Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 233/2001"

255 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2026 kl. 12:54

S-749/2026

Héraðssaksóknari (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Audrius Ablingis (Birkir Már Árnason lögmaður) og Jonas Mockevicius (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelldir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 1.003,59 g af kókaíni. Annar ákærðu var jafnframt sakfelldur fyrir vörslur kókaíns og amfetamíns á heimili sínu, en sýknaður af ákæru fyrir vörslur stinningarlyfja eins og ákæru var háttað. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 18 og 20 mánuði.

...65/1974 með síðari breytingum, né heldur í reglugerð nr. 233/2001, sbr. síðari breytingar. 9 45. Ákærða eru gefnar að sök vörslur umrædds efnis, en ekki á því byggt...

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. maí 2026 kl. 17:34

S-478/2026

Ákæruvaldið (Valborg Steingrímsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ionut Mihai Dinescu (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot

...fylgiskjali I með reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum.“ Í málinu liggur matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræðum. dags...

Landsréttur birt 19. nóvember 2025

790/2025

Ákæruvaldið (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Sverrir Halldórsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að Á yrði gert skylt að afla frekari gagna um rannsóknir Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði á blóðsýnum sem tekin voru úr X. Fram kom í úrskurði Landsréttar að krafa X yrði ekki skilin svo að hún vísaði til tiltekins gagns sem þegar væri til. Lyti krafan að meginstefnu til að því að Á aflaði tiltekinna upplýsinga í þágu meðferðar sakamálsins sem höfðað hafi verið gegn X. Úrskurður þess efnis sætti ekki kæru samkvæmt 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var kæru X því vísað frá Landsrétti.

...3 Úrslitum ræður síðan að samkvæmt reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni sbr. fylgiskjal I með þeirri reglugerð, sbr. 1. gr. reglugerðarinnar, eru bæði...

Landsréttur birt 13. nóvember 2025

987/2024

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Mikkael Ingiberg Gunnlaugssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

M var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum og flutt inn til landsins í þrjátíu pakkningum rúm 32 kg af efni sem hafði að geyma fíkniefnið DMT með 1,8% til 2,1% styrkleika, 51,98 grömm af DMT í formi grænna laufa og 392,17 grömm af Kratom. Þá var M sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökurétti í tvö ár. Var M gert að sæta fangelsi í átján mánuði, sem bundið var skilorði til tveggja ára og upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum.

...síðari breytingum og [sé] x merkt í fylgiskjali I með reglugerð um [...] breytingu á reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.“ Í málinu liggur matsgerð...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. október 2025

S-3089/2025

Héraðssaksóknari (Hilda Rut Harrysdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Rafal Terentiuk (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.

...fylgiskjali I með reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum. Lögregla leitaði upplýsinga um viðskipti ákærða við banka og fjármálafyrirtæki hér á...

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. september 2025

S-1881/2025

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Anjes Leyen Rohde (Elías Kristjánsson lögmaður) og X (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots

...Það er ekki að finna í fylgiskjali I með reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum.“ Í síðari bráðabirgðamatsgerðinni er rakin rannsókn...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júlí 2025

S-2045/2025

Ákæruvaldið (Áslaug Benediktsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Árna Júlíussyni og Heiðu Hrönn Jóhannsdóttur (Helgi Jóhannesson lögmaður), Guðmundi Þór Böðvarssyni (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður), Jóhannesi Bjarna Bjarnasyni (Páll Ágúst Ólafsson lögmaður) og og Leifi Eiríkssyni (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Einn ákærðu sakfelldur fyrir ræktun samtals 275 kannabisplantna í sölu- og deifingarskyni í tveimur kannabisræktunum. Fjórir aðrir sakfelldir fyrir hlutdeild og tilraun til hlutdeildar vegna annarrar ræktunarinnar. Ákvörðun refsingar tók mið af töf á rannsókn og útgáfu ákæru.

