O var sakfelldur með dómi héraðsdóms 19. maí 2017 fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa, í félagi við aðra, fjármagnað, skipulagt og staðið að tilraun til innflutnings á samtals 3735 g af amfetamíni til landsins. Þá var hann sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa í eitt skipti haft í vörslum sínum 130,04 g af maríhúana og 14 kannabisplöntur og hafa um skeið ræktað greindar plöntur og með því að hafa í annað skipti haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 18,74 g af amfetamíni, 59,60 g af ecstasy, 86,94 g af kókaíni, 871, 99 g af maríhúana, 388,64 g af kannabislaufum, 181,57 g af kannabisstönglum og 3 kannabisplöntur auk þess að hafa um skeið ræktað greindar plöntur. Með dómi Landsréttar 16. nóvember 2018 var héraðsdómur staðfestur um sakfellingu O og hann dæmdur til að sæta fangelsi í tvö og hálft ár. Með úrskurði endurupptökudóms 23. janúar 2023 var fallist á beiðni O um endurupptöku fyrrgreinds landsréttarmáls. Í dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu O. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt því og kröfugerð ákæruvalds og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing O ákveðin fangelsi í tvö ár en vegna mikils dráttar á meðferð málsins og breyttum högum ákærða var fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Andrzej Nurzynski (
Axel Kári Vignisson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir brot á lyfja-, áfengis- og tóbaksvarnarlögum. Upptaka. Sýkna að hluta.
Með hinum áfrýjaða dómi var D var sakfelldur fyrir þjófnaðar-, fíkniefnalaga-, lyfjalaga, lögreglulaga- og umferðarlagabrot. Refsing D var hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði. Samkvæmt dómvenju og virtum sakarferli D voru ekki forsendur til að skilorðsbinda dæmda refsingu. Með vísan til forsenda hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
A var sakfelldur fyrir fjölmörg hegningarlagabrot, umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Með hliðsjón af sakarefni málsins, dómvenju og 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í 20 mánuði. Að auki var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku fíkniefna og vasahnífs.
X var ákærður fyrir brot í nánu sambandi og kynferðisbrot með því að hafa ráðist að þáverandi kærustu sinni, A, með því að beita hana ofbeldi, hótunum og stórfelldum ærumeiðingum og særa blygðunarsemi hennar. Í ákæru voru brot X talin varða við 209. gr. og 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Auk þess var hann ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa á heimili sínu haft í vörslu sinni 1,11 grömm af kókaíni, hnúajárn með föstu hnífsblaði, öxi og fimm kaststjörnur. Landsréttur taldi að ekki hefðu myndast slík tengsl á milli X og A að samband þeirra gæti talist náið í skilningi 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga. Þá var ekki fallist á að háttsemin sem slík uppfyllti áskildar kröfur um alvarleika. Landsréttur taldi ákæruvaldið ekki hafa axlað þá sönnunarbyrði sem á því hvíli eftir 108. gr. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 að sýna fram á að X hefði beitt brotaþola ofbeldi með því að slá hana ítrekað í líkamann. Var X því sýknaður af þeim sakargiftum. Var hann jafnframt sýknaður af ákæru um brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga þar sem ekki var fallist á að ummælin væru af kynferðislegum toga. X var aftur á móti sakfelldur fyrir hótanir í garð A. Landsréttur taldi nánar tilgreind ummæli vera til þess fallin að vekja ótta hjá A um velferð og líf hennar og voru þau því talin varða við 233. gr. almennra hegningarlaga. Loks var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærða fyrir vopna- og fíkniefnalagabrot staðfest. Með þeim brotum sem X var sakfelldur fyrir hafði hann rofið skilyrði reynslulausnar og voru eftirstöðvar refsingar teknar upp og dæmdar með í þessu máli, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar. Var refsing X ákveðin samkvæmt 77. gr. almennra hegningarlaga og honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði. Þá var X gert að greiða A 300.000 krónur í miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðnýju Báru Tryggvadóttur (
Kristján Flygenring lögmaður)
Játningarmál. Ákærða sakfelld fyrir brot á lyfja- og lyfsölulögum, tollalagabrot og akstur undir áhrifum lyfja.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Hermanni Hjartarsyni Gustum (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði játaði sök og var dæmdur fyrir vörslu fíkniefna og vopnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Davíð Þór Gunnarssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. þjófnað, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, umferðar- og lögreglulagabrot og dæmdur í 14 mánaða fangelsi auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar hans var áréttuð og haldlögð fíkniefni voru gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Elmari Frey Ásbjörnssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals, skjalabrot, líkamsárás, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ragnari Guðmundi Ragnarssyni (
