Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Pétri Jökli Jónassyni (
Almar Þór Möller lögmaður)
P var sakfelldur í héraði og dæmdur til átta ára fangelsisrefsingar fyrir tilraun til stórfells fíkniefnalagabrots, sbr. 173. gr. a, sbr. 1. mgr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ásamt A, B, C og D, sem þegar höfðu hlotið dóm fyrir sinn þátt í málinu, staðið að innflutningi á 99,25 kg af kókaíni hingað til lands. Fyrir Landsrétti krafðist P þess aðallega að ákæru á hendur honum yrði vísað frá héraðsdómi. P byggði á því að ákæran uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála um skýrleika verknaðarlýsingar. Landsréttur vísaði til þess að þegar hefði verið leyst úr ágreiningi um sama atriði með úrskurði réttarins. Með sömu röksemdum og þar voru raktar var frávísunarkröfu P á þessum grunni hafnað. P byggði jafnframt á því að við lögreglurannsókn málsins hefði verið brotið gegn rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar en í þeim efnum vísaði hann til þess að hljóðupptökur af skýrslum hans hjá lögreglu, þar sem hann naut réttarstöðu sakbornings, hefðu verið notaðar til raddgreiningar á viðmælanda dómfellda B í nánar tilteknu hljóðrituðu símtali. Á þetta féllst Landsréttur ekki. Hvað sýknukröfu P varðar taldi Landsréttur, að virtum nánar tilteknum símagögnum, að athugasemdir P fengju ekki haggað þeirri ályktun héraðsdóms að hann hefði, á þeim tíma sem um ræddi, notað nánar tiltekin Signal-auðkenni, og verið í samskiptum við B við skipulagningu brotsins en eitt símanúmeranna fannst einnig vistað í farsíma dómfellda D. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að sannað væri að P hefði verið samverkamaður dómfelldu A, B, C og D við tilraun til stórfells fíkniefnalagabrots, eins og lýst væri í ákæru. Hinn áfrýjaði dómur var því staðfestur.
...88/2008 og í reglugerð nr. 651/2009 um réttarstöðu handtekinna manna, yfirheyrslur hjá lögreglu o.fl., sbr. 67. gr. fyrrgreindra laga, girðir fyrir að lögregla notist við upptöku af...
Ákæruvaldið (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari)
gegn
Pétri Jökli Jónassyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Tilraun til stórfellds innflutnings á fíkniefnum.
...88/2008 og í reglugerð nr. 651/2009 um réttarstöðu handtekinna manna, yfirheyrslur hjá lögreglu o.fl., sbr. 67. gr. fyrrgreindra laga, girðir fyrir að lögregla notist við upptöku af...
Óumdeilt var í málinu að stefnandi ætti rétt til bóta samkvæmt 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, en ágreiningur var um bótafjárhæð m.t.t. umdeildra atvika málsins, en fyrir lá að stefnandi var undir lögaldri þegar hann sætti umræddum afskiptum lögreglu og var handtekinn, en fékk svo stöðu vitnis.
...80/2002, og reglugerð nr. 651/2009 um réttarstöðu handtekinna manna, yfirheyrslur hjá lögreglu o.fl. Því sé sérstaklega mótmælt að lögregla hafi beitt stefnanda vanvirðandi meðferð, ofbeldi og því...
Sakfellt fyrir hegningarlagabrot.
...Þá kom fram í málflutningi verjanda hennar að forráðamaður brotaþola hefði ekki verið tilkvaddur, en slíkt samræmdist ekki reglugerð nr. 651/2009 um réttarstöðu handtekinna manna, yfirheyrslur hjá lögreglu o...
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu varnaraðila um að sóknaraðila yrði meinað að leggja fram hluta nánar tilgreinds skjals.
...Þá er í reglugerð nr. 651/2009 að finna reglur um réttarstöðu handtekinna manna, yfirheyrslur hjá lögreglu o.fl. Í I. kafla þeirrar reglugerðar er fjallað um tilkynningar til vandamanna...
