Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020 (forgangsröð krafna við skila- og slitameðferð). nr. 38/2021

Landsréttur birt 28. nóvember 2024

129/2024

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður) (Gunnhildur Pétursdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa með ólögmætri nauðung og með því að neyta aflsmunar stungið getnaðarlim sínum í munn A, án samþykkis hennar, þar sem hún sat á salerni og notfært sér jafnframt að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar. Í dómi Landsréttar var rakið að misræmis gætti í framburði X hjá lögreglu og fyrir dómi, og var framburður hans metinn ótrúverðugur. Framburður brotaþola um aðalatriði málsins, sem studdur var framburði vitna sem gáfu sig á tal við brotaþola, var stöðugur og skýr frá upphafi og því metinn trúverðugur. Í DNA-rannsókn fundust lífsýni úr brotaþola á getnaðarlim X og á innanverðum nærbuxum hans. Bar X því við að um snertismit væri að ræða. Eftir að hann snerti höku A hafi hann haft þvaglát og þannig hafi lífsýni færst frá höku A á getnaðarlim X. Þær skýringar X komu fyrst fram í síðari skýrslu hans hjá lögreglu, mörgum vikum eftir að lífsýni frá honum voru send til rannsóknar. Að því gættu og með hliðsjón af niðurstöðum DNA-rannsóknar og framburðum tveggja sérfræðinga var talið að skýringar X væru ósennilegar og að ekki yrði á þeim byggt í málinu. Var refsing X ákveðin tvö ár og sex mánuðir. Þá var X gert að greiða A 2.000.000 króna í miskabætur.

Landsréttur birt 25. júní 2024

442/2024

Arnar Már Jónsson og Fanney Anna Ómarsdóttir (Skúli Sveinsson lögmaður) gegn Gísla Sigurgeirssyni og Sigrúnu Sigurgeirsdóttur (Helga Melkorka Óttarsdóttir lögmaður)

Með hinum kærða úrskurði var kröfum A og F í gagnsök um að G og S yrði gert að greiða þeim óskipt nánar tilgreinda fjárhæð vegna galla á fasteign, sem þau keyptu af G og S, vísað frá dómi án kröfu. Í niðurstöðu héraðsdóms kom fram að ekki væri unnt að leggja til grundvallar að G og S bæru óskipta skyldu í málinu í skilningi 1. mgr. 18. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála þar sem þau hefðu verið eigendur tveggja aðgreindra séreignarhluta í húsinu. Hefði A og F því verið rétt að gera sjálfstæða kröfu á hendur G og S, sbr. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991. Í úrskurði Landsréttar var vísað til þess að samkvæmt gagnstefnu væri byggt á því að G og S bæru óskipta ábyrgð í skilningi skaðabótaréttar á göllum í húsinu. A og F hefðu forræði á málatilbúnaði sínum og hömluðu reglur 18. og 19. gr. laga nr. 91/1991 því ekki að kröfugerð þeirra væri hagað með þessum hætti. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka kröfur A og F í gagnsök til efnismeðferðar.

Landsréttur birt 8. mars 2024

190/2023

Steinbock-þjónustan ehf (Þorsteinn Einarsson lögmaður) gegn Golden Seafood Company ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

G höfðaði mál á hendur S til heimtu skaðabóta vegna halds S á lyftara frá 2019 til 2021. Var lyftarinn í eigu G, sem hafði frá hausti 2018 leigt lyftarann út til SH ásamt fleiru. Byggði G á því að S hefði með ólögmætu haldi lyftarans valdið honum tjóni. S byggði meðal annars á sjónarmiðum um haldsrétt, þar sem kostnaður við viðgerð sem S hefði framkvæmt hefði ekki verið greiddur. Í niðurstöðu Landsréttar þótti sannað að SH, en ekki G, hefði beðið S um að skoða lyftarann síðla árs 2019 og koma honum í nothæft ástand. Þá var reikningur sem S gaf út vegna viðgerða á lyftaranum stílaður á SH og ósannað að S hefði byggt á því gagnvart G að lyftarinn fengist ekki afhentur án greiðslu viðgerðarkostnaðar fyrr en í aðfararmáli árið 2021. Var því ekki fallist á að S hefði verið heimilt að beita haldsrétti er G krafði hann um afhendingu lyftarans. Voru G því dæmdar skaðabætur fyrir afnotamissi á grundvelli niðurstöðu matsgerðar. Loks var hafnað kröfum S í gagnsök, annars vegar á grundvelli átta nánar tilgreindra reikninga og hins vegar vegna meintrar auðgunar G af viðgerð S á lyftaranum. Ekki var talið að S hefði tekist sönnun um tilvist gagnkrafna sinna á grundvelli reikninganna, né sönnun þeirrar verðmætaaukningar sem auðgunarkrafa hans byggðist á. Samkvæmt því var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að S skyldi greiða G 2.552.000 krónur vegna afnotamissis.