Þuríður Sigurjónsdóttir lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, þjófnað, vopnalagabrot, brot gegn lögreglulögum, lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum
Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti, hylmingu, fjölda umferðarlagabrota, brot gegn vopnalögum, fíkniefnalögum o.fl. Refsing var skilorðsbundin, ekki síst í ljósi þess að ákærði hafði ekki áður hlotið refsidóm. Þá var ákærði sviptur ökurétti í fimm ár. Synjað var um upptöku á tveimur bifreiðum í eigu ákærða, en fjöldi annarra verðmæta gerður upptækur til ríkissjóðs.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn
Grzegorz Zdzislaw Fedorów
Ákærði dæmdur fíkniefna- og lyfjalagabrot. Fíkniefni og lyf gert upptækt
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi)
gegn
Michal Okapiec (
Þorgeir Þorgeirsson lögmaður)
Ákærði dæmdur fyrir brot gegn lögum og reglugerð um ávana- og fíkniefni, lyfjalögum, vopnalögum og fyrir peningaþvætti
D var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 900 millilítrum af vökva sem innihélt amfetamín. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir brot gegn tollalögum og lyfjalögum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að D hafði ekki áður gerst sekur um brot sem varðaði refsingu. Var refsing D ákveðin fangelsi í 20 mánuði auk þess sem nánar tilgreind fíkniefni og lyf voru gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Björn Bender (
Sigmundur Hannesson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot. Um ítrekuð brot var að ræða. Ákærði var dæmdur í átta mánaða fangelsi og fíkniefni voru gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ernu Ósk Agnarsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir m.a. umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og fjársvik og dæmd í fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið að hluta, og svipt ökurétti
Sakfellt fyrir ávana- og fíkniefnalagabrot og tolla-, lyfsölu- og lyfjalagabrot.
AB var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, sbr. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa slegið A fjórum sinnum með sleggju með nánar tilgreindum afleiðingum. Þá var hann sakfelldur fyrir eignaspjöll, sbr. 1. mgr. 257. gr. sömu laga með því að hafa slegið með sleggjunni í afturhurð bifreiðar þannig að rúða í hurðinni brotnaði. Loks var hann sakfelldur fyrir lyfja- og tollalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum og flutt ólöglega til landsins nánar tilgreint magn lyfja. Refsing AB var ákveðin fangelsi í níu mánuði en þar af var fullnustu sex mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða A miskabætur og sæta upptöku framangreindrar sleggju og lyfja.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Emilíu Jennu Húnfjörð (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að greiða 1.230.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja en sæta ella fangelsi í 44 daga. Þá var ákærða svipt ökurétti í 2 ár og 4 mánuði frá birtingu dómsins að telja. Fíkniefni gerð upptæk og ákærðu gert að greiða sakarkostnað.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi)
gegn
Dominik Wawrzyn (
Úlfar Guðmundsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir innflutning á heróíni og lyfjum
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óttari Gunnarssyni (
Arnar Þór Stefánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir heimilisofbeldisbrot og kynferðisbrot. Refsing fangelsi í 2 ár.
Héraðssaksóknari (
Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Sævari Frey Höskuldssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, lögreglulögum og lögum um ávana- og fíkniefni en sýknaður af broti gegn almennum hegningarlögum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ægi Ágústssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Pétri Karli Péturssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn vopnalögum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Dagnýju Birgisdóttur (
Þuríður B. Sigurjónsdóttir lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Saranrat Neladanuvong (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Héraðssaksóknari (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Maksymilian Jerzy Skibinski (
Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Refsing ákærða ákveðin fangelsi í fimm ár.
