Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lykilorð: Framkvæmdastjóri

Landsréttur birt 10. apríl 2025

215/2025

Eimskip Ísland ehf (Lilja Jónasdóttir lögmaður) gegn Q21-Iceland ehf (enginn)

E hf. krafði Q ehf. um greiðslu skuldar sem tilkomin var vegna ógreiddra reikninga fyrir vöru- og flutningsgjöld. Með úrskurði héraðsdóms var málinu vísað frá dómi án kröfu með vísan til þess að birting stefnu í málinu hefði ekki verið lögmæt. Hafði stefna verið birt á lögheimili framkvæmdastjóra Q ehf. fyrir maka hans. Framkvæmdastjóri Q ehf. var einnig varamaður í stjórn félagsins og taldi héraðsdómur hann af þeim sökum ekki vera fyrirsvarsmann þess í skilningi 4. mgr. 17. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í úrskurði Landsréttar voru rakin ákvæði laga nr. 91/1991 og laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Tók Landsréttur fram að í framkvæmd hefði verið litið svo á að skráður framkvæmdastjóri einkahlutafélags gæti komið fram í dómsmáli sem stjórnandi félagsins samkvæmt fyrrgreindri 4. mgr. 17. gr. laga nr. 91/1991 og að birta mætti honum stefnu á hendur félaginu. Var ekki talið að annmarkar hefðu verið á birtingu stefnunnar og hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnislegrar úrlausnar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. júlí 2024

E-2933/2023

A (Ólafur Karl Eyjólfsson lögmaður) gegn B (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafðist annars vegar launa í uppsagnarfresti og hins vegar ógreidds arðs úr hendi stefnda. Hvað fyrrnefndu kröfuna snerti deildu aðilar um það hvort stefnanda hefði verið sagt upp störfum eða hvort hann hefði sjálfur hætt hjá stefnda. Í dómi héraðsdóms var talið að líta yrði svo á, út frá atvikum eins og þau lágu fyrir, að stefnanda hefði verið sagt upp störfum hjá stefnda. Á hinn bóginn var talið að hann hefði brotið með slíkum hætti gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart félaginu að stefnda hefði verið heimilt að segja honum upp fyrirvaralaust og að stefnandi hefði fyrirgert sér rétti til launa í uppsagnarfresti. Hvað varðaði kröfu stefnanda um ógreiddan arð var tekið undir það með stefnda að honum hefði verið heimilt að skuldajafna við arðgreiðslur til stefnanda kröfur vegna skuldar stefnanda við félagið sem til voru komnar vegna persónulegra nota hans á fjármunum stefnda. Var þannig talið að stefnda hefði verið heimilt að draga frá arðgreiðslunni nánar tilgreindar fjárhæðir en stefnda að öðru leyti gert að standa stefnanda skil á þeim arði sem hann átti heimtingu á.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 23. nóvember 2023

E-363/2022

TGJ ehf (Björn Þorri Viktorsson lögmaður) gegn Stefáni Knútssyni Jeppesen (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Ágreiningur kom upp á milli bræðra sem ráku einkahlutafélag saman. Taldi annar hinn hafa dregið sér fé úr sjóðum félagsins og jafnframt hafa ráðstafað verðmætu umboði félagsins til síns eigin félags. Höfðaði hann mál í nafni einkahlutafélags þeirra bræða og krafðist skaðabóta og/eða endurgreiðslu fjárins úr hendi hins, sem kvað greiðslurnar hafa verið réttmætar greiðslur fyrir störf sín í þágu félagsins. Var talið ósannað að um óréttmætar greiðslur hefði verið að ræða. Þá var ekki talið sýnt fram á að stefndi hefði sölsað undir sig umboð félagsins og valdið því að það hefði runnið því úr greipum, þó hann hefði gert tilraun til þess. Var stefndi sýknaður af kröfu stefnanda, en hvor aðila látinn bera sinn hluta málskostnaðar með hliðsjón af aðdraganda og atvikum máls.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 23. nóvember 2023

E-362/2022

Grjóteyri 1 ehf (Björn Þorri Viktorsson lögmaður) gegn Stefáni Knútssyni Jeppesen (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Ágreiningur kom upp á milli bræðra sem ráku einkahlutafélag saman. Taldi annar hinn hafa greitt sér fé úr sjóðum félagsins án heimildar og krafðist endurgreiðslu í nafni félagsins. Bar stefndi fyrir sig að um hafi verið að ræða endurgreiðslu útlagðs kostnaðar í þágu félagsins, auk þess sem hann hefði millifært fé frá félaginu til annars félags í eigu þeirra bræðra, til greiðslu verklauna stefnda á þágu síðarnefnda félagsins. Þessi millifærsla hefði verið endurgreidd að mestu. Þá bar stefndi fyrir sig fyrningu. Fallist var á að hluti krafna stefnanda væri fyrndur, en stefndi dæmdur til greiðslu um einnar milljónar króna sem var umfram þann hluta sem síðarnefnda félagið hafði endurgreitt. Var hvor aðila látinn bera sinn hluta málskostnaðar með hliðsjón af aðdraganda og atvikum máls.

Héraðsdómur Vesturlands birt 7. desember 2022

E-180/2021

Brúarreykir ehf (Jón Jónsson lögmaður) gegn Bjarna Bærings Bjarnasyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Bótakrafa einkahlutafélags á hendur fyrrum framkvæmdastjóra félagsins sem jafnframt var og er eigandi helmings hlutafjár. Bótaábyrgð áður verið viðurkennd með dómi, í málinu því einungis tekist á um fjárhæð bóta.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 2. desember 2021

E-52/2019

Tandrabretti ehf (Jón Jónsson lögmaður) gegn Hannesi Höskuldssyni (Jón Þór Ólason lögmaður)

Einkahlutafélag krafðist endurgreiðslu úr hendi fyrrum starfsmanns félagsins vegna útgjalda sem greidd voru með korti félagsins, en félagið taldi útgjöldin hafa verið einkaneyslu sem hvorki hafi rúmast innan ráðningarkjara starfsmannsins né yrði færð undir eðlileg rekstrarútgjöld. Starfsmaðurinn hafði áður verið eini eigandi félagsins, framkvæmdastjóri þess og síðar framleiðslustjóri. Talið var að hann hafi haft fullnægjandi heimildir til ákvörðunar um rekstrarútgjöld og ráðningarkjör á þeim tíma sem hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra. Eins og atvikum var háttað var félagið ekki talið hafa sýnt fram á að útgjöld hans væru augljóslega einkaútgjöld, sem væru umfram heimildir. Var stefndi sýknaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. nóvember 2020

E-1361/2020

Svavar Þór Guðmundsson (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn Bacco Seaproducts ehf., Óskari Hjalta Halldórssyni og Bjartmari Péturssyni (Atli Björn Þorbjörnsson lögmaður)

Starfssamningur sem aðilar gerðu í mars 2018 talinn í gildi og grundvalla réttindi og skyldur launþega við uppsögn ásamt almennum reglum. Launþegi sem sagt var upp störfum og ekki gert að sinna vinnuskyldu í uppsögn, talinn eiga rétt á óskertum launum í uppsagnarfresti.