Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta 60 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi en hann ók bifreið sinni á gangandi vegfaranda.
Ákæruvaldið (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Khattab Almohammad (
Stefán Þór Eyjólfsson lögmaður)
Sakfellt fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi. Ökumaður hópbifreiðar ók bifreiðinni af stað og á manneskju sem slasaðist.
Ákærða ók á mann með þeim afleiðingum að hann slasaðist. Áfengi mældist í blóðsýni sem tekið var úr henni í kjölfar atviksins. Hún var sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi, ógætilegan akstur í grennd við gangandi vegfarendur og ölvunarakstur. Jafnframt var henni gert að greiða brotaþola miskabætur.
Ákærði var sakfelldur fyrir hegningarlaga- og umferðarlagabrot og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Jafnframt var hann dæmdur til greiðslu 2.500.000 króna miskabóta.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (
Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri)
gegn
Eriku Gudan (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærða sofnaði undir stýri við akstur hópferðabifreiðar með þeim afleiðingum að bifreiðin valt og farþegar slösuðust. Hún var sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og svipt ökuréttindum í þrjá mánuði.
Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var hann sviptur ökurétti í þrjá mánuði og dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur auk vaxta.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Veronika Rehak (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóhanni Hlyni Ólafssyni (
Gunnar Atli Gunnarsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Kristni Óskari Ingvarssyni
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Marín Ólafsdóttir saksóknari)
gegn
Erni Leó Hlynssyni (
Bjarni Hauksson lögmaður)
E var ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið með allt að 142 kílómetra hraða miðað við klukkustund og það óvarlega að hann ók bifreiðinni út af veginum með þeim afleiðingum að hann og farþeginn A slösuðust alvarlega. Háttsemi ákærða var talin varða við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 4. gr., 1. mgr., sbr. 3. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Héraðsdómur taldi sannað, einkum með vísan til álitsgerðar sem lá fyrir í málinu, að hraði bifreiðar ákærða hefði ekki verið minni en 142 kílómetra á klukkustund. Jafnframt að ummerki á vettvangi og framburður B væru til marks um að ákærði hefði enga stjórn haft á bifreiðinni í umrætt sinn. Var hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru, að öðru leyti en því að 1. mgr. 4. gr. umferðarlaga taldist ekki viðhlítandi refsiheimild. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 30 daga en fullnustu frestað skilorðsbundið í eitt ár. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu ákærða og heimfærslu til refsiákvæða. Fyrir Landsrétti bar ákærði því við að við ákvörðun refsingar hefði ekki verið litið til þeirra tafa sem urðu á meðferð málsins á rannsóknarstigi og að sök hans væri fyrnd. Á þetta var ekki fallist enda hefði skilorðstími refsingarinnar verið ákvarðaður eitt ár með vísan til tafanna. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var niðurstaða hans um refsingu ákærða og skilorðsbindingu hennar staðfest. Af þessari niðurstöðu leiddi að ekki var fallist á þá málsvörn ákærða að sök hans væri fyrnd.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Magnúsi Skúlasyni (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórinni, ölvunar- og sviptingarakstur og líkamsmeiðingar af gáleysi og dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og ökuréttarsviptingar.
Ákærði var fundinn sekur um líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot, með því að hafa ekið á gangandi vegfarendur og þannig valdið þeim líkamstjóni og í kjölfarið fyrir að hafa eigi sinn lögboðnum skyldum sínum á slyssstað. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið. Loks var ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Katrínu Ingibjörgu Guðjónsdóttur (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi.
