Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

85 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 88. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 23. október 2025

810/2024

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Óskar Sigurðsson lögmaður) gegn ríkislögreglustjóra (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

R höfðaði mál og krafðist bóta úr hendi S vegna tjóns sem varð á lögreglubifreið er henni var við eftirför ekið á afturhorn bifreiðar, sem tryggð var lögboðinni ábyrgðartryggingu hjá S, í því skyni að stöðva akstur bifreiðarinnar. Í dómi Landsréttar var rakið að fyrir Landsrétti hefði S meðal annars lagt áherslu á að við sakarmat samkvæmt 89. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987 bæri að horfa til árekstrarstundar en aðdragandi þess að lögregla ákvað að keyra á skipti ekki máli. Vísaði Landsréttur til þess að atburðarás hafi hafist í Reykjavík við ákvörðun lögreglu um eftirför en henni lokið þegar lögreglubifreiðinni var ekið á vinstra afturhorn bifreiðarinnar með þeim afleiðingum að bifreiðin snerist og fór út af veginum. Með árekstrinum hafi endi verið bundinn á eftirför lögreglu með ökumanni bifreiðarinnar sem hafi gerst sekur um ofsaakstur og skapað stórfellda hættu fyrir almenning. Hafi ákvörðun lögreglu um að stöðva för bifreiðarinnar með því að aka á hana markað lok samfelldrar atburðarásar sem hafi hafist nokkru fyrr. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um rétt R til bóta úr ábyrgðartryggingu S vegna tjóns á lögreglubifreiðinni.

Landsréttur birt 12. júní 2025

405/2024

Beijing Titicaca Haoxing International Travel Co. Ltd (Hróbjartur Jónatansson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Einar Brynjarsson lögmaður)

Málið á rætur að rekja til umferðarslyss sem hópur ferðamanna á vegum B Ltd. lenti í hér á landi árið 2017. Tveir farþeganna létust af áverkum sem þeir hlutu í slysinu og greiddi B Ltd. foreldrum hinna látnu bætur vegna slyssins á grundvelli dóma sem kveðnir voru upp af dómstóli í Kína árið 2019. Höfðaði B Ltd. í kjölfarið mál á hendur TM hf. og krafðist bóta vegna missis framfæranda og útfararkostnaðar, munatjóns og útlagðs kostnaðar foreldranna umfram útfararkostnað. Byggði B Ltd. á því að félagið væri réttmætur eigandi bótakrafna á hendur TM hf. þar sem það hefði eignast allar þær bótakröfur sem foreldrarnir hefðu átt á hendur TM hf. fyrir lögbundið framsal samkvæmt kínverskum lögum og í samræmi við meginreglur íslensks réttar um kröfuhafaskipti. Í dómi héraðsdóms var TM hf. sýknað af kröfum B Ltd. á grundvelli aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í dómi Landsréttar kom fram að sú meginregla gilti samkvæmt íslenskum rétti að erlendir dómar hefðu ekki réttaráhrif hér á landi nema svo væri mælt fyrir um í lögum, svo sem lögum nr. 7/2011 um Lúganósamninginn um dómsvald og um viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum, en Kína væri ekki aðili að þeim samningi. Þar sem íslensk lög kvæðu ekki á um að dómar, sem kveðnir væru upp af dómstólum í Kína, skyldu hafa tiltekin réttaráhrif hér á landi væru áhrif þeirra í öllu falli takmörkuð þegar leyst væri úr málum sem rekin væru fyrir íslenskum dómstólum. Auk þess hefði erlendur dómur enn takmarkaðri þýðingu en ella væri ef stefnda hefði ekki gefist kostur á að taka til varna áður en dómurinn yrði kveðinn upp. Þóttu því lög ekki standa til þeirrar niðurstöðu að leggja mætti til grundvallar að fyrir lægi framsal á bótakröfu sem TM hf. yrði bundið af. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu TM hf. af kröfum B Ltd.

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

715/2023

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald lögmaður) gegn A (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður, Jón Stefán Hjaltalín lögmaður, 1. prófmál)

A krafðist bóta vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í umferðarslysi árið 2019 en hún var farþegi í bíl með ölvuðum ökumanni. Ágreiningur í málinu laut að því hvort A hefði sem farþegi í bifreið sýnt af sér háttsemi sem jafna mætti til stórkostlegs gáleysis í skilningi 2. mgr. 88. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987, svo að réttlætanlegt hefði verið að lækka bætur til hennar úr ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar hjá S hf. Í dómi Landsréttar var talið að ekkert hefði komið fram í málinu um að A hefði séð ökumanninn neyta áfengis áður en hún tók far sér far með honum. Lagt var til grundvallar að A og ökumaðurinn hefðu eytt skömmum tíma saman um kvöldið og ökumaðurinn greint A frá því að hann væri edrú. Þá lá fyrir framburður vitnisins C sem einnig var farþegi í bifreiðinni um að ekki hefði verið unnt að greina á ökumanninum að hann hefði verið undir áhrifum áfengis. Var því ekki talið sannað að A hefði hlotið að vera ljóst þegar hún tók sér far með ökumanninum að hann væri undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega, en af gögnum málsins mátti ráða að önnur atvik urðu til þess að bifreiðin fór út af veginum. Var krafa A um óskertar bætur úr hendi S hf. því tekin til greina og niðurstaða hins áfrýjaða dóms því staðfest.

