Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

19 dómar fundust

Lykilorð: Endurgjaldskrafa

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2025

E-1944/2024

A, […] (Alexander Hafþórsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Talið var að Sjúkratryggingastofnun hefði verið heimilt að hætta að greiða stefnanda, lækningastofu, þá reikninga sem stefnandi sendi stofnuninni vegna greiðsluþátttöku ríkisins í heilbrigðiskostnaði. Stefndi, íslenska ríkið, var því sýknað af fjárkröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. desember 2024

E-5865/2022

Vicki Preibisch (Orri Sigurðsson lögmaður) gegn Eldís ehf. og Bjarna Þór Ólafssyni (Páll Kristjánsson lögmaður)

Stefnandi, einstaklingur, réð stefnda, verktakafyrirtæki, til þess að reisa hús fyrir sig. Þegar húsbyggingunni miðaði ekki eins hratt og gert hafði verið ráð fyrir í upphafi og stefnandi taldi sig hafa greitt meira en henni bar slitnaði upp úr samstarfi málsaðila. Dómurinn taldi að þegar málsaðilar hættu samstarfi sínu hafi samningssamband þeirra verið líkast því sem mælt er fyrir um í 28. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup, að ekki hafi verið samið endanlega um verð fyrir verkið. Talið var að sanngjarnt endurgjald fyrir verkið, eins og það stóð þegar stefndi hætti vinnu við það, væri lægra en sú fjárhæð sem stefnandi hafði þegar greitt. Því var fallist á að stefnda, verktakafyrirtækinu, bæri að endurgreiða henni þá fjárhæð sem hún hafði ofgreitt. Stefndi, eigandi verktakafyrirtækisins og jafnframt byggingarstjóri verksins, var sýknaður af kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. desember 2024

A-1862/2024

Þb. Air Berlin PLC & Co Luftverkehrs KG (Gunnar Jónsson lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður, Landgericht Berlin)

Fallist var á að gera mætti fjárnám hjá gerðarþola fyrir kröfum gerðarbeiðanda. Ágreiningur málsins snéri einkum að því hvort ákvæði b-liðar 2. mgr. 1. gr. Lúganósamningsins, sbr. lög nr. 7/2011 um dómsvald og viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum, og fjalla um undanþágur frá ákvæðum samningsins, m.a. um "gjaldþrot", ættu að standa því í vegi að fjárnám mætti fram fara.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 23. nóvember 2023

E-363/2022

TGJ ehf (Björn Þorri Viktorsson lögmaður) gegn Stefáni Knútssyni Jeppesen (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Ágreiningur kom upp á milli bræðra sem ráku einkahlutafélag saman. Taldi annar hinn hafa dregið sér fé úr sjóðum félagsins og jafnframt hafa ráðstafað verðmætu umboði félagsins til síns eigin félags. Höfðaði hann mál í nafni einkahlutafélags þeirra bræða og krafðist skaðabóta og/eða endurgreiðslu fjárins úr hendi hins, sem kvað greiðslurnar hafa verið réttmætar greiðslur fyrir störf sín í þágu félagsins. Var talið ósannað að um óréttmætar greiðslur hefði verið að ræða. Þá var ekki talið sýnt fram á að stefndi hefði sölsað undir sig umboð félagsins og valdið því að það hefði runnið því úr greipum, þó hann hefði gert tilraun til þess. Var stefndi sýknaður af kröfu stefnanda, en hvor aðila látinn bera sinn hluta málskostnaðar með hliðsjón af aðdraganda og atvikum máls.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. mars 2019

E-3247/2017

Grund hjúkrunarheimili og Dvalarheimilið Ás (Sigurður Valgeir Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnenda um greiðslu skaðabóta eða endurgjalds vegna afnota rekstraraðila hjúkrunarheimila á húsnæði sem þeir lögðu til undir reksturinn.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. mars 2019

