Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Sóttvarnarlög
Íslenska ríkið sýknað af kröfu einstaklings sem krafðist miskabóta þar sem honum hafi með ólögmætum hætti verið haldið í sóttkví vegna gruns um að hann væri smitaður af SARS-CoV-2 veirunni (COVID-19) í nóvember 2021.
Ákæruvaldið (
Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Reyni Erni Guðrúnarsyni (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, brot gegn sóttvarnarlögum, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna sviptur ökurétti og vörslur fíkniefna og frammistöðubætandi efna.
Ákæruvaldið (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Björgvin Sigmari M. Ómarssyni (
Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Sakfellt fyrir ofbeldi í nánu sambandi, tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, tilraun til hylmingar, fíkniefnabrot, þjófnað, húsbrot, eignaspjöll, nytjastuld, brot gegn lögreglulögum, brot gegn sóttvarnarlögum o.fl. Sýknað af hluta af ákæru eða háttsemi felld undir vægari refsiákvæði eða tilraun. Refsing var ákveðin 18 mánaða fangelsi og var um að ræða hegningarauka við eldri dóm.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Mohamad Kourani (
Stefán Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, skjalafals, nokkur brot gegn valdstjórninni, fyrir að gabba lögreglu, brot á sóttvarnarlögum og vopnalagabrot.
Ágreiningur málsins laut að gildi ákvörðunar S um að A skyldi dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi á grundvelli 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 355/2021 þar til niðurstaða úr seinni sýnatöku reyndist neikvæð, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar. Í úrskurði Landsréttar kom fram að S skorti lögvarða hagsmuni af því að Landsréttur leysti úr kröfu hans og var málinu því vísað frá dómi án kröfu.