...65/1974 um ávana- og fíkniefni og reglugerð nr. 233/2001, sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga en ákærða verður ekki sakfelld fyrir hlutdeild á öðrum lagagrundvelli en ákærði Jóhannes Bjarni...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. júní 2025

S-5278/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Ingibjörgu Björnsdóttur (Sverrir Halldórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja og dæmd í 90 daga fangelsi og til ævilangrar sviptingar ökuréttar.

...desember 2024, ákærð fyrir að hafa í alls sex tilvikum ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna samkvæmt fylgiskjali I við reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júní 2025

S-831/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Elvari Elí Halldórssyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.

...65/1974 um ávana- og fíkniefni með síðari breytingum, og sé X-merkt í fylgiskjali I með reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2025

S-6864/2024

[…]. Í endanlegri mynd er ákæran svohljóðandi „fyrir eftirtalin brot I (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn ákærða X fyrir eftirfarandi brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana-, fíkniefni 1. Fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa föstudaginn 4. júní 2021 (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), sótt (Snorri Sturluson lögmaður) og þann (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Í málinu voru ákærðu X og Y sakfelldir fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart A. Ákærði Y var einnig sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, brot gegn blygðunarsemi, kynferðislega áreitni og ólögmæta nauðung gagnvart A á meðan á frelsissviptingunni stóð. X var auk þess sakfelldur fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Loks var Z sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, og kynferðislega áreitni á meðan á framangreindri frelsissviptingu stóð.

...á lista yfir ólögleg ávana- og fíkniefni samkvæmt lögum nr. 65/1974, sbr. reglugerð nr. 233/2001 ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Ákærða var ljóst að til stóð...

Landsréttur birt 10. apríl 2025

480/2024

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Karli Brooke Herman Gunnarsyni (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

K var ákærður fyrir fíkniefnalagabrot í þremur ákæruliðum með því að hafa tilgreint magn fíkniefna í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni. Með dómi Landsréttar var K sakfelldur fyrir vörslur tilgreindra fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni samkvæmt fyrsta ákærulið. K var einnig sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna sem um ræddi í öðrum og þriðja ákærulið. Þá var magn fíkniefnanna ekki slíkt að það gæfi eitt og sér tilefni til ályktunar um sölutilgang. Var K því sýknaður af því að hafa ætlað fíkniefnin samkvæmt öðrum og þriðja ákærulið til sölu og dreifingar. Var refsing K ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2008. 10 Í ákæru er jafnframt krafist upptöku á samtals 13...

Landsréttur birt 5. mars 2025

154/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Gæsluvarðhald.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

...Efni í þessum flokki eru meðal annars talin hafa örvandi verkun og teljast til ávana- og fíkniefna samkvæmt fylgiskjali I með reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. febrúar 2025

S-7862/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn Arnari Þorvaldssyni (Aðalheiður Helgadóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsinar fyrir fíkniefnalagabrot.

...einnig fylgiskjal I með reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni með síðari breytingum. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2024

S-274/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Óskari Svani Barkarsyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur til refsingar fyrir akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna. Var honum gert að greiða 150.000 króna sekt auk þess sem hann var sviptur ökurétti í þrjú ár frá birtingu dómsins.

...Samkvæmt fylgiskjali I við reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum, telst amfetamín til efna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði, sbr...

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. desember 2024

S-1046/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Steindóri Einarssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, peningaþvætti, vopnalagabrot og brot á umferðarlögum. Fallist að mestu á upptökukröfur ákæruvalds.

...65/1974 eða að finna á lista í fylgiskjali með reglugerð nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Helst má ráða að lyfið sé lyfseðilsskylt og heyrir varsla þess...

