Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

62 dómar fundust

Lagagrein: 51. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Landsréttur birt 5. júní 2025

767/2022

LANDSRÉTTUR og Dómur fimmtudaginn 5. júní 2025. og Mál nr. 767/2022: og Jóhann Kristján Arnarson og Berglind Kristjánsdóttir (Ingvi Hrafn Óskarsson lögmaður, 2. prófmál) og Reykjanesbær (Eva Halldórsdóttir lögmaður) gegn dánarbúi Jóhannesar Reynissonar Ásdísi Runólfsdóttur og Sólveigu Þóru Jóhannesdóttur (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður)

JR, Á og S höfðuðu mál á hendur JA, B, R, K, G og I og kröfðust skaðabóta óskipt úr þeirra hendi vegna ýmissa galla sem þau töldu vera á fasteign þeirra. Fasteignina höfðu JR, Á og S keypt af K og G, sem höfðu keypt eignina af JA og B, sem jafnframt höfðu byggt hana. Krafa JR, Á og S á hendur K og G var byggð á hlutlægri ábyrgð þeirra sem seljenda fasteignarinnar en krafan á hendur JA og B var sprangkrafa og var reist á því að þau hefðu byggt eignina. Krafa JR, Á og S á hendur R var reist á ætluðum saknæmum og ólögmætum aðgerðum eða aðgerðarleysi starfsmanna R. Krafa JR, Á og S á hendur I var byggð á ábyrgð hans sem byggingarstjóra fasteignarinnar. Fjárhæð kröfu JR, Á og S á hendur öllum stefndu var byggð á matsgerð dómkvadds matsmanns. Með dómi héraðsdóms var I sýknaður af kröfum JR, Á og S, en kröfur þeirra á hendur öðrum stefndu voru teknar til greina. JA, B og R áfrýjuðu málinu til Landsréttar og kröfðust sýknu af kröfum JR, Á og S. R bar því meðal annars við að ætlaðar kröfur JR, Á og S á hendur honum væru fyrndar. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að byggingarframkvæmdir við fasteignina hófust á árinu 2007. Flest þeirra ætluðu brota R hafi átt sér stað á því ári og því í tíð laga nr. 14/1905 um fyrningu skulda og annarra kröfuréttinda. Um þá ætluðu saknæmu og ólögmætu háttsemi R að skrá fasteignina á byggingarstig 7 á haustmánuðum 2016 yrði á hinn bóginn litið til laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda. Rétturinn taldi ekki unnt að líta svo á að þessi skráning byggingarstigs hefði verið framkvæmd í slíku samhengi við atvik á árinu 2007 að unnt væri að leggja til grundvallar að fyrst eftir eða við fyrrgreint tímamark hafi ætluðum brotum R verið hætt. Var talið að skaðabótakröfur JR, Á og S á hendur R vegna ætlaðra brota hans á árinu 2007 hefðu verið fyrndar er málið var höfðað í febrúar 2022. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að JR, Á og S hefðu, þegar við kaup á fasteigninni í október 2016, mátt gera ráð fyrir því að hún væri á þeim tíma skráð á byggingarstig 4. Vitneskja þeirra um skráð byggingarstig þegar við kaup á henni hafi gefið þeim ríkt tilefni til að kynna sér hvað þar lægi að baki og einnig að afla sér upplýsinga um ástand fasteignarinnar. Var því talið að skaðabótakröfur JR, Á og S vegna ætlaðra brota hans á árinu 2016 hefðu verið fyrndar við höfðun málsins. Í dómi Landsréttar var talið að JR, Á og S hefði verið heimilt að hafa uppi kröfu á hendur bæði seljendum og byggjendum fasteignarinnar á grundvelli heimildar í 45. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Talið var sannað með matsgerð dómkvadds matsmanns að tilteknir gallar væru á fasteigninni og að JA og B bæru skaðabótaábyrgð á tilgreindum hluta gallanna. Voru JA og B dæmd til að greiða JR, Á og S 10.761.542 krónur ásamt tilgreindum dráttarvöxtum og málskostnaði en R var sýknaður af kröfum JR, Á og S.

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

306/2024

LANDSRÉTTUR og Dómur fimmtudaginn 20. febrúar 2025. og Mál nr. 306/2024: og Ómar Steinar Rafnsson og Vörður tryggingar hf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður), Guðni Tyrfingsson og Vörður tryggingar hf. (Marteinn Másson lögmaður) og þrotabú Helgu Daníelsdóttur (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) gegn Herdísi Dröfn Fjeldsted og Sævari Péturssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

H og S höfðuðu mál á hendur HD, Ó, G og V til heimtu skaðabóta vegna galla á fasteign sem þau keyptu af HD sem byggði hana. Ó var byggingarstjóri og G hönnuður en báðir voru þeir með starfsábyrgðartryggingu hjá V. Í héraði var að mestu leyti fallist á kröfur þeirra en G þó sýknaður og V sömuleiðis hvað hann varðaði. Af áfrýjun og gagnáfrýjun málsins leiddi að allar kröfur aðila voru til úrlausnar fyrir Landsrétti. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu héraðsdóms að frágangur glugga og rennihurðar, svala, votsvæða í baðaðstöðu og peningaskáps hefði falið í sér galla samkvæmt 18. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup, sem HD bæri ábyrgð á. Ó var einnig talinn bera ábyrgð á frágangi glugga, rennihurðar og svala og G á frágangi svala en ábyrgð þeirra beggja grundvallaðist á þágildandi lögum nr. 73/1997. Ábyrgð HD, Ó og G á fyrrgreindum göllum var óskipt en V gert að greiða nánar tiltekna fjárhæð vegna starfsábyrgðartrygginga Ó og G. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms voru HD, Ó og G hins vegar sýknuð af kröfu er laut að einangrun í útkragaðri plötu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2024

E-1230/2021

Herdís Dröfn Fjeldsted og Sævar Pétursson (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður) gegn Þb. Helgu Daníelsdóttur, Ómari Steinari Rafnssyni og Verði tryggingum hf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Guðna Tyrfingssyni og Verði tryggingum hf. (Marteinn Másson lögmaður)

