Ákærðu J, P, Á, H, G, V, Th, TK og AÞ var meðal annars gefin að sök skipulögð brotastarfsemi og stórfelld fíkniefnalagabrot sem þau hafi sammælst um að fremja á árinu 2023 og fram til 11. apríl 2024. Hafi framkvæmd brotanna verið liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka, en þau hafi í félagi staðið að sölu og dreifingu fíkniefna hér á landi, meðvituð um tiltekna verkaskiptingu við geymslu, pökkun, sölu og dreifingu efnanna, meðal annars í fjórum nánar tilgreindum tilvikum 21. og 22. september 2023, sem varðaði vörslur ávana- og fíkniefna í sölu og dreifingarskyni á þremur stöðum í Reykjavík og einum í Mosfellsbæ. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að af 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála leiddi að einungis væri unnt að taka afstöðu til síðastnefndra fjögurra tilvika varðandi þennan hluta málsins. Af framsetningu ákæru leiddi að ekki væri unnt, svo sem gert var í hinum áfrýjaða dómi, að taka afstöðu til þess hvort ákærðu hefðu í öðrum tilvikum árið 2023 og fram til 11. apríl 2024 gerst sek um ávana- og fíkniefnalagabrot. Voru ákærðu J, P, G, V, og TK sakfelld samkvæmt þessum hluta ákærunnar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en auk þess taldi Landsréttur sannað að brotin hefðu verið framkvæmd sem liður í skipulagðri brotastarfsemi samkvæmt 175. gr. a almennra hegningarlaga. Ákærðu Á, H, Th og AÞ voru hins vegar sýknuð af þessum hluta ákærunnar. Auk framangreinds voru J, P, Á, D og G sakfelldir fyrir nánar tilgreind peningaþvættisbrot og fíkniefnalagabrot og J, G og H fyrir innflutning ávana- og fíkniefna sem liðar í skipulagðri brotastarfsemi. Þá voru Th og AÞ sakfelld fyrir nánar tilgreind fíkniefnalagabrot. Loks voru J, P, TK, H og D sakfelld fyrir nánar tilgreind vopnalagabrot.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari)
gegn
Jóni Inga Sveinssyni (
Björgvin Jónsson lögmaður),
Pétri Þór Elíassyni (
Ólafur V. Thordersen lögmaður),
Árna Stefáni Ásgeirssyni (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður),
Hauki Ægi Haukssyni (
Oddgeir Einarsson lögmaður),
Gunnlaugi J. Skarphéðinssyni (
Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður),
Valgerði Sif Sigurðardóttur (
Þorgils Þorgilsson lögmaður),
Tinnu Kristínu Gísladóttur (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður),
Thelmu Rún Ásgeirsdóttur (
Elimar Hauksson lögmaður),
Andra Þór Guðmundssyni (
Almar Þór Möller lögmaður),
Önnu Maríu Haraldsdóttur (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður),
Skarphéðni Jóhannssyni (
Leó Daðason lögmaður),
Björk Jónsdóttur (
Leifur Runólfsson lögmaður),
Daníel Karim Mikaelssyni (
Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður) og
Gunnari Karli Pálmasyni (
Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður)
Ákærðu voru sakfelld fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot, skipulagða brotastarfsemi, innflutning fíkninaefna, peningaþvætti og vopnalagabrot.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Guðmundi Gísla Víglundssyni (
Eggert Páll Ólason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi.
