Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

181 dómar fundust

Lykilorð: Ærumeiðingar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2026 kl. 14:57

S-7505/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Ákærða sýknuð fyrir stórfelldar ærumeiðingar og umsáturseinelti, en sakfelld fyrir brot gegn nálgunarbanni og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða brotaþola miskabætur.

Landsréttur birt 12. mars 2026

65/2025

Arnar Hauksson Jón Einar Eyjólfsson og Pétur Árni Jónsson (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) gegn Hjálmari Friðrikssyni (Gísli Tryggvason lögmaður)

A, J og P höfðuðu mál og kröfðust þess að nánar tilgreind ummæli, sem H viðhafði í frétt á netmiðli, yrðu dæmd dauð og ómerk, auk miskabóta. Þá kröfðust þeir þess að forsendur og niðurstaða dómsins yrði birt á vefsvæði netmiðilsins. Með hinum áfrýjaða dómi var H sýknaður af öllum kröfum A, J og P. Í dómi Landsréttar var rakið að fallist væri á með héraðsdómi að við heildstætt mat á ummælum H yrði að leggja til grundvallar að þau hefðu verið liður í almennri þjóðfélagsumræðu um aðstæður og aðbúnað erlends verkafólks hér á landi, einkum búsetuaðstæður þess, að umræða um þessi atriði ætti erindi við almenning og að mikilvægt væri að hún færi fram. Ummælin hefði H tengt A, J og P, sem óumdeilt væri að hefðu á undanförnum árum, í gegnum hlutafélög í eigu þeirra, rekið starfsmannaleigur og leigt út húsnæði til erlends verkafólks, auk þess sem fyrir lægi að mikil umsvif hefðu fylgt starfsemi þeirra. Þá væri ljóst að ummælin hefðu lotið að þátttöku A, J og P í umsvifamikilli starfsemi en ekki að einkalífi þeirra. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu H af kröfum A, J og P.

Landsréttur birt 26. febrúar 2026

365/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Rögnvaldi A. Sigurðssyni (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) (Oddgeir Einarsson réttargæslumaður) (Oddgeir Einarsson lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

R var ákærður fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, fyrir að hafa ráðist að fyrrverandi maka sínum, gripið í upphandlegg hennar og aftan í háls og ýtt henni til og frá, og fyrir stórfelldar ærumeiðingar, samkvæmt 233. gr. b sömu laga, með nánar tilgreindum ókvæðisorðum. Meðal annars með vísan til vættis brotaþola, tveggja sjónarvotta og áverkavottorðs taldist sannað að ákærði hefði gerst sekur um fyrrgreinda líkamsárás, og var hann sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Hvað sakargiftir um stórfelldar ærumeiðingar varðaði taldi Landsréttur meiri hluta þeirra ummæla sem ákæra sneri að fela í sér fúkyrði sem teldust ekki til stórfelldra ærumeiðinga í skilningi ákvæðisins. Ein ummæli, sem beindust að útliti og uppruna brotaþola, féllu hins vegar innan ramma ákvæðisins, og var ákærði því einnig sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. b almennra hegningarlaga. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um 60 daga skilorðsbundna fangelsisrefsingu ákærða, og um greiðslu miskabóta til brotaþola, því staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. október 2025

E-1205/2025

Ingvi Hrafn Hálfdánsson (Jónas Örn Jónasson lögmaður) gegn Reyni Traustasyni og Sólartúni ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um ómerkingu þriggja ummæla sem birtust í fjölmiðli stefndu og greiðslu miskabóta úr hendi ábyrgðarmanns fjölmiðilsins. Talið var að ummælin, sem lutu að frétt um alvarlega líkamsárás sem stefnandi var sagður grunaður um að hafa framið, fælu í sér aðdróttun í hans garð. Óumdeilt var að mistök urðu við gerð fréttarinnar og stefnanda ruglað saman við annan mann með sömu eiginnöfn. Við ákvörðun um fjárhæð miskabóta var litið til ýmissa sjónarmiða, s.s. alvarleika ummælanna, útbreiðslu þeirra og viðbragða stefndu eftir að í mistökin komu í ljós.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. september 2025

E-376/2025

Helena Bjarndís Bjarnadóttir (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Jurgitu Milleriene (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Ómerkt eru fern ummæli af 10 sem birtust í skýrslu sem unnin var af hálfu skólayfirvalda vegna meints eineltis og samskiptavanda á vinnustað. Stefnda er sýkn af miskabótakröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júlí 2025

S-1157/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot á nálgunarbanni, móðgun, smánun og stórfelldar ærumeiðingar í garð fyrrverandi maka. Var refsing ákærða ákveðin fangelsi í níu mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára. Brotaþola voru dæmdar 350.000 krónur í miskabætur.

Landsréttur birt 26. júní 2025

377/2024

Páll Vilhjálmsson (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn Aðalsteini Kjartanssyni (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur P til ómerkingar nánar tilgreindra ummæla sem P viðhafði á vefsvæði sínu á tímabilinu 2. apríl 2022 til 14. apríl 2023 ásamt því að krefjast miskabóta. Áttu ummælin það öll sammerkt að lúta með einum eða öðrum hætti að því að A og aðrir blaðamenn hefðu átt aðild að byrlun tiltekins einstaklings og þjófnaði á síma hans í því skyni að skrifa fréttir sem tengdust fyrirtækinu S. Í dómi Landsréttar kom fram að þótt ummæli P væru vissulega beinskeytt og óvægin, yrði að líta til þeirrar staðreyndar að A hefði haft stöðu sakbornings og sætti, þegar ummælin féllu, rannsókn lögreglu vegna mögulegrar aðildar, beinnar eða óbeinnar, að brotum á nefndum ákvæðum almennra hegningarlaga. Þá hefði P verið þátttakandi í almennri umræðu um mikilvæg samfélagsleg málefni sem erindi ætti við almenning og hefði af þeim sökum notið rúms tjáningarfrelsis á meðan A mátti sem blaðamaður og opinber persóna gera ráð fyrir að þurfa að þola hvassa og óvægna gagnrýni í kjölfar eigin skrifa. Þegar til alls var litið var lagt til grundvallar að P hefði mátt vera í góðri trú um að nægjanlegt tilefni hefði verið til ummælanna og að þau hefðu, þegar litið væri til hinnar hvössu umræðu sem málið hefði vakið, ekki gengið svo langt að nauðsyn bæri til þess í lýðræðislegu samfélagi, þar sem tjáningarfrelsi er í hávegum haft, að ómerkja þau. Hefði sú tjáning P sem um væri deilt rúmast innan tjáningarfrelsis hans samkvæmt 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Var P því sýknaður af kröfum A.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. apríl 2025

