Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

33 dómar fundust

Lykilorð: Tilraun til manndráps

Landsréttur birt 5. febrúar 2026

546/2025

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn X (Hlynur Jónsson lögmaður) (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, A, með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð hennar með líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Annars vegar var X gefin að sök kynferðisleg áreitni og húsbrot með því að hafa 13. október 2024 farið í heimildarleysi inn í hús og síðan svefnherbergi A og áreitt hana með tilgreindum hætti og eftir það neitað að yfirgefa heimilið, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir A þess efnis. Hins vegar um tilraun til manndráps með því að hafa þremur dögum síðar veist að A með tilgreindum hætti með þeim afleiðingum að hún hætti að geta andað og meðvitund hennar skertist og hún hlaut tilgreinda áverka. Einnig var X ákærður fyrir líkamsárás gegn B sem olli honum tilgreindum áverkum. Loks var X gefið að sök vopnalagabrot með því að hafa haft í fórum sínum á heimili sínu 14 skotvopn, auk fjölda skotfæra, án þess að hafa gilt skotvopnaleyfi, án þess að skotvopnin væru skráð á hann og án þess að tryggja viðeigandi geymslu þeirra. Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var því hafnað að X hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum eða geðrænu ástandi hans þannig háttað að refsing gæti ekki borið árangur, sbr. 15. og 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var X gert að sæta fangelsi í sex ár, auk þess sem honum var gert að greiða A skaða- og miskabætur og sæta upptöku á fyrrgreindum skotvopnum og skotfærum. Með dómi Landsréttar var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að beinn ásetningur X hafi staðið til þess að svipta A lífi 16. október 2024. Staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu X og ákvað refsingu hans fangelsi í sjö ár en til frádráttar skyldi koma vist hans í gæsluvarðhaldi og á sjúkrastofnun. Niðurstaða héraðsdóms um skaða- og miskabætur til handa A og um upptöku skotvopna og skotfæra var loks staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. desember 2025

S-5479/2025

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari) gegn Degi Þór Hjartarsyni (Sævar Þór Jónsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)

Ákærði sakfelldur fyrir tilraun til manndráps og dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi. Þá var ákærða gert að greiða miskabætur og bótaskylda ákærða vegna líkamstjóns viðurkennd.

Landsréttur birt 16. október 2025

505/2024

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Sindra Kjartanssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) (Styrmir Gunnarsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

S var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að hafa veist með ofbeldi að A og stungið hann með hnífi tvisvar sinnum ofarlega í brjóstkassa með þeim afleiðingum að A hlaut lífshættulega áverka. Ekki var fallist á að athafnir S hefðu réttlæst af neyðarvörn. Refsing S var ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var S gert að greiða A 2.155.379 krónur í skaðabætur.

Landsréttur birt 2. október 2025

31/2025

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Daníel Erni Unnarssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Guðmundur Ágústsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Með hinum áfrýjaða dómi var ákærði sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, en með vísan til 2. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing ákærða færð niður úr lögbundnu refsilágmarki 211. gr. laga nr. 19/1940 og ákærða gert að sæta fangelsi í fjögur ár. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að jafnvel þótt lagt væri til grundvallar að brotaþoli hefði veitt ákærða hnefahögg áður en ákærði lagði að brotaþola með hnífi, hefðu viðbrögð ákærða verið stórhættuleg og í engu samræmi við það sem á undan var gengið. Áverkar brotaþola bæru með sér einbeitta og ofsafengna atlögu og litlu hefði mátt muna að ákærði hefði banað brotaþola. Því væru ekki efni til að beita 2. mgr. 20. gr. laga nr. 19/1940 til refsilækkunar auk þess sem ekki þótti koma til álita að beita heimildum 4. tölul. 1. mgr. 74. gr., 75. gr. eða 3. mgr. 218. gr. c sömu laga. Var refsing ákærða því ákveðin fimm ára fangelsi. Niðurstaða hins áfrýjaða dóms um miskabætur til brotaþola var staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júlí 2025

S-1728/2025

Héraðssaksóknari (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Dimitar Atanasov Koychev (Birkir Már Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði dæmdur í 7 ára fangelsi og til greiðslu miskabóta fyrir tilraun til manndráps, skv. 211. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gegn tveimur.