GAG, GS og HMÓ, voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi með því að hafa staðið saman að innflutningi á saltdreifara sem í voru faldir 53 lítrar af amfetamínvökva hingað til lands frá Hollandi í félagi með tveimur óþekktum erlendum aðilum, móttekið tækið og fíkniefnin og haft í vörslum sínum á nánar tilgreindri jörð og í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila fjarlægt amfetamínvökvann úr saltdreifaranum og framleitt allt að 117,5 kg af amfetamíni í sölu- og dreifingarskyni. Ætluðum þætti hvers ákærða var nánar lýst í ákærunni. Í dómi Landsréttar kom fram að sannað teldist að GAG, GS og HMÓ hefðu sammælst um stórfellt fíkniefnalagabrot með því að GAG og HMÓ hefðu í félagi við óþekkta erlenda aðila staðið saman að innflutningi saltdreifarans til landsins þar sem falinn var amfetamínvökvi. Þá hefði GS móttekið og varslað saltdreifarann á jörð sinni. GAG, GS og HMÓ hefðu, í samvinnu við óþekktan íslenskan aðila, staðið saman að því að amfetamínvökvinn var fjarlægður úr saltdreifaranum og úr honum framleitt amfetamín í sölu- og dreifingarskyni. Að teknu tilliti til matsgerðar dómkvadds matsmanns þótti ekki óvarlegt að leggja til grundvallar að GAG, GS og HMÓ hefðu framleitt að minnsta kosti 80,2 kg af amfetamíni. Fram kom í dómi Landsréttar að um þaulskipulagt fíkniefnalagabrot hefði verið að ræða sem framið hefði verið í ávinningsskyni. Verknaðurinn hefði verið unninn í félagsskap allra ákærðu, auk tveggja erlendra einstaklinga og óþekkts Íslendings, þar sem hver hafði sitt hlutverk. Þótti sýnt að GAG, GS og HMÓ hefðu vitandi vits tekið ákvörðun um þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Voru þeir því sakfelldir og framangreind háttsemi þeirra heimfærð til 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga. Jafnframt var GS, HMÓ, ÓÁH og GEB gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa staðið saman að kannabisræktun í útihúsi á nánar tilgreindri jörð. Hefðu þeir sammælst um verkaskiptingu við uppsetningu, ræktun og þurrkun kannabisplantnanna í sölu- og dreifingarskyni og skipt á milli sín afrakstrinum en við leit hafði lögregla lagt hald á 6.110 g af kannabisplöntum, 16.265 g af maríjúana og 131 kannabisplöntu. Auk heimfærslu á háttsemi GS, HMÓ, ÓÁH og GEB til refsiákvæðis 173. gr. a almennra hegningarlaga var einnig ákært fyrir ætlaða skipulagða brotastarfsemi samkvæmt 175. gr. a sömu laga. Með dómi Landsréttar voru GS, HMÓ, ÓÁH og GEB sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og háttsemi þeirra heimfærð til 173. gr. a almennra hegningarlaga, en ekki þótti sýnt fram á að þeir hefðu vitandi vits tekið ákvörðun um að taka þátt í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Þá var ÓÁH enn fremur sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreint magn fíkniefna og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni nánar tilgreint magn ýmissa fíkniefna. Að lokum var HMÓ sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreint magn fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var litið 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ennfremur var litið til 9. töluliðar sömu málsgreinar að því er varðaði ákvörðun refsingar GS. Refsing HMÓ og ÓÁH var ákveðin fangelsi í 10 ár, GAG og GS var gert að sæta fangelsi í 8 ár hvorum og GEB í 18 mánuði og var refsing hans bundin skilorði. Þá var fallist á kröfu um upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum og munum.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ákæruvaldið (
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari)
gegn
X (
Stefán Ragnarsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
[...], Guðjóni Sigurðssyni, kennitala […], Halldóri Margeiri Ólafssyni, kennitala [...] Ólafi Ágústi Hraundal, kennitala [...], og Geir Elí Bjarnasyni, kennitala [...], fyrir eftirtalin brot I (
Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðlaugi Agnari Guðmundssyni (
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður),
Guðjóni Sigurðssyni (
Stefán Ragnarsson lögmaður),
Halldóri Margeiri Ólafssyni (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður),
Ólafi Ágústi Hraundal (
Jón Magnússon lögmaður),
Geir Elí Bjarnasyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og
Úranusi ehf. (
Garðar Steinn Ólafsson lögmaður)
Ákærðu voru sakfelldir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfelld fíkniefnalagabrot.
