Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 7. nóvember 2022.
Mál nr. S-4454/2022:
Héraðssaksóknari
(Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari)
gegn
Ingólfi Kjartanssyni
(Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Lykilorð
Dómur. Játningarmál. Tilraun til manndráps. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir tilraun til manndráps og vopnalagabrot. Hann játaði brot sín skýlaust og var dæmdur í átta ára fangelsi.
Dómur
Árið 2022, mánudaginn 7. nóvember, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp dómur í málinu nr. S-4454/2022: Ákæruvaldið gegn Ingólfi Kjartanssyni, en málið var dómtekið 17. október á grundvelli 164. gr. laga nr. 88/2008. Málið er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, dagsettri 4. október 2022, á hendur: „Ingólfi Kjartanssyni, kennitala […]. […]. Reykjavik. með dvalarstað að […]. fyrir tilraun til manndráps og vopnalagabrot, með því að hafa skömmu eftir miðnætti aðfaranótt sunnudagsins 13. febrúar 2022, í bílastæðahúsi við […] í Reykjavík, skotið A með skotvopni, framanvert á brjóstkassa hægra megin rétt ofan við geirvörtu og fór skotið í gegnum hægra lunga og út á aftanverðum brjóstkassa hægra megin, en A hlaut af opið sár á brjóstkassa, áverkablæðingu í brjósthol, rifbrot og áverkaloftbrjóst. Auk þess skaut ákærði að minnsta kosti þremur skotum til viðbótar úr skotvopninu umrætt sinn sem hæfðu ekki A, en ákærði var ekki með skotvopnaleyfi og undir áhrifum vímugjafa með 3,6 ng/ml af tetrahýdrókannabínóli í blóði.
Telst háttsemi þessi varða við 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 12. gr. og 2. mgr. 21. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að ákærða verði gert að sæta upptöku á skotvopni ásamt hljóðdeyfi og 4 skothylkjum, sem haldlögð voru við rannsókn málsins, sbr. 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og l.mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Einkaréttarkrafa: Af hálfu A, kennitala […], er þess krafist að ákærða verði gert að greiða honum skaðabætur, miskabætur og málskostnað. Krafa brotaþola er sú að ákærða verði gert að greiða honum miskabætur, sbr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, að fjárhæð kr. 3.500.000,-. Vaxta af kröfum þessum er krafist skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, sbr. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, frá 13. febrúar 2022 en síðan dráttarvaxta skv. 9. gr. vaxtalaga, sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags. Einnig er krafist að ákærða verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun. Þá áskilur brotaþoli sér rétt til að leggja fram gögn á síðari stigum, sem sýna fram á það fjártjón sem hann varð fyrir, en á þessu stigi liggja ekki fyrir öll gögn varðandi sjúkrakostnað og annað fjártjón brotaþola m.a. vegna atvinnutaps.“
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða komi til frádráttar dæmdri refsivist. Málsvarnarlauna er krafist samkvæmt tímaskýrslu.
Sannað er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um brot þau sem hann er ákærður fyrir og eru brot hans rétt færð til refsiákvæða í ákærunni. Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.
Ákærði hlaut í […] 2021 tveggja ára fangelsisdóm fyrir brot gegn barnaverndarlögum, líkamsárás, þjófnað, gripdeild, rán og ránstilraun, vopnalaga- og fíkniefnalagabrot. Hann hlaut reynslulausn á eftirstöðvum refsingar sem honum hefur nú verið gert að afplána og verður ekki fjallað frekar um það í máli þessu.
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 10. mars 2022 var ákærða gert að gangast undir geðrannsókn. B geðlæknir vann geðrannsóknina á ákærða og skilaði rannsókn sinni með skýrslu dagsettri 7. apríl 2022. Í niðurstöðukafla skýrslu B segir m.a. svo: „Að mati undirritaðs er ekkert læknisfræðilegt sem kemur í veg fyrir það að refsing kynni að bera árangur ef hann reynist sekur um þau mál sem hann er ákærður fyrir.
Að mati undirritaðs eiga hvorki 15. eða 16. gr. almennra hegningarlaga við um Ingólf Kjartansson og því ekki ástæða til að svara síðustu spurningunni.“ Ákærði er sakhæfur.
Ákærði fór til fundar við A beinlínis með það í huga að meiða hann. Hann bar einnig um að hann hefði ákveðið að skjóta hann og skaut ákærði A með skotvopni eins og lýst er í ákærunni. Við þetta hlaut A þá áverka sem í ákæru greinir en áverkinn var lífshættulegur eins og ráða má af læknisvottorði.