Ágreiningur laut að því hvort fasteign sem stefnendur keyptu af stefndu teldist gölluð í skilningi laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og hvort stefnda sem einnig var byggingaraðili eignarinnar hefði með samkomulagi um viðgerðir á eigninni fyrir afhendingu á grundvelli söluskoðunar tekist á hendur að afhenda eignina gallalausa. Þá laut ágreiningur einnig að því hvort byggingarstjóri og hönnuður auk tryggingafélags þeirra væru skaðabótaskyldir á grundvelli þess að framkvæmdir hefðu ekki verið í samræmi við samþykkta uppdrætti, byggingarreglugerð og faglega fullnægjandi. Fallist var á að fasteignin hafi verið haldin leyndum göllum og metinn kostnaður við úrbætur sem nam 9,2% af söluverðmæti væri slíkur að ágallinn teldist rýra verðmæti hennar svo nokkru varði í skilningi 18. gr. laga nr. 40/2002, en eignin var mjög nýleg. Einnig var fallist á samkomulag um viðgerðir fæli í sér að gera við bæði orsök og afleiðingar raka og leka. Þá var fallist á skaðabótaábyrgð byggingarstjóra gagnvart stefnendum þar sem ekki var farið eftir samþykktum teikningum og frágangi var stórlega ábótavant og tryggingarfélag hans dæmt til að greiða stefnendum í samræmi við starfsábyrgðartryggingu. Hönnuður var sýknaður af kröfum stefnenda.

Landsréttur birt 8. mars 2024

767/2022

LANDSRÉTTUR og Dómur föstudaginn 8. mars 2024. og Mál nr. 767/2022: og Jóhann Kristján Arnarson og Berglind Kristjánsdóttir (Þórir Skarphéðinsson lögmaður, Ingvi Hrafn Óskarsson lögmaður, 2. prófmál) og Reykjanesbær (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður) gegn dánarbúi Jóhannesar Reynissonar Ásdísi Runólfsdóttur og Sólveigu Þóru Jóhannesdóttur (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður)

JR, Á og S höfðuðu mál á hendur JA, B, R, K, G og I og kröfðust skaðabóta óskipt úr þeirra hendi vegna ýmissa galla sem þau töldu vera á fasteign þeirra. Fasteignina höfðu JR, Á og S keypt af K og G, sem höfðu keypt eignina af JA og B, sem jafnframt höfðu byggt hana. Krafa JR, Á og S á hendur K og G var byggð á hlutlægri ábyrgð þeirra sem seljenda fasteignarinnar en krafan á hendur JA og B var sprangkrafa og var reist á því að þau hefðu byggt eignina. Krafa JR, Á og S á hendur R var reist á ætluðum saknæmum og ólögmætum aðgerðum eða aðgerðarleysi starfsmanna R. Krafa JR, Á og S á hendur I var byggð á ábyrgð hans sem byggingarstjóra fasteignarinnar. Fjárhæð kröfu JR, Á og S á hendur öllum stefndu var byggð á matsgerð dómkvadds matsmanns. Með dómi héraðsdóms var I sýknaður af kröfum JR, Á og S, en kröfur þeirra á hendur öðrum stefndu voru teknar til greina. JA, B og R áfrýjuðu málinu til Landsréttar og kröfðust sýknu af kröfum JR, Á og S. R bar því meðal annars við að ætlaðar kröfur JR, Á og S á hendur honum væru fyrndar. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að byggingarframkvæmdir við fasteignina hófust á árinu 2007. Flest þeirra ætluðu brota R hafi átt sér stað á því ári og því í tíð laga nr. 14/1905 um fyrningu skulda og annarra kröfuréttinda. Um þá ætluðu saknæmu og ólögmætu háttsemi R að skrá fasteignina á byggingarstig 7 á haustmánuðum 2016 yrði á hinn bóginn litið til laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda. Rétturinn taldi ekki unnt að líta svo á að þessi skráning byggingarstigs hefði verið framkvæmd í slíku samhengi við atvik á árinu 2007 að unnt væri að leggja til grundvallar að fyrst eftir eða við fyrrgreint tímamark hafi ætluðum brotum R verið hætt. Var talið að skaðabótakröfur JR, Á og S á hendur R vegna ætlaðra brota hans á árinu 2007 hefðu verið fyrndar er málið var höfðað í febrúar 2022. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að JR, Á og S hefðu, þegar við kaup á fasteigninni í október 2016, mátt gera ráð fyrir því að hún væri á þeim tíma skráð á byggingarstig 4. Vitneskja þeirra um skráð byggingarstig þegar við kaup á henni hafi gefið þeim ríkt tilefni til að kynna sér hvað þar lægi að baki og einnig að afla sér upplýsinga um ástand fasteignarinnar. Var því talið að skaðabótakröfur JR, Á og S vegna ætlaðra brota hans á árinu 2016 hefðu verið fyrndar við höfðun málsins. Í dómi Landsréttar var talið að JR, Á og S hefði verið heimilt að hafa uppi kröfu á hendur bæði seljendum og byggjendum fasteignarinnar á grundvelli heimildar í 45. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Talið var sannað með matsgerð dómkvadds matsmanns að tilteknir gallar væru á fasteigninni og að JA og B bæru skaðabótaábyrgð á tilgreindum hluta gallanna. Voru JA og B dæmd til að greiða JR, Á og S 10.817.523 krónur ásamt tilgreindum dráttarvöxtum og málskostnaði en R var sýknaður af kröfum JR, Á og S.

