Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ólafi Hauki Atlasyni (
Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ölvunarakstur og akstur án ökurréttinda. Um var að ræða hegningarauka og ákærða ekki gerð frekari refsins en ævilöng ökuleyfissvipting áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Helga Val Mássyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, hylmingu og fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 75 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, upptöku fíkniefna og sviptingu ökuréttinda í 5 ár.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Einari Þór Daníelssyni (enginn)
Ákærði dæmdur í 90 daga fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás á fyrrum sambýliskonu og að hafa í tvígang ekið án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi sín.
Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Mateusz Luksa og Patryk Kamil Potaczek
Ákærðu sakfelldir fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Damian Niedzwiedz
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, vopnalaga- og fíkniefnalagabrot. Dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti tímabundið. Upptaka á fíkniefnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Simonas Miliauskas
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, skjalafals og fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára. Einnig var honum gert að greiða fésekt og sviptingu ökuréttinda í 18 mánuði.
Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Zviadi Mekokishvili
Ákærði dæmdur fyrir umferðarlagabrot, skjalafals og brot á lögum um útlendinga.
Með dómi héraðsdóms var G sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotunum rauf G skilyrði reynslulausnar og var hún tekin upp með vísan til 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 77. gr. sömu laga. Með vísan til sakaferils G var refsing hans ákveðin fangelsi í 17 mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Með dómi Landsréttar 23. mars 2018 var héraðsdómur staðfestur. Dómur Landsréttar var staðfestur með dómi Hæstaréttar 24. maí sama ár. Með úrskurði Endurupptökudóms 31. mars 2022 var hæstaréttarmálið endurupptekið að beiðni G. Með nýjum dómi Hæstaréttar í málinu 7. desember 2022 var dómur Landsréttar 23. mars 2018 ómerktur og málinu vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Við hina endurteknu málsmeðferð var niðurstaða héraðsdóms staðfest um sakfellingu G. Við ákvörðun refsingar G vísaði Landsréttur til þess dráttar sem orðið hefði á meðferð málsins sem G yrði ekki um kennt. Þá var litið til þess að G hefði eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms margsinnis verið dæmdur fyrir ölvunarakstur og sviptur ökurétti þar sem við ákvörðun refsingar hefði verið tekið tillit til ítrekunaráhrifa hins áfrýjaða dóms. Loks var litið til breytinga sem orðið höfðu á högum G. Var refsing G ákveðin fangelsi í 12 mánuði, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var G sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Róberti Þór Ólafssyni (
Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir lögreglu-, fíkniefna- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga, hann sviptur ökurétti ævilangt og honum gert að sæta upptöku á haldlögðum efnum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Bríeti Gunnarsdóttur (
Jón Auðunn Jónsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir nokkur umferðarlaga brot og fíkniefnalagabrot og gert að greiða 2.660.000 króna sekt til ríkissjóðs, hún svipt ökurétti í 5 ár og gert að sæta upptöku á fíkniefnum.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Ryszard Rola
Ákærða var gert að sæta 30 daga fangelsi vegna umferðarlagabrots. Einnig sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Elvari Hlédísarsyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði dæmdur samkvæmt dómvenju til fjögurra og hálfs mánaðar fangelsisvistar fyrir að hafa ekið tvívegis sviptur ökuréttindum, en um fimmtu ítrekun var að ræða. Ákærði var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir lyfjaakstur samkvæmt 50. gr. umferðarlaga, þar sem ráðherra hefði ekki sett reglugerð um vanhæfismörk, þ.e. hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja, sbr. 6. mgr. 48. gr. umferðarlaga. Í málinu lá fyrir niðurstaða blóðrannsóknar sem sýndi að ákærði hafði neytt umrædds lyfs umfram ávísaðan lyfjaskammt. Hins vegar fór hvorki fram klínískt ökuhæfismat læknis né var kveðið á um óhæfi til aksturs í niðurstöðu blóðrannsóknar. Þótti því einnig óhjákvæmilegt að sýkna ákærða af broti gegn 48. gr. umferðarlaga
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Davíð Þór Gunnarssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot. Akstur án ökuréttinda. Játningarmál.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Davíð Þór Jónssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi) gegn
Remzi Talay
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að greiða 2.080.000 króna sekt og sviptur ökurétti í 5 ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Steindóri Halldórssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð brot gegn umferðarlögum og var gert að greiða 2.300.000 króna sekt til ríkissjóðs inn en sæta ella fangelsi í 64 daga. Einnig var ákærði sviptur ökurétti í 5 ár frá 2. ágúst 2024 að telja.