Í læknisvottorði A sem C sérfræðilæknir ritaði og er dagsett 21. febrúar 2022 segir m.a.: „A var með augljósa áverka sem samrýmast fullkomlega að vera eftir skotsár. Útlit á sárum í húð og á áverkum á húð, rifjum og lunga á tölvusneiðmynd samrýmist einnig mjög vel að byssukúla hafi farið inn í brjóstkassann hægra megin rétt ofan við geirvörtu, í gegnum hægra lunga og út á aftanverðum brjóstkassa hægra megin en engin merki fundust um aðra áverka.
A þurfti að undirgangast aðgerð á Landspítala þar sem keri var lagður inn í brjósthol til að tæma út blæðingu og loft. Að auki fékk hann neyðarblóð vegna verulegs lágþrýstings sem rakinn var til blæðingarinnar.
Ljóst er að að um lífshættulegan áverka var að ræða og án meðferðar er hugsanlegt að áverkar hans hefðu leitt til dauða, þó er einnig mögulegt að hann hefði getað lifað þessa áverka af án meðferðar.
Nokkuð góðar líkur eru á bata eftir þennan áverka. A mun þó vera með varanleg ör á brjóstkassa eftir skotsárin sem og eftir brjóstholskerann sem lagður var. Einnig er hugsanlegt að hann verði með varanleg lungnaeinkenni eða verki frá stoðkerfi eftir rifbrotin en hann er enn til eftirlits á vegum lækna Landspítala vegna áverkans.“
Að mati dómsins var brotavilji ákærða einbeittur við verknaðinn og er lagt til grundvallar að það hafi verið beinn ásetningur ákærða að bana A. Samkvæmt 2. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga má dæma lægri refsingu fyrir tilraun en mælt er um fullframin brot. Skal það einkum gert þegar ráða má af tilrauninni að brotamaðurinn sé ekki eins hættulegur og vilji hans ekki eins harðnaður og ætla að sé um menn sem fullfremja slík brot. Með vísan til ásetningsstigs ákærða verður refsilækkunarheimild 2. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga ekki beitt en við refsiákvörðun er höfð hliðsjón af 1., 2., 3., 6. og 7. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þá er tekið mið af því að ákærði var ungur að árum er hann framdi brot sín og hann nýtur þess við refsiákvörðun að hafa skýlaust játað brot sín. Refsing ákærða er ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og þykir þannig hæfilega ákvörðuð fangelsi í átta ár. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga skal óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 13. febrúar 2022 til dagsins í dag að telja koma til frádráttar refsingunni með fullri dagatölu.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru dæmdir upptækir munir, svo sem krafist er og nánar greinir í dómsorði.
Ákærði hefur samþykkt framkomna einkaréttarkröfu og er hann dæmdur til greiðslu hennar auk vaxta eins og krafist er, en dráttarvextir reiknast frá 27. október 2022 er mánuður var liðinn frá því að bótakrafan var birt ákærða. Þá greiði ákærði 725.400 króna réttargæsluþóknun Inga Freys Hansen Ágústssonar lögmanns. Ákærði greiði 1.748.139 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar ákæruvaldsins. Ákærði greiði 2.552.850 króna málsvarnarlaun Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns og 43.434 í aksturskostnað. Þá greiði ákærði 139.520 króna málsvarnarlaun Guðmundar Ágústssonar lögmanns vegna vinnu undir rannsókn málsins. Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari flutti málið fyrir ákæruvaldið. Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Ingólfur Kjartansson, sæti fangelsi í átta ár. Til frádráttar refsingunni kemur óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 13. febrúar 2022 til dagsins í dag að telja með fullri dagatölu. Upptækt er dæmt skotvopn ásamt hljóðdeyfi og fjórum skothylkjum.
Ákærði greiði A, kennitala […], 3.500.000 krónur auk vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 13. febrúar 2022 til 27. október 2022 en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Ákærði greiði 725.400 króna réttargæsluþóknun Inga Freys Hansen Ágústssonar lögmanns. Ákærði greiði 1.748.139 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar ákæruvaldsins.
Ákærði greiði 2.552.850 króna málsvarlaun Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns og 43.434 í aksturskostnað. Þá greiði ákærði 139.520 króna málsvarnarlaun Guðmundar Ágústssonar lögmanns vegna vinnu undir rannsókn málsins. Tekið hefur verið tillit til virðisaukaskatts við ákvörðun þóknunar lögmanna.
Guðjón St. Marteinsson