Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1967/2023:

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Karl Brooke Herman Gunnarsson

(Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)

Fíkniefnalagabrot. Upptaka.

Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir fíkniefnalagabrot.

Dómur

Mál þetta, sem var dómtekið 5. mars 2024, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 2. ágúst 2023 á hendur ákærða, Karli Brook Herman Gunnarssyni, kt. 000000-0000, […]: „fyrir eftirfarandi fíknefnalaga-, […]- og […];

I.

Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, laugardaginn 14. ágúst 2021, á heimili sínu að […], haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni, 5,28 g af metamfetamíni – kristöllum og 1,16 g af maríhúana, sem lögregla fann við húsleit og lagði hald á. Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Mál nr. […]

II.

Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, þriðjudaginn 15. mars 2022, á heimili sínu að […], haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni, 5,32 g af amfetamíni og 9,33 g af maríhúana, auk þess að hafa haft í vörslum sínum 0,35 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, en lögregla fann efnin við húsleit og lagði hald á þau. Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Mál nr. […]

III.

Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 12. febrúar 2023, á heimili sínu að […], haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni, 8,13 g af amfetamíni, 3,63 g af kókaíni og 4,29 g af maríhúana, sem lögregla fann við húsleit og lagði hald á. Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Mál nr. […]

IV.

[…]

V.

[…] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Jafnframt er krafist upptöku á samtals 13,45 g af amfetamíni, 5,28 g af metamfetamíni – kristöllum, 14,78 g af maríhúana, 3,63 g af kókaíni og 0,35 g af tóbaksblönduðum kannabisefnum, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. ákæruliði I, II og III. „ Á dómþingi 21. september 2023 neitaði ákærði sök og hafnaði upptökukröfu. Við upphaf aðalmeðferðar málsins féll ákæruvaldið frá ákæruliðum IV og V í ákæru, með vísan til 2. mgr. 153. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði játaði á sama tíma vörslur þeirra fíkniefna sem tilgreind eru í ákærulið I en neitaði sölu og dreifingu.

Af hálfu ákærða er krafist sýknu að því er varðar sölu og dreifingu efna samkvæmt ákærulið I og sýknu vegna ákæruliða II og III. Fyrir vörslur samkvæmt ákærulið I og verði ákærði sakfelldur vegna ákæruliða II og III, er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Ákærði fellst á upptöku fíkniefna samkvæmt ákærulið I en kveðst ekki eiga önnur efni sem krafist er upptöku á. Þá krefst skipaður verjandi ákærða þóknunar sér til handa samkvæmt tímaskýrslu, sem greiðist úr ríkissjóði.

Málavextir

Ákæruliður I.

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var þann 14. ágúst 2021 framkvæmd húsleit á dvalarstað ákærða að […] á grundvelli dómsúrskurðar vegna gruns um vörslu og sölu ávana- og fíkniefna. Við leitina fannst m.a. meint kannabis í einum smelluláspoka, hvítt óþekkt efni í smelluláspoka, og meintir ofskynjunarsveppir í smelluláspoka inni í skáp á baðherbergi, í þvottahúsi fannst hvítt óþekkt efni í tveimur smelluláspokum og tveir 20 lítra kútar af meintu metanóli, í bílskúr fundust átta 20 lítra kútar af meintu metanóli auk þess sem óþekkt efni fundust í eldhúsi og í skrifborðsskúffu. Ákærði kannaðist ekki við nein efni á heimilinu, hvorki meint fíkniefni eða meint metanól. Ákærði var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Samkvæmt efnaskýrslu Tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu reyndust vera 1,16 grömm af maríhúana í smellupoka og 5,28 grömm af metamfetamíni – kristöllum í smellupokum, sem fundust á baðherbergi ákærða.

Ákærði heimilaði lögreglu ekki afritun og skoðun á síma sínum og var aflað dómsúrskurðar þar að lútandi þann 19. ágúst 2021. Við skoðun á afriti úr síma mátti sjá allmörg samskipti ákærða við ýmsa aðila er vörðuðu sölu og dreifingu á fíkniefnum, sem og hvernig greiðslur ættu að fara fram, þ.e. með millifærslu eða greiðslu peninga við afhendingu efnanna.