Landsréttur birt 21. nóvember 2024

648/2023

A slf og dánarbú B (Björgvin Halldór Björnsson lögmaður) gegn C (Guðmundur Birgir Ólafsson lögmaður)

Málið var fellt niður fyrir Landsrétti með vísan til c-liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 1. mgr. 166. gr., laga nr. 91/1991 að kröfu A slf. B lést undir rekstri málsins og tók dánarbú hans við aðild í samræmi við 2. mgr. 22. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Upplýst var að dánarbúið myndi ekki láta málið til sín taka fyrir Landsrétti og féll þingsókn af hálfu dánarbúsins niður. Í samræmi við meginreglu 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 2. mgr. 157. gr. og 166. gr. sömu laga, var A slf. og dánarbúi B gert að greiða C málskostnað fyrir Landsrétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. september 2024

E-7764/2023

Ríkislögreglustjóri (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Fallist var á kröfu ríkislögreglustjóra um bætur vegna munatjóns á lögreglubifreið. Það tjón átti rætur að rekja til árekstrar lögreglubifreiðarinnar og annarrar bifreiðar í kjölfar eftirfarar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. apríl 2024

E-267/2022

Beijing Titicaca Haoxing International Travel Co. Ltd (Jón Þór Ólason lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Stefán Björn Stefánsson lögmaður)

Kínversk ferðaskrifstofa krafði íslenskt vátryggingafélag um greiðslu bóta vegna umferðarslyss sem varð hér á landi. Kvaðst stefnandi hafa eignast allar kröfur tiltekinna tjónþola á hendur stefnda vegna slyssins á grundvelli kínverskra laga. Við meðferð málsins tókst stefnanda ekki að sýna fram á að hann hefði eignast kröfurnar og var stefndi því sýknaður vegna aðildarskorts stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2024

E-3030/2023

A (Styrmir Gunnarsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Einar Brynjarsson lögmaður)

Málið snýst um útreikning skaðabóta fyrir varanlega örorku, sem stefnandi hlaut af völdum slyss sem stefndi ber bótaábyrgð á. Ágreiningur var um hvaða árslaun bæri að nota sem mælikvarða á líklegar framtíðartekjur stefnanda. Talið var rétt að miða árslaun við upplýsingar Hagstofu Íslands um meðallaun í sambærilegum störfum og stefnandi gegndi þegar slysið varð. Því var fallist var á kröfu stefnanda um að bætur skyldu reiknaðar á grundvelli hámarksárslauna samkvæmt 4. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, en þau eru lægri en þau árslaun sem talið var rétt að miða við.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. október 2023

E-3848/2022

A (Hildur Guðrún Þorleifsdóttir lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Telma Sif Reynisdóttir lögmaður)

A krafðist bóta úr vátryggingu bifreiðar vegna umferðarslyss. Deilt var um hvort A ætti rétt á að fá líkamstjón sitt bætt að fullu úr ábyrgðartryggingu bifreiðar sem á slysdegi var tryggð lögbundinni ábyrgðartryggingu hjá stefnda. Þótti A hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með því að taka sér far með bifreið sem ekið var af manni sem A gæti ekki hafa dulist að var undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Stefndi hafði þegar greitt A bætur miðað við að A bæri helming tjóns síns sjálfs, sem í ljósi atvika var talið sanngjarnt. Var stefndi því sýknaður.