E-1264/2024

Ingólfur Þórarinsson (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn A (Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafðist ómerkingar tiltekinna ummæla stefndu og miskabóta úr hendi hennar. Stefnda hafði viðhaft ummæli sín á Facebook-síðu fjölmiðils í tengslum við frétt sem þar var deilt og varðaði viðbrögð stefnanda við ásökunum sem hafðar höfðu verið uppi á hendur honum. Stefnda bar ummæli sín fram í formi spurningar til manns sem einnig hafði tjáð sig á sama umræðuþræði. Talið var að stefnda hefði ekki fortakslaust gefið til kynna með ummælunum að stefnandi hefði gerst sekur um refsiverða háttsemi. Ummælin hefðu falið í sér gildisdóm sem hefði átt sér stoð í almennri umræðu og ásökunum sem áður höfðu verið hafðar uppi á hendur stefnanda. Þá var litið til þess að stefnandi er þjóðþekktur maður sem hafði sjálfur tjáð sig opinberlega um þær ásakanir sem hann hafði sætt og þannig stuðlað að frekari umræðu um þær. Að teknu tilliti til þessara atriða, og annarra sem greinir í dómnum, var stefnda sýknuð af kröfum stefnanda.

Landsréttur birt 3. apríl 2025

86/2024

A (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn B (Magnús M. Norðdahl lögmaður) og C (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður, 4. prófmál)

A höfðaði mál gegn B og C og krafðist ómerkingar tilgreindra ummæla sem B og C settu fram í greinargerð til kærunefndar húsamála og greiðslu miskabóta. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að með ummælum B og C væri fullyrt að A væri andlega veik. Á hitt væri að líta að ummælin hefðu komið fram eftir að A hafði kært þau til kærunefndar húsamála og sakað íbúa fjöleignarhússins meðal annars um skemmdarverk og lygar. Þegar litið væri til þess samhengis sem ummælin voru sett fram í og fyrirliggjandi gagna yrði lagt til grundvallar að B og C hefðu verið að lýsa skoðun sinni á ástæðu ósættis aðila og verið í góðri trú um sannleiksgildi ummæla sinna. Í ljósi þeirra sjónarmiða sem líta beri til þegar veginn er rétturinn til tjáningarfrelsis á móti friðhelgi einkalífs yrði að álíta að sú tjáning sem um væri deilt rúmist innan þess frelsis sem B og C njóti samkvæmt 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Takmörkun tjáningar B og C teldist þannig ekki uppfylla skilyrði um nauðsyn í lýðræðislegu þjóðfélagi. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu B og C af kröfum A.

Hæstiréttur birt 19. febrúar 2025

28/2024

A (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn B (Páll Kristjánsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur B og krafðist ómerkingar á ummælum B sem viðhöfð voru í skilaboðum hennar til unnustu A á samskiptamiðlinum Instagram og í nafnlausri færslu á Facebook-síðu tiltekins hóps. A krafðist jafnframt greiðslu miskabóta og að B yrði gerð refsing. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að A hefði ekki leitt að því nægar líkur að B hefði birt hina nafnlausu færslu á Facebook. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu B vegna ummæla í þeirri færslu. Óumdeilt var að B hefði sent unnustu A skilaboð á samskiptamiðlinum Instagram en þar kom meðal annars fram staðhæfing um að A hefði nauðgað barni og látið að því liggja að hann væri haldinn barnagirnd. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ummælin hefðu falið í sér aðdróttanir í skilningi 235. gr. almennra hegningarlaga og að með þeim hefði verið vegið að persónu og æru A sem nyti verndar 71. gr. stjórnarskrárinnar. Hefði þá verið tekið mið af efni og framsetningu ummælanna, því samhengi sem þau voru sett fram í, alvarleika og áhrifa þeirra. Ummælin voru samkvæmt þessu talin óviðurkvæmileg í skilningi 1. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga og voru þau því ómerkt. Þá hindraði það ekki ómerkingu að ummælin hefðu verið viðhöfð í skilaboðum á samskiptamiðlinum Instagram, enda teldist ærumeiðingarbrot fullframið þegar það væri komið til vitundar annars manns. Hins vegar taldist A ekki hafa nægilega sýnt fram að skilyrði til greiðslu miskabóta væru fyrir hendi vegna þeirra ummæla enda höfðu þau birst í lokuðum skilaboðum milli tveggja einstaklinga og lægi ekkert fyrir um að þeim hefði verið dreift víðar. Var B því sýknuð af öðrum kröfum A en um ómerkingu ummæla sem birtust í skilaboðum á Instagram.

Landsréttur birt 13. febrúar 2025

689/2023

Lykilorð: Ærumeiðingar. Meiðyrði.

B höfðaði mál gegn A og krafðist ómerkingar fernra ummæla sem A viðhafði á Facebook, auk miskabóta. Með hinum áfrýjaða dómi var komist að þeirri niðurstöðu að þrenn nánar tilgreind ummæli hefðu falið í sér ærumeiðandi aðdróttun í skilningi 235. gr. almennra hegningarlaga og var fallist á ómerkingu þeirra, auk þess sem A var dæmd til greiðslu miskabóta. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að umfjöllun um ofbeldi, þar á meðal kynferðisofbeldi, ætti ríkt erindi í almenna þjóðfélagsumræðu og að játa yrði einstaklingum talsvert svigrúm til að tjá sig um þau mál. Þótt B hafi ekki verið nafngreindur í umræddri færslu á Facebook væri hann persónugreinanlegur, meðal annars vegna þess að fyrrum eiginkona hans hafði rætt málefni þeirra á opinberum vettvangi. Hefði slík persónugreining í för með sér að svigrúm til að fjalla um ætlaða refsiverða háttsemi takmarkaðist umfram það sem annars myndi vera. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um ómerkingu hinna umdeildu ummæla, greiðslu miskabóta og málskostnað.

