A höfðaði mál gegn Í og krafðist miskabóta vegna ólögmætrar handtöku og blóðsýnatöku vegna gruns um lyfjaakstur, en rannsókn málsins var síðar felld niður. Í dómi Landsréttar kom fram að við afskipti lögreglu gat A ekki framvísað vottorði um að hann tæki umrædd lyf að læknisráði en væri þrátt fyrir það hæfur til aksturs. Hefði slíku vottorði fyrst verið framvísað tíu dögum eftir afskipti lögreglu. Féllst Landsréttur á þær röksemdir héraðsdóms að með hliðsjón af 8. og 9. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 hafi A átt þess kost að framvísa vottorði læknis með skýringum á sjúkdómi sínum og ástandi og verkun lyfjanna á hann og þar með haft áhrif á grunsemdir lögreglu um ólögmætan lyfjaakstur. Einnig að með því að aka bifreið án þess að hafa slíkt vottorð undir höndum hafi A mátt reikna með að þurfa að sæta rannsóknar- og þvingunaraðgerðum lögreglu. Yrði því að líta svo á að með framangreindri háttsemi, ásamt því að nefna neyslu á fíkniefnum þegar lögregla hafði af honum afskipti, hafi A valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu Í.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Judy Medith Achieng Owuor (
Sigmundur Guðmundsson lögmaður)
J voru gefin að sök umferðarlagabrot með því að hafa 4. júlí 2023 ekið bifreið ófær um að stjórna henni örugglega vegna töku slævandi lyfja og fíkniefnalagabrot með því að hafa 14. janúar 2024 verið með 1,38 g af kókaíni í vörslum sínum. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu J og heimfærslu háttsemi hennar til refsiákvæða. Var J gert að greiða sekt samtals að fjárhæð 200.000 króna fyrir bæði brotin og þá var hún svipt ökurétti í sex mánuði.
Ákærði sakfelldur þjófnað, akstur undir áhrifum slævandi lyfja og fleiri umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Mikael Má Unnarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðan akstur sviptur ökurétti, sem og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefni og slævandi lyfja.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Erlu Lind Sigurðardóttur
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Dæmd í 105 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt.
S var ákærð fyrir brot gegn 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með því að hafa ekið bifreið svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. S játaði brot sín. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms þar sem S var gert að greiða 180.000 krónur í sekt en kröfu um sviptingu ökuréttar hafnað. Ákæruvaldið byggði á því að refsing S hefði verið ákveðin of væg á lægri dómstigum og kröfu um sviptingu ökuréttar ranglega hafnað. Með dómi Hæstaréttar var staðfest niðurstaða Landsréttar um sakfellingu ákæru. Varðandi ákvörðun sektar leit Hæstiréttur til sjónarmiða að baki 97. gr. umferðarlaga, reglugerðar nr. 1240/2019 um sektir og önnur viðurlög vegna brota gegn umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim og viðauka I við hana um að staðla sektir við umferðarlagabrotum svo og sjónarmiða að baki fyrirmælum 98. gr. umferðarlaga um fullkomna samlagningu sekta. Var sekt hennar fyrir bæði brotin ákveðin 220.000 krónur. Varðandi niðurstöðu um hvort svipta skyldi S ökurétti leit Hæstiréttur til þess að með játningu hennar og afdráttarlausri matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði hefði verið sannað að hún hefði verið óhæf til að stjórna ökutæki örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Brot hennar hafi því verið þess eðlis, óháð öðru framferði hennar við aksturinn, að varhugavert hafi verið að hún stjórnaði vélknúnu ökutæki. Samkvæmt 1. mgr. 99. gr. umferðarlaga og með hliðsjón af dómafordæmum og sjónarmiðum um jafnræði og samræmi í viðurlögum við umferðarlagabrotum var S svipt ökurétti í sex mánuði.
Ákæruvaldið (
Dröfn Kærnested saksóknari)
gegn
Emil Árna Guðmundssyni (
Almar Þór Möller lögmaður)
E var sakfelldur fyrir að hafa í fjögur tilgreind skipti ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja, þar af einnig í tvö skipti vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum með því að hafa í þrjú nánar tilgreind skipti stolið alls þremur snjallúrum úr verslunum. Með dómi héraðsdóms var E gert að sæta fangelsi í níu mánuði og var fullnustu 30 daga frestað skilorðsbundið í tvö ár. Í dómi Landsréttar kom fram að refsing E væri, að virtum sakaferli hans, rétt ákveðin fangelsi í átta mánuði. Ekki þóttu efni til að skilorðsbinda refsinguna, hvorki að hluta né í heild. Þá var ævilöng svipting ökuréttar E áréttuð.