Landsréttur birt 13. september 2023

510/2023

Beijing Titicaca Haoxing International Travel Co. Ltd (Hróbjartur Jónatansson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Þórir Júlíusson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli B Ltd. á hendur T hf. var vísað frá dómi. T hf. krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómi þar sem aðild B Ltd. væri óljós, hin umkrafða fjárhæð vanreifuð og þá væri málatilbúnaðurinn allur þversagnakenndur. Í úrskurði Landsréttar kom fram að engin efni væru til að vísa málinu frá á grundvelli aðildarskorts B Ltd., enda leiði varnir sem byggi á aðildarskorti til sýknu, verði á þær fallist, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá kom fram að í málatilbúnaði B Ltd. kæmi nægilega fram á hvaða grundvelli hann reisti kröfur sínar á hendur T hf. Það væri á forræði B Ltd. hvaða gögn hann færði fram til að sanna umfang tjónsins og atvik að öðru leyti. Mat á því hvort B Ltd. hefði fært fram viðhlítandi gögn til sönnunar á kröfu sinni varði efnishlið málsins og geti ekki leitt til frávísunar þess. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2023

E-2351/2021

C (Guðmundur Birgir Ólafsson lögmaður) gegn A slf. og B (Sigurður Logi Jóhannesson lögmaður)
Lykilorð: Kjarasamningur. Vinnuslys.

Stefndu dæmd til að greiða stefnanda bætur vegna vinnuslyss í samræmi við rétt hans til bóta samkvæmt kjarasamningi bæði vegna slysatryggingar launþega og launa í slysaforföllum. Sannað taldist að stefnandi hefði orðið fyrir vinnuslysi sem leysti réttindi þessi úr læðingi.

Landsréttur birt 14. október 2022

438/2021

A (Jónas Þór Jónasson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)
Lykilorð: Líkamstjón. Vátrygging.

A höfðaði mál á hendur S hf. til viðurkenningar á bótaskyldu S hf. úr slysatyggingu ökumanns bifreiðarinnar B vegna líkamstjóns sem A varð fyrir. Var S hf. sýknað af öllum kröfum A í héraði. Ágreiningur aðila fyrir Landsrétti sneri einvörðungu að því hvort slys A hafi orðið við stjórn bifreiðar í skilningi 2. mgr. 92. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987 og yrði rakið til notkunar ökutækisins í merkingu 88. gr. sömu laga. Í dómi Landsréttar kom fram að samkvæmt framangreindum lagaákvæðum sem í gildi voru er slysið átti sér stað tryggi vátrygging bifreiðar bætur fyrir líkamstjón af völdum slyss sem ökumaður verður fyrir við stjórn ökutækis, enda verði slysið rakið til notkunar þess. Þrátt fyrir að hugtakið notkun ökutækis sé ekki skilgreint í umferðarlögum nr. 50/1987 eða lögskýringargögnum megi ráða af langri dómaframkvæmd Hæstaréttar að þegar ökutæki er á hreyfingu sé skilyrði 88. gr. varðandi notkun að öllu jöfnu uppfyllt en einnig ef ökutækið er notað þannig að sérstakir eiginleikar þess sem ökutækis leiði til tjóns. Af dómum Hæstaréttar mætti ráða að hættan sem stafi af ökutækjum sé fyrst og fremst tengd hraða, vélarafli og þyngd þeirra. Orsök slyssins hafi verið sú að A missti jafnvægið er hann teygði sig í öryggistöflu af palli undir ökumannssæti bifreiðarinnar, féll aftur fyrir sig og kom harkalega niður á vinstri fót í fallinu. Bifreiðin hafi verið kyrrstæð og slys A hlaust því hvorki af akstri bifreiðarinnar né sérstökum hættueiginleikum hennar sem ökutækis. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. maí 2022

E-4333/2018

A (Þórir Skarphéðinsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Kristín Edwald lögmaður) og B (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)

Stefndu voru sýknuð af kröfu um viðurkenningu skaðabótaskyldu á grundvelli tilkynningar um umferðarslys sem var kærð til lögreglu sem fjársvik.

Landsréttur birt 25. mars 2022

498/2020

Dánarbú A (Sveinn Guðmundsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður)

A krafðist bóta vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í umferðarslysi árið 2012. Ágreiningur í málinu laut að því hvort A hafi sem farþegi í bifreiðinni sýnt af sér háttsemi sem mætti jafna til stórkostlegs gáleysis í skilningi 2. mgr. 88. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, nú 4. mgr. 4. gr. laga nr. 30/2019 um ökutækjatryggingar, svo að réttlætanlegt hafi verið að lækka bætur honum til handa úr ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar hjá stefnda. Í dómi Landsréttar var rakið að í blóðsýni ökumanns bifreiðarinnar sem tekið var fljótlega eftir atvikið hafi vínandamagn mælst 1,66 ‰. Með hliðsjón af því háa mæligildi hafi A ekki getað dulist að ökumaðurinn gæti ekki stjórnað bifreiðinni örugglega og að hann væri óhæfur til aksturs. Með því að taka sér far með bifreiðinni eins og ástatt var um ökumanninn hafi A sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og bæri því að hluta til sjálfur ábyrgð á því tjóni sem hann varð fyrir við slysið. Ekkert lægi fyrir í málinu sem styddi síðbúna frásögn ökumanns bifreiðarinnar um að hann hefði neytt áfengis eftir að akstri lauk. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var niðurstaða hans staðfest um að A bæri 2/3 hluta tjóns síns sjálfur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2022

