Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 18. desember 2019.
Mál nr. S-252/2019:
Ákæruvaldið
(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Nauris Golubeckis
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Vörslur.
Útdráttur
Ákærði var meðal annars sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að aka ítrekað undir áhrifum áfengis- og/eða ávana- og fíkniefna, án ökuréttar. Var hann dæmdur til að greiða sekt í ríkissjóð en sæta ella fangelsi í 40 daga.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 12. mars 2019, á hendur Nauris Golubeckis, kt. [...], [...], [...], fyrir eftirtalin umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa:
- Sunnudaginn 23. júlí 2017 ekið bifreiðinni [...] utan í hús við [...] í Reykjanesbæ og ekki sinnt lögboðnum skyldum sínum við umferðaróhapp, heldur farið brott af vettvangi. Telst brot þetta varða við 1. mgr. 10. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
- Fimmtudaginn 18. janúar 2018 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 2,5 ng/ml) um Hamraborg í Kópavogi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
- Sunnudaginn 28. janúar 2018 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 5,2 ng/ml) austur Sæbraut að Dalbraut í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og fyrir að hafa haft í vörslum sínum 2,14 g af maríjúana sem ákærði framvísaði til lögreglu. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
- Þriðjudaginn 20. febrúar 2018 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 21 ng/ml) um Suðurgötu í Hafnarfirði, uns lögregla stöðvaði aksturinn til móts við [...]. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
- Þriðjudaginn 5. júní 2018 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 0,52‰, kókaín 100 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,4 ng/ml) norður Arnarbakka við Kóngsbakka í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
- Sunnudaginn 13. janúar 2019 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 2,0 ng/ml) suður Snorrabraut við Sæbraut í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
- Þriðjudaginn 15. janúar 2019 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 1,6 ng/ml) norður Reykjanesbraut við Stekkjarbakka í Kópavogi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Krafist er upptöku á 2,14 g af maríjúana, sem hald var lagt á, samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en ákæra og fyrirkall á hendur honum var birt í Lögbirtingarblaði hinn 12. nóvember 2019 með heimild í 3. mgr. 156. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála þar sem fyrir liggur að ákærði dvelur ekki á skráðu lögheimili. Verður málið því dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Það athugast að magn maríjúana sem ákærði er sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum, sbr. ákærulið 3 í málinu, var samkvæmt gögnum málsins 2,04 g en ekki 2,14 g, svo sem greinir í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...] og er í máli þessu meðal annars sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að aka ítrekað undir áhrifum áfengis- og/eða ávana- og fíkniefna, án gildra ökuréttinda. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 6. mars 2019, hefur hann ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi fyrr.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls sem og ákvæðum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 1.127.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja en sæta ella fangelsi í 40 daga.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti í þrjú og hálft ár frá birtingu dóms þessa að telja. Þá skal ákærði, jafnframt með vísan til lagaákvæða í ákæru, sæta upptöku til ríkissjóðs á 2,04 g af maríjúana, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Ákærði greiði 572.335 krónur í sakarkostnað. Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Nauris Golubeckis, greiði 1.127.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja en sæti ella fangelsi í 40 daga. Ákærði er sviptur ökurétti í þrjú og hálft ár frá birtingu dómsins að telja. Ákærði sæti upptöku á 2,04 g af maríjúana. Ákærði greiði 572.335 krónur í sakarkostnað.
Þórhildur Líndal