Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Sonju Iðunni Geirsdóttur
Ákærða var sakfelld fyrir þjófnað, umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Var henni gert að sæta fangelsi í 5 mánuði ásamt því að vera svipt ökuréttindum ævilangt.
AK var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í þrjú tilgreind skipti nánar tilgreint magn af kókaíni, þar af í eitt sinn ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Þá var AK sakfelldur fyrir rangar sakargiftir með því að hafa í kjölfar afskipta lögreglu í eitt skiptið skýrt lögreglu rangt frá nafni sínu, hann kvaðst vera A og leitaðist þannig við að A yrði sakaður um fíkniefnalagabrot. Var AK gert að sæta þriggja mánaða fangelsi, sem bundið var skilorði til tveggja ára, upptöku á nánar tilgreindum fíkniefnum, fjórum farsímum og tilgreindum fjármunum.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn
Jóni Gústafi Magnússyni (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um rangar sakargiftir, ítrekaðan ölvunarakstur, akstur sviptur ökurétti auk annarra umferðarlagabrota. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu refsingarinnar var að hluta frestað skilorðsbundið. Þá var ákærða og gerð sekt og ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar hans.
Ákærði sakfelldur fyrir rangar sakargiftir.
Ákærði sakfelldur fyrir brot á umferðarlögum, brot á lögum um ávana- og fíkniefni og rangar sakargiftir. Hann játaði brot sín skýlaust
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sunnu Lind Ómarsdóttur (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðar- og fíkniefnalögum, en sýknuð af ákæru fyrir rangar sakargiftir.
X var ákærður fyrir rangar sakargiftir með því að hafa með röngum kærum leitast við að koma því til leiðar að A, barnsmóðir hans og fyrrverandi sambýliskona, yrði að ósekju sökuð um refsiverðan verknað, annars vegar með því að hafa sakað A um þjófnað á farsíma og fjársvik með því að hafa greitt fyrir vöru á tilgreindri heimasíðu með greiðslukorti X, hins vegar með því að hafa sakað A um skjalafals með því að hafa í blekkingarskyni ritað og framvísað sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu tveimur greinargerðum í máli sýslumanns er varðaði umgengni við sameiginlegt barn þeirra. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að ekki yrði annað séð af fyrir- liggjandi gögnum í málinu en að kærur X til lögreglu á hendur A hefðu beinst að því að lögregla rannsakaði ætlaða refsiverða háttsemi hennar. Var ekki á það fallist að kærur X uppfylltu saknæmisskilyrði 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, enda lægi ekkert fyrir um að framburður X hjá lögreglu varðandi sakarefni málsins hefði verið rangur þegar hann var gefinn. Var því talið ósannað að X hefði af ásetningi borið A röngum sökum þegar hann kærði hana til lögreglu. Var X því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóni Gunnari Hannessyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, skjalafals og rangar sakargiftir og var dæmdur í 45 daga fangelsi, en þar af 15 dagar skilorðsbundnir í 2 ár, auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi)
gegn
Guðmundi Jóhannesi Guðmundssyni (
Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur sviptur ökurétti sem og rangar sakargiftir. Var honum gert að sæta fangelsi í 45 daga, skilorðsbundið að hluta.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi)
gegn
Aðalsteini Inga Helgasyni (
Jón Egilsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, rangar sakargiftir og vopnalagabrot auk annarra brota. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu 60 daga refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt. Þá voru gerð upptæk vopn og ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ani Kadiu (
Gunnar Gíslason lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og rangar sakargiftir en sýknaður af broti gegn útlendingalögum.
Ákærðu gefnar að sök rangar sakargiftir. Sýkna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Andrej Bazalij (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, umferðarlagabrot, vopnalagabrot og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 165daga en 120 dagar refsingarinnar voru skilorðsbundnir í 2 ár.
Héraðssaksóknari (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari)
gegn
Alberti Loga Skúlasyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður),
Alexander Aroni Gilbertssyni (
Atli Már Ingólfsson lögmaður),
Alexander Mána Björnssyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður),
Arnóri Kárasyni (
Páll Kristjánsson lögmaður),
Ástvaldi Ými Stefánssyni (
Stefán Ragnarsson lögmaður),
X (
Magnús Jónsson lögmaður),
Y (
Guðbjarni Eggertsson lögmaður),
Chibuzor Daníel Edeh (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður),
Cristovao A. F. Da S. Martins (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður),
David Gabríel S. Glascorssyni (
Bjarni Hauksson lögmaður),
Einari Bjarka Einarssyni (
Jón Þór Ólason lögmaður),
Emil Árna Guðmundssyni (
Snorri Sturluson lögmaður),
Fannari Inga Ingvarssyni,
Guido Javier Japke Varas (
Elimar Hauksson lögmaður),
Halldóri Loga Sigurðssyni (
Ólafur V. Thordersen lögmaður),
Y (
Arnar Heimir Lárusson lögmaður),
Helga Þór Baldurssyni (
Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður),
Ingibergi Alex Elvarssyni (
Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður),
John Petur Vágseið (
Þórður Már Jónsson lögmaður),
Matthias Gabriel S. Silva (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður),
Mikael Alf Rodriguez Óttarssyni (
Reynir Þór Garðarsson lögmaður),
Reyni Þór H. Sigurjónssyni (
Björgvin Jónsson lögmaður),
Róberti Sindra Berglindarsyni (
Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður),
Sigurgeiri Sæberg Elísabetarsyni (
Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) og
Viktori Inga Stolzenwald Árnasyni (
Páll Ágúst Ólafsson lögmaður) (
Oddgeir Einarsson réttargæslumaður)
Sakfellt fyrir tilraun til manndráps, líkamsárás og hlutdeild í líkamsárás gegn þremur brotaþolum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Stefáni Erni Oddssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar og fíkniefnalagabrot. Þá var hann sakfelldur fyrir rangar sakargiftir fyrir að framvísa ökuskírteini í eigu annars manns. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og sviptur ökurétti í 5 ár.