Landsréttur birt 26. júní 2025

637/2024

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Ásgeiri Þór Önnusyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður), Breka Þór Frímannssyni (Þorgils Þorgilsson) og Hilmi Gauta Bjarnasyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður) (Hilmar Garðars Þorsteinsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Á, B og H voru ákærðir í tengslum við skotárás á heimili brotaþolanna C, A og B þar sem þeir voru staddir ásamt brotaþolanum D. Á var gefin að sök tilraun til manndráps, húsbrot, hættubrot og vopnalagabrot með því að hafa umrætt sinn ásamt B, ruðst grímuklæddur og í heimildarleysi inn á heimilið, þar sem fjórir brotaþolar voru staddir og skotið án viðvörunar samtals sex skotum úr skammbyssu í átt að D og C. B var gefin að sök hlutdeild í brotum Á með því að hafa liðsinnt honum við undirbúning og framkvæmd brotsins með nánar tilgreindum hætti. Ákærða H var gefin að sök hlutdeild í broti Á með því að hafa ekið Á og B umrætt sinn gegn greiðslu. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að fallist væri á með héraðsdómi að það hefði verið hending ein að skotin lentu ekki í C og D, sem þá voru inni í barnaherbergi, og einnig að Á hafi hlotið að vera ljóst að það sé lífshættulegt að skjóta sex skotum úr skammbyssu í átt að fólki af stuttu færi, án neinnar vissu um hvar skotin lendi, og því hafi Á hlotið að gera sér grein fyrir því að bani gæti hlotist af háttsemi hans. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu Á fyrir tilraun til manndráps gagnvart brotaþolunum D og C og hættubrot gagnvart brotaþolunum A og B sem og vopnalagabrot. Var refsing hans ákveðin fangelsi í sex ár. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að ekki yrði fullyrt að ásetningur B og H hefði staðið til að bana brotaþolunum D og C og yrðu þeir því ekki sakfelldir fyrir hlutdeild í tilraun til manndráps. Þeir voru aftur á móti sakfelldir fyrir hlutdeild í hættubroti Á og B jafnframt sakfelldir fyrir hlutdeild í vopnalagabroti Á. Niðurstaða héraðsdóms um refsingu B og H var staðfest og B gert að sæta fangelsi í 30 mánuði og H gert að sæta skilorðsbundnu fangelsi í eitt ár. Þeim ákæruliðum er vörðuðu húsbrot var vísað frá héraðsdómi. Staðfest voru ákvæði héraðsdóms um upptöku á skammbyssu. Loks var Á og B gert að greiða brotaþolum miskabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. júní 2025

S-614/2024

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jón Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var fundinn sekur um hótanir en sýknaður af ákæru er varðaði tilraun til manndráps, en til vara stórfellda líkamsárás, þar sem ekki þótti hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í þeim lið ákæru. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til eins árs, en með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms og var refsingin dæmd upp.

Héraðsdómur Austurlands birt 4. júní 2025

S-4/2025

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn X (Hlynur Jónsson lögmaður) (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var fundinn sekur um hegningarlagabrot gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, auk líkamsárásar gegn öðrum einstaklingi og brot á vopnalögum. Var hann dæmdur í sex ára fangelsi og til greiðslu sakarkostnaðar málsins. Auk þess var hann var dæmdur til að greiða fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður miskabætur og bætur vegna fjártjóns, auk vaxta, og gert að sæta upptöku á vopnum og skotfærum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2025

S-6830/2024

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson verjandi ákærða) (Þórir Örn Árnason lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Leó Daðason lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Sveinn Guðmundsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa) (Lilja Margrét Olsen lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir manndráp, tvær tilraunir til manndráps og eignaspjöll.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 30. desember 2024

S-37/2024

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari) gegn Pétri Atla Árnasyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð: Tilraun til manndráps.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, sbr. 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og hótun, sbr. 233. gr. sömu laga. Ákærði var dæmdur til að sæta fangelsi í fimm ár og þrjá mánuði, upptöku á vasahníf og til greiðslu bóta til brotaþola og sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. desember 2024

S-639/2023

Ákæruvaldið (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ingólfi Kjartanssyni (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var fundinn sekur um líkamsárásir og brot gegn valdstjórninni og honum gert að sæta fangelsi í átta ár, auk þess sem hann var dæmdur til greiðslu skaðabóta og hluta sakarkostnaðar. Ákærði var sýknaður af ákæru er varðaði tilraun til manndráps þar sem ekki þótti sýnt fram á að ákærði hefði haft ásetning til þess að svipta brotaþola lífi umrætt sinn en ákærði var þó fundinn sekur um sérlega hættulega líkamsárás og gerð refsins líkt og áður greinir.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. desember 2024

S-2167/2024

Málið nr. S-2167/2024 Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Daníel Erni Unnarssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður um þrítugt var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps og dæmdur í fjögurra ára fangelsi. Jafnframt var ákærði dæmdur til að greiða brotaþola skaða- og miskabætur og viðurkenndur var með dómi frekari bótaréttur brotaþola.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. nóvember 2024

S-1061/2024

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn X (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður, Ólöf Heiða Guðmundsdóttir lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða metin sakhæf og sakfelld fyrir manndráp, tilraun til manndráps og brot í nánu sambandi. Hafnað að beita 75. gr. almennra hegningarlaga til refsilækkunar. Ákærða dæmd til að sæta fangelsi í 18 ár og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. júlí 2024

S-1266/2024

Málið nr. S-1266/2024 Ákæruvaldið (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn Mohamad Kourani (Kristján Ágúst Flygenring lögmaður) (Ómar R. Valdimarsson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