Meðal gagna málsins eru hluti samskipti ákærða í farsíma hans frá desember 2020 til ágúst 2021. Þar má m.a. sjá samskipti við A að kvöldi 8. júlí 2021 þar sem A spurði hvort ákærði væri með eitthvað hress sem hann þurfti að redda í flýti, ákærði kvaðst geta fundið út úr því um kvöldið og spurði hvað A þyrfti mörg. A sagðist vera að spá í ás. Um morguninn daginn eftir, þann 9. júlí, spurði A hvort hann mætti millifæra á ákærða sem ákærði játaði og sendi bankanúmersupplýsingar. Í bankaupplýsingum ákærða sést millifærsla á 5.000 krónum frá A til ákærða þann 9. júlí 2021. A hafði samband við ákærða 1. ágúst 2021 og spurði hvort ákærði ætti Viagra til að selja sér sem ákærði játaði en A spurði hvað það kostaði. B sendi ákærða skilaboð 30. júlí 2021 og spurði hvort hún fengi hress hjá þeim en ákærði kvaðst ekkert eiga en B talaði einnig um að þau ættu „spítt“. Þann 5. ágúst 2021 fékk ákærði skilaboð frá C þar sem hann spurði hvort ákærði ætti Kamarga eða eitthvað álíka og ákærði kvaðst geta fundið út úr því. Ákærði sagði C að kíkja við hjá sér en þá myndu þeir ræða verð. C millifærði 6.000 krónur til ákærða 5. ágúst 2021. D sendi ákærða skilaboð 27. desember 2020 þar sem hann kvaðst þurfa að kíkja við hjá ákærða til að gefa ákærða knús og svo vantaði hann meiri hraða líka. Voru þeir í frekari samskiptum 13. febrúar 2021 þar sem ákærði spurði m.a. hvort D púaði ekki illgresi sem D kvaðst gera. Ákærði kvaðst þá hafa keypt 10g af geggjuðum Chemdawg sem væri ógeðslega flottur og professional smókur, akkúrat fyrir mann eins og D. Ákærði kvaðst eiga fleira eins og 5g psylicybin cubencis. Á bankagögnum ákærða sést að D millifærði samtals 120.500 inn á reikning ákærða á tímabilinu 15. febrúar til 18. nóvember 2021 en ákærði millifærði á D á sama tímabili 37.000 krónur.

Í málinu liggur fyrir lögregluskýrsla dagsett 30. maí 2022 þar sem eru fimm ljósmyndir af fíkniefnum úr farsíma ákærða. Þar má sjá hvítt efni í smellupokum, mikið magn af hvítu efni í skál auk mikils magns maríhúana.

Lögregla aflaði dómsúrskurðar til að skoða fjármál og bankareikninga ákærða tímabilið 1. janúar 2020 til 17. febrúar 2022 þegar úrskurður var kveðinn upp. Samkvæmt niðurstöðu greiningar á fjármunagögnum kom fram að óskýrð innkoma í formi reiðufjárinnlagna auk innlagna frá ýmsum einstaklingum sem ekki voru metnir í nánum tengslum við ákærða næmi um 6 milljónum króna. Þar af voru óskýrðar innlagnir einstaklinga árið 2020 að fjárhæð 663.295 krónur, árið 2021 að fjárhæð 1.998.385 krónur og árið 2022 að fjárhæð 187.100 krónur. Bera gögnin með sér að um margar innlagnir frá hinum ýmsu einstaklingum var að ræða, allar í sléttum upphæðum frá 1.000 krónum upp í 150.000 krónur.

Við yfirheyrslu hjá lögreglu þann 14. ágúst 2021, kvaðst ákærði ekki eiga neitt af þeim efnum sem fundust við húsleitina og neitaði að hafa selt þau. Lögregla tók aftur skýrslu af ákærða þann 30. maí 2022 þar sem ákærði neitaði að hafa selt fíkniefni. Ákærði kvaðst hafa átt kannabisefnin sem fundust hjá honum og afsalaði þeim til eyðingar hjá lögreglu. Ákærði kvaðst hins vegar ekki vita hver hafi átt 5,28 grömm af amfetamíni og neitaði að hafa selt ávana- og fíkniefni þegar símasamskipti hans við ýmsa aðila voru borin undir hann.