A, B og S voru sakfelldir fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa, í félagi með með öðrum, veist að A og þremur öðrum sem hittust fyrir á heimili hans með margvíslegu ofbeldi. Taldi Hæstiréttur að þótt þáttur hvers og eins yrði ekki nákvæmlega aðgreindur væri ljóst að þeir hefðu allir átt þátt í brotinu, hver með sínum hætti og væru því allir aðalmenn í því. A og B voru að auki sakfelldir fyrir hafa í annað sinn í tiltekinni íbúð veist að F og G með þeim hætti að B hefði slegið F með trébarefli á hnakka, en G hefði verið neyddur til að leggjast á magann á gólf þar sem H var neyddur til að kasta yfir hann þvagi auk þess sem B reif í vinstra eyra G með þeim afleiðingum að úr blæddi. Þá voru þeir einnig sakfelldir fyrir tilraun til fjárkúgunar umrætt sinn með því að hafa krafist þess að F greiddi þeim 500.000 krónur daginn eftir og hótað honum frekara ofbeldi yrði hann ekki við kröfum þeirra. Var háttsemin talin varða við 2. mgr. 218. gr., 1. mgr. 217. gr., 225. gr. og 251. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga. A og B voru hins vegar sýknaðir af ákæru um frelsissviptingu H, F og G. Loks var A sakfelldur fyrir líkamsárásir með því að hafa á tiltekinni sólbaðsstofu slegið I oftar en einu sinni í andlitið og tekið hann hálstaki með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund og slegið J í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut mar og nokkra bólgu í kringum hægra auga og yfirborðslæg sár á bæði eyru. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir tilraun til fjárkúgunar og hótanir umrætt sinn með því að hafa krafist þess að I og J greiddu honum 500.000 krónur hvort um sig, með hótunum um frekara ofbeldi ef þeir yrðu ekki við kröfum hans auk þess sem hann hótaði þeim frekara ofbeldi og fjárkúgun ef þeir segðu frá atvikinu. Var háttsemi A talin varða við 1. mgr. 217. gr., 2. mgr. 218. gr., 233. gr. og 251. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar var ekki talið að sannað hefði verið að A hefði svipt I og J frelsi sínu umrætt sinn. Var refsing A ákveðin fangelsi í sjö ár, B í sex ár og S í 20 mánuði. Þá var þeim gert að greiða A skaðabætur.
...Vísaði sækjandi til þess að samkvæmt reglugerð nr. 651/2009, sem sett væri með stoð í 3. ml. 2. mgr. 28. gr., 67. gr. og 4. mgr. 93. gr. laga...
Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn
X (enginn)
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem ákæruvaldinu var gert að láta dóminum í té orðrétt endurrit af upptökum af lögregluskýrslum en ákæruvaldið hafði hvorki lagt fram slík endurrit né látið verjanda málsins í té mynddisk með upptökunum. Aftur á móti höfðu verið lögð fram endurrit sem voru því sem næst orðrétt. Í dómi Hæstaréttar voru rakin laga- og reglugerðarákvæði um fyrirkomulag við skráningu framburðar sakbornings og vitna og túlkun þeirra í dómaframkvæmd. Þá var vísað til þess að verjandi, sakborningur og réttargæslumaður ættu samkvæmt reglugerð rétt á að hlýða eða horfa á upptöku lögregluyfirheyrslu. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ákæruvaldinu bæri ekki að láta héraðsdómi í té orðrétt endurrit framburðar X og vitna sem tekinn var upp í hljóði og mynd. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.
...júlí 2009 reglugerð nr. 651/2009 um réttarstöðu handtekinna manna, yfirheyrslur hjá lögreglu o.fl. Samkvæmt 12. gr. reglugerðarinnar skal fyrirkomulag um skráningu framburðar, sem tekinn er upp, vera með...
Ákæruvaldið (
Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Annþóri Kristjáni Karlssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson hdl, Ingi Freyr Ágústsson hdl, Sigurvin Ólafsson hdl, Björgvin Jónsson hrl, Sveinn Guðmundsson hrl, Reynir Logi Ólafsson hdl, Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl, Ingi B. Poulsen hdl, Gylfi Jens Gylfason hdl, Bjarni Hauksson hrl, Ingi Poulsen hdl)
Tíu ákærðu allir sakfelldir og dæmdir í fimmtán mánaða til sjö ára fangelsi fyrir hrottalega líkamsárásir, frelsissviptingu, nauðung, fjárkúgun og hótanir.
...Vísaði sækjandi til þess að samkvæmt reglugerð nr. 651/2009, sem sett væri með stoð í 3. ml. 2. mgr. 28. gr., 67. gr. og 4. mgr. 93. gr. laga...
Sakborningarnir X og Y kröfðust þess að fá afhenta geisladiska með mynd- og hljóðupptökum af ákærðu og vitnum í máli sem höfðað hafði verið gegn þeim. Umræddir geisladiskar voru ekki taldir skjöl eða önnur gögn í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Fram var komið í málinu að verjendum væri heimill aðgangur að upptökunum. Að auki lá fyrir að framburður á geisladiskunum hafði verið endurritaður orðrétt og höfðu endurritin verið lögð fram við þingfestingu málsins og þar með orðið hluti af gögnum þess. Kröfu um afhendingu geisladiskanna var því hafnað.
...Um þessi atriði sé nánar kveðið á um í reglugerð nr. 651/2009, sem sett hafi verið með heimild í 3. ml. 2. mgr. 28., 67. gr. og 4. mgr...
Ákæruvaldið (
Hólmsteinn Gauti Sigurðsson saksóknari)
gegn
Lárusi Welding (
Óttar Pálsson hrl) og
Guðmundi Hjaltasyni (
Þórður Bogason hrl)
Hafnað var kröfu verjenda ákærðu um afhendingu á geisladiskum með mynd- og hljóðupptökum af skýrslum ákærðu og vitna í málinu.
...Um þessi atriði sé nánar kveðið á um í reglugerð nr. 651/2009, sem sett hafi verið með heimild í 3. ml. 2. mgr. 28., 67. gr. og 4. mgr...