Með dómi héraðsdóms var G sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotunum rauf G skilyrði reynslulausnar og var hún tekin upp með vísan til 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 77. gr. sömu laga. Með vísan til sakaferils G var refsing hans ákveðin fangelsi í 17 mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Með dómi Landsréttar 23. mars 2018 var héraðsdómur staðfestur. Dómur Landsréttar var staðfestur með dómi Hæstaréttar 24. maí sama ár. Með úrskurði Endurupptökudóms 31. mars 2022 var hæstaréttarmálið endurupptekið að beiðni G. Með nýjum dómi Hæstaréttar í málinu 7. desember 2022 var dómur Landsréttar 23. mars 2018 ómerktur og málinu vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Við hina endurteknu málsmeðferð var niðurstaða héraðsdóms staðfest um sakfellingu G. Við ákvörðun refsingar G vísaði Landsréttur til þess dráttar sem orðið hefði á meðferð málsins sem G yrði ekki um kennt. Þá var litið til þess að G hefði eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms margsinnis verið dæmdur fyrir ölvunarakstur og sviptur ökurétti þar sem við ákvörðun refsingar hefði verið tekið tillit til ítrekunaráhrifa hins áfrýjaða dóms. Loks var litið til breytinga sem orðið höfðu á högum G. Var refsing G ákveðin fangelsi í 12 mánuði, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var G sviptur ökurétti ævilangt.
A var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa margítrekað ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af sjö sinnum undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk slævandi lyfja í eitt skipti, akstur yfir löglegum hámarkshraða í fimm skipti og akstur gegn rauðu umferðarljósi í tvö skipti. Þá var A sakfelldur fyrir að hafa í tvígang haft í vörslum sínum ávana- og fíkniefni. Samkvæmt dómvenju, að virtum sakaferli A og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var staðfest niðurstaða héraðsdóms um 22 mánaða fangelsisrefsingu og ævilanga ökuréttarsviptingu. Ekki þóttu efni til að binda refsinguna skilorði.
Ákæruvaldið (
Einar Tryggvason saksóknari)
gegn
Arnari Inga Reynissyni (
Gísli Tryggvason lögmaður)
A var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að A hefði þrisvar áður verið gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var refsing A í samræmi við dómvenju ákveðin fangelsi í 75 daga og áréttuð svipting ökuréttar ævilangt.
Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir hótanir, umferðarlagabrot, sérstaklega hættulega líkamsárás og fíkniefnalagabrot. Hann játaði sakargiftir, þar á meðal að hafa slegið brotaþola í höfuðið með skralli úr topplyklasetti, en neitaði að hafa stungið brotaþola með skrúfjárni í vinstri sköflung. Í dómi Landsréttar er rakið að samkvæmt framburði læknis fyrir héraðsdómi var um að ræða lokaðan yfirborðsskurð á sköflungnum sem ekki reyndist þörf á að gera að eða búa um. Þá segir í dóminum að þrátt fyrir að ekki hafi fundist blóð á skrúfjárni því sem fannst á vettvangi væri með vísan til annarra gagna málsins hafið yfir skynsamlegan vafa að X hefði veitt brotaþola áverka með skrúfjárninu á áðurgreindum stað í átökum þeirra á milli. Með hliðsjón af skýrslu réttarmeinafræðings fyrir héraðsdómi og lýsingu vitna á aðförum ákærða þótti háttsemi hans samræmast verknaðarlýsingu í ákæru um að hann hefði stungið brotaþola með skrúfjárninu. Að þessu athuguðu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur, þó þannig að til frádráttar refsingu ákærða kæmi gæsluvarðhald sem hann sætti vegna málsins.
J var sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og brot á lögreglulögum. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar dæmt um umferðarlagabrot J eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils J, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, 77. gr. sömu laga og áralangrar dómvenju en jafnframt til skýlausrar játningar hans. Var refsing J ákveðin fangelsi í tvö ár auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku fíkniefna og kylfu.