Landsréttur birt 17. október 2024

559/2023

A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn B (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður, Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður, 3. prófmál)

A höfðaði mál gegn B og krafðist ómerkingar ummæla sem B viðhafði á samfélags- miðlunum Facebook og Instagram, auk miskabóta og refsingar B. Í dómi héraðsdóms, sem Landsrétti staðfesti með vísan til forsendna, voru rakin ákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs, auk þess sem skírskotað var til dómaframkvæmdar Landsréttar, Hæstaréttar og Mannréttinda- dómstóls Evrópu. Í niðurstöðu héraðsdóms kom fram að meta þyrfti heildstætt þau ummæli sem um ræddi hverju sinni sem og framsetningu þeirra. Þá yrði ekki ráðið af ummælum B eða samhengi þeirra að til A væri vísað án þess að þekkja sérstaklega til aðstæðna. Ummæli B fjölluðu um eigin upplifun af atviki milli aðilanna og kæmi túlkun beggja aðila af atvikinu fram í færslu B. Ummæli B voru sett fram í almennri þjóðfélagsumræðu, en inngangur færslunnar fjallaði meðal annars um stöðu þolenda ofbeldis. Hafði B því rúmt svigrúm til tjáningar sinnar sem hluta af þeirri umræðu og ekki yrðu gerðar ríkar kröfur til að hún sýndi fram á réttmæti þeirra. Ummæli B voru ekki talin hafa falið í sér staðhæfingu um staðreynd heldur gildisdóm um hennar eigin upplifun af atviki. Þegar litið væri til þess að A var ekki nafngreindur, takmarkað var hverjir gætu ráðið að ummælin áttu við um hann, framsetning ummælanna var í samhengi við þjóðfélagslega mikilvæga umræðu og að í færslu B var vísað til ólíkrar upplifunar aðila, var það niðurstaða hins áfrýjaða dóms að B hefði ekki farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis síns með ummælunum, sem fælu í sér gildisdóm. B var því sýknuð af kröfum A.

Landsréttur birt 7. júní 2024

321/2023

Anna María Jónsdóttir (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn B og C (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður)

B og C höfðuðu mál gegn A og kröfðust ómerkingar fimm ummæla sem A setti fram í læknisvottorðum, auk miska- og skaðabóta. Lutu ummælin aðallega að ætluðu ofbeldi, ógnandi hegðun og hótunum B gegn D og C. Héraðsdómur sló því föstu að þrjú nánar tilgreind ummæli fælu í sér staðhæfingar um staðreyndir fremur en gildisdóma. Voru staðhæfingar A ekki taldar varða faglegt álit hennar sem geðlæknis, heldur undirliggjandi atvik málsins, sem A hafði ekki upplifað sjálf og gat þar af leiðandi ekki borið um af eigin raun. Voru ummælin því ómerkt. Á hinn bóginn hafnaði héraðsdómur ómerkingu tveggja annarra ummæla þar sem þau voru ekki talin þess eðlis að varðaði við 234. og 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt því að hafa að mestu leyti falið í sér faglegar ályktanir og mat A sem geðlæknis sem byggðu á frásögnum D, móður C. Var A gert að greiða B miskabætur en þar sem ummælin vörðuðu einungis B en ekki C voru ekki talin skilyrði til að dæma C miskabætur á þeim forsendum að ummælin teldust ólögmæt meingerð í hans garð. Þá var A sýknuð af skaðabótakröfu B. Í dómi Landsréttar kom fram að í hluta ummæla A sem ekki höfðu verið ómerkt í hinum áfrýjaða dómi hefðu falist ærumeiðandi aðdróttanir í garð B, enda fæli staðhæfing hennar um að B hefði sýnt ógnandi og óttavekjandi hegðun gagnvart C og D ekki í sér faglegt álit A sem læknis heldur laut staðhæfingin að atvikum sem A gat ekki borið um af eigin raun og hafði engar sönnur fyrir. Var því sá hluti ummæla A ómerktur. Að öðru leyti var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest með vísan til forsendna um ómerkingu ummæla og greiðslu miskabóta vegna þeirra, auk sýknu A af öðrum miska- og skaðabótakröfum B og C.

Landsréttur birt 31. maí 2024

240/2023

Páll Vilhjálmsson (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn Arnari Þór Ingólfssyni og Þórði Snæ Skagfjörð Júlíussyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

A og Þ höfðuðu mál gegn P til ómerkingar tveggja nánar tilgreindra ummæla sem P viðhafði á bloggsvæði sínu, auk miskabóta. Með ummælum sínum sakaði P, þá A og Þ um nánar tilgreind hegningarlagabrot og kvað ákæru verða gefna út gegn þeim. Í dómi sínum lagði Landsréttur mat á sakarefnið með hliðsjón af ákvæðum stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs og þeim viðmiðum sem hefðu mótast í framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu við úrlausn mála af þessu tagi. Í dómi Landsréttar kom fram að þótt ummæli P væru vissulega beinskeytt og óvægin, yrði að líta til þeirrar staðreyndar að A og Þ hefðu haft stöðu sakborninga og sættu, þegar ummælin féllu, rannsókn lögreglu vegna mögulegrar aðildar, beinnar eða óbeinnar, að brotum á nefndum ákvæðum hegningarlaga. Þá lægi fyrir að þeirri sakamálarannsókn væri ekki lokið. Yrði að líta svo á að ummæli P hefðu falið í sér staðhæfingu um staðreynd og hefði P verið í góðri trú um að nægileg stoð væri fyrir þeim staðhæfingum þegar þau voru látin falla. Hefði P verið þátttakandi í almennri umræðu um mikilvægt samfélagslegt málefni sem erindi ætti við almenning og hefði af þeim sökum notið rúms tjáningarfrelsis á meðan A og Þ máttu sem blaðamenn og opinberar persónur gera ráð fyrir að þurfa að þola hvassa og óvægna gagnrýni í kjölfar eigin skrifa. Þegar til alls þessa væri litið yrði lagt til grundvallar að P hefði mátt vera í góðri trú um að nægjanlegt tilefni væri til ummælanna og að þau hefðu, þegar litið væri til hinnar hvössu umræðu sem málið hefði vakið, ekki gengið svo langt að nauðsyn bæri til þess í lýðræðislegu samfélagi, þar sem tjáningarfrelsi er í hávegum haft, að ómerkja þau. Hefði sú tjáning P sem um væri deilt rúmast innan tjáningarfrelsis hans samkvæmt 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Var P því sýknaður af kröfum A og Þ.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2024