Ákærðu var gerð fangelsisrefsing og sekt vegna umferðarlagabrota
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Mohammed J. S. Alfaqawi
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot vegna aksturs án gildra ökuréttinda og skjalafals fyrir að framvísa fölsuðu ökuskírteini. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Dzevat Durakovic (
Davor Purusic lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir akstur án ökuréttinda.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Marcin Wasilewski
Ákærða var gert að greiða 310.000 króna sekt og sæta fangelsi í 6 mánuði vegna umferðarlagabrots. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Fabio Passaro
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökuréttindum og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Refsing hans var ákveðin fangelsi í 30 daga, 200.000 kr. sekt í ríkissjóð og ævilöng ökuréttarsvipting.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Davit Tshvitaria
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og hegningarlagabrot. Dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
S var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í þrjú skipti ekið sviptur ökurétti, þar af tvívegis einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í annað skiptið að auki fyrir hraðakstur. Þá var S sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa við afskipti lögreglu í eitt þessara skipta haft hníf í vörslum sínum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að í málinu væri S sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og þrívegis sviptur ökuréttindum. Í fyrra tilvikinu væri um fjórða brot að ræða en í því síðarnefnda þriðja brot. Samkvæmt dómvenju og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þótti refsing S fyrir brotin hæfilega ákveðin fangelsi í 150 daga en þau hraðaksturs- og vopnalagabrot sem S var einnig sakfelldur fyrir þóttu ekki gefa tilefni til frekari refsingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Dmitrij Senakosov
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi)
gegn
Guðmundi Friðriki Stefánssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að aka í fjórgang sviptur ökurétti og í öll skiptin undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna, auk þess að vera sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóni Paul Biscarra del Rosario
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Edgaras Klisauskas
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og hegningarlagabrot og sviptur ökurétti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Fannari Pétri Stefánssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Fangelsisrefsing 105 dagar en fullnustu 60 daga frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Sviptur ökurétti ævilangt. Upptaka fíkniefna.
Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi) gegn
Ásgeiri Árna Sigríðarsyni og X
Ákærðu sakfelldir fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson saksóknarfulltrúi) gegn
Róberti Blöndal Gíslasyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 80 daga, skilorðsbundið til 2 ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti. Fíkniefni gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Maríönnu Lind Mánadóttur (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir fíkniefnaakstur og akstur án gildra ökuréttinda og dæmd í 30 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt.
J var sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og brot á lögreglulögum. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar dæmt um umferðarlagabrot J eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils J, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, 77. gr. sömu laga og áralangrar dómvenju en jafnframt til skýlausrar játningar hans. Var refsing J ákveðin fangelsi í tvö ár auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku fíkniefna og kylfu.
G var sakfelldur fyrir þjófnað, skjalafals og akstur í þrjú aðgreind skipti sviptur ökurétti, þar af í eitt skipti einnig undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar dæmt um umferðarlagabrot G eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Með brotunum rauf G skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, og 60. gr., sbr. 77. gr., hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var einnig litið til sakaferils G og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 22 mánuði auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans.
Sakfellt fyrir brot í nánu sambandi, hótanir, líkamsárás, fíkniefnalagabrot o.fl. Sýknað af ákæru um rán.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ragnari Davíð Bjarnasyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Atla Birni Gústavssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og dæmdur 45 daga fangelsi. Sviptur ökurétti ævilangt. Fíkniefni gerð upptæk.
G var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Þá var hann sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa í tvígang, án þess að hafa skotvopnaleyfi og í síðara skiptið jafnframt verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, haft skotvopn í vörslum sínum. Hann var auk þess sakfelldur í síðara skiptið fyrir hylmingu umrædds skotvopns með því að hafa haldið því með ólögmætum hætti frá lögmætum eiganda þess. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar meðal annars dæmt um umferðarlagabrot G eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Þau brot sem G var sakfelldur fyrir framdi hann í október og nóvember 2017, fyrir uppsögu héraðsdóms í nóvember 2018, sem staðfestur var með dómi Landsréttar í nóvember 2019. Því var honum gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var einnig höfð hliðsjón af 77. gr. sömu laga og sakaferils G. Refsing hans var ákveðin fangelsi í átta mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Emilíu Jennu Húnfjörð (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að greiða 1.230.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja en sæta ella fangelsi í 44 daga. Þá var ákærða svipt ökurétti í 2 ár og 4 mánuði frá birtingu dómsins að telja. Fíkniefni gerð upptæk og ákærðu gert að greiða sakarkostnað.