Landsréttur birt 12. desember 2024

363/2024

Íslenska ríkið (Þorvaldur Hauksson lögmaður) gegn A (Leó Daðason lögmaður)

A var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar 15. nóvember 2018. Í lögregluskýrslu kom fram að grunur hefði vaknað um akstur undir áhrifum fíkniefna og var A handtekinn og færður á lögreglustöð. A var gert að sæta blóð- og þvagrannsókn og greindist umbrotsefni THC sem er í kannabis í þvagi hans. Seinna var rannsókn á máli A hætt. Höfðaði A málið til heimtu bóta vegna þvingunaraðgerða sem hann hafði verið beittur, bæði handtöku og líkamsrannsókn. Í dómi Landsréttar var rakið að með hliðsjón af 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar stæðu efnisrök til að beita bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með lögjöfnun um handtöku A og jafnframt stæðu efnisrök til að beita bótareglunni og þá blóð- og þvagrannsókn sem A varð að sæta meðan hann var sviptur frelsi á grundvelli 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Landsréttur vísaði til þess að skilyrðum 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 fyrir bótaábyrgð Í væri fullnægt. Aftur á móti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að A hefði valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Samkvæmt niðurlagi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þótti rétt að fella að öllu leyti niður bætur til A. Var því fallist á kröfu Í um sýknu af kröfu A.

...Á grundvelli þeirrar heimildar hefur verið sett reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Samkvæmt 2. gr. þeirrar reglugerðar er varsla ávana- og fíkniefna, sem...

Landsréttur birt 3. desember 2024

939/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem heimiluð var rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi nokkurra raftækja X sem hald hafði verið lagt á í þágu rannsóknar.

...65/1974 og reglugerð nr. 233/2001 og hefur lögregla haldlagt við rannsókn málsins fartölvu, farsíma og Ipad í eigu kærðu. Hún hefur ekki viljað fallast á það að lögregla...

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. júlí 2024

S-896/2024

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Adam Benito Pedie (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot vegna skipulagningar, fjármögnunar og innflutning fíkniefna til landsins í þrjú aðskilin skipti, í tvö skipti með sitt hvorum einstaklingnum sem aðeins fluttu efnin til landsins (burðardýr) en í eitt skipti með póstsendingu. Ákærði var einnig sakfelldur fyrir skjalabrot og vörslur ávana- og fíkniefna. Ákærði var dæmdur í þriggja ára fangelsi.

...808/2018 um (10.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Meðal gagna málsins er skýrsla lögreglu, dags. 18. desember 2023, um flug...

Héraðsdómur Reykjaness birt 27. júní 2024

S-438/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Allam Shaban (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot.

...fylgiskjal I með reglugerð nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018, sem sett eru með stoð í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 65/1974. Í málinu liggur ekkert...

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. júní 2024

S-887/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Bartosz Wesolowski
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða var gefið að sök að hafa í vörslum sínum talvert magn fíkniefna og fyrir vörslu vopns. Ákærði játaði sök fyrir dómi og fór málið eftir 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. III. Fyrir vopnalagabrot, með því að hafa, þriðjudaginn 27. febrúar...

Landsréttur birt 24. maí 2024

337/2023

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Odisea Cuedari (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður), Jana Zyla (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður, Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður, 4. prófmál) og Kristina Zyla (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