Ákærðu sakfelldir fyrir líkamsárás af gáleysi og brot gegn alþjóðasiglingareglum.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Erni Leó Hlynssyni (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Talið var sannað með framlagningu matsgerðar og öðrum gögnum að ákærði hafi ekið bifreið sinni á að minnsta kosti 142 km/klst í aðdraganda umferðarslyss. Var því hafnað að sök væri fyrnd, en talið rétt að skilorðstími yrði styttri vegna dráttar á rannsókn málsins. Var ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar, auk þess sem hann var sviptur ökuréttindum.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi)
gegn
X (
Húnbogi J. Andersen lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um manndráp af gáleysi sem og líkamsmeiðingar af gáleysi, en með ölvunar- og ofsaakstri varð hann valdur að dauða eins farþega bifreiðar sinnar og líkamstjóns annars farþega. Var ákærða gert að sæta fangelsi í níu mánuði, þar af sex skilorðsbundið til tveggja ára, auk greiðslu hluta sakarkostnaðar. Þá var ákærði sviptur ökurétti í tvö og hálft ár. Við ákvörðun refsingar var litið til skýlausrar játningar ákærða, hreins sakaferill hans og þess að hann sýndi mikla iðrun. Þá var ákærði dæmdur til að greiða foreldrum hins látna farþega miskabætur og útfarakostnað og hinum slasaða farþega miskabætur, auk málskostnaðar.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
X (
Erling Daði Emilsson lögmaður)
Ákærða, sem gefið var að sök umferðarlaga- og hegningarlagabrot, var sýknuð, þar sem ósannað þótti að hún hefði umrætt sinn ekið of hratt miðað við aðstæður, sem og að ósannað þótti hverja áverka brotaþoli hefði hlotið.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
X (
Þórður Guðmundsson lögmaður)
Ákærði var sýknaður þar sem ekki þótti sannað að umferðarslys það er málið varðaði mætti rekja til aðgæsluleysis hans. Þá var bótakröfu brotaþola vísað frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Lenu Reynisdóttur (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Hún játaði brot sitt skýlaust.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Mathilde Larsen (
Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi samkvæmt 219. gr. almennra hegningarlaga og nánar greind brot á umferðarlögum er hún virti ekki biðskyldu. Refsing ákveðin 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Hjörleifi Hjartarsyni (
Sigmundur Guðmundsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot og gert að sæta 30 daga fangelsi, bundið skilorði til tveggja ára.
G var sakfelldur fyrir brot gegn 219. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk umferðarlagabrots, með því að hafa ekið bifreið án nægilegrar aðgæslu og langt yfir leyfilegum ökuhraða, norður Glerárgötu á Akureyri, þar sem hann missti stjórn á bifreiðinni, ók upp á umferðareyju og aftur út á götuna í veg fyrir aðra bifreið, sem ekið var í sömu átt, og á gangandi vegfaranda, hjólreiðamann og hund, með nánar tilgreindum afleiðingum. Þótti G hafa með háttsemi sinni stofnað í augljósan háska lífi og heilsu nánar tilgreindra einstaklinga. G var aftur á móti sýknaður af ákæru um brot gegn 1. mgr. 168. gr. almennra hegningarlaga þar sem því þótti ekki verða slegið föstu að G hefði með akstrinum stofnað óákveðnum hagsmunum ótiltekins fjölda vegfarenda í augljósa hættu svo að talið yrði að almannahætta hefði stafað af. Var refsing G ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var G sviptur ökurétti í sex mánuði.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Gunnari Viðari Geirssyni
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi samkvæmt 219. gr. almennra hegningarlaga þegar maður féll úr fiskikari sem fest hafði verið á gaffallyftara og notað til að lyfta honum við byggingaframkvæmdir. Ákærða ekki gerð refsing.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jónasi Jökli Hallgrímssyni (
Leó Daðason lögmaður)
Sakfellt fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi, ölvunarakstur og önnur umferðarlagabrot. Skilorð
Ákærði sakfelldur fyrir brot á umferðarlögum og almennum hegningarlögum með hraðakstri á Glerárgötu er hann olli líkamsmeiðingum af gáleysi og ógnaði umferðaröryggi á alfaraleiðum og stofnaði lífi og heilsu annarra í augljósan háska af gáska eða annan ófyrirleitinn hátt. Ákærði dæmdur til 4 mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og sviptur ökurétti í 6 mánuði.
Ákæruvaldið (
Alla Rún Rúnarsdóttir fulltrúi)
gegn
Ara Biering Hilmarssyni (
Sigmundur Guðmundsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
Páli Stefánssyni
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.