E-1412/2021

Vegagerðin (Reynir Karlsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Fallist var á það að vegur væri skemmdur á meðan á honum lægi olía sem hafði lekið niður á veginn eftir umferðaróhapp. Kostnaður af því að hreinsa olíuna af veginum teldist því munatjón en ekki almennt fjártjón. Stefnda, tryggingafélag, var af þessum sökum dæmt til þess að greiða stefnanda, Vegagerðinni, þennan kostnað úr lögboðinni ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar sem olli tjóninu, sbr. 1. mgr. 91. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2022

E-1408/2021

Vegagerðin (Reynir Karlsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Fallist var á það að vegur væri skemmdur á meðan á honum lægi olía sem hafði lekið niður á veginn eftir umferðaróhapp. Kostnaður af því að hreinsa olíuna af veginum teldist því munatjón en ekki almennt fjártjón. Stefnda, tryggingafélag, var af þessum sökum dæmt til þess að greiða stefnanda, Vegagerðinni, þennan kostnað úr lögboðinni ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar sem olli tjóninu, sbr. 1. mgr. 91. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. júní 2020

E-3217/2019

[A] (Erling Daði Emilsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands (Jón E. Malmquist lögmaður)

Stefnandi varð fyrir axlarmeiðslun og áfallastreituröskun við það að aðstoða slasaðan mann á vettvangi umferðarslyss. Talið var að ekki hefði verið sýnt fram á að meiðsl stefnanda og áfallastreituröskunin væru afleiðing af notkun bifreiðar eða saknæmri háttsemi ökumanns. Þá var talið að stefnandi gæti ekki beint kröfum á öðrum grundvelli á hendur vátryggingafélagi, þar sem hann hefði ekki sýnt fram á að tjónið félli undir gildissvið tryggingarinnar.

Landsréttur birt 8. nóvember 2019

148/2019

Vegagerðin (Reynir Karlsson lögmaður) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður)

V höfðaði mál gegn TM hf. og krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda TM ehf. úr ökutækjatryggingu K ehf. vegna óhapps sem varð þegar vörubifreið ásamt festivagni í eigu félagsins valt með þeim afleiðingum að möl sem hún flutti dreifðist um stóran hluta vegar og olli V tjóni vegna kostnaðar við hreinsun vegarins. Laut ágreiningur málsins að því hvort bótaskylda samkvæmt 1. mgr. 88. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 hefði stofnast vegna óhappsins. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæðið tæki ekki til almenns fjártjóns, það er tjóns sem væri ekki rakið til líkamstjóns né munatjóns. Að virtum atvikum málsins var það mat Landsréttar að ekki stæðu efni til annars en að líta svo á að um munatjón hefði verið að ræða sem félli að öðrum skilyrðum uppfylltum undir framangreint ákvæði umferðarlaga. Jafnframt þóttu lög ekki standa því í vegi að V nyti réttar til að sækja bætur úr ábyrgðartryggingu á þeim grunni og með þeim hætti sem hann gerði í málinu. Var krafa V því tekin til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2018

E-650/2018

Vegagerðin (Reynir Karlsson lögmaður) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður)

Vörubifreið sem ekið var af réttindalausum ökumanni á miklum hraða valt í Ártúnsbrekku og dreifðist möl yfir götuna. Kröfur stefnanda um bætur vegna hreinsun vegarins var hafnað þar sem hlutaverk stefnanda samkvæmt lögum væri að halda vegum greiðfærum og lagaheimild skorti til að innheimta kostnað við hreinsun vega.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. júní 2018

E-3897/2017

Elín Björk Magnúsdóttir (Halldór Hrannar Halldórsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Ásdís Kjerúlf lögmaður)

Talið var ósannað að brunatjón á bifreið yrði rakið til notkunar annarrar bifreiðar þannig að bótaskylt væri úr ábyrgðartryggingu hennar.