Landsréttur birt 8. desember 2023

771/2022

LANDSRÉTTUR og Úrskurður föstudaginn 8. desember 2023. og Mál nr. 771/2022: og Þrotabú Helgu Daníelsdóttur (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) og Ómar Steinar Rafnsson (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) gegn Herdísi Dröfn Fjeldsted og Sævari Péturssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður) og Herdís Dröfn Fjeldsted og Sævar Pétursson (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður) gegn þrotabúi Helgu Daníelsdóttur (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður) og Ómari Steinari Rafnssyni og Verði tryggingum hf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Guðna Tyrfingssyni og Verði tryggingum hf. (Marteinn Másson lögmaður)

H og S keyptu einbýlishús af HD sem byggði húsið, Ó var byggingarstjóri en G var arkitekt hússins. Ó og G höfðu báðir tekið ábyrgðartryggingu hjá V hf. H og S höfðuðu mál vegna galla á húsinu og kröfðust þess að HD myndi greiða þeim 31.995.686 krónur, þar af að hluta óskipt með Ó og V hf. og að hluta óskipt með G. Með hinum áfrýjaða dómi var HD gert að greiða H og S nánar tiltekna fjárhæð, þar af óskipt að hluta með Ó, sem talinn var hafa bakað sér skaðabótaábyrgð sem byggingarstjóri. G og V ehf. voru sýknaðir og byggði sýkna V hf. af kröfu úr starfsábyrgðartryggingu Ó á því að vátryggingin hefði verið fallin úr gildi. Í dómi Landsréttar var rakið að stefndi V hf. hafði ekki byggt á þeirri málsástæðu í héraði að starfsábyrgðartrygging Ó væri fallin úr gildi og var hinn áfrýjaði dómur því ekki í samræmi við ákvæði 2. mgr. 111. gr. laga um meðferð einkamála. Yrði ekki hjá því komist að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og leggja fyrir héraðsdóm að taka málið til munnlegs málflutnings og dómsálagningar á ný.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. nóvember 2022

E-470/2022

Jóhannes Reynisson, Ásdís Runólfsdóttir og Sólveig Þóra Jóhannesdóttir (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn Reykjanesbæ (Elías Kristjánsson lögmaður), Jóhanni Kristjáni Arnarsyni og Berglindi Kristjánsdóttur (Þórir Skarphéðinsson lögmaður), Kristvinu Magnúsdóttur og Guðmundi Pétri Meekosha (Sigurgeir Valsson lögmaður) og og Ingibjarti Jóhannessyni (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður)

Stefnendur kröfðust bóta úr hendi stefndu vegna galla á fasteign sem þau festu kaup á árið 2016. Beindu þau kröfum sínum að R vegna vanrækslu við eftirlit með framkvæmdum við byggingu fasteignarinnar á grundvelli skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, I sem byggingarstjóra og G og K sem seljendum fasteignarinnar á grundvelli laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Loks beindu þau kröfu að J og B sem fyrri eigendum og húsbyggjendum eignarinnar. Í dómi héraðsdóms voru stefndu R, G, K, J og B dæmd óskipt til greiðslu bóta vegna alls tjóns stefnenda að undanskildu tjóni vegna afnotamissis. Var matsgerð dómkvadds matsmanns lögð til grundvallar við mat á viðgerðarkostnaði. I var hins vegar sýknaður, m.a. vegna fyrningar krafna á hendur honum.

Landsréttur birt 3. júní 2022

211/2021

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald lögmaður) gegn LxB ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Ágreiningur aðila laut að kröfu L ehf. á hendur SA hf. um greiðslu bóta á grundvelli starfsábyrgðartryggingar byggingarstjóra hjá félaginu vegna byggingar fjölbýlishúss og frágangs lóðar sem liggur að lóð í eigu L ehf., en framkvæmdir þar voru ekki í samræmi við samþykkt hönnunargögn. Byggði L ehf. á því að umrædd frávik leiddu til verðmætisrýrnunar á fasteignum í eigu L ehf. að fjárhæð 18.376.000 krónur. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að byggingarstjóri hefði borið ábyrgð á því að framkvæmdir væru í samræmi við samþykkta uppdrætti og að meta yrði honum það til gáleysis að hafa ekki séð til þess að það yrði gert eða samþykkis aflað fyrir breytingunum sem voru gerðar. Þá var litið til þess að af fyrirliggjandi matsgerð yrði skýrlega ráðið að hæð fyrrnefndrar lóðar hefði verið afgerandi þáttur við mat á tjóni L ehf. Með hliðsjón af framangreindu var fallist á að L ehf. ætti rétt á bótum úr hendi SA hf. að fjárhæð 13.146.000 króna, auk nánar tilgreindra vaxta.

Landsréttur birt 25. mars 2022

153/2021

Daði Már Sigurðsson og Margrét Anna Guðmundsdóttir (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður, Ólafur Lúther Einarsson lögmaður, 4. prófmál)

D og M kröfðust viðurkenningar á rétti þeirra til bóta úr starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra sem Ó hafði hjá V hf. vegna tjóns sem þau hefðu orðið fyrir vegna ófullnægjandi vinnubragða við frágang á þaki fasteignar þeirra. Í dómi Landsréttar kom fram að af gögnum málsins yrði ekki ráðið hvenær eigendur fasteignarinnar hafi mátt gera sér grein fyrir frágangi á þaki sem þeir rektu rakaskemmdirnar til en samkvæmt meginreglu skaðabótaréttar stofnaðist skaðabótakrafa þegar hin bótaskylda háttsemi ætti sér stað og miðaðist gjalddagi kröfunnar við sama tímamark. Leggja yrði til grundvallar að þeim frágangi við smíði hússins sem skaðabótakrafa D og M byggðist á hafi lokið á árinu 2007. Um fyrningu kröfunnar giltu því eldri lög nr. 14/1905 um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda. Tíu ára fyrningarfrestur skaðabótakröfu D og M hafi því í síðasta lagi byrjað að líða árið 2007. Þá hefðu D og M á engan hátt sýnt fram á að atvik hefðu verið með þeim hætti að 7. gr. laga nr. 14/1905 ætti við um fyrningu kröfunnar. Krafa D og M hafi því verið fyrnd þegar þau höfðuðu málið 26. maí 2020. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu V hf. því staðfest.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. mars 2021

E-1667/2020

LxB ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður) og og Reykjanesbæ (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)

Stefnda Sjóvá gert að greiða stefnanda, LxB ehf., 13.146.000 krónur á grundvelli ábyrgðartryggingar byggingarstjóra. Stefndi, Reykjanebær er sýkn af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Suðurlands birt 10. febrúar 2021

E-352/2020

Daði Már Sigurðsson, Margrét Anna Guðmundsdóttir (Guðrún Lilja Sigurðardóttir lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður)

Stefnendur kröfðust þess að viðurkenndur yrði réttur þeirra til fullra bóta úr starfsábyrgðartryggingu sem þau töldu byggingarstjóra hafa haft í gildi vegna tjóns sem stefnendur höfðu orðið fyrir vegna galla á fasteign sem þau töldu byggingarstjórann bera ábyrgð á. Stefndi var sýknaður á þeim grundvelli að ábyrgðartrygging byggingarstjórans hafi verið fallin úr gildi þegar ágallar á verki hans hafi komið í ljós.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. júlí 2020

E-1617/2019

Jóhann Ögri Elvarsson og Rut Helgadóttir (Ingvar Smári Birgisson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf og Gísla Ágústi Guðmundssyni (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður)

Fallist var á það með stefnendum að byggingarstjóri hefði sýnt af sér saknæma háttsemi við eftirlit múrverks. Hins vegar þótti ekki hægt að byggja á framlagðri matsgerð um ágalla múrverksins við ákvörðun fjártjóns, og málinu því vísað frá dómi.

