Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

34 dómar fundust

Lykilorð: Ásþungi

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. desember 2019

E-910/2018

Birkir Leósson (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn D&T sf og Deloitte ehf (Ólafur Eiríksson lögmaður)

Stefnandi gerði kröfu um að við uppgjör á hlutum hans við útgöngu úr sameignafélagi yrði farið eftir ákvæðum laga nr. 50/2007 um sameignafélög. Var því hafnað og talið að stefnandi væri bundinn af samningi sem hann hafði gert ásamt öðrum A-félagsmönnum sín í milli. Var sameignafélagið sýknað af kröfum stefnanda þar sem uppgjör af hálfu stefnda samkvæmt samningnum hafði farið fram. Stefnandi gerði jafnframt kröfu um greiðslu orlofs vegna launa sem greidd voru í formi bílastyrks. Var sú krafa tekin til greina.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. október 2013

S-176/2012

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X (Hreinn Pálsson hrl)
Lykilorð: Ásþungi. Bifreiðir. Sönnun.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sektaður fyrir vanrækslu á skráningu á aksturstíma, en sýknaður af ákæru fyrir að aka vagnlest of þungri.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2012

X-140/2011

Alnus ehf (Grétar Dór Sigurðsson hdl) gegn Glitni hf (Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson hdl)

Kröfum sem A lýsti í slitabú G var hafnað. Ekki var fallist á að samkomulag sem aðilar gerðu um uppgjör vegna kaupa á skuldsettum afleiðutengdum skuldabréfum væri ógilt. Þá var einnig hafnað skaðabótakröfum A gegn G.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júní 2011

E-6117/2010

Þrotabú Flugfélags Vestmannaeyja ehf (Ólafur Hvanndal Ólafsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefnandi krafðist að viðurkennd yrði skaðabótaskylda íslenska ríkisins vegna ríkisstyrkts áætlunarflugs milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Skilyrði skaðabótakskyldu voru ekki talin fyrir hendi og var stefnda því sýknað af kröfunni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2010

E-1424/2010

Ármann Rafn Úlfarsson gegn Vélasölunni, ehf, kveðinn og upp svohljóðandi
Lykilorð: Ásþungi. Orlof. Uppsögn. Vinnulaun.

Stefnda gert að greiða stefnanda laun í uppsagnarfresti, auk áunnins orlofs, orlofsuppbótar og desemberuppbótar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. desember 2010

E-2960/2010

Birna Salóme Björnsdóttir (sjálf) gegn Sýslumanninum í Reykjavík og íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar sýslumannsins í Reykjavík um skerðingu á föstum yfirvinnugreiðslum til hennar og viðurkenningu á bótaskyldu sýslumannsins og íslenska ríkisins var hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2010

E-2034/2010

Valitor hf (Helga Melkorka Óttarsdóttir hdl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Gizur Bergsteinsson hdl)

Fallist var á kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar stefnda um að veita stefnanda aðeins takmarkaðan aðgang að tilgreindum kafla í erindi til stefnda þar sem því var haldið fram að stefnandi hefði brotið gegn samkeppnislögum. Enn fremur var felldur úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála þar sem þessi ákvörðun var staðfest.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. janúar 2010

E-1503/2009

Kristinn Bernburg Ragnarsson (Jón Egilsson hdl) gegn Kristjáni Erlendi Haraldssyni (Ásgeir Þór Árnason hrl)

Málsaðilar deildu um ákvæði í kaupsamningi sem kveður á um að við uppgjör á láni, sem stefnandi yfirtók, skuli miða yfirtöku lánsins við stöðu þess við afsal en ekki afhendingardag. Mikil hækkun varð á láninu á þessum tíma og krafði stefnandi stefnda um mismuninn. Stefndi krafðist ógildingar á samningsákvæðinu. Niðurstaðan varð sú að stefndi var sýknaður að svo stöddu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. maí 2009

E-11285/2008

Geirrún Tómasdóttir (Helgi Bragason hdl) gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis (Hlynur Halldórsson hdl)

Felld var úr gildi veðsetning á íbúð stefnanda til tryggingar skuld þriðja aðila. Var á það fallist með stefnanda að veðsetningin bryti í bága við samkomulag fjármálastofnana og stjórnvalda um notkun sjálfskuldarábyrgða og að ósanngjarnt væri að halda veðsetningunni til streitu, sbr. 36. gr. samningalaga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. febrúar 2009