Hæstiréttur birt 20. apríl 2018

439/2017

Vátryggingafélag Íslands hf og B ehf (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn A (Grímur Sigurðarson lögmaður)

Í málinu krafðist A viðurkenningar á skaðabótaskyldu V hf. og B ehf. vegna afleiðinga slyss sem hann varð fyrir er hann reyndi að stíga upp í farþegasæti bifreiðar á ferð. Héldu V hf. og B ehf. því fram að slysið hefði ekki hlotist af notkun bifreiðarinnar, sbr. 1. mgr. 88. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, og þá hefði A sýnt af sér stórkostlegt gáleysi umrætt sinn með háttsemi sinni og ætti því að bera tjón sitt sjálfur að hluta eða að öllu leyti, sbr. 2. mgr. 88. gr. sömu laga. Í héraðsdómi kom fram að þegar A hefði freistað þess að stíga upp í bifreiðina hefði aflvél hennar verið í gangi og bifreiðin á ferð, þótt hraðinn hefði verið lítill. Yrði að telja að hreyfing bifreiðarinnar hefði verið orsök slyssins þótt aðrir þættir kynnu einnig að hafa haft áhrif á atburðarrásina umrætt sinn. Þegar af þeirri ástæðu var fallist á að slysið hefði hlotist af notkun ökutækisins í skilningi 1. mgr. 88. gr. laga nr. 50/1987. Þá kom fram að hegðun A umrætt sinn hefði ekki falið í sér frávik frá því sem venjulegt gæti talist þannig að honum yrði gert að bera tjón sitt sjálfur að hluta eða öllu leyti. Var því fallist á dómkröfur A. Fyrir Hæstarétti snerist ágreiningur aðila eingöngu um hvort 2. mgr. 88. gr. laga nr. 50/1987 tæki til slyss A. Að því gættu og með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. september 2017

E-1176/2017

Haukur Steinsson (Jón Stefán Hjaltalín Einarsson hdl) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Ólafur Arinbjörn Sigurðsson hdl)

Stefnandi sem var við leik á hjólabretti hékk aftan í vespu sem var ekið af stað og ökuhraði aukinn nokkuð. Stefnandi missti jafnvægið, féll af brettinu og slasaðist á hægra hné. Fallist á að ábyrgðartryggjandi skyldi bæta helming tjónsins en stefnandi yrði að bera helming sjálfur vegna stórkostlegs gáleysis.

Hæstiréttur birt 28. apríl 2016

591/2015

Þórunn Sif Ingvarsdóttir (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Jóhönnu Huld Eggertsdóttur og Verði tryggingum hf (Björn Lárus Bergsson hrl)

Þ krafðist bóta úr hendi J og V hf. vegna líkamstjóns sem hún hlaut í umferðarslysi, en með hinum áfrýjaða dómi var þeirri kröfu hafnað. Fyrir Hæstarétti krafðist Þ ómerkingar dómsins meðal annars á þeim grundvelli að annar meðdómsmanna í héraði hefði verið vanhæfur til setu í dómi vegna starfa sinna fyrir V hf. Talið var að þótt V hf. hefði staðhæft að meðdómsmaðurinn hefði ekki gengt trúnaðarstörfum fyrir félagið frá árinu 2007 hefði V hf. kannast við að hafa greitt honum fyrir matsstörf frá þeim tíma. Hefði V hf. hins vegar ekki, þrátt fyrir tilmæli Þ, veitt upplýsingar um eðli eða umfang þeirra starfa eins og honum hefði verið í lófa lagið. Var því fallist á með Þ að hún hefði haft tilefni til að draga óhlutdrægni meðdómsmannsins með réttu í efa, sbr. g. lið 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var krafa Þ um ómerkingu héraðsdóms því tekin til greina.

Hæstiréttur birt 10. mars 2016

331/2015

Tryggingamiðstððin hf (Valgeir Pálsson hrl) gegn A (Bryndís Guðmundsdóttir hrl)

A hlaut líkamstjón þegar ekið var aftan á bifreið sem hún ók árið 2011. Í málinu var deilt um hvort gera ætti upp bætur fyrir varanlega örorku hennar á grundvelli lágmarkstekjuviðmiðs 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eða hvort ákvarða bæri árslaun A sérstaklega á grundvelli 2. mgr. sama ákvæðis. A hafði lokið við rúmlega helming af grunnnámi í hjúkrunarfræði á slysdegi og lauk því námi á tilsettum tíma. Með skírskotun til fyrri dóma Hæstaréttar í málum þar sem námsmenn voru ungir að árum og skammt á veg komnir í námi sínu þegar tjónsatvik urðu var niðurstaða Hæstaréttar að við uppgjör á bótum fyrir varanlega örorku A skyldi farið eftir reglu 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga.