E var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk nytjastuldar ökutækis og þjófnað í félagi við H. H var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir, nytjastuld ökutækis, mörg þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot, auk þess að hafa í félagi við E gerst sek um þjófnað og nytjastuld. E var dæmdur í fangelsi í 10 mánuði en H dæmd í fangelsi í 14 mánuði auk greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Alf Clausen (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og lögreglulagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Einari Erni Adolfssyni
Ákærði sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis, fíkniefna og slævandi lyfja.
Ákærða sakfelld fyrir nytjastuld, vörslur fíkniefna og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja og dæmd í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.
X var ákærður fyrir hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti utan vegar og olli tjóni á umferðarmerkjum og hafi ákærði yfirgefið vettvang án þess að tilkynna tjónið. X neitaði að hafa ekið bifreiðinni í umrætt sinn og kvað vinkonu sína, A, hafa ekið bifreiðinni en enginn var á vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Í dómi Landsréttar var rakið að engin vitni hefðu borið um að hafa séð X aka bifreiðinni og engum öðrum gögnum væri til um það að dreifa. Þá var tekið fram að þrátt fyrir að framburður X hjá lögreglu í kjölfar atviksins hafi verið óljós og misvísandi um það hver hefði ekið bifreiðinni og um tildrög þess að viðkomandi hafi farið af vettvangi, yrði ekki horft fram hjá því að A hafi borið um það að hafa verið ökumaður bifreiðarinnar í umrætt sinn og að hafa farið af vettvangi áður en lögreglan kom. Þá fengi framburður A stoð í trúverðugum framburði föður hennar sem kannaðist við að hafa komið að sækja hana eftir umferðaróhapp. Taldi Landsréttur því með vísan til 1. mgr. 109. gr. laga um meðferð sakamála að ekki væri næg sönnun komin fyrir því að X hefði ekið bifreiðinni, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana-og fíkniefna og slævandi lyfja í umrætt sinn og vanrækt að tilkynna um tjón sem hlaust af akstrinum. Var X því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
X (sjálfur)
Ákærði var fundinns ekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, sem og ítrekaðan akstur sviptur ökurétti, auk skjalabrots og fíkniefnalagabrots. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms er var dæmt upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í sjö mánuði og hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt. Aftur á móti var ekki fallist á að ákærði hefði með háttsemi sinni gerst sekur um brot gegn barnaverndarlögum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Aðalsteini Javí Lárusi Skúlasyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir að aka í tvígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja og dæmdur í 9 mánaða fangelsi, þar af voru 6 mánuðir skilorðsbundnir til 2 ára. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi)
gegn
Aðalsteini Inga Helgasyni (
Jón Egilsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, rangar sakargiftir og vopnalagabrot auk annarra brota. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu 60 daga refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt. Þá voru gerð upptæk vopn og ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Gissuri Karli Gunnarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og vörslur fíkniefna og lyfja. Dæmdur til greiðslu sektar og frekari ökuréttarsviptingar.
Ákæruvaldið (
Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Reyni Erni Guðrúnarsyni (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að aka í tvígang undir áhrifum fíkniefna. Skilorðsdómur tekinn upp og refsing ákveðin fangelsi í 34 mánuði.
S var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið svipt ökurétti og óhæf til að aka henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Fyrir héraðsdómi játaði S þá háttsemi sem henni var gefin að sök og var farið með málið í samræmi við 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í niðurstöðu Landsréttar var, að virtri lögregluskýrslu og matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði um rannsókn á blóðsýni sem tekið var úr S, staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu S, heimfærslu háttsemi hennar til refsiákvæða og ákvörðun refsingar, en S var gert að greiða 180.000 krónur í sekt. Fallist var á með héraðdómi að akstur S í umrætt sinn hefði ekki verið mjög vítaverður í skilningi ákvæðisins. Þá væru ekki nægar forsendur til að líta svo á að önnur skilyrði fyrir sviptingu ökuréttar samkvæmt 1. mgr. 99. gr. umferðarlaga væru uppfyllt. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu ákæruvalds um ökuréttarsviptingu sem alfarið var reist á ákvæðinu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Bríeti Gunnarsdóttur (
Jón Auðunn Jónsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir nokkur umferðarlaga brot og fíkniefnalagabrot og gert að greiða 2.660.000 króna sekt til ríkissjóðs, hún svipt ökurétti í 5 ár og gert að sæta upptöku á fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Elís Aroni Valgarðssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og vopnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 8 mánuði.