E-4067/2023

Aðalsteinn Kjartansson (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Páli Vilhjálmssyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) og til réttargæslu og Árvakri hf

Stefnandi starfar sem blaðamaður. Hann felldi sig ekki við ummæli sem birt voru um hann í nokkrum færslum á bloggsíðu. Stefndi hann höfundi ummælanna. Fallist var á ómerkingu flestra ummælanna sem deilt var um í málinu. Stefnanda voru dæmdar miskabætur úr hendi stefnda. Þá var stefnda gert, að viðlögðum dagsektum, að birta niðurstöðukafla dómsins og dómsorð á bloggsíðu sinni og fjarlægja þaðan ummæli sem ómerkt höfðu verið.

Landsréttur birt 22. mars 2024

244/2023

A (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn B (Páll Kristjánsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn B og krafðist ómerkingar tiltekinna ummæla sem B viðhafði í einkaskilaboðum gegnum Instagram til C og ummæla sem komu fram í nafnlausri færslu í Facebook-hópi. Þá krafðist A þess að B yrði gert að fjarlægja ummælin úr Facebook-hópnum. Loks krafðist A miskabóta úr hendi B og að B yrði gerð refsing vegna ummælanna. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna í Landsrétti, kom fram að efni einkaskilaboðanna væri tvímælalaust til þess fallið að skaða æru A og stæði það ekki í vegi þess að þau hefðu verið viðhöfð í einkaskilaboðum. Héraðsdómur rakti að upplýsingar þær sem B taldi sig búa yfir byggði hún á frásögn bróður síns og hans upplifun, sem hann staðfesti fyrir dómi. Væri því ekki hægt að telja B hafa verið í vondri trú um sannleiksgildi ummælanna, sem hún hefði ekki sett fram að tilefnislausu heldur í réttmætum tilgangi í einkaskilaboðum ætluðum viðtakanda einum. Þegar þetta væri virt í heild sinni yrði ekki talið að nauðsyn bæri til þess í lýðræðislegu þjóðfélagi að takmarka tjáningu B eftir á með þeim hætti sem krafist væri. Sýknaði héraðsdómur B því af kröfu A um ómerkingu ummæla í einkaskilaboðunum. Að fenginni þeirri niðurstöðu væri hvorki grundvöllur til að dæma A miskabætur vegna ólögmætrar meingerðar né til að dæma B til refsingar. Var B því sýknuð af þeim kröfum A vegna einkaskilaboðanna. Varðandi nafnlausu færsluna í Facebook-hópi, sem væri sama efnis og einkaskilaboðin á Instagram, vísaði héraðsdómur til þess að A hefði ekki tekist að sanna að B bæri ábyrgð á henni, enda hefði hún ekki ein haft vitneskju um þau atvik sem B lýsti í einkaskilaboðunum á Instagram. Hallann af þeim sönnunarskorti yrði A að bera. Var B því einnig sýknuð af öllum kröfum A tengdum færslunni á Facebook.

Landsréttur birt 16. febrúar 2024

32/2023

Leoncia India Martin (Ómar R. Valdimarsson lögmaður, Páll Ágúst Ólafsson lögmaður, 4. prófmál) gegn Helga Jónssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður, Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður, 1. prófmál)

L höfðaði mál gegn H og krafðist ómerkingar ummæla sem H viðhafði á vefsíðu sinni auk miskabóta og bóta vegna kostnaðar við birtingu dóms, atriðisorða hans eða forsendna. Í dómi héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom meðal annars fram að tiltekin ummæli fengju stoð í ýmsum fréttum, þar með talið viðtölum við L, og hafði H enga ástæðu til að draga réttmæti þeirra í efa. Þá hefðu tiltekinn ummæli H falið í sér vangaveltur sem telja yrði til gildisdóms. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að sú tjáning sem um væri deilt hefði rúmast innan tjáningarfrelsis H samkvæmt 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Takmörkun tjáningar hans með ómerkingu ummæla eða skyldu til greiðslu miskabóta teldist þannig ekki uppfylla skilyrðið um nauðsyn í lýðræðislegu þjóðfélagi. Var H því sýknaður af kröfum L.

Landsréttur birt 15. desember 2023

704/2022

Srdan Stojanovic (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Huga Jens Halldórssyni (Torfi Ragnar Sigurðsson lögmaður)

S höfðaði mál gegn H og krafðist ómerkingar tiltekinna ummæla sem H viðhafði í hlaðvarpsþættinum The Mike Show en að mati S bendlaði H hann við veðmálasvindl með ummælum sínum. Jafnframt krafðist S miskabóta og bóta vegna kostnaðar við birtingu dóms, atriðisorða hans og forsendna. Í málinu lá hvorki fyrir hljóðupptaka af þættinum í heild eða hluta né endurrit af honum í heild eða hluta. H byggði ekki á því fyrir Landsrétti að ummælin væru ranglega höfð eftir honum en taldi hins vegar að þau hefðu verið slitin úr samhengi og hann hafi verið að ræða orðróm sem hafi verið á kreiki um veðmálasvindl í tengslum við körfuknattleik Þórs Akureyri og Njarðvíkur, en S var leikmaður Þórs. Þegar tekin var afstaða til ómerkingarkröfu S var litið til þess að H féllst á að hafa látið ummælin falla, hann baðst afsökunar á þeim, viðurkenndi að hafa ekki haft neina sönnun fyrir réttmæti þeirra og hann tók ummælin úr birtingu. Taldi Landsréttur að H hefði með þessu fallist á að ummælin, eins og þau voru sett fram í stefnu málsins og svo langt sem þau næðu, hafi verið óviðurkvæmileg í skilningi 1. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga og var því niðurstaða héraðsdóms um ómerkingu þeirra staðfest. Við mat á því hvort ummæli H hefðu falið í sér ólögmæta meingerð í garð S, sbr. b-lið. 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, var litið til þess að skort hafi gögn um heildarsamhengi umræðunnar sem ummælin féllu í og lagt til grundvallar að fram hafi komið í hlaðvarpsþættinum að um orðróm væri að ræða fremur en beinar fullyrðingar H um að S væri flæktur í veðmálasvindl. Jafnframt var litið til þess að H baðst afsökunar á ummælunum opinberlega, viðurkenndi að ummælin hefðu ekki verið studd sönnunargögnum og fjarlægði ummælin úr birtingu. Rakið var að í réttarframkvæmd hafi verið litið svo á að leiðrétting rangra ummæla og afsökunarbeiðni þess sem þau viðhafði skipti máli við mat á því hvort um ummæli feli í sér ólögmæta meingerð og við mat á miska, sbr. dóma Hæstaréttar í málum nr. 77/1998 frá 1. desember 1989 og nr. 383/2012 frá 24. janúar 2013. Með vísan til framangreindra atriða og þess að H njóti ríks tjáningarfrelsis í umræðu um málefni sem hafa almenna þýðingu, var ekki talið að H hefði með umfjöllun sinni framið slíka meingerð gagnvart S að uppfyllt væru skilyrði b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga og H því ekki gert að greiða S miskabætur. Þá var ekki fallist á kröfu S um greiðslu bóta vegna kostnaðar við birtingu forsendna og niðurstöðu dómsins, sbr. 2. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga. Að teknu tilliti til krafna málsaðila og niðurstöðu málsins var málsaðilum gert að bera sinn kostnað af málinu á báðum dómstigum.