Landsréttur birt 8. mars 2024

768/2022

Sjóvá-Almennar tryggingar hf og B (Kristín Edwald lögmaður) gegn A (Björgvin Þórðarson lögmaður)

A höfðaði mál þetta til heimtu skaðabóta úr hendi S hf. og B vegna líkamstjóns sem hún telur sig hafa orðið fyrir þegar bifreið í eigu B rann aftan á bifreið sem A ók 10. janúar 2017. Ágreiningur aðila laut að því hvort A hafi orðið fyrir varanlegu líkamstjóni við áreksturinn. Í málinu lágu fyrir álitsgerð örorkunefndar og tvær matsgerðir dómkvaddra manna um mat á afleiðingum árekstursins. Byggði stefnda kröfugerð sína að þessu leyti einkum á matsgerð tveggja dómkvaddra manna 4. febrúar 2019 og álitsgerð örorkunefndar 19. ágúst 2021. Kröfu sína um sýknu af kröfum stefndu byggðu áfrýjendur hins vegar á yfirmatsgerð 6. ágúst 2020 þar sem talið var að minni líkur en meiri væru á því að orsakasamband væri á milli slyssins og einkenna sem A hefði lýst á matsfundi. Í hinum áfrýjaða dómi var meðal annars rakið að þegar ákveðið væri hvaða matsniðurstöðu skyldi leggja til grundvallar gilti reglan um frjálst sönnunarmat dómara, sbr. 1. mgr. 44. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þegar fyrirliggjandi matsgerðir voru bornar saman taldi héraðsdómur, sem skipaður var sérfróðum meðdómanda, að yfirmatsgerðin væri haldin tilteknum annmörkum og að niðurstaða álitsgerðar örorkunefndar, en þó einkum undirmatsgerðar, væru í betra samræmi við sjúkrasögu A og þau læknisfræðilegu gögn sem fyrir lágu. Þá þóttu upplýsingar um breytingar á starfsgetu A eftir áreksturinn styðja það að A hefði orðið fyrir varanlegu líkamstjóni. Var A talin hafa fært nægar líkur fyrir því að hún hafi orðið fyrir varanlegu líkamstjóni við áreksturinn og tjón hennar sem rekja mætti til hans talið samsvara sjö stiga varanlegum miska og 15% varanlegri örorku. Í dómi Landsréttar var tekið fram að A hefði gengist undir læknisskoðun í tengslum við gerð matsgerðar vegna annars umferðarslyss þann 14. desember 2016 eða tæpum mánuði fyrir áreksturinn sem þetta mál tekur til. Í matsgerðinni var við mat á varanlegum miska miðað við lið VI.A.a í miskatöflu örorkunefndar, en hann tekur til hálshryggjar. Jafnframt var rakið að í yfirmatsgerðinni hefði A verið metin tímabundið óvinnufær í þrjá mánuði og það væri óumdeilt í málinu. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var A talin hafa rennt nægilegum stoðum undir það að hún hafi orðið fyrir varanlegu líkamstjóni í umferðarslysinu 10. janúar 2017. Þar sem fyrir Landsrétti var ekki sérstaklega deilt um mat á varanlegum miska og varanlegri örorku A, útreikning bóta og fjárhæð kröfu samkvæmt 1. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, var héraðsdómur staðfestur.

Landsréttur birt 2. febrúar 2024

473/2022

Idex gluggar ehf (Ásgeir Þór Árnason lögmaður) gegn Framkvæmdafélaginu Arnarhvoli ehf. (Hjördís Halldórsdóttir lögmaður) og og Kanti ehf. til vara (Magnús Björn Brynjólfsson lögmaður)