E-5358/2008

Einar Baldvinsson (Guðmundur Birgir Ólafsson hrl) gegn Verði tryggingum hf (Ástráður Haraldsson hrl)

Stefnandi krafði fyrrum vinnuveitanda um greiðslur orlofs sem hann hafði áunnið sér þegar hann lét af störfum og greiðslur orlofs á launum í uppsagnarfresti. Þá krafði hann stefnda um greiðslu símakostnaðar á sama tímabili. Stefndi leit svo á að stefnandi hefði fengið ríflegan starfslokasamning og ætti ekki rétt á slíkum greiðslum. Voru kröfur stefnanda teknar til greina að hluta en talið að hluta áunnins orlofs hefði stefnanda verið óheimilt að flytja milli orlofsára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2009

E-4703/2008

Margrét Rósa Haraldsdóttir (Tómas Hrafn Sveinsson hdl) gegn Karli Narong Seelarak og Vátryggingafélagi Íslands hf (Helga Melkorka Óttarsdóttir hdl)

Stefnandi krafðist skaðabóta vegna umferðarslyss. Hið stefnda vátryggingafélag hafði gert upp bætur við hana en neitaði að greiða fyrir lyf og sjúkraþjálfun sem stefnandi stundaði eftir að ekki var að vænta frekari bata samkvæmt mati. Ágreiningur í málinu laut því að sjúkrakostnaði stefnanda. Krafa stefnanda var tekin til greina en talið var sannað með læknisfræðilegum gögnum að hún hafi haft verki vegna meiðsla sem hún hlaut í umferðarslysinu og að henni hafi verið nauðsynlegt að leita bóta á því með sjúkraþjálfun og lyfjum þrátt fyrir að matsmenn teldu að heilsufar hennar hefði verið stöðugt fyrir þann tíma.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2009

E-3899/2007

Loftur Jóhannsson (Ástráður Haraldsson hrl) gegn Íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Flugumferðarstjóri krafði íslenska ríkið um leiðréttingu á launum samkvæmt úrskurði samgönguráðuneytisins. Ráðuneytið var ekki talið bært til að úrskurða í málinu og var ekki fallist á kröfur stefnanda.

Héraðsdómur Suðurlands birt 11. desember 2008

S-456/2008

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn X (Torfi Ragnar Sigurðsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákært fyrir brot á umferðarlögum og reglugerð um stærð og þyngd ökutækja. Ákærði var sýknaður af þeirri háttsemi að aka bifreið sinni yfir leyfðum ásþunga á Þjóðvegi I þar sem þungatakmarkanir höfðu verið settar. Engar merkingar voru á leið ákærða um að ásþungi hefði verið tekinn niður og ekki að finna heimildir til handa Vegagerðinni að auglýsa breyttan ásþunga á völdum stöðum, í útvarpi, textavarpi eða með tölvupósti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2007

E-4259/2007

Eggert Haukdal (Tryggvi Þórhallsson hdl) gegn Runólfi K. Maack og Benediktu Haukdal (Guðmundur Siemsen hdl)

Stefnandi krafðist þess að kaupsamningi um fasteign yrði vikið til hliðar að öllu leyti eða að hluta á grundvelli 36. gr. samningalaga. Jafnframt krafist staðfestingar á lögbanni við framkvæmdum. Stefndu voru sýknuð af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 8. febrúar 2007

S-122/2005

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn X (Björn Jóhannesson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður ákærður fyrir að hafa brotið gegn reglum um ásþunga. Ákærði sýknaður þar sem ekki var talið sannað að uppi hefði verið umferðarmerki, þar sem ákærði ók inn á umræddan vegarkafla, sem bar með sér að heimill ásþungi væri að hámarki tvö tonn.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2006

E-4062/2006

Sigurður Guðbrandsson (Bryndís Guðmundsdóttir hdl) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Guðmundur Pétursson hrl)

Talið var ósannað að einkenni í mjóbaki S yrðu rakin til umferðarslyss sem hann varð fyrir árið 2000, en einkennin höfðu komið fram nokkrum mánuðum eftir slysið. Var T því sýknað af skaðabótakröfu S.