E var sakfelld fyrir sex umferðarlagabrot með því að hafa á tilgreindu tímabili tvívegis ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í fjögur skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Við ákvörðun refsingar var höfð hliðsjón af því að E hefði ekki áður sætt refsingu. Refsing E var ákveðin 1.500.000 krónur í sekt til ríkissjóðs að viðlagðri vararefsingu. Þá var E svipt ökurétti í fjögur ár og níu mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Atla Viðari Gunnarssyni (
Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð og fíkniefni gerð upptæk.
Talið sannað gegn neitun ákærða að hann hafi ekið bifreið sinni undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Vegna ítrekunaráhrifa var ákærði dæmdur til 30 daga fangelsis auk sviptingar ökuréttinda í þrjú ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóhannesi Svanssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og þjófnað og dæmdur í 6 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Steinþóri Erni Ólafssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, var honum gert að sæta fangelsi í 2 mánuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum í 6 mánuði frá 28. nóvember 2024.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Hörpu Líf Másdóttur (
Gunnar Gíslason lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Hún játaði brot sitt skýlaust og var dæmd í 30 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt.
Ákærðu var gerð fangelsisrefsing vegna umferðarlagabrota
Ákæruvaldið (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Magnúsi Stefáni Jóhannssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærða var gerð fangelsisrefsing og sekt vegna umferðarlagabrota
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Kristni Jónssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 75 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Aroni Páli Karlssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 60 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Birni Bender
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökuréttindum ævilangt. Dæmdur til að sæta 7 mánaða fangelsisrefsingu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Birtu Lind Hallgrímsdóttur (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Dæmd í 75 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rannveigu H. Guðbrandsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir fíkniefna- og lyfjaakstur og vörslur fíkniefna og svipaðra lyfja en ákærða sýknuð af ákæru um brot gegn valdstjórninni.
Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Ákærði dæmdur til 19 mánaða fangelsisvistar, hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða 489.482 krónur í sakarkostnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Aroni Ívari Sigurbjörnssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðalagabrot. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 4 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Sonju Iðunni Geirsdóttur (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Dæmd til greiðslu sektar og svipt ökurétti tímabundið.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Kolbrúnu Karen Sigurðardóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn umferðarlögum. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 45 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Garðari Héðni Sigurðssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis umferðarlagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 3 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Pétri Inga Halldórssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðar- og hegningarlögum. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 5 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Eduards Naglis
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og skjalabrot. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk þess sem hann var sviptur ökurétti.
J var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa margítrekað ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af nokkrum sinnum undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk slævandi lyfja, og eitt sinn yfir óbrotna miðlínu. Þá var J sakfelldur fyrir að hafa í fjögur skipti haft í vörslum sínum ávana- og fíkniefni. Með hliðsjón af sakarefni málsins, sakaferli J, dómvenju og ákvæðum 60., 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þótti refsing J hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Ekki þóttu efni til að skilorðsbinda refsinguna. Áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar J og upptæk gerð nánar tilgreind lyf og ávana- og fíkniefni.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Helgu Bettý Jónsdóttur (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir akstur svipt ökurétti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja auk þjófnaðar og rangra sakargifta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þorbergi Bergmann Halldórssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum, áfengislögum, lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, lögum um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni og lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg. Dæmdur í 19 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.
Ákæruvaldið (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Hólmari Frey Oddgeirssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Vörslur og framleiðsla fíkniefna og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þórhalli Páli Halldórssyni (
Þorgeir Þorgeirsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi) gegn
Theódóri Emil Pantazis
Ákærði sakfelldur fyrir umferðalagabrot. Dæmdur til greiðslu sektar og til að sæta tímabundinni sviptingu ökuréttar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Davíð Rafni B. Norðdahl (
Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Dæmdur til greiðslu sektar og til að sæta sviptingu ökuréttar tímabundið.
Sakfellt og sýkna að hluta fyrir brot gegn valdstjórninni. Einnig sakfellt fyrir þjófnaði og endurtekinn akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna o.fl.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Evu Marý Þórönnudóttur (
Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir vopnalaga- og umferðarlagabrot, en með brotunum rauf hún skilorð fyrri dóms, og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar. Upptaka á úðavopni.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ívari Erni Guðmundssyni (
Björgvin Jónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára. Í málinu var fyrri skilorðsdómur ákærða tekinn upp. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 3 ár. Fíkniefni gerð upptæk.