Hæstiréttur birt 18. febrúar 2016

365/2015

A (Tómas Hrafn Sveinsson hrl) gegn Verði tryggingum hf (Björn Lárus Bergsson hrl)

A krafði V hf. um greiðslu skaðabóta vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í umferðarslysi. V hf. greiddi A bætur á árinu 2009 í samræmi við matsgerð 25. febrúar 2008 og tók A á móti bótunum með fyrirvara. Krafði A síðar V hf. um frekari bætur vegna slyssins á grundvelli matsgerðar dómkvaddra matsmanna 14. desember 2013 en í báðum matsgerðunum var stöðuleikapunktur talinn vera sá sami. Deildu aðilar um hvort bótakrafa A væri fyrnd samkvæmt 99. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og gildi fyrrgreinds fyrirvara. Hélt A því fram að hann hefði fyrst með vottorði læknis 30. apríl 2013 fengið vitneskju um að ástand hans væri verra en greindi í matsgerðinni frá árinu 2008 og myndi ekki batna. Hefði hann því ekki átt þess kost að leita fullnustu kröfu sinnar um frekari bætur fyrr en á árinu 2013 og væri hún því ekki fyrnd. Talið var að síðari matsgerðin væri í raun endurmat á sömu afleiðingum slyssins og metnar höfðu verið í fyrri matsgerðinni og væri því ekki um síðari breytingar að ræða sem valdið gætu því að nýr fyrningarfrestur hæfist. Yrði því að miða við að A hefði fengið vitneskju um kröfu sína og átt þess fyrst kost að leita fullnustu hennar 25. febrúar 2008 þegar fyrri matsgerðin lá fyrir. Hefði hinn fjögurra ára fyrningarfrestur því byrjað að líða við lok þess árs og hann því verið liðinn þegar málið var höfðað 3. apríl 2013. Var V hf. því sýknaður af kröfu A.

Hæstiréttur birt 22. október 2015

166/2015

Sigríður Bárðardóttir (Ingi Tryggvason hrl) gegn Kaldólfi ehf og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Guðjón Ármannsson hrl)

Árið 2010 varð sinubruni á svæði á jörð S sem skipulagt hafði verið fyrir frístundabyggð. Óumdeilt var að kviknað hafði í undan hita af útblástursröri á fjórhjóli, sem starfsmenn K ehf. höfðu notað þar við lagningu vatnsleiðslu, en ökutækið, sem tryggt var hjá S hf., var látið standa kyrrt með ræstri vél milli þess sem því var beitt í þessu skyni. Deildu aðilar annars vegar um hvort tjón sem S taldi sig hafa orðið fyrir vegna tafa á sölu lóða, sem bruninn hafi leitt af sér, yrði talið sennileg afleiðing af háttsemi starfsmanna K ehf. og hins vegar hvort matsgerð dómkvaddra manna, sem S hafði aflað við rekstur málsins, gæfi rétta mynd af því tjóni hennar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að líta yrði svo á að mönnum mætti almennt vera ljóst að eldur gæti kviknað vegna hita af útblástursröri frá aflvél ökutækis við aðstæður sem þessar í þurrum gróðri. Að auki hefði K ehf. fengist í atvinnuskyni við framkvæmdir og mætti ætlast til að staðið yrði þannig að þeim að hætta stafaði ekki af verklaginu sem beitt væri. Að þessu virtu yrði að leggja til grundvallar að eldurinn hefði í skilningi skaðabótaréttar verið sennileg afleiðing þessarar háttsemi starfsmanna K ehf. Alkunna væri að sinueldur gæti undir kringumstæðum sem þessum orðið óviðráðanlegur. Mætti því hafa verið fyrirsjáanlegt að eldur gæti borist í kjarr og annan gróður á jörð S. Þá ætti starfsmönnum K ehf. ekki að hafa getað dulist að kæmi eldur upp í landi jarðarinnar, sem skipulagt hafði verið fyrir frístundabyggð, yrði hætta á að það myndi spillast þannig að tjón hlytist af. Afleiðingarnar, sem þessi háttsemi þeirra hafði, væru því ekki svo fjarlægar að K ehf. og S hf. gætu losnað undan bótaskyldu vegna þeirra á þeim grunni. Með vísan til niðurstöðu fyrrgreindrar matsgerðar, sem K ehf. og S hf. voru ekki talin hafa hnekkt, var fallist á kröfu S um bætur vegna tafa á sölu lóða.

Hæstiréttur birt 31. mars 2015

671/2014

A (Guðjón Ólafur Jónsson hrl) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Hjörleifur Kvaran hrl)

A höfðaði mál á hendur T hf. til heimtu greiðslu úr lögboðinni slysatryggingu ökumanns samkvæmt 92. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, vegna líkamstjóns sem A hlaut er hann var að ferma tengivagn bifreiðar gámi. Í dómi Hæstaréttar var rakið að orsök slyss A hefði verið sú að þegar A hefði verið að fara upp á pall bifreiðarinnar hefði hann fallið aftur fyrir sig og til jarðar. Var talið að þótt A hefði sem stjórnandi bifreiðarinnar unnið við að ferma bifreiðina þegar slysið varð þá hefði bifreiðin verið kyrrstæð og slysið yrði að virti dómaframkvæmd réttarins ekki rakið til notkunar hennar, sérstaks búnaðar hennar eða eiginleika sem ökutækis. Þegar af þeirri ástæðu var T hf. sýknað af kröfu A.