X var sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og hegningarlagabrot, þar á meðal líkamsárás, samkvæmt þremur ákærum sem gefnar voru út 13. ágúst 2019, 26. september 2019 og 14. janúar 2020. Með dómi Landsréttar var dæmt um umferðarlagabrot X samkvæmt ákærunni 13. ágúst 2019 eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að ákæran var gefin út. Hluti af brotum X voru hegningarauki við annars vegar dóm hans frá 4. febrúar 2019 og hins vegar sátt frá 2. nóvember 2017. Var fyrrnefndur dómur X tekinn upp með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og refsing ákveðin í einu lagi með hliðsjón af 77. og 78. gr. laganna. Við ákvörðun refsingar X var meðal annars litið til þess að grundvallarbreyting hefði orðið á högum hans og til 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár og ævilöng svipting ökuréttar hans áréttuð, auk þess sem gerð voru upptæk tilgreind fíkniefni og honum gert að greiða K ehf. tiltekna fjárhæð ásamt vöxtum og dráttarvöxtum.
X var gefin að sök líkamsárás, með því að hafa rifið í hár A, sparkað í og/eða traðkað á brjóstkassa og sparkað í andlit hennar, og sigað á hana dobermann-hundi sem hafi glefsað og klórað í hana, með nánar tilgreindum afleiðingum. Í dómi Landsréttar er rakið að hvorki vætti vitna né fyrirliggjandi læknisvottorð sýndu, þannig að hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði sigað hundinum á A eða að hann hefði glefsað og klórað í hana, eða að X hefði sparkað í andlit A. Var X því sýknuð af þeim ákæruatriðum. Að öðru leyti var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu X og um heimfærslu til 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X gekkst undir tvær lögreglustjórasáttir og viðurlagaákvörðun fyrir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms og bar því að dæma henni hegningarauka samkvæmt 78., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Að því virtu þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði sem bundin var skilorði. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um miskabætur til handa A.
Ákæruvaldið gegn
Jóhanni Rúnari Sigurðssyni og Heiðari Þór Guðmundssyni (
Gísli Tryggvason lögmaður)
J og H voru sakfelldir fyrir þjófnaðarbrot með því að hafa farið inn á athafnasvæði fiskvinnslufyrirtækis og tekið ófrjálsri hendi 70 málmeiningar af óþekktri tegund. Þá var H sakfelldur fyrir vörslur ávana- og fíkniefna, meðal annars í sölu- og dreifingarskyni, og J sakfelldur fyrir akstur bifreiðar í átta skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brotin voru framin í mismunandi lögsagnarumdæmum og lá ekki fyrir ákvörðun ríkissaksóknara um að fela einum lögreglustjóra saksókn í málinu, sbr. 4. mgr. 24. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Þótti það ekki koma að sök og var tilgreindum ákæruliðum ekki vísað frá dómi af þeirri ástæðu. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að þjófnaðarbrotið var framið í samverknaði, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og einnig litið til 8. töluliðar 70. gr. og 77. gr. sömu laga. Með brotum þeim sem J var sakfelldur fyrir rauf hann skilorð eldri dóms sem var tekinn upp og refsing dæmd í einu lagi. Var J gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði og var hann sviptur ökurétti í fjögur ár og tvo mánuði frá birtingu dómsins að telja. Með hluta brotanna sem H var sakfelldur fyrir rauf hann skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. hegningarlaga og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði. Þá voru hin haldlögðu fíkniefni H gerð upptæk.
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis umferðar- og hegningarlagabrot.
R var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið í tvö aðgreind skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum tiltekið magn af marijúana. Við meðferð málsins í héraði játaði R sök en bar því við að umferðarlagabrotin væru fyrnd. Í dómi Landsréttar kom fram að umferðarlagabrotin hefðu ekki verið fyrnd þegar ákæra var gefin út í málinu. Enn fremur var rakið að eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms hefðu tekið gildi ný umferðarlög og að dæma skyldi um háttsemi R eftir þeim lögum. Þá var fjallað um áhrif fyrri brota R við ákvörðun refsingar og rakið að háttsemin sem R hefði verið sakfelldur fyrir með tilgreindum dómi Hæstaréttar væri ekki lengur refsinæm samkvæmt gildandi umferðarlögum. Af lögskýringargögnum með 3. gr. almennra hegningarlaga mætti ráða að horfa skyldi til refsiákvörðunar eldri dóma og viðurlagaákvarðana við mat á ítrekunaráhrifum og ákvörðunar refsingar þrátt fyrir slíkar breytingar. Á hinn bóginn mætti leiða þau grunnsjónarmið af ákvæðum stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu, um bann við afturvirkni refsilaga, og dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, að sakaður maður ætti að njóta þess ef háttsemi sem áður hefði verið talin refsinæm þætti það ekki lengur. Af þessum sökum kæmi umræddur dómur Hæstaréttar ekki til skoðunar við mat á sakaferli R og ákvörðun refsiviðurlaga. Var refsing R ákveðin 60 daga fangelsi en með hliðsjón af óhóflegum drætti á útgáfu ákæru í málinu var fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms um upptöku fíkniefna og ökuréttarsviptingu staðfest.
