kr. 13.243.450 Nóvember – desember kr. 8.796.310 kr. 22.039.760
- Fyrir peningaþvætti með því að hafa nýtt ávinning af brotum samkvæmt 1. og 2. tölulið ákæru, samtals 63.515.610 krónur, í þágu rekstrar félagsins eða eftir atvikum í eigin þágu.
_______________ Brot ákærða samkvæmt 1. tölulið ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. einnig 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Brot ákærða samkvæmt 2. tölulið ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. einnig 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Brot ákærða samkvæmt 3. tölulið ákæru teljast varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Við fyrirtöku málsins 25. apríl sl. var af hálfu ákæruvaldsins fallið frá 3. tölulið ákærunnar er varðar peningaþvætti.
Af hálfu ákærða er þess krafist að hann verði dæmdur til vægustu refsingar er lög leyfa en verjandi ákærða krefst þóknunar sér til handa er greiðist úr ríkissjóði í samræmi við framlagða tímaskýrslu.
I
Ákærði hefur skýlaust játað þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu en sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
II
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 3. desember 2021, hefur hann ekki verið dæmdur til refsingar. Ákærði sagði fyrir dómi að félagið hefði gengið vel en hann lent erfiðleikum með að standa skil á vörslusköttum þar sem fjármununum hefði verið varið til greiðslu skatta vegna annars félags sem þá var á hans vegum. Þá hefði Covid-19 faraldurinn einnig haft áhrif á afkomu félagsins til hins verra. Hann hefði reynt að semja um skattskuldina en hún upphaflega verið talin vera hærri en svo að hann réði við það. Við rannsókn málsins hefði komið í ljós að skuldin væri lægri.
Ákærði er sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988 og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eru brot ákærða stórfelld en þau fólu í sér að hann stóð ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti og afdreginni staðgreiðslu samtals að fjárhæð 63.515.610 krónur, eins og rakið er í ákæru. Teljast brot ákærða vera meiriháttar í skilningi 1. mgr. 262. gr. laga nr. 19/1940, vegna þeirra fjárhæðar sem ákærði er sakfelldur fyrir að standa ekki skil á. Hafa lög nr. 29/2021 um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn vegna skattalagabrota ekki áhrif á það mat, sbr. dómur Hæstaréttar í máli nr. 35/2021 sem kveðinn var upp 13. apríl 2022, en þar er rakið að sú lagasetning breyti í engu refsinæmi þessara brota eða lögbundnum viðurlögum við þeim.
Við ákvörðun refsingar ákærða er, til refsimildunar, litið til skýlausrar játningar hans fyrir dómi og þess að nokkuð er um liðið síðan ákærði framdi brotin. Til þyngingar er horft til þess að brot hans námu háum fjárhæðum. Með vísan til framangreinds, sakarefni þessa máls og 77. gr. laga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Verður ákærði því jafnframt dæmdur til að greiða sekt til ríkissjóðs sem nemur tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem hann er ákærður fyrir að standa ekki skil á og þykir hún hæfilega ákveðin 125.000.000 króna. Um vararefsingu fer samkvæmt því sem í dómsorði greinir.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ingólfs Vignis Guðmundssonar lögmanns, 400.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Annan sakarkostnað leiddi ekki af meðferð málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Þorsteinn A. Pétursson, sæti fangelsi í tólf mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 125.000.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en sæti ella fangelsi í 360 daga.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipað verjanda síns, Ingólfs Vignis Guðmundssonar lögmanns, 400.000 krónur.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir (sign.)