E-3246/2017

Hrafnista dvalarheimili aldraðra í Reykjavík og Hrafnista dvalarheimili aldraðra í Hafnarfirði (Sigurður Valgeir Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnenda um greiðslu skaðabóta eða endurgjalds vegna afnota rekstraraðila hjúkrunarheimila á húsnæði sem þeir lögðu til undir reksturinn.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. september 2017

E-2996/2017

Jón Halldórsson (Margrét Guðjónsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Fallst var á að stefnanda væri heimilt að draga sölutap frá söluhagnaði hlutabréfa á árinu 2007 vegna sölu bréfanna til félags sem alfarið var í eigu stefnanda. Aðalkröfu stefnanda var hafnað þar sem verðlagning hlutanna var ekki í samræmi við verðmæti þeirra, en fallist á varakröfu sem tók mið af raunverulegu virði þeirra samkvæmt mati.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. júlí 2012

Q-2/2012

Endurgjaldskröfu sóknaraðila skv. 2. mgr. 107. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og fjárkröfu vegna hlutdeildar í lífeyrisréttindum varnaraðila sem byggð var á 2. mgr. 102. gr. hjúskaparlaga var vísað frá dómi þar sem talið var að samræmi skorti í reifun á kröfum sóknaraðila og tilgreiningu á lagagrundvelli þeirra. Málskostnaður var felldur niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. apríl 2011

E-2051/2010

Insung Norway AS (Ástríður Gísladóttir hrl) gegn Dímoni Línu ehf (Jón Ögmundsson hrl)

Fallist var á með stefnanda að samningur hefði komist á um kaup stefnda á nánar tilgreindu magni af frosnum smokkfiski og að stefnandi ætti kröfu um greiðslu á umsömdu, föstu kaupverði fyrir það magn, sem stefndi hafði fengið afhent úr frystigeymslu hér á landi gegn greiðslu geymslugjalda, auk skaðabóta vegna vanefnda stefnda á samningsskyldum sínum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. ágúst 2010

E-11660/2009

Kristín Sigurjónsdóttir (Ólafur Hvanndal Ólafsson hdl) gegn K 107 ehf (Unnar Steinn Bjarndal hdl)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda. Hvorki var talið að stefnandi hafi starfað sem framkvæmdastjóri stefnda né að stefndi hafi samþykkt að endurgreiða stefnanda tiltekna fjárhæð sem stefnandi staðhæfði að hafa innt af hendi fyrir stefnda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. janúar 2010

E-4040/2009

Þrotabú Tækja, tóla og byggingavara ehf (Valgerður Dís Valdimarsdóttir hdl) gegn Grjóthálsi ehf (Daði Ólafsson hdl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Rift var greiðslu frá Tækjum, tólum og byggingavörum ehf. til Grjótháls ehf. fyrir húsaleigu sem fram fór með millifærslu í bókhaldi Tækja, tóla og byggingavara ehf. með því að krafa félagsins á Eykt ehf. var færð sem innborgun á kröfu Grjótháls ehf. Talið var að um hafi verið að ræða greiðslu skuldar á síðustu sex mánuðum fyrir frestdag sem á ótilhlýðilegan átt hafði orðið Grjóthálsi ehf. til hagsbóta á kostnað annarra kröfuhafa.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. maí 2008

E-1554/2007

TÁG ehf (Ásgeir Jónsson hdl) gegn Guðmundi Sigurðssyni (Tómas Hrafn Sveinsson hdl)
Lykilorð: Endurgjaldskrafa. Verkkaup.

T krafði G um greiðslu endurgjalds fyrir vinnu sem aðallega fólst í því að grafið og fleygað var fyrir grunni að haughúsi. Aðila greindi á um réttmætt endurgjald og hafði G þegar greitt T þá fjárhæð sem hann taldi sanngjarnt endurgjald fyrir verkið. G var sýknaður á þeim grunni að honum væri ekki skylt að inna frekari greiðslu af hendi vegna þeirra lögskipta aðila sem um var deilt í málinu.