Ákæruliður II.

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var framkvæmd húsleit samkvæmt dómsúrskurði að […], þann 15. mars 2022 en lögregla hafði vaktað húsið daginn áður og fyrr um kvöldið. Á vettvangi var E og var hún handtekin. Ákærði reyndist vera erlendis en lögmaður hans var viðstaddur húsleit. Í fataskáp í svefnherbergi fundust m.a. fimm smelluláspokar með meintum kannabisefnum, fimm smelluláspokar með óþekktu hvítu efni og á skrifborði í stofu fundust tvær litlar krukkur með meintum kannabisefnum. Einnig fannst á vettvangi mikið magn af smelluláspokum og tómum krukkum með leifum af fíkniefnum.

Meðal gagna málsins er ljósmyndaskýrsla lögreglu dagsett 18. mars 2022, þar sem sjá má meint fíkniefni sem fundust á borði í stofu og mikið magn af tómum, ónotuðum smelluláspokum auk tækja sem lögregla taldi vera notuð til neyslu fíkniefna ásamt meintum kannabisefnum og hvítu efni. Einnig myndir af meintum kannabisefnum og hvítu efni í fimm smellupokum og hvítt efni í skál, sem fundust í fataskáp í svefnherbergi.

Samkvæmt efnaskýrslu Tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu reyndust vera 9,33 grömm af maríhúana í 5 pokum sem fundust í fataskáp í svefnherbergi og samtals 5,32 grömm af amfetamíni sem fundust í fimm pokum og í skál á sama stað. Þá reyndust vera 0,35 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni sem fannst á borði í stofu.

Tekin var lögregluskýrsla af E þann 15. mars 2022 sem kvaðst vera vinur ákærða og hafa fengið að þvo þvott hjá ákærða meðan hann væri í burtu. Kvaðst hún ekkert vita um efnin sem fundust við húsleitina.

Tekin var lögregluskýrsla af ákærða þann 25. mars 2022 þar sem hann kvaðst hafa verið í Amsterdam og kannaðist ekki við efnin sem fundust heima hjá honum. Lögregla tók aftur skýrslu af ákærða 12. febrúar 2023, þar sem niðurstöður efnaskýrslu Tæknideildar voru m.a. bornar undir hann auk þess sem ákærði var spurður um aðgang annarra að íbúðinni en ákærði neitaði alfarið að tjá sig.

Ákæruliður III.

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var óskað lögregluaðstoðar vegna síendurtekins hávaða frá […], þann 12. febrúar 2023. Ákærði kom til dyra og fannst mikil kannabislykt úr íbúðinni, sem ákærði kvaðst ekki kannast við og neitaði lögreglu um húsleit. Tekin var ákvörðun um að handtaka ákærða vegna gruns um fíkniefnamisferli en talsvert var af fólki í íbúðinni sem var öllum vísað út nema F sem einnig var handtekinn vegna gruns um fíkniefnamisferli.

Aflað var dómsúrskurðar til húsleitar hjá ákærða sama dag. Samkvæmt ljósmyndaskýrslu lögreglu af vettvangi, eru m.a. myndir af sófaborði í stofu með áhöldum til fíkniefnaneyslu og leifum af meintu kannabis. Einnig myndir af vigt, áhöldum til fíknefnaneyslu auk tveggja smelluláspoka með hvítun efni og smelluláspoka með meintu kannabis, allt í rauðum poka í stól í skrifstofu og myndir af smelluláspoka með hvítu efni og smelluláspoka með óþekktu efni í skenk við hlið rúmbotns í svefnherbergi. Þá eru myndir af samtals fjórum smelluláspokum með hvítu dufti sem fundust í ruslafötu í eldhúsi og mynd af hvítu efni í plasti sem fannst í svartri tösku í hillu á skrifstofu. Mynd af blárri dollu með silfruðu loki til hlið sýnir meint kannabis og myndir af Ace dollu sem fannst í efstu skúffu skrifborðs í skrifstofu sýnir að hún er full af hvítu efni. Loks er mynd af smelluláspoka með hvítu dufti sem fannst í efstu skúffu skrifborðs í skrifstofu auk mynda af áhöldum til fíknefnaneyslu og vigt, sem fundust í skrifstofu.