Ákæruvaldið (
Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þorsteini Frey Jóhannssyni (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld og skjalabrot.
Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Vilmundi Bernharðssyni I
Sakfellt fyrir hylmingu, auk brota á umferðarlögum, áfengislögum, vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Sváfni Má Líndal Bergrúnarsyni
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, gripdeild og vörslur fíkniefna. Dæmdur í 6 mánaða fangelsi, eftirstöðvar reynslulausnar dæmdar upp.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jennýju Gísladóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir hegningar- og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þórarni Helga Agnarssyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (
Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri)
gegn
Wieslaw Bogumil Nesteruk og Dariusz Nesteruk (
Kristján Óskar Ásvaldsson lögmaður)
Tveir menn sakfelldir fyrir vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni. Annar að auki dæmdur fyrir umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ísabellu Líf Helgudóttur (
Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir fjársvik, þjófnaði og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hlyni Frey Harryssyni (
Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni, peningaþvætti, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Dæmdur í 10 mánaða fangelsi, þar af sjö mánuði skilorðsbundna til tveggja ára. Einnig sviptur ökurétti ævilangt og fíkniefni gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Aðalsteini Árdal Björnssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fjölda brota gegn m.a. almennum hegningarlögum og umferðarlögum. Var hann dæmdur í fangelsi í 20 mánuði, ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð og upptæk gerð fíkniefni sem haldlögð voru við rannsókn málsins.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eggert Davíð Jóhannssyni (
Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, þjófnað og fíkniefnalagabrot. Hann játaði brot sín skýlaust og viðurkenndi bótaskyldu.
Ákæruvaldið (
Óli Ingi Ólason saksóknari)
gegn
Ingvari Árna Ingvarssyni (
Valgeir Kristinsson lögmaður)
I var sakfelldur fyrir hótunarbrot gagnvart starfsmönnum dýralæknamiðstöðvar með því að hafa ritað og birt tiltekin ummæli á Facebook-síðu sinni. Þá var I sakfelldur fyrir tollalagabrot og brot gegn lyfsölu- og lyfjalögum með því að hafa flutt hingað til lands og reynt að komast hjá því að greina tollyfirvöldum frá sjö ampúlum af lyfseðilsskyldu lyfi sem hann hafði ekki innflutningsleyfi fyrir. Í III. kafla ákæru var I jafnfram gefið að sök brot gegn tolla- og vopnalögum með því að hafa flutt hingað til lands skammbyssu, riffil, magasín ætlað fyrir riffil, tvo brúsa af piparúða og sjö pakka af skotfærum. Héraðsdómur lagði til grundvallar að um eftirlíkingar væri að ræða en ekki raunveruleg vopn, að piparúðanum undanskildum. Með dómi héraðsdóms var vísað frá dómi þeim þætti III. kafla ákæru er laut að ætluðu vopnalagabroti I vegna innflutnings á öðru en piparúða. Með dómi Landsréttar var einnig vísað frá héraðsdómi þeim þætti III. kafla ákæru er laut að ætluðu tollalagabroti I þar sem verknaðarlýsing í ákæru var talin í ósamræmi við heimfærslu til refsiákvæða og málatilbúnað ákæruvaldsins að öðru leyti. Við ákvörðun refsingar var litið til 1. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var einnig litið til þess að dráttur hefði orðið á málinu án þess að I yrði um kennt. Var refsing I ákveðinn fangelsi í 60 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Einnig var I gert að sæta upptöku á sjö ampúlum af lyfseðilsskyldu lyfi og tveim brúsum af piparúða, en kröfu ákæruvaldsins um upptöku var að öðru leyti vísað frá héraðsdómi.