Landsréttur birt 17. nóvember 2023

521/2022

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður) (Þorbjörg Inga Jónsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur í héraði fyrir að hafa sent fyrrverandi eiginmanni A smáskilaboð með kynferðislegum myndum af A og smáskilaboð með myndbandi sem sýndi A í kynferðislegum athöfnum samkvæmt ákærulið I.2 í ákæru, dagsettri 28. október 2021, sem og að hafa sent A tölvupóst með fjórum ljósmyndum í viðhengi en tvær myndanna sýndu A veita X munnmök, sbr. ákærulið I.3 í sömu ákæru. Héraðsdómur heimfærði háttsemi X undir 199. gr. a, sbr. áður 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með dómi Landsréttar var sakfelling X staðfest. Var háttsemi X samkvæmt ákærulið I.2 heimfærð undir 199. gr. a og 233. gr. b almennra hegningarlaga, en háttsemi hans samkvæmt ákærulið I.3 var heimfærð undir 209. gr. og 233. gr. b almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að brot hans fólu í sér grófa röskun á friðhelgi einkalífs A og væri til þess fallið að valda þeim sem fyrir því yrði andlegu tjóni eða hugarangri. Þá væri ávallt hætta á því að myndefni af þessum toga færi í stjórnlausa dreifingu á internetinu. Einnig var tekið tillit til þess að tafir höfðu orðið á meðferð málsins. Að öllu þessu virtu og með vísan til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 78. gr., sbr. 1. mgr. 77. gr., almennra hegningarlaga, var refsing X ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 500.000 krónur í miskabætur.

Landsréttur birt 10. nóvember 2023

388/2022

Ingólfur Þórarinsson (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn Sindra Þór Sigríðarsyni (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður, Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður, 2. prófmál)

I höfðaði mál gegn S og krafðist ómerkingar ummæla sem S viðhafði við aðsenda grein á vefmiðlinum Vísir.is og frétt á Facebook-síðu Stundarinnar, auk ummæla sem S birti á Twitter-svæði sínu, en fyrri ummælin endurbirti hann jafnframt á því svæði. Í dómi Landsréttar kom fram að með ummælunum hefði verið fortakslaust gefið til kynna að I hefði haft samræði við börn. Þau hefðu því falið í sér staðhæfingu S um staðreyndir en ekki gildisdóm hans. Ekki var talið að frásagnir sem S kvaðst hafa byggt ummælin á hefðu gefið honum réttmætt tilefni til að fullyrða, eins og hann gerði, að I hefði haft samræði við börn. Var því ekki fallist á að S hefði mátt vera í góðri trú um sannleiksgildi ummælanna. Þrátt fyrir að I væri þjóðþekktur einstaklingur þyrfti hann ekki að þola að vera sakaður opinberlega um alvarlegt refsivert brot án þess að réttmætt tilefni væri til að setja fram slíkar staðhæfingar. Breytti engu þar um þótt ummælin hefðu fallið í umræðu um mikilvægt þjóðfélagsmálefni en S hefði verið í lófa lagið að tjá sig með öðrum og hófstilltari hætti. Með hliðsjón af framangreindu taldi dómurinn að ummælin hefðu falið í sér aðdróttanir í skilningi 235. gr. almennra hegningarlaga og að með þeim hefði verið vegið að persónu og æru I, sem féllu undir friðhelgi einkalífs og nytu verndar samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá hefðu þau jafnframt verið óviðurkvæmileg í skilningi 1. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga. Voru ummælin því ómerkt og S gert að greiða I miskabætur að fjárhæð 900.000 krónur.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 27. júlí 2023

S-265/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Enginn)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á barnaverndarlögum og stórfelldar ærumeiðingar gegn maka, auk þess að hafa fíkniefni í vörslum sínum.Var ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundins fangelsis, auk þess að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. apríl 2023

E-3645/2022

A og B (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn Önnu Maríu Jónsdóttur (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

Fallist að hluta á kröfur um ómerkingu ummæla í læknisvottorði. Fallist á miskabótakröfur að hluta en sýknað að hluta. Sýknað af kröfu um skaðabætur vegna lögmannskostnaðar vegna erindis til stjórnvalda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2023

E-1693/2022

A (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn B (Kristján Ágúst Flygenring lögmaður)

Stefnda var sýknuð af kröfum stefnanda um ómerkingu ummæla, greiðslu miskabóta og um að hún yrði dæmd til refsingar, svo og um að fjarlægð yrðu ummæli úr lokuðum hóp á Facebook. Þótt dómurinn teldi ummæli þau sem stefnda lét falla í einkaskilaboðum á Instagram til þriðja aðila til þess fallin að skaða æru stefnanda leit dómurinn til þess að ummælin hefðu verið sett fram í réttmætum tilgangi og án þess að stefnda væri í vondri trú, auk þess sem ummælin hefðu verið sett fram í einkaskilaboðum ætluðum viðtakanda einum. Taldi dómurinn ekki nauðsynlegt í lýðræðislegu þjóðfélagi að takmarka þessa tjáningu stefndu, enda yrði almennt að gjalda varhug við því að takmarka tjáningu tveggja einstaklinga á milli á óopinberum vettvangi. Hefði stefnda því ekki farið út fyrir mörk tjáningarfrelsins síns með ummælum sínum í einkaskilaboðunum. Hvað varðaði þau ummæli sem birtust nafnlaust í lokuðum hóp á Facebook taldi dómurinn ósannað að þau hefði stafað frá stefndu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. mars 2023

E-4146/2022

Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) gegn Páli Vilhjálmssyni (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Fallist á kröfu um ómerkingu tveggja ummæla sem birtust á bloggsvæði einstaklings, svo og á kröfu þeirra sem ummælin vörðuðu um miskabætur.