Sakfellt vegna fjölda brota, þar á meðal þjófnað, nytjastuld, skjalafals, umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Helgu Bettý Jónsdóttur (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir akstur svipt ökurétti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja auk þjófnaðar og rangra sakargifta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Elís Bergi Sigurbjörnssyni (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Hann játaði brot sín að hluta.
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, nytjastuld, rangar sakargiftir, þjófnað, gripdeild og fjársvik.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Lindu Karen Hafnadóttur (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot, þjófnað, nytjastuld og rangar sakargiftir og gert að sæta fangelsi í 14 mánuði. Þá var ákærða svipt ökurétti í 4 ár og 6 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Friðriki Sölva Gylfasyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Telmu Rut Waltersdóttur (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot, brot á lögum um ávana- og fíkniefni og hegningarlagabrot. Hún játaði brot sín skýlaust og var fullnustu refsingarinnar frestað í þrjú ár.
Ákærða sakfelld fyrir rangar sakargiftir
X var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 201. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa átt í kynferðissambandi við sambúðarbarn sitt, A, á tæplega tveggja ára tímabili er hann var 16 til 17 ára en X og A höfðu margsinnis samræði og önnur kynferðismök á sameiginlegu heimili þeirra. X og A báru bæði um ítrekað samræði og önnur kynferðismök en voru ósammála um hvort þau hefðu átt sér stað með eða gegn vilja X og um fjölda tilvika. Bar X um að A hefði nauðgað henni í umrædd skipti. Í dómi Landsréttar kom fram að einlægur og stöðugur framburður A fengi stuðning í rafrænum samskiptum X og A sem og framburðum annarra vitna. Á hinn bóginn færi framburður X illa saman við ýmis gögn málsins og lýsingu vitna á sambandi hennar og A auk þess sem framburður hennar væri að nokkru leyti þversagnakenndur. Var trúverðugur framburður A lagður til grundvallar sakfellingu X fyrir framangreind brot. X var einnig sakfelld fyrir rangar sakargiftir samkvæmt 1. mgr. 148. gr. hegningarlaga með því að hafa með rangri kæru hjá lögreglu leitast við að koma því til leiðar að A yrði sakaður um eða dæmdur fyrir að hafa ítrekað nauðgað henni og áreitt hana kynferðislega. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til 1., 2., 6. og 7. tölulið 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár og níu mánuði. Þá var X dæmd til að greiða A 700.000 krónur í miskabætur vegna hinna röngu sakargifta sem talið var að hefðu falið í sér ólögmæta meingerð gegn A samkvæmt b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Elís Aroni Valgarðssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir skjalabrot, ítrekuð umferðarlagabrot, rangar sakargiftir og þjófnað í félagi og honum gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Sylvíu Lind Ingólfsdóttur Briem (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærða var fundinn sek um umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Með broti sínu rauf hún skilorð eldri dóms og var refsingin dæmd upp. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 105 daga og henni jafnframt gert að greiða sekt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Martin Erni Arnarsyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, vopnalaga-, fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Steinþóri Einarssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, vopnalögum, lögreglulögum, lyfjalögum og tollalögum
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ágústi Fannari Ásgeirssyni
Ákærði dæmdur fyrir akstur undir áhrifum lyfja og ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og rangar sakargiftir
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir lögreglustjóri) gegn
Olimpiu-Adrian Istrate (enginn)
Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákærða var sakfelld fyrir kynferðisbort og rangar sakargiftir og gert að sæta fangelsi í tvö ár og níu mánuði og að greiða brotaþola miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sofíu Ýri Eiðsdóttur (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir rangar sakargiftir og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóni Geir Ásgeirssyni
Ákærði sakfelldur fyrir að hafa tvisvar sinnum ekið bifreið sviptur ökurétti og brot gegn 148. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 260.000 króna sektar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Atla Erni Jenssyni (
Þorgeir Þorgeirsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir rangar sakargiftir, skjalabrot, umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot.
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar-, umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Ákærði var fundinn sekur um rangar sakargiftir, sem og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 45 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Stefáni Erni Oddssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og rangar sakargiftir.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn
Friðberg Óskari Sigurðssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og rangar sakagiftir.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Tinnu Hilmarsdóttur (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og rangar sakargiftir. Ákærða dæmd í 8 mánaða fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting var áréttuð. Þá var ákærðu gert að sæta upptöku á fíkniefnum.