A voru gefin að sök ýmis brot með tveimur ákæruskjölum. Við meðferð málsins í héraði játaði hann þær sakargiftir samkvæmt fyrri ákærunni að hafa gerst sekur um fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, lyfja- og tollalagabrot og umferðarlagabrot. Með síðari ákærunni voru A gefin að sök í fjórum liðum meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum í sjálfstæðri atvinnustarfsemi hans. Hann játaði þá háttsemi að hluta en neitaði að öðru leyti sök. Krafðist hann meðal annars frávísunar síðari ákærunnar í heild eða að hluta, þar á meðal vegna málsmeðferðar sem hann taldi í andstöðu við 4. gr. 7. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, þar sem honum hefði með úrskurði ríkisskattstjóra þegar verið gert að greiða álag á skattstofna vegna sömu tekjuára og sakargiftir tækju til. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að við rekstur mála A hjá skattyfirvöldum annars vegar og ákæruvaldi og dómstólum hins vegar, sem sakargiftir samkvæmt öðrum og þriðja tölulið síðari ákærunnar lutu að, hafi verið brotið gegn ákvæðum 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka sáttmálans. Tali dómurinn því rétt að vísa þeim ákæruliðum frá dómi sem A hefði ekki gengist við en gera honum refsingu fyrir þann hluta sakargifta sem hann hefði játað. Með dómi Landsréttar var fallist á það mat héraðsdóms að skilyrðum 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðaukans hefði ekki verið fullnægt við rekstur mála A hjá skattyfirvöldum annars vegar og ákæruvalds og dómstólum hins vegar. Í því fælist nánar tiltekið að ekki væri unnt að líta svo á að rekstur málanna hefði verið nægjanlega samþættur í tíma, sbr. einkum dóm Hæstaréttar Íslands 21. september 2017 í máli nr. 283/2016. Þessir ágallar tækju til umræddra sakargifta í heild og stæðu engin rök til þess að undanskilja í frávísun þann hluta þeirra sem A hefði játað. Var þannig öðrum og þriðja tölulið síðari ákærunnar vísað frá héraðsdómi í heild. Þá féllst Landsréttur á það mat héraðsdóms að sakfella A fyrir þau brot sem honum væru gefin að sök í fyrsta og fjórða lið sömu ákæru enda stæðu ekki efni til þess að þeim yrði vísað frá héraðsdómi á sama grunni eða af öðrum ástæðum. Var A því sakfelldur fyrir þau brot og fyrrgreind brot samkvæmt fyrri ákærunni. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fullnustu fjögurra mánaða þeirrar refsingar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá skyldi A sæta upptöku á rafmagnsvopni, fíkniefnum og lyfjum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristjönu Þórunni Eðvarðsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir vörlsur fíkniefna. Dæmd í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hegningarauki.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Antoni Pétri Hallgrímssyni (
Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (
Bryndís Ósk Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Pawel Krainski (
Kristján Óskar Ásvaldsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðar-, tolla og fíkniefnabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Ara Einarssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, vopnalagabrot og brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, og brot í nánu sambandi. Ákærði játaði brot sín skýlaust og var dæmdur í 18 mánaða fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Herði Hákoni Jónssyni (
Þröstur Þór Guðmundsson lögmaður)
Maður sakfelldur fyrir fjársvik og umferðar-, lyfja- og tollalagabrot. Sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Aroni Jónssyni (
Magnús Davíð Norðdahl lögmaður)
Maður sakfelldur auðgunar-, fíkniefna- og umferðarlagabrot. Rof á skilyrðum reynslulausnar. Sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Alexander Feyki Heiðarssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir nytjastuld, þjófnað, umferðarlagabrot og vörslur fíkniefna. Dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að sæta sviptingu ökuréttar í 1 ár.
Ákærði var dæmdur í 22 mánaða fangelsi fyrir fjölmörg brot, þar á meðal umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, þjófnaðarbrot og eina líkamsárás.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurði Ingólfssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot og dæmdur til greiðslu sektar og var sviptur ökurétti tímabundið. Þá var ákærða gert að sæta upptöku á fíkniefnum, sterum og vog.
Sakfellt fyrir innflutning amfetamínbasa og brot á tolla- lyfsölu- og lyfjalögum.