Brotaþoli lenti í útistöðum við menn sem komu akandi norður Hafnarstrætið á Akureyri og kom til átaka á milli þeirra, þar sem ákærði og félagi hans veittust harkalega að brotaþola með höggum, spörkum og hrindingum og óku að því búnu á brott. Eftir árásina kom í ljós að brotaþoli var fótbrotinn. Taldi brotaþoli ákærða hafa ekið yfir fótinn er hann ók á brott. Talið var ósannað að ákærði hefði ekið yfir fót brotaþola og var ákærði sýknaður af ákæru fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot.
Manndráp og líkamsmeiðing af gáleysi í tengslum við umferðarslys.
X var sakfelldur fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því að hafa ekið bifreið án nægjanlegrar aðgæslu og varúðar og án þess að virða umferðarforgang gangandi vegfaranda á gangbraut þar sem umferð er stjórnað með umferðarljósum og þannig ekið á A, sem var gangandi á gangbrautinni með nánar tilgreindum afleiðingum. Var refsing X ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X sýknaður af kröfu A um miskabætur þar sem ekki var talið að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða í skilningi a-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga.
Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa ekið stolinni bifreið, ófær um að stjórna henni örugglega vegna vímuefnaneyslu, án nægjanlegrar aðgæslu, langt yfir leyfilegum hámarkshraða og á köflum á röngum vegarhelmingi, allt með þeim afleiðingum að bifreiðin rakst á aðra bifreið sem ekið var úr gagnstæðri átt og olli stórfelldu líkamstjóni á ökumanni og farþega þeirrar bifreiðar. Varðaði brot ákærða við 1. mgr. 165. gr., 1. mgr. 168. gr., 219. gr. 4. mgr. 220. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga, auk ákvæða umferðarlaga og fíkniefnalaga. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til þess að um hegningarauka væri að ræða við 17 mánaða áður dæmda refsingu og var ákærða gerð 7 mánaða viðbótarrefsing. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til greiðslu 4.000.000 króna miskabóta.
X var sakfelld fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja, yfir á rangan vegarhelming og framan á bifreið sem ekið var í gagnstæða átt með þeim afleiðingum að ökumaður þeirrar bifreiðar og farþegar í bifreið X hlutu líkamsmeiðsl. Varðaði brot hennar við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og nánar tilgreind ákvæði nýrra umferðarlaga nr. 77/2019, sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Í dómi Landsréttar kom fram að ekkert benti til þess að rannsókn á blóðsýni X hefði verið annmörkum háð. Sannað væri með framburði vitna að bifreið ákærðu hefði rásað á milli vegarhelminga og síðan farið yfir á rangan vegarhelming. Niðurstaða matsgerðar um ástand X fengi því stoð í framburði vitna um aksturslag hennar. X hefði ekki getað dulist að ástand hennar var þannig að hún var ekki fær um að stjórna bifreiðinni örugglega. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X hefði ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi og að atvik máls hefðu reynst henni þungbær. Var refsing hennar ákveðin fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað í tvö ár. Þá var X svipt ökurétti í fimm mánuði.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Þórdís Ólöf Viðarsdóttir fulltrúi)
gegn
X (
Jón Páll Hilmarsson lögmaður)
Ákærði var sýknaður af hegningar- og umferðarlagabrotum, en honum hafði verið gefið að sök að hafa ekið án sérstakrar varúðar og án þess að virða biðskyldu inn á götu og í veg fyrir bifhjól, þannig að árekstur varð, allt með þeim afleiðingum að ökumaður bifhjólsins hlaut beinbrot og fjölda sára, hrufl og yfirborðsáverka.
Ákærða gefið að sök að hafa valdið líkamstjóni af gáleysi. Sýkna.