Hæstiréttur birt 20. september 2018

798/2017

Langalína 2, húsfélag (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður) gegn Arion banka hf, Garðabæ, Jóhanni Guðna Hlöðverssyni (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður), Arion banki hf. gegn Löngulínu 2 (Andri Árnason lögmaður) og húsfélagi (Diljá Mist Einarsdóttir lögmaður)

Húsfélag fjöleignarhússins að L í Garðabæ höfðaði mál til heimtu skaðabóta vegna galla í utanhússklæðningu hússins. Beindi húsfélagið kröfum sínum aðallega að bankanum A hf. á þeim grundvelli að hann hefði í raun verið eigandi og byggingaraðili hússins eftir að hafa yfirtekið L ehf., sem áður hafði staðið að byggingu þess. Til vara beindi húsfélagið kröfum sínum að sveitarfélaginu G og byggingarstjóranum J. Fyrir lá að húsfélagið og A hf. höfðu áður gert með sér samkomulag um fullnaðaruppgjör á kostnaði við úrbætur á fjöleignarhúsinu, en húsfélagið byggði á því að umfang gallans hefði verið stórlega vanáætlað í samkomulaginu og forsendur þess því brostið. Héraðsdómur féllst á að A hf. hefði í raun stjórnað L ehf. frá því að húsið varð fokhelt og að húsfélaginu væri því rétt að beina kröfum sínum að bankanum. Féllst dómurinn jafnframt á að húsfélaginu hefði ekki verið umfang gallans ljóst er gengið var til samkomulagsins og vék því til hliðar á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936. Var krafa húsfélagsins á hendur A hf. því tekin til greina. Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu héraðsdóms að A hf. hefði í raun haft öll ráð L ehf. í hendi sér og farið með allt forræði á því hvernig ljúka skyldi við byggingu hússins. Hefði bankinn tekið ákvörðun um að leita ódýrari lausna við bygginguna, þar með talið að notast við aðra einangrun og múrklæðningu heldur en aðalhönnuður hússins hafði mælt fyrir um og samþykktar teikningar hefðu gert ráð fyrir. Samkvæmt matsgerð dómkvadds manns uppfyllti sú einangrun og múrklæðning ekki kröfur byggingarreglugerðar og laga um brunvarnir og mætti rekja orsök þeirra skemmda sem krafist væri bóta fyrir til þessa. Var niðurstaða héraðsdóms um skaðabótaábyrgð A hf. því staðfest. Þá staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu héraðsdóms að víkja bæri samkomulagi aðila til hliðar, meðal annars með vísan til þess að A hf. hefði borið ábyrgð á þeirri ákvörðun að setja aðra einangrun og múrklæðningu á útveggi hússins. Var hinn áfrýjaði dómur samkvæmt því staðfestur.

Hæstiréttur birt 12. október 2017

634/2016

SS Byggir ehf (Ívar Pálsson hrl) og Hálönd ehf (Áslaug Árnadóttir hdl, 2. prófmál) gegn Akureyrarbæ (Björn Lárus Bergsson hrl)

Aðilar deildu um það hvort A væri heimilt að innheimta gatnagerðargjald á grundvelli breytingar á aðalskipulagi, sem tók gildi í apríl 2013, þar sem gerð var breyting á þéttbýlismörkum A. Með breytingunni féll landspilda sem S ehf. keypti í september 2010 og seldi H ehf. í febrúar 2013 innan þéttbýlismarka A, en í mars 2011 hafði A samþykkt deiliskipulagstillögu S ehf. þar sem gert var ráð fyrir fyrsta áfanga frístundabyggðar á spildunni. Í málinu krafði S ehf. A um greiðslu tiltekinnar fjárhæðar er nam fjárhæð þess gatnagerðargjalds sem S ehf. hafði innt af hendi með fyrirvara um lögmæti gjaldsins. H ehf. krafðist aðallega að viðurkennd yrði skaðabótaskylda A vegna tjóns H ehf. sem leiddi af breytingunni á aðalskipulaginu, en til vara að A yrði gert að „kosta“ gatnagerð og viðhald gatna innan spildunnar. Byggðu S ehf. og H ehf. á því að breytingin á aðalskipulaginu hefði ekki verið reist á lögmætum og málefnalegum forsendum, skipulagslegs eðlis, heldur hefði búið þar að baki misbeiting valds á grundvelli þeirrar forsendu einnar að A gæti innheimt gatnagerðargjöld af S ehf. og H ehf. Væri eftirfarandi innheimta gjaldanna því ólögmæt. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að ekki væri annað í ljós leitt en að stjórnsýslumeðferð við undirbúning og samþykkt breytingarinnar á aðalskipulaginu hefði verið í samræmi við skipulagslög. Ennfremur hefði A sýnt fram á að breytingin næði ekki einungis til landsvæðis í eigu H ehf. heldur einnig svæða í eigu annarra þar sem m.a. stæði til að reisa frístundabyggð. Að því virtu hefðu S ehf. og H ehf. ekki sýnt fram á að breytingin sem gerð var á þéttbýlismörkum A hefði verið ólögmæt þannig að hnekkt fengi gildi hennar. Þar sem málatilbúnaður og dómkröfur S ehf. og H ehf. byggðu með öllu á forsendunni um ólögmæti breytingarinnar var þegar af þeirri ástæðu staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu A.