Tekin var lögregluskýrsla af ákærða þann 12. febrúar 2023 en þar kvaðst ákærði ekki vita hver ætti hvítt efni í smelluláspokum sem fundust í ruslafötu í eldhúsi, hvítt efni í plasti sem fannst í svartri tösku í hillu á skrifstofu, hvítt efni í Ace dollu sem fannst í skrifborði í skrifstofu, smelluláspoka með hvítu dufti sem fannst á sama stað. Aðspurður hvort ákærði afsalaði sér þessum fíkniefnum til rannsóknar og eyðingar hjá lögreglu kvaðst hann ekki eiga þetta og sér væri skítsama.

Samkvæmt efnaskýrslu Tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu reyndust vera samtals 4,29 grömm af maríhúana, þar af 3,98 grömm á borði í stofu og 0,31 grömm fundust á skrifstofu. Samtals reyndust vera 8,13 grömm af amfetamíni, þar af 0,67 og 0,08 grömm sem fundust í skrifstofu, 0,74 grömm sem fundust á hillu í svefnherbergi og 4,54 grömm og 0,64 grömm sem fundust í ruslatunnu í eldhúsi. Þá fundust samtals 3,63 grömm af kókaíni á skrifstofu.

Skýrslur ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði kvaðst aðspurður játa vörslur fíkniefna þann 14. ágúst 2021, sbr. ákæruliður I en neitaði því að hafa verið að selja og dreifa fíkniefnum. Aðspurður kvaðst hann hafa verið í sambúð með E og þau verið sundur og saman en hún hafi verið svolítið inni á heimilinu. Ákærði kvaðst aðspurður um símasamskipti við nokkra aðila á tímabilinu sem liggi fyrir í málinu, vilja vísa til lögregluskýrslu en hann myndi ekki meira núna en þá.

Ákærði vísaði til skýrslutöku hjá lögreglu beðinn um að greina frá atvikum 15. mars 2022 vegna ákæruliðar II. Hann kvaðst aðspurður hafa búið einn á þessum tíma en E hafi verið með lykla auk fleiri aðila og verið á heimilinu. Aðspurður hvort ákærði hafi vitað að efnin væru á heimilinu kvaðst hann vísa til lögregluskýrslu. Spurður hvort ákærði hafi átt fíkniefnin kvaðst hann ekki vita hvernig þau væru tilkomin og ekki muna til þess að efnin væru á heimilinu. Þá kvað ákærði aðspurður um talsvert magn smelluláspoka, bæði tóma og með efnum, pokana klárlega ekki hafa verið ætlaða til sölu eða dreifingar fyrst þeir hefðu verið tómir. Spurður hvort ákærði hafi oft verið með slíka poka á heimilinu kvaðst hann ekki muna það. Ákærði kvaðst ekkert meira hafa um þetta að segja. Spurður um að E hafi sagt lögreglu að hún hafi ekki búið hjá ákærða en fengið að þvo þvott heima hjá ákærða á þessu tímabili kannaðist ákærði við það og sagði vera innangengt í íbúðina úr þvottahúsinu. Aðspurður kvaðst ákærði ekki muna eftir að hafa átt fíkniefnin sem væru tilgreind í ákæru.

Ákærði kvaðst aðspurður ekki hafa átt efnin sem fundust við húsleit á lögreglu á heimili hans 12. febrúar 202, sbr. ákæruliður III, og ekki hafa verið að selja eða dreifa slíkum efnum. Beðinn um að útskýra hvers vegna efnin hafi verið á heimili ákærða kvað hann fullt af öðru fólki hafa verið á heimilinu, þ. á m. aðili sem hafi verið tekinn fyrir fíkniefnasölu. Aðspurður hvort hann hafi búið einn neitaði ákærði því og kvaðst hafa fyllt húsið af fólki. Ákærði kannaðist ekki við rauðan poka, smellupoka eða fíkniefnaáhöld sem fundust á skrifstofu hans. Ákærði játaði aðspurður að það hefði verið gleðskapur í gangi og fíkniefnaneysla, þegar lögreglu bar að garði. Aðspurður kannaðist ákærði við að F og G hefðu verið viðstaddir. Aðspurður hvort F hefði verið neyta fíkniefna kvað ákærði F hafa stundað þetta eitthvað en að ákærði hafi leyft honum að vera á staðnum og þegið af honum frekar en keypt en F hafi verið gjafmildur.