H var sakfelld fyrir líkamsárás, þjófnað í samverknaði við aðra, akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi, akstur í fjögur aðgreind skipti svipt ökurétti, þar af einu sinni einnig undir áhrifum fíkniefna, og loks fyrir að hafa í tvígang haft fíkniefni í vörslum sínum. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og H gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Var refsing H ákveðin fimm mánaða fangelsi en með hliðsjón af þeim drætti sem orðið hafði á meðferð málsins og þeim jákvæðu breytingum sem orðið hefðu á högum hennar var fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms um upptöku á fíkniefnum, ökuréttarsviptingu og fjárhæð einkaréttarkröfu brotaþola staðfest.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Valdimar Teiti Einarssyni (
Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni auk þess að hafa um nokkurt skeið ræktað kannabisplöntur á heimili sínu. Einnig sakfelldur fyrir vopnalaga- og umferðarlagabrot. Ákærði var dæmdur í 11 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára og sviptur ökurétti ævilangt. Þá voru fíkniefni og vopn gerð upptæk.
Þ var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum með því að hafa í tilgreint skipti ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms tóku gildi ný umferðarlög nr. 77/2019 og var dæmt um háttsemi Þ eftir þeim, þó þannig að ekki yrði beitt þyngri refsingu en heimilt hafi verið á þeim tíma er brot var framið. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Þ hafði þrisvar áður verið gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var refsing Þ í samræmi við dómvenju ákveðin fangelsi í 75 daga og áréttuð svipting ökuréttar ævilangt.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari) gegn
Helga Má Reynissyni
Sakfellt fyrir ölvunar- og sviptingarakstur.
Með dómi héraðsdóms var O sakfelld fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með því að hafa flutt hingað til lands 0,20 grömm af marijúana, og fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa í þrjú skipti ekið bifreið svipt ökurétti og í tvö skipti jafnframt undir áhrifum ávana- og fíkniefna. O játaði sök og var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var því eingöngu deilt um ákvörðun viðurlaga fyrir Landsrétti. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti var þess krafist af hálfu ákæruvaldsins að O yrði sýknuð af því að hafa brotið gegn lögum um ávana- og fíkniefni þar sem sök hennar hefði verið fyrnd og var hún þegar á grundvelli kröfugerðar ákæruvaldsins sýknuð af þeim sakargiftum. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms höfðu tekið gildi ný umferðarlög nr. 77/2019 og með hliðsjón af 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 dæmdi Landsréttur eftir þeim. Í dóminum kom fram að samkvæmt nýjum umferðarlögum teldist nú ökumaður aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf fyndust í blóði hans. Með vísan til þess að samkvæmt einum ákærulið hefði umferðarlagabrot ákærðu eingöngu verið staðreynt með mælingu efna í þvagi var hún sýknuð af ákæru fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í umrætt sinn. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu O. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils O og þess að brot hennar voru öll hegningarauki við eldri dóm, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt því og með hliðsjón af 77. gr. sömu laga og áralangrar dómvenju var refsing hennar ákveðin fangelsi í 30 daga auk þess sem henni var gert að greiða sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 14 daga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um ævilanga sviptingu ökuréttar O og upptöku fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
Andreu Kristínu Unnarsdóttur (
Oddgeir Einarsson lögmaður)
Með dómi héraðsdóms var A sakfelld fyrir umferðarlagabrot, akstur án ökuréttinda, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, ölvunarakstur og vopnalagabrot og var dæmd til fangelsisvistar, ævilangrar ökuréttindasviptingar og upptöku á fíkniefnum, hnífum, sverðum, bareflum, og piparúða. Í dómi Landsréttar var sakfelling A staðfest í öllum ákæruliðum. Með hliðsjón af 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga var meðal annars dæmt eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að fyrrgreindur dómur féll. Þar sem hluti háttseminnar sem A var sakfelld fyrir í héraðsdómi var ekki lengur refsiverður var fangelsisvist hennar stytt til samræmis og var henni jafnframt gert að greiða sekt vegna þeirra brota sem varða nú einungis sektum. Þá voru ákvæði um sviptingu ökuréttar, upptöku eigna og sakarkostnað óröskuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þórarni Helga Agnarssyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot. Dæmdur í 2 ára fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar árettuð. Fíkniefni gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Albert-Catalin Panait
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, þjófnað og tilraun til þjófnaðar. Dæmdur í 90 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára og til að sæta ökuréttarsviptingu í 4 ár og 6 mánuði. Jafnframt voru fíkniefni gerð upptæk og ákærða gert að greiða skaðabótakröfu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Jakobi Inga Ragnarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökuréttindum í 2 ár og 2 mánuði.
Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals og akstur án ökuréttinda.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Elísabet Arnardóttir (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og svipt ökuréttindum. Dæmd í 6 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.