Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

21 dómar fundust

Lykilorð: EFTA dómstóllinn

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2025

E-6483/2024

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Stefnandi höfðaði málið á hendur íslenska ríkinu til heimtu skaðabóta vegna brota á skuldbindingum þess samkvæmt EES-samningnum. Stefndi, íslenska ríkið, var sýknað af kröfum stefnanda þar sem ekki voru uppfyllt skilyrði skaðabótaskyldu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. mars 2023

E-582/2021

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

Stefnandi sem hafði verið í framhaldsnámi í Danmörku og fullu starfi þar, var barnshafandi þegar hún fluttist til Íslands og hóf störf þar. Við ákvörðun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði var einungis miðað við heildarlaun sem hún fékk greidd á innlendum vinnumarkaði, og krafðist stefnandi ógildingar á ákvörðuninni og úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála. Leitað var ráðgefandi álits EFTA dómstólsins sem taldi að miða ætti fjárhæð bóta sem hefði aflað tekna í öðru EES-ríki á því tímabili sem miðað sé við samkvæmt landslögum, við tekjur launþega með sambærilega starfsreynslu og hæfi og sem gegni sviðuðu starfi í því EES-ríki þar sem sótt er um bætur. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. laga nr. 2/1993 um að skýra skuli lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn var ekki talið að ákvæði gæti leitt til þess að litið yrði framhjá skýrum orðum íslenskra laga. Var kröfu stefnanda því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2018

E-4525/2013

Sýn hf (Dóra Sif Tynes lögmaður) gegn Símanum hf (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)

Gagnstefnandi var sýknaður af kröfum aðalstefnanda í aðalsök málsins þar sem að ekki þótti vera sýnt fram á það af hálfu aðalstefnanda að eiginlegt tjón hans væri sannað m.t.t. úrræða hans til að takmarka tjón sitt þótt fallist væri á það að bótagrundvöllur væri fyrir hendi. Þá var aðalstefnandi sýknaður af dómkröfum gagnstefnanda í gagnsök málsins þar sem ekki var talið að sýnt væri fram á það af gagnstefnanda að bótagrundvöllur væri yfirleitt fyrir hendi hvað þær varðaði. Varð niðurstaðan því sú að málsaðilar voru sýknaðir af kröfum hvors annars.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2018

S-193/2016

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari) gegn Lárusi Welding (Óttar Pálsson lögmaður), Jóhannesi Baldurssyni (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður), Jónasi Guðmundssyni (Almar Þór Möller lögmaður), Valgarði Má Valgarðssyni (Gizur Bergsteinsson lögmaður) og Pétri Jónassyni (Gunnar Egill Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Markaðsmisnotkun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2016

S-193/2016

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari) gegn Lárusi Welding (Óttar Pálsson hrl), Jóhannesi Baldurssyni (Reimar Snæfells Pétursson hrl), Jónasi Guðmundssyni (Almar Þór Möller hdl), Valgarði Má Valgarðssyni (Helgi Sigurðsson hrl) og Pétri Jónassyni (Gunnar Egill Egilsson hdl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu kröfðust þess að aflað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins varðandi skýringu á markaðssvikatilskipun Evrópuþingsins og ráðsins varðandi skýringu á markaðsmisnotkunarákvæðum laga um verðbréfaviðskipti. Kröfunni var hafnað með vísan til þess að fyrir lægju dómafordæmi Hæstaréttar um álitaefnið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2016

E-1471/2014

Ferskar kjötvörur ehf (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Stefnandi höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu til viðurkenningar á því að Ísland hefði ekki fullnægt skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum sem hefði leitt til þess að stefnanda var ranglega synjað um innflutning á ferskum ófrystum kjötvörum. Var fallist á að um samningsbrot hefði verið að ræða sem bakað hefði íslenska ríkinu skaðabótaskyldu gagnvart stefnanda. Í því efni var meðal annars stuðst við ráðgefandi álit EFTA dómstólsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. október 2013

E-338/2013

Sævar Jón Gunnarsson (Björn Þorri Viktorsson hrl) gegn Landsbankinn hf (Aðalsteinn E. Jónasson hrl)

Fallist var á beiðni um að aflað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um ákveðnar spurningar viðvíkjandi tilskipun um neytendalán annars vegar og tilskipun um ósanngjarna skilmála í neytendasamningum hins vegar vegna máls sem S hafði höfðað gegn L til viðurkenningar á því að ákvæði um verðtrygginu í lánssamningi væri óskuldbindandi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. janúar 2013

X-274/2010

málinu nr. X-274/2010, Irish Bank og Resolution Corporation Ltd (Eggert B. Ólafsson hdl) gegn Kaupþingi banka hf (Þröstur Ríkharðsson hdl)

Staðfest var afstaða varnaraðila um að hafna því að kröfur sóknaraðila skyldu færðar á kröfuskrá við slitameðferð varnaraðila, enda hefðu kröfurnar borist eftir lok kröfulýsingarfrests og sóknarðili vitað eða mátt vita um slitameðferð varnaraðila.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. maí 2012

E-10868/2009

Þór Kolbeinsson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefnandi krafði íslenska ríkið um skaðabætur með þeim rökum að hann hefði ekki fengið tjón sitt bætt í tilefni af vinnuslysi vegna ófullnægjandi innleiðingar á tveimur tilskipunum Evrópusambandsins í íslenskan rétt. Til vara var á því byggt að Hæstarétti hefði orðið á mistök við túlkun laga þegar dæmt var um skaðabótakröfu stefnanda á hendur vinnuveitanda sínum árið 2005. Íslenska ríkið var sýknað þar sem ekki var fallist á að stefnandi ætti skaðabótarétt á þessum grundvelli.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2012

X-193/2010

Deutsce Bank AG, London branch (Heiðar Ásberg Atlason hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

Úrskurðað var að málinu skyldi frestað meðan beðið væri ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins sem Hæstiréttur hafði óskað eftir í öðru máli. Kröfu D um að álits yrði aflað sérstaklega í þessu máli var hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. febrúar 2011

E-823/2011

Vín Tríó ehf (Birgir Tjörvi Pétursson hdl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)

Komist var að þeirri niðurstöðu að ákvarðanir ÁTVR, þar sem hafnað var að kaupa af stefnanda tvær áfengistegundir sem innihéldu koffín, hafi ekki haft viðhlítandi lagastoð. Staðfesting fjármálaráðuneytisins á þessum ákvörðunum var því felld úr gildi auk þess sem stefnanda voru dæmdar skaðabætur úr hendi íslenska ríkisins.