Lögreglumaður nr. […], sem staðfesti skýrslur sínar í málinu, kvaðst hafa tekið skýrslu af ákærða vegna ákæruliðar I en kvaðst ekki muna svo langt aftur í tímann á hverju grunur um sölu og dreifingu fíkniefna ákærða hafi verið reistur eins og greini í frumskýrslu. Aðspurð hvort eitthvað hafi komið fram undir rannsókn málsins sem hafi bent til þess að ákærði væri að selja og dreifa fíkniefnum, kvað hún fjárhags- og símagögn málsins hafa bent til þess, en þau ásamt ljósmyndum af fíkniefnum sem fundust í síma ákærða hafi verið borin undir hann í skýrslutöku lögreglu. Aðspurð sagði hún að lögregla hefði ekki tekið skýrslu af aðilum sem ákærði hefði verið í samskiptum við samkvæmt símagögnum, því ekki hafi verið talin ástæða til. Lögreglumaður nr. […] áður nr. […], sem staðfesti frumskýrslu sína í máli vegna ákæruliðar I, kvaðst hafa mætt í húsleit með úrskurð en ákærði hafi verið ósáttur. Ákærði hafi hringt í sinn lögfræðing sem ekki hafi svarað en þá hafi lögregla boðið ákærða annan lögfræðing sem ákærði hafi ekki viljað. Í framhaldi hafi verið farið í húsleit en hann kvaðst ekki muna hvert sitt hlutverk hafi verið. Kvaðst hann aðspurður ekki muna á hverju grunur eða úrskurður hafi byggst.

Lögreglumaður nr. […], sem staðfesti skýrslur sínar í málinu, kvaðst hafa framkvæmt húsleit hjá ákærða samkvæmt húsleitarúrskurði, sbr. ákæruliður II en ákærði hafi ekki verið heima og síðan komið í ljós að hann var ekki á landinu. Því hafi lögmaður ákærða verið kallaður á staðinn til að vera viðstaddur húsleitina. Aðspurð kvaðst hún ekki muna á hverju grunur um sölu og dreifingu af hálfu ákærða hafi byggst en kvað smelluláspoka, vigt og fleira sem hafi fundist hafa bent til þess að einhver sala væri í gangi. Kvaðst hún ekki geta svarað því hvort eitthvað hafi bent til þess að konan sem kom til dyra hafi átt efnin. Þá kvaðst hún aðspurð ekki muna hvort rannsakað hafi verið hversu lengi ákærði hefði verið erlendis áður en húsleitin var framkvæmd því svo langt væri liðið og kvaðst ekki hafa tekið skýrslu af konunni en lögreglan hafi ekki vitað um tengsl hennar og ákærða við húsleitina.

Lögreglumaður nr. […], sem staðfesti frumskýrslu sína í málinu, sbr. ákæruliður III, greindi frá því að hafa farið á heimili ákærða vegna hávaðaútkalls ásamt öðrum lögreglumanni. Megn kannabislykt hafi fundist í dyragættinni og húsráðandi verið handtekinn í kjölfarið. Húsið hafi verið fullt af fólki og vettvangur verið tryggður með því að tæma húsið þar til húsleitarúrskurður barst og leit framkvæmd í kjölfarið en sjálf kvaðst hún ekki hafa verið viðstödd húsleitina og ekki hafa komið frekar að málinu. Aðspurð hversu margir hafi verið á staðnum kvað hún það hafa verið slatta af fólki og augljóst á vettvangi að flestir hafi verið að neyta fíkniefna. Staðfesti hún að F hafi verið á staðnum en kvaðst ekki hafa tekið ákvörðun um handtöku hans.