I var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot á árinu 2017, með því að hafa staðið að innflutningi í félagi við annan mann á fíkniefnum ætluðum til sölu og dreifingar í ágóðaskyni. I var einnig ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu frá 1. september 2016 til og með 23. ágúst 2017, tekið við, nýtt, umbreytt og/eða aflað sér ávinnings af refsiverðum brotum allt að fjárhæð 7.480.145 krónur. Með dómi héraðsdóms var I sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir peningaþvætti að fjárhæð 1.178.565 krónur en sýknaður af öðrum sakargiftum. Undi ákæruvaldið ekki þeirri niðurstöðu að ósannað væri að I hefði gerst sekur um peningaþvætti að því er varðaði þá fjárhæð sem eftir stæði. Í dómi Landsréttar sagði að sönnunarbyrði hvíldi á ákæruvaldinu um það að ávinningur sem ákæra málsins lyti að stafaði af refsiverðum brotum en í því efni nægði að sanna að útilokað væri að ávinningurinn væri til kominn á lögmætan hátt. Fallist var á með ákæruvaldinu að við greiningu á fjármálum I hefði ekkert komið fram sem skýrt gæti þá háu fjárhæð sem I virtist samkvæmt gögnum málsins hafa haft til ráðstöfunar og hann hefði engar haldbærar skýringar gefið á. Hnigu öll skjalleg sönnunargögn málsins að þeirri niðurstöðu að útilokað væri að ávinningur sá, sem ákæra lyti að, væri af lögmætum toga. Jafnframt var fallist á með ákæruvaldinu að framburður I að um væri að ræða lán sér til handa væri ótrúverðugur. Þá hefði I í febrúar 2014 og maí 2015 verið gert að sæta fangelsi í samtals átta mánuði fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn lyfjalögum en þau brot væru til þess fallin að hafa auðgun í för með sér. Var því komin nægileg sönnun, sem ekki yrði vefengd með skynsamlegum rökum, um að I hefði gerst sekur um peningaþvætti eins og greindi í ákæru. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að mikill dráttur hefði orðið á meðferð málsins, sem I yrði ekki kennt um. Vegna alvarleika brota I kom ekki til álita að skilorðsbinda refsingu hans af þeirri ástæðu, en sá dráttur sem orðið hafði á málinu hafði áhrif við ákvörðun hennar. Refsing I var ákveðin fangelsi í tvö ár. Þá var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um upptöku á tilgreindum fíkniefnum.
J var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 994,42 g af kókaíni ásamt P sem var sakfelldur fyrir tilraun til brotsins þar sem tollstjóri hafði lagt hald á efnin og komið fyrir í þeirra stað gerviefnum áður en P tók á móti sendingunni. Jafnframt var J sakfelldur fyrir peningaþvætti, þjófnaðarbrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og þess að um verkskiptan samverknað þeirra var að ræða, sbr. 2. mgr. 70. gr. sömu laga. Jafnframt var litið til sakaferils þeirra og var refsing P ákveðin sem hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing J ákveðin fangelsi í 22 mánuði og refsing P fangelsi í 12 mánuði. Ákvæði héraðsdóms um tímabundna sviptingu ökuréttar var á hinn bóginn fellt úr gildi þar sem í greinargerð ákæruvaldsins til Landsréttar var ekki vikið að kröfum þess er lutu að ákvæði héraðsdóms þess efnis.
D var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 900 millilítrum af vökva sem innihélt amfetamín. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir brot gegn tollalögum og lyfjalögum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að D hafði ekki áður gerst sekur um brot sem varðaði refsingu. Var refsing D ákveðin fangelsi í 20 mánuði auk þess sem nánar tilgreind fíkniefni og lyf voru gerð upptæk.
Sakfellt fyrir innflutning amfetamínbasa og brot á tolla- lyfsölu- og lyfjalögum.
TFMO var sakfelldur fyrir manndráp samkvæmt 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa veist að A með ofbeldi og í framhaldinu varpað henni í sjó eða vatn, meðal annars með þeim afleiðingum að A drukknaði. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a. sömu laga með því að hafa haft í vörslum sínum rúm 23 kg af sterkum kannabisefnum. Refsing hans var ákveðin fangelsi í 19 ár og var honum gert að greiða foreldrum A miskabætur og útlagðan kostnað við útför A.
Stefnandi höfðaði málið til heimtu skaðabóta vegna galla í skilningi laga nr. 40/2002. Byggði stefnandi á matsgerð dómkvadds matsmanns. Sýkna vegna fyrningar.
Ákæruvaldið (
Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Robert Jackowski (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar.
Ákæruvaldið (
Pétur Hrafn Hafstein saksóknarfulltrúi)
gegn
Sævari Þór Óskarssyni (
Sigmundur Hannesson lögmaður)
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot
Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Luisu Mariu Ramos Soares Crick
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot
Ákæruvaldið (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Lukasz Zbigniew Jesionek (
Halldór Heiðar Hallsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.