O var ákærður fyrir brot gegn 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni fyrir að hafa í tvö skipti haft í vörslum sínum fíkniefni ætluð til söludreifingar í ágóðaskyni. Krafðist O sýknu af kröfum sem lutu að þeirri háttsemi. Í dómi Landsréttar var rakið að tölverðs misræmis gætti í framburði ákærða en slíkt misræmi rýrði verulega trúverðugleika O í heild sinni. Fíkniefnin hefðu verið geymd í smelluláspokum, ásamt reiðufé sem hann gat ekki gert grein fyrir. Renndi það stoðum undir þá ályktun að fíkniefnin hefðu ekki verið ætluð til einkanota O, auk þess sem um var að ræða töluvert magn fíkniefna í seinna tilvikinu. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var sakfelling O staðfest. Þá voru O, J og K ákærð fyrir peningaþvætti, sbr. 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, fyrir að hafa um nokkurt skeið, fram að handtöku þeirra, tekið við tilgreindum fjármunum frá óþekktum aðila eða aðilum sem þeim hafi ekki getað dulist að væri ávinningur af refsiverðum brotum. Kröfðust O, J og K frávísunar sakargifta samkvæmt þessum ákærukafla á grundvelli c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um skýrleika ákæru. Fram kom í dómi Landsréttar að um skýrleika ákæru sem lyti að peningaþvætti yrði að líta til eðlis slíkra brota. Í lögskýringargögnum kæmi fram að líta bæri á peningaþvætti sem sjálfstætt brot sem refsað yrði fyrir þótt ekki væri samhliða ákært fyrir tiltekið frumbrot. Meginmarkmiðið með því að gera háttsemina refsiverða væri að höggva að rótum afbrota með því að uppræta aðalhvata þeirra, þann ávinning sem af þeim kynni að leiða. Á hinn bóginn þyrfti í ákæru að greina frá og afmarka að hvaða verðmætum ávinningurinn lyti enda hefði viðtaka, nýting eða öflun ávinnings grundvallarþýðingu um hvort háttsemi félli undir verknaðarlýsingu 1. mgr. 264. gr. almennra hegningaralaga. Þá hefði í dómaframkvæmd ekki verið gerð sú krafa að fyrir lægi um hvaða brot væri nákvæmlega að ræða, heldur nægði að sýna fram á með óyggjandi hætti að útilokað væri að ávinningurinn væri til kominn á lögmætan hátt. Í samræmi við meginreglu 108. gr. laga nr. 88/2008 hvíldi sönnunarbyrði á ákæruvaldinu fyrir því að ávinningurinn stafaði af refsiverðum brotum. Fram kom að þótt lýsing á brotatímabili í ákæru væri ekki nákvæm yrði að líta til dómaframkvæmdar Hæstaréttar í málum þar sem reynt hefði á sambærilega afmörkun á verknaðartíma. Því væri lýst í ákærunni hver sú háttsemi væri sem ákært var fyrir, hvar og hvenær brotið væri talið hafa verið framið, heiti þess að lögum og jafnframt lýst þeim ávinningi sem orðið hefði af brotinu, fjárhæðum sem ákærðu hefðu tekið við og skipt. Ekki væru þeir ágallar á ákæru að O, J og K gætu ekki af henni ráðið hvaða refsiverðu háttsemi þau voru sökuð um. Engu breytti þótt í ákæru væri í verknaðarlýsingunni eingöngu vísað til þess að ákærðu hefðu tekið við tilgreindri fjárhæð í evrum frá „óþekktum aðila eða aðilum“, enda lyti ætluð refsiverð háttsemi að því að hafa móttekið fjármunina í íslenskum krónum og skipt þeim í tiltekna fjárhæð í evrum. Þá hefðu ákærðu ekki sýnt með neinum hætti fram á að fjármunanna hefði verið aflað með lögmætum hætti. Að því gættu var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu O, K og J fyrir peningaþvætti. Þá var með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms staðfest ákvæði hans um refsingu. Ákærðu var gert að sæta skilorðsbundnu fangelsi, O í sex mánuði, J í fjóra mánuði og K í tvo mánuði. Loks var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakarkostnað og upptökukröfur ákæruvaldsins.

...65/1974 um ávana- og fíkniefni og reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni fyrir að hafa í tvö skipti haft í vörslum sínum fíkniefni...