Landsréttur birt 9. desember 2022

606/2021

A höfðaði mál gegn B og krafðist ómerkingar ummæla sem B viðhafði á Facebook auk miskabóta. Ummælin lutu að því að A hefði nauðgað C, vinkonu B, og voru þau sett fram í lokuðum umræðuhópi sem hafði þann tilgang að standa vörð um öryggi einstaklinga innan BDSM-samfélagsins. Í dómi Landsréttar kom fram að ummælin hefðu verið án fyrirvara og ekki lýst eigin upplifun hennar. Þá hefði A gefið B skýrt til kynna að hann samþykkti ekki lýsingu C á því að hann hefði framið nauðgun og var því ekki talið að ummælin hefðu verið sönn eða að B hefði mátt vera í góðri trú um sannleiksgildi þeirra þegar hún lét þau falla. Með hliðsjón af framangreindu taldi dómurinn að ummælin hefðu vegið að persónu og æru A, sem falla undir friðhelgi einkalífs og njóta verndar samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu nr. 62/1994, og hefðu jafnframt verið óviðurkvæmileg í skilningi 1. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Voru ummælin því ómerkt. Þá var B gert að greiða A miskabætur að fjárhæð 400.000 króna.

Landsréttur birt 9. desember 2022

604/2021

A höfðaði mál gegn B og krafðist ómerkingar ummæla sem B viðhafði á Facebook auk miskabóta. Ummælin lutu að því að A hefði nauðgað B og voru þau sett fram í lokuðum umræðuhópi sem hafði þann tilgang að standa vörð um öryggi einstaklinga innan BDSM-samfélagsins. Í dómi Landsréttar kom fram að þótt ummælin hefðu ekki verið sett fram sem liður í víðtækri opinberri umræðu um kynferðisbrot og viðbrögð við þeim yrði því ekki neitað að þau hefðu falið í sér ákveðið framlag til slíkrar umræðu. B hefði lýst eigin upplifun af kynferðislegum samskiptum við A og hefði áður leitað sér aðstoðar vegna vanlíðanar í tengslum við þau. Síðar lagði hún fram kæru á hendur A vegna kynferðisbrots en rannsókn þess var hætt á grundvelli 4. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Niðurfelling málsins hefði þó ekki átt sér stað fyrr en eftir að B lét ummæli sín falla. Þá var litið til þess að þrátt fyrir að það væri hlutverk dómstóla að slá því föstu hvort sakaðir menn væru sannir að refsiverðu broti yrðu þau sem telja sig hafa orðið fyrir kynferðisbroti að njóta ákveðins frelsis til að tjá þá upplifun sína, ella ykist hætta á þöggun um það samfélagslega mein sem í slíkum brotum fælist. Að framangreindu virtu voru ummæli B metin sem gildisdómur hennar um eigin upplifun og var henni tjáningin heimil. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu B.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. nóvember 2022

E-3001/2022

A (Snorri Steinn Vidal lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)

Stefndi íslenska ríkið sýknað af bótakröfum stefnanda vegna lögregluafskipta, þar sem stefnandi lét í té munnvatnssýni, og kröfum stefnanda um ómerkingu ummæla vegna skráningar í gagnagrunn lögreglu.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. nóvember 2022

S-520/2021

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sigmundur Guðmundsson lögmaður) (Friðrik Smárason réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi og brot gegn barnaverndarlögum. Var refsing ákveðin níu mánaða fangelsi en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 27. september 2022

S-522/2021

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Andrés Már Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hengingarlaga og barnaverndarlagabrot, en ekki fallist á heimfærslu undir 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga (brot í nánu sambandi).

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. september 2022

E-5843/2021

A (sjálfur ólöglærður) gegn B (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)

Stefnda var sýknuð af kröfu stefnanda um ómerkingu tiltekinna ummæla, sem og um miskabætur og kostnað vegna birtingar dóms. Talið var að ummæli stefndu rúmuðust innan tjáningarfrelsis hennar samkvæmt 73. gr. stjórnarskrárinnar og að ekki væru uppfyllt skilyrði til takmarkana samkvæmt 3. mgr. ákvæðisins.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. júní 2022

S-368/2021

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) (Júlí Ósk Antonsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði játaði ofbeldisbrot gegn fyrrum sambýliskonu sinni. Kröfu ákæruvalds um að brotið yrði heimfært til 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, var hafnað en brotið talið varða við 1. mgr. 217. gr. og 233. gr. b almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2022

E-4921/2021

Ingólfur Þórarinsson (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn Sindra Þór Sigríðarsyni (Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um að ummæli hans yrðu ómerkt og honum yrði gert að greiða stefnanda skaðabætur þar sem hann var talinn hafa leitt nægilegar líkur að því að hann hefði verið í góðri trú um sannleiksgildi ummælanna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. apríl 2022

E-3541/2021

A (Jónas Örn Jónasson lögmaður) gegn Maríu Lilju Þrastardóttur Kemp (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

Stefnda var sýknuð af kröfu stefnanda um ómerkingu tiltekinna ummæla, sem og um miskabætur og kostnað vegna birtingar dóms. Talið var að ummæli stefndu rúmuðust innan tjáningarfrelsis hennar samkvæmt 73. gr. stjórnarskrárinnar og að ekki væru uppfyllt skilyrði til takmarkana samkvæmt 3. mgr. ákvæðisins.

