Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

114 dómar fundust

Lykilorð: Fangelsi og sekt

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. febrúar 2026

S-7408/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Kolbrúnu Karen Sigurðardóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar vegna hegningar- og umferðarlagabrota.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. janúar 2026

S-119/2025

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Erni Ásdísarsyni (Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um hegningar- og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gert að greiða sekt og hann dæmdur til greiðslu þess sakarkostnaðar er af málinu leiddi. Ekki þóttu efni til að gera ákærða frekari sviptingu ökuréttar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. desember 2025

S-590/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn Valentin Pintilie (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás, nytjastuld og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. desember 2025

S-2906/2025

Ákæruvaldið (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Bjarka Fjeldsted (Súsanna Björg Fróðadóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður var sakfelldur fyrir stórháskalegan akstur bifreiðar í byrjun janúar 2024 og hann dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi, jafnframt því sem hann var dæmdur til greiðslu 540.000 króna sektar og sviptur ökurétti í fjögur ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 19. nóvember 2025

S-550/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Jóni Hauki Baldvinssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, jafnframt sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. september 2025

S-288/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Ísaki Gunnlaugssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um rán, sem og akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Ekki var fallist á að skilyrði væru til að færa refsingu niður úr því lágmarki sem 252. gr. hegningarlaga mælir fyrir um. Var ákærða því gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. maí 2025

S-16/2025

Héraðssaksóknari (Þorvarður Arnar Ágústsson saksóknarfulltrúi) gegn Gísla Inga Gunnarssyni (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald og honum gert að sæta fangelsi í sextán mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða gert sekt og honum jafnframt gert að sæta atvinnurekstrarbanni í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. febrúar 2025

S-2096/2024

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir fjögur umferðarlagabrot. Þá var hún sakfelld fyrir brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa í eitt skipti verið með barn sitt í bifreið sem hún ók undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Var ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, 650.000 króna fésekt og hún svipt ökurétti í 30 mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. desember 2024

S-2543/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Valgeiri Elís Marteinssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, fyrir að aka sviptur ökurétti í annað sinn og akstur undir áhrifum í þriðja sinn innan ítrekunartíma.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. nóvember 2024

S-249/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Þór Gunnarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og Hólmfríði Lilju Gylfadóttur (Jón Stefán Hjaltalín Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk nytjastuldar ökutækis og þjófnað í félagi við H. H var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir, nytjastuld ökutækis, mörg þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot, auk þess að hafa í félagi við E gerst sek um þjófnað og nytjastuld. E var dæmdur í fangelsi í 10 mánuði en H dæmd í fangelsi í 14 mánuði auk greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. nóvember 2023

S-17/2023

Héraðssaksóknari (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Bergi Jónssyni (Þórdís Ólöf Viðarsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðar- og hegningarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum áfengis og á ófyrirleitinn hátt stofnað lífi og heilsu brotaþola í augljósa hættu, með því að aka bifreið sinni vísvitandi aftan á bifreið þeirra. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti. Þá var ákærði dæmdur til að greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. nóvember 2023

S-2065/2023

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jacob Thomas Barker
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var gert að sæta 30 daga fangelsi fyrir þriðja akstur sviptur ökuréttindum. Einnig var honum gert að greiða sekt vegna of hraðs aksturs.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. september 2023

S-371/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Gísla Björgvinssyni (Enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld og ölvunarakstur á hinni stolnu bifreið, sem hann ók á grindverk og brunahana og eyðilagði bifreiðina. Hlaut ákærði 45 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm, auk þess sem honum var gert að greiða 290 þúsund króna sekt og sæta sviptingu ökuréttinda í fimm ár. Þá var ákærði dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. september 2023

S-306/2023

Málið nr. S-306/2023 Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgeiri Halldórssyni (Valgeir Kristinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar skattalagabrot í rekstri einkahlutafélags árin 2017-2019 og dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið tvö ár, auk ríflega 38.000.000 króna fésektar. Ákærði játaði háttsemi samkvæmt verknaðarlýsingu ákæru en tekist var á um hvort vanskil á ríflega 19.000.000 króna sköttum og opinberum gjöldum teldust meiri háttar í skilningi 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga eftir lagabreytingar á árinu 2021 og útgáfu fyrirmæla ríkissaksóknara um hvaða skattalagabrot skuli sæta ákærumeðferð. Með hliðsjón af nýlegum dómi Hæstaréttar og seinni dómum Landsréttar var fallist á sjónarmið ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. maí 2023