Landsréttur birt 17. maí 2024

483/2022

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður) og Y (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X var gefið að sök fíkniefnalagabrot og lyfjalagabrot. Landsréttur vísaði frá héraðsdómi, vegna óskýrleika ákæru, hluta ákæru þar sem X var gefið að sök að hafa allt frá árinu 2013 og til 6. mars 2019 selt og afhent ótilgreindum fjölda fólks lyfseðilsskyld lyf og ávana- og fíknilyf, án þess að hafa til þess markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar, en taldi seinni hlutann þar sem tilgreind voru þau lyf og ávana- og fíknilyf sem X hafði í vörslum sínum í þrjú nánar tilgreind skipti á árunum 2018 og 2019, í sölu- og afhendingarskyni, án þess að hafa markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar, uppfylla kröfur um skýrleika ákæru, sbr. c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu X af þeim hluta sakargifta sem eftir stóðu. Þá var X sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa haft nánar tilgreind vopn í vörslum sínum. Loks var X sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa, á tímabilinu frá 28. september 2012 til 30. október 2018, tekið við, nýtt, umbreytt, afhent og/eða aflað sér ávinnings allt að 84.449.884 krónum með sölu og dreifingu sinni á ótilteknu magni lyfja, sbr. I. kafla ákæru, og eftir atvikum með öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti. Y var jafnframt gefið að sök peningaþvætti með því að hafa, á tímabilinu frá 28. september 2012 til 30. október 2018 tekið við, nýtt, umbreytt, afhent og/eða aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 23.826.637 krónum, sem talinn var kominn til af refsiverðum brotum X og eftir atvikum öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki væri um að ræða aðra lýsingu á frumbrotinu en tilvísun til refsiverðra brota X, án frekari afmörkunar, og eftir atvikum til annarrar ólögmætrar og refsiverðrar háttsemi. Enga aðra tilvísun væri þar að finna til þeirra frumbrota sem Y væri talin hafa haft ávinning af, né heldur hvers efnis þau frumbrot væru eða eftir atvikum hvaða brotaflokki þau tilheyrðu. Þá væri í ákærunni ekki að finna fullnægjandi lýsingu á því í hverju sú öflun ávinnings fólst, af hálfu Y umfram það sem hefði falist í frumbrotum X. Yrði því ekki talið að nægileg lýsing kæmi fram í ákærunni á þeirri refsiverðu háttsemi sem ákæran á hendur Y byggði á um þetta atriði. Var þegar af þessum sökum talið að lýsing ákæruefnisins uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um skýrleika og að ágallarnir væru verulegir. Var því óhjákvæmilegt að vísa sakargiftum á hendur Y frá héraðsdómi án kröfu. Við ákvörðun refsingar X var litið til 1., 5. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr., 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um upptöku nánar tilgreindra ávana- og fíknilyfja, eignarhluta í tilgreindri fasteign, vopna, peninga og muna.

...Virku efnin eru á lista í fylgiskjali I með reglugerð nr. 233/2001, sem sett er með stoð í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 65/1974. Í því lagaákvæði...

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. apríl 2024

S-1967/2023

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Karl Brooke Herman Gunnarsson (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Lykilorð: Fíkniefnalagabrot. Upptaka.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir fíkniefnalagabrot.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Mál nr. […] II. Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, þriðjudaginn...

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. mars 2024

S-132/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Maksims Nazarovs (Birkir Már Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir fíkniefnalagabrot. Um hegningarauka var að ræða.

...sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerð nr. 233/2001. Jafnframt er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að sæta upptöku á...

Héraðsdómur Reykjaness birt 1. mars 2024

S-1531/2022

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Mikkael Ingibergi Gunnlaugssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot.

...síðari breytingum og [sé] x merkt í fylgiskjali I með reglugerð um [...] breytingu á reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.“ Í málinu liggur matsgerð...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. janúar 2024

S-3882/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Kristjáni Elí Hlynssyni (Eva Hauksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.

...65/1974 um ávana- og fíkniefni m síðari 3 breytingum og er x-merkt í fylgiskjali I með reglugerð um (10.) breytingu um reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og...

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. janúar 2024

S-1966/2023

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Pétri Ágústi Berthelsen (Úlfar Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. II. Fyrir peningaþvætti, með því að hafa um nokkurt skeið...