Hæstiréttur birt 12. mars 2015

590/2014

Gámaþjónustan hf (Óðinn Elísson hrl) gegn Sigurði, Hreini Jónassyni, til, réttargæslu, Vátryggingafélagi og Íslands hf

G hf. krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda S vegna tjóns sem varð á timburkurlara í eigu G hf. er verið var að hífa hann upp á flutningavagn á plani á athafnasvæði G hf. Við verkið voru notaðir tveir kranar og brast jarðvegurinn undan stoðfæti annars þeirra með þeim afleiðingum að timburkurlarinn féll til jarðar og skemmdist verulega. Héraðsdómur sýknaði S og vísaði m.a. til þess að orsök þess að yfirborð plansins hefði brostið við hífingu timburkurlarans yrði ekki rakin til þess að S hefði vanrækt þær skyldur sem á honum hefðu hvílt sem sérfræðingi og yrði tjónið á kurlaranum því ekki rakið til sakar hans. Hæstiréttur féllst hvorki á með G hf. að annar meðdómsmanna í héraði hefði verið vanhæfur til setu í dóminum vegna matsstarfa fyrir hönd V hf., sem G hf. stefndi til réttargæslu í málinu, né að héraðsdómur hefði byggt niðurstöðu sína á málsástæðu sem ekki hefði verið haldið fram í héraði. Var kröfu G hf. um ómerkingu héraðsdóms því hafnað. Fyrir Hæstarétti lagði G hf. fram matsgerð sem hann aflaði eftir uppkvaðningu héraðsdóms. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði m.a. að þótt niðurstöður matsgerðarinnar bentu til þess að stærri grunnflötur undir stoðfætur vörubifreiðarinnar kynni að hafa dregið úr fyrirvaralausu og hröðu broti jarðvegsins í og við þær væri matsgerðin engan veginn afdráttarlaus í þeim efnum. Fengi hún því ekki haggað þeirri niðurstöðu héraðsdóms að tjón það sem hefði orðið á trékurlaranum yrði ekki rakið til sakar S heldur óhappatilviks. Var héraðsdómur því staðfestur.

Hæstiréttur birt 29. janúar 2015

366/2014

Vörður tryggingar hf (Björn Lárus Bergsson hrl) gegn A (Grímur Sigurðarson hrl)

A krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda V hf. vegna þess líkamstjóns sem hann hlaut er hann varð fyrir bifreið á Lækjargötu. Óumdeilt var að A ætti rétt á bótum samkvæmt 1. mgr. 88. gr. umferðarlaga og að V hf. hefði veitt ábyrgðartryggingu vegna bifreiðarinnar. Aðilar deildu hins vegar um það hvort A hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi þegar hann gekk yfir götuna og ætti af þeim sökum að bera helming tjóns síns sjálfur. Í héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, var talið að þótt A hefði ekki gætt allrar varúðar er unnt var greint sinn hefði hann ekki sýnt af sér stórkostlegt gáleysi í skilningi 2. mgr. 88. gr. umferðarlaga þannig að girt gæti fyrir rétt hans til fullra bóta úr ábyrgðartryggingu ökutækisins hjá V hf. Var krafa hans því tekin til greina.

Hæstiréttur birt 29. janúar 2015

365/2014

Vörður tryggingar hf (Björn Lárus Bergsson hrl) gegn A (Grímur Sigurðsson lögmaður)

A krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda V hf. vegna þess líkamstjóns sem hún hlaut er hún varð fyrir bifreið á Lækjargötu. Óumdeilt var að A ætti rétt á bótum samkvæmt 1. mgr. 88. gr. umferðarlaga og að V hf. hefði veitt ábyrgðartryggingu vegna bifreiðarinnar. Aðilar deildu hins vegar um það hvort A hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi þegar hún gekk yfir götuna og ætti af þeim sökum að bera helming tjóns síns sjálf. Í héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, var talið að þótt A hefði ekki gætt allrar varúðar er unnt var greint sinn hefði hún ekki sýnt af sér stórkostlegt gáleysi í skilningi 2. mgr. 88. gr. umferðarlaga þannig að girt gæti fyrir rétt hennar til fullra bóta úr ábyrgðartryggingu ökutækisins hjá V hf. Var krafa hennar því tekin til greina.