B var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir með hættulegri aðferð, en sýknuð af hinni þriðju. Þá var hún ásamt Þ og Í sakfelld fyrir tilraun til þjófnaðar. Þ var einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot Í var einn sakfelldur fyrir nokkur brot gegn umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og vopnalögum B var einnig sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Fillipe Raphael Szymoszche (
Unnar Steinn Bjarndal hrl)
F var sakfelldur fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa staðið að innflutningi á 1.950 ml af kókaíni ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um umtalsvert magn fíkniefna var að ræða. Hins vegar væri óljóst hvort F hefði eingöngu flutt efnin til landsins eða hvort hlutverk hans hefði verið annað og meira. Í þeim efnum yrði F að njóta vafans. Var refsing hans ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði auk þess sem fíkniefnin voru gerð upptæk.
Kæra Á til Hæstaréttar uppfyllti ekki skilyrði 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málinu því vísað frá Hæstarétti.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ákærði var sakfelldur fyrir innflutning á 2.382,11 g af kókaíni og gert að sæta þriggja ára fangelsi. Einnig var ákærða gert að sæta upptöku á fíkniefnunum.
Ákærði sakfelldur fyrir manndráp og stórfellt fíkniefnalagabrot og dæmdur í 19 ára fangelsi. Þá var ákærði dæmdur til þess að greiða foreldrum hinnar látnu bætur.
Ákæruvaldið (
Óli Ingi Ólason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Heynrich Adolf van Glanen Veijgel (
Daníel Reynisson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir innflutning á kókaíni og dæmdur í þriggja ára fangelsi.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
Jose Francisco Roque Rubio Bieto (
Halldóra Aðalsteinsdóttir hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í þrjú ár.
Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn
Marcel Johannes Kuipers
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og dæmdur í 18 mánaða fangelsi.
Ákærði var sakfelldur og dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á 1.987,14 g af kókaíni, sem hafði að meðaltali 87% styrkleika.
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa flutt til landsins 700 ml af vökva sem innihélt amfetamínbasa. Refsing ákveðin fangelsi í 1 ár og 8 mánuði.
M var sakfelld fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 746,96 g af kókaíni til landsins. Til refsimildunar var litið til þess að M hafði játað brot sitt skýlaust fyrir dómi og ekki hefði verið sýnt fram á að hún hefði komið að skipulagningu eða fjármögnun innflutningsins. Á hinn bóginn var það virt henni til refsiþyngingar að um umtalsvert magn af sterku fíkniefni var að ræða. Þá hafði hún hlotið dóm erlendis sem hafði ítrekunaráhrif eftir 2. mgr. 71. gr. laga nr. 19/1940. Var refsing M ákveðin fangelsi í tuttugu mánuði.
Ákæruvaldið (
Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari)
gegn
Janic Diego Kelvin Jean-Claud Dikang (
Þórður Már Jónsson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir innflutning á 869,18 grömmum af kókaíni. Refsing ákærða ákveðin 15 mánaða fangelsi.
V var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 0,98 g af MDMA, 98,47 g af kókaíni, 48,93 g af maríhúana og 601 stykki af MDMA töflum. Við ákvörðun refsingar var horft til þess að V hefði ekki sætt refsingu áður en á hinn bóginn var litið til þess að brot hans snerist um mikið magn af hættulegu fíkniefni, MDMA. Var refsing V ákveðin fangelsi í 15 mánuði auk þess sem áðurgreind ávana- og fíkniefni voru gerð upptæk.
Ákærði dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, brot gegn valdstjórninni og eignaspjöll.
Sakfellt fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot
Sakfellt fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Ítrekun
Sakfellt fyrir peningaþvætti, upptaka
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
Midio Alberto Perez Rodriguez (
Halldóra Aðalsteinsdóttir hdl)
Karlmaður sakfelldur fyrir innflutning á 705,43 grömmum af kókaíni. Refsing ákveðin fangelsi í 15 mánuði.
S og V sakfelldir fyrir fíkniefnalagabrot og S að auki fyrir hylmingu.
fíkniefnalagabrot.