X var sakfelld fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja, yfir á rangan vegarhelming og framan á bifreið sem ekið var í gagnstæða átt með þeim afleiðingum að ökumaður þeirrar bifreiðar og farþegar í bifreið X hlutu líkamsmeiðsl. Varðaði brot hennar við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og nánar tilgreind ákvæði nýrra umferðarlaga nr. 77/2019, sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Í dómi Landsréttar kom fram að ekkert benti til þess að rannsókn á blóðsýni X hefði verið annmörkum háð. Sannað væri með framburði vitna að bifreið ákærðu hefði rásað á milli vegarhelminga og síðan farið yfir á rangan vegarhelming. Niðurstaða matsgerðar um ástand X fengi því stoð í framburði vitna um aksturslag hennar. X hefði ekki getað dulist að ástand hennar var þannig að hún var ekki fær um að stjórna bifreiðinni örugglega. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X hefði ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi og að atvik máls hefðu reynst henni þungbær. Var refsing hennar ákveðin fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað í tvö ár. Þá var X svipt ökurétti í fimm mánuði.
H var sakfelld fyrir líkamsárás, þjófnað í samverknaði við aðra, akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi, akstur í fjögur aðgreind skipti svipt ökurétti, þar af einu sinni einnig undir áhrifum fíkniefna, og loks fyrir að hafa í tvígang haft fíkniefni í vörslum sínum. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og H gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Var refsing H ákveðin fimm mánaða fangelsi en með hliðsjón af þeim drætti sem orðið hafði á meðferð málsins og þeim jákvæðu breytingum sem orðið hefðu á högum hennar var fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms um upptöku á fíkniefnum, ökuréttarsviptingu og fjárhæð einkaréttarkröfu brotaþola staðfest.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðfinni Áskeli Jóhannssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot.
X var sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa veist að A með ofbeldi, slá hana ítrekað í andlitið með flötum lófa, halda henni niðri með líkamsþunga sínum, veita henni áverka á læri með nánar tilgreindum hætti og ítrekað hóta henni og C líkamsmeiðingum. Voru brotin talin varða við 1. mgr. 218. gr. b og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Auk þess var hann sakfellur fyrir vopnalagabrot. Refsing X var ákveðin fangelsi í sjö mánuði en fullnustu fjögurra mánaða refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár vegna dráttar á meðferð málsins auk þess sem honum var gert að greiða A 400.000 krónur í miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
A (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn m.a. almennum hegningarlögum og umferðarlögum og dæmdur í 11 mánaða fangelsi. Þá var ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð og honum gert að sæta uppöku m.a. á haldlögðum fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi, brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og var sviptur ökurétti í fjóra mánuði.
Einn ákærðu sakfelldur fyrir umboðssvik og peningaþvætti auk fleiri brota. Aðrir ákærðu sýknaðir.
Ákæruvaldið (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Garðari Garðarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daníel Geir Höskuldssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. auðgunar og umferðarlagabrot og dæmdur í 12 mánaða fangelsi.