Hæstiréttur birt 4. desember 2014

236/2014

A (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)

A krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda A sf. vegna líkamstjóns 1. ágúst 2008 er hann klemmdist á milli tveggja bifreiða. A byggði á því að A sf. bæri skylda til að bæta honum það tjón sem orðið hefði þar sem slysið yrði rakið til notkunar óvátryggðs ökutækis, sbr. 1. mgr. 94. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Talið var að af ákvæðinu og reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar yrði ráðið að ekki gæti komið til greiðsluskyldu A sf. nema A hafi átt rétt til bóta úr ábyrgðartryggingu óvátryggðs ökutækis ef vátryggingin hefði verið í gildi þegar slysið var. Þar sem A hefði verið ökumaður hinnar óvátryggðu bifreiðar þegar slysið varð gæti hann hvorki öðlast rétt til bóta úr hendi A sf. á grundvelli 94. gr. umferðarlaga né sérreglna 88. og 90. gr.

Hæstiréttur birt 28. maí 2014

31/2014

Katrín Ylfa Mjallardóttir (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Sverri Jónssyni og Vátryggingafélagi Íslands hf (Hákon Árnason hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

K höfðaði mál gegn S og V hf. og krafðist greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem hún varð fyrir sem farþegi bifreiðar í eigu S. Deilt var um hvort K skyldi vegna eigin sakar bera að hluta ábyrgð á tjóninu en K hafði legið, án öryggisbeltis, ofan á þremur farþegum bifreiðarinnar í aftursæti hennar. Var ekki talið að gáleysi K hefði verið svo stórkostlegt að það leiddi til skerðingar á bótarétti hennar samkvæmt 2. mgr. 88. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Var því fallist á kröfur K.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. júní 2013

E-154/2013

Berglind Thelma Bragadóttir (Benedikt Ólafsson hrl) gegn Sigfríði Ingólfsdóttur og Vátryggingafélagi Íslands hf (Jón Eðvald Malmquist hdl)
Lykilorð: Sakarskipting. Skaðabætur.

Stefndu dæmd til að greiða stefnanda frekari skaðabætur vegna umferðarslyss. Heildarbætur lækkaðar um helming þar sem stefnandi var talin hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi er hann tók sér far með ökumanni bifreiðarinnar sem var undir áhrifum fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júní 2013

E-2837/2012

Egill Viggósson (Árni Helgason hdl) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Þórarinn Sigurbergsson hdl)

Tryggingafélagið V var sýknað af kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu á grundvelli ökumannstryggingar. Ekki var talið að stefnandi hefði verið við stjórn ökutækis, þegar hið meinta slys hefði átt sér stað, og ökutækið ekki í notkun í merkingu 2. mgr. 92. gr., sbr. 1. mgr. 88. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Hæstiréttur birt 21. mars 2013

623/2012

Elmar Freyr Árnason (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn Önnu Siggu Lúðvíksdóttur og Vátryggingafélagi Íslands hf (Einar Baldvin Axelsson hrl)

Viðurkennd var óskipt bótaskylda A og V hf. vegna umferðarslyss er leiddi til andláts föður E. Var E látinn bera helming tjóns síns sjálfur þar sem faðir hans hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi umrætt sinn, er hann ók bifhjóli sínu á ofsahraða í þéttbýli og var þannig meðvaldur að slysinu.

Hæstiréttur birt 7. mars 2013

561/2012

Höldur ehf og Vátryggingafélag Íslands hf (Hákon Árnason hrl) gegn A (Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl)

A varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi er bifreið ók á hann úti á þjóðvegi þar sem hann hafði stöðvað dráttarvél sína með tengivagni í þeim tilgangi að færa fé af tengivagninum yfir í fjárflutningavagn til að því yrði komið til slátrunar. Krafði hann H ehf. og V hf. um skaðabætur vegna tjónsins en H ehf. var skráður eigandi bifreiðarinnar sem var tryggð ábyrgðartryggingu hjá V hf. Fyrir Hæstarétti deildu aðilar annars vegar um það hvort A ætti sjálfur að bera hluta af tjóni sínu vegna meðábyrgðar á slysinu og hins vegar hvort hann gæti krafist bóta vegna útlagðs kostnaðar við að leigja íbúð meðan gerðar voru breytingar á íbúðarhúsi hans vegna þeirrar fötlunar sem hann varð fyrir. Hæstiréttur taldi A meðábyrgan að slysinu vegna stórkostlegs gáleysis hans en þótti hins vegar ekki efni til að láta A bera sjálfan hluta af tjóni sínu þar sem ökumaður bifreiðarinnar hefði ekið allt of hratt miðað við aðstæður umrætt sinn og ekki í samræmi við reglur umferðarlaga. Þá féllst Hæstiréttur á það með héraðsdómi að A gæti krafist bóta vegna kostnaðar við leigu íbúðar meðan gerðar voru umfangsmildar breytingar á heimili hans.

Hleð fleiri dómum…