Landsréttur birt 8. desember 2023

157/2023

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Hilmari Erni Albertssyni (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

H var sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum samtals 224 töflur af ávana- og fíknilyfinu OxyContin (virkt efni: Oxýkódon) og 321 töflu af ávana- og fíknilyfinu Alprazolam Krka (virkt efni: Alprazolam) sem lögregla fann við öryggisleit á H og í ruslafötu á salerni. Var háttsemi H talin varða við 1. mgr. 3. gr., sbr. 4. mgr. sömu greinar, sbr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, og 3. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Hins vegar var ekki á það fallist að háttsemi H varðaði við 2. og 6. gr. sömu reglugerðar. Tók Landsréttur fram að hvorki Alprazolam né Oxýkódon væru á meðal bannaðra fíknilyfja samkvæmt 2. gr. reglugerðarinnar og varðaði varsla þeirra því ekki við ákvæðið. Þá ætti 6. gr. reglugerðarinnar ekki við, enda lyti ákvæðið að inn- og útflutningi, framleiðslu og sölu í heildsölu á lyfjum, sem merkt eru á tilgreindan hátt í fylgiskjölum með reglugerðinni, en ekki að vörslu þeirra. Með háttsemi sinni rauf H skilorð fimm mánaða refsidóms frá nóvember 2021 og var refsing hans ákveðin með vísan til 60. gr. og 77. gr. almenna hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing H ákveðin fangelsi í átta mánuði og honum gert að sæta upptöku á fyrrnefndum ávana- og fíknilyfjum.

...Virka efnið í þeim, annars vegar oxýkódon og hins vegar alprazolam, eru aftur á móti á lista í fylgiskjali I með reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og...

Landsréttur birt 3. nóvember 2023

651/2022

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Leifur Runólfsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir tvær líkamsárásir samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 gegn A þáverandi sambýliskonu sinni. Í fyrra skiptið með því að hafa tekið A hálstaki með báðum höndum en í seinna skiptið með því að hafa slegið í hendi hennar þar sem hún hélt á farsíma sem við það lenti í andliti hennar, síðan tekið hana hálstaki með báðum höndum og þrengt að hálsi hennar. Þá var X sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum tiltekið magn fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um tvær líkamsárásir gegn þáverandi sambýliskonu hans og barnsmóður væri að ræða sem horfði til refsiþyngingar, sbr. 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. X hefði að nokkru viðurkennt þá háttsemi sem hann væri sakfelldur fyrir og horfði það honum til málsbóta. Hafnaði Landsréttur því að beitt yrði refsilækkunarástæðu 3. mgr. 218. gr. c almennra hegningarlaga vegna seinni líkamsárásarinnar. Var X gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða A 700.000 krónur í miskabætur auk vaxta. Loks voru gerð upptæk fíkniefni sem lögregla lagði hald á.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018 og reglugerð nr. 105/2021. 5 Þess er krafist að...

Landsréttur birt 13. júlí 2023

531/2023

Ríkissaksóknari (Pétur Hrafn Hafstein aðstoðarsaksóknari) gegn X (Friðrik Smárason lögmaður)

Staðfest var ákvörðun ríkissaksóknara um að verða við beiðni um afhendingu X til Lettlands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.

...séu meðal þeirra ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði, sbr. reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum, sbr. breytingarreglugerðir...

Landsréttur birt 4. júlí 2023

499/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Friðrik Smárason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðahaldi til að koma í veg fyrir að X viki sér undan málsmeðferð samkvæmt lögum nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar.

...meðal þeirra ávana- og fíkniefna sem bönnuð 5 eru á íslensku yfirráðasvæði, sbr. reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum, sbr. breytingarreglugerðir...

Landsréttur birt 23. júní 2023

632/2022

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)

X var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 13.986 stykkjum af töflum sem innihéldu flúbrómazólam, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Í héraði var farið með málið sem játningarmál eftir ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og X sakfelldur fyrir það sem honum var gefið að sök í ákæru. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki hefðu verið efni til að líta svo á að ákærði hefði með skýlausum hætti játað þá háttsemi sem honum væri gefin að sök samkvæmt ákæru, og að sú játning hefði verið studd sakargögnum, þannig að unnt hefði verið að fella dóm á málið eftir ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008. Var héraðsdómur því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.