Með dómi héraðsdóms var O sakfelld fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með því að hafa flutt hingað til lands 0,20 grömm af marijúana, og fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa í þrjú skipti ekið bifreið svipt ökurétti og í tvö skipti jafnframt undir áhrifum ávana- og fíkniefna. O játaði sök og var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var því eingöngu deilt um ákvörðun viðurlaga fyrir Landsrétti. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti var þess krafist af hálfu ákæruvaldsins að O yrði sýknuð af því að hafa brotið gegn lögum um ávana- og fíkniefni þar sem sök hennar hefði verið fyrnd og var hún þegar á grundvelli kröfugerðar ákæruvaldsins sýknuð af þeim sakargiftum. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms höfðu tekið gildi ný umferðarlög nr. 77/2019 og með hliðsjón af 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 dæmdi Landsréttur eftir þeim. Í dóminum kom fram að samkvæmt nýjum umferðarlögum teldist nú ökumaður aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf fyndust í blóði hans. Með vísan til þess að samkvæmt einum ákærulið hefði umferðarlagabrot ákærðu eingöngu verið staðreynt með mælingu efna í þvagi var hún sýknuð af ákæru fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í umrætt sinn. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu O. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils O og þess að brot hennar voru öll hegningarauki við eldri dóm, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt því og með hliðsjón af 77. gr. sömu laga og áralangrar dómvenju var refsing hennar ákveðin fangelsi í 30 daga auk þess sem henni var gert að greiða sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 14 daga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um ævilanga sviptingu ökuréttar O og upptöku fíkniefna.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Stefáni Pálma Gíslasyni (
Úlfar Guðmundsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í 45 daga fangelsi og var sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Sverrir Sigurjónsson lögmaður)
Ákærði sýknaður af ákæru um akstur undir áhrifum áfengis.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ingvari Árna Ingvarssyni og Önnu Maríu Gísladóttur (
Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Ákærðu sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Annað þeirra að auki fyrir peningaþvætti en hitt að auki fyrir umferðarlagabrot, tollalagabrot og vopnalagabrot. Ákærðu játuðu brot sín.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Valgerði Margréti Gunnarsdóttur (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og brot gegn valdstjórninni og dæmd til að sæta fangelsi í fimm mánuði. Þá var ákærða svipt ökurétti ævilangt og gert að greiða sakarkostnað málsins.
Ákæruvaldið gegn
Anthony Lee Bellere (
Jón Egilsson lögmaður)
A var sakfelldur fyrir ítrekuð kynferðisbrot, tilraun til kynferðisbrots, hótun, áfengislagabrot, brot gegn barnaverndarlögum og umferðarlagabrot. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 4., 6., 7. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. 77. gr. og 205. gr. almennra hegningarlaga og taldist hún hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Þá var niðurstaða héraðsdóms um áréttingu ævilangrar sviptingar ökuréttinda A og einkaréttarkröfu B staðfest.
A var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal að aka bifreiðum í sjö skipti sviptur ökurétti, í fjórum þeirra tilvika einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í þremur þeirra jafnframt undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hann sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Að sakaferli A virtum var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði og hann sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem hann var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir, umferðarlagabrot, sérlega hættulega líkamsárás og fíkniefnalagabrot og dæmdur í 16 mánaða fangelsi. Hann játaði brot sín að hluta til.
Ákæruvaldið (
Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
Andreu Kristínu Unnarsdóttur (
Oddgeir Einarsson lögmaður)
Með dómi héraðsdóms var A sakfelld fyrir umferðarlagabrot, akstur án ökuréttinda, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, ölvunarakstur og vopnalagabrot og var dæmd til fangelsisvistar, ævilangrar ökuréttindasviptingar og upptöku á fíkniefnum, hnífum, sverðum, bareflum, og piparúða. Í dómi Landsréttar var sakfelling A staðfest í öllum ákæruliðum. Með hliðsjón af 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga var meðal annars dæmt eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að fyrrgreindur dómur féll. Þar sem hluti háttseminnar sem A var sakfelld fyrir í héraðsdómi var ekki lengur refsiverður var fangelsisvist hennar stytt til samræmis og var henni jafnframt gert að greiða sekt vegna þeirra brota sem varða nú einungis sektum. Þá voru ákvæði um sviptingu ökuréttar, upptöku eigna og sakarkostnað óröskuð.
Ákæruvaldið (
Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Gísla Sigurðssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot. Gert að sæta fangelsi og sviptingu ökuréttar. Viðurkennd var bótaskylda vegna tjóns á bifreið.
X var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, líkamsárás gagnvart A, hótanir með því að hafa í tilgreint skipti hótað B lífláti með tveimur SMS-skilaboðum sem hann sendi henni í mars 2019, hótanir með því að hafa í viðurvist lögreglumanns hótað að éta andlit B og brot gegn nálgunarbanni með því að hafa í tilgreind skipti sent B SMS- skilaboð. X var hins vegar sýknaður af þeirri háttsemi að hafa hótað B ofbeldi með tilgreindum SMS-skilaboðum sem hann sendi B í febrúar 2019. Var niðurstaða Landsréttar um sýknu byggð á því að ummæli X hefðu ekki í umrætt sinn valdið B ótta og því væru ekki uppfyllt skilyrði 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 um þau áhrif sem hótun verði að hafa svo að ákvæðinu yrði beitt. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að umferðarlagabrotið, líkamsárásin og hótanirnar voru öll framin fyrir tiltekna viðurlagaákvörðun og var því um hegningarauka að ræða hvað þau varðaði. Þá hafði X rofið skilorð fyrri dóms og var sá dómur tekinn upp og honum dæmd refsing í einu lagi. Var refsing X ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Einnig var X sviptur ökurétti í fjóra mánuði frá 12. desember 2019. Þá var X gert að greiða A miskabætur og B miska- og skaðabætur.