Lögreglumaður nr. […] áður […], sem staðfesti skýrslu sína í málinu, sagðist hafa komið að húsleit heima hjá ákærða þann 12. febrúar 2023 og haft það hlutverk að skrá niður það sem hafi fundist og gert ljósmyndaskýrslu. Kvaðst hann aðspurður hvort efnin sem fundust við húsleit sem hafi verið ætluð til sölu eða dreifingar, ekki muna nægilega vel eftir málinu til að geta sagt til um það. Kvað hann aðspurður öllu fólkinu hafa verið vísað út þegar hann hafi komið á staðinn og muna eftir að F hafi verið á staðnum en ekki muna hvort hann hafi verið handtekinn. Aðspurður kvaðst hann ekki muna hvar fíkniefnin hafi fundist eða hvernig aðkoman hafi verið að öðru leyti.

Vitnið G kvaðst aðspurður muna eftir gleðskap heima hjá ákærða þann 12. febrúar 2023. Beðinn um að lýsa gleðskapnum kvað hann lögreglu hafa komið, handtekið ákærða og svo hafi aðrir gestir, í kringum sjö manns, farið. Aðspurður sagði hann þau hafa verið á staðnum í fjóra til sex tíma áður en lögreglu bar að garði, verið að spjalla og neyta áfengis og einhverjir hafi verið með örvandi efni. Kannaðist hann ekki við að einhver hafi verið með maríhúana né að einhver sérstakur hafi útvegað efnin heldur hafi allir deilt sínu. Neitaði hann því að ákærði hefði verið að selja efni. Kvaðst hann aðspurður kannast við F sem hafi verið með fíkniefni. Aðspurður kvaðst hann vera góður vinur ákærða. Sjónarmið ákærða Af hálfu ákærða var skilað greinargerð samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði krefst sýknu hvað varðar sölu og dreifingu þeirra fíkniefna sem fundust við húsleit á heimili ákærða þann 14. ágúst 2021. Ákærði játar vörslur efnanna. Sýknukrafa vegna ákæruliðar II. byggir á því að þar sem ákærði hafi verið erlendis þegar fíkniefnin fundust á heimili hans þann 15. mars 2022 sé ósannað að hann hafi átt fíkniefnin, hvað þá haft ásetning til að selja þau. Ákærði neitar að hafa átt fíkniefni sem fundust á heimili hans þann 12. febrúar 2023, sbr. ákæruliður III. og byggir á því að ósannað sé að hann hafi haft í hyggju að selja eða dreifa umræddum fíknefnum. Fyrir utan ákærða hafi sex aðilar verið staddir í íbúðinni er lögreglu bar að garði en þau hafi öll komið áður við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála. Rannsókn málsins sé stórlega gölluð því rannsakendur hafi ekki kvatt aðila sem staddir voru á heimili ákærða til skýrslugjafar til að varpa ljósi á málið. Ákærði telji F eiga meirihluta efnanna sem voru haldlögð en hann sé þekktur fíkniefnasali. Fundist hafi fíkniefni á honum við leit þennan dag og honum verið gert sektarboð vegna vörslu þeirra fíkniefna. Lögregla og ákæruvald hafi brotið hlutlægnisskyldu, sbr. 3. mgr. 18. og 2. mgr. 53. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einnig með almennum hætti í 13. gr. lögreglulaga. Hver sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skuli talinn saklaus uns sekt er sönnuð, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu og vafa skuli túlka honum í hag, en sönnunarbyrði um atriði honum í óhag hvíli á ákæruvaldinu, sbr. 108. gr. laga nr. 88/2008.

Niðurstaða

Ákæruliður I.

Ákærða er gefið að sök að hafa á heimili sínu þann 14. ágúst 2021 í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 5,28 g af metamfetamíni – kristöllum og 1,16g af maríhúana, sem fannst við húsleit. Ákærði hefur játað vörslur efnanna en neitað sölu og dreifingu.

Í húsleitarúrskurði kemur fram að lögreglu hafi borist ítrekaðar tilkynningar um sölu og dreifingu fíkniefna af hálfu ákærða, m.a. daginn áður eða þann 13. ágúst 2021 og stöðugt streymi fólks með stutta viðkomu. Eins og rakið er að framan fundust fíkniefnin sem ákært á heimili ákærða við húsleit lögreglu.