Ákæruvaldið (Sonja H. Berndsen saksóknarfulltrúi) gegn
Ástu Lilju Magnúsdóttur
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Var hún dæmd til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Aðalsteini Sigfússyni (
Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti og við sama tækifæri að hafa gefið upp rangar persónuupplýsingar og með því leitast við að rangur maður væri sakaður um refsiverða háttsemi. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í tvö ár.
Ágúst Heimir Ólafsson (
Andri Árnason lögmaður)
gegn
D&T sf. og Deloitte ehf. og Deloitte FAS ehf. og Sigurði og Páli Haukssyni og Jónasi Gesti Jónassyni og Birni Inga Victorssyni og Benóní Torfa og Eggertssyni og Hilmari Alfreð Alfreðssyni og Pálínu Árnadóttur og Halldóri Arasyni og Sif og Einarsdóttur og Páli Grétari Steingrímssyni og Önnu Birgittu Geirfinnsdóttur og Hólmgrími og Pétri Bjarnasyni og Þorsteini Pétri Guðjónssyni og Signýju Magnúsdóttur og Bjarna Þór og Bjarnasyni og Gunnari Þorvarðarsyni og Sigurði Pálma Sigurðssyni og Ragnari Jóhanni og Jónssyni og Aðalsteini Þór Sigurðssyni og Sigurði Heiðari Steindórssyni og Sigurði og Álfgeir Sigurðarsyni og Einari Hafliða Einarssyni og Jóhanni Geir Harðarsyni og Birni og Helga Arasyni og Lúðvík Þráinssyni og Haraldi Inga Birgissyni og Guðna Björgvini og Guðnasyni og Jóhanni Óskari Haraldssyni og Sunnu Dóru Einarsdóttur og Lovísu Önnu og Finnbjörnsdóttur og Birnu Maríu Sigurðardóttur (
Ólafur Eiríksson lögmaður) og
Birki Leóssyni og Guðmundi Kjartanssyni og Knúti Þórhallssyni og og Lárusi Finnbogasyni (
Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)
Stefnandi krafðist skaðabóta vegna ætlaðrar ólögmætrar uppsagnar á ráðningarsamningi við stefnda Deloitte FAS ehf., svo og vegna ólögmætrar innlausnar á eignarhluta stefnanda í stefnda D&T sf. Þá krafðist stefnandi bóta fyrir ófjárhagslegt tjón og miska sem stefnandi taldi sig hafa orðið fyrir vegna starfslokanna. Einnig krafðist stefnandi greiðslu fyrir eignarhlut sinn í D&T sf. eftir tiltekinni reiknireglu. Með þeirri kröfu var krafist mismunar á innlausnarverði eignarhluta stefnanda og raunvirðis eignarhlutarins samkvæmt svonefndri sjóðsstreymisaðferð. Enn fremur krafðist stefnandi hlutdeildar í hagnaði stefnda Deloitte ehf. 2016/2017. Loks krafðist stefnandi viðurkenningar á því að samningsákvæði, sem leggi hömlur við því að stefnandi sinni endurskoðunar- og ráðgjafarstörfum eftir starfslok séu ógild og óskuldbindandi, meðal annars í ljósi ólögmæts brottrekstrar, auk viðurkenningar á bótaskyldu. Dómkröfum stefanda var hafnað að öðru leyti en því að fallist var á að hann ætti rétt á skaðabótum sem svaraði til launa og annarra greiðslna í tvo mánuði til viðbótar einum mánuði sem stefnandi fékk greiddan við starfslokin.
Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn
Kristínu Chuthamart Khumkan
Ákærða var fundin sek um hraðaakstur, rangar sakargiftir og þjófnað. Var henni gert að sæta fangelsi í 30 daga, en að virtri skýlausri játningu ákærðu sem og að teknu tilliti til þess að ákærða hefur ekki áður sætt refsingu, var fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Viktori Hrafni Einarssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Var honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði.
Ákæruvaldið (Kristín Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Aroni Snæ Sigurðarsyni
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaði og rangar sakargiftir. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga.
Ákærðu sakfelld fyrir fjölmörg brot gegn hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákærðu A og B voru sýknaðir af kröfum ákæruvaldsins. Aðrir ákæru voru sakfelldir fyrir fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot auk brota gegn almennum hegningarlögum.
Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ingvari Ellert Einarssyni
Ákærði dæmdur í fangelsi í fimm mánuði og 15 daga fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot sem og brot gegn almennum hegningarlögum.
Ákæruvaldið (
Sigurður Hólmar Kristjánsson fulltrúi)
gegn
Katrínu Gestsdóttur (
Andrés Már Magnússon hdl)
Sakfellt fyrir rangar sakargiftir
Ákæruvaldið (
Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Loga Árnasyni (
Björn Jóhannesson hrl)
Ákærði var dæmdur í fimm mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir brot gegn umferðarlögum og rangar sakargiftir.