MK var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps gagnvart brotaþola C og stórfellda líkamsárás gagnvart brotaþola D með hnífstunguárás á sömu brotaþola í verslun í Reykjavík 7. mars 2024. Þess utan var MK sakfelldur fyrir fjögur valdstjórnarbrot og dæmdur í 8 ára fangelsi. Var refsing ákveðin sem hegningarauki við 14 mánaða fangelsisdóm sem kveðinn var upp 14. mars 2024. Jafnframt var MK dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 27. júní 2024

S-798/2024

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgeiri Þór Önnusyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður), Breka Þór Frímannssyni, (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og Hilmi Gauta Bjarnasyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Einn ákærða sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, hættubrot, húsbrot og vopnalagabrot. Annar dæmdur fyrir hlutdeild í hættubroti, húsbroti og vopnalagabroti hans. Þriðji dæmdur fyrir hlutdeild í hættubroti og húsbroti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. maí 2024

S-5999/2023

Ákæruvaldið (Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Aþenu Sif Eiðsdóttur (Steinbergur Finnbogason lögmaður) (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás fyrir að stinga brotaþola fimm stungum með svokölluðum butterfly-hnífi og dæmd til fjögurra ára óskilorðsbundins fangelsis.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. maí 2024

S-4677/2023

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) (Styrmir Gunnarsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Lykilorð: Tilraun til manndráps.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps þar sem hann stakk brotaþola í tvígang í brjóstkassa með hnífum þannig að slagæð fór sundur og brotaþoli þurfti að undirgangast skurðaðgerð til þess að stöðva blæðinguna sem talin var lífshættuleg.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2024

S-523/2024

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn Shokri Keryo (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Skotárás. Ákærði sakfelldur fyrir hættubrot, eignaspjöll, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fangelsi í 3 ár og 6 mánuði, sviptur ökurétti og dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2024

S-873/2024

Ákæruvaldið (Þorbjörg Sveinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jaguar Do (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður) (Guðmundur Njáll Guðmundsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt og dæmd refsing og ákvarðaðar miskabætur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en ekki var talið sýnt fram á að ákærði hefði haft ásetning til manndráps.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. febrúar 2024

S-7254/2023

Ákæruvaldið (Þorbjörg Sveinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Snæþóri Helga Bjarnasyni (Ásgeir Þór Árnason lögmaður) (Jónas Örn Jónasson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir en ekki þótt sýnt fram á ásetning til manndráps. Þá var talið að háttsemin ætti ekki undir sérákvæði um ofbeldi í nánu sambandi þar sem samband ákærða og brotaþola hefði ekki náð því að vera náið í lagalegri merkingu refsiákvæðisins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2023

S-4427/2023

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn Candido Alberto Ferral Abreu (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð: Tilraun til manndráps.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að stinga mann tvisvar í brjóstkassa með hnífi. Vegna dráttar á rannsókn málsins var refsing ákveðin fjögurra ára fangelsi þrátt fyrir refsilágmark 211. gr. almennra hegningarlaga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2023

S-1075/2023

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn Alberti Loga Skúlasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Alexander Aroni Gilbertssyni (Atli Már Ingólfsson lögmaður), Alexander Mána Björnssyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður), Arnóri Kárasyni (Páll Kristjánsson lögmaður), Ástvaldi Ými Stefánssyni (Stefán Ragnarsson lögmaður), X (Magnús Jónsson lögmaður), Y (Guðbjarni Eggertsson lögmaður), Chibuzor Daníel Edeh (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður), Cristovao A. F. Da S. Martins (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), David Gabríel S. Glascorssyni (Bjarni Hauksson lögmaður), Einari Bjarka Einarssyni (Jón Þór Ólason lögmaður), Emil Árna Guðmundssyni (Snorri Sturluson lögmaður), Fannari Inga Ingvarssyni, Guido Javier Japke Varas (Elimar Hauksson lögmaður), Halldóri Loga Sigurðssyni (Ólafur V. Thordersen lögmaður), Y (Arnar Heimir Lárusson lögmaður), Helga Þór Baldurssyni (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður), Ingibergi Alex Elvarssyni (Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður), John Petur Vágseið (Þórður Már Jónsson lögmaður), Matthias Gabriel S. Silva (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður), Mikael Alf Rodriguez Óttarssyni (Reynir Þór Garðarsson lögmaður), Reyni Þór H. Sigurjónssyni (Björgvin Jónsson lögmaður), Róberti Sindra Berglindarsyni (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður), Sigurgeiri Sæberg Elísabetarsyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) og Viktori Inga Stolzenwald Árnasyni (Páll Ágúst Ólafsson lögmaður) (Oddgeir Einarsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir tilraun til manndráps, líkamsárás og hlutdeild í líkamsárás gegn þremur brotaþolum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 26. júní 2019

S-11/2019

Héraðssaksóknari Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Sindra Brjánssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir tilraun til manndráps og vopnalagabrot. Dæmdur í sex ára fangelsi og til greiðslu miskabóta.