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

571/2016

Hlíf Sturludóttir, Sigurlaug Sigurjónsdóttir, Bergur Pálsson, Margeir Rúnar Daníelsson, Unnur Stephensen og Arnþór Jónsson (Bjarki Þór Sveinsson hrl) gegn Sæmundi Ágústi Óskarssyni (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) og til réttargæslu Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður)

H o.fl. kröfðu SÁ um skaðabætur vegna mygluskemmda í þökum og annarra galla í raðhúsum sem þau höfðu keypt á árunum 2002-2006. Húsin höfðu upphaflega verið seld tilbúin til innréttinga en fullbúin að utan til H hf., E hf. og V ehf. á árinu 2002. SÁ hafði verið byggingarstjóri húsanna og byggðu H o.fl. kröfur sínar á hendur honum á grundvelli ábyrgðar hans samkvæmt þágildandi skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem fram kom að meginorsök mygluskemmdanna í þökum húsanna væri að rekja til þess að loftun þeirra hefði ekki verið í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar, m.a. vegna þess að lokað hafði verið fyrir loftun þakanna með þéttipylsum og upprúlluðu álneti, en samkvæmt framburði áfrýjandans S fyrir dómi höfðu þéttipylsurnar verið settar upp veturinn 2003-2004. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt SÁ hefði staðhæft að hann hefði afhent byggingarfulltrúa bréf um að hann hefði hætt byggingarstjórn við umrædd hús á árinu 2002, þá hefði ekkert gagn þess efnis verið lagt fram í málinu. Þá væri ágreiningslaust að engin stöðuúttekt hefði farið fram. Væri því ósönnuð sú fullyrðing SÁ að hann hefði sagt sig frá byggingarstjórn húsanna. Af málatilbúnaði H o.fl. væri ljóst að þau teldu að orsakir myglu í þökum húsanna væri ekki eingöngu að rekja til uppsetningu þéttipylsanna heldur einnig til þess að ekki hefði verið byggt í samræmi við samþykktar teikningar, lög og reglugerðir þegar húsin voru reist. Þótt ekki yrði ráðið af matsgerð eða öðrum gögnum málsins hvenær H o.fl. hefðu mátt gera sér grein fyrir þeim göllum á loftræstingu þaka húsanna sem myglan var rakin til, hefði fyrningarfrestur kröfu þeirra í síðasta lagi byrjað að líða þegar þéttipylsurnar voru settar upp veturinn 2003-2004. Hefði krafa þeirra fyrnst 10 árum síðar og þar af leiðandi verið fyrnd þegar þau höfðuðu málið 19. júní 2014. Var það sama talið eiga við um kröfur H o.fl. vegna annarra galla á húsunum. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu SÁ því staðfest.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. mars 2017

E-1067/2015

Snæbjörn Guðni Valtýsson og Valgerður Björg Ólafsdóttir (Theodór Kjartansson hdl) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf. (Hákon Árnason hrl), Gunnari Valbirni Jónssyni (Skarphéðinn Pétursson hrl) og Teiknistofunni Arkitektum ehf. (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Skaðabótamál.

Byggingarstjóri og hönnuður dæmdir til greiðslu skaðabóta að hluta til vegna galla á fasteign. Vátryggingafélag byggingarstjórans var sýknað þar sem bótafjárhæð starfsábyrgðartryggingar var tæmd.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. október 2016

E-1107/2015

Ævar Rafn Björnsson og Helga Sigurrós Valgeirsdóttir (Guðbjarni Eggertsson hrl) gegn Gunnari Þórðarsyni og Verði tryggingum hf til réttargæslu
Lykilorð: Skaðabótamál.

Stefndi, byggingarstjóri, var sýknaður af skaðabótakröfu stefnenda, annars vegar vegna fyrningar og hins vegar vegna ágalla á boðun til matsfundar, sem leiddi til þess að ekki var unnt að leggja matsgerð til grundvallar niðurstöðu um þau atriði sem komu til skoðunar á þeim matsfundi.

Hæstiréttur birt 24. september 2015

1/2015

Vörður Tryggingar hf (Magnús Hrafn Magnússon hrl) gegn Húsfélaginu, Rauðavaði 19, Hjördísi, Sigríði Albertsdóttur, Valdísi, Beck, Eddu, Maríu Baldvinsdóttur, Guðrúnu, Jennýju, Jónsdóttur, Hildu, ehf og Óskari Páli Þorgilssyni (Anton Björn Markússon hrl)

Húsfélag fjöleignarhússins R o.fl. höfðuðu mál gegn V hf. til heimtu bóta úr starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra vegna galla á húsinu. Deildu aðilar um hvernig framreikna ætti vátryggingafjárhæðina, sem að öðru leyti var óumdeild, að teknu tilliti til byggingarvísitölu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að óumdeilt væri í málinu að tjón R o.fl. hefði stafað af missmíð á húsinu sem vátryggingin tæki til. Húsið hefði verið byggt á árunum 2004 til 2006 en félagið sem að því stóð hefði afhent íbúðir í því til kaupenda á tímabilinu frá desember 2005 fram í apríl 2006. Hefði krafa um skaðabætur því orðið til á árinu 2006. Ekkert lægi fyrir um að hin saknæma vanræksla byggingarstjórans hefði spannað yfir tímabil eftir það. Miða yrði greiðsluskyldu V hf. við fjárhæð vátryggingarinnar, sem þá var í gildi samkvæmt skilmálum um hana, enda hefði þar ekki verið kveðið á um annað tímamark til útreiknings fjárhæðarinnar. Var V hf. því dæmt til að greiða R o.fl. nánar tilgreinda fjárhæð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2014

E-4784/2013

Húsfélagið Rauðavaði 19, Hjördís, Sigríður Albertsdóttir, Valdís Beck, Edda María, Baldvinsdóttir, Guðrún Jenný, Jónsdóttir, Hilda ehf og Óskar Páll Þorgilsson (Gunnlaugur Úlfsson hdl) gegn Verði tryggingum hf (Björn Lárus Bergsson hrl)

Starfsábyrgðartrygging. Dómur taldi að miða bæri útreikning vátryggingarfjárhæða við það tímamark þegar lokaúttekt á byggingarframkvæmd fór fram.