M og A voru ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, M með því að hafa staðið að ólögmætum innflutningi á 9.053,55 g af amfetamíni að 69 til 70% styrkleika, 194,81 g af kókaíni að 64% styrkleika og 10.027,25 g af MDMA að 78% styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en A fyrir að hafa tekið á móti pakkningum og tösku frá M sem hann hafði talið að innihéldu öll framangreind ávana- og fíkniefni og fyrir að hafa ætlað að koma þeim áleiðis til ótilgreindra aðila hér á landi. M játaði að hafa veitt fíkniefnunum viðtöku í Hollandi og flutt þau til Íslands með farþegaflugi, en neitaði að hafa haft ásetning til að flytja hingað til lands fíkniefnin sem voru í ferðatösku dóttur sinnar sem einnig var með í för. Að virtri frásögn M um aðdraganda ferðarinnar og með hliðsjón af hinu mikla magni fíkniefna var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að hún hafi vitað eða að minnsta kosti hlotið gera sér grein fyrir að taska dótturinnar hefði að geyma nokkurn veginn sama magn fíkniefna og hennar eigin taska. Var hún því sakfelld samkvæmt ákæru og var brot hennar talið varða við 2. mgr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. A játaði að hafa tekið að sér það verkefni að sækja töskur M, en neitaði að hafa vitað að um fíkniefni væri að ræða. Talið var hafið yfir allan vafa að A hefði mátt vera ljóst að hann væri að leggja fíkniefnainnflutningi lið og hefði hann látið sér í léttu rúmi liggja hvaða efni þetta væru og í hvaða magni. Var hann því einnig sakfelldur samkvæmt ákæru og var brot hans talið varða við 2. mgr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga, sbr. 1. mgr. 20. gr. þeirra. Við ákvörðun refsingar M var fyrst og fremst litið til þess að um var að ræða fádæma mikið magn sterkra fíkniefna sem hún flutti hingað til lands af yfirlögðu ráði, sbr. 1., 3. og 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þá var einnig höfð hliðsjón af því að hlutverk hennar var einvörðungu í því fólgið að koma efnunum hingað til lands og fá þau öðrum í hendur. Til refsilækkunar kom að hún bauð lögreglu aðstoð og tók síðan að undirlagi hennar þátt í aðgerð til að upplýsa málið frekar, sbr. 8. og 9. tölulið áðurnefndrar málsgreinar. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að þótt hlutur hans í flutningi efnanna á áfangastað hefði verið mun veigaminni en M, væri brot hans stórfellt vegna hins mikla magns sterkra fíkniefna. Var refsing M ákveðin fangelsi í 8 ár en A fangelsi í 4 ár.
Sakfellt fyrir stórfellt fíkniefnasmygl.
Þ lýsti skaðabótakröfum við slit G hf. sem voru reistar á því að starfsmenn G hf. hefðu veitt Þ ófullnægjandi fjárfestingarráðgjöf og með því valdið honum tjóni. Auk þess hafði Þ uppi kröfu um viðurkenningu á því að honum væri heimilt að skuldajafna kröfum sínum við kröfu G hf. samkvæmt lánssamningi þeirra. Slitastjórn G hf. hafnaði kröfum Þ og vísaði ágreiningnum til úrlausnar héraðsdóms eftir fyrirmælum laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Í málinu var deilt um meint tjón Þ vegna fjögurra fjárfestinga, sem Þ réðist í eftir tillögu starfsmanna G hf. Í fyrsta lagi var um að ræða fasteignaverkefni í Berlín, í öðru lagi kaup á afleiðutengdu skuldabréfi, í þriðja lagi gjaldeyrisstýringu G hf. og í fjórða lagi lán sem Þ tók hjá G hf. til jarðakaupa. Hæstiréttur taldi að Þ hefði glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem hann gæti hafa átt á hendur G hf. vegna fasteignaverkefnisins í Berlín. Vísað var til þess að Þ hefði varið umtalsverðu fé í umrætt verkefni og mætti af þeim sökum gera þá kröfu að hann sýndi eðlilega aðgæslu þegar kæmi að því að gæta þeirra hagsmuna sinna. Samkvæmt gögnum málsins hefði Þ ekki síðar en í október 2008 átt að gera sér grein fyrir því að fjárfesting hans í verkefninu myndi ekki ganga