Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 17. desember 2019.
Mál nr. S-134/2019:
Ákæruvaldið
(Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóhanni Páli Jóhannssyni
(Páll Bergþórsson lögmaður)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Umferðarlagabrot. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Refsing fangelsi í 2 ár.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 19. febrúar 2019, á hendur Jóhanni Páli Jóhannssyni, kt. [...], [...], 101 Reykjavík fyrir eftirtalin fíkniefna-, lögreglu-, vopna- og umferðarlagabrot framin á árinu 2018 nema annað sé tekið fram:
I.
Umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 30. október 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 30 ng/ml af kókaíni og 5,8 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist kókaín, tetrahýdrókannabínólsýra og MDMA) um Kleppsveg í Reykjavík uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar. Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
II.
Umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt mánudagsins 1. janúar, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa lyfja (í blóði mældist 150 ng/ml af oxýkódon, í þvagi mældist oxýkódon) og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 130 ng/ml af amfetamíni, 145 ng/ml af kókaíni og 4,6 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist amfetamín, kókaín, tetrahýdrókannabínólsýra og MDMA) um Bústaðaveg í Reykjavík, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar við Bústaðaveg nr. [...].
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 44. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
III.
Umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 5. janúar, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa lyfja (í blóði mældist 40 ng/ml af alprazólam, 230 ng/ml af díazepam og 350 ng/ml af nordíazepam) og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 60 ng/ml af kókaíni og 4,8 ng/ml af tetrahýdrókannabínól) um Vesturhóla í Reykjavík, við Hrafnhóla, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 44. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
IV.
Umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt mánudagsins 12. mars, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Bankastræti í Reykjavík, við Ingólfsstræti, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar. Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
V.
Vopnalagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 21. mars, haft í vörslum sínum útdraganlega kylfu sem ekki er ætluð til íþróttaiðkunar, að [...] á Seltjarnarnesi, sem fannst við leit lögreglu á ákærða og lagt var hald á. Telst brot þetta varða við c-lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998.
VI.
- Umferðar- og lögreglulagabrot með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 29. mars, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa lyfja (í blóði mældist 9,7 ng/ml af alprazólam og 370 ng/ml af oxýkódon, í þvagi mældist oxýkódon) og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 50 ng/ml af kókaíni og 12 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist kókaín og tetrahýdrókannabínólsýra) suður Skeiðarvog í Reykjavík, við Langholtsveg, þar sem lögregla hugðist hafa afskipti af ákærða en ákærði sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva bifreiðina sem gefin voru til kynna með forgangsljósum en jók þess í stað hraða bifreiðarinnar, hófst í framhaldi eftirför lögreglu þar sem ákærði ók áfram Skeiðarvog yfir gatnamót við Suðurlandsbraut og gegn rauðu umferðarljósi á Skeiðarvogi við gatnamót að Mörkinni, ók af Skeiðarvogi inn á Réttarholtsveg til suðurs og á kant á Réttarholtsvegi við Hæðargarð, þar sem ákærði hljóp af vettvangi, en var handtekinn skömmu síðar. Teljast brot þessi varða við 1. mgr. 5. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 44. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987 og 19. gr., sbr. 41. gr., lögreglulaga nr. 90/1996.
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, á þeim tíma sem greinir í 1. tl., haft í vörslum sínum 0,83 g af maríhúana sem fannst við leit lögreglu og lagt var hald á.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
VII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 28. júní, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 150 ng/ml af kókaíni, 765 ng/ml af MDMA og 3,6 ng/ml af tetrahýdrókannabínól) um Fjallkonuveg í Reykjavík, við Hverafold, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
VIII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 30. júní, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa lyfja (í blóði mældist 160 ng/ml af oxýkódon, í þvagi mældist oxýkódon) og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 75 ng/ml af kókaíni, 75 ng/ml af MDMA og 5,1 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist kókaín, MDMA og tetrahýdrókannabínólsýra) og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði mældist 0,71‰) norður Suðurlandsveg í Reykjavík, við Hádegismóa, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 44. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr, 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
IX.
Umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 3. júlí, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og án þess að hafa öryggisbelti spennt við aksturinn, vestur Veturlandsveg í Reykjavík, við Korpu, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 71. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
X.
Umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 29. júlí, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 20 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist kókaín og tetrahýdrókannabínólsýra) og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði mældist 1,00‰) um Norðurfell í Reykjavík, við Jórufell, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr, 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XI.
Umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 1. ágúst, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 115 ng/ml af kókaíni og 6,4 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist kókaín og tetrahýdrókannabínólsýra) austur Vesturlandsveg í Reykjavík, við Suðurlandsveg, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XII.
Fíkniefnalagabrot með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 2. ágúst, haft í vörslum sínum 0,50 g af maríhúana sem fannst við leit lögreglu að [...] í Reykjavík, íbúð 102, og lagt var hald á.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
XIII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 21. ágúst, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti norður Stekkjarbakka í Reykjavík, við Álfabakka, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XIV.
Umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 23. ágúst, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa lyfja (í blóði mældist 31 ng/ml af brómazepam, 5,5 ng/ml af fenazepam, 8,0 ng/ml af gabapentín og 100 ng/ml af oxýkódon, í þvagi mældist gabapentín og oxýkódon) og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 12 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist kókaín og tetrahýdrókannabínólsýra) norður Víkurveg í Reykjavík, við bensínstöð N1, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 44. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XV.
Umferðarlagabrot með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 30. september, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 255 ng/ml af kókaíni og 6,8 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist kókaín og tetrahýdrókannabínólsýra) vestur Þverholt í Mosfellsbæ uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XVI.
Umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 5. október, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Skeifuna í Reykjavík, við Metro, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XVII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 9. október, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 21 ng/ml af tetrahýdrókannabínól, í þvagi mældist kókaín og tetrahýdrókannabínólsýra) suður Vesturlandsveg í Mosfellsbæ, við Skarðshólabraut, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XVIII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 1. nóvember, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 9,2 ng/ml af tetrahýdrókannabínól) um Vesturlandsveg í Mosfellsbæ, við bensínstöð N1, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og sviptingar ökuréttar, skv. 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Jafnframt er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og til að sæta upptöku á kylfu, sem greinir í V kafla, samkvæmt heimild í 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í maí 1990. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 11. febrúar 2019, á hann að baki nokkurn sakaferil sem nær aftur til ársins 2010. Ákærði var með dómi 12. október 2016 gert að sæta fangelsi í 45 daga fyrir brot gegn umferðarlögum. Þá var ákærða dæmdur hegningarauki 30. nóvember 2016 og gert að sæta fangelsi í 15 daga fyrir umferðarlagabrot. Ákærða var veitt reynslulausn 1. mars 2017 í eitt ár á 30 daga eftirstöðvum refsingar samkvæmt tveimur fyrrnefndum dómum, uppkveðnum 12. október 2016 og 30. nóvember 2016. Með brotum þeim sem ákærði var sakfelldur fyrir með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 13. september 2017 rauf hann skilyrði reynslulausnar sem honum var veitt sem fyrr segir og var hún dæmd upp og honum gert að sæta fangelsi í 105 daga. Ákærði hefur jafnframt fjórum sinnum gengist undir lögreglustjórasátt vegna fíkniefnalagabrota.
Í samræmi við framlagt sakavottorð er við ákvörðun refsingar miðað við að ákærði sé nú í fimmta sinn fundinn sekur um að aka óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og/eða undir áhrifum áfengis og í fjórða sinn sviptur ökurétti. Samkvæmt framangreindu og að sakaferli ákærða virtum þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár.
Með vísan til tilvitnaðra ákvæða umferðarlaga í ákæru er áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting ákærða. Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 1,33 g af maríhúana sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Einnig er gerð upptæk útdraganleg kylfa.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Páls Bergþórssonar lögmanns, svo sem í dómsorði greinir, að meðtöldum virðisaukaskatti, og annan sakarkostnað samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi. Símon Sigvaldason héraðsdómari kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Jóhann Páll Jóhannsson, sæti fangelsi í 2 ár. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Upptækt er gert til ríkissjóðs 1,33 g af maríhúana sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Einnig er gerð upptæk útdraganleg kylfa.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Páls Bergþórsson lögmanns, 569.160 krónur og 3.254.625 krónur í annan sakarkostnað.
Símon Sigvaldason