Landsréttur birt 8. apríl 2022

136/2021

Lúðvík Bergvinsson (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður) gegn Trausta Hafliðasyni og Myllusetri ehf (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

L höfðaði mál gegn T og M ehf. og krafðist ómerkingar þriggja nánar tiltekinna ummæla auk miskabóta. Þá krafðist hann þess að T yrði dæmdur til refsingar og til að kosta birtingu dómsins. Einnig krafðist hann þess að M ehf. yrði gert að birta dóminn í prent- og netmiðli sínum. Fyrir Landsrétti laut ómerkingarkrafa L eingöngu að einum tilgreindum ummælum. Voru ummælin birt í grein í Viðskiptablaðinu eftir ónafngreindan mann en undir dulnefninu Óðinn. Í dómi Landsréttar kom fram að þegar orðalag ummælanna og efni þeirra í heild væri virt yrði ekki talið að þau fælu í sér fyrirvaralausa staðhæfingu um refsivert athæfi L en í skoðanagrein af því tagi sem málið varðaði yrði að játa fjölmiðlum nokkurt svigrúm til að ögra og færa í stílinn. Var því fallist á að ummælin fælu í sér gildisdóm þess sem þau ritaði en ekki staðhæfingu um staðreyndir. Jafnframt var fallist á að sá gildisdómur sem í ummælunum fælist ætti sér næga stoð í staðreyndum og að tenging þeirra við fyrri umfjöllun annarra fjölmiðla væri augljós. Þá var skírskotað til þess að L væri fyrrverandi alþingismaður en ummælin sem málið varðaði lytu þó ekki að störfum hans á vettvangi stjórnmálanna. Allt að einu yrði ekki fram hjá því litið að hann væri þjóðþekktur einstaklingur. Þá athugaðist að ummælin lutu að framgöngu L í trúnaðarstarfi sem hann gegndi á grundvelli skipunar Samkeppniseftirlitsins þótt hann hefði ekki sjálfur að öðru leyti átt þátt í að fjölmiðlar hefðu hafið umfjöllun um hana. Að framangreindu gættu var öllum kröfum L hafnað.

Landsréttur birt 4. mars 2022

149/2021

A (Björgvin Jónsson lögmaður, Þorgils Þorgilsson lögmaður, 4. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

A var handtekinn, úrskurðaður í gæsluvarðhald og síðar vistaður á öryggisgangi fangelsisins að Litla-Hrauni vegna gruns um aðild að stórfelldri líkamsárás í fangelsinu. Með dómi Hæstaréttar 9. mars 2017 var A sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í málinu. Í kjölfarið höfðaði A mál gegn Í og krafðist miskabóta vegna vistunar hans á öryggisdeild, framkvæmdar hennar og nánar tilgreindra ummæla er höfð voru eftir forstjóra Fangelsismálastofnunar í fjölmiðlum. A hélt því fram að ummælin hefðu verið ærumeiðandi í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og gert forstjórann og forstöðumann fangelsisins vanhæf til að taka ákvarðanir um málefni hans. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, var rakið að ákvörðun um vistun A á öryggisdeild sem og síðari framlenging hennar hafi átt sér fullnægjandi stoð í þágildandi lögum nr. 49/2005 um fullnustu refsinga. Ekki var talið liggja fyrir að aðstæður réttlættu ekki slíka ákvörðun. Hvorki var talið sýnt fram á að brotið hafi verið gegn andmælarétti A, rannsóknar-, meðalhófs- eða jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, né að ákvörðun um vistunina hafi falið í sér agaviðurlög í skilningi laga nr. 49/2005. Þá var talið ósannað að framkvæmd og tilhögun vistunarinnar hafi verið ólögmæt svo að bótaskyldu varðaði. Jafnframt var talið ósannað að forstjóri Fangelsismálastofnunar hafi gert sig vanhæfan í málefnum A með ummælum sínum í fjölmiðlum. Þá hafi ummælin ekki falið í sér ólögmæta meingerð gagnvart æru og persónu A. Var Í því sýknað af kröfum A.

Landsréttur birt 4. mars 2022

726/2020

Elías Halldór Ágústsson (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður, Sara Pálsdóttir lögmaður, 4. prófmál)

A höfðaði mál gegn E og krafðist miskabóta og ómerkingar tiltekinna ummæla sem E hafði uppi í athugasemdakerfum fjölmiðla. Í dómi Landsréttar voru rakin ákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs auk þess sem skírskotað var til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu um viðmið um til hvers beri að líta þegar rétturinn til tjáningarfrelsis er veginn andspænis friðhelgi einkalífs. Litið var til þess að þau ummæli sem deilt var um í málinu hafi fallið í samhengi við þjóðfélagsumræðu um stöðu erlendra foreldra, tálmanir, kynbundið ofbeldi og fleira og hafi þau atriði átt erindi við almenning. A hefði sjálfur svo afgerandi teldist tekið þátt í þjóðfélagsumræðu um framangreind málefni, bæði með þátttöku í viðtölum og ummælum í athugasemdakerfum fjölmiðla þar sem hann fjallaði meðal annars um einkamálefni sín og annarra. Í ljósi þeirrar þátttöku og framgöngu þyrfti A að þola skertari einkalífsvernd en ella. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna þótti ekki unnt að leggja til grundvallar að E hefði ekki verið í góðri trú um réttmæti þess sem hann tjáði sig um. Þá þóttu fyrirliggjandi gögn ekki benda til þess að þau ummæli sem deilt var um hafi vegið þungt við þann mannorðshnekki sem A taldi sig hafa orðið fyrir. Að virtum atvikum málsins í heild og með hliðsjón af 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu var talið að of miklar hömlur væru settar á tjáningarfrelsi E væri honum neitað að tjá sig með þeim hætti sem hann gerði. Var E því sýknaður af kröfum A.