I ehf. höfðaði mál á hendur F ehf. og K ehf. til vara, til endurgreiðslu á leigugjöldum sem I ehf. hafði greitt til flutningsaðila gáma. Málsaðilar höfðu gert með sér þríhliða samning í tengslum við byggingu á skrifstofuhúsnæði sem F ehf. var aðalverktaki að. Samkvæmt samningnum tók I ehf. að sér framleiðslu glugga og að flytja inn í þá gler. K ehf. tók að sér uppsetningu glugga og glerja. Í samningnum kom fram að gler skyldi afhent á verkstað í gámum. Ágreiningur málsins sneri að því hver bæri ábyrgð á greiðslu leigu- og geymslugjalda sem féllu á gámana. Í dómi Landsréttar var málsástæða I ehf. er varðaði endurkröfu geymslugjalda vegna veru gámana á hafnarsvæði flutningsaðila talin of seint fram komin, sbr. 2. mgr. 163. gr. laga nr. 91/1991. Að sama skapi var tilvísun I ehf. til meginreglu verktakaréttar talin of seint fram komin og að hún hefði ekki rúmast innan 5. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991. Landsréttur rakti tiltekin ákvæði samningsins og taldi samninginn ekki bera með sér skyldu F ehf. til að greiða I ehf. þann kostnað sem leiddi af leigu á gámunum. Á hinn bóginn var texti samningsins ekki talinn leysa úr ágreiningi aðila um það hver bæri ábyrgð á greiðslu leigugjaldanna. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að það hefði staðið I ehf. næst að bæta inn í samninginn ákvæði þess efnis að tæma þyrfti gámana áður en þeir söfnuðu leigugjöldum. Jafnframt var ekki talið sannað að tafir F ehf. við uppsteypu hefðu verið orsök þess að kostnaður við gámaleigu féll á I ehf. né að verkefnastjóri F ehf. hefði í tölvupóstsamskiptum við I ehf. tjáð sig með þeim hætti að I ehf. hefði mátt treysta því að F ehf. greiddi leigugjöldin. Var hinn áfrýjaði dómur að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna og F ehf. dæmt til að greiða I ehf. 500.000 krónur vegna gámaleigu fyrir tvo gáma í mánuð á grundvelli yfirlýsingar verkefnastjóra F ehf. um að hann hefði samþykkt slíka greiðslu. I ehf. var dæmt til að greiða K ehf. 1.000.000 króna vegna gagnsakar í héraði.

Landsréttur birt 16. júní 2023

189/2022

Gerður Stefánsdóttir (Guðmundur Siemsen lögmaður) gegn Guðrúnu Valdimarsdóttur Grashoff (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður)

GVG keypti sumarhús af GS. Taldi hún galla vera á húsinu og hélt því eftir lokagreiðslu kaupverðsins að fjárhæð 2.000.000 króna. Hún höfðaði síðan mál gegn GS og krafðist skaðabóta eða afsláttar vegna galla en GS gagnstefndi og krafðist fyrrnefndrar lokagreiðslu. Krafa GVG vegna galla byggðist á rangri upplýsingagjöf um aldur hússins, tjóni af völdum raka og myglu, tjóni vegna undirstöðufestinga hússins, tjóni á hurðum og að lokum tjóni vegna lagfæringar. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að festingar við undirstöður og innihurðir hefðu verið gallaðar. Þá var staðfest sú niðurstaða að sumarhúsið hefði verið byggt árið 1986, en í söluyfirliti kom fram að það væri byggt árið 1998. Í dómi Landsréttar kom fram að jafnvel þótt aldur slíkra fasteigna kynni að hafa fremur takmarkaða þýðingu fyrir verðmæti þeirra yrði að telja sannað að verðmæti hússins væri að einhverju leyti minna þar sem það reyndist 12 árum eldra en gefið var upp. Voru bætur vegna þessa ákveðnar að álitum 500.000 krónur. Þá var í dómi Landsréttar talið ósannað að orsaka raka- og mygluskemmda væri að leita í ástandi eða eiginleikum fasteignarinnar við afhendingu og var GS sýknuð af kröfu vegna slíkra skemmda. Loks var GS sýknuð af kröfu um bætur fyrir tjón vegna lagfæringa. Samtals var fallist á kröfu GVG að fjárhæð 1.460.000 krónur og var ákvæði 2. málsliðar 18. gr. laga nr. 40/2002 ekki talið standa kröfunni í vegi. Fallist var á kröfu GS á hendur GVG vegna 2.000.000 króna lokagreiðslunnar en til frádráttar henni kom fyrrnefnd krafa GVG vegna galla.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. nóvember 2022

E-5823/2021

A (Björgvin Þórðarson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf og B (Kristín Edwald lögmaður)

Aðila greindi á um hvort A hefði orðið fyrir varanlegu líkamstjóni vegna umferðarslyss. Stefndu töldu svo ekki vera með vísa til yfirmatsgerðar, en stefnandi studdi kröfu sína meðal annars við matsgerð og álitsgerð örorkunefndar. Dómurinn, sem var skipaður sérfróðum meðdómsmanni, taldi tiltekna annmarka vera á rökstuðningi fyrir niðurstöðu yfirmatsgerðar. Talið var að forsendur og rökstuðningur í álitsgerð örorkunefndar og einkum í matsgerð dómkvaddra matsmanna væri í mun betra samræmi við sjúkrasögu stefnanda og þau læknisfræðilegu gögn sem lágu fyrir. Lagt var til grundvallar að stefnandi hefði fært nægar líkur fyrir kröfu sinni og að hún hefði orðið fyrir varanlegu líkamstjóni vegna slyssins sem stefndu bæri að bæta.