Hæstiréttur birt 14. maí 2014

305/2014

Ægisgata 5, húsfélag (Magnús Björn Brynjólfsson hrl) gegn Reynaldi (Heiðar Örn Stefánsson hrl), Jónssyni (Ingvar Sveinbjörnsson hrl), Vátryggingafélagi (Hjörleifur Kvaran hrl) og Íslands hf (Kristbjörg Stephensen hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi framhaldssök og sakaukasök Æ á hendur RJ o.fl., sökum þess að skilyrði 29. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og 19. gr. sömu laga væru ekki uppfyllt, svo og að þeir annmarkar væru á stefnu að ekki væri heldur fullnægt 1. mgr. 80. gr. laganna. Æ hafði höfðað skaðabótamál vegna tjóns sem varð á nýbyggingu í óveðri í Reykjavík í desember 2007 og var framhalds- og sakaukasök reist á því að Æ hefði vanmetið tjón sitt við málshöfðun aðalsakar. Í sakaukasök hafði Æ uppi auknar kröfur á hendur byggingarstjóra og ábyrgðartryggjanda hans, RJ og V hf., en í framhaldssök gerði hann kröfur á hendur húsasmíðameistara og ábyrgðartryggjanda hans, O og S hf., verkfræðingum sem komu að hönnun hússins og ábyrgðartryggjanda þeirra, B, Þ og T, og loks hlutaðeigandi sveitarfélagi, R.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2013

E-66/2013

Steingrímur Einarsson, Sigríður J Sigurjónsdóttir, Sigurjón Kristinn Sigurjónsson, Svanlaug Guðnadóttir, Kristján G Jóhannsson, Inga Steinunn Ólafsdóttir, Víðir Ólafsson, Erla Jónsdóttir og Urtusteinn ehf (Björn Jóhannesson hrl) gegn Björgmundi Erni Guðmundssyni (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) og Hreini Jónssyni (Kristján B. Thorlacius hrl)
Lykilorð: Ábyrgð. Skaðabætur.

Stefndu, byggingastjóri og múrarameistari, dæmdir til greiðslu bóta vegna ágalla á múrverki. Tryggingarfélagið dæmt til greiðslu þess sem á vantaði vegna tryggingar byggingastjóra.

Hæstiréttur birt 7. nóvember 2013

237/2013

Þrotabú TAP ehf (Ólafur Örn Svansson hrl) gegn Nýsköpunarmiðstöð Íslands (Sigurður G. Guðjónsson hrl)
Lykilorð: Skaðabætur. Galli.

T ehf. krafði N um skaðabætur vegna galla í steypu sem félagið hafði fengið afhent frá steypustöðinni M ehf. og notað til byggingar á fasteign. Byggði T ehf. á því að starfsmönnum N hefði orðið á mistök við lögbundið gæðamat steypunnar sem hafi leitt til tjóns fyrir félagið. Talið var að fyrirsvarsmaður T ehf., sem jafnframt var byggingarstjóri framkvæmdanna, hefði gert starfsmönnum steypustöðvarinnar M ehf. grein fyrir því hvers konar steypu væri óskað eftir og hefði hann afhent þeim blað frá verkfræðistofu þar sem nánari fyrirmæli hefðu komið fram. Þá var jafnframt talið að það væri á ábyrgð steypuframleiðanda að steypa stæðist þær kröfur sem gerðar væru til hennar en að auki hafði T ehf. ekki sýnt fram á að í eftirlitshlutverki N hefði falist skylda til þess að fylgjast með daglegri steypuframleiðslu M ehf. Var N því sýknað af kröfu T ehf.

Hæstiréttur birt 19. júní 2013

83/2013

Tryggingamiðstöðin hf og Brynjar Þór Jónasson (Guðmundur Pétursson hrl) gegn Bjarna S. Ásgeirssyni og Sigríði Petru Friðriksdóttur (Stefán Bjarni Gunnlaugsson hrl)

B og S keyptu íbúð af T ehf. á árinu 2007. Eftir afhendingu íbúðarinnar kom í ljós galli á hitavatnslögn. Kröfðu B og S byggingarstjóra íbúðarinnar um skaðabætur vegna þessa og var kröfunni einnig beint að T hf. þar sem byggingarstjórinn hafði lögboðna starfsábyrgðartryggingu. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem talið var að frágangur hitavatnslagna hefði verið í andstöðu við ákvæði byggingarreglugerðar nr. 441/1998. Hins vegar var talið að byggingarstjóranum yrði ekki metið það til saknæmrar vanrækslu að hafa treyst því að teikningar af lögnunum, sem samþykktar höfðu verið af þar til bæru stjórnvaldi, væru í samræmi við lög og reglugerðir. Var því ekki fallist á að hann bæri skaðabótaábyrgð á þeim göllum sem reyndust vera á lögnunum og voru hann og T hf. því sýknaðir af kröfu B og S.

Hæstiréttur birt 13. desember 2012

239/2012

Fasteign Galli Skaðabætur Fimmtudaginn (Hákon Árnason hrl) gegn Friðriki Sturlaugssyni (Erlendur Þór Gunnarsson hrl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Skaðabætur.

F keypti íbúð af ÁF ehf. á árinu 2007. Eftir afhendingu íbúðarinnar komu í ljós gallar á hitakerfi íbúðarinnar, svalagólfi hennar sem og leki í sturtu. Gerði F kröfu á hendur Á, sem var byggingarstjóri fasteignarinnar, um skaðabætur vegna þessa. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði m.a. að það yrði ekki metið Á til saknæmrar vanrækslu að hafa treyst því að teikningar af hitakerfi íbúðarinnar, sem samþykktar hefðu verið af þar til bæru stjórnvaldi, væru í samræmi við lög og reglugerðir. Bæri Á því ekki ábyrgð á göllum hitakerfisins. Hins vegar féllst Hæstiréttur á það með héraðsdómi að Á bæri ábyrgð á göllum sem voru á svalagólfi íbúðarinnar sem og á leka í sturtu.