...65/1974 um ávana- og fíkniefni, með síðari breytingum og er X-merkt í fylgiskjali I með reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni...

Héraðsdómur Reykjaness birt 25. maí 2023

S-2208/2022

Ákæruvaldið (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Richardt Anthon Sören Larsen (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir allmarga þjófnaði, auk fíkniefnalagabrota og dæmdur í 10 mánaða óskilorðsbundið fangelsi.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018, og þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og...

Héraðsdómur Austurlands birt 9. maí 2023

S-46/2022

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Sigurður Hólmar Kristjánsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gísli Tryggvason lögmaður)
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir brot á ávana- og fíkniefnalöggjöfinni. Málsbætur.

...65/1974 hefur verið sett reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingareglugerðum, m.a. nr. 808/2008. Í fylgiskjölum I og II...

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 5. apríl 2023

S-332/2022

Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Lóu Dögg Grétarsdóttur (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Lykilorð: Lyf. Þjófnaður. Vörslur.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir þjófnað og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefna.

...Byggir sýknukrafa á því að þau lyf sem upp eru talin í ákæru séu ekki á lista í fylgiskjölum með reglugerð nr. 233/2001 og breytingareglugerðum þar á. Því séu...

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. mars 2023

S-450/2023

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Odisea Cuedari (Snorri Vidal lögmaður), Jana Zyla (Gunnar Gíslason lögmaður), Kristina Zyla (Þórður S. Sveinsson lögmaður) og Aurela Qama (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu sakfelld fyrir peningaþvætti auk þess sem einn ákærði var einnig sakfelldur fyrir sölu og dreifingu fíkniefna.

...65/1974 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. B. Gegn ákærðu Odisea, Jana, Kristina og Aurela fyrir peningþvætti...

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. febrúar 2023

S-1523/2022

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Ólafi Gottskálkssyni (Ásta Björk Eiríksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, umferðarlagabrot og vörslur kannabisefna. Einnig dæmdur til greiðslu miskabóta.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og...

Héraðsdómur Reykjaness birt 21. desember 2022

S-8/2022

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Andrzej Nurzynski (Axel Kári Vignisson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir brot á lyfja-, áfengis- og tóbaksvarnarlögum. Upptaka. Sýkna að hluta.

...65/1974 með síðari breytingum, né heldur í reglugerð nr. 233/2001, sbr. síðari breytingar. Um sé að ræða stinningarlyf en ekki ávana- og fíknilyf. Því beri að sýkna ákærða...

Landsréttur birt 4. nóvember 2022

536/2021

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Hannes J. Hafstein lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir ítrekuð, alvarleg og stórfelld brot í nánu sambandi, gegn þáverandi og fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, A, með því að hafa ítrekað ógnað lífi hennar, heilsu og velferð með nánar tilgreindum hætti. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa veist að samfanga sínum, B, og stungið sex sinnum í læri hans með skærum sem X hafði tekið í sundur. Í dómi Landsréttar er rakið að brot X gagnvart A hafi verið ófyrirleitin og til þess fallin að valdi henni og ófæddu, og síðar nýfæddu, barni þeirra miklum skaða. Þá hafi árás X á B verið háskaleg. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár og honum var gert að greiða A miskabætur.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 490/2001, reglugerð nr. 248/2002 og reglugerð nr. 848/2002. Þess...

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. október 2022

S-293/2022

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn Hákoni Traustasyni (enginn)
Lykilorð: Fíkniefnalagabrot.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um fíkniefnalagabrot og var gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk upptöku fíkniefna og greiðslu sakarkostnaðar.

...105/2021 um breytingu á reglugerð nr. 233/2001. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrár lögreglu nr. 46572...

Landsréttur birt 3. október 2022

592/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var áfram gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100 gr., sbr. b-lið 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

...síðari breytingum og er x-merkt í fylgiskjali I með reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkmniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Áætlað söluandvirði er...