Með dómi héraðsdóms var S sakfelldur fyrir samtals sjö umferðar- og fíkniefnalagabrot og dæmdur í óskilorðsbundið níu mánaða fangelsi, auk þess að vera sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku á fíkniefnum. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms tóku ný umferðarlög gildi og samkvæmt þeim telst ökumaður nú aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf finnast í blóði hans. Með dómi Landsréttar var refsing vegna verknaðar samkvæmt einum ákærulið, þar sem S var gefið að sök að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni vegna þess að fundist hafi terahýdrókannabínólsýra í þvagi hans, því felld niður með vísan til lokamálsliðar 1. mgr. og 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur sakfellingu S, sem jafnframt hafði rofið skilorð eldri dóms. Refsing S var ákveðin fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Þá var S gert að greiða hluta sakarkostnaðar í héraði og fyrir Landsrétti, þar á meðal þann hluta kostnaðar við lögreglurannsókn sem tengdist þeim brotum sem S var réttilega sakfelldur fyrir í héraði.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Grzegorz Robert Chrzan
Ákærði sakfelldur fyrir ölvunarakstur sviptur ökurétti. Í málinu var ákærða gerður hegningarauki við eldri dóm og ákærði dæmdur í 15 daga fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Unnari Erni Rósenkarssyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti. Brot ákærða var ítrekað og var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Andra Helgasyni
Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og dæmdur í 30 daga fangelsi og var sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Antoni Pétri Hallgrímssyni (
Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Friðbergi Óskari Sigurðssyni (
Guðmundur Narfi Magnússon lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óskari Geir Péturssyni (
Magnús Davíð Norðdahl lögmaður)
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar vegna umferðarlagabrota og sviptur ökurétti ævilangt,
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur án þess að hafa ökuskírteini meðferðis, akstur sviptur ökuréttindum og vopnalagabrot. Dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti í 4 ár og 10 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Jakobi Inga Ragnarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökuréttindum í 2 ár og 2 mánuði.
Ákærða sakfelld fyrir líkamsárás, tvö þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot. Var hún dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og svipt ökurétti í sex mánuði auk greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þóroddi Halldóri Ragnarssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daníel Hjálmari Eiríkssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 11 mánaða fangelsi m.a. vegna ítrekaðs aksturs sviptur ökurétti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ingólfi Þór Árnasyni
Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökuréttindum, vörslur fíkniefna, þjófnað, eignaspjöll og húsbrot. Dæmdur í 6 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.
X og Y gefin að sök líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa ráðist hvor á annan aðfaranótt 9. desember 2017. Þeir voru báðir sýknaðir. Ákærði Y var í sama máli dæmdur til greiðslu sektar og sviptingar ökuréttar fyrir akstur bifreiðar undir áhrifumn áfengis og fíkniefna.
Ákærða var gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði og var sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi) gegn
Nauris Golubeckis
Ákærði var meðal annars sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að aka ítrekað undir áhrifum áfengis- og/eða ávana- og fíkniefna, án ökuréttar. Var hann dæmdur til að greiða sekt í ríkissjóð en sæta ella fangelsi í 40 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ottó Erni Péturssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökuréttii og undir áhrifum ávana- og fíknefna. Dæmdur í 45 daga fangelsi.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Aroni Inga Andréssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna, án gildra ökuréttinda og lögboðinnar vátryggingar bifreiðar. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga.
Ákæruvaldið (
Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóhanni Páli Jóhannssyni (
Páll Bergþórsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Refsing fangelsi í 2 ár.
Ákærðu sakfelldir fyrir gripdeild. Þá var annar þeirra að auki sakfelldur fyrir umferðarlagabrot en hinn fíkniefnalagabrot. Brotin voru játuð að hluta til.