Hæstiréttur birt 9. febrúar 2022

38/2021

Reynir Traustason (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Arnþrúði Karlsdóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

R krafðist ómerkingar tveggja nánar tiltekinna ummæla sem A viðhafði í útvarpsþætti á útvarpsstöðinni Útvarp Saga 5. desember 2018. Þá gerði R kröfu um að A yrði gert að greiða sér miskabætur vegna þeirra. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að umræða um mikilvæg þjóðfélagsmál nyti aukinnar verndar tjáningarfrelsis. Ekki væri dregið í efa að ummæli A væru framlag til opinberrar umræðu um málefni er gæti varðað samfélagið miklu og væri henni játað rúmt frelsi til tjáningarinnar. Það leiði af hinu rýmkaða tjáningarfrelsi í opinberri umræðu að einstaklingar sem hefðu haslað sér völl á því sviði kunni að verða að þola harðari ummæli um sig en aðrir borgarar að því leyti sem umræðan teljist eiga erindi við almenning. Gagnrýni á störf fjölmiðlamanna kunni þannig að vera hörð og óvægin án þess að hún sæti takmörkunum. Þá kom fram í dómi réttarins að ummæli A hefðu lotið að störfum R sem fjölmiðlamanns. R hefði verið ögrandi í störfum sínum sem fjölmiðlamaður í áratugi og meðal annars ritað bók um þau störf sín. R hefði ítrekað verið stefnt fyrir ærumeiðingar af fólki sem teldi hann hafa gert á hlut sinn í þeim störfum og að R hefði hlotið dóm fyrir ósönn ummæli og ærumeiðandi fréttaflutning. Við heildstætt mat á ummælum A væri til þess að líta í hvaða samhengi ummælin hefðu verið viðhöfð og hvernig þau hefðu verið sett fram. Taldi rétturinn að A hefði verið að fella gildisdóm um störf R sem ekki skorti með öllu stoð í staðreyndum. Þótt ummælin hefðu verið óvægin var ekki talið að A hefði farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis síns. Var A því sýknuð af kröfum R.

Landsréttur birt 4. febrúar 2022

196/2021

A (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður) gegn B (enginn)

Með dómi héraðsdóms var fallist á dómkröfu A um að tilgreind ummæli sem B birti á samskiptamiðlinum Facebook yrðu dæmd dauð og ómerk. Þá var B gert að greiða A 300.000 krónur í miskabætur en kröfu A um að B yrði gerð refsing var aftur á móti hafnað. Með áfrýjun sinni til Landsréttar leitaði A endurskoðunar á ákvæði héraðsdóms um miskabætur auk þess sem gerð var krafa um að B yrði dæmdur til refsingar. Óhögguð stóð niðurstaða héraðsdóms um ómerkingu ummæla og lagagrundvöll hennar en B sótti ekki þing í málinu. Að því gættu var staðfest niðurstaða um rétt A til miskabóta úr hendi B á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Þóttu miskabætur hæfilega ákveðnar 600.000 krónur að atvikum virtum og einkum í ljósi þeirra aðdróttana B í garð A sem birtust í ummælunum og þess sem fyrir lá um afleiðingar þeirra samkvæmt gögnum málsins. Að virtri 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar og með hliðsjón af sjónarmiðum um meðalhóf og dómaframkvæmd var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna refsikröfu áfrýjanda.

Landsréttur birt 4. febrúar 2022

110/2021

B (Lúðvík Bergvinsson lögmaður) gegn A (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn B og krafðist ómerkingar þriggja nánar tilgreindra ummæla sem B viðhafði á Facebook auk miskabóta. Í dómi Landsréttar kom fram að ummæli B væru í eðli sínu fremur staðhæfingar um staðreyndir en gildisdómar. Jafnframt fælu þau í sér aðdróttun um refsiverða háttsemi af hálfu A. Gilt hefði einu þótt B hefði ekki nafngreint A í ummælum sínum enda þótti nægjanlega í ljós leitt að unnt var að persónugreina A í ummælunum. Þá hefðu upplýsingar sem lágu til grundvallar ummælunum ekki veitt B næga stoð fyrir þeim. Loks hefðu ummælin hvorki beinst að opinberri persónu né verið neins konar framlag til almennrar þjóðfélagsumræðu. Ummælin voru því talin fela í sér brot gegn 235. gr. og 2. mgr. 236. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þau dæmd dauð og ómerk, sbr. 1. mgr. 241. gr. sömu laga. Var B gert að greiða A 100.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. janúar 2022

S-3895/2021

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot og stórfelldar ærumeiðingar í nánu sambandi. Var hann dæmdur í fangelsi í þrjú ár og níu mánuði og til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 17. desember 2021

633/2020

A (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður, Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður, 4. prófmál) gegn Helga Seljan Jóhannssyni og Ríkisútvarpinu ohf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur R ohf. og HSJ, fréttamanni á R ohf., og krafðist ómerkingar á nánar tilteknum ummælum í 11 liðum sem féllu í fréttaskýringaþættinum Kastljósi auk þess sem hann krafðist þess að R ohf. yrði gert að birta og fjalla um forsendur og niðurstöður dómsins á íslensku og á pólsku. Lutu ummælin að meintri refsiverðri háttsemi A í garð fyrrum eiginkonu hans og barna. Í dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að ummælin hefðu fallið í umræðu um úrræðið nálgunarbann, framkvæmd þess, vernd brotaþola og skort á gagnsemi úrræðisins. Hefði tilgangur umfjöllunarinnar þannig ekki verið að fjalla um persónuleg málefni A sem slík heldur að draga athygli áhorfandans að málefni sem hefði samfélagslega skírskotun. Þá var rakið í dómi Landsréttar að svigrúmi fjölmiðla til að beita ögrandi framsetningu við miðlun frétta fylgdi sú krafa að þeir væru í góðri trú, byggðu á traustum grunni og störfuðu í samræmi við góða starfshætti blaðamanna með hliðsjón af dómaframkvæmd mannréttindadómstóls Evrópu. Í dómnum voru reifuð málsgögn sem lágu fyrir og renndu stoðum undir hin umstefndu ummæli, meðal annars um ítrekaðar tilkynningar fyrrverandi eiginkonu A til lögreglu vegna áreitis af hans hálfu, nálgunarbann gegn A sem staðfest var í Hæstarétti og vísbendingar um að A hafi falsað undirskrift konunnar á tilteknum skjölum. Þannig var talið að umfjöllunin hefði verið byggð á nægilega traustum staðreyndalegum grundvelli og hefði auk þess verið sett fram með óhlutdrægum hætti. Með hliðsjón af framangreindu var niðurstaða héraðsdóms um sýknu R ohf. og HSJ staðfest.

Hleð fleiri dómum…