Í síma ákærða fundust myndir af bæði maríhúana og amfetamíni en auk þess fundust þar einnig samskipti ákærða við nokkra einstaklinga. Í samskiptum ákærða við A 7. og 8. júlí 2021 spurði A ákærða hvort hann ætti eitthvað „hress“ sem ákærði kvaðst geta fundið út úr og gaf A bankaupplýsingar. Af bankagögnum ákærða sem lögregla aflaði má einnig sjá að A lagði 8. júlí 2021, inn á reikning ákærða 5.000 krónur. Í ágúst 2021 spurði sami aðili hvort ákærði gæti selt honum Viagra sem ákærði játaði. Ákærði var í samskiptum við B 31. júlí 2021 þar sem hún óskaði eftir að kaupa af ákærða „hress“ og talaði einnig um að þau ákærði ættu „spítt“. Ákærði var í samskiptum við C þar sem C falaðist eftir efnum og lyfjum. Ákærði var einnig í samskiptum við D, sem sagðist þurfa „meiri hraða“. Ákærði sendi D m.a. skilaboðin „þú púar illgresi er það ekki?“, auk þess sem ákærði sagðist vera með Chemdawg, sem væri ógeðslega flottur og professional smókur. Samkvæmt bankagögnum ákærða lagði D samtals 120.000 krónur inn á reikning ákærða á tímabilinu 3. ágúst til 18. nóvember 2021. Bankagögn ákærða bera með sér að um margar innlagnir frá hinum ýmsu einstaklingum var að ræða, allar í sléttum upphæðum frá 1.000 krónum upp í 150.000 krónur og voru innlagnirnar óútskýrðar af hálfu ákærða. Af framangreindu, ekki síst myndum í síma ákærða og þeim textaskilaboðum er ákærði sendi sjálfur varðandi það að vera með Chemdawg maríhúana til sölu auk , er að mati dómsins hafið yfir skynsamlegan vafa að fíkniefnin sem ákærði hafði í vörslum sínum umrætt skipti hafi verið ætluð til sölu og dreifingar eins og ákærða er gefið að sök í ákæru. Telst brot hans réttilega heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Ákæruliður II.

Ákærða er gefið að sök fíkniefnalagabrot, með því að hafa þann 15. mars 2022, haft á heimili sínu í vörslum í sölu og dreifingarskyni, 5,32 g af amfetamíni og 9,33 g af maríhúana, auk þess að hafa haft í vörslum sínum 0,35 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, en efnin fundust við húsleit.

Ákærði var erlendis er fíkniefnin fundust við húsleit lögreglu, auk mikils fjölda smellupoka og áhalda til fíkniefnaneyslu fundust á heimili hans. Í húsleitarúrskurðinum kom fram að lögregla hafði einnig fengið ítrekaðar tilkynningar um meinta fíkniefnasölu ákærða á þeim tíma. Ákærði bar fyrir dómi að hann og fyrrverandi kærasta hans hefði verið með lykla að íbúðinni auk fleiri aðila og að hann myndi ekki eftir að hafa átt efnin. Að mati dómsins hefur ekkert hefur komið fram í málinu sem bendir til þess að einhverjir aðrir en ákærði hafi átt efnin sem fundust inni í svefnherbergi hans. Ber ákærði ábyrgð á þeim efnum sem fundust á heimili hans og ber sjálfur ábyrgð á því að hafa látið aðra fá lykla að íbúðinni. Telst ákærði því hafa verið með vörslur efnanna. Þá fannst á sama tíma mikill fjöldi tómra og ónotaðra smelluláspoka sem notaðir eru til sölu fíkniefna sem bendir ótvírætt til þess að pokarnir hafi ekki verið í vörslum ákærða vegna eigin neyslu. Er að mati dómsins hafið yfir skynsamlegan vafa að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar. Verður ákærði því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem tilgreind er í ákæru og telst háttsemin þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákæruliður III.

Ákærða er gefið að sök fíkniefnalagabrot, með því að hafa 12. febrúar 2012 haft í vörslum sínum á heimili sínu í sölu- og dreifingarskyni 8,13 g af amfetamíni, 3,63 g af kókaíni og 4,29 g af maríhúana.

