Héraðssaksóknari (
Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Atla Kristjánssyni (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði, sem játaði sök, dæmdur til að sæta fangelsi í 15 mánuði, skilorsðbundið til þriggja ára, fyrir líkamsárás og sérstaklega hættulega líkamsárás. Þá var hann dæmdur til að greiða brotaþolum miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þóri Bergmann Daníelssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás.
Ákært fyrir alvarlega líkamsárás á dansleik. Sýkna.
Stefnandi krafðist miskabóta úr hendi stefnda vegna tilgreindra aðgerða stefnda. Ekki var fallist á kröfu stefnanda þar sem ekki var talið að umræddar aðgerðir stefnda hefðu hafa falið í sér ólögmæta meingerð í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.
Stefnandi krafðist miskabóta úr hendi stefnda vegna málsmeðferðar og ákvarðatöku stefnda varðandi beiðni hennar um að taka barnabarn sitt í fóstur, sem og varðandi umgengni við barnið. Ekki var fallist á kröfu stefnanda um miskabætur þar sem málsmeðferð og ákvarðanataka stefnda var ekki talin hafa falið í sér ólögmæta meingerð í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.
Maður sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.
Deilt um trúnaðarákvæði í starfslokasamningi stefnanda. Stefndu sýknaðir af kröfu um bætur fyrir fjártjón og miska stefnanda sem byggði á því að stefndu hefðu brotið gegn ákvæðinu með því að stefndi F hefði fjallað um stefnanda og starfslok hennar í pistli til formanna aðildarfélaga meðstefnda. Ekki var fallist á það með stefnanda að umdeild ummæli fælu í sér, beint eða óbeint, umfjöllun um stefnanda eða störf hennar. Af þeim sökum var ekki fallist á að um brot á trúnaði væri að ræða eða að í umdeildum ummælum hefði verið vegið að starfsheiðri eða orðspori stefnanda.
Manndráp og líkamsmeiðing af gáleysi í tengslum við umferðarslys.
Stefndi sýknaður af bótakröfu stefnanda að fjárhæð 1.500.000 kr. Krafa var vegna þvingunarúrræða sem stefnandi hafði verið beittur vegna rannsóknar máls en mál var síðan fellt niður án þess að ákært væri. Talið var að stefnandi hefði valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann sætti með háttsemi sinni.
Stefndi er sýknaður af bótakröfu stefnanda að fjárhæð 1.200.000 krónur. Krafa var vegna þvingunarúrræða sem stefnandi hafði verið beittur vegna rannsóknar máls en mál var síðan fellt niður án þess að ákært væri. Talið var að stefanndi hefði valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann sætti með háttsemi sinni.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi.
X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.