M var sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið án nægilegrar varúðar og að hafa verið þannig á sig kominn að hann var ekki fær um að stjórna ökutækinu örugglega með þeim afleiðingum að ökutækið fór yfir á rangan vegarhelming og lenti í árekstri við annað ökutæki. Við áreksturinn hlaut farþegi í bifreiðinni sem M ók slíka fjöláverka að hann lést auk þess sem ökumaður hinnar bifreiðarinnar, A, slasaðist. Refsing ákærða þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ákvæði héraðsdóms um tímabundna sviptingu ökuréttar var á hinn bóginn fellt úr gildi þar sem í greinargerð ákæruvaldsins til Landsréttar var ekki vikið að kröfum þess er lutu að ákvæði héraðsdóms þess efnis. Þá var M dæmdur til að greiða A miskabætur.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Þórdís Ólöf Viðarsdóttir fulltrúi)
gegn
X (
Ólafur Björnsson lögmaður)
Ákærða var sýknuð af ákæru um brot á hegningarlögum og umferðarlögum, þar sem henni var gefið að sök að hafa ekið án nægilegrar aðgæslu og varúðar og án þess að virða gagnbrautarrétt, þannig að bifreið hennar hafnaði á gangandi vegfaranda sem hlaut við það beinbrot. Ósannað þótti að ákærða hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni var gefin að sök þar sem ekki var unnt að hafna því að umferðarskilti sem voru á vettvangi er umrætt slys varð hafi byrgt ákærðu sýn.
Ákæruvaldið (
Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari)
gegn
Helga Haraldssyni (
Stefán Geir Þórisson lögmaður)
H var sakfelldur fyrir að hafa ekið hópbifreið, sem var ekki í lögmæltu ástandi, of hratt miðað við aðstæður og of nálægt fólksbifreið sem fram undan var, en hópbifreiðinni var ekið á afturhorn fólksbifreiðarinnar og lenti í kjölfarið utan vegar og valt með þeim afleiðingum að tveir farþegar hópbifreiðarinnar létust og aðrir tveir hlutu alvarleg líkamsmeiðsl. Varðaði brot H við 215. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk nánar tilgreindra ákvæða umferðarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að H hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og var refsing hans ákveðin fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var H sviptur ökurétti í tvö ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Baldurssyni (
Almar Þór Möller lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingu af gáleysi og umferðarlagabrot og dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.
X var ákærður fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því að hafa ekið bifreið of hratt miðað við aðstæður og ekið fram úr annarri bifreið án nægilegrar aðgæslu, þannig að harður árekstur varð við bifreið er kom úr gagnstæðri átt með þeim afleiðingum að farþegi í þeirri bifreið hlaut áverka. Í dómi Landsréttar var skírskotað til þess að X hefði frá upphafi rannsóknar lögreglu borið um að hann hefði metið aðstæður þannig að honum hefði verið óhætt að aka fram úr bifreiðinni og jafnframt að bifreið hans hefði verið vel útbúin til vetraraksturs og á góðum dekkjum. Hefði því verið fullt tilefni fyrir lögreglu til að afla nánari gagna um aðstæður á vettvangi sem og um búnað bifreiðanna. Þegar litið væri til þeirra hnökra sem væru á rannsókn málsins þótti það mikill vafi leika á sakargiftum gegn X að ekki yrði hjá því komist að sýkna hann og vísa einkaréttarkröfu brotaþola frá dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn
Zenonas Gilaitis
Sakfellt fyrir líkamsmeiðingu af gáleysi og umferðarlagabrot í tengslum við umferðarslys.
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn
Svani Elí Elíassyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og líkamsmeiðingu af gáleysi. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í 2 ár. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 3 mánuði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir)
gegn
X (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot og líkamstjón af gáleysi
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi (Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Eligijus Ruseckas
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og líkamsmeiðingar af gáleysi.
Bifreiðastjóri hópferðabifreiðar dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár og til sviptingar ökuréttar í 2 ár fyrir að hafa ekið bifreiðinni of hratt miðað við aðstæður með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti á annarri bifreið, fór yfir á öfugan vegarhelming og valt þar með þeim afleiðingum að tveir farþegar hópferðabifreiðarinnar létust og tveir aðrir slösuðust alvarlega
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Elimar Hauksson fulltrúi)
gegn
Pétri V. Maack Péturssyni (
Birna Ketilsdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti í þrjá mánuði.