Hæstiréttur birt 12. júní 2012

341/2012

Steingrímur, Einarsson, Sigríður, J. Sigurjónsdóttir, Sigurjón, Kristinn Sigurjónsson, Svanlaug, Guðnadóttir, Kristján, G. Jóhannsson, Inga, Steinunn Ólafsdóttir, Víðir, Ólafsson, Erla, Jónsdóttir og Urtusteinn ehf (Björn Jóhannesson hrl) gegn Björgmundi, Erni Guðmundssyni, Sjóvá-Almennum, tryggingum hf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) og Hreini Jónssyni (Kristján B. Thorlacius hrl)

S og fleiri keyptu íbúðir í fjöleignahúsi af Á ehf. Í málinu stefndu þau B, byggingarstjóra hússins og H, múrarameistara, til heimtu skaðabóta vegna galla á múrklæðningu fasteignarinnar. Þá krafðist einn íbúðareigandi viðurkenningar á greiðsluskyldu S hf. á grundvelli starfsábyrgðartryggingar B. Í málinu lágu fyrir tvær matsgerðir og gerðu þær báðar ráð fyrir að ráðast þyrfti í heildarendurnýjun á múrhúð hússins, þó út frá ólíkum forsendum. Var það mat sérfróðra meðdómsmanna í héraði að slík heildarendurnýjun væri óþörf. Í undir- og yfirmatsgerð kom hins vegar ekki fram umfang þess kostnaðar sem leggja þyrfti í til að bæta úr göllum á múrhúð hússins að þessu virtu, né hversu stór hluti verksins var gallaður þegar B og H hurfu frá verkinu. Var máli S og fleiri gegn B, H og S hf. því vísað frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 24. maí 2012

521/2011

Járnsmiðja Óðins ehf (Gestur Jónsson hrl) gegn Sveinbirni Sveinbjörnssyni (Halldór Þorsteinn Birgisson hrl)

S krafði J ehf. um skaðabætur vegna glerhandriðs og tjóns af völdum glerskífu sem brotnaði í handriði á heimili hans en J ehf. hafði séð um hönnun, smíði og uppsetningu handriðsins. Með vísan til niðurstöðu matsgerðar, sem ekki hafði verið hnekkt, var í Hæstarétti talið að söluhluturinn hafi ekki haft þá eiginleika til að bera sem S hafi mátt vænta við kaup á honum sbr. b. lið 15. gr. laga nr. 48/2003 um neytendakaup. Var hann því talinn gallaður samkvæmt a. lið 1. mgr. 16. gr. sömu laga og á því bæri J ehf. bótaábyrgð gagnvart S í lögskiptum þeirra.

Hæstiréttur birt 16. maí 2012

491/2011

Logi Kristjánsson og Ingvi Jökull Logason (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn Einari Sigurðssyni ehf og Einari Sigurðssyni (Marteinn Másson hrl)

Deilt var um lögskipti aðila vegna tveggja húsa sem E ehf. tók að sér að byggja fyrir L og I en E var byggingarstjóri húsanna. L og I buðu byggingu húsanna út með tveimur lokuðum útboðs- og verklýsingum í janúar 2007 og gerði E ehf. tilboð í þau bæði. Hæstiréttur leit svo á samningur hefði komist á milli aðila með því efni sem í samningsdrögum greindi en þau voru aldrei undirrituð af hálfu E ehf. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um rétt L og I til skaðabóta úr hendi E og E ehf. vegna ýmissa galla á eignunum og dæmdi tafabætur að álitum og rétt E ehf. til greiðslna úr hendi L og I vegna magnaukningar og aukaverka.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. mars 2012

E-1038/2011

Sigurjón Óskarsson Katrín Hildur Sigurðardóttir (Björgvin Halldór Björnsson hdl) gegn Gunnari Valbirni Jónssyni og Vátryggingafélagi Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson hdl)
Lykilorð: Skaðabætur. Aðild.

Byggingarstjóri var dæmdur til að greiða eigendum fasteignar skaðabætur vegna ófullnægjandi loftunar á þaki. Hvorki var byggt samkvæmt byggingarreglugerð né staðfestum teikningum þar sem færri túður voru á þakinu og minni en teikning sýndi. Nokkrum kröfuliðum stefnenda var hafnað þar sem talið var að um kostnað vegna viðhald fasteignarinnar væri að sem ekki yrði felldur undir sakarábyrgð byggingarstjóra samkvæmt þágildandi skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.

Hæstiréttur birt 2. febrúar 2012

271/2011

Snorri Hjaltason (Hákon Árnason hrl) gegn Guðmundi Kristni Sveinssyni og Svanhildi Kristinsdóttur (Haukur Örn Birgisson hrl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Skaðabætur.

T hf. höfðaði mál á hendur G og S til greiðslu eftirstöðva kaupverðs samkvæmt kaupsamningi um raðhús í smíðum. Þau kröfðust sýknu og höfðuðu jafnframt mál á hendur félaginu til heimtu skaðabóta eða afsláttar vegna galla á hinu selda og stefndu einnig SH sem verið hafði byggingarstjóri við húsbygginguna. Kröfugerð G og S var reist á niðurstöðu matsgerðar. Í Hæstarétti var fallist á ábyrgð SH sem byggingarstjóra hússins vegna fjölmargra verkliða utan þeirra er lutu að hönnun sem væri þess eðlis að ekki félli undir ábyrgð byggingarstjóra.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. júní 2011

E-41/2011

Sveinbjörn Sveinbjörnsson (Halldór Þormar Birgisson hrl) gegn Járnsmiðju Óðins ehf (Þórður Clausen Þórðarson hrl)
Lykilorð: Matsgerð. Skaðabótamál.

Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda skaðabætur vegna ágalla á glerhandriði sem stefndi hannaði og setti upp hjá stefnanda og vegna tjóns af völdum glerskífu úr handriðinu sem brotnaði og féll niður á milli hæða.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. júlí 2010

E-5242/2009

Sigurlín Gunnarsdóttir og Koen Van de Putte (Jóhann H. Hafstein hdl) gegn Kristjáni Finni Kristjánssyni og Gunni Björk Rögnvaldsdóttur (Magnús Hrafn Magnússon hdl) og Reyni Björnssyni og Húsavík og fasteignasölu ehf. (Hilmar Magnússon hrl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Tómlæti.

