Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Ökuhæfi
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Elvari Hlédísarsyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Ákærði dæmdur samkvæmt dómvenju til fjögurra og hálfs mánaðar fangelsisvistar fyrir að hafa ekið tvívegis sviptur ökuréttindum, en um fimmtu ítrekun var að ræða. Ákærði var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir lyfjaakstur samkvæmt 50. gr. umferðarlaga, þar sem ráðherra hefði ekki sett reglugerð um vanhæfismörk, þ.e. hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja, sbr. 6. mgr. 48. gr. umferðarlaga. Í málinu lá fyrir niðurstaða blóðrannsóknar sem sýndi að ákærði hafði neytt umrædds lyfs umfram ávísaðan lyfjaskammt. Hins vegar fór hvorki fram klínískt ökuhæfismat læknis né var kveðið á um óhæfi til aksturs í niðurstöðu blóðrannsóknar. Þótti því einnig óhjákvæmilegt að sýkna ákærða af broti gegn 48. gr. umferðarlaga