Umrædd efni fundust við húsleit hjá ákærða en lögregla var kölluð til vegna hávaða á grundvelli húsleitarúrskurðar. Efnin fundust m.a. í smelluláspokum í ruslafötu í eldhúsi en einnig í svefnherbergi ákærða. Einnig fundust vigt og áhöld til fíkniefnaneyslu. Er lögreglu bar að garði voru fleiri á heimilinu en auk ákærða var annar einstaklingur einnig handtekinn og gerð sekt fyrir vörslur efna sem fundust á honum. Lögregla tók ekki skýrslur af öðrum gestum en einn þeirra G gaf skýrslu fyrir dómi. Bar hann að gestir hefðu sjálfir komið með eigin efni til neyslu. Þá kvaðst hann vera góður vinur ákærða en meta verður vitnisburð hans í því ljósi, sbr. 126. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Eins og atvikum háttar verður ákærði sakfelldur fyrir vörslur efnanna sem fundust á heimili hans þar sem hann bjó einn. Vigt og önnur áhöld auk hluta fíkniefnanna fundust inni á skrifstofu ákærða auk þess sem hluti efnanna fannst inni í svefnherbergi ákærða, en hluti efnanna fannst í ruslafötu í eldhúsi. Einn gesta var handtekinn auk ákærða og reyndist hann vera með fíkniefni á sér. Það bendir að mati dómsins eindregið til þess að efnin sem fundust á heimili ákærða hafi verið í vörslum ákærða en ekki annarra gesta sem voru á staðnum er lögreglu bar að garði. Telur dómurinn í ljósi framangreinds hafið yfir skynsamlegan vafa að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar. Verður ákærði því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og telst réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði hefur verið sakfelldur fyrir vörslur, sölu og dreifingu ávana- og fíkniefna samkvæmt ákæruliðum I-III og hefur því unnið sér til refsingar.

Samkvæmt sakavottorði ákærða var hann dæmdur í héraðsdómi Reykjaness til greiðslu sektar og sviptur ökurétti þann 30. maí 2022 vegna umferðarlagabrots en af því leiðir að brot ákærða samkvæmt ákæruliðum I og II eru hegningarauki. Ákærði hefur ekki verið sakfelldur áður fyrir fíkniefnabrot. Að framangreindu virtu og með vísan til 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða réttilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu dæmdrar fangelsisrefsingar þannig að hún falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsbirtingu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Þá verða gerð upptæk samtals 13,45 g af amfetamíni, 5,28 g af metamfetamíni – kristöllum, 14,78 g af maríhúana, 3,63 g af kókaíni og 0,35 g af tóbaksblönduðum kannabisefnum eins og krafist er í ákæru og nánar greinir í dómsorði.

Ákæruvaldið féll frá ákæruliðum IV og V við upphaf aðalmeðferðar en þar var ákærða meðal annars gefið að sök peningaþvætti, en ákæruvaldið féll frá þessum ákæruliðum eftir að greinargerð verjanda var skilað.

Með vísan til þess og niðurstöðu málsins að öðru leyti, verður ákærða gert að greiða helming sakarkostnaðar en ríkissjóður greiðir helming, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Til sakarkostnaðar teljast málsvarnarlaun og aksturskostnaður skipaðs verjanda ákærða, Hilmars G. Þorsteinssonar lögmanns, sem þykja í ljósi umfangs og eðlis máls og með nokkurri hliðsjón af tímaskýrslu, sem þykir úr hófi, hæfilega ákveðin 2.579.200 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og aksturskostnaður 51.700 krónur. Annan sakarkostnað leiddi ekki af rekstri málsins.

María Thejll héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Gætt var að ákvæðum 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fyrir uppkvaðningu dómsins.

Dómsorð:

Ákærði, Karl Brooke Herman Gunnarsson, sæti fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu þeirrar refsingar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá dómsbirtingu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði sæti upptöku á samtals 13,45 g af amfetamíni, 5,28 g af metamfetamíni – kristöllum, 14,78 g af maríhúana, 3,63 g af kókaíni og 0,35 g af tóbaksblönduðum kannabisefnum.

Ákærði greiði helming málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Hilmars G. Þorsteinssonar lögmanns, 1.289.600 krónur auk helmings aksturskostnaðar 25.850 krónur en ríkissjóður greiði helming málsvarnarlauna verjanda, 1.289.600 krónur og helming aksturskostnaðar 25.850 krónur.

María Thejll

Heimildaskrá