Stefndu voru sýknuð af kröfu stefnenda um skaðabætur eða afslátt vegna ætlaðra galla á fasteign.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. júní 2010

E-936/2009

málinu nr. E-936/2009, Guðný Elísabet Ísaksdóttir og Jón Vilberg Reynisson (Þórhallur Bergmann hdl) gegn Erni Úlfari Andréssyni (Páll Arnór Pálsson hrl), Þórhalla Einarssyni (Magnús Guðlaugsson hrl), Einari V. Tryggvasyni (Magnús H. Magnússon hdl) og Vátryggingarfélagi Íslands hf. (Heiðar Örn Stefánsson hdl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Matsgerð.

Talið var að fasteign í Hveragerði væri haldin margvíslegum göllum sem stöfuðu af ófullnægjandi rakavörn og loftun í skriðkjallara.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. júní 2010

E-935/2009

málinu nr. E-935/2009, Eyjólfur Kristinn Kolbeins og Elín Brynja Hilmarsdóttir (Þórhallur Bergmann hdl) gegn Þórtaki ehf. (Magnús Guðlaugsson hrl), Þórhalla Einarssyni og Einari V. Tryggvasyni (Magnús H. Magnússon hdl) og Vátryggingarfélagi Íslands hf. (Heiðar Örn Stefánsson hdl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Matsgerð.

Talið var að fasteign í Hveragerði væri haldin margvíslegum göllum sem stöfuðu af ófullnægjandi rakavörn og loftun í skriðkjallara.

Hæstiréttur birt 4. mars 2010

369/2009

Hörður Hafsteinn Bjarnason (Skarphéðinn Pétursson hrl) gegn Páli Magnússyni (Guðjón Ólafur Jónsson hrl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Skaðabætur.

B ehf. tók að sér að byggja tvíbýlishús í Kópavogi fyrir P. Byggingastjóri hússins var H en hann var jafnframt húsasmíðameistari þess og fyrirsvarsmaður B ehf. Í kjölfar þakleka í húsinu höfðaði P mál og krafðist skaðabóta vegna galla í samræmi við matsgerð dómkvaddra manna sem lagt höfðu mat á annmarka í fasteigninni. Talið var að við úrlausn málsins yrði að líta til þess að Hæstiréttur hefði í nokkrum dómum fjallað um skaðabótaábyrgð byggingarstjóra, sbr. dóma í málum nr. 267/2005, 318/2007 og 37/2009. H hefði látið undir höfuð leggjast að fylgjast með framkvæmdunum og sjá til þess að verkið væri faglega og tæknilega rétt unnið. Hefði H átt að gera sér grein fyrir því sem byggingarstjóri að nauðsynlegt hefði verið að leita sérlausna á því vandamáli sem uppi var í málinu. Yrði að virða H þetta til vanrækslu og bæri hann ábyrgð á því tjóni sem P varð fyrir vegna þessa. Var H gert að greiða P 1.716.848 krónur í skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. desember 2009

E-3407/2008

Óskar Halldór Valtýsson og Guðbjörg Rannveig Jónsdóttir (Gísli Guðni Hall hrl) gegn Arkitektum Laugavegi 164 ehf. og Hallgrími Friðgeirssyni (Sigurður G. Guðjónsson hrl), TVT ehf. og Guðmundi K. Kjartanssyni (Skarphéðinn Pétursson hrl), Baldri Baldurssyni (Ólafur Eiríksson hrl), Sveini Loga Björnssyni (Björn Þorri Viktorsson hrl), Oddi Guðnasyni (Ólafur Kjartansson hdl) og Gólfefnavali ehf. og Blikksmiðnum ehf. (Bjarni Ásgeirsson hrl)
Lykilorð: Fasteign. Galli. Skaðabætur.

Stefnendur keyptu einbýlishús sem var tilbúið að utan en fokhelt að innan. Þau fengu arkitektastofu til að hanna húsið að innan og til að hafa umsjón og eftirlit með framkvæmdum. Gallar komu fram og stefndu eigendur hússins arkitektastofunni, hönnuði, byggingarstjóra, múrara, smiði, rafvirkja, parketsala og blikksmiði til greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. september 2007

E-6115/2007

Húsfélagið Grettisgötu 46 gegn Einari, Guðjónssyni, kveðinn og upp svohljóðandi
Lykilorð: Húsfélag. Skuldamál.

Deilt var um kröfu stefnanda á hendur stefnda um þátttöku í viðgerðarkostnaði vegna leka frá þaki á fasteigninni Grettisgötu 46, en stefndi er eigandi að hluta fasteignarinnar. Á húsfundi var samþykkt tilboð í viðgerðirnar með öllum atkvæðum nema atkvæði stefnda, en í tilboðinu var m.a. gert ráð fyrir, að skipta út steinflísum á þaki hússins fyrir bárujárn. Stefndi bar fyrir sig m.a., að þurft hefði atkvæði allra húseigenda til framkvæmdanna, þar sem um verulega útlitsbreytingu hússins væri að ræða. Dæmt, að stefnda bæri að greiða viðgerðarkostnað vegna þaklekans. Hins vegar var hann sýknaður af enfniskostnaði vegna hins nýja þakefnis.

Hæstiréttur birt 30. apríl 2009

485/2008

Einar Guðjónsson (Guðmundur Birgir Ólafsson hrl) gegn Húsfélaginu Grettisgötu 46 (Gylfi Thorlacius hrl)

Húsfélagið G krafði E, íbúa í húsinu, um greiðslu vegna viðhaldsframkvæmda á þaki hússins sem fram fóru árið 2006. Þá krafðist húsfélagið þess jafnframt að viðurkenndur yrði með dómi lögveðsréttur fyrir kröfum þess í eignarhlutum E í húsinu. Fjárkrafa húsfélagsins var að hluta tekin til greina í héraði. Þar fórst hins vegar fyrir að taka afstöðu til og dæma um kröfuna sem laut að viðurkenningu lögveðsréttarins. Taldi Hæstiréttur það í andstöðu við f. lið 1. mgr. og 2. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og því óhjákvæmilegt að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og leggja fyrir héraðsdóm að taka málið til munnlegs flutnings og dómsálagningar á ný.

Hleð fleiri dómum…