eftir í samræmi við það sem lagt hafði verið upp með. Þ hefði hins vegar ekki gert athugasemdir við ráðgjöf G hf. fyrr en með kröfulýsingu í nóvember 2009. Hæstiréttur taldi að Þ hefði einnig glatað sérhverjum rétti sínum fyrir tómlæti í tengslum við afleiðutengda skuldabréfið, en það hafi komið í ljós í síðasta lagi í október 2008 að ekki myndi takast að vinna upp tapið sem varð af þeirri fjárfestingu. Þ gerði þó ekki athugasemdir þar að lútandi fyrr en með áðurnefndri kröfulýsingu. Hæstiréttur féllst á hinn bóginn á að viðurkenna kröfu Þ um skaðabætur vegna tjóns sem hann varð fyrir á grundvelli samnings aðila um gjaldeyrisstýringu. Í málinu lá fyrir að G hf. hefði í fjögur skipti keypt eða selt gjaldmiðla fyrir hönd Þ á gengi sem engin stoð hefði verið fyrir. Samkvæmt matsgerð dómkvaddra manna hefði hagnaður Þ af gjaldeyrisstýringunni að réttu lagi átt að verða 72.363.316 krónur í stað taps upp á 80.101.684 krónur. Hæstiréttur taldi að G hf. hefði ekki hnekkt niðurstöðu matsmanna og var matsgerðin því lögð til grundvallar um tjón Þ. Þá var ekki talið standa í vegi kröfu Þ um bætur fyrir missi hagnaðar að hann hefði í raun ekki lagt af mörkum framlag til viðskiptanna í öndverðu. Taldi Hæstiréttur að við framkvæmd gjaldeyrisstýringarsamnings aðilanna hefði G hf. brotið gegn góðri viðskiptavenju og ekki leitað allra leiða til að tryggja bestu mögulegu niðurstöðu fyrir Þ, sbr. 5. gr. og 18. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Var krafa Þ í tengslum við framkvæmd gjaldeyrisstýringarsamningsins viðurkennd í réttindaröð við slit G hf. samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991. Hæstiréttur hafnaði því að G hf. bæri skaðabótaábyrgð á tjóni sem Þ taldi sig hafa orðið fyrir þegar hann tók lán hjá G hf. í stað þess að leysa út eignir til þess að fjármagna jarðakaup. Vísaði Hæstiréttur til þess að Þ hefði ekki sýnt fram á að starfsmenn G hf. hefðu mátt sjá það fyrir í október 2007 að lántakan yrði óhagkvæmari fyrir hann en ef hann hefði leyst út fé sitt hjá G hf. Þá væri til þess að líta að samkvæmt gögnum málsins hefði Þ sjálfur veitt lán í erlendum gjaldmiðli á svipuðum tíma og hefði honum því mátt vera fullkunnugt um áhættuna af því að veita og taka lán í erlendum gjaldmiðlum eða sem fylgdi gengi þeirra. Loks hafnaði Hæstiréttur skuldajafnaðarkröfu Þ. Aðeins hefði verið fallist á kröfu hans í tengslum við gjaldeyrisstýringarsamning aðilanna, en með hinum kærða úrskurði var því að hafnað að Þ gæti nýtt þá kröfu til skuldajafnaðar. Þar sem varnaraðili hefði ekki kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti gæti sú niðurstaða ekki komið til endurskoðunar.
Ákæruvaldið (
Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Drieli Stachissini Nakano (
Bjarni Hauksson hrl)
Fíkniefni
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Óskari Mána Atlasyni (
Bjarni Hauksson hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnainnflutning.
Krafist riftunar á ráðstöfunum þrotamanns.
Ákæruvaldið (
Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Pétri Kúld Péturssyni (
Grímur Hergeirsson hdl)
Fjárdráttur - Brot á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða - Hegningarauki.
Fangelsi tvö og hálft ár vegna innflutnings á metamfetamínbasa.
N var sakfelld fyrir fíkniefnabrot.
Ákærði var sakfelldur fyrir innflutning á 553 g af sterku kókaíni og dæmdur í átján mánaða fangelsi en gæsluvarðhald er ákærði hefur sætt frá 9. september sl. dregst frá að fullri dagatölu. Ákærði játaði brotið strax hjá lögreglu og fyrir dóminum. Þá voru fíkniefnin gerð upptæk og ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákæruvaldið (
Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðfinni Kristni Gíslasyni (
Ómar Örn Bjarnþórsson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.