Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

15 dómar fundust

Lykilorð: Skilorð að hluta

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. maí 2026 kl. 9:48

S-5909/2025

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari) gegn Kyle Andrew Tayag (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir nauðgun með því að hafa án samþykkis og með ólögmætri nauðung haft önnur kynferðismök en samræði við brotaþola. Ákærði var dæmdur í fangelsi í tvö ár en hluti refsingarinnar var skilorðsbundinn vegna mikilla tafa á málsmeðferðinni. Þá var hann dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 17. apríl 2026 kl. 3:28

S-121/2026

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður) (Geir Gestsson réttargæslumaður) (Geir Gestsson lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, húsbrot og vændiskaup. Ákærði dæmdur til að greiða miska- og skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. febrúar 2026

S-482/2026

Héraðssaksóknari (Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi) gegn Robert Gomer Grochola (Stefán Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 20 mánaða fangelsi, þar af 17 mánuði skilorðsbundið í tvö ár, og til þess að sæta upptöku fíknefna og muna fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. febrúar 2026

S-2907/2025

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ólafur Freyr Frímannsson lögmaður) (Áslaug Lára Lárusdóttir réttargæslumaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður) (Saga Ýrr Jónsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Akærði sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gegn nokkrum stúlkum með skilaboðum á Snapchat og brot á barnaverndarlögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. mars 2024

S-5656/2023

Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Eliner Duro (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni og brot gegn útlendingalögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2022

S-2789/2021

Ákæruvaldið (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Róberti Birgi Gíslasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) (Reynir Þór Garðarsson lögmaður einkaréttarkröfu)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt og sýkna að hluta fyrir brot gegn valdstjórninni. Einnig sakfellt fyrir þjófnaði og endurtekinn akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna o.fl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. desember 2021

S-3223/2021

Ákæruvaldið (Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jónas Þór Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt fyrir kynferðisbrot og hótun. Sýknað af broti í opinberu starfi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. október 2021

S-678/2021

Héraðssaksóknari (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Halldóri Hlíðari Bergmundssyni (Almar Þór Möller lögmaður) og Ingþóri Guðlaugssyni (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærðu sakfelldir fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt og lögum um bókhald en sýknaðir af hegningarlagabrotum.

Hæstiréttur birt 31. janúar 2002

413/2001

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Gunnari Gunnarssyni (Sigurður Georgsson hrl)
Málaflokkur: Barnaréttur

G var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa í skála Útivistar í Básum í Þórsmörk þuklað stúlkuna X, fædda árið 1989, innanklæða á baki, maga og nálægt kynfærum. Var brotið talið varða við síðari málslið 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 40/1992. G krafðist þess aðallega að héraðsdómur yrði ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar. Til vara krafðist hann sýknu. Var ómerkingarkrafa G byggð á því að skýrslutaka af X í Barnahúsi hefði ekki verið í samræmi við meginreglur réttarfars. Ekkert var talið hafa komið fram sem benti til annars en að umrætt þinghald í héraði og skýrslutaka hefði verið í fullu samræmi við ákvæði laga um meðferð opinberra mála og reglur settar samkvæmt þeim. Því þóttu ekki efni til að taka til greina kröfu ákærða um ómerkingu og heimvísun héraðsdóms. Þá var talið sannað að G hefði áreitt X umrætt sinn með þeim hætti sem greindi í ákæru. Var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða X 250.000 krónur í miskabætur.