S-3487/2022

Héraðssaksóknari (Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi) gegn Valdimar Jónssyni (Sveinn Jónatansson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði sakfelldur fyrir skattalagabrot og dæmdur í 20 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. apríl 2023

S-656/2023

Ákæruvaldið (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundi Jóhannesi Guðmundssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta 30 daga fangelsi og að greiða 120.000 króna sekt. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. mars 2023

S-2584/2021

Málið nr. S-2584/2021 Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Þorkeli Kristjáni Guðgeirssyni (Björn Líndal lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í rekstri tveggja einkahlutafélaga á árunum 2016-2018 og dæmdur í tveggja ára fangelsi, skilorðsbundið þrjú ár, og til greiðslu ríflega 713 milljón króna fésektar. Brotin voru hegningarauki við fimm mánaða skilorðsbundinn dóm frá 9. júní 2021 og var sá dómur tekinn upp og dæmdur með í þessu máli.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2023

S-4383/2022

Héraðssaksóknari (Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundi Erni Jenssyni (Sævar Þór Jónsson lögmaður), Magnúsi Líndal Sigurgeirssyni (Þórður Guðmundsson lögmaður) og X (Lárus Sigurður Lárusson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Tveir ákærðu voru sakfelldir fyrir skatta- og hegningarlagabrot og dæmdir í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára og til greiðslu sektar. Einn ákærðu var sýknaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. febrúar 2023

S-5325/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ívari Smára Guðmundssyni (Sigrún Ásta Brynjarsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í átta mánaða fangelsi og til greiðslu sektar og til sviptingar ökuéttar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. desember 2022

S-479/2022

Héraðssaksóknari (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Gunnari Viðari Bjarnasyni (Sveinn Jónatansson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt skattalagabrot og brot á lögum um virðisaukaskatt og á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. nóvember 2022

S-1642/2022

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárásir, brot gegn valdstjórninni, brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Var hann dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangesli og til greiðslu sektar auk þess sem hann var sviptur ökurétti og gert að greiða brotaþolum bætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. október 2022

S-1504/2022

Héraðssaksóknari (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Jón Örn Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. júní 2022

S-343/2021

Ákæruvaldið (Hilda Rut Harrysdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jóni Þór Gíslasyni (Sigurður Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um brot gegn valdstjórninni, tvær líkamsárásir, ítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en hluta refsingarinnar frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða og dæmd sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt. Loks var ákærði dæmdur til að greiða einum brotaþola miskabætur, en aðrir höfðu ekki uppi slíka kröfu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2022

S-4575/2021

Héraðssaksóknari (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ragnari Má Svanssyni Michelsen (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn bókhaldslögum og dæmdur í 24 mánaða fangelsi en þar af var fullnustu 21 mánaðar af dæmdri refsingu frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákærði var einnig dæmdur til greiðslu sektar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. febrúar 2022

S-2242/2021

Málið nr. S-2242/2021 Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Kona á sextugsaldri var sakfelld fyrir tvö þjófnaðarbrot í verslunum í Reykjavík og fyrir að hafa þrívegis ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíknilyfja og annarra lyfja. Þótti refsing hæfilega ákveðin 45 daga fangelsi og 450.000 króna sekt í ríkissjóð. Jafnframt var ákærða svipt ökurétti í fjögur og hálft ár og gert að greiða allan sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. nóvember 2021

S-3883/2021

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Mosad Badr Abdel Salam Mansour (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og Kristínu Jónsdóttur (Birgir Tjörvi Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Sakfellt fyrir tollalagabrot og hlutdeild í tollalagabroti. Sýknað af einum ákærulið vegna sakarfyrningar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. júní 2021

S-8531/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn Þorbjörgu Andreu Aas (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og brot gegn valdstjórninni og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og svipt ökurétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. júní 2021

S-3851/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Söndru Rún Raybould (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða m.a. dæmd fyrir umferðarlagabrot, líkamsárásir og þjófnað og dæmd í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og sviptingar ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. apríl 2021

S-3508/2020

Héraðssaksóknari (Kristín Ingileifsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Árna Gunnari Sveinssyni (Grétar Dór Sigurðsson lögmaður) og Guðmundi Óla Helgasyni (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu voru sakfelldir fyrir skattalagabrot og peningaþvætti og dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu fésektar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. mars 2021

S-2755/2020

Ákæruvaldið (Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Baldvini Rey Gunnarssyni (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir akstur bifhjóls án skráningarmerkja, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Hleð fleiri dómum…