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. ágúst 2022

S-559/2022

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Jakub Polkowski (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og peningaþvætti. Upptaka á fíkniefnum og farsíma

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. (Mál nr. 008-2021-4846). III. Fyrir fíkniefnalagabrot, með því...

Landsréttur birt 13. júlí 2022

453/2022

Héraðssaksóknari (Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Farbann. Útlendingur.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr., sbr. b-lið 95. gr. sömu laga.

...65/1974 um ávana- og fíkniefni og reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Með vísan til þess er fallist á að varnaraðili sé undir...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2022

S-1762/2021

Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði X sakfelldur fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og lyfjalögum, vopnalagabrot og peningaþvætti. Ýmsir munir og ávinningur af peningaþvætti gert upptækt. Ákærða Y var sakfelld fyrir peningaþvætti. Ákærðu Z og U voru sýknuð af ákæru en U gert að sæta upptöku á vopnum.

...65/1974 um ávana- og fíkniefni og reglugerð nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Fram kemur í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 65/1974 að ráðherra sé...

Landsréttur birt 4. júlí 2022

415/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (María Káradóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Birkir Már Árnason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli a- og b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun meðan á því stendur.

...síðari breytingum og er x-merkt í fylgiskjali I með reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Áætlað söluandvirði er...

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. júní 2022

S-1002/2022

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Filip Lugos
Lykilorð: Fíkniefnalagabrot.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og...

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. maí 2022

S-1978/2021

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð: Líkamsárás. Miskabætur.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir og gert að greiða brotaþola 700.000 krónur í miskabætur.

...68/2001 og reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018 og reglugerð nr. 105/2021. Þess er krafist að ákærði...

Landsréttur birt 17. desember 2021

258/2021

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Inga Þór Jónssyni (Ágúst Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

I var sakfelldur fyrir umferðar-, lögreglu- og fíkniefnalagabrot. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að I hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Á hinn bóginn yrði að horfa til þess að hann var sakfelldur fyrir að hafa alls níu sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna frá 5. mars 2020 til 6. nóvember sama árs, þar af einu sinni sviptur ökuréttindum, auk annarra brota á umferðarlögum, lögreglulögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Að teknu tilliti til fyrirmæla 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var hæfileg refsing hans ákveðin sekt að fjárhæð 1.985.000 krónur og kæmi 56 daga fangelsi í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins. Með vísan til 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 var I einnig sviptur ökurétti í fimm ár. Þá var fallist á upptöku þeirra fíkniefna sem I hafði haft í vörslum sínum og hald var lagt á.

...Samkvæmt fylgiskjali I við reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, með síðari breytingum, telst amfetamín, kókaín og metamfetamín til efna sem bönnuð eru á...

Landsréttur birt 17. desember 2021

240/2021

Ákæruvaldið gegn Aroni Árnasyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa margítrekað ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af sjö sinnum undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk slævandi lyfja í eitt skipti, akstur yfir löglegum hámarkshraða í fimm skipti og akstur gegn rauðu umferðarljósi í tvö skipti. Þá var A sakfelldur fyrir að hafa í tvígang haft í vörslum sínum ávana- og fíkniefni. Samkvæmt dómvenju, að virtum sakaferli A og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var staðfest niðurstaða héraðsdóms um 22 mánaða fangelsisrefsingu og ævilanga ökuréttarsviptingu. Ekki þóttu efni til að binda refsinguna skilorði.

...74/1965, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, sbr. reglugerð nr. 233/2001 með síðari breytingum, sbr. 2. - 4. gr. nefndra laga. Þess er krafist að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. júní 2021

S-3851/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Söndru Rún Raybould (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða m.a. dæmd fyrir umferðarlagabrot, líkamsárásir og þjófnað og dæmd í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og sviptingar ökuréttinda.

...74/1965, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, sbr. reglugerð nr. 233/2001 með síðari breytingum, sbr. 2.–4. gr. nefndra laga. Þess er krafist að...

Hleð fleiri dómum…